Earnings Release • Nov 27, 2024
Earnings Release
Open in ViewerOpens in native device viewer

"Grunnrekstur samstæðunnar gekk vel á þriðja ársfjórðungi ársins. Áframhaldandi vöxtur einkenndi tryggingastarfsemina og undirliggjandi arðsemi batnaði áfram líkt og undanfarna fjórðunga. Iðgjaldavöxtur var 9,8% á fjórðungnum sem er í takt við áætlanir og samsett hlutfall var 92,3% sem er talsverð lækkun á milli ára. Tekjur af fjármálastarfsemi halda áfram að vaxa og afkoman fer batnandi eftir nokkrar sveiflur á fyrri hluta árs. Aukin umsvif á fjármálamörkuðum með haustinu gefa jafnframt tilefni til bjartsýni varðandi komandi misseri. Ávöxtun af fjárfestingaeignum á tímabilinu var undir markmiðum en niðurfærsla á virði Controlant í litaði afkomu fjárfestinga talsvert. Á fyrstu 9 mánuðum ársins var grunnrekstur samstæðunnar í takt við markmið og eru horfur ársins og rekstrarmarkmið til lengri tíma óbreyttar.
Við horfum, sem fyrr, til þess að auka skilvirkni innan samstæðunnar, og höfum við nýverið ráðist í aðgerðir sem miða að því að lækka árlegan rekstrarkostnað samstæðunnar um 300 milljónir króna. Samhliða þessu horfum við til þess að ná fram árlegri kostnaðarsamlegð í fjármálastarfsemi um ríflega 220 milljónir með innkomu Íslenskra verðbréfa í samstæðuna. Samanlagt eiga þessar aðgerðir að skila samstæðunni ríflega 500 milljóna afkomubata horft fram á veginn. Við leggjum því nú fram afkomuhorfur fyrir árið 2025 sem endurspegla það rekstrarhagræði sem ráðist hefur verið í og þann takt sem við finnum fyrir í grunnrekstri félagsins.
Tryggingarekstur samstæðunnar hélt áfram að vaxa umfram verðbólgu og tryggingamarkaðinn. Kostnaðarhlutfall lækkaði jafnframt áfram og nam 16,3% á fjórðungnum samanborið við 18,7% árið áður. Samsett hlutfall þróaðist í takt við markmið og nam 92,3% á fjórðungnum og 95,2% á fyrstu 9 mánuðum ársins, þrátt fyrir fimm stærri tjón það sem af er ári. Þessi tjón telja um 3,3% í samsettu hlutfalli sem er nokkuð hærra en fyrstu 9 mánuði síðasta árs. Breyttar áherslur í sölufyrirkomulagi og aðgerðir til að auka skilvirkni halda því áfram að bera ávöxt, en afkoma af vátryggingasamningum nam 590 m.kr. á fjórðungnum samanborið við 368 m.kr. árið 2023. Viðsnúningur í afkomu tryggingarekstrar nemur um 1.144 milljónum króna milli ára.
Fjárfestingatekjur á þriðja fjórðungi námu 713 m.kr. eða því sem nemur 1,6% nafnávöxtun. Fjárfestingatekjur fyrstu 9 mánuði ársins námu samtals 2.011 m.kr. sem samsvarar 4,6% ávöxtun. Ávöxtun af skráðum hlutabréfum tók við sér á fjórðungnum og námu 293 m.kr. króna, en rúmlega 60% niðurfærsla á gengi Controlant, úr 80 krónur á hlut í 30 krónur á hlut, hafði neikvæð áhrif á ávöxtun. Námu áhrif af lækkun á virði Controlant alls um 417 m.kr. á fjórðungnum.
