AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Hampiðjan hf.

M&A Activity Jan 9, 2013

6172_rns_2013-01-09_50781d0f-8ed1-4e16-bd55-d26824d28bcc.html

M&A Activity

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Disclosure 303940

Hampiðjan hf. - Company Announcement (is)

Cosmos Trawl, fyrirtæki í 100% eigu Hampiðjunnar, kaupir 80% hlut í rekstri og eignum Nordsötrawl í Thyborön, Danmörku

Cosmos Trawl A/S í Hirtshals, Danmörku hefur keypt 80% hlut í rekstri og eignum netaverkstæðisins Nordsötrawl sem er starfrækt í Thyborön í Danmörku. Kaupverðið, sem er að fullu greitt, var DKK 13 milljónir. Jón Guðmann Pétursson, forstjóri Hampiðjunnar: Cosmos er stærsta netaverkstæði Danmerkur með starfsstöðvar í Hirtshals og Skagen. Norsötrawl í Thyborön er næst stærsta netaverkstæði Danmerkur en Thyborön hefur verið vaxandi fiskihöfn á umliðnum árum og er ein af megin fiskihöfnum Danmerkur. Með netaverkstæði í Hirtshals, Skagen og nú í Thyborön er staða Cosmos sterk á danska veiðarfæramarkaðnum. Þá erum við afar ánægð að fá Flemming Ruby, eiganda og stofnanda Nordsötrawl, í lið með okkur. Hann hefur verið frumkvöðull í þróun veiðarfæra fyrir fjöltrollaveiðar þar sem skip dregur allt upp í tólf botntroll í einu. Flemming mun eiga 20% í félaginu og reka það áfram af sama myndarskap hér eftir sem hingað til.

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.