AI assistant
Arion Banki — M&A Activity 2021
Jul 1, 2021
2189_rns_2021-07-01_99604e9c-efa5-48cd-bd2a-26288a6d5cbe.pdf
M&A Activity
Open in viewerOpens in your device viewer
Fréttatilkynning
01 July 2021 14:28:00 GMT
Samið um kaup Rapyd á Valitor fyrir 12,3 milljarða króna
- Rapyd kom fyrst inn á íslenskan markað árið 2020
- Kaupin styrkja stöðu Rapyd á Íslandi til muna
- Ísland verður þungamiðja í starfsemi Rapyd í Evrópu
- Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki eftirlitsaðila
- Arion banki gerir ráð fyrir að færa til tekna 3,5 milljarða króna eftir skatta vegna sölunnar
Alþjóðlega fjártæknifélagið Rapyd og Arion banki hafa komist að samkomulagi um kaup Rapyd á Valitor hf. Valitor er leiðandi fyrirtæki hér á landi á sviði greiðslulausna og er kaupverð 100 milljónir bandaríkjadala eða 12,3 milljarðar íslenskra króna. Gert er ráð fyrir því að kaupin klárist í lok þessa árs en þau eru gerð með fyrirvara um samþykki eftirlitsaðila.
Áhrif viðskiptanna á fjárhag Arion banka verða jákvæð því bankinn gerir ráð fyrir að færa til tekna rúmlega 3,5 milljarða eftir skatta, sem er munur á söluverði og bókfærðu virði félagsins að frádregnum sölukostnaði. Þá áætar bankinn að umfram eigið fé hækki um 8 til 11 milljarða króna.
Valitor er vel þekkt greiðsluþjónustufyrirtæki og hefur verið leiðandi í færsluhirðingu, bæði í netgreiðslum og posaviðskiptum, sem og kortaútgáfu í Evrópu. Félagið býður upp á greiðslulausnir til söluaðila á Íslandi, Bretlandi og Írlandi og um alla Evrópu. Kaupin á Valitor munu auka vöruframboð Rapyd í Evrópu.
Viðskiptavinir Valitor munu ekki verða fyrir neinni röskun á þjónustu vegna kaupanna og eiga brátt að hafa aðgang að greiðsluleiðum og fjártæknipjónustu Rapyd sem ætlar að vinna náið með íslenskum viðskiptavinum í því skyni að greiða þeim leið að næstu kynslóð greiðslulausna og gera þeim þannig kleift að auka viðskipti sín erlendis.
Arik Shtilman, forstjóri Rapyd og stofnandi:
„Ísland hefur í lengri tíma verið í forgrunni hvað varðar notkun á rafrænum greiðslumiðlum og nýsköpun, en hér er mikið af hæfileikaríku fólki og þróaður greiðslumarkaður. Við hyggjumst halda áfram að byggja upp starfsemi hér og halda áfram að fjárfesta á Íslandi. Við erum að gera Ísland að miðstöð greiðslumiðlunar samstæðunnar fyrir Evrópu og stefnum á að verða einn stærsti alþjóðlegi vinnuveitandi landsins“.
Arion banki hf.
Borgartúni 19, 105 Reykjavik — 444 7000 — arionbank.is — /arionbanki
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:
„Það hefur verið markmið okkar um nokkurt skeið að finna Valitor nýja eigendur sem henta félaginu vel og teljum við að það hafi tekist með þessum samningum. Rapyd er í fararbroddi þegar kemur að nýjungum og nýsköpun á sviði greiðslumiðlunar og passa félögin einstaklega vel saman og bæta í raun hvort annað upp. Ég þakka starfsfólki Valitor fyrir frábært samstarf á undanförnum árum og óska þeim velfarnaðar á þeirri spennandi vegferð sem framundan er, nú sem hluti af Rapyd samstæðunni.“
Herdís Fjeldsted, forstjóri Valitor:
„Kaup Rapyd á Valitor marka tímamót í langri sögu Valitor og greiðslumiðlunar á Íslandi. Við hjá Valitor erum full tilhlökkunar að vinna með nýju fólki, Arik og starfsfólki Rapyd, við að samþætta starfsemi félaganna og grípa þau tækifæri sem samþættingin felur í sér, bæði fyrir félagið og viðskiptavini þess.“
Um Rapyd
Rapyd er fljótlegasta leiðin til að taka við greiðslum um allan heim. Fyrirtækið auðveldar sólúaðilum að gengi að mörkuðum víðsvegar um heim. Með því að nýta fjártæknilausnir Rapyd geta sólúaðilar og viðskiptavinir þeirra notfært sér alþjóðlegar og staðbundnar greiðslulausnir á öllum mörkuðum. Rapyd býður upp á rúmlega 900 greiðslulausnir í yfir 100 löndum. Hluthafar félagsins eru m.a. Stripe, General Catalyst, Oak HC/FT, Tiger Global, Durable Capital, Target Global, og Tal Capital. Frekari upplýsingar um félagið og uppbýggingu fjártækniþjónustu félagsins má finna á www.rapyd.net, bloggi félagsins, LinkedIn eða Twitter.
Um Arion banka
Arion banki þjónar heimilum, fyrirtækjum og fjárfestum og leggur sérstaka áherslu á að uppfylla þarfir þeirra viðskiptavina sem þurfa fjölbreytta fjármálapjónustu. Þjónustusvið bankans eru þrjú: viðskiptabankasvið, fyrirtækja- og fjárfestingarbankasvið og markaðir. Dótturfélögin Stefniir og Vörður auka enn frekar þjónustuframboð bankans. Stefniir er eitt stærsta sjóðastýringafyrirtæki landsins og Vörður tryggingar býður upp á skaða- og líftryggingar og er það tryggingafélag á Íslandi sem er í hróðustum vexti. Nánari upplýsingar á www.arionbanki.is
Um Valitor
Valitor var stofnað 1983 og er alþjóðlegt greiðslulausnafyrirtæki sem hefur það meginmarkmið að auðvelda kaup og sölu á vöru og þjónustu. Nánari upplýsingar á www.valitor.is.
Ráðgjafar:
Macquarie Capital, Logos og Mörkin voru Arion banka til ráðgjafar og Gornitzky, PwC, Jakob Ásmundsson og BBA / Fjeldco voru Rapyd til ráðgjafar.
Arion banki hf.
Borgartúni 19, 105 Reykjavik — 444 7000 — arionbank.is — /arionbanki
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:
Theodórs Friðbertssonar, forstöðumanns fjárfestatengsla Arion banka, [email protected], s. 856 6760 eða Haraldar Guðna Eiðssonar, forstöðumanns samskiptasviðs, [email protected], s. 856 7108.
Þessar upplýsingar eru birtar í samræmi við upplýsingaskyldu Arion banka hf. skv. reglugerð Evrópusambandsins um markaðssvik (MAR), þann 2021-07-01 14:28 GMT.
Viðhengi
Samið um kaup Rapyd á Valitor fyrir 12,3 milljarða króna
Arion banki hf.
Borgartúni 19, 105 Reykjavik — 444 7000 — arionbank.is — /arionbanki