AGM Information • Mar 10, 2025
AGM Information
Open in ViewerOpens in native device viewer
Tillaga: Stjórn leggur til að fyrirliggjandi ársreikningur fyrir árið 2024 verði samþykktur.
Tillaga: Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði arður sem nemur kr. 2,94 á hlut fyrir rekstrarárið 2024 eða um 3.400 m.kr. Arðsákvörðunardagur er 13. mars 2025 og þar af leiðir að skráðir hluthafar í lok dags 17. mars 2025, sem telst arðsréttindadagur, eiga rétt á arðgreiðslu. Fyrsti viðskiptadagur eftir arðsákvörðunardag er 14. mars 2025 og er hann arðleysisdagur. Útborgunardagur arðs er 27. mars 2025.
Tillaga: Stjórn félagsins leggur til við aðalfund félagsins að meðfylgjandi starfskjarastefna verði samþykkt.
Stjórn leggur til endurskoðaða starfskjarastefnu. Tillögur stjórnar snúa í meginatriðum að orðalagsbreytingum til skýringar á mismunandi þáttum um kaupauka og kaupréttaráætlun. Gerð er tillaga um ný ákvæði um jafnrétti og um tryggingavernd stjórnar og stjórnenda.
Starfskjarastefna þessi er sett á grundvelli 79. gr. a laga nr. 2/1995, um hlutafélög, auk reglna um góða stjórnarhætti og tekur mið af 51. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi.
Stefnan miðar að því að félagið sé ávallt samkeppnishæft og geti ráðið til sín framúrskarandi starfsfólk.
Nær yfir helstu atriði í starfs- og launakjörum forstjóra, stjórnenda og starfsmanna félagsins og dótturfélaga þess. Starfskjaranefnd er skipuð stjórn félagsins.
Starfskjarastefna Sjóvá-Almennra trygginga hf. miðar að því að starfsfólk félagsins vinni að verkefnum í þeim tilgangi að tryggja velgengni félagsins. Starfskjarastefnan nær yfir helstu atriði í starfs- og launakjörum forstjóra, stjórnenda og starfsmanna félagsins. Við framkvæmd stefnunnar skal jafnframt farið eftir mannréttindastefnu félagsins sem kveður á um að starfsfólk skuli fá greidd jöfn laun og njóta sömu kjara fyrir sömu og jafnverðmæt störf, óháð kyni. Með jöfnum launum er átt við að laun skulu ákveðin á sama hátt fyrir allt starfsfólk óháð kyni eða öðrum ómálefnalegum þáttum.
Starfskjör stjórnarmanna eru ákveðin fyrir komandi starfsár á aðalfundi félagsins ár hvert. Skulu laun stjórnarmanna taka mið af þeim tíma sem þeir þurfa að verja til starfans og þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir.
Starfskjör forstjóra félagsins skulu ítarlega tilgreind í skriflegum ráðningarsamningi þar sem skýrt kemur fram hver eru föst laun, lífeyrisréttindi, orlof, önnur hlunnindi og uppsagnarfrestur. Við gerð ráðningarsamnings skal haft að leiðarljósi að ekki komi til frekari greiðslna við starfslok en fram koma í ráðningarsamningi. Einungis er heimilt við sérstök skilyrði, að mati stjórnar, að gera sérstakan starfslokasamning við forstjóra. Skal sérstaklega færa þá ákvörðun til bókar á stjórnarfundi ásamt röksemdum.
Starfskjör annarra æðstu stjórnenda skulu ítarlega tilgreind í skriflegum ráðningarsamningi þar sem tiltekin eru sömu atriði og fram koma um starfskjör forstjóra, eftir því sem við á.
Félagið skal tryggja að á hverjum tíma sé í gildi ábyrgðartrygging fyrir stjórnarmenn og æðstu stjórnendur, bæði starfandi og fyrrverandi, vegna hugsanlegra krafa í tengslum við störf þeirra. Félagið greiðir tryggingariðgjald ábyrgðartryggingarinnar og samkvæmt skilmálum hennar er greiddur eðlilegur kostnaður af málsvörn gagnvart kröfum eða rannsóknum af ofangreindum toga. Félagið skal þannig tryggja að stjórn og stjórnendum sé haldið skaðlausum af kröfum sem á þau kunna að verða gerðar eða á þau kunna að falla vegna starfa fyrir félagið, að svo miklu leyti sem slík krafa er ekki til komin fyrir háttsemi sem metin er til ásetnings eða stórkostlegs gáleysis.
