Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Arion Banki Earnings Release 2021

Jul 14, 2021

2189_rns_2021-07-14_212c1336-6e9f-4dad-96c9-ad34fd186e54.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Fréttatilkynning

14 July 2021 13:56:00 GMT

Arion banki: Drög að uppgjöri annars ársfjórðungs 2021 liggja fyrir – afkoma fjórðungsins nemur um 7,8 milljörðum króna

Drög að uppgjöri Arion banka fyrir annan ársfjórðung 2021 liggja nú fyrir og samkvæmt þeim er afkoma fjórðungsins um 7,8 milljarðar króna og reiknuð arðsemi á ársgrundvelli ríflega 16%. Afkoman er umtalsvert umfram fyrirliggjandi spár greiningaraðila.

Rekstrartekjur fjórðungsins nema um 15 milljörðum króna, þar af eru tekjur af kjarnastarfsemi (hreinar vaxtatekjur, hreinar þóknanatekjur og hreinar tekjur af tryggingastarfsemi) um 12 milljarðar króna og hækka um 10,5% frá öðrum ársfjórðungi 2020. Rekstrarkostnaður fjórðungsins nemur ríflega 6 milljörðum króna.

Stærsta breytingin milli ára liggur í virðisbreytingu útlána sem var jákvæð um 0,8 milljarð króna á öðrum ársfjórðungi 2021 en á sama tíma fyrir ári var virðisbreyting neikvæð um 0,9 milljarð króna og tengdist að mestu þeirri óvissu sem uppi var vegna COVID-19 faraldursins. Hreinar þóknanatekjur á öðrum ársfjórðungi 2021 námu 3,6 milljörðum króna, samanborið við 2,7 milljarða króna á sama tíma í fyrra.

Tekjuskattshlutfall fjórðungsins er 16% og afkoma af eignum til sölu er óveruleg. Í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla er samningur um sölu á Valitor hf. fyrir 12,3 milljarða króna, sem tilkynnt var um 1. júlí sl., ekki færður til bókar á öðrum ársfjórðungi.

Uppgjörið og kynningarefni fyrir annan ársfjórðung 2021 er enn í vinnslu og könnunarvinnu endurskoðenda er ekki lokið. Því kann það að taka breytingum fram að birtingardegi þann 28. júlí nk.

Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:

Eggerts Teitssonar, aðstoðarframkvæmdastjóra fjármálasviðs Arion banka, eggert. [email protected], s. 856 6215 eða Haraldar Guðna Eiðssonar, forstöðumanns samskiptasviðs, [email protected], s. 856 7108.

Þessar upplýsingar eru birtar í samræmi við upplýsingaskyldu Arion banka hf. skv. reglugerð Evrópusambandsins um markaðssvik (MAR), þann 2021-07-14 13:56 GMT.

Arion banki hf.

Borgartúni 19, 105 Reykjavik – 444 7000 – arionbank.is – @ /arionbanki


Viðhengi

Arion banki: Drög að uppgjöri annars ársfjórðungs 2021 liggja fyrir – afkoma
fjórðungsins nemur um 7,8 milljörðum króna

Arion banki hf.
Borgartúni 19, 105 Reykjavik – 444 7000 – arionbank.is – @/arionbanki