AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Origo

Annual / Quarterly Financial Statement Jan 30, 2019

2208_10-k_2019-01-30_09bcf4ed-a183-4213-9542-e113d9a63a33.pdf

Annual / Quarterly Financial Statement

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Origo hf. Ársreikningur samstæðunnar 2018

Origo hf. 105 Reykjavík Borgartúni 37

Kt. 530292-2079

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra 3
Áritun óháðs endurskoðanda 5
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu 9
Efnahagsreikningur 10
Eiginfjáryfirlit 11
Sjóðstreymisyfirlit 12
Skýringar 13
Óendurskoðuð fylgiskjöl:
Ársfjórðungayfirlit 42
Stjórnarháttaryfirlýsing 44
Ófjárhagsleg upplýsingagjöf 46

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Origo hf. veitir viðskiptavinum sínum heildarlausnir á sviði upplýsingatækni með þróun og sölu á hugbúnaði, tölvu- og skrifstofubúnaði, ráðgjöf og tengdri þjónustu. Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Origo hf. og dótturfélaga, en í samstæðunni eru tvö félög.

Rekstur ársins 2018

Samkvæmt rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu nam hagnaður af rekstri samstæðunnar 5.420 millj. kr. á árinu 2018. Tekjur samstæðunnar af seldum vörum og þjónustu námu 15.717 millj. kr. á árinu. Eigið fé samstæðunnar í árslok var 8.194 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.

Þann 5. janúar 2018 tilkynnti félagið að Nýherji hf. og dótturfélögin Applicon ehf. og TM Software ehf. hefðu sameinast undir nafninu Origo hf. Nafnabreytingin var formlega samþykkt á hluthafafundi félagsins þann 30. janúar 2018.

Í lok mars innleystu starfsmenn kauprétti samkvæmt kauparéttaráætlun félagsins 6.563 þús hluti fyrir um 112 millj. kr.

Þann 19. nóvember seldi félagið 55% eignarhlut í Tempo ehf. til Diversis Capital, fjárfestingafélags í Los Angeles sem sérhæfir sig í fjárfestingum í hugbúnaðar og tæknifyrirtækjum. Söluverðið nam 3.643 millj. kr. að frádregnum sölukostnaði. Heildaráhrif viðskiptanna á afkomu Origo hf. nema 5.098 millj. kr. í rekstrarreikningi. Tempo ehf. er því hluti af samstæðu Origo til 19. nóvember 2018.

Á fjórða ársfjórðungi voru vaxtaberandi skuldir greiddar niður um 942 millj. kr. og standa nú í 881 millj. kr. í stað 1.749 millj. kr. í lok árs 2017.

Í desember keypti félagið 2.254 þús. eigin hluti fyrir 57 millj. kr. í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins, en í gildi er áætlun um kaup á 2,5% af útgefnu hlutafé fram að aðalfundi félagsins 7. mars 2018. Endurkaupaáætlunin byggir á samþykkt síðasta aðalfundar, sem heimilar stjórn kaup á allt að 10% af hlutafé félagsins, eða 45,9 millj. hluti að nafnverði.

Vísað er í skýringar 24 til 28 vegna áhættustýringar félagsins.

Hlutafé og samþykktir

Hlutafé í árslok skiptist á 577 hluthafa, en þeir voru 587 í ársbyrjun. Í árslok 2018 átti einn hluthafi yfir 10% af hlutafé í félaginu, Vogun hf. átti 10,9%. Tíu stærstu hluthafar félagsins eru:

Eignarhlutur

Vogun hf. 10,9%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 9,9%
Birta lífeyrissjóður 9,9%
Kvika banki hf. 8,5%
The Wellington Trust Company 6,7%
Sjóvá - Almennar tryggingar hf. 4,5%
Arion banki hf. 4,1%
Lífsverk lífeyrissjóður 3,5%
Landsbankinn hf. 2,6%
IS hlutabréfasjóðurinn 2,6%

Stjórn félagsins leggur til að greiddar verði 1.000 millj. kr. arður til hluthafa á árinu 2019. Vísað er til ársreikningsins um ráðstöfun hagnaðar og aðrar breytingar á eiginfjárreikningum.

Skráð hlutafé félagsins nam í árslok 459 millj. kr., en félagið á eigin hluti að nafnverði 2,4 millj. kr. Hlutaféð er í einum flokki, sem skráður er í Kauphöll Íslands. Allir hlutir njóta sömu réttinda.

Hlutafé og samþykktir, frh.:

Á aðalfundi félagsins þann 2. mars 2018 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa fyrir hönd félagsins allt að 10% nafnverði hlutafjár félagsins, sbr. VIII. kafla laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Kaupgengi hluta skal miða við síðasta skráða gengi á Nasdaq OMX Iceland hf. áður en samningur er gerður. Gildistími heimildarinnar er allt að átján mánuðir. Með samþykkt tillögu þessarar féll úr gildi sams konar heimild sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 3. mars 2017.

Stjórnarhættir og ófjárhagsleg upplýsingagjöf

Stjórn Origo hf. leitast við að viðhalda góðum stjórnarháttum og fylgja Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út í endurskoðaðri útgáfu í júní 2015. Leiðbeiningarnar eru aðgengilegar á vef Viðskiptaráðs Íslands www.vi.is. Samkvæmt ákvörðun aðalfundar Origo þann 2. mars 2018 var skipuð tilnefningarnefnd sem tilnefnir frambjóðendur til stjórnarsetu í félaginu. Hlutverk tilnefningarnefndar skal meðal annars felast í því að meta tilvonandi stjórnarmenn út frá hæfni, reynslu, þekkingu og óhæði. Einnig að gæta að kynjahlutföllum í stjórn félagsins og undirbúa og leggja fram tillögur, byggðar á ofangreindu mati, um kosningu stjórnarmanna á aðalfundi félagsins. Félagið er með skráð hlutabréf í Kauphöll Íslands hf. og ber því að fylgja leiðbeiningum um stjórnarhætti samkvæmt reglum Kauphallarinnar sem hægt er að nálgast á vef Kauphallarinnar. Frekari upplýsingar um stjórn og stjórnarhætti er að finna í kaflanum Stjórnarháttayfirlýsing og ófjárhagsleg upplýsingagjöf eru fylgiskjöl með ársreikningnum.

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Ársreikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur um upplýsingagjöf í samstæðureikningum félaga sem hafa verðbréf sín skráð á skipulegum verðbréfamarkaði.

Samkvæmt bestu vitneskju er það álit okkar að samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar á árinu 2018, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar 31. desember 2018 og breytingu á handbæru fé á árinu 2018.

Jafnframt er það álit okkar að samstæðuársreikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar, stöðu hennar og lýsi helstu áhættuþáttum og óvissu sem samstæðan býr við.

Stjórn og forstjóri Origo hf. hafa í dag rætt um samstæðuársreikning félagsins fyrir árið 2018 og staðfesta hann með undirritun sinni. Stjórn og forstjóri leggja til við aðalfund félagsins að samþykkja ársreikninginn.

Reykjavík, 30. janúar 2019

Í stjórn félagsins:

Ívar Kristjánsson

Emilía Þórðardóttir Guðmundur Jóhann Jónsson

Hildur Dungal Loftur Bjarni Gíslason

Forstjóri:

Finnur Oddsson

Til stjórnar og hluthafa Origo hf.

Áritun um endurskoðun samstæðuársreiknings

Álit

Við höfum endurskoðað samstæðuársreikning Origo hf. ("samstæðan") fyrir árið 2018. Samstæðuársreikningurinn hefur að geyma rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstreymisyfirlit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.

Það er álit okkar að samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af fjárhagsstöðu samstæðunnar 31. desember 2018 og afkomu samstæðunnar og breytingu á handbæru fé á árinu 2018, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um ársreikninga skráðra félaga.

Grundvöllur álits

Við endurskoðuðum í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt stöðlunum er lýst frekar í kaflanum Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun samstæðuársreikningsins í árituninni. Við erum óháð samstæðunni í samræmi við siðareglur fyrir endurskoðendur á Íslandi og höfum uppfyllt aðrar siðferðisskyldur okkar í samræmi við þær reglur. Við teljum að við höfum aflað nægilegra og viðeigandi endurskoðunargagna til að byggja álit okkar á.

Lykilþættir endurskoðunar

Lykilþættir endurskoðunar eru þeir þættir, sem samkvæmt faglegu mati okkar, höfðu mest vægi við endurskoðun samstæðuársreikningsins. Við gefum ekki sérstakt álit á einstökum lykilþáttum en við tókum á þeim við endurskoðun á samstæðuársreikningnum í heild og við ákvörðun um álit okkar á honum.

Virðisrýrnunarpróf á viðskiptavild

Viðskiptavild félagsins nemur 1.617 millj. kr. í árslok 2018. Árlega ber að framkvæma virðisrýrnunarpróf á viðskiptavild. Virðisrýrnunarpróf á viðskiptavild er lykilþáttur í endurskoðun á ársreikningi samstæðunnar þar sem viðskiptavildin er stór hluti heildareigna og vegna innbyggðrar óvissu í áætlunum stjórnenda um afkomu og aðrar forsendur stjórnenda sem notaðar eru við núvirðingu áætlaðs framtíðarsjóðstreymis einstakra eininga.

Viðskiptavildin er 13% af heildareignum samstæðunnar og 20% af eigin fé samstæðunnar í árslok.

Viðskiptavildin hefur myndast við kaup á félögum og hefur verið útdeilt niður á minnstu aðgreinanlegu fjárskapandi einingar af stjórnendum félagsins.

Í skýringu 14 er fjallað um virðisrýrnunarpróf sem framkvæmt var á viðskiptavild samstæðunnar í árslok og í skýringu 34 er fjallað um reikningsskilaaðferðir.

Lykilþáttur Viðbrögð í endurskoðuninni

Við ásamt verðmatssérfræðingum okkar lögðum mat á forsendur sem stjórnendur nota við útreikning á núvirtu framtíðarsjóðstreymi fyrir hverja fjárskapandi einingu. Í þeirri vinnu fólst m.a.:

• Farið var yfir reiknilíkan félagsins og lagt mat á það.

• Forsendur rekstrar- og sjóðstreymisáætlana til næstu fimm ára voru yfirfarnar. Í þeirri vinnu fólst að lagt var mat á forsendur um tekjur, rekstrarkostnað, framlegð og fjárfestingar fyrir spátímabilið.

• Lagt var mat á forsendur fyrir áætluðum framtíðarvexti að loknu spátímabilinu.

• Við yfirferð á rekstrar- og sjóðstreymisáætlunum er meðal annars horft til frávika frá áætlunum fyrri ára.

• Farið var yfir ávöxtunarkröfu (WACC) einstakra fjárskapandi eininga sem notuð er við núvirðingu á fjárskapandi einingum. Ávöxtunarkrafan var borin saman við fjármagnskostnað félagsins og aðrar markaðsforsendur.

• Forsendur stjórnenda voru bornar saman við ytri og innri gögn.

• Við yfirfórum skýringar í ársreikningi og staðfestum að allar upplýsingar sem reikningsskilareglur kveða á um kæmu fram.

Áritun óháðs endurskoðanda, frh.:

Mat á eignarhlut í Tempo ehf.

Bókfært verð eignarhlutar í Tempo ehf. nam 2.698 millj. kr. í árslok 2018. Í kjölfar sölu á 55% eignarhlut í Tempo ehf. á árinu 2018 var 45% eignarhlutur Origo hf. í félaginu endurmetinn á gangvirði og nam matsbreyting í rekstrarreikningi 2.072 millj. kr. Mat á eignarhlut í Tempo ehf. er lykilþáttur í endurskoðun á ársreikningi samstæðunnar þar sem matsbreytingin hefur veruleg áhrif á rekstur ársins 2018.

Gangvirði er metið með hliðsjón af söluverði að frádregnu álagi vegna yfirráða af sambærilegum viðskiptum.

Í skýringum 6 og 15 er fjallað um söluna og gangvirðismat á eignarhlutnum og í skýringu 34 er fjallað um reikningsskilaaðferðir.

Lykilþáttur Viðbrögð í endurskoðuninni

Endurskoðunaraðgerðir okkar miðuðu að því að leggja mat á söluverð að frádregnu álagi vegna yfirráða. Í þeirri vinnu fólst m.a.:

• Við yfirfórum sölu á 55% eignarhlut í Tempo ehf. og staðfestum viðskiptin og söluverð við undirliggjandi gögn.

  • Forsendur við mat á álagi vegna yfirráða voru yfirfarnar af okkur og verðmatssérfræðingum okkar. Í því felst að lagt var mat á innri og ytri gögn sem stjórnendur lögðu fram við rökstuðning á álagi.
  • Farið var yfir verkferli og lagt mat á hvort salan og mat á gangvirði væri í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla.

• Við yfirfórum skýringar í ársreikningi og staðfestum að allar upplýsingar sem reikningsskilareglur kveða á um kæmu fram.

Aðrar upplýsingar í ársskýrslu

Stjórn og forstjóri bera ábyrgð á öðrum upplýsingum. Aðrar upplýsingar eru ársskýrsla að undanskildum samstæðuársreikningi og áritun okkar á hann. Álit okkar á samstæðuársreikningnum nær ekki til annarra upplýsinga og við staðfestum þær ekki á neinn hátt.

