AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Icelandic Salmon AS

Capital/Financing Update Apr 1, 2008

3632_rns_2008-04-01_63c5cd9c-6594-4f16-a491-fd191d3345ca.html

Capital/Financing Update

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Disclosure 257272

Icelandic Group hf. - Fyrirtækjafréttir

- Tillaga um útgáfu víkjandi breytanlegs skuldabréfaláns

Stjórn Icelandic Group hf. hefur ákveðið að aðalfundur félagsins verði haldinn þann 18. apríl n.k. klukkan 16:00. Fundurinn verður nánar auglýstur síðar. Stjórn Icelandic Group hf. hefur samþykkt að leggja tillögu fyrir hluthafa á komandi aðalfundi félagsins þess efnis að hluthafar samþykki að félaginu verði heimilt að taka víkjandi skuldabréfalán til 4 ára samanlagt að höfuðstólsfjárhæð í íslenskum krónum er samsvarar € 41.000.000 á þeim tíma sem skuldabréfalánið er veitt, með 23% föstum ársvöxtum, er veiti kröfuhafa rétt til þess að breyta kröfu samkvæmt skuldabréfaláninu á hendur félaginu í hluti í því á genginu 1,00. Miðað við að framangreind fjárhæð væri ISK 5.000.000.000, þá hefði þetta í för með sér að félagið gæfi út nýja hluti að nafnverði allt að 11.444.332.050 eftir fjögur ár. Til stendur að bjóða hluthöfum félagsins og fagfjárfestum að kaupa framangreind skuldabréf í lokuðu útboði. Andvirði framangreindra skuldabréfa yrði varið til frekari styrkingar á innviðum félagsins og lækkunar á hlutfalli skammtímafjármögnunar í heildarfjármögnun félagsins. Stjórn Icelandic Group hf. samþykkti ennfremur að falla frá áður samþykktri tillögu sinni um að leggja til við aðalfund aukningu á hlutafé um allt að jafnvirði € 30.000.000. Nánari upplýsingar veitir: Finnbogi A. Baldvinsson forstjóri Icelandic Group S: +49 1723 198 727 Um Icelandic Group Icelandic Group (OMX Nordic Exchange: IG) er alþjóðlegt net fyrirtækja sem starfa hvert á sínum markaði við framleiðslu og sölu sjávarafurða. Á mörgum mörkuðum er félagið þekkt fyrir vörumerki sitt ICELANDIC, sérstaklega innan veitingahúsa og mötuneyta. Félagið er einnig stór birgi smásöluverslana með framleiðslu undir eigin vörumerkjum eða undir vörumerkjum smásölukeðjanna. Starfsmenn Icelandic Group eru um 4.900. Hjá þeim stóra hópi liggur yfirgripsmikil þekking sem spannar allt frá veiðum og frumvinnslu sjávarfangs til vöruþróunar og framleiðslu tilbúinna rétta og þekking á markaði.

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.