AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Fly Play hf.

Related Party Transaction Jan 7, 2008

6604_rns_2008-01-07_e7264dc4-7281-4f68-97ea-e01ad69c8c66.html

Related Party Transaction

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Disclosure 249147

FL GROUP hf. - Fyrirtækjafréttir

FL Group selur í Finnair

FL Group hefur selt 11,7% eignarhlut í finnska flugfélaginu Finnair og er sala bréfanna í samræmi við stefnu félagsins um að minnka fjárfestingar tengdar flugrekstri. Áhersla verður áfram lögð á að styðja vel við núverandi fjárfestingar í fjármála- og fasteignafélögum, auk þess sem félagið mun leita áhugaverðra tækifæra í einkafjárfestingum (private equity). Sala bréfanna fellur einnig vel að þeirri yfirlýstu stefnu stjórnenda Finnair, að auka dreifingu eignarhalds, en fyrir söluna áttu FL Group og finnska ríkið um 80% af útistandandi hlutafé félagsins. Rekstur Finnair hefur gengið vel á árinu og gaf félagið nýlega út jákvæða afkomuviðvörun, þar sem búist er við að hagnaður félagsins aukist úr 70 milljónum evra, sem áður var spáð, í 90 milljónir evra á árinu 2007. FL Group er áfram annar stærsti hluthafinn í Finnair, með 12,7% eignarhlut í félaginu og styður áfram metnaðarfull vaxtarmarkmið þess. Fjárhagsleg áhrif Í lok þriðja ársfjórðungs var heildarvirði hlutar félagsins í Finnair um 22,1 milljarður króna og samsvarar raunverulegu markaðsvirði hlutarins, þar sem FL Group færir allar sínar eignir á markaðsvirði í árshlutauppgjörum. Samhliða óróa á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og almenna lækkun hlutabréfa í flugfélögum undanfarna mánuði, hefur markaðsvirði þess hlutar sem nú er seldur lækkað um 2,8 milljarða króna á fjórða ársfjórðungi. Frekari upplýsingar veitir: Halldór Kristmannsson Framkvæmdastjóri Samskiptasviðs Sími: 591 4400 / 669 4476 Póstfang: [email protected] Um FL Group FL Group er alþjóðlegt fjárfestingafélag með áherslu á þrjú fjárfestingasvið, FIG, Private Equity og Capital Markets. FIG hefur umsjón með áhrifafjárfestingum í fjármálafyrirtækjum og tryggingafélögum. Private Equity heldur utan um óskráðar eignir ásamt skráðum eignum sem falla að fjárfestingarstefnu félagsins. Capital Markets svið félagsins hefur umsjón með markaðsviðskiptum sem lúta að skammtíma fjárfestingum sem og framkvæmd afleiðu- og verðbréfaviðskipta tengdum eignasafni félagsins Höfuðstöðvar FL Group eru í Reykjavík en félagið er einnig með skrifstofur í Lundúnum. FL Group fjárfestir í félögum um allan heim en leggur sérstaka áherslu á fjárfestingar í Evrópu. FL Group er skráð á OMX Nordic Exchange í Reykjavík (OMX: FL) og hluthafar félagsins eru rúmlega 4.000 talsins. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu FL Group, www.flgroup.is.

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.