Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Arion Banki Proxy Solicitation & Information Statement 2019

Jul 12, 2019

2189_rns_2019-07-12_b7b23d74-f2cf-46ac-b000-0555e8a4306c.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

★★

Boðun til hluthafafundar í Arion banka hf.

Hluthafafundur í Arion banka hf., kt. 581008-0150, verður haldinn í höfuðstöðvum bankans að Borgartúni 19, 105 Reykjavík, þann 9. ágúst 2019, kl. 16:00. Fundurinn fer fram á íslensku, en boðið verður upp á túlkaþjónustu á ensku.

Eftirtalin mál eru á dagskrá fundarins

  1. Breyting á stjórn bankans
    Kosning tveggja nýrra stjórnarmanna sem starfi fram að næsta aðalfundi

  2. Breyting á tilnefningarnefnd
    Kosning eins nýs nefndarmanns í tilnefningarnefnd sem starfi fram að næsta aðalfundi

  3. Önnur mál

Framboðsupplýsingar

Kosning tveggja nýrra stjórnarmanna í stjórn bankans

Þeir einstaklingar sem hyggjast gefa kost á sér í stjórnarkjöri skulu með skriflegum hætti tilkynna félagsstjórn um framboð fyrir kl. 16:00 þann 4. ágúst 2019 á netfangið [email protected]. Notast skal við framboðseyðublað sem er að finna á vefsíðu bankans www.arionbanki.is/gm.

Tilnefningarnefnd mun gera tillögu til hluthafa um framboð til stjórnar sem mun byggjast á tillögum hluthafa og framkomnum framboðum og verður hún birt á vefsíðu bankans www.arionbanki.is/gm ásamt öðrum framboðum eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir fundinn. Frá sama tíma verður hún aðgengileg í höfuðstöðvum bankans.

Kosning eins nefndarmanns í tilnefningarnefnd bankans

Einstaklingar sem hyggjast gefa kost á sér í nefndarkjöri skulu tilkynna um framboð fyrir kl. 16:00 þann 4. ágúst 2019 á netfangið [email protected]. Notast skal við framboðseyðublað sem er að finna á vefsíðu bankans www.arionbanki.is/gm.

Upplýsingar um frambjóðendur í tilnefningarnefnd verða birtar á vefsíðu bankans www.arionbanki.is/gm eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir fundinn og verða þær aðgengilegar í höfuðstöðvum bankans frá þeim tíma.

Almennar upplýsingar

Fundurinn verður pappírslaus. Endanleg dagskrá, fundarboðun, tillögur og önnur fundargögn þ.á m. framboðs- og umboðseyðublöð verða að finna á vefsíðu bankans www.arionbanki.is/gm og verða einnig aðgengileg í höfuðstöðvum bankans. Ensk þýðing fundargagna verður aðgengileg hluthöfum

Arion Banki hf. • Höfuðstöðvar • Borgartúni 19 • 105 Reykjavík • Sími 444 7000 • Kt. 581008-0150
arionbanki.is


Arion Banki hf. • Hőfűőstőővar • Borgartúni 19 • 105 Reykjavík • Sími 444 7000 • Kt. 581008-0150
arionbanki.is

á vefsiðu bankans www.arionbanki.is/gm. Sé misræmi milli fundargagna á ensku annars vegar og íslensku hins vegar, gildir íslenska útgáfan.

Þeir hluthafar sem óska eftir því að fá tiltekið mál tekið til meðferðar á hluthafafundinum, skulu senda skriflega eða rafræna beiðni um slíkt í síðasta lagi tíu sólarhringum fyrir boðaðan hluthafafund, eða í síðasta lagi fyrir kl. 16:00 þann 30. júlí 2019. Kröfu skal fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun til félagsstjórnar. Heimilt er að senda slíka kröfu til félagsstjórnar á netfangið [email protected].

Á hluthafafundinum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé en heildarhlutafé er kr. 1.814.000.000. Eigin bréf bankans njóta ekki atkvæðisréttar.

Þeim hluthöfum sem ekki hyggjast mæta á hluthafafundinn, er gefinn kostur á því að greiða atkvæði með rafrænum hætti. Nánari upplýsingar um framkvæmd rafrænnar atkvæðagreiðslu utan hluthafafundar er að finna á vefsiðu bankans www.arionbanki.is/gm. Sérstök athygli er vakin á því að u.þ.b. fimm virka daga getur tekið að fá sent lykilorð í pósti og hluthöfum því bent á að sækja um lykilorð tímanlega.

