AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Hampiðjan hf.

Annual Report Mar 6, 2014

6172_10-k_2014-03-06_774ce9a6-d683-49f8-94c1-815995f026f2.pdf

Annual Report

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Hampiðjan hf.

Ársreikningur samstæðu 2013

Skýrsla og áritun stjórnar og forstjóra 2 - 3
Áritun óháðs endurskoðanda 4
Rekstrarreikningur 5
Yfirlit um heildarafkomu 5
Efnahagsreikningur 6
Yfirlit yfir breytingar á eigin fé 7
Sjóðstreymi 8
Skýringar 9 - 27

Skýrsla og áritun stjórnar og forstjóra

Ársreikningur samstæðunnar hefur að geyma ársreikning Hampiðjunnar hf. og dótturfélaga. Dótturfélögin, sem öll eru hlutafélög, eru Hampidjan New Zealand á Nýja Sjálandi, Hampidjan USA í Bandaríkjunum, Swan Net Gundry á Írlandi, Cosmos Trawl í Danmörku, Hampidjan Canada í Kanada, Hampidjan Baltic í Litháen, Otter Ultra Low Drag á Cayman og Fjarðanet á Íslandi.

Meginstarfsemi samstæðunnar er framleiðsla og sala á veiðarfærum, íhlutum þeirra og ofurköðlum. Móðurfélagið, Hampiðjan hf., er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög.

Ársreikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Ársreikningur samstæðunnar hefur að geyma ársreikning Hampiðjunnar hf. (félagið) og dótturfélaga þess (samstæðan). Samstæðan stýrir fjármögnun sinni með það að markmiði að gengisáhætta lánsfjár sé á hverjum tíma innan skynsamlegra marka.

Rekstur og fjárhagsleg staða 2013

Rekstrartekjur samstæðunnar á árinu voru 50,4 milljónir evra en árið áður voru rekstrartekjur 45,2 milljónir evra. Unnin ársverk hjá samstæðunni voru 509, en voru 460 árið áður. Laun og launatengd gjöld námu 14,4 milljónum evra, þar af voru 2,4 milljónir evrur launatengd gjöld. Hagnaður ársins var 7,6 milljónir evrur en árið áður var hagnaður 5,5 milljónir evrur. Heildareignir samstæðunnar voru 88,7 milljónir evrur í árslok og eigið fé var 55,5 milljónir evrur en af þeirri upphæð eru 6,4 milljónir evrur hlutdeild minnihluta í eigin fé dótturfélaganna Swan Net Gundry á Írlandi, dótturfélags Cosmos Trawl í Danmörku og Fjarðaneta á Íslandi. Hlutfall eigin fjár, þegar hlutdeild minnihluta er talin með eigin fé, var 62,6% í árslok.

Vegna rekstrarársins 2013 leggur stjórn félagsins til að á árinu 2014 verði greiddur 0,54 kr. arður af hverjum hlut útistandandi hlutafjár til hluthafa að upphæð kr. 262,8 milljónir. Að öðru leyti er vísað í ársreikninginn varðandi breytingar á eigin fé félagsins.

Hlutafé og samþykktir

Útgefið hlutafé félagsins er kr. 500 milljónir í lok ársins, en félagið á eigin hluti að upphæð kr. 13,4 milljónir. Hlutaféð er í einum flokki sem er skráð á First North, hliðarmarkað Nasdaq OMX Nordic Exchange. Fjöldi hluthafa í félaginu var 225 í árslok, en var 238 í ársbyrjun. Allir hlutir njóta sömu réttinda. Tíu stærstu hluthafar í árslok voru:

31.12.2013 31.12.2012
Nafnverð Nafnverð
Hluthafi í þús. kr. Hltd.% í þús. kr. Hlutd.%
Vogun hf 188.031 38,60% 188.031 38,60%
Fiskveiðahlutafélagið Venus hf. 72.929 15,00% 72.929 15,00%
Feier ehf 68.561 14,10% 68.561 14,10%
Sameinaði lífeyrissjóðurinn 21.401 4,40% 0 0,00%
Ingibjörg Björnsdóttir 17.274 3,50% 0 0,00%
Lífeyrissjóður verkfræðinga 14.964 3,10% 12.378 2,50%
Hlér ehf 14.850 3,10% 14.850 3,10%
Sigurgeir B. Guðmannsson 12.750 2,60% 12.750 2,60%
Súsanna Sigurðardóttir 7.850 1,60% 7.850 1,60%
Langhólmi ehf. 4.918 1,00% 0 0,00%
Bragi Hannesson 0 0,00% 20.000 4,10%
Árni Vilhjálmsson 0 0,00% 17.274 3,50%
Unnur Þórðardóttir 0 0,00% 4.500 0,90%
423.528 87,00% 419.123 86,10%
Aðrir hluthafar 63.065 13,00% 67.470 13,90%
Útistandandi hlutafé 486.593 100,00% 486.593 100,00%
Eigin hlutir 13.407 13.407
Útgefið hlutafé 500.000 500.000

Á aðalfundi félagsins sem haldinn var 28. júní 2013 var stjórn félagsins heimilað að kaupa eigin hluti í félaginu þó þannig að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af útgefnu hlutafé þess.

Stjórnunarhættir

Stjórn félagsins hefur sett sér starfsreglur í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga, þar sem valdsvið stjórnar er skilgreint og verksvið hennar gagnvart forstjóra. Í starfsreglum þessum er meðal annars að finna reglur um fundarsköp, reglur um hæfi stjórnarmanna til þátttöku í afgreiðslu mála, reglur um þagnarskyldu, upplýsingagjöf forstjóra gagnvart stjórn og fleira.

Stjórn og forstjóri Hampiðjunnar hf. staðfesta hér með ársreikning samstæðu félagsins fyrir árið 2013 með undirritun sinni.

Reykjavík 6. mars 2014.

Vilhjálmur Vilhjálmsson stjórnarformaður

Kristján Loftsson meðstjórnandi

Jón Guðmann Pétursson forstjóri og meðstjórnandi

Auður Kristín Árnadóttir meðstjórnandi

Hjörleifur Jakobsson meðstjórnandi

Áritun óháðs endurskoðanda

Til stjórnar og hluthafa Hampiðjunnar hf.

Við höfum endurskoðað meðfylgjandi ársreikning samstæðu Hampiðjunnar hf. fyrir árið 2013. Ársreikningurinn hefur að geyma skýrslu stjórnar, rekstrarreikning, yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, yfirlit um breytingu á eigin fé, yfirlit um sjóðstreymi, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.

Ábyrgð stjórnenda á ársreikningnum

Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu ársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu. Stjórn og forstjóri eru einnig ábyrg fyrir því innra eftirliti sem nauðsynlegt er varðandi gerð og framsetningu ársreikningsins, þannig að hann sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.

Ábyrgð endurskoðenda

Ábyrgð okkar felst í því áliti sem við látum í ljós á ársreikningnum á grundvelli endurskoðunarinnar. Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Samkvæmt þeim ber okkur að fara eftir settum siðareglum, skipuleggja og haga endurskoðuninni þannig að nægjanleg vissa fáist um að ársreikningurinn sé án verulegra annmarka.

Endurskoðun felur í sér aðgerðir til staðfestingar á fjárhæðum og öðrum upplýsingum í ársreikningnum. Val endurskoðunaraðgerða byggir á faglegu mati endurskoðandans, þar með talið á þeirri hættu að verulegir annmarkar séu á ársreikningnum, hvort sem er af völdum sviksemi eða mistaka. Við áhættumatið er tekið tillit til þess innra eftirlits félagsins sem varðar gerð og glögga framsetningu ársreikningsins, til þess að skipuleggja viðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki í þeim tilgangi að gefa álit á virkni innra eftirlits fyrirtækisins. Endurskoðun felur einnig í sér mat á því hvort reikningsskilaaðferðir og matsaðferðir sem stjórnendur nota við gerð ársreikningsins séu viðeigandi sem og mat á framsetningu hans í heild og að ganga úr skugga um að skýrsla stjórnar hafi að geyma þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga.

Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægilegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.