Tekjur af fjármálastarfsemi héldu áfram að vaxa samanborið við fyrra ár. Hreinar tekjur af fjármálastarfsemi námu 478 m.kr. á fjórðungnum, samanborið við 264 m.kr. á sama tíma árið áður í pro-forma samanburði. Fyrstu níu mánuði ársins námu tekjur af fjármálastarfsemi um 1.452 m.kr., samanborið við 779 m.kr. á sama tíma árið áður í pro-forma samanburði, sem samsvarar um 86% vexti á tímabilinu. Þess ber að geta að starfsemi SIV hófst ekki fyrr en á seinni árshelmingi síðasta árs. Afkoma af fjármálastarfsemi á þriðja ársfjórðungi var neikvæð um 31 m.kr. fyrir skatta en jákvæð um 76 m.kr. eftir skatta. Undir lok fjórðungsins luku Fossar sinni annarri skuldabréfaútgáfu sem var til tveggja ára á á ávöxtunarkröfunni 9,48%. Eftirspurn eftir fjármögnun félagsins á samkeppnishæfum kjörum styður við vegferð bankans um kröftugan vöxt.
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands veitti í lok október samþykki fyrir virkum eignarhlut samstæðunnar í Íslenskum verðbréfum og ÍV sjóðum. Í framhaldinu voru kaupin að fullu frágengin þann 11. nóvember sl. og verður samstæða Íslenskra verðbréfa því hluti af samstæðuuppgjöri Skaga frá og með fjórða ársfjórðungi þessa árs. Strax í kjölfarið er fyrirhuguð samþætting ÍV í fjármálastarfsemi í samstæðu Skaga þar sem meðal annars er horft til sameiningar ÍV sjóða og SIV eignastýringar ásamt því að samþætta vörslu og miðlun hjá ÍV yfir í Fossa. Kostnaðarsamlegð í fjármálastarfsemi Skaga er áætluð um 220 milljónir á ársgrundvelli, þegar hún hefur komið að fullu til framkvæmda. Með innkomu ÍV aukast eignir í stýringu í samstæðu Skaga um ríflega 100 milljarða og er áætlað að árlegar eigna- og sjóðastýringartekjur í fjármálastarfsemi Skaga muni samanlagt verða vel umfram 1 milljarð króna á næsta ári.
Horfur fyrir rekstrarárið 2024, sem settar voru fram í upphafi árs, eru óbreyttar1 :
Horfur fyrir rekstrarárið 2025 settar fram2 :
2 Hreinar fjármálatekjur eru allar tekjur í fjármálastarfsemi, þ.m.t. hreinar vaxta- og þóknanatekjur, fjármunatekjur og aðrar tekjur.
1 Upplýst verður um afkomuhorfur í trygginga- og fjármálastarfsemi ef þær breytast frá þeim vikmörkum sem kynntar eru.
3 Um er að ræða áætlaða ávöxtun fjárfestingareigna VÍS. Ekki verður upplýst um frávik frá áætlaðri ávöxtun fjárfestingareigna. Félagið birtir upplýsingar um stærstu eignir í fjárfestingarstarfsemi í fjárfestakynningum ársfjórðungslega. Hafa skal í huga að heildarstærð fjárfestingarsafnsins getur hækkað og lækkað vegna verðbreytinga, arðgreiðslna, endurkaupa, tilfærslu á ráðstöfun fjármagns innan samstæðu o.fl.
4 Hreinar fjármálatekjur eru allar tekjur í fjármálastarfsemi, þ.m.t. hreinar vaxta- og þóknanatekjur, fjármunatekjur og aðrar tekjur.
Kynningarfundur vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 27. nóvember, klukkan 16.30 í höfuðstöðvum félagsins í Ármúla 3, Reykjavík. Haraldur Þórðarson, forstjóri samstæðu, og Brynjar Þór Hreinsson, fjármálastjóri samstæðu, munu kynna uppgjörið. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi og nálgast má upptöku af honum á fjárfestasíðu félagsins. Þar verður einnig hægt að nálgast kynningarefni fundarins.
Ársuppgjör 2024 || 26. febrúar 2025
Nánari upplýsingar veitir Haraldur Þórðarson, forstjóri Skaga. Vinsamlegast sendið fyrirspurnir á netfangið [email protected].
Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.