AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Reitir fasteignafélag

Transaction in Own Shares Nov 7, 2025

2202_rns_2025-11-07_e0bdef5a-ec41-437c-b1f9-cbd9fc6e0853.html

Transaction in Own Shares

Open in Viewer

Opens in native device viewer

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 45 - Lok endurkaupaáætlunar

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 45 - Lok endurkaupaáætlunar

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. september 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 24. september 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 45. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 427.800 eigin hluti að kaupverði 53.025.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Gengi Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
4/11/25 10:04 150.800 122,50 18.473.000 11.700.000
5/11/25 13:37 100.000 122,50 12.250.000 11.800.000
6/11/25 14:18 100.000 126,00 12.600.000 11.900.000
7/11/25 11:16 77.000 126,00 9.702.000 11.977.000
Samtals 427.800 53.025.000 11.977.000

Endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 23. september sl. er nú lokið. Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins nema allt að 3.600.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna mátti ekki nema hærri fjárhæð en 440 milljónum króna. 

Reitir hafa nú keypt samtals 3.577.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 99,4% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 439.997.400 kr. sem samsvarar 100% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. 

Frá lokum fyrsta ársfjórðungs, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 7.777.000 eigin hluti fyrir 915.937.400 kr. 

Reitir eiga nú samtals 11.977.000 eigin hluti, eða um 1,72% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 685.023.000.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á [email protected]

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.