AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Síminn

Capital/Financing Update Nov 18, 2025

2203_rns_2025-11-18_1f94bd51-5a43-49dd-bbc9-1eb388aaea36.html

Capital/Financing Update

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Síminn hf. - Útboð á víxlum 25. nóvember 2025

Síminn hf. - Útboð á víxlum 25. nóvember 2025

Síminn hf. efnir til útboðs á víxlum þriðjudaginn 25. nóvember 2025. Boðnir verða til sölu víxlar í nýjum 6 mánaða flokki SIMINN260603.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útboðinu og kynningu þess fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og sótt verður um skráningu þeirra í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Útboðið er undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindan flokk skuldaskjals verða birt á vefsíðu félagsins: https://www.siminn.is/fjarfestar.

Skila skal inn tilboðum á netfangið [email protected] fyrir klukkan 17:00 þriðjudaginn 25. nóvember 2025. Uppgjör viðskipta fer fram miðvikudaginn 3. desember 2025.

Nánari upplýsingar veita:

Ásgrímur Gunnarsson, markaðsviðskipti, Fossar fjárfestingarbanki hf., sími: 522 4000, netfang: [email protected]

Davíð B Scheving, forstöðumaður fjárstýringar Símans hf., [email protected].

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.