AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Reitir fasteignafélag

Transaction in Own Shares Nov 3, 2025

2202_rns_2025-11-03_a65cf6d0-7e8d-4184-bb60-1713f7ada231.html

Transaction in Own Shares

Open in Viewer

Opens in native device viewer

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 44

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 44

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. september 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 24. september 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 44. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 770.000 eigin hluti að kaupverði 96.830.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Gengi Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
27/10/25 10:02 100.000 128,00 12.800.000 10.879.200
27/10/25 12:40 10.000 127,00 1.270.000 10.889.200
27/10/25 14:41 60.000 127,00 7.620.000 10.949.200
28/10/25 14:55 70.000 126,00 8.820.000 11.019.200
29/10/25 10:39 100.000 126,00 12.600.000 11.119.200
30/10/25 09:48 150.000 125,00 18.750.000 11.269.200
30/10/25 13:44 50.000 125,00 6.250.000 11.319.200
31/10/25 10:05 100.000 125,00 12.500.000 11.419.200
31/10/25 13:00 100.000 125,00 12.500.000 11.519.200
31/10/25 13:29 30.000 124,00 3.720.000 11.549.200
Samtals 770.000 96.830.000 11.549.200

Reitir hafa nú keypt samtals 3.149.200 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 87,5% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 386.972.400 kr. sem samsvarar 87,9% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 3.600.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 440 milljónir króna.

Frá lokum annars ársfjórðungs, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 7.349.200 eigin hluti fyrir 862.912.400 kr.

Reitir eiga nú samtals 11.549.200 eigin hluti, eða um 1,66% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 685.450.800.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á [email protected].

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.