Report Publication Announcement • Apr 22, 2025
Report Publication Announcement
Open in ViewerOpens in native device viewer
Disclosure 457843
Festi birtir uppgjör sitt fyrir 1. ársfjórðung 2025 eftir lokun markaða þriðjudaginn 29. apríl næstkomandi.
Afkomufundur með markaðsaðilum 30. apríl kl. 8:30.
Afkomufundur fyrir markaðsaðila verður haldinn miðvikudaginn 30. apríl 2025 kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 – 14 í Kópavogi. Á fundinum munu Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, og Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi, kynna afkomu samstæðunnar á fyrsta ársfjórðungi og svara spurningum.
Fundinum verður einnig streymt beint á vefsíðu félagsins þar sem skráning á fundinn fer jafnframt fram: https://www.festi.is/tenglar/uppgjor-1f-2025. Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected]. Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.
Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: https://www.festi.is/fjarhagsupplysingar.

Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.