Í tengslum við endurskoðun okkar á samstæðuársreikningnum ber okkur að lesa aðrar upplýsingar í ársskýrslu þegar þær liggja fyrir og meta hvort þær séu í verulegu ósamræmi við samstæðuársreikninginn eða aðra þekkingu sem við höfum aflað okkur á félaginu við endurskoðunina eða virðast verulega rangar. Ef við, á grundvelli vinnu okkar, ályktum að verulegar rangfærslur séu í öðrum upplýsingum ber okkur að skýra frá því. Ársskýrslan liggur ekki fyrir við áritun okkar á samstæðuársreikninginn en við munum fá hana afhenta til yfirferðar áður en hún verður gefin út.

Ábyrgð stjórnar og forstjóra á samstæðuársreikningnum

Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð og glöggri framsetningu samstæðuársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og fyrir því innra eftirliti sem þau telja nauðsynlegt til að gera þeim kleift að setja fram samstæðuársreikning sem er án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.

Við gerð samstæðuársreikningsins ber stjórn og forstjóra að leggja mat á rekstarhæfi samstæðunnar og upplýsa, eftir því sem við á, um þætti er varða rekstrarhæfi og miða grundvöll reikningsskilanna við áframhaldandi rekstrarhæfi, nema þau ætli annað hvort að leysa samstæðuna upp eða hætta starfsemi hennar, eða hafa engan annan raunhæfan kost en að gera það.

Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun samstæðuársreikningsins

Markmið okkar eru að öðlast hæfilega vissu um hvort samstæðuársreikningurinn í heild sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka, og að gefa út áritun endurskoðanda sem inniheldur álit okkar. Í hæfilegri vissu felst mikil vissa en ekki trygging fyrir því að endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla muni alltaf leiða í ljós verulega annmarka ef þeir eru fyrir hendi. Annmarkar geta komið fram vegna sviksemi eða mistaka og eru taldir verulegir ef þeir einir og sér eða samanlagt gætu haft áhrif á efnahagslegar ákvarðanir sem notendur samstæðuársreikningsins taka á grundvelli hans.

Við endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla beitum við ávallt faglegri dómgreind og viðhöfum faglega gagnrýni. Að auki:

  • Greinum við og metum hættu á verulegri skekkju í samstæðuársreikningnum, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka, skipuleggjum og framkvæmum endurskoðunaraðgerðir til að bregðast við þeirri hættu og öflum endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi til að byggja álit okkar á. Hættan á að uppgötva ekki verulega skekkju vegna sviksemi er meiri en að uppgötva ekki skekkju vegna mistaka, þar sem sviksemi getur falið í sér samsæri, fölsun, að einhverju sé viljandi sleppt, villandi framsetningu eða að farið sé framhjá innra eftirliti.
  • Öflum við skilnings á innra eftirliti, sem varðar endurskoðunina, til að skipuleggja viðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki til að veita álit á virkni innra eftirlits samstæðunnar.
  • Metum við hvort reikningsskilaaðferðir og reikningshaldslegt mat stjórnenda og tengdar skýringar séu viðeigandi.
  • Ályktum við um hvort notkun stjórnar og forstjóra á forsendu reikningsskilanna um rekstrarhæfi sé viðeigandi og metum, á grundvelli endurskoðunarinnar, hvort aðstæður séu til staðar sem valdið gætu verulegum vafa um rekstrarhæfi samstæðunnar. Ef við teljum að verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi ber okkur, í áritun okkar, að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum samstæðuársreikningsins eða, ef slíkar skýringar eru ófullnægjandi, að víkja frá fyrirvaralausri áritun. Niðurstaða okkar byggir á endurskoðunargögnum sem aflað er fram að dagsetningu áritunar okkar. Samt sem áður geta atburðir eða aðstæður í framtíðinni gert samstæðuna órekstrarhæfa.
  • Metum við framsetningu, uppbyggingu og innihald samstæðuársreikningsins í heild, að meðtöldum skýringum, og hvort samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af undirliggjandi viðskiptum og atburðum.
  • Öflum nægilegra og viðeigandi endurskoðunargagna varðandi fjárhagslegar upplýsingar eininga innan samstæðunnar til að geta gefið álit á samstæðuársreikningnum. Við erum ábyrg fyrir skipulagi, eftirliti og framkvæmd endurskoðunar samstæðunnar og berum óskipta ábyrgð á áritun okkar.

Við upplýsum stjórn og endurskoðunarnefnd meðal annars um áætlað umfang og tímasetningar endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem upp kunna að koma í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka á innra eftirliti.

Við lýsum því einnig yfir við stjórn og endurskoðunarnefnd að við höfum uppfyllt skyldur siðareglna um óhæði og upplýsum um tengsl eða önnur atriði sem gætu mögulega talist hafa áhrif á óhæði okkar og þegar við á, til hvaða varnaraðgerða við höfum gripið.

Af þeim atriðum sem við höfum upplýst stjórn og endurskoðunarnefnd um, leggjum við mat á hvaða þættir höfðu mesta þýðingu við endurskoðun samstæðuársreikningsins og eru því lykilþættir endurskoðunarinnar. Við lýsum þessum þáttum í áritun okkar nema lög og reglur útiloki að upplýst sé um þá eða, við einstakar mjög sjaldgæfar kringumstæður, þegar við metum að ekki skuli upplýsa um lykilþátt þar sem neikvæðar afleiðingar þess eru taldar vega þyngra en almennir hagsmunir af birtingu slíkra upplýsinga.

Áritun óháðs endurskoðanda, frh.:

Staðfesting vegna annarra ákvæða laga

Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 104 gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga staðfestum við samkvæmt okkar bestu vitund að í skýrslu stjórnar sem fylgir þessum samstæðuársreikningi eru veittar þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga og koma ekki fram í skýringum.

Jón Arnar Óskarsson ber ábyrgð á endurskoðun samstæðuársreikningsins og þessari áritun.

Reykjavík, 30. janúar 2019

KPMG ehf.

Jón Arnar Óskarsson

Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu ársins 2018

Skýr. 2018 2017
Seldar vörur og þjónusta
Vörunotkun og kostnaðarverð seldrar þjónustu
8
9
15.716.686
( 11.543.321)
15.064.152
( 11.281.643)
Framlegð 4.173.365 3.782.509
Rekstrarkostnaður 10 ( 3.682.216) ( 3.443.961)
Hagnaður fyrir fjármunatekjur og fjármagnsgjöld 491.149 338.548
Áhrif af sölu á eignarhlut í Tempo ehf.
Aðrar fjármunatekjur
Fjármagnsgjöld
6 ( 5.097.947
79.545
113.039)
( 0
213.134
114.417)
Hreinar fjármunatekjur 12 5.064.453 98.717
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags 15 ( 21.522) 0
Hagnaður fyrir tekjuskatt 5.534.080 437.265
Tekjuskattur 22 ( 93.610) ( 4.287)
Hagnaður ársins 5.440.470 432.978
Rekstrarliðir sem kunna að verða endurflokkaðir
í rekstrarreikning færðir beint á eigið fé:
Þýðingarmunur vegna starfsemi dótturfélaga 6.256 ( 137)
Innleystur þýðingarmunur vegna sölu á Tempo ehf.
Rekstrarliðir færðir beint á eigið fé alls
(
(
26.679)
20.423)
( 0
137)
Heildarhagnaður ársins 5.420.047 432.841
EBITDA* 1.128.412 928.144
Hagnaður á hlut:
Hagnaður á hlut 20 11,74 0,95
Þynntur hagnaður á hlut 20 11,65 0,93

* EBITDA er hagnaður fyrir fjármunatekjur og fjármagnsgjöld án afskrifta.

Skýringar á blaðsíðum 13 - 41 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuársreikningnum.

Efnahagsreikningur 31. desember 2018

Skýr. 2018 2017
Eignir:
Rekstrarfjármunir 13 533.074 590.121
Óefnislegar eignir 14 2.436.871 3.083.183
Tekjuskattseign 22 43.426 130.881
Eignarhlutir í hlutdeildarfélagi 15 2.697.564 0
Langtímakröfur 13.023 13.014
Fastafjármunir 5.723.958 3.817.199
Birgðir 16 1.646.801 970.403
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 17 1.802.366 1.950.848
Handbært fé 18 3.175.454 296.743
Veltufjármunir 6.624.621 3.217.994
Eignir samtals 12.348.579 7.035.193
Eigið fé:
Hlutafé 462.918 458.609
Yfirverðsreikningur innborgaðs hlutafjár 821.044 769.670
Annað bundið eigið fé 2.701.942 656.420
Óráðstafað eigið fé 4.175.131 1.043.422
Eigið fé hluthafa móðurfélagsins 19 8.161.035 2.928.121
Hlutdeild minnihlutaeigenda 33.241 0
Eigið fé samtals 19 8.194.276 2.928.121
Skuldir:
Vaxtaberandi langtímaskuldir 21 756.987 1.636.874
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 21 124.054 112.477
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 23 3.273.262 2.357.721
Skammtímaskuldir 3.397.316 2.470.198
Skuldir samtals 4.154.303 4.107.072
Eigið fé og skuldir samtals 12.348.579 7.035.193

Skýringar á blaðsíðum 13 - 41 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuársreikningnum.

Eiginfjáryfirlit árið 2018

Skýr. Hlutafé Yfirverðs-
reikningur
innborgaðs
hlutafjár
Annað
bundið
eigið fé*
Óráðstafað
eigið fé
Eigið fé
hluthafa
móður-
félagsins
Hlutdeild
minni
hluta
eigenda
Eigið fé
samtals
Árið 2017
Eigið fé 1.1.2017
Heildarhagnaður ársins
Áhrif samruna
449.869 629.000 682.812
(
137)
(
149.399)
567.327
432.978
149.399
2.329.008
432.841
0
0 2.329.008
432.841
0
Fært á bundið eigið fé
19
Áfallinn kostnaður
123.144 ( 123.144) 0 0
v/ kaupréttarsamninga
11
Selt nýtt hlutafé
18
8.740 140.670 16.862 16.862
149.410
16.862
149.410
Eigið fé 31.12.2017 19 458.609 769.670 656.420 1.043.422 2.928.121 0 2.928.121

Árið 2018

Eigið fé 31.12.2017 458.609 769.670 656.420 1.043.422 2.928.121 0 2.928.121
Áhrif innleiðingar IFRS 15 4 (
256.565) (
256.565) (
256.565)
Eigið fé 1.1.2018 458.609 769.670 656.420 786.857 2.671.556 0 2.671.556
Heildarhagnaður ársins (
20.423)
5.440.470 5.420.047 5.420.047
Fært á bundið eigið fé 19 22.497 ( 22.497) 0 0
Fært af bundnu
eigin fé við sölu 19 (
118.380)
118.380 0 0
Matsbreyting eignarhlutar 6 2.161.828 ( 2.161.828) 0 0
Áfallinn kostnaður
v/ kaupréttarsamninga 11 13.749 13.749 13.749
Minnihluti færður í
samstæðu 7 0 33.241 33.241
Selt nýtt hlutafé 19 6.563 105.637 112.200 112.200
Keypt eigin bréf 19 ( 2.254) ( 54.263) (
56.517)
(
56.517)
Eigið fé 31.12.2018 19 462.918 821.044 2.701.942 4.175.131 8.161.035 33.241 8.194.276

* sjá sundurliðun í skýringu 15.

Skýringar á blaðsíðum 13 - 41 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuársreikningnum.

Sjóðstreymisyfirlit ársins 2018

Skýr. 2018 2017
Rekstrarhreyfingar:
Hagnaður ársins 5.440.470 432.978
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir
Hreinar fjármunatekjur
14
12
( 637.263
5.064.453)
( 589.596
98.717)
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags 15 21.522 0
Tekjuskattur 22 93.610 4.287
1.128.412 928.144
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum:
Birgðir, hækkun ( 671.482) ( 51.590)
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, hækkun ( 32.127) ( 24.754)
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, hækkun (lækkun) 869.387 ( 78.882)
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum 165.778 ( 155.226)
Innheimtar vaxtatekjur 33.748 29.999
Greidd vaxtagjöld ( 111.096) ( 114.877)
Handbært fé frá rekstri 1.216.842 688.040
Fjárfestingarhreyfingar:
Fjárfesting í rekstrarfjármunum 13 ( 230.274) ( 296.447)
Söluverð rekstrarfjármuna 13 13.377 4.250
Fjárfesting í óefnislegum eignum 14 ( 731.753) ( 461.150)
Fjárfesting í rekstrareiningum að frádregnu handbæru fé við yfirtöku 7 ( 130.652) ( 166.387)
Söluverð á Tempo að frádregnu handbæru fé við sölu 6 3.643.330 0
Fjárfesting í Tempo ehf. eftir sölu 15 ( 111.240) 0
Langtímakröfur, breyting 0 1.178
Fjárfestingarhreyfingar 2.452.788 ( 918.556)
Fjármögnunarhreyfingar:
Innborgað hlutafé 19 112.200 149.410
Keypt eigin bréf 19 ( 56.517) 0
Tekin ný langtímalán 21 185.785 0
Afborganir langtímalána 21 ( 1.043.870) ( 492.984)
Fjármögnunarhreyfingar ( 802.402) ( 343.574)
Hækkun (lækkun) á handbæru fé 2.867.228 ( 574.090)
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé 11.483 ( 903)
Handbært fé í ársbyrjun 296.743 871.736
Handbært fé í árslok 18 3.175.454 296.743

Fjárfestingar- og fjármögnunarhreyfingar án greiðsluáhrifa

Fjárfesting í rekstrareiningum að frádregnu handbæru fé við yfirtöku 0 ( 283.613)
Greitt með verðbréfaeign 0 88.500
Ógreitt kaupverð 0 195.113

Skýringar á blaðsíðum 13 - 41 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuársreikningnum.