Álit

Það er álit okkar að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu samstæðu Hampiðjunnar hf. á árinu 2013, efnahag 31. desember 2013 og breytingu á handbæru fé á árinu 2013, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og að skýrsla stjórnar hafi að geyma þær upplýsingar, komi þær ekki fram annars staðar í ársreikningnum, sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga.

Reykjavík 6. mars 2014

PricewaterhouseCoopers ehf

Kristinn Freyr Kristinsson Ómar H. Björnsson

Rekstrarreikningur samstæðu

Skýringar 2013 2012
Sala
Beinn framleiðslukostnaður
50.441
(34.212)
45.159
(30.238)
Framlegð 16.229 14.921
Rekstrarkostnaður 7 (10.327) (8.821)
Rekstrarhagnaður 5.902 6.100
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
Áhrif af rekstri hlutdeildarfélags
8
13
(1.021)
3.252
2.231
(951)
1.359
408
Hagnaður fyrir skatta 8.133 6.508
Tekjuskattur 9 (493) (991)
Hagnaður ársins 7.640 5.517
Skipting hagnaðar
Hluti hluthafa móðurfélagsins
Hluti minnihluta í afkomu dótturfélaga
7.291
349
5.254
263
Grunnhagnaður og þynntur hagnaður á hlut (EUR cent á hlut) 10 7.640
1,57
5.517
1,12
Yfirlit um heildarafkomu 2013 2012
Hagnaður ársins 7.640 5.517
Rekstrarliðir færðir á eigið fé
Þýðingarmunur vegna starfsemi erlendra dótturfélaga
Þýðingarmunur vegna hlutdeildarfélags
Þýðingarmunur vegna skattaáhrifa
(168)
(182)
0
(106)
95
(54)
Heildarafkoma ársins 7.290 5.452
Skipting heildarafkomu
Hluti hluthafa móðurfélagsins
Hluti minnihluta
6.926
364
5.316
136
Heildarafkoma ársins 7.290 5.452

Efnahagsreikningur samstæðu

Eignir Skýringar 2013 2012
Fastafjármunir
Varanlegir rekstrarfjármunir 11 32.778 32.249
Óefnislegar eignir 12 5.048 4.145
Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi 13 17.700 15.677
Fjárfestingareignir 14 481 474
Tekjuskattsinneign 19 101 111
56.108 52.656
Veltufjármunir
Birgðir 15 16.573 15.075
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 16 10.469 9.156
Handbært fé 17 5.575 4.735
32.617 28.966
Eignir samtals 88.725 81.622
Eigið fé
Hlutafé 5.474 5.474
Yfirverðsreikningur hlutafjár 57 57
Aðrir varasjóðir (196) 169
Óráðstafað eigið fé 43.805 37.416
49.140 43.116
Hlutdeild minnihluta 6.374 5.555
Eigið fé samtals 55.514 48.671
Skuldir
Langtímaskuldir
Langtímaskuldir 18 15.365 16.185
Tekjuskattsskuldbinding 19 2.652 2.422
18.017 18.607
Skammtímaskuldir
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 20 6.403 6.031
Skuldir við lánastofnanir 18 8.791 8.313
15.194 14.344
Skuldir samtals 33.211 32.951
Eigið fé og skuldir samtals 88.725 81.622

Yfirlit um breytingar á eigin fé samstæðu

Hlutafé Yfir
verðs-
reikn
Aðrir
vara-
sjóðir
Óráðst.
eigið fé
Hlutd.
minnihl.
Samtals
5.536 521 (207) 34.924 5.419 46.193
62 5.254 136 5.452
(1.683) (1.683)
314 (314) 0
0 0 376 3.257 136 3.769
(765) (765)
(62) (464) (526)
(62) (464) 0 (765) 0 (1.291)
5.474 57 169 37.416 5.555 48.671
(365) 7.291 364 7.290
455
7.745
(902) (902)
0 0 0 (902) 0 (902)
5.474 57 (196) 43.805 6.374 55.514
0 0 (365) 7.291 455
819

Frekari skýringar á eigin fé eru í skýringum 10 og 24

Sjóðstreymi samstæðu

Skýringar 2013 2012
Rekstrarhreyfingar
Rekstrarhagnaður 5.902 6.100
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir 1.931 1.657
Hagnaður fyrir fjárliði (EBITDA) 7.833 7.757
Söluhagnaður varanlegra rekstrarfjármuna (43) (20)
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum (1.542) (1.343)
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 6.248 6.394
Innborgaðir vextir og arður 1.283 616
Greiddir vextir (1.133) (1.227)
Greiddir skattar (703) (507)
Handbært fé frá rekstri 5.695 5.276
Fjárfestingahreyfingar
Kaup og sala varanlegra rekstrarfjármuna (1.469) (980)
Kaup óefnislegra eigna (133) (188)
Kaup og sala eignarhluta í öðrum félögum (1.830) 2
Handbært fé til fjárfestinga (3.432) (1.166)
Fjármögnunarhreyfingar
Skammtímalán, breyting 1.257 949
Tekin ný langtímalán 809 0
Afborganir langtímalána (2.587) (2.338)
Breyting á hlutafé 0 (526)
Arður greiddur til hluthafa (902) (765)
Handbært fé frá fjármögnun (til fjármögnunar) (1.423) (2.680)
Hækkun (lækkun) á handbæru fé 840 1.430
Handbært fé í byrjun árs 17 4.735 3.305
Handbært fé í lok ársins 17 5.575 4.735

1. Almennar upplýsingar

Meginstarfsemi samstæðunnar er framleiðsla og sala á veiðarfærum, íhlutum þeirra og ofurköðlum. Móðurfélagið, Hampiðjan hf., er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög.

Hampiðjan hf. er með heimilisfesti á Íslandi að Skarfagörðum 4, Reykjavík.

Félagið er skráð á First North hliðarmarkaði Nasdaq OMX Nordic Exchange.

Stjórn félagsins samþykkti þessi reikningsskil 6. mars 2014.

2. Reikningsskilaaðferðir

Helstu reikningsskilaaðferðir sem beitt var við gerð þessara reikningsskila eru tilgreindar hér á eftir. Þessum aðferðum var beitt á samræmdan hátt á bæði árin sem sett eru fram, nema annað sé tekið fram.

2.1 Grundvöllur reikningsskila

Ársreikningur samstæðu Hampiðjunnar hf. fyrir árið 2013 er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu (ESB).

Ársreikningurinn er gerður samkvæmt kostnaðarverðsaðferð. Ársreikningurinn er birtur í evrum, sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins. Allar fjárhæðir eru í þúsundum evra.

Gerð ársreikninga í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að notaðar séu tilteknar aðferðir við reikningshaldslegt mat. Nánar er greint frá þeim aðferðum í skýringu nr. 4.

2.1.1 Breytingar á reikningsskilaaðferðum og framsetningu

a) Reikningsskilastaðlar, lagfæringar og túlkanir sem tóku gildi 1. janúar 2013 og hafa áhrif á ársreikninginn

Eftirfarandi nýir staðlar tóku gildi í upphafi reikningsársins:

Staðall/túlkun Innihald Gildistökutími
IFRS 10 Samstæðurreikningsskil 1. janúar 2013
IFRS 11 Sameiginleg tilhögun 1. janúar 2013
IFRS 12 Skýringar við eignarhluti í öðrum fyrirtækjum 1. janúar 2013
IFRS 13 Mat á markaðsvirði 1. janúar 2013

Staðlarnir um samstæðureikningsskil og skýringar við eignarhluti í öðrum fyrirtækjum eru viðeigandi fyrir samstæðunna, en innleiðing þeirra hafði ekki áhrif á meðferð og framsetningu eignarhuta í samstæðunni. Aðrir staðlar hafa engin áhrif á samstæðuna.

Auk þessa tóku á timabilinu gildi breytingar á nokkrum stöðlum, sem ekki hafa áhrif á samstæðuna.

b) Innleiðing staðla fyrir gildistökutíma þeirra.

Samstæðan innleiddi enga staðla fyrir gildistökutíma þeirra á árinu 2013.

