AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Síminn

Earnings Release Apr 29, 2025

2203_ir_2025-04-29_4246e963-eed9-445c-9a76-a626e23e83d4.pdf

Earnings Release

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 1F 2025

Afkoma fyrsta ársfjórðungs 2025

  • Tekjur á fyrsta ársfjórðungi (1F) 2025 námu 7.173 m.kr. samanborið við 6.575 m.kr. á sama tímabili 2024 og jukust um 9,1%. Tekjur af farsíma, gagnaflutningi og sjónvarpsþjónustu jukust um 2,3% á milli tímabila.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 1.272 m.kr. á 1F 2025 og lækkar um 163 m.kr. eða 11,4% frá sama tímabili fyrra árs. EBITDA hlutfallið er 17,7% á 1F 2025 en var 21,8% á sama tímabili 2024. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 189 m.kr. á 1F 2025 samanborið við 431 m.kr. á sama tímabili 2024. Leiðrétt fyrir 460 m.kr. gjaldfærslu vegna dómsmála nam EBITDA fjórðungsins 1.732 m.kr. (24,1%) og EBIT 649 m.kr. (9,0%).
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 321 m.kr. á 1F 2025 en námu 195 m.kr. á sama tímabili 2024. Fjármagnsgjöld námu 517 m.kr., þar af dráttarvextir af greiðslum vegna lagadeilna 35 m.kr., fjármunatekjur voru 192 m.kr. og gengishagnaður nam 4 m.kr.
  • Tap var á 1F 2025 sem nam 188 m.kr. samanborið við 171 m.kr. hagnað á sama tímabili 2024. Leiðrétt fyrir 495 m.kr. gjaldfærslu vegna dómsmála nam hagnaður fjórðungsins 307 m.kr.
  • Vaxtaberandi skuldir samstæðu að leiguskuldbindingum meðtöldum námu 18,9 ma.kr. í lok 1F 2025, en voru 17,2 ma.kr. í árslok 2024. Handbært fé í lok 1F 2025 nam 0,4 ma.kr., en var 0,8 ma.kr. í árslok 2024. Staða útlána hjá Símanum Pay var 4,7 ma.kr. í lok 1F 2025. Hreinar vaxtaberandi skuldir / 12M EBITDA1 í lok 1F 2025 var 1,82.
  • Eiginfjárhlutfall Símans var 40,1% í lok 1F 2025 og eigið fé 16,9 ma.kr.

1 12M EBITDA inniheldur 12M pro forma EBITDA Noona.

María Björk Einarsdóttir, forstjóri:

"Fjórðungurinn einkenndist af traustum grunnrekstri, talsverðum tekjuauka af auglýsingamiðlun og áframhaldandi uppbyggingu fjártæknirekstrar þar sem viðskiptavinum fjölgar hratt, ekki síst á fyrirtækjamarkaði. Þá sótti Sjónvarp Símans Premium áfram í sig veðrið og eru áskrifendur nú 10% fleiri en í lok fyrsta ársfjórðungs 2024, eða um 50 þúsund talsins. Framleiðsla vandaðs innlends sjónvarpsefnis fyrir viðskiptavini Símans hefur aldrei verið metnaðarfyllri en um þessar mundir.

Óvænt niðurstaða Hæstaréttar litar þó myndina, þar sem dómum Héraðsdóms og Landsréttar í "enska bolta málinu" svokallaða var snúið við af klofnum Hæstarétti, og Síminn dæmdur til greiðslu 400 m.kr. sektar. Niðurstöður þriggja lagadeilna til viðbótar kölluðu á gjaldfærslu upp á um 60 m.kr. Þessu til viðbótar voru um 35 m.kr. gjaldfærðar í dráttarvexti af greiðslum vegna dómsmála undir fjármagnsgjöldum. Lagaleg óvissa hefur minnkað til muna með lokum þessara mála.

Auglýsingamiðlun er orðin traust tekjustoð í rekstri Símans. Auglýsingaskilti eru nú 41 talsins og strætóskýli í rekstri félagsins hafa 620 skjái og fer fjölgandi. Sterkir umhverfis- og sjónvarpsmiðlar Símans skapa einstakt virði fyrir viðskiptavini með miklum sýnileika, auk þess sem umhverfismiðlarnir skila samfélagslegum ávinningi til samstarfsaðila í íþrótta- og sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu.

Við höldum áfram að þróa og byggja upp fjártæknilausnir í fremstu röð, en 118 rekstraraðilar nota nú fyrirtækjakort Símans Pay sem kynnt var til sögunnar í fyrra, þar af mörg stærstu fyrirtækja landsins. Tæplega 150 þúsund skráðir notendur eru á Noona-appinu, sem varð hluti af samstæðu Símans í fyrra, og bóka þeir yfir 200 þúsund tíma í fjölbreytta þjónustu á mánuði. Tugmilljarða velta fer í gegnum kerfi Noona Iceland á ári.

Tólf nýjar leiknar íslenskar þáttaraðir eru nú búnar í tökum eða á leið í tökur fyrir Sjónvarp Símans Premium. Yfir 52.000 einstaklingar horfðu á fyrsta þátt Reykjavík 112, sem frumsýndur var um páskana, fyrstu vikuna í sýningu. Framleiðsla á íslensku barnaefni heldur áfram af krafti með áherslu á að efla íslenska tungu. Stórir samningar við HBO, Paramount, ShowTime, MGM og ITV tryggja viðskiptavinum Símans sjónvarpsefni í fremstu röð allt árið um kring, sem endurspeglast í sívaxandi vinsældum veitunnar.

Innleiðing nýrrar stefnu hefur verið ríkjandi áhersla í rekstrinum síðustu mánuði. Þrátt fyrir að við séum á fyrstu metrunum í því verkefni er árangurinn strax byrjaður að sýna sig og markverð fylgni er milli sívaxandi starfsánægju og vaxandi ánægju viðskiptavina, en báðir mælikvarðar eru mældir með formföstum og reglubundnum hætti innan Símans. Ég vil nota tækifærið og þakka samstarfsfólki mínu hjá Símanum fyrir þann metnað sem lagður hefur verið í stefnuvinnuna af öllum einingum fyrirtækisins. Það er ekki sjálfsagt að finna svona mikinn meðbyr í slíkri vegferð, á sama tíma og starfsfólk sinnir daglegum rekstri af elju og ávallt með hagsmuni viðskiptavina í fyrirrúmi."

Helstu niðurstöður í rekstri 1F 2025

Rekstur samstæðu

Heildartekjur á 1F 2025 námu 7.173 m.kr. samanborið við 6.575 m.kr. á sama tímabili 2024, sem er 9,1% vöxtur milli ára. Sé horft til farsíma, gagnaflutnings og sjónvarpsþjónustu er tekjuvöxtur 2,3%.

Tekjur af farsíma námu 1.685 m.kr. og hækkuðu um 57 m.kr. eða 3,5% á milli ára. Tekjur af gagnaflutningi námu 2.067 m.kr. og hækkuðu um 3 m.kr. eða 0,1% á milli ára. Tekjur af sjónvarpsþjónustu án auglýsingatekna námu 1.901 m.kr. og hækkuðu um 65 m.kr. eða 3,5% á milli ára. Tekjur af nýjum starfsþætti, auglýsingamiðlun2 , námu 563 m.kr. og hækkuðu um 390 m.kr. á milli ára. Munar þar mestu um tekjur Billboard sem námu