1. Félagið

Origo hf. ("Félagið") er íslenskt hlutafélag. Höfuðstöðvar félagsins eru í Borgartúni 37, Reykjavík. Samstæðuársreikningur félagsins fyrir árið 2018 hefur að geyma ársreikning félagsins og dótturfélaga þess, sem vísað er til í heild sem "samstæðunnar" og til einstakra félaga sem "samstæðufélaga".

Hlutverk félagsins er að veita viðskiptavinum sínum heildarlausnir á sviði upplýsingatækni með þróun hugbúnaðar, sölu á tölvu- og skrifstofubúnaði, ráðgjöf og tengdri þjónustu.

2. Grundvöllur reikningsskilanna

a. Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt

Ársreikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Ársreikningur samstæðunnar er jafnframt í samræmi við lög um ársreikninga og reglugerð um framsetningu og innihald ársreikninga og samstæðureikninga. Samantekt á mikilvægum reikningsskilaaðferðum er að finna í skýringu 34.

Stjórn félagsins staðfesti ársreikninginn 30. janúar 2019.

b. Grundvöllur matsaðferða

Samstæðuársreikningurinn er gerður á grundvelli kostnaðarverðs, að því undanskildu að framvirkir samningar eru eru færðir á gangvirði. Fjallað er um aðferðir við mat á gangvirði í skýringu 3.

c. Starfrækslugjaldmiðlill og framsetningargjaldmiðill

Ársreikningurinn er birtur í íslenskum krónum, sem er starfrækslugjaldmiðill móðurfélagsins. Allar fjárhæðir eru birtar í þúsundum króna.

d. Mat og ákvarðanir

Gerð samstæðuársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrugðnar þessu mati.

Mat og forsendur þess eru í stöðugri endurskoðun. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað og þeim framtíðartímabilum sem breytingarnar hafa áhrif á.

Upplýsingar um mikilvægar ákvarðanir þar sem reikningsskilaaðferðir hafa mest áhrif á skráðar fjárhæðir eigna og skulda í ársreikningnum er að finna í skýringu 14 um mat á endurheimtanlegum fjárhæðum fjárskapandi eininga sem innihalda viðskiptavild.

Við ákvörðun gangvirðis er byggt á forsendum sem háðar eru mati stjórnenda á þróun ýmissa þátta í framtíðinni. Raunverulegt söluverð eigna og uppgreiðsluverðmæti skulda kann að vera frábrugðið þessu mati.

3. Ákvörðun gangvirðis

Nokkrar reikningsskilaaðferðir samstæðunnar og skýringar krefjast ákvörðunar á gangvirði, bæði fyrir fjáreignir, fjárskuldir og aðrar eignir og skuldir. Gangvirði hefur verið ákvarðað vegna mats og/eða skýringa samkvæmt eftirfarandi aðferðum. Þar sem við á eru frekari upplýsingar um forsendur við ákvörðun á gangvirði eigna eða skulda í skýringum um viðkomandi eignir og skuldir.

(i) Rekstrarfjármunir og óefnislegar eignir

Rekstrarfjármunir og óefnislegar eignir sem yfirteknar eru við samruna eru metnar á gangvirði á yfirtökudegi.

(ii) Framvirkir samningar

Gangvirði framvirka samninga er fært í gegnum rekstrarreikning og er metið samkvæmt uppgefnu verði frá miðlara.

3. Ákvörðun gangvirðis, frh.:

(iii) Fjárskuldir sem ekki eru afleiðusamningar

Gangvirði fjárskulda, sem einungis er ákvarðað vegna skýringa, er reiknað með því að núvirða framtíðargreiðslur höfuðstóls og vaxta með markaðsvöxtum á uppgjörsdegi.

(iv) Eignarhlutur í hlutdeildarfélagið

Gangvirði við upphaflega færslu eignarhluts í hlutdeildarfélagi, Tempo ehf., er metið með hliðsjón af söluverði að frádregnu álagi vegna yfirráða af sambærilegum viðskiptum.

4. Nýir reikningsskilastaðlar

IFRS 15 Tekjur af samningum við viðskiptavini

Félagið hefur innleitt reikningsskilastaðal IFRS 15 fyrir reikningsár sem hófst 1. janúar 2018. Reikningsskilastaðallinn inniheldur nýja viðmiðun við skráningu tekna og kemur í stað reglna um tekjuskráningar sem áður var að finna í IAS 11 og IAS 18.

Áhrif á eigið fé samstæðunnar 1. janúar 2018 eru metin með hliðsjón af reglum staðalsins við skráningar tiltekinna tekna samstæðunnar og frestuðum tekjum og dreifingu þeirra tekna á síðari tímabil. Frestaðar tekjur hjá Tempo ehf. í árslok 2017 voru 433 millj. kr. og eigið fé lækkaði um 257 millj. kr. við innleiðingu á staðlinum að teknu tilliti breytingar á meðhöndlun kostnaðar og tekjuskattsáhrifa. Innleiðingin hafði engin áhrif á tekjuskráningu hjá móðurfélaginu. Áhrifin greinast þannig á efnahagsreikninginn 1. janúar 2018:

Áhrif staðal Fyrir IFRS 15
Efnahagsreikningur 1.1.2018 staðals 1.1.2018
Eignir
Rekstrarfjármunir 590.121 590.121
Óefnislegar eignir 3.083.183 3.083.183
Tekjuskattseign 130.881 64.141 195.022
Langtímakröfur 13.014 13.014
Fastafjármunir 3.817.199 64.141 3.881.340
Vörubirgðir 970.403 970.403
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 1.950.848 112.085 2.062.933
Handbært fé 296.743 296.743
Veltufjármunir 3.217.994 112.085 3.330.079
Eignir samtals 7.035.193 176.226 7.211.419
Eigið fé
Hlutafé 458.609 458.609
Yfirverðsreikningur innborgaðs hlutafjár 769.670 769.670
Annað bundið eigið fé 656.420 656.420
Óráðstafað eigið fé 1.043.422 (
256.565)
786.857
Eigið fé 2.928.121 (
256.565)
2.671.556
Vaxtaberandi langtímaskuldir 1.636.874 1.636.874
Vaxtaberandi skammtímaskuldir 112.477 112.477
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 2.357.721 432.791 2.790.512
Skammtímaskuldir 4.107.072 432.791 4.539.863
Eigið fé og skuldir samtals 7.035.193 176.226 7.211.419

4. Nýir reikningsskilastaðlar, frh.:

IFRS 15 Tekjur af samningum við viðskiptavini, frh.:

Ef staðallinn hefði ekki tekið gildi 1. janúar 2018 hefðu áhrifá rekstrarreikning ársins 2018 verið um 82 millj. kr. hærri. Áhrifin á rekstrarreikning ársins 2018 greinast þannig:

Rekstrarreikningur 2018 Áhrif nýs
staðals
Fyrir IFRS 15
2018
Seldar vörur og þjónusta
Vörunotkun og kostnaðarverð seldrar þjónustu
15.716.686
( 11.543.321)
136.142
(
34.033) (
15.852.828
11.577.354)
Framlegð 4.173.365 102.109 4.275.474
Rekstrarkostnaður (
3.682.216)
0 ( 3.682.216)
Hagnaður fyrir fjármunatekjur og fjármagnsgjöld 491.149 102.109 593.258
Hreinar fjármunatekjur 5.064.453 0 5.064.453
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags (
21.522)
0 ( 21.522)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 5.534.080 102.109 5.636.189
Tekjuskattur (
93.610)
(
20.422) (
114.032)
Hagnaður ársins 5.440.470 81.687 5.522.157
EBITDA 1.128.412 102.109 1.230.521

IFRS 9 Fjármálagerningar

Í IFRS 9 eru reglur um skráningu og mat á fjáreignum, fjárskuldum og samningum um kaup eða sölu á tilteknum ófjárhagslegum eignum. Staðallinn leysir af hólmi IAS 39, Fjármálagerningar: Skráning og mat. IFRS 9 heldur að mestu leyti gildandi reglum IAS 39 um flokkun og mat á fjárskuldum. Hins vegar falla niður tilteknir flokkar fjáreigna, þ.e. fjáreignir haldið til gjalddaga, útlán og kröfur og fjáreignir til sölu. Samkvæmt IFRS 9 er fjáreign við upphaflega skráningu flokkuð og metin á: afskrifuðu kostnaðarverði, á gangvirði gegnum aðra heildarafkomu eða á gangvirði gegnum rekstur.

Flokkun fjármálagerninga samkvæmt IFRS 9 er almennt byggð á viðskiptalíkani félagsins um stýringu fjáreigna og sjóðsflæðis hennar. IFRS 9 hverfur frá mati á virðisrýrnun miðað við útlánatap sem þegar hefur átt sér stað samkvæmt líkani IAS 39 og kynnir til sögunnar mat á væntu útlánatapi. Hið nýja virðisrýrnunarlíkan tekur til fjáreigna á kostnaðarverði, samningseigna og skuldagerninga á gangvirði gegnum aðra heildarafkomu, en tekur til fjárfestinga í hlutabréfum. Upptaka IFRS 9 hafði ekki áhrif á eigið fé samstæðunar 1. janúar 2018 né bókfært verð fjáreigna og skulda en eftirfarandi breytingar urðu á flokkun fjármálagerninga samstæðunnar 1. janúar 2018.

Flokkun samkvæmt IAS Flokkun samkvæmt IFRS 9 Bókfært verð
Fjáreignir
Langtímakröfur Lán og kröfur Afskrifað kostnaðarverð 13.023
Viðskiptakröfur og
aðrar skammtímakröfur Lán og kröfur Afskrifað kostnaðarverð 1.802.366
Vaxtaberandi skuldir Aðrar fjárskuldir Aðrar fjárskuldir (
881.041)
Viðskiptaskuldir og
aðrar skammtímaskuldir Aðrar fjárskuldir Aðrar fjárskuldir (
3.273.262)

5. Starfsþáttayfirlit

Rekstrarstarfsþættir

Samstæðan skiptist í tvo starfsþætti, sem selja vörur og þjónustu á mismunandi mörkuðum. Starfsþættirnir eru: Vörur og tengd þjónusta - vörusala til fyrirtækja og almennings og tengd þjónusta.

● ● Hugbúnaður, tengd þjónusta og ráðgjöf - hugbúnaðarþróun og ráðgjöf og ýmis tengd þjónusta.

Hugbúnaður,
Vörur og tengd tengd þjónusta Jöfnunar
2018 þjónusta og ráðgjöf færslur Samtals
Tekjur frá þriðja aðila 9.074.960 6.641.726 0 15.716.686
Tekjur innan samstæðunnar 941.898 720.730 ( 1.662.628) 0
Tekjur samtals 10.016.858 7.362.456 ( 1.662.628) 15.716.686
Rekstrargjöld starfsþátta ( 9.731.447) ( 6.519.455) 1.662.628 ( 14.588.274)
Afkoma starfsþátta (EBITDA) 285.411 843.001 1.128.412
Afskriftir ( 218.195) ( 419.068) ( 637.263)
Áhrif af sölu á eignarhlut í Tempo ehf. 5.097.947
Aðrar fjármunatekjur 79.545
Fjármagnsgjöld ( 113.039)
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags ( 21.522)
Tekjuskattur ( 93.610)
Hagnaður ársins 5.440.470
Þýðingarmunur vegna starfsemi dótturfélaga 6.256
Innleystur þýðingarmunur v/ sölu á Tempo ehf. ( 26.679)
Heildarhagnaður ársins 5.420.047

Eignir samstæðunnar í árslok 2018 eru ekki aðgreinanlegar niður á starfsþátt eftir sameiningu dótturfélaga við móðurfélagið á árinu 2017.

2017

Tekjur frá þriðja aðila 9.949.880 5.114.272 0 15.064.152
Tekjur innan samstæðunnar 261.078 574.246 ( 835.324) 0
Tekjur samtals 10.210.958 5.688.518 ( 835.324) 15.064.152
Rekstrargjöld starfsþátta ( 9.950.161) ( 5.021.171) 835.324 ( 14.136.008)
Afkoma starfsþátta (EBITDA) 260.797 667.347 928.144
Afskriftir (
269.868)
( 319.728) ( 589.596)
Fjármunatekjur 213.134
Fjármagnsgjöld ( 114.417)
Tekjuskattur ( 4.287)
Hagnaður ársins 432.978
Þýðingarmunur vegna starfsemi dótturfélaga ( 137)
Heildarhagnaður ársins 432.841
Eignir starfsþátta 4.949.596 2.085.597 0 7.035.193
Fjárfestingar í rekstrarfjármunum 240.264 56.183 0 296.447
Fjárfestingar í óefnislegum eignum 0 922.290 0 922.290

5. Starfsþáttayfirlit, frh.:

Landsvæðisskipting
2018
Ísland Önnur lönd Samtals
Tekjur frá þriðja aðila 12.713.896 3.002.790 15.716.686
2017
Tekjur frá þriðja aðila 12.090.485 2.973.667 15.064.152
Eignir starfsþátta 4.889.255 2.145.938 7.035.193
Fjárfestingar í rekstrarfjármunum 265.714 30.733 296.447

6. Sala á Tempo ehf.

Þann 19. nóvember seldi félagið 55% eignarhlut í Tempo ehf. til Diversis Capital, fjárfestingafélags í Los Angeles sem sérhæfir sig í fjárfestingum í hugbúnaðar og tæknifyrirtækjum. Tempo ehf. er því hluti af samstæðu Origo til 19. nóvember. Söluverðið nam 3.643 millj. kr. að frádregnum sölukostnaði. Heildaráhrif viðskiptanna á afkomu Origo hf. nema 5.098 millj. kr. í rekstrarreikning.

