Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Arion Banki Proxy Solicitation & Information Statement 2019

Aug 6, 2019

2189_rns_2019-08-06_8fa90bd0-acbc-4b01-a955-e4c6af69fb66.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Trillögur til hluthafa Arion banka hf.
Hluthafafundur 9. ágúst 2019

Hluthafafundur í Arion banka hf. verður haldinn þann 4. ágúst 2019 í höfuðstöðvum bankans að Borgartúni 19, 105 Reykjavík og hefst hann kl. 16:00 að íslenskum tíma. Þegar boðað er til fundarins er farið með atkvæði fyrir 1.813.793.618 hluti.

Tillögur:

  1. Breyting á stjórn bankans

Stjórn bankans hefur ákveðið að kosning tveggja nýrra stjórnarmanna, sem skulu starfa fram að næsta aðalfundi bankans, fari fram á hluthafafundinum. Annar aðilinn mun koma í stað stjórnarmanns sem lét af störfum áður en kjörtímabili hans lauk, sbr. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög.

Þeir einstaklingar sem hyggjast gefa kost á sér í stjórnarkjöri skulu með skriflegum hætti tilkynna félagsstjórn um framboð fyrir kl. 16:00 þann 4. ágúst 2019 á netfangið [email protected]. Notast skal við framboðseyðublað sem er að finna á vefsíðu bankans www.arionbanki.is/gm.

Tilnefningarnefnd mun gera tillögu til hluthafa um framboð til stjórnar sem mun byggjast á tillögum hluthafa og framkomnum framboðum og verður hún birt á vefsíðu bankans www.arionbanki.is/gm ásamt öðrum framboðum eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir fundinn. Frá sama tíma verður hún aðgengileg í höfuðstöðvum bankans.

  1. Breyting á tilnefningarnefnd

Stjórn bankans hefur ákveðið að kosning eins nýs nefndarmanns í tilnefningarnefnd, sem starfi fram að næsta aðalfundi bankans, í stað nefndarmanns sem óskað hefur eftir að láta af störfum áður en kjörtímabili hans líkur, skuli fara fram.

Þeir einstaklingar sem hyggjast gefa kost á sér í nefndarkjöri skulu með skriflegum hætti tilkynna félagsstjórn um framboð fyrir kl. 16:00 þann 4. ágúst 2019 á netfangið [email protected]. Notast skal við framboðseyðublað sem er að finna á vefsíðu bankans www.arionbanki.is/gm. Upplysingar um frambjóðendur til tilnefningarnefndar verða birtar á vefsíðu bankans www.arionbanki.is/gm eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir hluthafafundinn og verða þær aðgengilegar í höfuðstöðvum bankans frá þeim tíma.

Arion Banki hf. • Höfuðstöðvar • Borgartúni 19 • 105 Reykjavík • Sími 444 7000 • Kt. 581008-0150
arionbanki.is


Arion Banki hf. • Höfuðstöðvar • Borgartúni 19 • 105 Reykjavík • Sími 444 7000 • Kt. 581008-0150
arionbanki.is

  1. Önnur mál

Tillaga að ályktun til félagsstjórnar frá Rúnari Einarssyni, hluthafa

Hluthafafundur Arion banka hf. ályktar eftirfarandi til félagsstjórnar:

  1. Hætt verði að gera kaupaukasamninga, framvirka hlutafjárssamninga við æðstu stjórnendur og öll önnur bónuskerfi verði afnumin. Þetta á ekki við um bónusa sem ganga til allra starfsmanna bankans og hafa óverulegt verðmæti.

  2. Framvegis verði öll störf bankans þar sem laun eru yfir 1 milljón auglýst og umsækjendur látnir setja fram launakröfur með umsókn í lokað umslag. Hæfnisnefnd verði látn fara yfir umsóknir og sá umsækjandi sem uppfyllir allar kröfur sem farið er fram á í umsókn og jafnframt óskar eftir lægstu laununum verði ráðinn í starfið.

Báðar þessar hugmyndir ganga út á að lækka kostnað bankans og auka þar með hagnað hluthafa þannig að hægt verði að greiða hærri arðgreiðslur.