2.2 Samstæðureikningsskil

a) Dótturfélög

Dótturfélög eru öll fyrirtæki þar sem samstæðan hefur vald til að ráða fjárhagslegri og stjórnunarlegri stefnu, sem fylgir að öðru jöfnu eignarhlut með meira en helmingi atkvæðaréttar. Dótturfélög eru að fullu hluti samstæðunnar frá þeim degi þegar yfirráð eru færð yfir til samstæðunnar. Þau eru tekin út úr samstæðunni frá þeim degi þegar yfirráðum lýkur.

9

Kaupaðferð í reikningshaldi er notuð við færslu kaupa samstæðunnar á dótturfélögum. Kaupverð er metið sem gangvirði tilgreindra eigna sem látnar eru af hendi, útgefinna eiginfjárgerninga og skulda sem stofnað er til eða teknar eru yfir á viðskiptadegi, auk kostnaðar sem rekja má beint til yfirtökunnar. Aðgreinanlegar eignir og skuldir og skuldbindingar sem eru yfirteknar við sameiningu fyrirtækja eru metnar í upphafi á gangvirði á yfirtökudegi, án tillits til hversu mikil hlutdeild minnihluta er. Sú fjárhæð kaupverðs sem er umfram gangvirði eignarhluta samstæðunnar í yfirteknum aðgreinanlegum hreinum eignum er skráð sem viðskiptavild.

Viðskipti á milli fyrirtækja, innbyrðis stöður og áætlaður óinnleystur hagnaður af færslum á milli fyrirtækja samstæðunnar eru felldar niður í samstæðureikningsskilunum. Reikningsskilaaðferðum dótturfélaga hefur verið breytt, þar sem þörf er á, til að tryggja samræmi við aðferðir samstæðunnar.

b) Hlutdeildarfélög

Hlutdeildarfélög eru rekstrareiningar sem samstæðan hefur veruleg áhrif í en hefur ekki yfirráð yfir. Fjárfestingar í hlutdeildarfélögum eru færðar með hlutdeildaraðferð við reikningsskil og eru færðar í upphafi á kostnaðarverði. Hlutur samstæðunnar í hagnaði eða tapi hlutdeildarfélaga eftir kaup er færður í rekstrarreikning og hlutur hennar í hreyfingum eiginfjárreikninga er færður á eigið fé. Uppsafnaðar hreyfingar eftir yfirtöku eru leiðréttar gagnvart bókfærðri fjárhæð fjárfestingarinnar. Þegar hlutur samstæðunnar í tapi hlutdeildarfélagsins er jafnmikill eða meiri en hlutdeild hennar í hlutdeildarfélaginu, þ.m.t. allar aðrar ótryggðar viðskiptakröfur, færir samstæðan ekki frekari tap nema hún hafi stofnað til skuldbindinga eða innt af hendi greiðslur fyrir hönd hlutdeildarfélagsins.

2.3 Starfsþáttaskýrslur

Rekstrarstarfsþáttur er aðgreinanlegur hluti samstæðunnar vegna ólíkra efnislegra eða landfræðilegra þátta varðandi áhættu og afkomu en aðrir rekstrarstarfsþættir samstæðunnar. Samstæðan skilgreinir starfsemina í fjóra rekstrarþætti.

2.4 Umreikningur á erlendum gjaldmiðlum

(a) Starfrækslugjaldmiðill og reikningsskilagjaldmiðill

Í reikningsskilum fyrirtækja innan samstæðunnar eru liðir færðir í gjaldmiðli þess efnahagslega umhverfis sem þau starfa í (starfrækslugjaldmiðillinn). Samstæðureikningsskilin eru sett fram í þúsundum evra, sem er bæði starfrækslugjaldmiðill og framsetningargjaldmiðill samstæðunnar.

(b) Viðskipti og stöður

Viðskipti í erlendum gjaldmiðli eru umreiknuð yfir í starfrækslugjaldmiðil á því gengi sem er í gildi á viðskiptadeginum. Hagnaður eða tap, sem stafa af uppgjöri slíkra viðskipta og af umreikningi á gengi peningalegra eigna og skulda í erlendri mynt í lok ársins, eru færð í rekstrarreikning.

(c) Félög samstæðunnar

Afkoma og efnahagur félaga samstæðunnar þar sem starfrækslugjaldmiðill er annar en framsetningargjaldmiðilinn, eru umreiknuð í framsetningargjaldmiðilinn með eftirfarandi hætti:

(i) eignir og skuldir efnahagsreiknings eru umreiknaðar á gengi í lok ársins

(ii) liðir rekstrarreiknings eru umreiknaðir á meðalgengi ársins

(iii) allar breytingar á gengi sem af þessu leiða eru færðar sem sérgreindur liður meðal eigin fjár

Viðskiptavild og annað yfirverð vegna kaupa á dótturfélögum eru meðhöndlað sem eignir og skuldir þeirra og umreiknað á gengi í lok ársins.

2.5 Varanlegir rekstrarfjármunir

Til fasteigna teljast fyrst og fremst verksmiðjur, netaverkstæði og skrifstofur. Varanlegir rekstrarfjármunir eru tilgreindir á upphaflegu kostnaðarverði að frádregnum afskriftum. Upphaflegt kostnaðarverð felur í sér kostnað sem rekja má beint til kaupa á viðkomandi eignum.

Viðbótarfjárfesting sem fellur til síðar er innifalin í bókfærðu verði eignarinnar eða færð sem sérgreind eign, eftir því sem við á. Það gerist þó einungis þegar líklegt er að efnahagslegur ávinningur, sem tengist fjárfestingunni, muni í framtíðinni renna til samstæðunnar og að unnt sé að meta kostnaðarverð með öruggum hætti. Viðgerðir og viðhald eru gjaldfærðar í rekstrarreikningi á því tímabili þegar stofnað er til þeirra.

Land er ekki afskrifað. Afskriftir annarra eigna eru reiknaðar þannig að mismunur á kostnaðarverði þeirra og áætluðu hrakvirði er dreift línulega á áætlaðan nýtingartíma eignanna, sem er eftirfarandi:

Vélar og önnur framleiðslutæki 12-15 ár
Bifreiðar 5-9 ár
Fasteignir 25-67 ár
Skrifstofubúnaður, áhöld og þróunarkostnaður 3-5 ár
Einkaleyfi 5-20 ár
Hugbúnaður 5-10 ár

Meiriháttar endurbætur eru afskrifaðar á líftíma viðkomandi eignar eða þeim tíma sem líður að næstu meiriháttar endurbótum, hvort sem skemur er.

Hrakvirði eigna og nýtingartími eru endurskoðað árlega og leiðrétt, ef við á.

Söluhagnaður og -tap reiknast sem mismunur söluverðs að frádregnum kostnaði við söluna og bókfærðs verðs seldra eigna á söludegi. Söluhagnaður og -tap er fært í rekstrarreikning. Þegar endurmetnar eignir eru seldar eru fjárhæðir sem eru innifaldar í öðrum varasjóðum og þeim tengjast, færðar yfir á óráðstafað eigið fé.

2.6 Óefnislegar eignir

(a) Viðskiptavild

Viðskiptavild endurspeglar þá fjárhæð kaupverðs sem er umfram gangvirði hluta samstæðunnar í hreinum aðgreinanlegum eignum yfirtekins dótturfélags á yfirtökudegi. Viðskiptavild vegna samruna og kaupa dótturfélaga er hluti af óefnislegum eignum samstæðunnar. Viðskiptavild er metin árlega að teknu tilliti til virðisrýrnunar og er bókfærð á kostnaðarverði að frádregnu uppsöfnuðu virðisrýrnunartapi.

Viðskiptavild er skipt á fjárskapandi einingar í því skyni að meta hana með tilliti til virðisrýrnunar. Virðisrýrnun viðskiptavildar, byggð á virðisrýrnunarprófum í samræmi við IAS-staðal 36, er gjaldfærð í rekstrarreikningi.

(b) Einkaleyfi

Einkaleyfi er tilkomið vegna kaupa á útgefnum einkaleyfum og umsóknum á öðrum einkaleyfum er tengjast framleiðsluvörum samstæðunnar. Einkaleyfin er færð á kaupverði eða áætluðu kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum.

(c) Hugbúnaður

Hugbúnaðarleyfi sem hafa verið keypt eru eignfærð miðað við þann kostnað sem stofnað var til við að kaupa og koma í notkun þessum tiltekna hugbúnaði. Hugbúnaður er færður á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum.