Við söluna var 45% eignarhlutur í Tempo ehf. færður á gangvirði en verður eftirleiðis færður samkvæmt hlutdeildaraðferð. Eignarhluturinn er skilgreindur sem eign í hlutdeildarfélagi.

Áhrif sölunnar greinist þannig á efnahagsreikning Origo hf.:

Áhrif sölu
Óefnislegar eignir 1.288.514
Rekstrarfjármunir 32.257
Tekjuskattseign 99.144
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 579.178
Fjármögnunarleigusamningar (
4.948)
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir (
823.971)
Bókfært verð á eignarhlut í Tempo ehf. við sölu 1.170.174
Bókfært verð 55% hlutar í Tempo ehf. 643.596
Söluverð á 55% eignarhlut í Tempo að frádregnum sölukostnaði 3.643.330
Söluverðið var greitt í nóvember.
Áhrif sölunnar greinist þannig í rekstrarreikningi Origo hf.:
Söluhagnaður á 55% eignarhlut í Tempo ehf. 2.999.734
Matsbreyting á 45% eignarhlut í Tempo ehf. 2.071.534
Innleystur þýðingarmunur við sölu 26.679

5.097.947

_____________________________________________________________________________________________________________

Áhrif á sölu í Tempo ehf. ..................................................................................................................

7. Yfirtaka á rekstrareiningum

Á árinu 2018 fjárfesti félagið í tveimur hugbúnaðarfyrirtækjum, BenHur ehf. og Sendill is Unimaze ehf. Í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal IFRS 3 Sameiningar fyrirtækja , var kaupverð rekstrareininganna útdeilt á yfirteknar aðgreinanlegar eignir og skuldir.

Áhrif yfirtöku á rekstrareiningum greinist þannig:

Yfirtekið
Hugbúnaður 115.184
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 16.557
Yfirteknar eignir 131.741
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 1.089
Yfirteknar skuldir 1.089
Hreinar aðgreinanlegar eignir alls 130.652

Kaupverðið var greitt með handbæru fé. Áhrifin á rekstur samstæðunnar á árinu 2018 voru óveruleg.

8. Seldar vörur og þjónusta

Seldar vörur og þjónusta greinast þannig: 2018 2017
Seldar vörur og hugbúnaður 9.280.959 9.106.226
Seld þjónusta 6.435.727 5.957.926
Seldar vörur og þjónusta samtals 15.716.686 15.064.152

9. Vörunotkun og kostnaðarverð sölu

Vörunotkun og kostnaðarverð sölu greinist þannig:

Vörukaup 6.497.333 6.664.658
Laun og launatengd gjöld 4.473.776 4.094.747
Afskriftir 572.211 522.238
Vörunotkun og kostnaðarverð sölu 11.543.321 11.281.643

10. Rekstrarkostnaður

Rekstrarkostnaður greinist þannig:

Laun og launatengd gjöld
1.983.511
1.808.272
Rekstur fasteigna 416.665
413.972
Sölu- og markaðskostnaður 299.243
231.653
Afskriftir 65.052
67.358
Annar starfsmannakostnaður 212.227
215.229
Ferðakostnaður 99.373
122.099
Aðkeypt ráðgjöf og þjónusta 186.951
191.572
Ýmis annar rekstrarkostnaður 419.195
393.806
Rekstrarkostnaður alls
3.682.216
3.443.961

11. Laun og launatengd gjöld

Laun og launatengd gjöld greinast þannig: 2018 2017
Laun 5.866.167 5.449.215
Lífeyrisiðgjöld 633.707 511.908
Önnur launatengd gjöld 472.478 415.444
Laun og launatengd gjöld samtals 6.972.352 6.376.567
Endurgreiddur þróunarkostnaður, skattaívilnun Rannís ( 80.768) ( 94.364)
Laun og launatengd gjöld eignfærð sem þróunarkostnaður ( 434.297) ( 379.184)
Laun og launatengd gjöld í rekstrarreikningi 6.457.287 5.903.019
Ársverk 567 551
Stöðugildi í árslok 495 563
Laun og launatengd gjöld greinast þannig á rekstrarliði:
Vörunotkun og kostnaðarverð seldrar þjónustu 4.473.776 4.094.747
Rekstrarkostnaður 1.983.511 1.808.272
Laun og launatengd gjöld samtals 6.457.287 5.903.019

Í samræmi við samþykkt aðalfundar 4. mars 2016 var gengið frá kaupréttaráætlun sem nær til allrar fastra starfsmanna félagsins. Á árinu 2018 eru 14 millj. kr. gjaldfærðar í rekstrarreikningi vegna kaupréttarsamninga. Kaupgengi samkvæmt kaupréttasamningunum er 17,095 á hlut. Áætluð vænt nýting á árinu 2019 er 5.462 þús. hlutir. Kaupréttaráætlunin rennur út á árinu 2019.

Gangvirði kaupréttarsamninga er metið með Black-Scholes aðferðinni. Við matið er notað gengi hlutabréfa á matsdegi, kaupréttargengi, vænt flökt, gildistími samninga, væntar arðgreiðslur og áhættulausa vexti.

12. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld

Fjármunatekjur greinast þannig: 2018 2017
Áhrif sölu á Tempo ehf., sjá skýringu 6 5.097.947 0
Vaxtatekjur af bankainnstæðum og kröfum 33.748 29.999
Söluhagnaður á verbréfaeign 0 75.354
Gengishagnaður 45.797 107.781
Aðrar fjármunatekjur samtals 79.545 213.134
Fjármagnsgjöld greinast þannig:
Vaxtagjöld (
113.039) (
114.417)
Fjármagnsgjöld samtals (
113.039) (
114.417)
Hreinar fjármunatekjur samtals 5.064.453 98.717

13. Rekstrarfjármunir

Rekstrarfjármunir og afskriftir greinast þannig: Tölvubúnaður,
tæki og
Fasteignir innréttingar Samtals
Stofnverð
Heildarverð 1.1.2017 28.348 2.651.178 2.679.526
Viðbót á árinu 0 296.447 296.447
Selt og niðurlagt 0 (
7.247) (
7.247)
Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla 0 (
13.392) (
13.392)
Heildarverð 31.12.2017 28.348 2.926.986 2.955.334
Viðbót á árinu 0 230.274 230.274
Selt og niðurlagt 0 (
31.967) (
31.967)
Áhrif sölu á Tempo ehf. 0 (
41.689) (
41.689)
Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla 0 5.644 5.644
Heildarverð 31.12.2018 28.348 3.089.248 3.117.596
Afskriftir og virðisrýrnun
Staða 1.1.2017 6.687 2.076.627 2.083.314
Afskriftir ársins 378 291.308 291.686
Selt og niðurlagt 0 (
2.997) (
2.997)
Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla 0 (
6.790) (
6.790)
Afskrifað alls 31.12.2017 7.065 2.358.148 2.365.213
Afskriftir ársins 378 245.835 246.213
Selt og niðurlagt 0 (
18.590) (
18.590)
Áhrif sölu á Tempo ehf. 0 (
9.484) (
9.484)
Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla 0 1.170 1.170
Afskrifað alls 31.12.2018 7.443 2.577.079 2.584.522
Bókfært verð
1.1.2017 21.661 574.551 596.212
31.12.2017 21.283 568.838 590.121
31.12.2018 20.905 512.169 533.074
Afskriftahlutföll 1,3% 15 - 25%

Vátryggingar og mat eigna

Vátryggingaverð, fasteignamat og bókfært verð eigna í lok árs nam eftirfarandi fjárhæðum:

2018 2017
Vátryggingarverð fasteigna 47.890 42.725
Fasteignamat fasteigna og lóða 19.770 15.784
Bókfært verð fasteigna og lóða 20.905 21.283
Vátryggingarverð birgða, áhalda, tækja og innréttinga 2.214.589 2.239.741

Veðskuldir

Á rekstrarfjármunum samstæðunnar hvíla engin þinglýst veð til tryggingar skuldum (2017: Engin þinglýst veð).

14. Óefnislegar eignir

Óefnislegar eignir, afskriftir og virðisrýrnun greinist þannig:

Óefnislegar
Kostnaðarverð Viðskiptavild Hugbúnaður eignir alls
Heildarverð 1.1.2017 1.920.336 1.285.451 3.205.787
Yfirtekið við kaup á rekstrareiningum 81.140 380.000 461.140
Fjárfesting í innri hugbúnaðarþróun 0 461.150 461.150
Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla (
15.866)
(
64.235) (
80.101)
Heildarverð 31.12.2017 1.985.610 2.062.366 4.047.976
Yfirtekið við kaup á rekstrareiningum 0 115.184 115.184
Fjárfesting í innri hugbúnaðarþróun 0 440.165 440.165
Viðbót á árinu 0 291.588 291.588
Áhrif sölu á Tempo ehf. (
277.360)
(
2.124.652) (
2.402.012)
Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla 45.925 200.116 246.041
Heildarverð 31.12.2018 1.754.175 984.767 2.738.942
Afskriftir og virðisrýrnun
Afskrifað alls 1.1.2017 137.481 545.849 683.330
Afskriftir 0 297.910 297.910
Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla 0 (
16.447) (
16.447)
Afskrifað alls 31.12.2017 137.481 827.312 964.793
Afskriftir 0 391.050 391.050
Áhrif sölu á Tempo ehf. 0 (
1.113.498) (
1.113.498)
Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla 0 59.726 59.726
Afskrifað alls 31.12.2018 137.481 164.590 302.071
Bókfært verð
1.1.2017 1.782.855 739.602 2.522.457
31.12.2017 1.848.129 1.235.054 3.083.183
31.12.2018 1.616.694 820.177 2.436.871
Afskriftahlutföll 10 - 25%

Hluti af starfsemi Origo hf. er að þróa hugbúnað og selja. Í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla voru á árinu eignfærðar 440 millj. kr. vegna þróunar Tempo hugbúnaði auk þess fjárfesti félagið í öðrum hugbúnaði fyrir 142 millj. kr. í tengslum við kaup á rekstrareiningum. Við mat á fjárhæðum við þróun á hugbúnaði er miðað við kostnað sem til fellur frá þeim degi sem verkefni uppfyllir öll skilyrði til eignfærslu.

Óefnislegar eignir sem þróaðar innan samstæðunnar eru færðar á kostnaðarverði að frádregnum afskriftum eins og um keypta eign væri að ræða. Bókfært verð óefnislegra eigna er yfirfarið á hverjum uppgjörsdegi til að meta hvort vísbendingar séu um virðisrýrnun þeirra. Sé einhver slík vísbending til staðar er endurheimtanleg fjárhæð eignarinnar metin. Virðisrýrnunarpróf eru gerð að minnsta kosti árlega á viðskiptavild.

Afskriftir samkvæmt rekstrarreikningi greinast þannig: 2018 2017
Afskriftir rekstrarfjármuna, skýring 13
Afskriftir óefnislega eigna
246.213
391.050
291.686
297.910
Fært í rekstrarreikning sem afskriftir 637.263 589.596
Afskriftir greinast þannig á rekstrarliði:
Vörunotkun og kostnaðarverð seldrar þjónustu 572.211 522.238
Rekstrarkostnaður 65.052 67.358
Afskriftir samtals 637.263 589.596

14. Óefnislegar eignir, frh.:

Virðisrýrnunarpróf

Í lok reikningsársins var framkvæmt virðisrýrnunarpróf á viðskiptavild félagsins. Viðskiptavild sem myndast hefur við kaup hefur verið útdeilt niður á viðeigandi dótturfélög sem skilgreind eru sem minnstu aðgreinanlegu fjárskapandi einingar af stjórnendum samstæðunnar. Við sameiningu dótturfélaganna við móðurfélagið á árinu 2017 runnu fjárskapandi einingar saman í eina.

Bókfært verð viðskiptavildar greinist þannig niður á flokk fjárskapandi einingar:

2018 2017
Vörur og tengd þjónusta 1.391.023 962.213
Hugbúnaður, tengd þjónusta og ráðgjöf 225.671 885.916
Viðskiptavild samtals 1.616.694 1.848.129

Endurheimtanlegar fjárhæðir fyrir fjárskapandi einingar eru byggðar á nýtingarvirði. Við mat á nýtingarvirði er stuðst við vænt fjárstreymi sem fært hefur verið til núvirðis. Fjárstreymi var áætlað í samræmi við fjárhæðir og rekstraráætlanir næstu fimm ára, eftir spátímabilið er gert ráð fyrir föstum framtíðarnafnvexti við útreikning á hrakvirði. Megin forsendur eru tekjuvöxtur, rekstrarhagnaðarhlutfall (EBITDA-hlutfall), framtíðarfjárfesting og vöxtur eftir fimm ára spátímabil. Við núvirðingu er stuðst við væntan veginn fjármagnskostnað (WACC). Ávöxtunarkrafan tekur mið af hverri fjárskapandi einingu þar sem stuðst er við ytri gögn sem og innri gögn. Beitt er sömu aðferðafræði og árið áður.

Áætlanir eru yfirfarnar og samþykktar af stjórn félagsins. Samkvæmt niðurstöðum prófa í árslok 2018 hefur viðskiptavildin ekki orðið fyrir virðisrýrnun.

Við mat á nýtingarvirði byggja stjórnendur á áætlunum á framtíðarþróun á sviði upplýsingatækni, byggt er á bæði ytri og innri upplýsingum. Stuðst er við reynslu reynslu fyrri ára. Eftirfarandi eru lykilforsendur við mat á nýtingarvirði:

Forsendur í árslok 2018: Vörur og
tengd þjónusta
Hugbúnaður,
tengd þjónusta
og ráðgjöf
Framtíðarvöxtur að teknu tilliti til verðlagsþróunar
Nafnvöxtur tekna:
5,0% 3,5%
Vegið meðaltal 2019 7,6% 9,0%
2020 - 2023 5,0 - 5,3% 4,0 -5,0%
Ávöxtunarkrafa, WACC 10,2% 7,4%
Skuldsetningarhlutfall 13,0% 14,0%
Vextir 8,6% 4,1%
Forsendur í árslok 2017:
Framtíðarvöxtur að teknu tilliti til verðlagsþróunar
Nafnvöxtur tekna:
5,0% 3,5 - 5%
Vegið meðaltal 2018 5,0% 6,0%
2019 - 2022 5,2 - 6,3% 5,2 - 12,6%
Ávöxtunarkrafa, WACC 13,2% 8,7 - 13%
Skuldsetningarhlutfall 35,0% 14,0%
Vextir 8,4% 5,2 - 8,7%

Raunhæfar breytingar á forsendum í árslok 2018 og 2017 myndu ekki leiða til virðisrýrnuna.

15. Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi

Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi greinist þannig: 2018

Eignarhlutur í Tempo ehf. - 100% hlutur 1.170.174
Seldur eignarhlutur í Tempo ehf. - 55% hlutur
(
643.596)
Eignarhlutur í Tempo ehf. - 45% hlutur 526.578
Matsbreyting á eignarhlut í kjölfar sölu 2.071.534
Fjárfesting í Tempo ehf. 111.240
Hlutdeild í afkomu Tempo ehf. eftir sölu
(
21.522)
Þýðingarmunur 9.734
Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi 2.697.564

Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi skiptist þannig:

Hlutdeild í eigð fé Tempo ehf. 492.893
Viðskiptavild 1.367.808
Aðrar óefnislegar eignir 836.863
Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi 2.697.564

Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi er 45% eignarhlutur í Tempo ehf. Eignarhluturinn er metin samkvæmt hlutdeildaraðferð en í kjölfar á sölu á 55% eignarhlut þá var eignarhluturinn endurmetinn og færður á gangverði í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla.

16. Birgðir

Birgðir í árslok greinast þannig: 2018 2017
Birgðir á vörulager og í verslunum 1.549.599 916.033
Varahlutabirgðir 69.145 67.313
Verk í vinnslu 172.369 115.681
Niðurfærsla birgða (
144.312) (
128.624)
Birgðir samtals 1.646.801 970.403

Verk í vinnslu samanstanda af kostnaði vegna þjónustuverka sem áfallinn er í árslok.

17. Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur

Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur greinast þannig:

Viðskiptakröfur vegna samninga við viðskiptavini 1.721.354 1.780.316
Niðurfærsla vegna krafna sem kunna að tapast (
41.400) (
21.400)
Framvirkur samningur 0 95.931
Ýmsar skammtímakröfur 122.412 96.001
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur samtals 1.802.366 1.950.848

Fjallað er um lánsáhættu, gengisáhættu og virðisrýrnun (niðurfærslu) viðskiptakrafna og annarra krafna samstæðunnar í skýringu 25 og 27.

Viðskiptakröfur og birgðir að fjárhæð 670 millj. kr. (2017: 914 millj. kr.) eru veðsettar til tryggingar á lánum til félagsins.

18. Handbært fé

Handbært fé greinist þannig:

Óbundnar bankainnstæður og lausafjársjóðir 3.166.915 286.467
Sjóðir 8.539 10.276
Handbært fé 3.175.454 296.743

19. Eigið fé

(i) Hlutafé

Heildarhlutafé félagsins samkvæmt samþykktum þess er 459 millj. kr. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Eitt atkvæði fylgir hverjum hlut í félaginu. Félagið á eigin hlutabréf að nafnverði 2,4 millj. kr. sem færð eru til lækkunar á eigin fé.

Í desember keypti félagið 2.254 þús. eigin hluti fyrir 57 millj. kr. í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins, en í gildi er áætlun um kaup á 2,5% af útgefnu hlutafé fram að aðalfundi félagsins 7. mars 2018. Endurkaupaáætlunin byggir á samþykkt síðasta aðalfundar, sem heimilar stjórn kaup á allt að 10% af hlutafé félagsins, eða 45,9 millj. hluti að nafnverði.

(ii) Yfirverðsreikningur innborgaðs hlutafjár

Yfirverðsreikningur innborgaðs hlutafjár sýnir það sem hluthafar félagsins hafa greitt umfram nafnverð hlutafjár sem félagið hefur selt. Samkvæmt lögum um hlutafélög skal félagið binda 25% af nafnverði hlutafjár í varasjóði, sem ekki má nota til að greiða hluthöfum arð.

Heimilt er samkvæmt lögum að jafna yfirverðsreikningi innborgaðs hlutafjár á móti uppsöfnuðu tapi.

(iii) Annað bundið eigið fé

Annað bundið eigið fé samanstendur af þýðingarmun vegna dótturfélag og bundnum hlutdeildarreikningi í árslok.

Bundið eigið fé inniheldur hlutdeild í uppsöfnuðum hagnaði dótturfélaga sem er umfram úthlutaðan arð frá viðkomandi félögum á undirritunardegi og matsbreytingu á eignarhlut í hlutdeildarfélagi.

Annað bundið eigið fé greinist þannig: Þýðingar
munur í
dóttur-
félögum
Bundinn
hlutdeildar
reikningur
Samtals
Staða 1.1.2017 412.918 269.894 682.812
Breyting á árinu ( 137) ( 26.255) ( 26.392)
Staða 31.12.2017 412.781 243.639 656.420
Breyting á árinu ( 20.423) 2.065.945 2.045.522
Staða 31.12.2018 392.358 2.309.584 2.701.942

(iv) Óráðstafað eigið fé

Óráðstafað eigið fé er uppsafnaður óráðstafaður hagnaður og ójafnað tap samstæðunnar frá stofnun móðurfélagsins, að frádregnum arðgreiðslum og millifærslum til og frá öðrum eiginfjárliðum.

(v) Eiginfjárstýring

Það er stefna stjórnar félagsins að eiginfjárstaða samstæðunnar sé sterk til að styðja við stöðugleika í framtíðarþróun starfseminnar. Stjórn félagsins hefur þá stefnu að um þriðjungur hagnaðar hvers árs sé að jafnaði greiddur sem arður til hluthafa. Til langs tíma er markmið stjórnar að eiginfjárhlutfall samstæðunnar sé ekki undir 40,0%. Eiginfjárhlutfall félagsins var 66,4% í árslok 2018 samanborið við 41,6% í árslok 2017. Við stýringu á eigin fé er litið til bókfærðs eigin fjár.

Á aðalfundi félagsins þann 2. mars 2018 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa fyrir hönd félagsins allt að 10% nafnverði hlutafjár félagsins, sbr. VIII. kafla laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Kaupgengi hluta skal miða við síðasta skráða gengi á Nasdaq OMX Iceland hf. áður en samningur er gerður. Gildistími heimildarinnar er allt að átján mánuðir. Með samþykkt tillögu þessarar féll úr gildi sams konar heimild sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 3. mars 2017.

Engar breytingar urðu á stefnu um eiginfjárstýringu samstæðunnar á árinu.

Félaginu og dótturfélögum þess ber ekki að fylgja ytri reglum um lágmarks eiginfjárstöðu.

19. Eigið fé, frh.:

(vi) Arður

Enginn arður var greiddur á árunum 2017 og 2018. Stjórn félagsins leggur til að greiddar verði 1.000 millj. kr. út arður til hluthafa á árinu 2019.

20. Hagnaður á hlut

Hagnaður á hlut miðar við hagnað sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu og vegins meðalfjölda virkra hluta á árinu og sýnir hver hagnaðurinn er á hverja krónu hlutafjár. Þynntur hagnaður á hlut miðar við hagnað sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu og vegins meðalfjölda virkra hluta að teknu tilliti til þynningaráhrifa væntra útgefinna hluta vegna kauprétta starfsmanna.

2018 2017
Hagnaður ársins til hluthafa í móðurfélaginu 5.440.470 432.978
Hlutafé í ársbyrjun 458.609 449.869
Áhrif hækkunar hlutafjár 4.922 6.555
Vegið meðaltal útistandandi hluta á árinu 463.531 456.424
Áhrif kaupréttasamninga 3.346 7.223
Vegið meðaltal útistandandi hluta á árinu fyrir þynntan hagnað 466.877 463.647
Hagnaður á hlut 11,74 0,95
Þynntur hagnaður á hlut 11,65 0,93

21. Vaxtaberandi skuldir

Í þessari skýringu eru upplýsingar um samningsbundin ákvæði vaxtaberandi skulda samstæðunnar, sem færðar eru á afskrifuðu kostnaðarverði. Upplýsingar um vaxtaáhættu, gengisáhættu og lausafjáráhættu er að finna í skýringum 24 til 28.

Vaxtaberandi langtímaskuldir greinast þannig: 2018 2017
Vaxtaberandi skuldir við lánastofnanir 881.041 1.576.327
Fjármögnunarleiga 0 7.911
Ógreitt áætlað kaupverð 0 165.113
881.041 1.749.351
Næsta árs afborganir (
124.054) (
112.477)
Vaxtaberandi langtímaskuldir alls 756.987 1.636.874

Vaxtaberandi skuldir í lok ársins greinast þannig eftir gjaldmiðlum:

2018 2018 2017
Lokagjalddagi Meðalvextir Eftirstöðvar Meðalvextir Eftirstöðvar
Skuldir í ISK, óverðtryggð 2030 6,0% 263.628 6,4% 451.175
Skuldir í USD 2030 6,0% 1.535 4,8% 841.519
Skuldir í EUR 2030 3,5% 149.552 3,4% 152.356
Skuldir í SEK 2030 3,4% 241.917 3,3% 256.922
Skuldir í DKK 2021 2,8% 224.409 3,5% 47.379
Vaxtaberandi skuldir alls 881.041 1.749.351

21. Vaxtaberandi skuldir, frh.:

Afborganir af langtímalánum greinast þannig á næstu ár: 2018 2017
Afborganir 2018 - 112.477
Afborganir 2019 124.054 174.453
Afborganir 2020 122.519 178.428
Afborganir 2021 122.519 172.928
Afborganir 2022 60.591 149.506
Afborganir 2023 60.591 149.506
Afborganir síðar 390.767 812.053
Samtals 881.041 1.749.351

Breyting vaxtaberandi skulda á árinu greinist þannig:

Vaxtaberandi skuldir 1. janúar 1.749.351 2.150.368
Ógreitt kaupverð endurflokkað ( 165.113) 0
Ný lántaka 185.785 165.113
Afborganir ( 1.043.870) ( 492.984)
Gengismunur 154.888 ( 73.146)
Vaxtaberandi skuldir 31. desember 881.041 1.749.351

Lánasamningar félagsins innihalda m.a skilmála um fjárhagslegan styrk og uppfyllir félagið alla gildandi skilmála í árslok 2018.

Skuldir félagsins við lánastofnanir eru tryggðar með veðum í viðskiptakröfum, birgðum og eignarhlutum í tilteknum dótturfélögum sbr. skýringar 17.

Fjármögnunarleiga

Fjármögnunarleigugreiðslur greinast þannig:

2018 2017
Lágmarks-
leigugreiðslna
Vextir Núvirði
Lágmarks-
leigugreiðslna
Lágmarks-
leigugreiðslna
Vextir Núvirði
Lágmarks
leigugreiðslna
Innan árs 0 0 0 9.096 1.185 7.911
0 0 0 9.096 1.185 7.911
22. Tekjuskattur
Tekjuskattur í rekstrarreikningi greinist þannig:
2018 2017
Gjaldfærður tekjuskattur í rekstrarreikningi ( 93.610) ( 4.287)
Virkur tekjuskattur greinist þannig: 2018 2017
Hagnaður fyrir tekjuskatt 5.534.080 437.265
Tekjuskattur samkvæmt gildandi skatthlutfalli
Áhrif sölu á Tempo ehf.
20,0%
(
18,4%)
( 1.106.816)
1.019.589
20,0% (
0,0%
87.453)
0
Áhrif gengismunar á kröfu á dótturfélag 0,2% ( 10.434) 0,1% ( 7.627)
Tekjufærð tekjuskattseign
Óskattskyldar tekjur
0,0%
(
0,3%)
0
15.665
(
(
0,8%)
8,3%)
45.644
36.443
Áhrif skatthlutfalla á erlendum skattasvæðum 0,0% ( 2.608) 0,1% ( 3.108)
Annað 0,2% ( 9.006) ( 0,2%) 11.814
Virkur tekjuskattur 1,7% ( 93.610) 1,0% ( 4.287)

22. Tekjuskattur, frh.:

Tekjuskattseign greinist þannig: 2018 2017
Tekjuskattseign 31. desember 130.881 140.803
Tekjuskattsáhrif við innleiðingu á IFRS 15 64.141 0
Tekjuskattseign 1. janúar 195.022 140.803
Tekjuskattur ársins ( 93.610) ( 4.287)
Yfirtekið við kaup á rekstrareiningu 0 ( 5.007)
Áhrif sölu á Tempo ehf. ( 99.144) 0
Ógreiddur tekjuskattur 8.885 0
Þýðingarmunur 32.273 ( 628)
Tekjuskattseign 31. desember 43.426 130.881

Tekjuskattseign greinist þannig í árslok:

Eignir Skuldir Nettó
2018
Rekstrarfjármunir 19.544 0 19.544
Óefnislegar eignir 0 ( 9.688) ( 9.688)
Viðskiptakröfur og aðrar kröfur 8.280 0 8.280
Frestaður skattalegur gengismunur 0 ( 17.633) ( 17.633)
Yfirfæranlegt skattalegt tap 42.923 0 42.923
Tekjuskatteign (-skuldbinding) 70.747 ( 27.321) 43.426
Jöfnun (
27.321)
27.321 0
Tekjuskattseign 31. desember 43.426 0 43.426

Tekjuskattseign greinist þannig í árslok:

2017

Rekstrarfjármunir 37.398 0 37.398
Óefnislegar eignir 1.587 0 1.587
Viðskiptakröfur og aðrar kröfur 4.280 0 4.280
Frestaður skattalegur gengismunur 3.711 ( 8.148) ( 4.437)
Yfirfæranlegt skattalegt tap 92.053 0 92.053
Tekjuskatteign (-skuldbinding) 139.029 ( 8.148) 130.881
Jöfnun (
8.148)
8.148 0
Tekjuskattseign 31. desember 130.881 0 130.881

Yfirfæranlegt skattalegt tap er nýtanlegt á móti skattskyldum hagnaði næstu ára sem hér segir:

2018 2017
Skattalegt tap vegna 2014, nýtanlegt til 2024 203.919 403.754
Skattalegt tap vegna 2015, nýtanlegt til 2025 5.565 51.380
Skattalegt tap vegna 2016, nýtanlegt til 2026 5.132 5.132
Yfirfæranlegt skattalegt tap alls 214.616 460.266

Origo hf. var samskattað með Tempo ehf. en samsköttunin rofnaði við sölu á 55% eignarhlut.

23. Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir

Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast þannig:

Viðskiptaskuldir 1.859.390 1.162.395
Aðrar skammtímaskuldir 1.413.872 1.195.326
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals 3.273.262 2.357.721

Áhættustýring

24. Yfirlit

Eftirfarandi áhættur fylgja fjármálagerningum samstæðunnar:

  • lánsáhætta
  • lausafjáráhætta
  • markaðsáhætta
  • rekstraráhætta

Hér eru veittar upplýsingar um framangreindar áhættur, markmið, stefnu og aðferðir samstæðunnar við að meta og stýra áhættu.

Markmið samstæðunnar með áhættustýringu er að uppgötva og greina áhættu sem hún býr við, setja viðmið um áhættutöku og hafa eftirlit með henni. Áhættustýring og aðferðir eru yfirfarnar reglulega til að endurspegla breytingar á markaðsaðstæðum og starfsemi samstæðunnar. Með þjálfun starfsmanna og starfsreglum stefnir samstæðan að öguðu eftirliti þar sem allir starfsmenn eru meðvitaðir um hlutverk sitt og skyldur.

25. Lánsáhætta

Lánsáhætta er hættan á fjárhagslegu tapi samstæðunnar ef viðskiptamaður eða mótaðili í fjármálagerningi getur ekki staðið við umsamdar skuldbindingar sínar. Lánsáhætta samstæðunnar er einkum vegna viðskiptakrafna og handbærs fjár.

Viðskiptakröfur og aðrar kröfur

Lánsáhætta samstæðunnar ræðst einkum af fjárhagsstöðu og starfsemi einstakra viðskiptamanna. Atvinnugreinar og staðsetning viðskiptamanna hafa minni áhrif á lánsáhættu. Um 16% (2017: 19%) af tekjum samstæðunnar eru vegna sölu á vörum og þjónustu til fimm stærstu viðskiptamanna hennar.

Samstæðan hefur sett útlánareglur þar sem allir nýir viðskiptamenn eru metnir áður en þeim er veittur gjaldfrestur. Greiðslusaga nýrra viðskiptamanna er könnuð og þeim settar hámarksúttektir.

Flestir viðskiptamenn samstæðunnar hafa átt í áralöngum viðskiptum við hana og tapaðar viðskiptakröfur hafa verið óverulegar í hlutfalli af veltu. Við stýringu lánsáhættu vegna viðskiptamanna er einkum horft til aldurs krafna og fjárhagsstöðu einstakra viðskiptamanna. Viðskiptakröfur og aðrar kröfur samstæðunnar eru einkum á fyrirtæki og endurseljendur. Viðskiptamenn sem flokkaðir eru sem áhættusamir eða hafa nýtt útlánahámörk geta ekki átt frekari viðskipti við samstæðuna nema greiða niður skuldir sínar eða fjárhagssvið samstæðunnar samþykki frekari úttektir.

Vörur eru í sumum tilvikum seldar með eignarréttarfyrirvara, þannig að ef kröfur sem stofnast við sölu innheimtast ekki getur samstæðan endurheimt vöruna. Samstæðan krefst að jafnaði ekki veða vegna viðskiptakrafna og annarra krafna.

Samstæðan myndar niðurfærslu vegna áætlaðrar virðisrýrnunar viðskiptakrafna, annarra krafna og fjárfestinga. Niðurfærslan er í meginatriðum sérstök niðurfærsla vegna einstakra viðskiptamanna og almenn niðurfærsla með tilliti til aldurs krafna, sem ekki hefur verið tengd einstökum viðskiptamönnum. Almenn niðurfærslan er ákveðin með tilliti til innheimtusögu sambærilegra krafna og væntri þróun efnahagslífsins. Viðskiptakrafa er endanlega afskrifuð þegar ljóst er að hún muni ekki innheimtast svo sem við gjaldþrot.

Ábyrgðir

Það er stefna samstæðunnar að veita aðeins dótturfélögum ábyrgðir. Í árslok 2017 og 2018 var móðurfélagið ekki í ábyrgðum fyrir dótturfélög sín.

25. Lánsáhætta, frh.:

Mögulegt tap vegna lánsáhættu

Mesta mögulega tap samstæðunnar vegna fjáreigna er bókfært verð þeirra, sem var eftirfarandi í árslok:

Bókfært verð
Skýring 2018 2017
Verðbréfaeign og aðrar langtímakröfur 13.023 13.014
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 13 1.802.366 1.950.848
Handbært fé 14 3.175.454 296.743
4.990.843 2.260.605

Mesta mögulega tap samstæðunnar á viðskiptakröfum skiptist með eftirfarandi hætti eftir landsvæðum:

Ísland 1.588.025 1.540.472
Önnur lönd 91.929 218.444
1.679.954 1.758.916

Í árslok námu viðskiptakröfur á fimm stærstu viðskiptamenn samstæðunnar 362 millj. kr. (2017: 420 millj. kr.).

Virðisrýrnun viðskiptakrafna

Aldur viðskiptakrafna var eftirfarandi í árslok:

Nafnverð kröfu Niðurfærsla
2018 2017 2018 2017
Ógjaldfallið 1.491.642 1.582.818 7.458 2.194
Gjaldfallið innan 30 daga 189.226 127.026 13.960 5.371
Gjaldfallið fyrir 31 - 120 dögum 22.034 58.717 6.491 5.845
Gjaldfallið fyrir meira en 120 dögum 18.452 11.755 13.491 7.990
1.721.354 1.780.316 41.400 21.400
Breytingar á niðurfærslu viðskiptakrafna á árinu greinast þannig: 2018 2017
Staða 1. janúar 21.400 54.800
Breyting á árinu 20.000 ( 33.400)
Staða 31. desember 41.400 21.400

Stjórnendur meta ekki tapsáhættu í öðrum skammtímakröfum.

26. Lausafjáráhætta

Lausafjáráhætta er hættan á því að samstæðan geti ekki staðið við fjárhagsskuldbindingar sínar eftir því sem þær gjaldfalla. Markmið samstæðunnar er að stýra lausafé þannig að tryggt sé að hún hafi alltaf nægt laust fé til að mæta skuldbindingum sínum eftir því sem þær gjaldfalla og forðast þannig að skaða orðspor samstæðunnar.

Samstæðan hefur samið um yfirdráttarheimildir og hefur aðgang að lánalínum hjá tveimur íslenskum og einum erlendum viðskiptabanka. Ónýttar lánsheimildirnar eru allt að 400 millj. kr. í árslok 2018 (2017: 450 millj. kr.).

Samningsbundnar afborganir af fjárskuldum, að meðtöldum áætluðum vaxtagreiðslum, greinast þannig:

2018
Bókfært Umsamið Innan
verð sjóðstreymi 1 árs 1 - 2 ár 2 - 3 ár 3 - 5 ár
Fjárskuldir sem ekki
eru afleiður:
Vaxtab. skuldir
Viðskiptaskuldir
og aðrar
881.041 1.180.368 156.548 212.868 203.217 607.735
skammt. skuldir 3.273.262 3.273.262 3.273.262
4.154.303 4.453.630 3.429.810 212.868 203.217 607.735
2017
Fjárskuldir sem ekki
eru afleiður:
Vaxtab. skuldir
Viðskiptaskuldir
og aðrar
1.749.351 2.355.350 208.740 466.799 437.980 1.241.831
skammt. skuldir 2.357.721 2.357.721 2.357.721
4.107.072 4.713.071 2.566.461 466.799 437.980 1.241.831

27. Markaðsáhætta

Markaðsáhætta er hættan á því að breytingar í markaðsverði erlendra gjaldmiðla og vaxta hafi áhrif á afkomu samstæðunnar eða virði fjárfestinga hennar í fjármálagerningum. Markmið með stýringu markaðsáhættu er að stýra og takmarka áhættu við skilgreind mörk, jafnframt því sem ábati er hámarkaður.

Gjaldmiðlagengisáhætta vegna fjármálagerninga

Samstæðan býr við gengisáhættu vegna innkaupa og lántöku í öðrum gjaldmiðlum en starfrækslugjaldmiðli einstakra samstæðufélaga. Starfrækslugjaldmiðlar einstakra samstæðufélaga eru íslenskar (ISK) og sænskar krónur (SEK). Þeir gjaldmiðlar sem einkum skapa gengisáhættu eru evrur (EUR), dollarar, danskar og sænskar krónur.

Samstæðan býr við gengisáhættu vegna viðskipta innan hennar. Gengisáhættan myndast þegar félög innan samstæðunnar eiga í viðskiptum sín á milli þar sem starfrækslugjaldmiðill þeirra er ekki sá sami. Starfrækslugjaldmiðill móðurfélagsins er íslensk króna og er samstæðureikningurinn gerður í íslenskum krónum. Móðurfélagið á kröfu á dótturfélög sem hafa annan starfrækslugjaldmiðil en móðurfélagið og býr samstæðan við gengisáhættu vegna þess og eru kröfunar sýndar í töflunni.

27. Markaðsáhætta, frh.:

Gjaldmiðlagengisáhætta vegna fjármálagerninga, frh:

Áhætta samstæðunnar vegna erlendra gjaldmiðla var sem hér segir í nafnverðfjárhæðum:

2018 EUR DKK SEK USD
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 30.644 32.726 709 0
Handbært fé 4.181 163 0 179.293
Vaxtaberandi skuldir ( 149.552) ( 224.409) ( 241.917) ( 1.535)
Viðskipta- og aðrar skammtímaskuldir ( 191.585) ( 643.346) ( 11.468) ( 270.823)
Áhætta í efnahagsreikningi samstæðunnar ( 306.312) ( 834.866) ( 252.676) ( 93.065)
Viðskiptastaða innan samstæðu 0 1.932 267.055 0
Gengisáhætta samstæðunnar ( 306.312) ( 832.934) 14.379 ( 93.065)

2017

Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 32.278 124.593 23.645 8.786
Handbært fé 3.318 13.825 0 1.520
Vaxtaberandi skuldir ( 152.356) ( 47.379) ( 256.922) ( 841.519)
Framvirkur samningur 0 0 0 ( 1.048.100)
Viðskipta- og aðrar skammtímaskuldir ( 216.726) ( 310.574) ( 414) ( 23.341)
Áhætta í efnahagsreikningi samstæðunnar ( 333.486) ( 219.535) ( 233.691) ( 1.902.654)
Viðskiptastaða innan samstæðu 0 4.238 170.595 947.905
Gengisáhætta samstæðunnar ( 333.486) ( 215.297) ( 63.096) ( 954.749)

Gengi helstu gjaldmiðla á árinu var sem hér segir:

Meðalgengi Árslokagengi
2018 2017 2018 2017
EUR 127,73 120,54 132,86 124,70
DKK 17,03 16,85 17,89 16,85
SEK 12,44 12,53 13,02 12,75
USD 106,24 106,69 123,60 104,81

Næmigreining

10% styrking íslenskrar krónu gagnvart eftirtöldum gjaldmiðlum 31. desember mundi hafa hækkað (lækkað) afkomu (hreinar fjármunatekjur) samstæðunnar fyrir tekjuskatt um eftirfarandi fjárhæðir. Greiningin byggir á að allar aðrar breytur haldist óbreyttar. Greiningin var unnin með sama hætti og árið 2017.

2018 2017
EUR 30.631 33.349
DKK 83.293 21.530
SEK
(
1.438) 6.310
USD 9.307 95.475

10% veiking íslenskrar krónu gagnvart framangreindum gjaldmiðlum hefði haft sömu áhrif en í gagnstæða átt, að því gefnu að allar aðrar breytur hefðu haldist óbreyttar.

27. Markaðsáhætta, frh.:

Gjaldmiðlagengisáhætta vegna fjárfestingar í dóttur- og hlutdeildarfélögum

Félagið býr félagið við gengisáhættu vegna fjárfestinga í dótturfélögum og hlutdeildarfélögum þar sem starfrækslugjaldmiðillinn er annar en hjá móðurfélaginu. Gengisáhættan er færð beint á eigið fé sem þýðingarmunur vegna starfsemi dótturfélaga og hlutdeildarfélaga. Einkum er um að ræða fjárfestingu í Tempo ehf. Þýðingarmunur færður beint á eigið fé var neikvæður um 20,4 millj. kr. en hann var jákvæður um 0,1 millj. kr. á árinu 2017. Fjárfesting í dóttur- og hlutdeildarfélögum greinist þannig:

2018 2017
Eignarhlutur í Tempo ehf. - fjárfesting í USD
Eignarhlutur í Applicon í Svíþjóð - fjárfesting í SEK
2.697.564
174.967
(
119.608)
148.193

Næmigreining

10% veiking íslenskrar krónu gagnvart eftirtöldum gjaldmiðlum 31. desember mundi hafa hækkað (lækkað) þýðingarmun (heildarhagnað) samstæðunnar fyrir tekjuskatt um eftirfarandi fjárhæðir. Greiningin byggir á að allar aðrar breytur haldist óbreyttar. Greiningin var unnin með sama hætti og árið 2017.

2018 2017
USD 269.756 ( 11.961)
SEK 17.497 14.819

10% styrking íslenskrar krónu gagnvart framangreindum gjaldmiðlum hefði haft sömu áhrif en í gagnstæða átt, að því gefnu að allar aðrar breytur hefðu haldist óbreyttar.

Vaxtaáhætta

Lántökur samstæðunnar eru allar með breytilegum vöxtum og ver samstæðan sig því ekki sérstaklega fyrir vaxtaáhættu. Vaxtaáhætta samstæðunnar snýr einvörðungu að sjóðsflæðisáhættu.

Vaxtaberandi fjármálagerningar samstæðunnar í árslok greinast þannig:

Bókfært verð
2018 2017
Fjáreignir með breytilega vexti 3.175.454 296.743
Fjárskuldir með breytilega vexti ( 881.041) ( 1.749.351)
2.294.413 ( 1.452.608)

Breyting á vöxtum á uppgjörsdegi um 100 punkta hefði hækkað afkomu um 23 millj. kr. (2017: lækkað um 15 millj. kr.) fyrir tekjuskatt. Þessi greining byggir á því að allar aðrar breytur, sérstaklega gengi erlendra gjaldmiðla, haldist óbreyttar. Greiningin er unnin með sama hætti og árið 2017. Samstæðan er hvorki með fjáreignir né fjárskuldir á föstum vöxtum.

Önnur markaðsverðsáhætta

Önnur markaðsverðsáhætta er takmörkuð, þar sem fjárfestingar í skuldabréfum og eignarhlutum í félögum er óverulegur hluti af starfsemi samstæðunnar.

27. Markaðsáhætta, frh.:

Gangvirði

Eftirfarandi tafla sýnir samanburð á gangvirði og bókfærðu virði fjáreigna og fjárskulda. Ekki eru birtar upplýsingar um gangvirði ef það er jafnt bókfærðu verði.

2018
Bókfært
verð Gangvirði verð Gangvirði
( 881.041) ( 892.618) ( 1.741.440) ( 1.767.509)
0 0 ( 7.911) ( 7.926)
( 881.041) ( 892.618) ( 1.749.351) ( 1.775.435)
Vaxtaberandi skuldir Bókfært 2017

Engar fjáreignir og fjárskuldir voru bókfærðar á gangvirði í árslok 2018 og 2017. Fjallað er um forsendur við ákvörðun gangvirðis í skýringu 3.

Mat á gangvirði

Þar sem við á við núvirðingu vænts sjóðstreymis eru notaðir millibankavextir í árslok að viðbættu 1,6 - 3,8% vaxtaálagi (2017: 1,6 - 3,8%) vaxtaálagi. Gangvirði fjárskulda fellur undir stig 3 í stigveldi gangvirðis.

28. Rekstraráhætta

Rekstraráhætta er hættan á beinu eða óbeinu tapi sem getur orðið vegna fjölda þátta í starfsemi samstæðunnar, vinnu starfsmanna hennar, tækni og skipulagi, og ytri þáttum öðrum en láns-, markaðs- og lausafjáráhættu, svo sem vegna breytinga á lögum og almennra viðhorfa til stjórnunarhátta fyrirtækja. Rekstraráhætta myndast við alla starfsemi samstæðunnar.

Það er stefna samstæðunnar að stýra rekstraráhættu með hagkvæmum hætti til að forðast fjárhagslegt tap og til að vernda orðstír hennar, jafnframt því að starfsreglur takmarki ekki frumkvæði og sköpunargáfu starfsmanna.

Til að draga úr rekstraráhættu er meðal annars komið á viðeigandi aðskilnaði starfa, haft eftirlit með viðskiptum og fylgni við lög, unnið reglulegt mat á áhættu, starfsmenn þjálfaðir, verkferlar skipulagðir og skráðir og keyptar tryggingar þegar við á.

29. Rekstrarleiga

Leigugreiðslur sem leigutaki

Rekstrarleigugreiðslur greinast þannig: 2018 2017
Innan árs 315.283 286.980
Á ári 1 til 5 1.028.990 990.456
Eftir 5 ár 429.360 624.744
Samtals 1.773.633 1.902.180

Félagið hefur gert rekstrarleigusamninga um fasteignir, áhöld og tæki. Skuldbindingar vegna þessara samninga, sem ekki eru færðar í efnahagsreikning, nema allt að 1.731 millj. kr. (2017: 1.902 millj. kr.) á átta árum. Gjaldfærðar leigugreiðslur á árinu 2018 námu 294 millj. kr. (2017: 285 millj. kr.).

30. Tengdir aðilar

Skilgreining tengdra aðila

Hluthafar sem hafa veruleg áhrif á starfsemi samstæðunnar, stjórnarmenn og stjórnendur og nánir fjölskyldumeðlimir þeirra og félög sem þeir ráða yfir teljast til tengdra aðila.

Laun og hlunnindi til stjórnar og stjórnenda félagsins vegna starfa fyrir félög í samstæðunni og eignarhlutir í félaginu greinast þannig:

Fyrir árið 2018: Laun og Mótframlag Hlutafjár
hlunnindi í lífeyrissjóð eign
Ívar Kristjánsson, stjórnarformaður 8.100 1.035 2.935
Hildur Dungal, varaformaður 3.245 348 0
Loftur Bjarni Gíslason, stjórnarmaður 3.310 357 42
Guðmundur Jóh. Jónsson, stjórnarmaður 3.430 437 657
Emilía Þórðardóttir, stjórnarmaður 3.080 332 0
Hjalti Þórarinsson, varamaður 4.690 511 0
Finnur Oddsson forstjóri 48.051 9.475 1.501
Lykilstjórnendur (7)* 169.043 20.573 1.144

* Um er að ræða sex lykilstjórnendur hjá Origo hf. auk framkvæmdastjóra hjá Applicon AB eða alls sjö lykilstjórnendur.

Fyrir árið 2017:

Ívar Kristjánsson, stjórnarformaður 8.090 907 2.935
Hildur Dungal, varaformaður 2.745 255 0
Loftur Bjarni Gíslason, stjórnarmaður 2.690 250 42
Guðmundur Jóh. Jónsson, stjórnarmaður 2.705 306 657
Emilía Þórðardóttir, stjórnarmaður 2.530 234 0
Hjalti Þórarinsson, varamaður 2.185 207 0
Finnur Oddsson forstjóri 45.696 8.087 1.466
Lykilstjórnendur (9)* 217.678 26.491 1.837

* Um er að ræða fimm lykilstjórnendur hjá Origo hf. auk framkvæmdastjóra hjá Applicon AB, Applicon ehf., Tempo ehf. og TM Software ehf. eða alls níu lykilstjórnendur.

Með eignarhlutum að framan eru taldir eignarhlutir maka og ófjárráða barna ásamt eignarhlutum í eigu félaga sem stjórnarmenn og stjórnendurnir ráða.

Önnur viðskipti við tengda aðila eru óverulegur þáttur í starfsemi samstæðunnar. Verðlagning í slíkum viðskiptum er sambærileg og í öðrum viðskiptum hennar.

31. Dótturfélög

Dótturfélög Origo hf. eru eftirtalin:

Eignarhlutur
Land 2018 2017
100% 100%
100% 100%
Ísland - 100%
Kanada - 100%
Svíþjóð
Svíþjóð

Þann 19. nóvember seldi félagið 55% eignarhlut í Tempo ehf. til Diversis Capital, fjárfestingafélags í Los Angeles sem sérhæfir sig í fjárfestingum í hugbúnaðar og tæknifyrirtækjum. Sjá einnig skýringu 6.

32. Þóknun til endurskoðenda

Þóknun til endurskoðenda samstæðunnar á árinu 2018 nam 34 millj. kr. (2017: 29 millj. kr.) þar af 15 millj. kr. (2017: 15 millj. kr.) vegna endurskoðunar á ársreikningi. Þóknun til KPMG á Íslandi nam 33 millj. kr. (2017: 28 millj. kr.) og 1 millj. kr. (2017: 1 millj. kr.) til KPMG í Svíþjóð.

33. Kennitölur

Helstu kennitölur samstæðunnar:

Rekstur: 2018 2017
Veltuhraði vörubirgða í árslok - vörunotkun/vörubirgðir í árslok
Söludagar í viðskiptakröfum - viðskiptakröfur í lok tímabils/seldar vörur
4,8 5,7
og þjónusta 22 29
Laun og launatengd gjöld/seldar vörur og þjónusta 41,1% 39,2%
Rekstrarkostnaður/seldar vörur og þjónusta 23,4% 22,9%
Hagnaður eftir tekjuskatt/seldar vörur og þjónusta 34,6% 2,9%
Efnahagur: 31.12.2018 31.12.2017
Veltufjárhlutfall - veltufjármunir/skammtímaskuldir 1,95 1,30
Eiginfjárhlutfall - eigið fé/heildarfjármagn 66,1% 41,6%

34. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir

Reikningsskilaaðferðum sem er lýst hér á eftir hefur verið beitt með samræmdum hætti fyrir öll tímabil sem koma fram í ársreikningnum af öllum félögum í samstæðunni nema fyrir utan það sem kemur fram í skýringu 5, breytingar á reikningsskilaaðferðum.

Til að auka upplýsingargildi ársreikningsins eru skýringar við hann birtar á grundvelli þess hversu viðeigandi og mikilvægar þær eru fyrir lesandann. Það þýðir að upplýsingar sem metnar eru hvorki mikilvægar né viðeigandi fyrir notanda reikningsskilanna eru ekki birtar í skýringum.

a. Grundvöllur samstæðu

(i) Dótturfélög

Dótturfélög eru þau félög þar sem samstæðan fer með yfirráð. Yfirráð grundvallast af því hvort fjárfestir hefur ákvörðunarvald yfir fjárfestingunni, ber áhættu eða hefur réttinn til að njóta breytilegs ávinnings vegna þátttöku í fjárfestingunni og getur með ákvörðunarvaldi haft áhrif á ávinning sinn af fjárfestingunni. Reikningsskil dótturfélaga eru innifalin í samstæðuársreikningnum frá því að yfirráð nást og þar til þeim lýkur. Reikningsskilaaðferðum dótturfélaga hefur verið breytt þegar nauðsynlegt hefur verið aðlaga þær aðferðum samstæðunnar.

(ii) Viðskipti felld út við gerð samstæðuársreiknings

Viðskipti milli samstæðufélaga, stöður milli þeirra og óinnleystar tekjur og gjöld sem myndast hafa í viðskiptum milli félaganna eru felld út við gerð samstæðuársreikningsins.

34. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

a. Grundvöllur samstæðu, frh.:

(iii) Sameiningar fyrirtækja

Kaupaðferðinni er beitt við sameiningar þegar yfirráð flytjast til samstæðunnar. Það sem innt er af hendi við yfirtökuna er almennt metið á gangvirði sem og þær aðgreinanlegu eignir og skuldir sem yfirteknar eru.

Kaupaðferðinni er beitt við sameiningar þegar yfirráð flytjast til samstæðunnar. Það sem innt er af hendi við yfirtökuna er almennt metið á gangvirði sem og þær aðgreinanlegu eignir og skuldir sem yfirteknar eru.

Þegar félagið er yfirtökuaðili við sameiningar fyrirtækja myndast viðskiptavild og aðrar óefnislegar eignir. Þær fjárhæðir sem úthlutað er á yfirteknar eignir og skuldir byggjast á forsendum og mati á gangvirði þessara eigna og skulda. Við matið ráðfæra stjórnendur sig við óháða og viðurkennda matsmenn eftir því sem við á. Breytingar á forsendum og mati gætu haft í för með sér breytingar á virði sem útdeilt var á tilteknar eignir og mat á nýtingartíma þeirra sem gæti haft áhrif á fjárhæðir eða tímasetningar gjaldfærslna í rekstrarreikningi samstæðunnar, svo afskriftir óefnislegra eigna

Skilyrtar viðbótargreiðslur eru færðar á gangvirði á kaupdegi. Flokkist skilyrt viðbótargreiðsla sem eigið fé er hún ekki endurmetin og fer uppgjör hennar fram innan eigin fjár. Annars eru breytingar á gangvirði skilyrtrar viðbótargreiðslu færðar í rekstrarreikning samstæðunnar.

(iii) Hlutdeildarfélög

Hlutdeildarfélög eru þau félög þar sem félagið hefur veruleg áhrif á en ekki yfirráð yfir rekstrar- og fjárhagsstefnu félags. Veruleg áhrif eru alla jafna til staðar þegar félagið ræður yfir 20-50% atkvæðisréttar í öðru félagi.

