AI assistant
Arion Banki — Earnings Release 2018
Aug 2, 2018
2189_rns_2018-08-02_c1334295-0749-4a5f-9dc9-de51614db17e.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Arion banki
Afkomutilkynning 2. ágúst 2018
AFKOMA ARION BANKA Á ÖÐRUM ÁRSFJÓRÐUNGI 2018
SKRÁNING OG HLUTAFJÁRÚTBOD
Arion banki var skráður á aðalmarkaði Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm þann 15. júní sl., í kjólfar almenns útboðs, þar sem 28,7% hlutur var seldur. Eftirspurn í útboðinu var margföld og tóku fjárfestar frá Íslandi, Skandinavíu, Bretlandi, Evrópu og Bandaríkjunum þátt. Þetta er fyrsta skráning íslensks banka á aðalmarkað á Íslandi síðan 2008.
Hagnaður samstæðu Arion banka á öðrum ársfjórðungi 2018 nam 3,1 milljarði króna samanborið við 7,1 milljarð króna á sama tímabili 2017. Arðsemi eigin fjár var 5,9% á öðrum ársfjórðungi samanborið við 13,0% á sama tímabili árið 2017. Hagnaður samstæðunnar á fyrri helmingi ársins 2018 nam 5,0 milljörðum króna og arðsemi var 4,7% samanborið við hagnað 10,5 milljarða króna og arðsemi 9,7% á sama tímabili 2017.
Heildareignir námu 1.174,8 milljörðum króna í lok júní 2018 samanborið við 1.147,8 milljarða króna í árslok 2017 og eigið fé hluthafa bankans nam 206,9 milljörðum króna, samanborið við 225,6 milljarða króna í árslok 2017.
Eiginfjárhlutfall bankans var 21,9% í lok júní en var 24,0% í árslok 2017. Hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 nam 21,8% í lok júní, samanborið við 23,6% í árslok 2017.
Helstu rekstrar- og kennitölur bankans eru eftirfarandi:
| Í milljónum króna | 2F 2018 | 2F 2017 | % breyt | 1H 2018 | 1H 2017 | % breyt |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Hreinar vaxtatekjur | 7.613 | 8.160 | (7%) | 14.521 | 15.320 | (5%) |
| Hreinar þóknanatekjur | 4.492 | 3.508 | 28% | 8.034 | 6.838 | 17% |
| Hreinar fjármunatekjur | 927 | 1.975 | (53%) | 2.267 | 3.205 | (29%) |
| Hreinar tekjur af tryggingum | 758 | 606 | 25% | 901 | 1.053 | (14%) |
| Hlutdeild í afk. hlutdeildarf. og niðurfærsla | 2 | (900) | (100%) | (16) | (934) | (98%) |
| Aðrar rekstrartekjur | 610 | 1.811 | (66%) | 879 | 2.375 | (63%) |
| Rekstrartekjur | 14.402 | 15.160 | (5%) | 26.586 | 27.857 | (5%) |
| Laun og launatengd gjöld | (5.011) | (4.561) | 10% | (9.647) | (8.783) | 10% |
| Annar rekstrarkostnaður | (3.964) | (1.223) | 224% | (7.960) | (5.057) | 57% |
| Rekstrarkostnaður | (8.975) | (5.784) | 55% | (17.607) | (13.840) | 27% |
| Bankaskattur | (880) | (777) | 13% | (1.684) | (1.574) | 7% |
| Hrein virðisbreyting | (192) | 409 | (147%) | (291) | 1.289 | (123%) |
| Hagnaður fyrir skatta | 4.355 | 9.008 | (52%) | 7.004 | 13.732 | (49%) |
| Tekjuskattur | (1.287) | (1.895) | (32%) | (2.105) | (3.266) | (36%) |
| Afkoma af aflagðri starfsemi, eftir skatta | (6) | 0 | - | 112 | 0 | - |
| Hagnaður | 3.062 | 7.113 | (57%) | 5.011 | 10.466 | (52%) |
Helstu kennitölur
| Arðsemi eigin fjár | 5,9% | 13,0% | 4,7% | 9,7% |
|---|---|---|---|---|
| Hagnaður á hlut (í krónum) | 1,35 | 3,56 | 2,35 | 5,23 |
| Kostnaðarhlutfall | 62,3% | 38,2% | 66,2% | 49,7% |
Helstu efnahags- og kennitölur bankans eru eftirfarandi:
| Í milljónum króna | 30.06.2018 | 31.12.2017 | Breyt. | % breyt |
|---|---|---|---|---|
| Lán til viðskiptavina | 803.694 | 765.101 | 38.593 | 5% |
| Aðrar eignir | 371.151 | 382.653 | (11.503) | (3%) |
| Skuldir | 967.213 | 922.020 | 45.193 | 5% |
| Eigið fé | 207.631 | 225.734 | (18.103) | (8%) |
| Útlán sem hlutfall af innlánum | 168,8% | 165,5% | ||
| Áhættuvegnar eignir sem hlutfall af heildareign | 67,8% | 66,8% | ||
| Hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 | 21,8% | 23,6% |
Varðandi ítarlegar fjárhagsupplysingar vísast til árshlutareiknings samstæðu Arion banka fyrir fyrri helming ársins 2018, sem birtur er á heimasíðu bankans. www.arionbanki.is.
Afkomutilkynning
- ársfjórðungur 2018
Aftermath
HÕSKULDUR H. ÓLAFSSON, BANKASTJÓRI ARION BANKA
„Afkoma bankans á öðrum ársfjórðungi 2018 er í takt við væntingar eftir fremur erfiðan fyrsta ársfjórðung. Góður vöxtur var í hefðbundinni starfsemi bankans og jukust lán til viðskiptavina um 5% á fyrstu sex mánuðum ársins. Vaxtamunur á vaxtaberandi eignir hækkaði í 2,8% á öðrum fjórðungi úr 2,6% á þeim fyrsta og þóknanatekjur jukust um rúmlega fjórðung og tekjur af tryggingastarfsemi meira en fjórfölduðust borið saman við fyrsta ársfjórðung. Efnahagur bankans er sem fyrr sterkur sem gerir bankann vel í stakk búinn til að þjónusta sína viðskiptavini, jafnt fyrirtæki sem einstaklinga.
Það urðu tímamót þegar Arion banki var skráður á markað þann 15. júní að loknu vel heppnuðu útboði þar sem seldur var 28,7% hlutur í bankanum. Margföld umframeftirspurn var í útboðinu og var góður áhugi hjá alþjóðlegum fjárfestum, en um 70% kaupenda í útboðinu voru alþjóðlegir aðilar. Þann 15. júní var Arion banki samtímis tekinn til viðskipta hjá Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm og var skráning bankans næst stærsta skráningin í Svípjóð það sem af er ári og sú næst stærsta hér á landi frá upphafi.
Í þessu ferli öllu var ánægjulegt að verða var við áhuga innlendra og erlendra fjárfesta á bankanum og þeirri framtiðarsýn sem við höfum, sem og áhuga þeirra á íslensku efnahagsumhverfi. Vonir okkar standa til þess að góð þátttaka alþjóðlegra fjárfesta muni hafa jákvæð áhrif á fjárfestaumhverfið hér á landi til lengri tíma.
Það er ljóst að eitt af því sem vakti áhuga fjárfesta á bankanum var sterk eiginfjárstaða og möguleikar bankans til að lækka hana í nokkrum skrefum á næstu árum með arðgreiðslum eða endurkaupum á eigir bréfum. Stjórn bankans hefur nú samþykkt að leggja fyrir hluthafafund bankans, sem fram fer í september, að greiða 10 milljarða króna í arð til hluthafa fyrir lok þriðja ársfjórðungs, sem samsvarar 5 krónum á hvern hlut. Einnig höfðu fjárfestar áhuga á stöðu og þróun dótturfélags bankans, Valitor, sem starfar á sviði greiðslumiðlunar hér á landi, í Skandinaviú og í Bretlandi. Hefur bankinn nú fengið alþjóðlega ráðgjafa til liðs við sig til að meta hvernig best sé að haga framtiðareignarhaldi félagsins.
Bankinn kláraði fjögur starfræn verkefni á öðrum fjórðungi. Við teljum að árangur í bankastarfsemi framtiðarinnar muni að verulegu leyti ráðast af því hversu vel bankar ná að innleiða stafrænar lausnir í starfsemi sína. Það var okkur því ánægjuefni að fá verðlaun frá Retail Banker International fyrir stafrænt greiðslumat og íbúðalánaferli.
Jafnframt er unnið að því að koma Stakksbergi, eignarhaldsfélagi kísilverksmiðjunnar í Helguvík, í söluferli á síðari hluta ársins. Bankinn mun halda áfram að skoða hagræðingu eiginfjár og kanna möguleika á útgáfu á víkjandi skuldabréfum á síðari hluta ársins ef markaðsaðstæður leyfa.“
Aftkomutilkynning
- ársfjórðungur 2018
REKSTRARREIKNINGUR
| Í milljónum króna | 2F 2018 | 2F 2017 | % breyt | 1F 2018 | % breyt |
|---|---|---|---|---|---|
| Hreinar vaxtatekjur | 7.613 | 8.160 | (7%) | 6.908 | 10% |
| Hreinar þóknanatekjur | 4.492 | 3.508 | 28% | 3.542 | 27% |
| Hreinar fjármunatekjur | 927 | 1.975 | (53%) | 1.340 | (31%) |
| Hreinar tekjur af tryggingum | 758 | 606 | 25% | 143 | 430% |
| Hutdeild í afk. hutdeildarf. og niðurfærsla | 2 | (900) | (100%) | (18) | (111%) |
| Aðrar rekstrartekjur | 610 | 1.811 | (66%) | 269 | 127% |
| Rekstrartekjur | 14.402 | 15.160 | (5%) | 12.184 | 18% |
| Laun og launatengd gjöld | (5.011) | (4.561) | 10% | (4.636) | 8% |
| Annar rekstrarkostnaður | (3.964) | (1.223) | 224% | (3.996) | (1%) |
| Rekstrarkostnaður | (8.975) | (5.784) | 55% | (8.632) | 4% |
| Bankaskattur | (880) | (777) | 13% | (804) | 9% |
| Hrein virðisbreyting | (192) | 409 | (147%) | (99) | 94% |
| Hagnaður fyrir skatta | 4.355 | 9.008 | (52%) | 2.649 | 64% |
| Tekjuskattur | (1.287) | (1.895) | (32%) | (818) | 57% |
| Afkoma af aflagðri starfsemi, eftir skatta | (6) | 0 | - | 118 | (105%) |
| Hagnaður | 3.062 | 7.113 | (57%) | 1.949 | 57% |
Rekstrartekjur námu 14,4 milljörðum króna á öðrum ársfjörðungi 2018, samanborið við 15,2 milljarða króna á sama tímabili 2017. Hreinar þóknanatekjur jukust milli ára en vaxtatekjur og fjármunatekjur lækkuðu. Þá lækkuðu aðrar rekstrartekjur nokkuð. Rekstrartekjur hækka hins vegar umtalsvert frá fyrsta ársfjörðungi, einkum vaxtatekjur, þóknanatekjur og tekjur af tryggingum.