2.7 Virðisrýrnun eigna

Eignir sem hafa óskilgreindan líftíma og eru ekki afskrifaðar á kerfisbundinn hátt eru metnar árlega með tilliti til virðisrýrnunar. Eignir sem eru afskrifaðar eru skoðaðar með tilliti til virðisrýrnunar þegar breytingar á umhverfi eða atburðir benda til þess að bókfært verð þeirra sé lægra en endurheimtanlegt virði þeirra. Sérstök niðurfærsla er færð ef endurheimtanlegt virði þeirra, sem er hærra af nettó söluverði og notkunarvirði, er lægra en kostnaðarverð þeirra að frádregnum afskriftum. Í virðisrýrnunarprófi eru eignir flokkaðar eins og mögulegt er svo hægt sé að mæla áætlað sjóðstreymi þeirra.

2.8 Fjárfestingar

Eignarhlutir í öðrum félögum en dóttur- og hlutdeildarfélögum eru flokkaðir sem fjárfestingareignir og færðir á kostnaðarverði að frádreginni niðurfærslu vegna virðisrýrnunar.

2.9 Birgðir Hráefni eru metin á innkaupsverði. Kostnaðarverð vara í framleiðslu og fullunninna vara samanstendur af beinum launaog efniskostnaði ásamt öðrum kostnaði sem beint eða óbeint tengist framleiðslu varanna. Kostnaðarverð er ákvarðað með því að nota "fyrst inn-, fyrst út" aðferðina (FIFO-aðferðina). Birgðir samanstanda af netum, köðlum, járnavörum, veiðarfærum, vörum í vinnslu og hráefnum til neta, kaðla og hleraframleiðslu. Niðurfærsla er færð á móti vörum sem hreyfast hægt. Kaup og sala fjárfestinga er færð á viðskiptadegi - þann dag sem samstæðan skuldbindur sig til að kaupa eða selja

2.10 Verk í vinnslu

Umsamin verk í vinnslu eru metin miðað við söluverð að teknu tilliti til framgangs þeirra. Ef ljóst er að tap verður á verkinu þá er það innleyst strax.

2.11 Viðskiptakröfur

Viðskiptakröfur eru færðar á nafnverði að frádreginni niðurfærslu til að mæta þeim kröfum sem kunna að tapast. Niðurfærslan er byggð á mati á tapsáhættu gagnvart einstökum kröfum. Kröfur sem eru endanlega tapaðar eru færðar út úr bókum samstæðunnar.

2.12 Handbært fé og ígildi þess

Handbært fé innfelur reiðufé, inneignir í bönkum og aðrar skammtímafjárfestingar sem auðvelt er að skipta í reiðufé og eru með binditíma allt að þrem mánuðum. Yfirdráttur í banka er sýndur í lántöku meðal skammtímaskulda í efnahagsreikningi.

2.13 Hlutafé

Almennir hlutir eru flokkaðir sem eigið fé.

Ef eitthvert félag samstæðunnar kaupir eigið hlutafé félagsins (eigin hlutabréf) er endurgjaldið sem greitt er, að meðtöldum öllum viðbótarkostnaði sem rekja má beint til kaupanna (að frádregnum tekjusköttum), dregið frá eigin fé þar til hlutirnir eru afskrifaðir, endurútgefnir eða þeim ráðstafað. Þegar slíkir hlutir eru síðan seldir eða endurútgefnir er hvers kyns endurgjald sem móttekið er, að frádregnum öllum viðbótarkostnaði við viðskiptin sem má rekja beint til kaupanna og tengdra áhrifa vegna tekjuskatta, innifalið í eigin fé.

2.14 Lántökur

Lántaka er færð í upphafi á gangvirði. Allur lántökukostnaður er gjaldfærður um leið og hann fellur til.

Lán eru flokkuð meðal skammtímaskulda ef þau gjaldfalla innan 12 mánaða annars eru þau flokkuð meðal langtímaskulda.

2.15 Frestaður tekjuskattur

Frestaður tekjuskattur af tímabundnum mismunum milli skattverðs eigna og skulda og bókfærðra fjárhæða þeirra í samstæðureikningsskilunum er færður að fullu til skuldar. Frestaður tekjuskattur er hins vegar ekki færður ef hann myndast vegna upphaflegrar færslu eignar eða skuldar í öðrum viðskiptum en sameiningu fyrirtækja sem hefur hvorki áhrif á reikningshaldslegan né skattskyldan hagnað eða tap. Frestaður tekjuskattur er ákvarðaður með því að nota skatthlutföll sem hafa verið lögleidd fyrir dagsetningu efnahagsreiknings eða fyrir liggur að verði lögleidd og vænst er að verði í gildi þegar tengd frestuð skattinneign er innleyst eða frestaða tekjuskattskuldbindingin er gerð upp.

Frestaður tekjuskattur vegna tímabundinna mismuna sem stafa af fjárfestingum í dótturfélögum og hlutdeildarfélögum er færður nema þegar samstæðan stjórnar því hvenær tímabundni mismunurinn er bakfærður og líklegt er að tímabundni mismunurinn muni ekki snúast við í fyrirsjáanlegri framtíð.

Frestaðar skattinneignir eru færðar að því marki sem líklegt er að unnt verði að nýta tímabundna mismuni á móti skattalegum framtíðarhagnaði.

2.16 Starfsmannasamningar

Ágóðahlutir og bónusgreiðslur

Undir vissum kringumstæðum er færð skuldbinding vegna lykilstarfsmanna vegna áunninna réttinda til ágóðahluta. Til þess að svo sé þarf ákvörðun um greiðslu að liggja fyrir áður en reikningsskilin eru gefin út.

2.17 Aðrar skuldbindingar

Aðrar skuldbindingar eru færðar þegar samstæðan hefur tekið á sig skuldbindingu vegna liðinna atburða, líkur eru taldar á að til greiðslu þeirra komi og hægt er að mæla þær með ábyggilegum hætti. Samstæðan veitir ábyrgð á vissum vörum og skuldbindur sig til þess að gera við vörur sem vinna ekki með eðlilegum hætti.

2.18 Innlausn tekna

Tekjur samanstanda af gangvirði vegna sölu á vörum og þjónustu, að frádregnum virðisaukaskatti og afslætti og eftir að innbyrðis sala innan samstæðunnar hefur verið felld niður.

(a) Sala á vöru og þjónustu

Sala á vöru er færð á því reikningsskilatímabili sem varan er afhent og sala á þjónustu er færð á því reikningstímabili sem þjónustan er innt af hendi með áfangaaðferð. Þjónustutekjur eru hluti af sölutekjum í rekstrarreikningi.

(b) Vaxtatekjur

Vaxtatekjur eru færðar í rekstrarreikning með aðferð virkra vaxta vegna allra fjármálagerninga sem færðir eru á kostnaðarverði.

(c) Arðstekjur

Arðstekjur eru færðar þegar réttur til að taka á móti greiðslu er fastsettur.

2.19 Leigusamningar

Fjárhæðir vegna kaup- og rekstrarleiga eru óverulegar hjá samstæðunni.

2.20 Úthlutun arðs

Úthlutun arðs til hluthafa félagsins er færð sem skuld í reikningsskil samstæðunnar á því tímabili sem hluthafar félagsins samþykkja arðgreiðslurnar.

3. Fjárhagsleg áhættustjórnun

Samstæðan starfar í umhverfi með ýmiss konar fjárhagsáhættu, þar með talið lánsáhættu, lausafjáráhættu og markaðsáhættu. Heildaráætlun samstæðunnar um áhættustjórnun beinist fyrst og fremst að ófyrirséðri hegðun fjármálamarkaða og með henni er reynt að draga sem mest úr hugsanlegum neikvæðum áhrifum á rekstrarárangur samstæðunnar.

Stjórn móðurfélagsins ber ábyrgð á að innleiða og hafa eftirlit með áhættustýringu samstæðunnar. Stjórnin hefur falið forstjóra móðurfélagsins umsjón með daglegri áhættustýringu samstæðunnar.

