AI assistant
Arion Banki — Capital/Financing Update 2021
Dec 16, 2021
2189_rns_2021-12-16_f995c798-839e-44f0-a1e0-3c992cf0c4ce.pdf
Capital/Financing Update
Open in viewerOpens in your device viewer
Fréttatilkynning
16 December 2021 17:45:00 GMT
Arion banki: Arion banki lýkur útgáfu á grænum skuldabréfum í íslenskum krónum
Arion banki lauk í dag útboði á nýjum grænum skuldabréfaflokki ARION 26 1222 GB fyrir samtals 3.640 m.kr. Um er að ræða fyrstu grænu skuldabréfaútgáfu bankans í íslenskum krónum. Viðtökurnar voru góðar og voru bréfin seld í lokuðu útboði til breiðs hóps innlendra fjárfesta.
Skuldabréfin eru til 5 ára og bera fasta 4.70% óverðtryggða vexti og einni endurgreiðslu höfuðstóls á lokagjaldaga árið 2026. Skuldabréfin eru gefin út undir grænni fjármálaumgjörð bankans. Í umgjörðinni er með skýrum og gegnsæjum hætti gerð grein fyrir þeim skilyrðum sem lánveitingar bankans þurfa að uppfylla til að teljast grænar. Frekari upplýsingar má nálgast hér: https://www2.arionbanki.is/bankinn/fjarfestatengsl/skuldabrefafjarfestar/graen-skuldabref/
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipti í Nasdaq Iceland þann 22. desember 2021.
Umsjónaraðili útboðsins var verðbréfamiðlun Arion banka.
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:
Eiríks Magnúsar Jenssonar, forstöðumanns fjárstýringar, [email protected], s. 856 7468 eða Theodórs Friðbertssonar, forstöðumanns fjárfestatengsla Arion banka, [email protected], s. 856 6760
Viðhengi
Arion banki: Arion banki lýkur útgáfu á grænum skuldabréfum í íslenskum krónum
Arion banki hf.
Borgartúni 19, 105 Reykjavik — 444 7000 — arionbank.is — /arionbanki