Hreinar vaxtatekjur hafa lækkað um 7% milli tímabila en vaxtamunur af meðalstöðu vaxtaberandi eigna nam 2,8% á öðrum ársfjörðungi 2018, samanborið við 3,1% á sama tímabili 2017 og 2,6% á fyrsta ársfjörðungi 2018. Vaxtaberandi eignir aukast um 2,3% frá öðrum ársfjörðungi 2017 og um 1,8% frá fyrsta ársfjörðungi 2018. Lækkun vaxtamunar milli ára má m.a. skýra með hærra hlutfalli lausafjár í erlendum myntum, sem ber lága vexti, og með þeim þrýstingi sem hefur verið á vaxtakjör lána bankans í harðri samkeppni og lækkandi vaxtauhverfi, bæði á fyrirtækja- og einstaklingsmarkaði. Hækkun á vaxtamun frá fyrsta ársfjörðungi má einkum skýra með uppgreiðslu óhagkvæmrar fjármögnunar í evrum, en fyrsta stóra alþjóðlega fjármögnun bankans frá árinu 2015 var greidd upp í lok fyrsta ársfjörðungs.
Hreinar þóknanatekjur hækka um 28% á öðrum ársfjörðungi samanborið við sama ársfjörðung 2017 og einnig frá fyrsta ársfjörðungi 2018, einkum vegna aukinna umsvifa í greiðslukortum og greiðslulausnum sem hafa aukist um 62% frá sama tímabili 2017, sem og aukinna umsvifa á fjárfestingabankasviði.
Hreinar fjármunatekjur námu 927 milljónum króna, samanborið við 1.975 milljónir króna á öðrum ársfjörðungi 2017 og 1.340 milljónir króna á fyrsta ársfjörðungi 2018. Göð afkoma af hutabréfum skýrir að mestu jákvæðar fjármunatekjur öll þessi tímabil en einkum er um að ræða innlausn af sölu eða umbreytingu á eignarhaldi skráðra og óskráðra hutabréfa.
Hreinar tekjur af tryggingum námu 758 milljónum króna, samanborið við 606 milljónir króna á öðrum ársfjörðungi 2017 og 143 milljónir króna á fyrsta ársfjörðungi 2018. Hækkunina frá fyrsta ári má einkum rekja til aukinna umsvifa. Varðar en hækkun frá fyrsta ársfjörðungi er einkum vegna lægra tjónahlutfalls, sem var óvenjulega hátt á fyrsta ársfjörðungi.
Aðrar rekstrartekjur námu 610 milljónum króna á öðrum ársfjörðungi, samanborið við 1.811 milljónir króna á sama tímabili 2017 og 269 milljónir króna á fyrsta ársfjörðungi 2018. Meiri virðisbreytingar á fjárfestingareignum á öðrum ársfjörðungi 2017 skýra að mestu þessa sveiflu í öðrum rekstrartekjum.
Rekstrarkostnaður nam samtals 8.975 milljónum króna á öðrum ársfjörðungi, samanborið við 5.784 milljónir króna á sama tímabili 2017 og 8,662 milljónir á fyrsta ársfjörðungi 2018. Kostnaðarhlutfall var 62,3% á öðrum ársfjörðungi, samanborið við 38,2% á sama tímabili 2017 og 70,8% á fyrsta fjörðungi 2018. Kostnaður sem hlutfall af eignum nam 3,1% á öðrum ársfjörðungi en var 2,1% á sama tímabili 2017 og 3,0% á fyrsta ársfjörðungi 2018.
Laun og launatengd gjöld námu 5.011 milljónum króna á öðrum ársfjörðungi 2018 og hækkun um 10% frá sama tímabili á fyrsta ári og um 8% frá fyrsta ársfjörðungi 2018. Hækkunina má einkum rekja til almennra launahækkana skv. kjarasamningum frá mai 2018 og fjölgunar starfsfólks í alþjóðlegri starfsemi dötturfélagsins Valitor. Reiknuð meðallaun starfsfólks samstæðunnar hafa hækkau um 3,3% milli ára en á sama tíma hækkau launavisitala um tæp 6,5%. Fjöldi stöðugilda hjá samstæðunni var 1.309 í lok júní sem er hækkun um 86 stöðugildi frá sama tíma fyrir ári og um 25 frá árslokum 2017. Fjölgunina má einkum rekja til fjárfestinga í alþjóðlegri starfsemi Valitor, m.a. með kaupum á nýjum félögum í Bretlandi. Fækkun stöðugilda heldur áfram í móðurfélaginu og kemur einkum til vegna aukinnar útvistunar verkefna, m.a. útvistunar seðlavers og áhrifa stafræna lausna og aukinnar sjálfvirkni sem bankinn hefur lagt áherslu á.
Afkomutilkynning
- ársfjörðungur 2018
4
Annar rekstarkostnadur var 3.964 milljonir króna á öðrum ársfjörðungi 2018, samanborið við 1.223 milljonir króna á sama tímabili 2017 og 3.996 milljonir króna á fyrsta ársfjörðungi 2018. Hækkunina frá öðrum ársfjörðungi 2017 má að mestu rekja til tekjufærslu að fjárhæð 2.669 milljonir króna á árinu 2017 vegna bakfærslu skuldbindingar við Tryggingasjóð innstæðueigenda og fjárfesta en breyting frá fyrsta ársfjörðungi er nær engin.
Hrein virðisbreyting var neikvæð um 192 milljonir króna á öðrum ársfjörðungi, samanborið við jákvæða hreina virðisbreytingu að fjárhæð 409 milljonir króna á sama tímabili 2017 og 99 milljón króna virðisrýrnun á fyrsta ársfjörðungi. Uppgreiðsla eldri íbúðalána hjá bankanum og greiðslur tengdar nauðasamningum sem og lokagreiðslur vegna uppgjörs slitabúa þar sem lán höfðu áður verið niðurfærð hjá bankanum höfðu jákvæð áhrif á hreina virðisbreytingu á árinu 2017, en virðisbreytingar útlána eru nú að færast í eðlilegra horf eftir mikla innlausn affalla í tengslum við endurskipulagningu lánabókar.
