AI assistant
Arion Banki — Management Reports 2021
Dec 16, 2021
2189_rns_2021-12-16_da4d3705-dbe6-4240-bc8c-c607c720f02f.html
Management Reports
Open in viewerOpens in your device viewer
Arion banki: Uppfærð fjárhagsleg markmið
Arion banki: Uppfærð fjárhagsleg markmið
Stjórn Arion banka hefur samþykkt ný fjárhagsleg markmið bankans í kjölfar uppfærslu á 5 ára viðskiptaáætlun. Breytingarnar má sjá í meðfylgjandi töflu.
Fjárhagsleg markmið uppfærð í desember 2021
| Var áður | Uppfærð markmið | |
| Arðsemi eigin fjár | >10% | >13% |
| Rekstrartekjur / áhættuvegnar eignir | >6,7% | >7,3% |
| Vöxtur tryggingaiðgjalda | - | Vöxtur eigin iðgjalda verði meira en 3 prósentustigum hærri en vöxtur innlends tryggingamarkaðar |
| Lánavöxtur | Lánavöxtur sé í takt við vöxt í efnahagslífinu á næstu árum. Áætlað er að íbúðarlánavöxtur verði meiri en vöxtur fyrirtækjalána | Í takt við hagvöxt (nafnvöxt) |
| Kostnaðarhlutfall | <45% | <45% |
| Hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 | ~17% | ~17% |
| Arðgreiðslustefna* | 50% | 50% |
Fjárhagsleg markmið eru endurskoðuð árlega og horft er til allt að þriggja ára
* Arðgreiðsluhlutfall í kringum 50% af hagnaði til hluthafa annað hvort með arðgreiðslum eða endurkaupum á hlutabréfum bankans eða hvorutveggja. Viðbótarútgreiðslur verða skoðaðar þegar eigið fé bankans er umfram kröfur eftirlitsaðila að viðbættum stjórnendaauka bankans.
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:
Theodórs Friðbertssonar, forstöðumanns fjárfestatengsla Arion banka, [email protected], s. 856 6760 eða Haraldar Guðna Eiðssonar, forstöðumanns samskiptasviðs, [email protected], s. 856 7108.
Tilkynning þessi er eingöngu ætluð til upplýsinga og er ekki ætluð sem grundvöllur fyrir ákvörðunum móttakanda. Upplýsingar sem fram koma í þessari tilkynningu fela ekki í sér loforð eða spá um framtíðina. Upplýsingar gætu verið grundvallaðar á ályktunum eða markaðsaðstæðum og geta breyst án fyrirvara. Bankinn, þ.m.t. hluthafar, stjórnendur, starfsmenn og ráðgjafar, taka enga ábyrgð á þeim upplýsingum, forsendum og niðurstöðum sem fram koma í tilkynningunni eða upplýsingum sem eru veittar í tengslum við hana. Munu framangreindir aðilar ekki gefa yfirlýsingar um að upplýsingarnar, forsendurnar og niðurstöðurnar séu nákvæmar, áreiðanlegar eða fullnægjandi og þeir skulu ekki bera skaðabótaábyrgð á tjóni sem rekja má til þess að þær reynist ónákvæmar, óáreiðanlegar eða ófullnægjandi.
Viðhengi: