Report Publication Announcement • Mar 5, 2025
Report Publication Announcement
Open in ViewerOpens in native device viewer
Disclosure 455809
Síldarvinnslan hf. birtir ársuppgjör 2024 eftir lokun markaða fimmtudaginn 6. mars 2025.
Fjárfestakynning verður þann sama dag kl. 16:00 en þá mun Gunnþór Ingvason, forstjóri félagsins, kynna uppgjör félagsins og fara yfir ástand og horfur.
Fjárfestakynningin verður eingöngu send út á vefstreymi. Vefstreymið má nálgast á https://svn.is/fjarfestar/streymi/. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en kynning hefst.
Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir og á meðan á fundi stendur á netfangið [email protected].
Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Síldarvinnslunnar, www.svn.is/fjarfestar/. Upptaka verður einnig aðgengileg á fjárfestasíðunni að fundi loknum.
Nánari upplýsingar veitir Gunnþór Ingvason í síma 470-7000 eða á [email protected]

Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.