Rekstrarreikningur 1F
2025 2024 Breyting %
Sala 7.003 6.417 586 9,1%
Kostnaðarverð sölu ( 4.526) ( 4.180) ( 346) 8,3%
Framlegð 2.477 2.237 240 10,7%
Aðrar rekstrartekjur 170 158 12 7,6%
Rekstrarkostnaður ( 1.997) ( 1.964) ( 33) 1,7%
Stjórnvaldssekt og skaðabætur ( 461) 0 ( 461)
Rekstrarhagnaður (EBIT) 189 431 ( 242) -56,1%
Fjármunatekjur 192 183 9 4,9%
Fjármagnsgjöld ( 513) ( 378) ( 135) 35,7%
Hrein fjármagnsgjöld ( 321) ( 195) ( 126) 64,6%
(Tap) hagnaður fyrir tekjuskatt ( 132) 236 ( 368) -155,9%
Tekjuskattur ( 56) ( 65) 9 -13,8%
(Tap) hagnaður ( 188) 171 ( 359) -209,9%
EBITDA 1.272 1.435 ( 163) -11,4%
(Tap ) hagnaður á hlut (0,08) 0,07 (0,15) -214,3%

370 m.kr., en félagið varð hluti af samstæðu í byrjun 2F 2024. Tekjur af vörusölu námu 415 m.kr. og drógust saman um 9 m.kr. eða 2,1% á milli ára. Tekjur af öðrum rekstri námu 542 m.kr. og hækkuðu um 92 m.kr. á milli ára.

Kostnaðarverð seldrar þjónustu nam 4.526 m.kr. og hækkaði um 346 m.kr. eða 8,3% frá sama tímabili 2024, einkum vegna nýrra dótturfélaga sem komu inn í samstæðuna á 2F 2024. Rekstrarkostnaður nam 2.458 m.kr. og hækkaði um 494 m.kr. eða 25,2% frá sama tímabili 2024 en 400 m.kr. af aukningunni má rekja til áðurnefnds Hæstaréttardóms, og rúmlega 60 m.kr. rekstrarkostnaðar í tengslum við þrjár aðrar lagadeilur sem lauk á fjórðungnum.

Afskriftir félagsins námu 1.083 m.kr. á 1F 2025 samanborið við 1.004 m.kr. á sama tímabili árið 2024 og hækka um 79 m.kr. á milli tímabila.

2 Inniheldur auglýsingatekjur í sjónvarpi sem áður tilheyrði Sjónvarpsþjónustu og auglýsingasölu Billboard sem áður tilheyrði öðrum tekjum.

Sjóðstreymi

Rekstrarhreyfingar námu samtals 1.283 m.kr. á 1F 2025 samanborið við 1.456 m.kr. á 1F 2024. Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum á 1F 2025 námu 122 m.kr. til lækkunar.

Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var því 1.161 m.kr. á 1F 2025 samanborið við 1.279 m.kr. á 1F 2024. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 872 m.kr. á 1F 2025 samanborið við 1.121 m.kr. á 1F 2024.

Sé leiðrétt fyrir gjaldfærslu vegna dómsmála var handbært fé án vaxta og skatta 1.621 m.kr., en 1.367 m.kr. eftir vexti og skatta.

Sjóðstreymi 1F 2025 1F 2024
Rekstrarhagnaður 189 431
Afskriftir 1.083 1.004
Liðir sem hafa ekki áhrif á sjóðstreymi 11 21
Samtals rekstrarhreyfingar 1.283 1.456
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum ( 122) ( 177)
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 1.161 1.279
Innborgaðir vextir 184 175
Greiddir vextir ( 420) ( 243)
Greiddir skattar ( 53) ( 90)
Handbært fé frá rekstri 872 1.121
Fjárfestingarhreyfingar ( 1.993) ( 5.143)
Fjármögnunarhreyfingar 683 4.240
Breytingar á handbæru fé ( 438) 218
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé ( 4) ( 2)
Handbært fé í byrjun tímabilsins 835 1.810
Handbært fé í lok tímabilsins 393 2.026

Á 1F 2024 keypti Síminn Billboard sem hefur áhrif á fjárfestinga- og fjármögnunarhreyfingar á því tímabili. Á 1F 2025 keypti Síminn lánasafn sem hefur áhrif á sömu liði.