(a) Lánsáhætta

Lánsáhætta er hættan á fjárhagslegu tapi samstæðunnar ef viðskiptamaður eða mótaðili í fjármálagerningi getur ekki staðið við umsamdar skuldbindingar sínar. Lánsáhætta samstæðunnar er einkum vegna viðskiptakrafna.

Viðskiptakröfur og aðrar kröfur

Lánsáhætta samstæðunnar ræðst einkum af fjárhagsstöðu og starfsemi einstakra viðskiptamanna.

Margir viðskiptamenn samstæðunnar hafa átt í áralöngum viðskiptum við hana og tapaðar viðskiptakröfur hafa verið óverulegar í hlutfalli af veltu. Við stýringu lánsáhættu vegna viðskiptamanna er einkum horft til aldurs krafna og fjárhagsstöðu einstakra viðskiptamanna.

Samstæðan myndar niðurfærslu vegna áætlaðrar virðisrýrnunar viðskiptakrafna, annarra krafna og fjárfestinga. Niðurfærslan er í meginatriðum sérstök niðurfærsla vegna einstakra viðskiptamanna.

Ábyrgðir

Það er stefna samstæðunnar að veita aðeins dótturfélögum eða móðurfélagi ábyrgðir. Þann 31. desember 2013 voru engar umtalsverðar ábyrgðir í gildi.

Mesta mögulegt tap vegna lánsáhættu án tillits til veða

Eftirfarandi tafla sýnir mesta mögulega tap vegna lánsáhættu án tillits til veða þann 31. desember 2013 og 2012. Fyrir efnahagsliði er mesta mögulega tapið byggt á bókfærðu verði eignanna á uppgjörsdegi.

Mesta mögulega tap
Lánsáhætta tengd efnahagsliðum 2013 2012
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 10.469 9.156
Handbært fé 5.575 4.735
Samtals mesta mögulega tap vegna lánsáhættu 16.044 13.891

b) Lausafjáráhætta

Lausafjáráhætta er hættan á því að samstæðan geti ekki staðið við fjárhagsskuldbindingar sínar eftir því sem þær gjaldfalla. Markmið samstæðunnar er að stýra lausafé þannig að tryggt sé að hún hafi alltaf nægt laust fé til að mæta skuldbindingum sínum eftir því sem þær gjaldfalla.

Taflan hér að neðan greinir skuldir samstæðunnar í flokka eftir gjalddögum þeirra. Upphæðir í töflunni eru ónúvirtar samningsbundnar greiðslur.

Staða 31. desember 2013 Sjóðstreymi
Bókfært
verð
skv.
samningum
Innan
1 árs
1 - 2 ár 2 - 5 ár Yfir 5 ár
Lántökur 24.156 28.382 9.409 1.394 16.481 1.098
Viðskiptaskuldir 6.403 6.401 6.401 0 0 0
30.559 34.783 15.810 1.394 16.481 1.098

b) Markaðsáhætta

Markaðsáhætta er hættan á því að breytingar í markaðsverði erlendra gjaldmiðla, vaxta og gengi hlutabréfa hafi áhrif á afkomu samstæðunnar eða virði fjárfestinga hennar í fjármálagerningum.

Gjaldmiðlagengisáhætta

Samstæðan býr við gengisáhættu vegna innkaupa og lántöku í öðrum gjaldmiðlum en starfrækslugjaldmiðlum einstakra samstæðufélaga. Helstu starfrækslugjaldmiðlar einstakra samstæðufélaga eru evrur (EUR) og íslenskar krónur (ISK). Þeir gjaldmiðlar sem einkum skapa gengisáhættu eru ISK.

Lítilsháttar lántaka samstæðunnar í öðrum gjaldmiðlum en evrum myndar gengisáhættu sem ekki er varin.

Vaxtaáhætta

Lántökur samstæðunnar eru að stærstum hluta með breytilegum vöxtum.

Önnur markaðsverðsáhætta

Önnur markaðsverðsáhætta samstæðunnar er aðallega fólgin í fjárfestingu í hlutdeildarfélaginu HB Granda hf.

3.1 Áhættustýring eiginfjár

Samstæðan stýrir fjármögnun sinni með það að markmiði að viðhalda getu hennar til áframhaldandi reksturs til að greiða eigendum sínum arð.

Félagið getur breytt arðgreiðslustefnu, endurgreitt hlutafé, gefið út nýtt hlutafé eða selt eignir til að minnka skuldir til að viðhalda eða lagfæra skipulag fjármögnunar.

Eftirfarandi tafla sýnir fjármögnun samstæðunnar og eiginfjárhlutfall (fjárhæðir í þúsundum evra):

2013 2012
Lántökur, langtíma 15.365 16.185
Lántökur, skammtíma 8.791 8.313
Frádregið: Handbært fé (5.575) (4.735)
Skuldir nettó 18.581 19.763
Eigið fé 55.514 48.671
Fjármögnun samtals 74.095 68.434
Eiginfjárhlutfall 63% 60%

4. Mikilvæg atriði sem varða reikningshaldslegt mat

Skráning eigna og skulda með tilliti til næsta fjárhagsárs er byggð á mati samstæðunnar. Farið er yfir slíkt mat með hliðsjón af reynslu og öðrum þáttum svo sem framtíðarvæntingum sem taldar eru eðlilegar miðað við aðstæður. Slíkt reikningshaldslegt mat er sjaldan nákvæmlega í samræmi við raunverulega niðurstöðu.

5. Starfsþáttayfirlit

Rekstrarstarfsþættir

Samstæðan skiptist í fjóra starfsþætti eftir félögum innan samstæðunnar:

Starfsþáttur 1. Starfsemi Hampiðjunnar sem er veiðarfæragerð, endursala og fjárfestingar. Starfsemi Hampidjan Baltic í Litháen, sem er verksmiðjuframleiðsla á netum, köðlum og ofurtógi. Starfsemi Otter sem er eignarhald á einkaleyfum.

Starfsþáttur 2. Starfsemi veiðarfærafélagsins Swan Net Gundry.

Starfsþáttur 3. Starfsemi veiðarfærafélagsins Cosmos Trawl.

Starfsþáttur 4. Starfsemi veiðarfærafélaganna Hampidjan New Zealand, Hampidjan Canada, Hampidjan USA og Fjarðaneta.

Starfsþ. Starfsþ. Starfsþ. Starfsþ.
2013 (1) (2) (3) (4) Milliviðskipti Samtals
Rekstrartekjur 42.972 9.323 11.628 9.531 (23.012) 50.441
Beinn framl.kostn (34.068) (6.840) (8.957) (7.360) 23.012 (34.212)
8.904 2.482 2.671 2.171 16.229
Rekstrarkostnaður (5.106) (1.879) (1.572) (1.770) (10.327)
3.798 603 1.100 400 5.902
9% 6% 9% 4% 12%
Fjármunat. (fjármagnsgj.) (845) (42) (149) 16 (1.021)
Hlutdeildarafkoma 3.252 0 0 0 3.252
Tekjuskattur (178) (19) (197) (100) (493)
Hagnaður ársins 6.027 542 754 317 7.640
Fastafjármunir 47.832 7.791 4.686 916 (5.117) 56.108
Veltufjármunir 25.500 6.370 4.436 6.253 (9.941) 32.617
Langtímaskuldir 15.472 708 1.628 209 18.017
Skammtímaskuldir 23.257 1.207 3.617 2.116 (15.003) 15.194
Afskriftir varanl. rek.fjárm. 1.279 227 340 85 1.931
Kaup/s.varanl. rek.fjárm. (701) (521) (227) (154) (1.602)
EBITDA 5.078 830 1.440 485 7.833
Starfsþ. Starfsþ. Starfsþ. Starfsþ.
2012 (1) (2) (3) (4) Milliviðskipti Samtals
Rekstrartekjur 41.273 9.217 6.950 8.993 (21.274) 45.159
Beinn framl.kostn (32.355) (6.729) (5.552) (6.876) 21.274 (30.238)
8.918 2.488 1.398 2.117 14.921
Rekstrarkostnaður (4.235) (1.949) (837) (1.800) (8.821)
4.683 539 561 317 6.100
11% 6% 8% 4% 14%
Fjármunat. (fjármagnsgj.) (724) (52) (110) (65) (951)
Hlutdeildarafkoma 1.359 0 0 0 1.359
Tekjuskattur (809) (16) (114) (52) (991)
Hagnaður ársins 4.509 471 337 200 5.517
Fastafjármunir 45.546 7.493 3.074 858 (4.315) 52.656
Veltufjármunir 24.491 6.317 2.697 6.229 (10.768) 28.966
Langtímaskuldir 16.159 799 1.361 288 18.607
Skammtímaskuldir 24.277 1.310 1.735 2.103 (15.081) 14.344
Afskriftir varanl. rek.fjárm. 1.230 215 162 50 1.657
Kaup/s.varanl. rek.fjárm. (817) (178) (116) (57) (1.168)
EBITDA 5.911 755 724 367 7.757

