Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Arion Banki Proxy Solicitation & Information Statement 2021

Mar 15, 2021

2189_rns_2021-03-15_40efe32f-115b-409f-a9e0-c1404454e7bc.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

{# SEO P0-1: filing HTML is rendered server-side so Googlebot sees the full text without executing JS or following an iframe to a Disallow'd CDN path. The content has already been sanitized through filings.seo.sanitize_filing_html. #}

U

Stjórn Arion banka hf.
V.t. Brynjólfur Bjarnason, formaður stjórnar
Borgartúni 19
105 Reykjavík

Reykjavík, 15. mars 2021

Efni: Aðalfundur Arion banka hf. 16. mars 2021 – dagskrárliður 6

Með vísan í kauphallartilkynningu um aðalfund Arion banka hf. óskar Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LV) eftir því að eftirfarandi breytingartillaga verði tekin fyrir við 6. dagskrárlið aðalfundar sem haldinn verður 16. mars 2021.

Breytingartillaga LV:

„Lagt er til að mánaðarlaun stjórnarmanna verði kr. 490.900, mánaðarlaun varaformanns verði kr. 736.200 en mánaðarlaun stjórnarformanns verði kr. 981.400. Stjórnarmenn búsettir erlendis skulu fá endurgreiddan útlagðan kostnað fyrir ferðalög vegna stjórnarfunda sem þeir sækja í eigin persónu, þó að hámarki kr. 300.000 fyrir hvern fund.

Þar að auki verði heimilt að greiða þeim stjórnarmönnum sem sitja í stjórnarnefndum félagsins að hámarki kr. 196.300 á mánuði fyrir setu í hverri nefnd og formönnum stjórnarnefnda kr. 255.000 á mánuði. Stjórnarlaun varamanna verði kr. 248.600 fyrir hvern setinn fund, þó að hámarki kr. 490.900 á mánuði, ef um fleiri en einn fund er að ræða á mánuði.

Stjórnarmenn búsettir erlendis skulu fá ofangreindar fjárhæðir greiddar í viðeigandi heimagjaldmiðli, miðað við meðaltal opinbers viðmiðunargengis síðustu þriggja ára fyrir aðalfundardag 2021.“

Tillaga LV felur í sér eftirfarandi breytingar frá fyrirliggjandi tillögu:

„Lagt er til að mánaðarlaun stjórnarmanna verði kr. 490.900, mánaðarlaun varaformanns verði kr. 736.200 en mánaðarlaun stjórnarformanns verði kr. 981.400. Stjórnarmenn búsettir erlendis skulu fá endurgreiddan útlagðan kostnað fyrir ferðalög vegna stjórnarfunda sem þeir sækja í eigin persónu, þó að hámarki kr. 300.000 fyrir hvern fund.

Þar að auki verði heimilt að greiða þeim stjórnarmönnum sem sitja í stjórnarnefndum félagsins að hámarki kr. 196.300 á mánuði fyrir setu í hverri nefnd og formönnum stjórnarnefnda kr. 255.000 á mánuði. Stjórnarlaun varamanna verði kr. 248.600 fyrir hvern setinn fund, þó að hámarki kr. 490.900 á mánuði, ef um fleiri en einn fund er að ræða á mánuði.

Lifeyrissjóður verzlunarmanna [email protected] 580 4000 Kringlunni 7, 103 Reykjavík

live.is


L

Stjórnarmenn búsettir erlendis skulu fá ofangreindar fjárhæðir greiddar í viðeigandi heimagjaldmiðli, miðað við meðaltal opinbers viðmiðunargengis síðustu þriggja ára fyrir aðalfundardag 2021."

Greinargerð með tillögu:

Breytingartillaga LV varðar þóknun til stjórnarmanna og laun nefndarmanna og felur í sér að laun stjórnarmanna, sem búsettir eru hérlendis, verða óbreytt frá samþykkt aðalfundar 2020 auk þess sem horfið er frá greiðslu tvöfaldra stjórnarlauna til stjórnarmanna sem búsettir eru erlendis. Laun nefndarmanna verða einnig óbreytt frá samþykkt aðalfundar 2020. Útlagður ferðakostnaður erlendra stjórnarmanna verði greiddur en þó að hámarki kr. 300.000 fyrir hvern stjórnarfund.

Við mat á fjárhæð stjórnarlauna horfir LV m.a. til eðlilegs umfangs og eðlis rekstrar og ábyrgðar líkt og fram kemur í hluthafastefnu LV. Í tilviki Arion banka hf. er horft til sambærilegra starfseininga hérlendis og í því ljósi lagt til að stjórnarlaun verði óbreytt og að ekki verði gerður greinarmunur á fjárhæð eftir búsetu stjórnarmanns.

Tillagan felur jafnframt í sér greiðslu útlagðs kostnaðar vegna ferðalaga erlendra stjórnarmanna í tengslum við stjórnarfundi félagsins, þó að hámarki kr. 300.000 fyrir hvern fund.

Virðingarfyllst,

f.h. Lífeyrissjóðs verzlunarmanna,

img-0.jpeg

Arne Vagn Olsen,
forstöðumaður eignastýringar

Lífeyrissjóður verzlunarmanna [email protected] 580 4000 Kringlunni 7, 103 Reykjavík
live.is