Tekjuskattur nam 1.287 milljónum króna á öðrum ársfjörðungi 2018, samanborið við 1.895 milljonir króna á sama tímabili árið 2017. Tekjuskattur, eins og hann er settur fram í árshlutareikningi, samanstendur af 20% tekjuskatti af hagnaði og 6% sérstökum fjársýsluskatti sem lagður er á hagnað fjármálafyrirtækja umfram einn milljarð króna. Virkt tekjuskattsthultfall er 30,1% á fyrri hluta ársins samanborið við 23,8% á sama tímabili árið 2017. Hið háa tekjuskattsthultfall má m.a. rekja til þess að afkoma móðurfélagsins vegur þyngra í heildarafkomunni og bankinn greiðir sérstakan 6% fjársýsluskatt á hagnað yfir 1 milljarði króna auk þess sem sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki er ekki frádráttarbær til skatts.
Fyrri árshelmingur 2018
| Í milljónum króna | 1H 2018 | 1H 2017 | Breyt. | % breyt |
|---|---|---|---|---|
| Hreinar vaxtatekjur | 14.521 | 15.320 | (799) | (5%) |
| Hreinar þóknanatekjur | 8.034 | 6.838 | 1.196 | 17% |
| Hreinar fjármunatekjur | 2.267 | 3.205 | (938) | (29%) |
| Hreinar tekjur af tryggingum | 901 | 1.053 | (152) | (14%) |
| Hutdeild í afk. hutdeildarf. og niðurfærsla | (16) | (934) | 918 | (98%) |
| Aðrar rekstrartekjur | 879 | 2.375 | (1.496) | (63%) |
| Rekstrartekjur | 26.586 | 27.857 | (1.271) | (5%) |
| Laun og launatengd gjöld | (9.647) | (8.783) | (864) | 10% |
| Annar rekstarkostnadur | (7.960) | (5.057) | (2.903) | 57% |
| Rekstarkostnadur | (17.607) | (13.840) | (3.767) | 27% |
| Bankaskattur | (1.684) | (1.574) | (110) | 7% |
| Hrein virðisbreyting | (291) | 1.289 | (1.580) | (123%) |
| Hagnaður fyrir skatta | 7.004 | 13.732 | (6.728) | (49%) |
| Tekjuskattur | (2.105) | (3.266) | 1.161 | (36%) |
| Afkoma af aflagðri starfsemi, eftir skatta | 112 | 0 | 112 | - |
| Hagnaður | 5.011 | 10.466 | (5.455) | (52%) |
| Helstu kennitölur | ||||
| Arðsemi eigin fjár | 4,7% | 9,7% | ||
| Hagnaður á hlut (í krónum) | 2,20 | 5,23 | ||
| Kostnaðarhlutfall | 66,2% | 49,7% |
Afkoma á fyrri helmingi ársins 2018 var umtalsvert lakari en á sama tímabili 2017, sem einkum má skýra með mörgum jákvæðum einskiptisliðum sem þá voru til staðar. Hreinar vaxtatekjur voru 5% lægri en fyrir ári, sem einkum má skýra með miklu tímabundnu lausu fé í krónum, sem þá var til staðar. Virðisbreyting fjárfestingareigna á fyrri árshelmingi 2017 var óvenjulega mikil, sem skýrir mikil frávik í öðrum rekstrartekjum. Virðisbreyting útlána var sömuleiðis mun jákvæðari á fyrri árshelmingi 2017, sem skapaðist af uppgöri skulda í nauðasamningum og greiðslum úr þrotabúum. Síðast en ekki síst var það bakfærsla á skuldbindingu gagnvart Tryggingasjóði innstæðueigenda og fjárfesta upp á 2.669 milljonir króna, sem hafði veruleg áhrif á annan rekstarkostnað 2017.
Afkomutilkynning
2. ársfjörðungur 2018
Afkoma tekjusviða
Arion banki skiptir rekstri sínum í fimm afkomusvið auk dótturfélaga og stoðsviða. Afkomusviðin eru eignastýring, fyrirtækjasvið, fjárfestingarbankasvið, viðskiptabankasvið og fjárstýring.
Afkoma fyrir skatta var jákvæð af öllum afkomusviðum á öðrum ársfjörðungi 2018.
