AI assistant
Arion Banki — Proxy Solicitation & Information Statement 2020
Mar 14, 2020
2189_rns_2020-03-14_a797c6c1-c0dd-4350-8568-40c32b6d66b1.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
EFTIRTALDIR ADILAR ERU Í FRAMBODI TIL TILNEFNINGARNEFNDAR ARION BANKA Á ADALFUNDI BANKANS SEM HALDINN VERDUR 17. MARS 2020.
Július Porfinnsson. Július er fæddur árið 1965 og er búsettur á Íslandi. Július er með B.S. gráðu í viðskiptafræði. Július hefur verið framkvæmdastjóri Stoða hf. frá árinu 2010 auk þess sem hann á sæti í nokkrum íslenskum einkahlutafélögum. Hann átti sæti í stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar 2010-2014 og Nordicom A/S 2011-2016 auk þess sem hann sinnti ráðgjafarstörfum fyrir ýmis félög. Július hefur ekki unnið beint fyrir Arion banka, en hann veitti ráðgjafarþjónustu til félags sem að hluta til var í eigu Arion banka á árunum 2015-2016. Hann er ekki hluthafi í bankanum.
Július hefur lýst því yfir að hann sé óháður félaginu í skilningi leiðbeiningarreglna um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar eru út af Viðskiptaráði, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland, 5. útgáfa, maí 2015.
Sam Taylor. Sam er fæddur árið 1982 og er búsettur í Bretlandi. Sam útskrifaðist í nútimasögu (e. Modern History) frá University of Oxford árið 2004 og öðlaðist lögmannsréttindi í Englandi og Wales árið 2009. Í dag starfar Sam sem Associate General Counsel hjá Taconic Capital. Sam hóf störf hjá Taconic árið 2014 og starfar á sviði lánamála og stefnumótunar sérstakra eigna félagsins innan Evrópu, sem m.a. tekur til 23,5% eignarhlutar Taconic í Arion banka og eignarhlutar félagsins í Kaupthingi í gegnum fjölda tengdra fjárfestingasjóða. Í starfi sínu hjá Taconic hefur Sam tekið þátt í og verið ráðgefandi í fjölda fjárfestinga félagsins innan Evrópu, með áherslu á framkvæmd viðskipta og eftirlit, og hefur auk þess gengt mikilvægu hlutverki, ásamt fjárfestingarteymi Taconic, í að meta og bæta stjórnir og stjórnarhætti bæði skráðra og óskráðra félaga. Sam starfaði áður hjá Simson Thacher & Bartlett LLP og Linklaters LLP. Sam hefur ekki unnið beint fyrir Arion banka og er ekki hluthafi í bankanum.
Sam hefur lýst því yfir að hann sé óháður félaginu en háður stórum hluthöfum í félaginu, Taconic Capital Advisors UK LLP, í skilningi leiðbeiningarreglna um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar eru út af Viðskiptaráði, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland, 5. útgáfa, maí 2015.