Starfskjör annarra starfsmanna félagsins skulu ákveðin í skriflegum ráðningarsamningi þar sem skýrt kemur fram hver eru föst laun, lífeyrisréttindi, orlof, önnur hlunnindi og uppsagnarfrestur.
Starfskjarastefnu skal endurskoða árlega og skal greiða atkvæði um hana á hverjum aðalfundi. Gera skal árlega grein fyrir launum og öðrum starfskjörum stjórnar og æðstu stjórnenda í ársskýrslu félagsins. Frávik frá starfskjarastefnu skulu rökstudd sérstaklega í hverju tilviki og færð til bókar.
Stjórn félagsins er heimilt að greiða starfsmönnum og stjórnendum árangurstengdar greiðslur, kaupauka, sem stjórnin samþykkir að fengnu áliti starfskjaranefndar.
Með kaupauka er átt við greiðslur og hlunnindi til starfsmanns, meðal annars reiðufé, sérstakar lífeyrisgreiðslur og kaupréttir, tengdum fyrir fram ákveðnum og mælanlegum árangursviðmiðum að teknu tilliti til heildarafkomu og framtíðarstefnu vátryggingafélagsins yfir lengri tíma, undirliggjandi áhættu og fjármagnskostnaðar þess. Greiðslan er ekki þáttur í föstum starfskjörum starfsmanns, þar sem endanleg fjárhæð eða umfang greiðslu liggur ekki fyrir með nákvæmum hætti fyrirfram. Einungis er um að ræða heimild en ekki skyldu félagsins til greiðslu kaupauka.
Kaupauki til starfsmanna og stjórnenda skal uppfylla kröfur 51. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi og skal samtala veitts kaupauka til starfsmanns, þ.m.t. á grundvelli kauprétta, á ársgrundvelli ekki nema hærri fjárhæð en 25% af árslaunum viðkomandi án kaupauka.
Félaginu er óheimilt að veita lán eða ábyrgðir af nokkru tagi í tengslum við úthlutun kaupauka.
Félaginu er heimilt að setja á stofn kaupaukakerfi í formi kauprétta sem hafi það að markmiði að tengja hagsmuni starfsmanna félagsins við hluthafa, auk þess að hjálpa til við að laða að hæft starfsfólk og auka tryggð innan félagsins við afkomu og langtímamarkmið félagsins og hluthafa þess. Í því skyni hefur félagið sett sér kaupréttaráætlun sem uppfyllir skilyrði 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og 51. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi. Var það gert á árinu 2024, í samræmi við heimild aðalfundar félagsins þann 7. mars 2024.
Stjórn er heimilt að útfæra frekari kaupréttaráætlanir og kaupréttarsamninga á grundvelli mælikvarða um árangur fyrir stjórnendur og aðra starfsmenn sem skal lögð fyrir hluthafafund félagsins til samþykktar. Slíkar kaupréttaráætlanir og kaupréttarsamningar gerðir á grundvelli þeirra skulu almennt miða við að fjárhagslegir mælikvarðar um árangur (s.s. um arðsemi eiginfjár félagsins, eiginfjárhlutfall, samsett hlutfall, lausafjárhlutfall og annan rekstrarárangur) vegi um 50%, en um 50% ráðist af stefnumarkandi markmiðum í rekstri félagsins, s.s. fylgni við lög og reglur, kostnaðarvitund, umbótavilja, ánægju viðskiptavina og áhættuvitund starfsmanns.
Tilgangurinn með því að heimila stjórn að greiða starfsmönnum og stjórnendum árangurstengdar greiðslur, að fengnu samþykki starfskjaranefndar, á grundvelli fyrir fram ákveðinna og mælanlegra árangursviðmiða að teknu tilliti til heildarafkomu og framtíðarstefnu félagsins yfir lengri tíma.
Lagt er til að stjórn verði gert heimilt að útfæra og leggja fyrir hluthafafund til samþykktar kaupréttaráætlun sem byggir á árangurstengdum mælikvörðum sem tvinna saman langtímahagsmuni félagsins við stjórnendur og aðra starfsmenn.
Í endurskoðaðri starfskjarastefnu er gerð tillaga um ný ákvæði um jafnrétti í samræmi við mannréttindastefnu félagsins. Sömuleiðis var bætt við ákvæðum sem skýra stefnu félagsins um tryggingavernd fyrir stjórn og stjórnendur.
Í framboði til stjórnar félagsins eru Björgólfur Jóhannsson, Guðmundur Örn Gunnarsson, Hildur Árnadóttir, Ingi Jóhann Guðmundsson og Ingunn Agnes Kro. Í framboði til varamennsku í stjórn eru Erna Gísladóttir og Garðar Gíslason.
Tillaga: Lagt er til að KPMG ehf. verði kosið endurskoðunarfélag félagsins til eins árs.
Tillaga: Stjórn leggur til að aðalfundur tilnefni Önnu Birgittu Geirfinnsdóttur og Friðrik S. Halldórsson til setu í endurskoðunarnefnd.
Félagið er eining tengd almannahagsmunum í skilningi laga nr. 3/2006 um ársreikninga og skal því starfa endurskoðunarnefnd innan félagsins, sbr. IX kafla A í lögunum. Í 108. gr. a. laganna er mælt fyrir um að sé nefndarmaður í endurskoðunarnefnd utanaðkomandi aðili skuli hann tilnefndur af aðalfundi.
Tillaga: Lagt er til að stjórnarlaun verði hækkuð úr kr. 451.000 á mánuði í kr. 467.000 og að laun stjórnarformanns verði hækkuð úr kr. 886.000 á mánuði í kr. 917.000. Hvorum varamanni skal greidd eingreiðsla kr. 467.000 í upphafi starfsárs og að auki kr. 161.000 fyrir hvern fund sem hann situr. Lagt er til að nefndarlaun í endurskoðunarnefnd verði kr. 122.000 á mánuði og að laun nefndarformanns verði kr. 242.000 á mánuði. Lagt er til að nefndarlaun í starfskjaranefnd verði kr. 25.000 á mánuði og að laun nefndarformanns verði kr. 50.000 á mánuði. Lagt er til að þóknun til nefndarmanna tilnefningarnefndar verði kr. 36.000 á mánuði og kr. 48.000 fyrir hvern fund og formaður fái 50% álag.
Tillaga: Stjórn félagsins leggur til endurnýjun á heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutum í félaginu. Samkvæmt 9. gr. samþykkta félagsins skal slíkrar heimildar getið í viðauka við samþykktir:
"Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. haldinn 13. mars 2025 veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa allt að 115.659.000 eigin hluti í félaginu. Heimild þessi skal nýtt í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum. Hlutabréf sem félagið eignast á grundvelli heimildar þessarar má meðal annars nota í þeim tilgangi að lækka hlutafé eða uppfylla skuldbindingar félagsins samkvæmt kaupréttarsamningum sem gerðir eru við starfsfólk í samræmi við starfskjarastefnu og kaupréttaráætlun félagsins. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að eignarhald félagsins, og dótturfélaga þess, fari ekki umfram 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hluti í félaginu fara fram, hvort sem er hærra. Aðrar eldri heimildir til kaupa á eigin hlutabréfum falla úr gildi við samþykkt heimildar þessarar."
Með tillögunni er lagt til að stjórn félagsins fái nýja heimild til endurkaupa á eigin hlutum. Heimildin til þess að nota hlutabréf sem félagið eignast á grundvelli heimildar þessarar til þess að uppfylla skuldbindingar samkvæmt kaupréttarsamningum er nátengd starfskjarastefnu félagsins. Sem fyrr er tilgangur félagsins með endurkaupum einnig að lækka hlutafé félagsins, að fengnu samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.
Samþykki aðalfundur tillögu stjórnar um áframhaldandi heimild til kaupa á eigin hlutum mun núverandi viðauki við samþykktirnar um endurkaup, samanber samþykkt aðalfundar 7. mars 2024, falla brott.
Björgólfur Jóhannsson, stjórnarformaður, fæddur 28. ágúst 1955, til heimilis á Seltjarnarnesi. Björgólfur var kjörinn í stjórn Sjóvár 15. mars 2019 en steig til hliðar í nóvember 2019 tímabundið og var aftur kjörinn í stjórn 12. mars 2020 og tók þá við stjórnarformennsku. Björgólfur er með Cand. Oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og löggildingarpróf í endurskoðun. Hann starfaði sem endurskoðandi á árunum 1985-1992. Björgólfur var fjármálastjóri Útgerðarfélags Akureyringa hf. 1992-1996, framkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar hjá Samherja 1996-1999, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar 1999- 2006, framkvæmdastjóri Icelandic 2006-2007 og forstjóri Icelandair Group 2008-2018. Hann starfaði sem annar forstjóra Samherja frá nóvember 2019 til febrúar 2021. Björgólfur var formaður stjórnar LÍÚ á árunum 2003-2008 og formaður Samtaka atvinnulífsins 2013-2017. Í gegnum árin hefur hann setið í stjórnum margra fyrirtækja í ýmsum greinum atvinnulífsins. Björgólfur situr í stjórnum Kjálkaness, Norðurbaða, Gadusar og Steinasala.
Björgólfur er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Hildur Árnadóttir, varaformaður, fædd 4. ágúst 1966, til heimilis í Kópavogi. Hildur hefur setið í stjórn Sjóvár frá 15. mars 2019. Hún var formaður stjórnar frá nóvember 2019 til mars 2020. Hildur er með Cand. Oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og lauk prófi sem löggiltur endurskoðandi. Hildur starfaði sem löggiltur endurskoðandi og eigandi hjá KPMG 1990- 2004, framkvæmdastjóri fjármála hjá Bakkavör Group hf. og síðar sem ráðgjafi á skrifstofu forstjóra 2004-2014, forstöðumaður fjárstýringar Íslandsbanka 2014-2015 og við ráðgjöf og stjórnarstörf frá 2016. Í gegnum árin hefur Hildur setið í stjórnum margra fyrirtækja í ýmsum greinum atvinnulífsins, s.s. í stjórn Bakkavarar Group hf., Exista hf. og Viðskiptaráðs. Hún hefur jafnframt verið í endurskoðunar- og starfskjaranefndum. Hildur situr í stjórnum Íslandsstofu, Arctic Fish Holding SA, Eldeyjar eignarhaldsfélags hf., Norðursiglingar hf., Íþöku fasteigna ehf., Héðins hf. og Argyron ehf.
Hildur er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Guðmundur Örn Gunnarsson, fæddur 6. janúar 1963, til heimilis í Garðabæ. Guðmundur var fyrst kjörinn í stjórn Sjóvár 12. mars 2020 og hann hefur frá 28. apríl 2021 verið stjórnarformaður dótturfélagsins Sjóvá-Almennra líftrygginga hf. Guðmundur stundaði nám í tryggingastærðfræði og tölvunarfræði við háskólann í Kaupmannahöfn í Danmörku. Guðmundur starfaði í 23 ár hjá Tryggingamiðstöðinni m.a. sem deildarstjóri upplýsingadeildar og hafði umsjón með tölvudeild, var framkvæmdastjóri rekstrarsviðs og framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar. Hann var forstjóri Vátryggingafélags Íslands hf. (VÍS) og Líftryggingafélags Íslands (Lífís) 2008-2011. Frá 2011-2013 sinnti Guðmundur ýmsum ráðgjafastörfum og þá aðallega við gerð viðskiptaáætlana og gerð stefnumótunar á sviði nýsköpunar. Frá 2014-2022 var hann framkvæmdastjóri CAE Icelandair Flight Training ehf. sem á og rekur flugherma í þjálfunarsetri Icelandair. Guðmundur hefur víðtæka reynslu af stjórnarstörfum bæði sem almennur stjórnarmaður og stjórnarformaður. Hann er í dag stjórnarformaður hjá Vinnslustöðinni hf., stjórnarmaður hjá BL ehf. og stjórnarmaður hjá Ísorku ehf.
Guðmundur er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Ingi Jóhann Guðmundsson, fæddur 12. janúar 1969, til heimilis í Garðabæ. Ingi Jóhann hefur setið í stjórn Sjóvár frá 28. júlí 2011. Ingi Jóhann er Cand.Oecon. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og starfar sem framkvæmdastjóri Gjögurs hf. og Kjálkaness ehf. Ingi Jóhann er stjórnarformaður í Hrólfsskers ehf. sem á 15,94% hlut í Sjóvá, en Ingi Jóhann á óbeinan hlut Hrólfsskeri í gegnum Kjálkanes ehf. sem á 34,2% hlut í félaginu. Ingi á 22% eignarhlut í Kjálkanesi ehf.
Ingi telst óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess en telst háður stórum hluthafa samkvæmt leiðbeiningum um stjórnarhætti.
Ingunn Agnes Kro, fædd 27. mars 1982, til heimilis í Reykjavík. Ingunn var fyrst kjörin í stjórn Sjóvár 12. mars 2020. Hún er með BA og MA í lögfræði og með MBA gráðu frá Háskóla Íslands og er löggiltur verðbréfamiðlari. Ingunn starfaði hjá Skeljungi hf. á árunum 2009-2019, síðast sem framkvæmdastjóri skrifstofu- og samskiptasviðs, þar sem hún bar ábyrgð á samskipta-, samfélagsábyrgðar-, lögfræði-, markaðs- og mannauðsmálum, en áður sem yfirlögfræðingur, regluvörður, ritari stjórnar og sat í framkvæmdastjórn. Hún var einnig framkvæmdastjóri Íslenska vetnisfélagsins ehf. (dótturfélags Skeljungs hf.) á árunum 2018- 2019. Á árunum 2008-2010 var Ingunn stundakennari og síðar aðjúnkt hjá lagadeild Háskóla Íslands þar sem hún kenndi skaðabótarétt. Ingunn er stjórnarformaður RARIK. Hún er einnig stjórnarmaður hjá Iceland Seafood International hf. og formaður endurskoðunarnefndar félagsins. Ingunn situr auk þess í stjórn Freyju, fjárfestingasjóðs og stjórn Miklatorgs ehf. Þá er Ingunn stjórnarformaður Votlendissjóðs, sem er sjálfseignarstofnun sem vinnur að því markmiði að minnka losun gróðurhúsalofttegunda.
Ingunn er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Erna Gísladóttir, fædd 5. maí 1968, til heimilis í Garðabæ. Erna sat í stjórn Sjóvár frá 20. júní 2009 lengst af sem formaður stjórnar og síðar sem varamaður frá 15. mars 2019, en hún settist tímabundið aftur í stjórn 19. nóvember 2019 til 12. mars 2020. Erna lauk B.Sc. í hagfræði frá Háskóla Íslands 1991 og MBA frá IESE í Barcelona 2004. Erna er framkvæmdastjóri Egg ehf. Hún var forstjóri BL ehf. 2013-2023, forstjóri Bifreiða og landbúnaðarvéla hf. 2003-2008, var einn af eigendum þess félags og framkvæmdastjóri frá 1991. Hún situr í stjórnum BL ehf., Egg ehf., Egg fjárfestingar ehf., Umbreytingar slhf. og Ölmu ehf.
Erna er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins. Erna er ásamt eiginmanni sínum eigandi og stjórnarmaður í Egg fjárfestingar ehf. sem á 3,33% eignarhlut í Sjóvá.
Garðar Gíslason, fæddur 19. október 1966, til heimilis í Garðabæ. Hann hefur verið varamaður í stjórn Sjóvárfrá 30. september 2011. Garðar er Cand.Jur. frá Háskóla Íslands 1997. Hann hefur starfað sem lögmaður frá 2005, lengst af á LEX lögmannsstofu, en frá 2016 á IUS lögmannsstofu. Hann var yfirlögfræðingur og síðar forstöðumaður hjá embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins og staðgengill skattrannsóknarstjóra frá 1997-2005. Garðar situr í stjórnum eftirfarandi félaga: IUS lögmannsstofa ehf., Valshjartað hf., Ránarborg ehf. (varamaður), Harðbakur ehf. (varamaður), Völsi Capital Partners ehf. (varamaður) og Salvus ehf. (varamaður).
Garðar hefur veitt Sjóvá lögfræðilega ráðgjöf í afmörkuðum verkefnum á sviðum stjórnsýslu-, félaga- og fjármagnsmarkaðsréttar. Garðar er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Anna Birgitta Geirfinnsdóttir er fædd 1. janúar 1970. Anna Birgitta fékk löggildingu sem endurskoðandi í mars 2001 og Cand. Oecon viðskiptafræðigráðu frá Háskóla Íslands 1995. Anna Birgitta er fjármálastjóri HS Veitna hf. Á árunum 2021-2024 starfaði hún sjálfstætt ásamt því að sitja í nokkrum stjórnum og nefndum hjá ýmsum fyrirtækjum og stofnunum. Hún er fyrrverandi eigandi hjá Deloitte ehf. þar sem hún starfaði í yfir 30 ár. Anna Birgitta hefur setið í endurskoðunarnefnd Sjóvá frá árinu 2022.
Anna Birgitta er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Friðrik Halldórsson er fæddur 27. maí 1959, til heimilis í Reykjavík. Friðrik er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1985. Hann hefur starfað við bankamál lengstan starfstíma sinn við hin ýmsu störf. Má þar nefna að frá árinu 2008 til ársins 2018 starfaði hann sem forstöðumaður á endurskipulagningarsviði Landsbankans. Hann hefur setið í endurskoðunarnefnd Sjóva frá árinu 2018.
Friðrik er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.