| 2. ársfjörðungur 2018
Í milljónum króna | Eigna-stýring | Fyrirtækja-svið | Fjárfesting-arbanka-svið | Viðskipta-bankasvið | Fjárstýring | Höfuöst., dótturfélög og aðrar deildir | Samtals |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Hreinar vaxtatekjur | 175 | 1.464 | 94 | 4.310 | 1.189 | 381 | 7.613 |
| Hreinar þóknanatekjur | 865 | 305 | 425 | 1.235 | (82) | 1.744 | 4.492 |
| Aðrar tekjur | 43 | 18 | (1) | 74 | 143 | 2.020 | 2.297 |
| Rekstrartekjur | 1.083 | 1.787 | 518 | 5.619 | 1.250 | 4.145 | 14.402 |
| Rekstarkostnaður | (630) | (878) | (398) | (3.398) | (313) | (3.358) | (8.975) |
| Bankaskattur | (41) | (180) | (14) | (312) | (333) | 0 | (880) |
| Hrein virðisbreyting | 0 | (413) | 0 | 238 | 10 | (27) | (192) |
| Afkoma fyrir skatta | 412 | 316 | 106 | 2.147 | 614 | 760 | 4.355 |
| 2. ársfjörðungur 2017
Í milljónum króna | Eigna-stýring | Fyrirtækja-svið | Fjárfesting-arbanka-svið | Viðskipta-bankasvið | Fjárstýring | Höfuöst., dótturfélög og aðrar deildir | Samtals |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Hreinar vaxtatekjur | 129 | 1.539 | 63 | 3.925 | 2.230 | 274 | 8.160 |
| Hreinar þóknanatekjur | 938 | 281 | 304 | 1.152 | (79) | 912 | 3.508 |
| Aðrar tekjur | 20 | 1.004 | (7) | 388 | (46) | 2.133 | 3.492 |
| Rekstrartekjur | 1.087 | 2.824 | 360 | 5.465 | 2.105 | 3.319 | 15.160 |
| Rekstarkostnaður | (283) | (534) | (369) | (1.414) | 114 | (3.298) | (5.784) |
| Bankaskattur | (49) | (137) | (10) | (198) | (383) | 0 | (777) |
| Hrein virðisbreyting | 0 | 13 | 7 | 382 | 0 | 7 | 409 |
| Afkoma fyrir skatta | 755 | 2.166 | (12) | 4.235 | 1.836 | 28 | 9.008 |
| 1. ársfjörðungur 2018
Í milljónum króna | Eigna-stýring | Fyrirtækja-svið | Fjárfesting-arbanka-svið | Viðskipta-bankasvið | Fjárstýring | Höfuöst., dótturfélög og aðrar deildir | Samtals |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Hreinar vaxtatekjur | 148 | 1.314 | 38 | 4.333 | 979 | 96 | 6.908 |
| Hreinar þóknanatekjur | 866 | 236 | 465 | 1.092 | (82) | 965 | 3.542 |
| Aðrar tekjur | 18 | (161) | 2 | 81 | 268 | 1.526 | 1.734 |
| Rekstrartekjur | 1.032 | 1.389 | 505 | 5.506 | 1.165 | 2.587 | 12.184 |
| Rekstarkostnaður | (601) | (888) | (392) | (3.451) | (329) | (2.971) | (8.632) |
| Bankaskattur | (46) | (170) | (10) | (278) | (300) | 0 | (804) |
| Hrein virðisbreyting | 0 | (376) | 0 | 268 | (29) | 38 | (99) |
| Afkoma fyrir skatta | 385 | (45) | 103 | 2.045 | 507 | (346) | 2.649 |
Afkomutilkynning
- ársfjörðungur 2018
父
Eignastýringarsvið
| Í milljónum króna | 2F 2018 | 2F 2017 | % breyt. | 1F 2018 | % breyt. |
|---|---|---|---|---|---|
| Hreinar vaxtatekjur | 175 | 129 | 35,7% | 148 | 18,2% |
| Hreinar þóknanatekjur | 865 | 938 | (7,8%) | 866 | (0,1%) |
| Aðrar tekjur | 43 | 20 | 115,0% | 18 | 138,9% |
| Rekstrartekjur | 1.083 | 1.087 | (0,4%) | 1.032 | 4,9% |
| Rekstarkostnaður | (630) | (283) | 122,6% | (601) | 4,8% |
| Bankaskattur | (41) | (49) | (16,3%) | (46) | (10,9%) |
| Afkoma fyrir skatta | 412 | 755 | (45,4%) | 385 | 7,0% |
Starfsemi eignastýringar er stöðug og afkoma sviðsins með ágætum en sveiflur í afkomu tengjast að jafnaði ávöxtun á verðbréfamörkuðum. Rekstarkostnaður hækkar verulega á öðrum ársfjörðungi 2018 samanborið við sama tímabíl 2017, sem kemur til af bakfærslu skuldar að fjárhæð 360 milljónir króna við Tryggingasjóð innstæðueigenda á miðju ári 2017 en kostnaðurinn lækkar litillega frá fyrsta ársfjörðungi í ár. Eignir í stýringu samstæðunnar í lok júní 2018 námu 971 milljarði króna og lækkuðu um 1,4% frá árslokum 2017.
Fyrirtækjasvið
| Í milljónum króna | 2F 2018 | 2F 2017 | % breyt. | 1F 2018 | % breyt. |
|---|---|---|---|---|---|
| Hreinar vaxtatekjur | 1.464 | 1.539 | (4,9%) | 1.314 | 11,4% |
| Hreinar þóknanatekjur | 305 | 281 | 8,5% | 236 | 29,2% |
| Aðrar tekjur | 18 | 1.004 | (98,2%) | (161) | - |
| Rekstrartekjur | 1.787 | 2.824 | (36,7%) | 1.389 | 28,7% |
| Rekstarkostnaður | (878) | (534) | 64,4% | (888) | (1,1%) |
| Bankaskattur | (180) | (137) | 31,4% | (170) | 5,9% |
| Hrein virðisbreyting | (413) | 13 | - | (376) | 9,8% |
| Afkoma fyrir skatta | 316 | 2.166 | (85,4%) | (45) | - |
Hreinar vaxtatekjur fyrirtækjasviðs eru nokkru lægri á öðrum ársfjörðungi 2018 en á sama tímabili 2017 og á fyrsta ársfjörðungi 2018, einkum vegna harðari samkeppni á fyrirtækjamarkaði og lækkunar vaxtastigs en þóknanatekjur aukast í takt við aukin umsvif. Aðrar tekjur eru einkum vegna sólúhagnaðar og virðisbreytinga á yfirteknum eignum, þar sem umtalsverð virðisbreyting var færð á fjárfestingareignir á öðrum ársfjörðungi 2017, en þær eignir hafa nú verið fluttar af fyrirtækjasviði. Rekstarkostnaður er mun hærri á öðrum ársfjörðungi 2018 samanborið við sama tímabíl 2017, en skýringu er einkum að finna í bakfærslu á skuld að fjárhæð 198 milljónir króna við Tryggingasjóð innstæðueigenda, sem færð var á miðju ári 2017. Neikvæða hreina virðisbreytingu af lánasafni má einkum rekja til niðurfærslu á lánum og kröfum til ýmissa aðila en á sama tíma fyrir ári fengust endurgreiddar kröfur úr þrotabúum og úr nauðasamningum sem skilaði hreinni jákvæðri breytingu.
