Report Publication Announcement • Jul 22, 2025
Report Publication Announcement
Open in ViewerOpens in native device viewer
Festi hf.: Birting uppgjörs 2. ársfjórðungs 2025 þann 29. júlí 2025 og afkomufundur þann 30. júlí
Festi birtir uppgjör sitt fyrir 2. ársfjórðung 2025 eftir lokun markaða þriðjudaginn 29. júlí næstkomandi.
Afkomufundur með markaðsaðilum 30. júlí kl. 8:30.
Afkomufundur fyrir markaðsaðila verður haldinn miðvikudaginn 30. júlí 2025 kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 – 14 í Kópavogi. Á fundinum munu Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, og Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi, kynna afkomu samstæðunnar á öðrum ársfjórðungi og svara spurningum.
Fundinum verður einnig streymt beint á vefsíðu félagsins þar sem skráning á fundinn fer jafnframt fram: https://www.festi.is/tenglar/uppgjor-2f-2025. Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected]. Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.
Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: https://www.festi.is/fjarhagsupplysingar.

Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.