Hluthöfum er heimilt að láta umboðsmann sækja hluthafafund og fara þar með atkvæðisrétt fyrir sína hönd. Í slíkum tilvikum skal umboðsmaður leggja fram skriflegt eða rafrænt, dagsett umboð í upphafi fundar. Umboðið gildir einungis til fundarsetu á einum hluthafafundi nema annað sé skýrlega tekið fram í efni umboðsins, en getur þó aldrei gilt lengur en í eitt ár frá dagsetningu þess. Á vefsiðu bankans er að finna form af umboði. Til að greiða fyrir skráningu er unnt að senda umboð á netfangið [email protected] fyrir fundinn.

Hluthafar og/eða fulltrúar þeirra eru beðnir um að gefa sig fram við starfsmenn fundarins og skrá mætingu sína (óskað er eftir að aðilar hafi skilríki meðferðis). Skráning og afhending atkvæðaseðla hefst á fundarstað frá kl. 15:30 á fundardegi.

Tilkynning til eigenda SDR heimildarskírteina

Swedish Depository Receipts (SDR) heimildarskírteinishafar, sem hafa hug á því að mæta á hluthafafundinn eða greiða þar atkvæði samkvæmt umboði skulu:

I. Vera skráðir í skrá Euroclear Sweden AB („Euroclear“) fyrir kl. 17:00 (CET) þann 2. ágúst 2019;
II. Tilkynna Skandinaviska Enskilda Banken AB („SEB“) í síðasta lagi kl. 12:00 (CET) þann 2. ágúst 2019 þar um, eða
III. Senda frumrit umboðs til SEB en það þarf að hafa borist SEB eigi síðar en kl. 12:00 (CET) þann 2. ágúst 2019.

Vinsamlegast athugið að skilyrði I. að ofan skal vera uppfyllt á því tímamarki sem eigandi SDR heimildarskírteinis hyggst mæta á hluthafafundinn eða greiða atkvæði samkvæmt umboði.


Arion Banki hf. • Hőfűőstőővar • Borgartúni 19 • 105 Reykjavík • Sími 444 7000 • Kt. 581008-0150
arionbanki.is

Skilyrői I: SDR heimildarskírteini eru eingöngu skráð á nafn SDR heimildarskírteinishafa í skrá Euroclear. Eigendur SDR heimildarskírteina sem eru safnskráð skulu hafa SDR heimildarskírteini sín skráð á nafn sitt í skrá Euroclear til þess að þeim sé heimilt að mæta á fundinn eða greiða atkvæði (samkvæmt umboði eða í eigin persónu) á hluthafafundinum. Handhafar SDR heimildarskírteina sem skráð eru safnskráningu skulu því óska eftir því við viðkomandi vörsluaðila að þeir verði tímabundið skráðir eigendur heimildarskírteinanna (skráning til þess að njóta atkvæðisréttar) tímanlega fyrir atkvæðisréttindadag, sem er þann 2. ágúst 2019, hafi þeir hug á því að mæta eða greiða atkvæði.

Skilyrői II: Eigendur SDR heimildarskírteina sem skráðir eru í skrá Euroclear, eða þeir sem óskað hafa eftir skráningu til þess að njóta atkvæðisréttar fyrir kl. 17:00 (CET) þann 2. ágúst 2019, og hyggjast mæta á fundinn (samkvæmt umboði eða í eigin persónu) skulu tilkynna SEB þar um eigi síðar en kl. 12:00 (CET) þann 2. ágúst 2019.

Tilkynning eigenda SDR heimildarskírteina skal berast SEB skriflega stílUð á SEB, Issuer Agent, AB3, SE-106 40 Stokkhólmi, með tölvupósti á netfangið [email protected], í síma +46-8-763 55 60 eða með faxi í +46-8-763 62 50. Eigendur eru vinsamlegast beðnir að tilgreina nafn sitt, símanúmer, kennitölu og fjölda heimildarskírteina.

Skilyrői III: Eigendur SDR heimildarskírteina, sem hyggjast óska eftir því að SEB greiði atkvæði fyrir þeirra hönd samkvæmt umboði, skulu senda frumrit undirritaðs umboðs með pósti eða boðsendingu þannig að það berist til SEB, Issuer Agent, AB3, SE-106 40, Stokkhólmi, heimilisfang fyrir boðsendingar (t.d. DHL Express): Råsta Strandväg 5 169 79 Solna, eigi síðar en kl. 12:00 (CET) þann 2. ágúst 2019. Form af umboðum verða aðgengileg á heimasíðu bankans www.arionbanki.is/gm.

Tímabundin takmörkun á yfirfærslu SDR heimildarskírteina í hluti:

Frá og með lokun markaða 2. ágúst 2019 til og með 13. ágúst 2019 verður óheimilt að yfirfæra SDR heimildarskírteini í eða úr hluti í Arion banka hf.

Allar nánari upplýsingar um fundinn má finna á vefsíðu bankans www.arionbanki.is/gm.

Reykjavík, 12. júlí 2019

Stjórn Arion banka hf.