Fjárfestingarbankasvið
| Í milljónum króna | 2F 2018 | 2F 2017 | % breyt. | 1F 2018 | % breyt. |
|---|---|---|---|---|---|
| Hreinar vaxtatekjur | 94 | 63 | 49,2% | 38 | 147,4% |
| Hreinar þóknanatekjur | 425 | 304 | 39,8% | 465 | (8,6%) |
| Aðrar tekjur | (1) | (7) | - | 2 | - |
| Rekstrartekjur | 518 | 360 | 43,9% | 505 | 2,6% |
| Rekstarkostnaður | (398) | (369) | 7,9% | (392) | 1,5% |
| Bankaskattur | (14) | (10) | 40,0% | (10) | 40,0% |
| Hrein virðisbreyting | 0 | 7 | - | 0 | - |
| Afkoma fyrir skatta | 106 | (12) | - | 103 | 2,9% |
Umsvif fjárfestingarbankasviðs jukust nokkuð á öðrum ársfjörðungi 2018 samanborið við sama tíma fyrir ári. Umtalsverð vinna fór fram hjá sviðinu í tengslum við skráningu Arion banka í kauphöll á Íslandi og í Stokkholmi, sem lokið var við á fjörðungnum og þá hefur sviðið tekið mikinn þátt í innri verkefnum, svo sem úrlausn flókinna lánamála, en hefur einnig sótt fram í verkefnum á markaði. Miðlun hlutabréfa og skuldabréfa hefur gengið vel og hefur bankinn verið í fararbroddi í veltu hjá NASDAQ Ísland síðustu árin.
Afkomutilkynning
- ársfjörðungur 2018
7
Viðskiptabankasvið
| Í milljónum króna | 2F 2018 | 2F 2017 | % breyt. | 1F 2018 | % breyt. |
|---|---|---|---|---|---|
| Hreinar vaxtatekjur | 4.310 | 3.925 | 9,8% | 4.333 | (0,5%) |
| Hreinar þóknanatekjur | 1.235 | 1.152 | 7,2% | 1.092 | 13,1% |
| Aðrar tekjur | 74 | 388 | (80,9%) | 81 | (8,6%) |
| Rekstrartekjur | 5.619 | 5.465 | 2,8% | 5.506 | 2,1% |
| Rekstrarkostnaður | (3.398) | (1.414) | 140,3% | (3.451) | (1,5%) |
| Bankaskattur | (312) | (198) | 57,6% | (278) | 12,2% |
| Hrein virðisbreyting | 238 | 382 | (37,7%) | 268 | (11,2%) |
| Afkoma fyrir skatta | 2.147 | 4.235 | (49,3%) | 2.045 | 5,0% |
Rekstartekjur á öðrum ársfjörðungi jukust um 2,8% frá öðrum fjörðungi 2017 og um 2,1% frá fyrsta fjörðungi 2018 og má einkum rekja aukningu tekna til vaxandi lánabókar, bæði gagnvart einstaklingum og minni fyrirtækjum, og áherslu síðustu ára á þóknanatengda starfsemi. Aðrar tekjur lækka nokkuð, vegna minni umsvifa við yfirtöku og sölu eigna í tengslum við skulduppgjör, samanborið við fyrri tímabil, þar sem efnahagsumhverfi hefur verið fremur jákvætt fyrir viðskiptavini bankans. Rekstrarkostnaður sviðsins hækkar verulega milli ára, sem að miklu leyti má rekja til bakfærslu á skuld við Tryggingasjóð innstæðueigenda að fjárhæð 1.733 milljónir króna, sem bakfæró var á öðrum ársfjörðungi 2017. Að öðru leyti hækkar kostnaður í takt við aukin umsvif. Jákvæðar virðisbreytingar lána á tímabilinu má einkum rekja til umtalsverðra uppgreiðslna á íbúðalánum í lækkandi vaxtuumhverfi.
Fjárstýring
| Í milljónum króna | 2F 2018 | 2F 2017 | % breyt. | 1F 2018 | % breyt. |
|---|---|---|---|---|---|
| Hreinar vaxtatekjur | 1.189 | 2.230 | (46,7%) | 979 | 21,5% |
| Hreinar þóknanatekjur | (82) | (79) | 3,8% | (82) | 0,0% |
| Aðrar tekjur | 143 | (46) | - | 268 | (46,6%) |
| Rekstrartekjur | 1.250 | 2.105 | (40,6%) | 1.165 | 7,3% |
| Rekstrarkostnaður | (313) | 114 | - | (329) | (4,9%) |
| Bankaskattur | (333) | (383) | (13,1%) | (300) | 11,0% |
| Hrein virðisbreyting | 10 | 0 | - | (29) | - |
| Afkoma fyrir skatta | 614 | 1.836 | (66,6%) | 507 | 21,1% |
Rekstartekjur fjárstýringar lækka nokkuð á tímabilinu miðað við annan ársfjörðung 2017, einkum vegna minnkandi lausafjár í krónum og lækkandi vaxtastigs. Rekstrarkostnaður hækkar verulega en að mestu má rekja það til bakfærslu skuldar að fjárhæð 378 milljónir króna við Tryggingasjóð innstæðueigenda á miðu ári 2017 auk þess sem aðkeypt sérfræðiráðgjöf hækkar nokkuð.
