Report Publication Announcement • Apr 22, 2025
Report Publication Announcement
Open in ViewerOpens in native device viewer
Disclosure 457836
Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung 2025 þann 29. apríl næstkomandi.
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 30. apríl í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst klukkan 8:30 og eru fjárfestar og markaðsaðilar sérstaklega boðnir velkomnir.
Á fundinum munu María Björk Einarsdóttir forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður aðgengilegt á fjárfestavef Símans og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstreymi á vef Símans. Þeir sem vilja bera upp spurningar meðan á streymi stendur geta sent þær á [email protected] og verður þeim svarað í lok fundar.
Nánari upplýsingar veitir Hersir Aron Ólafsson á netfanginu [email protected].

Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.