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 42.135 m.kr. í lok 1F 2025 en voru 41.182 m.kr. í lok árs 2024.

Vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 18.884 m.kr. í lok 1F 2025 samanborið við 17.168 m.kr. í lok árs 2024. Handbært fé í lok 1F 2025 nam 393 m.kr. samanborið við 835 m.kr. í lok árs 2024. Hreinar vaxtaberandi skuldir að teknu tilliti til útlána Símans Pay voru 13.763 m.kr. í lok 1F 2025 samanborið við 13.021 m.kr. í árslok 2024.

Eigið fé félagsins nam 16.916 m.kr. í lok 1F 2025 og eiginfjárhlutfall félagsins var 40,1%.

Efnahagsreikningur 31.03.2025 31.12.2024 Breyting %
Rekstrarfjármunir 3.638 3.543 95 3%
Leigueignir 1.750 1.844 ( 94) -5%
Óefnislegar eignir 25.713 26.243 ( 530) -2%
Aðrar eignir 980 638 342 54%
Fastafjármunir 32.081 32.268 ( 187) -1%
Birgðir 1.329 1.339 ( 10) -1%
Viðskiptakröfur 2.403 2.503 ( 100) -4%
Útlán 4.278 3.204 1.074 34%
Aðrar skammtímakröfur 1.651 1.033 618 60%
Handbært fé 393 835 ( 442) -53%
Veltufjármunir 10.054 8.914 1.140 13%
Eignir samtals 42.135 41.182 953 2%
Eigið fé 16.916 18.116 ( 1.200) -7%
Eigið fé 16.916 18.116 ( 1.200) -7%
Vaxtaberandi skuldir 14.129 12.733 1.396 11%
Leiguskuldbindingar 1.484 1.571 ( 87) -6%
Tekjuskattsskuldbinding 578 686 ( 108) -16%
Langtímaskuldir 16.191 14.990 1.201 8%
Vaxtaberandi skuldir 2.484 2.084 400 19%
Viðskiptaskuldir 3.787 3.760 27 1%
Næsta árs afborganir 787 780 7 1%
Aðrar skammtímaskuldir 1.970 1.452 518 36%
Skammtímaskuldir 9.028 8.076 952 12%
Eigið fé og skuldir samtals 42.135 41.182 953 2%

Horfur fyrir árið 2025

Afkomuspá fyrir samstæðuna var uppfærð þann 26. febrúar 2025 með tilliti til niðurstöðu dóms Hæstaréttar í máli milli Símans og Samkeppniseftirlitsins sem féll sama dag. Hæstiréttur sneri þar með við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem og dómi Landsréttar um að ákvörðunin skyldi felld úr gildi og sektaði Símann um 400 milljónir króna.

Spá fyrir árið 2025 gerir ráð fyrir eftirtöldu:

  • EBITDA verði á bilinu 6,6 til 7,0 ma.kr.
  • EBIT verði á bilinu 3,2 til 3,6 ma.kr.3
  • Fjárfestingar verði á bilinu 2,8 til 3,1 ma.kr.

Kynningarfundur 30. apríl 2025

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 30. apríl 2025 kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Hluthafar, fjárfestar og markaðsaðilar eru sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn. Á fundinum munu María Björk Einarsdóttir forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast í fréttakerfi Nasdaq Iceland og á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/fjarfestar/uppgjor-og-arsskyrslur.

Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: https://www.siminn.is/fjarfestar/fjarfestakynning.

Þeir sem vilja bera upp spurningar geta sent þær á [email protected] og verður þeim svarað í lok fundarins.

Fjárhagsdagatal 2025

Uppgjör 2F 2025 19. ágúst 2025
Uppgjör 3F 2025 22. október 2025
Ársuppgjör 2025 17. febrúar 2026
Aðalfundur 2026 12. mars 2026

Nánari upplýsingar um uppgjörið veita:

María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans ([email protected]) Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans ([email protected])

3 Án áhrifa afskrifta á óefnislegum eignum vegna kaupa á félögum.

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.