Afkomutilkynning
2. ársfjörðungur 2018
X
EFNAHAGSREIKNINGUR
Heildareignir samstæðu Arion banka hækka um 2% frá árslokum 2017.
| Í milljónum króna | 30.06.2018 | 31.12.2017 | Breyt. | % breyt |
|---|---|---|---|---|
| Sjóður og innstæður hjá Seðlabanka Íslands | 112.996 | 139.819 | (26.823) | (19%) |
| Lán til lánastofnana | 113.546 | 86.609 | 26.938 | 31% |
| Lán til viðskiptavina | 803.694 | 765.101 | 38.593 | 5% |
| Verðbréfaeign | 95.266 | 109.450 | (14.184) | (13%) |
| Fjárfestingareignir | 7.027 | 6.613 | 414 | 6% |
| Egnarhlutir í hlutdeildarfélögum | 743 | 760 | (17) | (2%) |
| Óefnislegar eignir | 13.858 | 13.848 | 10 | 0% |
| Aðrar eignir | 27.714 | 25.555 | 2.159 | 8% |
| Eignir samtals | 1.174.844 | 1.147.754 | 27.090 | 2% |
Sjóður og innstæður hjá Seðlabanka Íslands námu 112.996 milljónum króna í lok tímabilsins, samanborið við 139.819 milljónir króna í árslok 2017. Lækkunina má að hluta til rekja til kaupa á eigin bréfum sem og arðgreiðslu á tímabilinu, samtals að fjárhæð 24,3 milljarðar króna.
Lán til viðskiptavina námu 803.694 milljónum króna í lok tímabilsins, sem er 5% aukning frá áramótum. Lán til fyrirtækja hafa aukist um 2,0% á tímabilinu, einkum til heildsölu og smásölu annars vegar og fasteigna og byggingastarfsemi hins vegar. Lán til einstaklinga jukust um 2,5%, nær eingöngu íbúðalán, þrátt fyrir harða samkeppni á þeim markaði frá lífeyrissjóðum.
Verðbréfaeign nam 95.266 milljónum króna í lok tímabilsins, samanborið við 109.450 milljónir króna í árslok 2017. Verðbréfastöður bankans hafa minnkað nokkuð, einkum þar sem eign í erlendum lausafjárssjóðum hefur verið seld og tengist lausafjárstýringu bankans.
| Í milljónum króna | 30.06.2018 | 31.12.2017 | Breyt. | Breyt.% |
|---|---|---|---|---|
| Skuldabréf | 49.659 | 51.755 | (2.096) | (4%) |
| Hlutabréf og hlutdeildarskirteini | 20.801 | 36.190 | (15.389) | (43%) |
| Afleíðusamningar | 5.130 | 7.624 | (2.494) | (33%) |
| Verðbréf til áhættuvarna | 19.675 | 13.881 | 5.794 | 42% |
| Verðbréf samtals | 95.265 | 109.450 | (14.185) | (13%) |
Skuldir samstæðu Arion banka hækka um 5% frá áramótum. Eigið fé lækkar vegna arðgreiðslu og kaupa á eigin bréfum á tímabilinu að fjárhæð 24,3 milljarðar króna. Afkoma tímabilsins og hækkun eigin fjár vegna innleiðingar IFRS 9 kemur á móti lækkuninni.
| Í milljónum króna | 30.06.2018 | 31.12.2017 | Breyt. | Breyt.% |
|---|---|---|---|---|
| Innlán lánastofnana og Seðlabanka Íslands | 6.336 | 7.370 | (1.034) | (14%) |
| Innlán frá viðskiptavinum | 476.182 | 462.161 | 14.021 | 3% |
| Fjárskuldir á gangvirði | 3.895 | 3.601 | 294 | 8% |
| Aðrar skuldir | 70.027 | 63.890 | 6.137 | 10% |
| Lántaka | 410.773 | 384.998 | 25.775 | 7% |
| Eigið fé hluthafa | 206.890 | 225.606 | (18.716) | (8%) |
| Minnlhuti | 741 | 128 | 613 | 479% |
| Skuldir og eigið fé samtals | 1.174.844 | 1.147.754 | 27.090 | 2% |
Innlán frá viðskiptavinum námu 476.182 milljónum króna í lok júní 2018 og höfðu aukist um 3% frá árslokum 2017, einkum frá einstaklingum og minni fyrirtækjum. Innlán eru, nú sem áður, mikilvægasta fjármögnun bankans og bankinn leggur áherslu á áð halda stöðu sinni á innlánamarkaði eins sterkri og kostur er.
Lántaka bankans nam 410.773 milljónum króna í lok júní 2018. Í mars gaf bankinn út nýtt skuldabréf á alþjóðlegum markaði til fimm ára að fjárhæð 300 milljónir evra, sem samsvarar um 37 milljórðum króna, á kjörum sem jafngilda 65 punktum yfir millibankavöxtum. Útgáfan var að hluta nýtt til uppgreiðslu á 3ja ára skuldabréfi, með eftirstöðvar sem námu um 200 milljónum evra. Bankinn hélt einnig áfram útgáfu sértryggðra skuldabréfa á íslenska markaðnum og gaf út tæpa 16 milljarða króna sem og víxla fyrir samtals tæpa 16 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2018.
Afkomutilkynning
- ársfjörðungur 2018
父
Eigið fé hluthafa bankans nam 206.890 milljónum króna í lok júní 2018 samanborið við 225.605 milljónir króna í lok árs 2017. Lækkunin er tilkomin vegna kaupa á eigin bréfum og arðgreiðslu á fyrsta ársfjórðungi en á móti kemur hækkun á eigin fé í tengslum við innleiðingu IFRS 9 og afkomu tímabilsins. Hlutfall almenns eiginfjárpáttar 1 hjá bankanum nam 21,8% í lok júní 2018, samanborið við 23,6% í árslok 2017, að teknu tilliti til tillögu stjórnar um arðgreiðslu að fjárhæð 10 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi 2018.