6. Laun og launatengd gjöld

Starfsmannamál 2013 2012
Laun og launatengd gjöld sundurliðast þannig:
Laun 12.017 9.787
Launatengd gjöld og annar starfsmannakostnaður 2.366
14.383
1.949
11.736
Meðalfjöldi starfsmanna á árinu. 509 460
Félagið hefur ekki gert neina samninga við starfsmenn eða stjórnendur um lífeyris- eða eftirlaunagreiðslur.
Laun og launatengd gjöld skiptast á eftirfarandi hátt í rekstrarreikningi 2013 2012
Framleiðslukostnaður 8.847 7.455
Annar rekstrarkostnaður 5.536 4.281
14.383 11.736
7. Rekstrarkostnaður 2013 2012
Keyptar vörur og þjónusta 4.074 3.968
Laun og launatengd gjöld 5.536 4.281
Afskrifaðar viðskiptakröfur 111 86
Afskriftir varanlegra rekstrarfjármuna 606 486
10.327 8.821
8. Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) 2013 2012
Vaxtatekjur 123 150
Vaxtagjöld (1.082) (1.184)
Gengismunur (175) 0
Fenginn arður 113 83
(1.021) (951)
9. Tekjuskattur 2013 2012
Tekjuskattur til greiðslu 248 593
Frestaður tekjuskattur (Skýring 19) 245 398
493 991
Reiknaður tekjuskattur af hagnaði samstæðunnar fyrir skatta (virkur tekjuskattur) er frábrugðinn þeirri fjárhæð sem kæmi út
ef tekjuskattshlutfall er notað til útreikningsins sem hér greinir:
Hagnaður fyrir skatta 8.133 6.508
Reiknaður tekjuskattur með tekjuskattshlutfalli viðkomandi lands 937 957
Varanlegir mismunir (442) 44
Nýting á yfirfæranlegu tapi sem ekki hefur verið tekið tillit til (2) (10)
Tekjuskattur samkvæmt rekstrarreikningi 493 991

10. Hagnaður á hlut

Hagnaður á hlut er reiknaður með því að deila þeim hagnaði sem skipta má á hluthafa í móðurfélaginu með vegnu meðaltali almennra hluta sem gefnir eru út á árinu, að undanskildum almennum hlutum sem félagið hefur keypt og heldur sem eigin hlutum.

2013 2012
Hagnaður á árinu (þúsundir evra) 7.640 5.517
Veginn meðalfjöldi útistandandi hluta (í þúsundum) 486.593 491.593
Grunnhagnaður og þynntur hagnaður á hlut (EUR cent) 1,57 1,12

Heildarfjöldi hluta nemur 500 milljónum, þar af eru eigin hlutir 13,4 milljón, hver að nafnverði 1 ISK. Allir útgefnir hlutir eru greiddir að fullu. Engin breyting varð á fjölda hluta á árinu.

11. Varanlegir rekstrarfjármunir

Fasteignir og tæki Samtals
Staða 1. janúar 2012
Kostnaðarverð 26.852 17.163 44.015
Uppsafnaðar afskriftir (2.977) (8.415) (11.392)
Bókfært verð 23.875 8.748 32.623
Hreyfingar árið 2012
Bókfært verð í byrjun árs 2012 23.875 8.748 32.623
Gengismunir (24) (7) (31)
Viðbætur 167 911 1.078
Selt og aflagt 0 (77) (77)
Afskriftir (317) (1.027) (1.344)
Bókfært verð í lok árs 2012 23.701 8.548 32.249
Staða 1. janúar 2013
Kostnaðarverð 26.948 16.662 43.610
Uppsafnaðar afskriftir (3.247) (8.114) (11.361)
Bókfært verð 23.701 8.548 32.249
Hreyfingar árið 2013
Bókfært verð í byrjun árs 2013 23.701 8.548 32.249
Gengismunir (70) 74 4
Viðbætur 661 1.440 2.101
Selt og aflagt 0 (82) (82)
Afskriftir (334) (1.160) (1.494)
Bókfært verð í lok árs 2013 23.958 8.820 32.778
Staða 31. desember 2013
Kostnaðarverð 27.571 17.856 45.427
Uppsafnaðar afskriftir (3.613) (9.036) (12.649)
Bókfært verð í lok árs 2013 23.958 8.820 32.778
Afskriftir varanlegra rekstrarfjármuna greinast á eftirfarandi hátt í rekstrarreikningi:
2013 2012
Framleiðslukostnaður 1.131 1.026
Annar rekstrarkostnaður 363 318
1.494 1.344

Alþjóðleg fjármálakreppa hefur óvíða valdið jafn miklum erfiðleikum og í þeim þrem löndum þar sem meginhluti samstæðu Hampiðjunnar er staðsettur, þ.e. á Íslandi, Írlandi og í Litháen. Þó svo almenn rekstrarskilyrði fyrir framleiðsluiðnað hafi á ýmsan hátt batnað, m.a. vegna lækkunar á raungengi íslensku krónunnar og minni kostnaðarþenslu í viðkomandi löndum, hefur skarpur samdráttur í eftirspurn dregið verulega úr markaðsverðmæti ýmissa eigna samstæðunnar, ekki síst atvinnuhúsnæði. Þá hefur aðgengi samstæðunnar að samkeppnishæfri lánsfjármögnun minnkað.

12. Óefnislegar eignir

Viðskipta Hug
vild Einkaleyfi búnaður Samtals
Staða 1. janúar 2012
Kostnaðarverð 2.397 2.890 1.245 6.532
Uppsafnaðar afskriftir (229) (1.310) (724) (2.263)
Bókfært verð 2.168 1.580 521 4.269
Hreyfingar árið 2012
Bókfært verð í byrjun árs 2012 2.168 1.580 521 4.269
Viðbætur 0 0 189 189
Afskriftir 0 (189) (124) (313)
Bókfært verð í lok árs 2012 2.168 1.391 586 4.145
Staða 1. janúar 2013
Kostnaðarverð 2.397 2.890 1.262 6.549
Uppsafnaðar afskriftir (229) (1.499) (676) (2.404)
Bókfært verð 2.168 1.391 586 4.145
Hreyfingar árið 2013
Bókfært verð í byrjun árs 2013 2.168 1.391 586 4.145
Viðbætur 0 0 1.340 1.340
Afskriftir 0 (189) (248) (437)
Bókfært verð í lok árs 2013 2.168 1.202 1.678 5.048
Staða 31. desember 2013
Kostnaðarverð 2.397 2.890 2.600 7.887
Uppsafnaðar afskriftir (229) (1.688) (922) (2.839)
Bókfært verð í lok árs 2013 2.168 1.202 1.678 5.048
Afskriftir óefnislegra eigna greinast á eftirfarandi hátt í rekstrarreikningi:
2013 2012
Framleiðslukostnaður 194 144
Annar rekstrarkostnaður 243 169
437 313

Virðisrýrnunarpróf vegna viðskiptavildar:

Viðskiptavild er skipt á fjárskapandi einingar samstæðunnar (CGU) og er skilgreind eftir því í hvaða landi (félagi) reksturinn er.

