AI assistant
Arion Banki — Proxy Solicitation & Information Statement 2021
Feb 3, 2021
2189_rns_2021-02-03_ea3aa4b0-3a5a-446a-8f07-de4ad7543521.html
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Tilkynning frá tilnefningarnefnd Arion banka
Tilkynning frá tilnefningarnefnd Arion banka
Aðalfundur Arion banka verður haldinn 16. mars nk. klukkan 16:00.
Tilnefningarnefnd Arion banka gegnir ráðgefandi hlutverki þegar kemur að kjöri til stjórnar bankans. Á þeim hluthafafundum þar sem kjör stjórnarmanna er á dagskrá leggur nefndin fram rökstuddar tillögur varðandi þá frambjóðendur sem hún telur best til þess fallna að taka sæti í stjórn bankans. Nánari upplýsingar um hlutverk tilnefningarnefndar og starfsreglur nefndarinnar má finna á vef Arion banka.
Tilnefningarnefnd Arion banka óskar eftir framboðum til stjórnar Arion banka sem kjörin verður á aðalfundi bankans þann 16. mars nk. Senda þarf umsókn til nefndarinnar fyrir klukkan 16:00 þann 26. febrúar nk. Nefndin mun birta tilnefningar sínar þann 4. mars.
Frambjóðendur sem vilja skila inn framboði til tilnefningarnefndar eru beðnir um að fylla út sérstakt eyðublað sem finna má á vef bankans og senda til tilnefninganefndar á netfangið [email protected].
Athugið að störf tilnefningarnefndar og skilafrestur umsókna til hennar takmarka ekki rétt frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar bankans áður en almennur framboðsfrestur rennur út, sem er fimm (5) dögum fyrir aðalfund bankans, þ.e. klukkan 16:00 þann 11. mars 2021.
Viðhengi: