Pre-Annual General Meeting Information • Feb 28, 2025
Pre-Annual General Meeting Information
Open in ViewerOpens in native device viewer
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn að Skarfagörðum 4, Reykjavík, föstudaginn 21. mars 2025 og hefst klukkan 16:00.
Á dagskrá fundarins verður:
Endanleg dagskrá fundarins, endanlegar tillögur ásamt ársreikningi félagsins er lögð verða fyrir aðalfundinn munu liggja frammi á skrifstofu félagsins á hefðbundnum skrifstofutíma og heimasíðu þess (https://hampidjan.is/fjarmal), hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað frá klukkan 15:30 á fundardegi. Eitt atkvæði fylgir hverri einni krónu í hlutafé í félaginu. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar.
Hluthafar sem eru nafnskráðir í hlutaskrá félagsins skv. hluthafakerfi félagsins þegar aðalfundur fer fram geta nýtt atkvæðaréttindi sín á aðalfundi. Rétt er að benda á að uppgjör viðskipta hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð tekur yfirleitt tvo daga. Er því mælst til þess að síðasti viðskiptadagur sé 19. mars vilji hluthafi nýta réttindi sín á fundinum.
Samkvæmt samþykktum félagsins og ákvæði 63. gr. a. í lögum um hlutafélög skulu þeir sem hyggjast gefa kost á sér til stjórnarkjörs tilkynna félagsstjórn um framboð sitt. Framboðum skal skila á skrifstofu félagsins Skarfagörðum 4 eða á netfangið [email protected]. Framboðsfresti fyrir stjórnarkjör lýkur 5 dögum fyrir aðalfund eða kl. 16:00 sunnudaginn 16. mars. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar munu liggja frammi á skrifstofu félagsins og verða birtar á heimasíðu þess eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfundinn.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu hafa borist í hendur stjórnar með skriflegum hætti eigi síðar en 10 dögum fyrir aðalfund. Slík erindi skulu send á tölvupóstfangið [email protected]. Hver hluthafi í félaginu á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar ef framangreind skilyrði eru uppfyllt.
Endanleg dagskrá aðalfundarins og gögn er lögð verða fyrir fundinn verða gerð aðgengileg á skrifstofu félagsins og heimasíðu þess (https://hampidjan.is/fjarmal) föstudaginn 14. mars 2025.
Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það skriflega eða með rafrænum hætti og þannig að dagsetning komi fram. Form að slíku umboði er á heimasíðu Hampiðjunnar (https://hampidjan.is/fjarmal). Tekið skal fram að umboð getur aldrei gilt lengur en í eitt ár frá dagsetningu þess.
Stjórn Hampiðjunnar hf.

Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.