Endurheimtanleg fjárhæð fjárskapandi rekstrareininga er ákvörðuð miðað við útreikning á notkunarvirði. Tekið er tillit til skilgreiningar á hinni fjárskapandi einingu sem viðskiptavildinni fylgir við mat á virðisrýrnun hennar og undirliggjandi fastafjármuna. Útreikningar byggja á áætluðuð fjárstreymi fyrir næstu 2 ár, ásamt eilífðarvirði út frá þeim tíma. Gert er ráð fyrir 2,5% nafnverðsvexti á fjárflæði í eilífðarvexti. Gerð er 7,5% vegin nafnverðskrafa á fjárflæði fyrir skatta. Um er að ræða ávöxtunarkröfu sem til samræmis við uppruna fjárstreymisins, er gert miðað við mynd þess fjárstreymis sem um ræðir.

Áætluð framlegð er eins og stjórnendur hafa ákvarðað hana miðað við fyrri árangur og væntingar þeirra um markaðsþróun. Veginn meðalvaxtarhraði sem notaður er miðast við spár sem fram koma í atvinnugreinaskýrslum. Afvöxtunarstuðlarnir eru fyrir tekjuskatt og endurspegla sérstaka áhættu sem tengist tengdum starfsþáttum.

Útreikningar á endurheimtanlegri fjárhæð leiddi ekki til virðisrýrnunartaps á árunum 2013 og 2012.

13. Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi

Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi greinist þannig: Eignarhluti Hlutdeild
í hagnaði
Bókfært
verð
HB Grandi hf 8,83% 3.252 17.700
Samandregnar fjárhagsupplýsingar um hlutdeildarfélag í þús. evra: 2013 2012
Eignir samtals
Skuldir samtals
Eigið fé hluthafa móðurfélagsins
Hagnaður hluthafa móðurfélagsins
336.258
135.714
200.544
35.616
304.393
138.196
166.197
14.419

Hampiðjan, ásamt þremur öðrum félögum, keypti í ágúst 1988 eignarhlut Reykjavíkurborgar í Granda hf., sem var þá 78% af útgefnu hlutafé þess félags. Frá þeim tíma hafa þrjú þessara félaga, Hampiðjan hf., Hvalur hf. og Fiskveiðahlutafélagið Venus ehf. verið kjölfestueigendur félagsins. Hampiðjan hf., Fiskveiðahlutafélagið Venus hf. og Vogun, dótturfélag Hvals hf., áttu í árslok 2013 samtals 49,7% af útistandandi hlutafé HB Granda hf. Hampiðjan hefur haft aðkomu að stefnumótun HB Granda og lykilákvörðunum þess. Skv. IAS 28 skilgreinir félagið HB Granda sem hlutdeildarfélag og færir hlutabréfaeign sína í ársreikninginn samkvæmt því. Síðasta skráða viðskiptagengi ársins með hluti í HB Granda hf. var 22 og er markaðsvirði eignarhluta Hampiðjunnar, ef miðað er við það gengi, 22,2 milljónir evra sem er 4,5 milljónum evra hærra en bókfært er í ársreikningnum.

14. Fjárfestingareignir

Fjárfestingareignir á kostnaðarverði greinast þannig: 2013 2012
Síldarvinnslan hf 175 175
P/F Von 115 115
Thyboron Skibssmedie A/S 182 182
Önnur félög 9 2
481 474

15. Birgðir

Birgðir greinast þannig: 2013 2012
Net, kaðlar, járnavara, veiðarfæri og aðrar afurðir 14.019 12.752
Vörur í vinnslu 896 1.032
Hráefni fyrir hlera, neta- og kaðlaframleiðslu 1.658 1.291
16.573 15.075

Birgðir eru færðar niður vegna aldurs um 720 þúsund evrur í efnahagsreikningi samstæðunnar. Árið áður voru birgðir færðar niður um 800 þúsund evrur.

16. Viðskiptakröfur og aðrar kröfur

Viðskiptakröfur og aðrar kröfur greinast þannig: 2013 2012
Viðskiptakröfur 10.317 8.983
Niðurfærsla viðskiptakrafna (474) (367)
Viðskiptakröfur nettó í árslok 9.843 8.616
Skuldabréf og aðrar kröfur 626 540
Viðskiptakröfur og aðrar kröfur í árslok 10.469 9.156
Viðskiptakröfur
eru
færðar
niður
um
474
þúsund
evrur
í
efnahagsreikningi
niðurfærslureikningurinn á eftirfarandi hátt:
samstæðunnar og
greinist
2013 2012
Niðurfærsla í byrjun árs 367 363
Endanlega tapaðar kröfur á árinu (4) (82)
Breyting niðurfærslu á árinu 111 86
474 367
17. Handbært fé 2013 2012
Handbært fé í banka sem reiðufé og aðrar skammtímafjárfestingar 5.575 4.735
5.575 4.735
18. Lántökur
Langtímaskuldir greinast þannig í efnahagsreikningi:
Skuldir í erlendum gjaldmiðlum 16.575
Skuldir í íslenskum krónum 86
16.661
Lántökur eru tryggðar með lóðum, fasteignum og birgðum í eigu samstæðunnar. Eignir sem keyptar hafa verið með
kaupleigu eru veðsettar með viðkomandi eignum til tryggingar eftirstöðvum skulda.
Langtímaskuldir greinast þannig eftir gengistryggingarákvæðum: Hlutfall Staða
ISK 0,5% 86
EUR 84,5% 14.073
USD 4,1% 679
CHF 1,3% 216
DKK 9,6% 1.607
100% 16.661

Afborganir af langtímaskuldum félagsins í lok ársins samkvæmt lánasamningum frá lánastofnunum, greinast þannig á næstu ár:

Árið 2014
Árið 2015
Árið 2016
1.296
814
2.223
Árið 2017 718
Síðar 11.610
16.661
Skuldir við lánastofnanir koma þannig fram í efnahagsreikningi:
Afborganir með gjalddaga eftir eitt ár eða síðar meðal langtímaskulda 15.365
Afborganir næstu 12 mánaða, færðar á meðal skammtímaskulda 1.296
Bankalán til skammtíma færðar meðal skammtímaskulda 7.495
8.791
19. Frestaður tekjuskattur
Frestuð tekjuskattsskuldbinding nettó greinist þannig á eftirfarandi liði: 2013 2012
Tekjuskattskuldbinding í ársbyrjun 2.311 1.905
Tekjuskattur á tímabilinu 493 991
Tekjuskattur til greiðslu (248) (593)
Tekjuskattur færður yfir eigið fé (5) 8
Tekjuskattskuldbinding í lok ársins 2.551 2.311
Frestuð tekjuskattsskuldbinding greinist þannig á eftirfarandi liði: 2013 2012
Varanlegir rekstrarfjármunir 2.675 2.604
Aðrir efnahagsliðir (3) (56)
Yfirfæranlegt skattalegt tap (20) (126)
2.652 2.422
Frestuð tekjuskattsinneign greinist þannig á eftirfarandi liði: 2013 2012
Yfirfæranlegt skattalegt tap (101) (111)
20. Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast þannig: 2013 2012
Viðskiptaskuldir 5.413 4.397
Aðrar skammtímaskuldir 990 1.634
6.403 6.031

21. Tengdir aðilar

Skilgreining tengdra aðila:

Dótturfélög, hlutdeildarfélög, stjórnarmenn og stjórnendur teljast vera tengdir aðilar samstæðunnar.

Tengdir aðilar með veruleg áhrif:

Samstæðan átti viðskipti á árinu við hlutdeildarfélagið HB Granda hf. og voru viðskiptin við félagið eins og um ótengdan aðila væri að ræða.

Viðskipti við stjórnendur:

Laun og hlunnindi til stjórnenda félagsins vegna starfa fyrir félög í samstæðunni og eignarhlutir þeirra í félaginu greinast þannig:

Fjöldi hluta
Laun í árslok*
Forstjóri, greidd föst laun og hlunnindi 237 56
Sjö framkvæmdastjórar: Greidd föst laun og hlunnindi 610
Greiddir árangurstengdir bónusar til stjórnenda 942
Samtals 1.789
Greidd stjórnarlaun og hlutafjáreign stjórnarmanna Hampiðjunnar hf 43 1.697

*Hlutir eru að nafnverði í þúsundum IKR Samningur er við forstjóra félagsins um bónusgreiðslur sem taka mið af gengi hlutabréfa Hampiðjunnar á hlutabréfamarkaði. Bónusinn nemur 4% af verðmætaaukningu félagsins umfram það sem gengið 13,5 gefur.