KENNITÖLUR
| 2F 2018 | 2F 2017 | % breyt. | 1H 2018 | 1H 2017 | % breyt. | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Arðsemi eigin fjár | 5,9% | 13,0% | (54%) | 4,7% | 9,7% | (51%) |
| Arðsemi eigna | 1,1% | 2,6% | (58%) | 0,9% | 1,9% | (55%) |
| Vaxtamunur á vaxtaberandi eignir | 2,8% | 3,1% | (9%) | 2,7% | 3,0% | (9%) |
| Vaxtamunur á heildareignir | 2,6% | 2,9% | (9%) | 2,5% | 2,8% | (10%) |
| Kostnaðarhlutfall | 62,3% | 38,2% | 63% | 66,2% | 49,7% | 33% |
| Kostnaður sem hlutfall af eignum | 3,1% | 2,1% | 51% | 3,1% | 2,5% | 21% |
| Virkur tekjuskattur | 29,6% | 21,0% | 40% | 30,1% | 23,8% | 26% |
| CAD hlutfall (Eginfjárhlutfall) | 21,9% | 28,4% | (23%) | 21,9% | 28,4% | (23%) |
| Hlutfall almenns eiginfjárpáttar 1 | 21,8% | 27,8% | (22%) | 21,8% | 27,8% | (22%) |
| Vandræðalán | 2,3% | - | - | 2,3% | - | - |
| Heildar niðurfærð lán / Heildar lán | - | 2,1% | - | - | 2,1% | - |
| Áhættuvegnar eignir sem hlutfall af heildareignum | 67,8% | 67,0% | 1% | 67,8% | 67,0% | 1% |
| Útlán sem hlutfall af innlánum | 168,8% | 167,7% | 1% | 168,8% | 167,7% | 1% |
| Meðalfjöldi stöðugilda | 1.313 | 1.214 | 8% | 1.301 | 1.214 | 7% |
| Fjöldi stöðugilda í lok tímabils - samstæða | 1.309 | 1.223 | 7% | 1.309 | 1.223 | 7% |
| Meðalfjöldi stöðugilda - móðurfélag | 829 | 820 | 1% | 831 | 826 | 1% |
| Fjöldi stöðugilda í lok tímabils - móðurfélag | 823 | 817 | 1% | 823 | 817 | 1% |
FJÁRHAGSLEG MARKMIÐ
Á seinni hluta ársins 2016 setti Arion banki sér eftirfarandi markmið til næstu þriggja til fimm ára.
- Eiginfjárkrafa (CET 1) Lækka niður undir 17%
- Lánavöxtur Lánavöxtur sé í takt við vöxt í efnahagslífinu á næstu árum
- Arðsemi eigin fjár Ná arðsemi umfram 10%
- Arðgreiðslustefna Arðgreiðsluhlutfall í kringum 50% af hagnaði hluthafa
- Kostnaðarhlutfall Lækka í um það bil 50%
FUNDIR MEÐ MARKAÐSAÐILUM
Haldinn verður fundur fyrir markaðsaðila þann 3. ágúst klukkan 10:00 þar sem Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri, mun kynna uppgjórið og ásamt Stefáni Péturssyni, fjármálastjóra Arion banka, svara spurningum þáttakenda. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, og mun fara fram á íslensku. Þáttakendur eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig hér.
Þann 3. ágúst verður einnig kynning fyrir markaðsaðila á afkomu bankans á ensku sem fer fram klukkan 13:00. Kynningunni verður streymt beint á financialhearings.com og einnig verður hægt að nálgast streymið á fjárfestatengslavef bankans. Höskuldur H. Ólafsson og Stefán Pétursson munu kynna afkomu bankans og svara spurningum þáttakenda. Þeir sem vilja taka þátt og leggja fram spurningar þurfa að hringja inn áður en kynningin hefst, sjá eftirfarandi símanúmer:
Svíþjóð: +46 856 642 662
Bretland: +44 20 3008 9808
Ísland: 800 7417
Nánari upplýsingar veita Sture Stolen, forstöðumaður fjárfestatengsla Arion banka, [email protected] eða Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, [email protected], s. 856 6760.
Afkomutilkynning
2. ársfjörðungur 2018
FJÁRHAGSDAGATAL 2018
Samkvæmt áætlun munu uppgjör bankans verða birt sem hér segir:
Árshlutauppgjör 3F 2018 31. október 2018
Árshlutauppgjör 4F 2018 13. febrúar 2019
Aðalfundur 13. mars 2019
Dagatalíð er birt með fyrirvara um breytingar.
Yfirlýsing um framtíðarsýn
Pessi tilkynning inniheldur framtíðarsýn sem endurspeglar núverandi sýn stjórnenda um framtíðina og fjárhagslegan árangur framtíðarinnar. Upplýsingar í tilkynningunni eru byggðar á gögnum félagsins, sem fyrir liggja, þegar tilkynningin er birt. Þó Arion banki telji að gefnar væntingar séu raunhæfar er enga vissu hægt að gefa fyrir því að þær gangi eftir. Af þeim sökum getur endanleg niðurstaða orðið umtalsvert frábrugðin umræddum væntingum. Þær forsendur sem mikilvægastar eru og gætu valdið annarri útkomu hjá Arion banka: a) þróun efnahagsumhverfis, b) þróun verðbölgu, vaxta og gjaldmiðla, c) þróun samkeppnissumhverfis og d) breytingar á regluverki og aðrar aðgerðir stjórnvalda. Pessir þættir eru alls ekki tæmandi taldir. Yfirlýsing þessi gefur ekki til kynna að Arion banki hyggist eða hafi breytt sinni framtíðarsýn á neinn hátt, umfram það sem fyrir liggur um breytingar á lögum eða gildandi kauphallarreglum ef og þegar aðstæður koma upp sem kalla á breytingar frá þeim tíma er þessi tilkynning var birt Arion banki ber ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljóta af notkun upplýsinga í tilkynningu þessari. Óheimilt er að endurbirta eða dreifa upplýsingum í tilkynningunni án skriflegs samþykkis Arion banka.
Afkomutilkynning
- ársfjörðungur 2018