AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Origo

Earnings Release Jan 23, 2019

2208_rns_2019-01-23_808b9815-5aea-4706-a361-fe6ad3f1cbfd.html

Earnings Release

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Disclosure 367765

Origo - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Origo hf. - Afkoma á fjórða ársfjórðungi 2018 betri en áætlað var

REYKJAVÍK - 23. janúar 2019

Við vinnslu árshlutauppgjörs fjórða ársfjórðungs 2018 hefur komið í ljós að rekstrarniðurstaða félagsins er töluvert betri en á fjórða ársfjórðungi 2017.

Áætlaðar tekjur félagsins í fjórðungnum eru um 4,5 milljarðar króna miðað við 3,9 milljarða króna 2017.

Áætlað er að rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) verði um 420 mkr samanborið við 246 mkr á fjórða ársfjórðungi árið 2017.

Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsgjöld og skatta (EBIT) á fjórða ársfjórðungi er áætlaður um 290 mkr samanborið við 79 mkr rekstrarhagnað á sama tíma í fyrra.

Heildaráhrif á afkomu félagsins vegna sölu á eignarhlut í Tempo eru jákvæð um 5 milljarða króna eins og greint var frá í fréttatilkynningu til kauphallar 19. nóvember sl.

Félagið vinnur enn að ársreikningi ársins 2018 og því geta ofangreindar tölur tekið breytingum.

Félagið mun birta ársuppgjör 2018 eftir lokun markaða 30. janúar nk.

Af því tilefni býður Origo hf. til fjárfestakynningar þann 31. janúar kl. 08:30 í fundarsal félagsins í Borgartúni 37, 105 Reykjavík.

Nánari upplýsingar

Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða [email protected] og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða [email protected]

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.