22. Vátryggingar

Samstæðan hefur keypt rekstrarstöðvunartryggingar sem ætlað er að bæta tjón vegna rekstrarstöðvunar í allt að 12 mánuði á grundvelli skilmála um eignatryggingar. Tryggingarfjárhæðin nemur allt að 21,9 milljónum evra. Vátryggingarverðmæti fasteigna samstæðunnar nemur 33,4 milljónum evra, framleiðsluvéla og -tækja, ásamt hug- og skrifstofubúnaðar 34,1 milljónum evra og vörubirgða 17,1 milljónum evra.

23. Árshelmingayfirlit

Rekstur samstæðunnar greinist þannig á árshelminga:

júlí - des.
2013
jan.-jún.
2013
júlí - des.
2012
jan.-jún.
2012
júlí - des.
2011
Rekstrartekjur 23.862 26.579 21.271 23.888 23.899
Rekstrargjöld án afskrifta (20.620) (21.988) (17.716) (19.686) (19.001)
Rekstrarhagnaður án afskrifta (EBITDA) 3.242 4.591 3.555 4.202 4.898
Afskriftir (963) (968) (790) (867) (850)
Rekstrarhagnaður (EBIT) 2.279 3.623 2.765 3.335 4.048
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) 1.198 1.033 1.030 (622) 1.226
Hagnaður fyrir skatta 3.477 4.656 3.795 2.713 5.274
Tekjuskattur (4) (489) (482) (509) (655)
Hagnaður árshelminga 3.473 4.167 3.313 2.204 4.619

Tölur í árshelmingayfirliti eru óendurskoðaðar

24. Aðrir varasjóðir Lögbundinn
varasjóður
Þýðingar
munur
Samtals
Staða 1. janúar 2012 1.384 (1.591) (207)
Þýðingamunur ársins 61 61
Þýðingamunur vegna aflagðrar starfsemi færður út 315 315
Staða 31. desember 2012 1.384 (1.215) 169
Staða 1. janúar 2013 1.384 (1.215) 169
Þýðingamunur ársins (365) (365)
Staða 31. desember 2013 1.384 (1.580) (196)

Lögbundinn varasjóður

Fært er í lögbundinn varasjóð samkvæmt íslenskum hlutafélagalögum. Ekki er heimilt að greiða lögbundinn varasjóð til hluthafa í formi arðs. Samkvæmt hlutafélagalögum skal leggja í varasjóðinn þar til hann hefur náð 25% af hlutafé.

Þýðingarmunur

Á þýðingarmun er færður allur gengismunur sem verður til vegna umreiknings reikningsskila félaga innan samstæðunar sem er aðskiljanlegur hluti af rekstri móðurfélagsins.

25. Yfirlit yfir dótturfélög

Hluti í afk. Eignarhluti Eignarhluti Staðsetning
Hampidjan Baltic UAB 1.347 9.748 100% Litháen
Hampidjan New Zealand LTD 123 1.436 100% Nýja Sjálandi
Hampidjan Canada LTD 163 919 100% Kanada
Hampidjan USA Inc (54) 1.457 100% Bandaríkjunum
OTTER Ultra Low Drag LTD 8 1.251 100% Cayman Island
Cosmos Trawl A/S 683 3.351 100% Danmörku
Swan Net Gundry LTD 306 6.905 56,4% Írlandi
Fjarðanet hf. 42 526 51,0% Íslandi
2.618 25.593

Í byrjun janúar 2013 keypti Nordsötrawl A/S, þá nýskráð félag í 80% eigu Cosmos Trawl, dótturfélags Hampiðjunnar, rekstur og eignir netaverkstæðisins Nordsötrawl, sem staðsett var í bænum Thyborön á vesturströnd Jótalands.

Eftirfarandi tafla sýnir kaupverð Nordsötrawl A/S á rekstri NordsöTrawl og gangvirði þeirra eigna og skulda sem voru keyptar.

Nordsötrawl A/S, greitt inn hlutafé:
80% eignarhlutur, Cosmos Trawl, greitt með peningum
1.823
Ráðstöfun:
Varanlegir rekstrarfjármunir 506
Veltufjármunir 592
Viðskiptavild, mismunur á kaupverði og gangvirði eigna og skulda 1.206
Skammtímaskuld (26)
20% eignarhlutur minnihluta, Hvide Sande Aps (455)
1.823

Mat eigna á kaupdegi var byggt á bókfærðu virði eignanna þann 31.12 2012, sem var metið sem gangvirði þeirra. Viðskiptavild var samningsbundin greiðsla fyrir rekstur fyrirtækisins og tók mið af umfangi og verðmæti hans. Meðeigandi Cosmos Trawl var seljandi eigna og reksturs og er núverandi framkvæmdastjóri Norsötrawl A/S.

Í samstæðureikninginn koma á árinu tekjur frá NordsöTrawl að fjárhæð 3.843 þús. evrur og hagnaður að fjárhæð 358 þús. evrur.

Rekstrarreikningur 2013 2012
Sala 26.028 25.217
Beinn framleiðslukostnaður (19.419) (18.687)
Framlegð 6.609 6.530
Rekstrarkostnaður (4.005) (3.123)
Rekstrarhagnaður 2.604 3.406
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld (941) (686)
Áhrif af rekstri hlutdeildarfélaga 3.252 1.359
Hlutdeild í hagnaði dótturfélaga 2.618 1.715
Hagnaður fyrir skatta 7.532 5.795
Tekjuskattur (241) (540)
Hagnaður ársins 7.291 5.254
Efnahagsreikningur 2013 2012
Eignir
Fastafjármunir
Varanlegir rekstrarfjármunir 11.554 11.731
Óefnislegar eignir 1.087 1.169
Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi 17.700 15.677
Eignarhlutir í öðrum félögum 472 472
Eignarhlutir í dótturfélögum 25.593 24.071
Lán til dótturfélaga 5.117 4.315
61.523 57.435
Veltufjármunir
Birgðir 4.440 4.388
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 3.815 3.966
Viðskiptakröfur á dótturfélög 7.014 6.872
Handbært fé 1.730 1.036
16.999 16.262
Eignir samtals 78.522 73.697
Eigið fé
Hlutafé
Yfirverðsreikningur hlutafjár
Aðrir varasjóðir
Óráðstafað eigið fé
5.474
57
(196)
43.806
49.141
5.474
57
169
37.415
43.115
Skuldir
Langtímaskuldir
Langtímaskuldir 14.626 15.261
Tekjuskattsskuldbinding 1.805 1.747
16.431 17.008
Skammtímaskuldir
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 2.269 2.489
Skuldir við lánastofnanir 8.387 7.966
Skuld við dótturfélög 2.294 3.119
12.950 13.574
Skuldir samtals 29.381 30.582
Eigið fé og skuldir samtals 78.522 73.697
Sjóðstreymi 2013 2012
Rekstrarhreyfingar
Rekstrarhagnaður
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
2.604 3.406
Afskriftir 492 456
Hagnaður fyrir fjárliði (EBITDA) 3.096 3.862
Söluhagnaður varanlegra rekstrarfjármuna (40) 0
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum (786) (23)
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 2.270 3.839
Innborgaðir vextir og arður 2.113 504
Greiddir vextir (804) (921)
Greiddir skattar (446) (398)
Handbært fé frá rekstri 3.132 3.024
Fjárfestingahreyfingar
Kaup og sala varanlegra rekstrarfjármuna (61) (335)
Kaup óefnislegra eigna (133) (154)
Kaup og sala eignarhluta í öðrum félögum 0 247
Skuldabréf og langtímakröfur, breyting (803) 3
Handbært fé frá fjárfestingum (til fjárfestinga) (997) (239)
Fjármögnunarhreyfingar
Skammtímalán, breyting 1.257 949
Afborganir langtímalána (1.797) (1.941)
Breyting á hlutafé 0 (526)
Arður greiddur til hluthafa (902) (765)
Handbært fé frá fjármögnun (til fjármögnunar) (1.442) (2.282)
Lækkun á handbæru fé 693 503
Handbært fé í byrjun árs 1.036 534
Handbært fé í lok ársins 1.730 1.036

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.