Hlutdeildarfélög eru færð í ársreikning félagsins með hlutdeildaraðferð og er eignarhluturinn upphaflega færður á kostnaðarverði að viðbættum viðskiptakostnaði.

Ársreikningur félagsins inniheldur hlutdeild í hagnaði eða tapi og annarri heildarafkomu hlutdeildarfélaga, eftir að reikningsskilaaðferðir hlutdeildarfélagsins hafa verið samræmdar reikningsskilaaðferðum félagsins. Hlutdeildaraðferðinni er beitt frá því að veruleg áhrif nást og þar til þeim lýkur.

Verði hlutdeild félagsins í tapi meiri en bókfært verð hlutdeildarfélagsins, að meðtöldum langtímafjárfestingum, er bókfærða verðið fært í núll og færslu frekara taps er hætt nema félagið hafi gengist í ábyrgðir fyrir þessi félög eða innt af hendi greiðslur vegna þeirra.

b. Erlendir gjaldmiðlar

(i) Viðskipti í erlendum gjaldmiðlum

Viðskipti í erlendum gjaldmiðlum eru færð í starfrækslugjaldmiðla einstakra samstæðufélaga á gengi viðskiptadags. Peningalegar eignir og skuldir í erlendum gjaldmiðlum eru færðar miðað við gengi uppgjörsdags. Aðrar eignir og skuldir sem færðar eru á gangvirði í erlendri mynt eru færðar á gengi þess dags er gangvirði var ákveðið. Gengismunur vegna viðskipta í erlendum gjaldmiðlum er færður í rekstrarreikning.

(ii) Erlend dótturfélög

Eignir og skuldir erlendrar starfsemi, ásamt viðskiptavild, eru umreiknaðar í íslenskar krónur miðað við gengi uppgjörsdags. Tekjur og gjöld erlendrar starfsemi eru umreiknuð í íslenskar krónur á meðalgengi ársins. Gengismunur sem myndast við yfirfærslu í íslenskar krónur er færður á sérstakan lið í yfirliti um heildarafkomu, að frádreginni hlutdeild minnihluta í gengismuninum. Þegar erlend starfsemi er seld, að hluta til eða öllu leyti, er tengdur gengismunur fluttur í rekstrarreikning.

34. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

c. Fjármálagerningar

(i) Fjármálagerningar aðrir en afleiður

Til fjármálagerninga sem ekki eru afleiðusamningar teljast viðskiptakröfur og aðrar kröfur, handbært fé, lántökur, viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir.

Fjármálagerningar sem ekki eru afleiðusamningar eru færðir á gangvirði við upphaflega skráningu í bókhald. Þegar fjármálagerningar eru ekki metnir á gangvirði gegnum rekstrarreikning, er allur beinn viðskiptakostnaður færður til hækkunar á virði þeirra við upphaflega skráningu í bókhald. Eftir upphaflega skráningu eru fjármálagerningar sem ekki eru afleiðusamningar færðir með þeim hætti sem greinir hér á eftir.

Fjáreignir færðar á afskrifuðu kostnaðarverði

Fjáreignir á afskrifuðu kostnaðarverði eru fjáreignir með föstum eða ákvarðanlegum greiðslum sem ekki eru skráðar á virkum markaði. Slíkar eignir eru í upphafi færðar á gangvirði að viðbættum öllum tengdum viðskiptakostnaði. Eftir upphaflega skráningu eru lán og kröfur færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti, að frádreginni virðisrýrnun þegar við á. Lán og kröfur samanstanda af handbæru fé, verðbréfaeign, samningum, viðskiptakröfum og öðrum kröfum.

c. Fjármálagerningar, frh.:

Handbært fé

Til handbærs fjár teljast sjóður og óbundnar bankainnstæður.

Aðrar fjárskuldir

Aðrar fjárskuldir eru færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti.

Í skýringu 34 (m) er gerð grein fyrir reikningsskilaaðferðum vegna fjármunatekna og fjármagnsgjalda.

(ii) Hlutafé

Hlutafé er flokkað sem eigið fé. Beinn kostnaður vegna útgáfu hlutafjár er færður til lækkunar á eigin fé, að frádregnum skattáhrifum.

Kaup á eigin hlutum

Þegar samstæðan kaupir eigin hluti er kaupverðið, að meðtöldum beinum kostnaði, fært til lækkunar á eigin fé. Þegar eigin hlutir eru seldir er eigið fé hækkað.

d. Rekstrarfjármunir

(i) Færsla og mat

Rekstrarfjármunir eru færðir til eignar á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun. Kostnaðarverðið innifelur beinan kostnað sem fellur til við kaupin.

Þegar rekstrarfjármunir eru samsettir úr einingum með mislangan nýtingartíma eru einingarnar aðgreindar og afskrifaðar miðað við nýtingartímann.

Hagnaður af sölu rekstrarfjármuna, sem er mismunur á söluandvirði þeirra og bókfærðu verði, er færður í rekstrarreikning meðal annarra tekna, en tap af sölu meðal annars rekstrarkostnaðar.

(ii) Kostnaður sem fellur til síðar

Kostnaður við að endurnýja einstaka hluta rekstrarfjármuna er eignfærður þegar líklegt er talið að ávinningur sem felst í eigninni muni renna til samstæðunnar og hægt er að meta kostnaðinn á áreiðanlegan hátt. Bókfært verð hlutarins sem er endurnýjaður er gjaldfært. Allur annar kostnaður er gjaldfærður í rekstrarreikningi þegar til hans er stofnað.

34. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

(iii) Afskriftir

Afskriftir eru reiknaðar af afskrifanlegri fjárhæð, sem er kostnaðarverð eða endurmetið kostnaðarverð að frádregnu niðurlagsverði. Afskriftir eru reiknaðar línulega miðað við áætlaðan nýtingartíma einstakra hluta rekstrarfjármuna. Leigðar eignir eru afskrifaðar á þeim tíma sem er styttri, leigutími eða nýtingartíma, nema að ljóst sé að samstæðan muni eignast leigumun í lok leigutíma. Áætlaður nýtingartími greinist þannig:

Fasteignir 75 ár
Áhöld, tæki og innréttingar 4- 7 ár

Afskriftaaðferðir, nýtingartími og niðurlagsverð eru endurmetin á uppgjörsdegi og breytt ef við á.

e. Óefnislegar eignir

(i) Viðskiptavild

Viðskiptavild myndast til við kaup á dótturfélögum.

Viðskiptavild er mismunurinn á kostnaði við yfirtökuna og gangvirði yfirtekinna eigna, skulda og óvissra skulda. Þegar neikvæð viðskiptavild myndast er hún tekjufærð strax í rekstrarreikningi.

(ii) Síðara mat

Viðskiptavild er færð á kostnaðarverði að frádreginni uppsafnaðri virðisrýrnun.

e. Óefnislegar eignir

(iii) Hugbúnaður

Hugbúnaður er færður á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum línulegum afskriftum og virðisrýrnun. Hugbúnaður er afskrifaður á 2 til 10 árum.

Afskriftaaðferðir og nýtingartími eru endurmetin á uppgjörsdegi og breytt ef við á.

f. Leigusamningar

Leigusamningar, sem eru efnislega þannig að nánast öll áhætta og ávinningur sem fylgja eignarhaldi á leigueignum færist til samstæðunnar, eru flokkaðir sem fjármögnunarleigusamningar. Við upphaflega skráningu eru leigueignirnar færðar á hvoru sem lægra reynist af gangvirði eða núvirði lámarksleigugreiðslna. Á síðari uppgjörsdögum eru eignirnar færðar samkvæmt þeirri reikningsskilaaðferð sem gildir um viðkomandi eignir.

Aðrir leigusamningar eru rekstrarleigusamningar og eru hinar leigðu eignir ekki færðar til eignar.

g. Birgðir

Birgðir eru metnar á kostnaðarverði eða hreinu söluvirði, hvoru sem lægra reynist. Kostnaðarverð birgða byggir á fyrst inn - fyrst út reglunni og innifelur kostnað sem fellur til við að afla birgðanna og koma þeim á þann stað og í það ástand sem þær eru í á uppgjörsdegi. Hreint söluvirði er áætlað söluverð í venjulegum viðskiptum að frádregnum áætluðum kostnaði við að selja vöru.

h. Virðisrýrnun

Fjáreignir

Á hverjum uppgjörsdegi er kannað hvort til staðar sé hlutlæg vísbending um virðisrýrnun fjáreigna, sem ekki eru færðar á gangvirði. Fjáreign hefur rýrnað í virði ef hlutlægar vísbendingar eru um að einn eða fleiri atburðir sem hafa orðið benda til þess að vænt framtíðarsjóðstreymi eignarinnar sé lægra en áður var talið.

Virðisrýrnun fjáreigna sem færðar eru á afskrifuðu kostnaðarverði er mismunurinn á bókfærðu verði þeirra annars vegar og núvirtu væntu framtíðarsjóðstreymi, miðað við upphaflega virka vexti, hins vegar. Virðisrýrnun fjáreigna til sölu er ákvarðað með hliðsjón af gangvirði þeirra á hverjum tíma. Einstakar mikilvægar fjáreignir eru prófaðar sérstaklega með tilliti til virðisrýrnunar. Aðrar fjáreignir eru flokkaðar saman eftir lánsáhættueinkennum og hver flokkur metinn sérstaklega með tilliti til virðisrýrnunar.

34. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

Virðisrýrnun er gjaldfærð í rekstrarreikningi.

Virðisrýrnun er bakfærð ef hægt er að tengja bakfærsluna á hlutlægan hátt atburði sem átti sér stað eftir að virðisrýrnunin var færð. Virðisrýrnun fjárfestinga til gjalddaga er bakfærð í rekstrarreikningi.

Aðrar eignir

Bókfært verð annarra eigna samstæðunnar, að undanskildum birgðum og tekjuskattseign, er yfirfarið á hverjum uppgjörsdegi til að meta hvort vísbendingar séu um virðisrýrnun þeirra. Sé einhver slík vísbending til staðar er endurheimtanleg fjárhæð eignarinnar metin. Virðisrýrnunarpróf eru gerð að minnsta kosti árlega á viðskiptavild.

Endurheimtanleg fjárhæð eignar eða fjárskapandi einingar er hreint gangvirði þeirra eða nýtingarvirði, hvort sem hærra reynist. Nýtingarvirði er áætlað framtíðarsjóðstreymi, sem er núvirt með vöxtum fyrir skatta, þar sem vextirnir endurspegla mat markaðarins á tímavirði peninga hverju sinni og þá áhættu sem fylgir eigninni.

Virðisrýrnun er gjaldfærð þegar bókfært verð eignar eða fjárskapandi einingar er hærra en endurheimtanleg fjárhæð hennar. Fjárskapandi eining er minnsti aðgreinanlegi hópur eigna sem myndar sjóðstreymi sem er að mestu leyti óháð öðrum eignum eða hópum eigna. Virðisrýrnun fjárskapandi eininga er fyrst færð til lækkunar á tilheyrandi viðskiptavild, en síðan til hlutfallslegrar lækkunar á bókfærðu verði annarra eigna sem tilheyra einingunni. Virðisrýrnun er gjaldfærð í rekstrarreikningi.

h. Virðisrýrnun, frh.:

Virðisrýrnun viðskiptavildar er ekki bakfærð. Virðisrýrnun fyrri tímabila vegna annarra eigna er metin á hverjum uppgjörsdegi til að kanna hvort vísbendingar séu um að rýrnunin hafi minnkað eða horfið. Virðisrýrnun er bakfærð ef breyting hefur orðið á mati sem notað var við útreikning á endurheimtanlegri fjárhæð. Virðisrýrnun er einungis bakfærð að því marki að bókfært verð eignar sé ekki umfram það sem verið hefði ef engin virðisrýrnun hefði verið færð.

i. Hlunnindi starfsmanna

(i) Framlög í iðgjaldatengda lífeyrissjóði

Samstæðan greiðir föst iðgjöld vegna starfsmanna sinna til sjálfstæðra iðgjaldatengdra lífeyrissjóða. Samstæðan ber enga ábyrgð á skuldbindingum sjóðanna. Iðgjöldin eru gjaldfærð í rekstrarreikning meðal launa og launatendra gjalda eftir því sem þau falla til.

j. Skuldbindingar

Skuldbinding er færð þegar samstæðunni ber lagaleg eða ætluð skylda vegna liðinna atburða og líklegt er að kostnaður, sem hægt er að meta með áreiðanlegum hætti, lendi á henni við að gera upp skuldbindinguna. Skuldbindingar eru metnar með því að núvirða áætlað framtíðarsjóðstreymi með vöxtum fyrir skatta sem sýna núverandi markaðsmat tímavirðis peninga og áhættuna sem tengist skuldbindingunni.

(i) Ábyrgðir

Skuldbinding vegna ábyrgða er færð þegar vara eða þjónusta er seld. Mat á skuldbindingunni er byggð á fyrri reynslu vegna ábyrgða með því að vega saman mögulegar útkomur og líkur þeim tengdar.

k. Tekjur

(i) Seldar vörur og hugbúnaður

Tekjur af sölu á vörum og hugbúnaði í venjulegri starfsemi eru metnar á gangvirði greiðslunnar sem er móttekin eða er innheimtanleg, að frádregnum afsláttum og endurgreiðslum. Tekjur eru færðar í rekstrarreikning þegar félagið hefur uppfyllt samningsskyldu sína sem er yfirleit við afhendingu, líklegt er að endurgjaldið verði innheimt og unnt er að meta kostnað vegna sölunnar og möguleg skil á vörum á áreiðanlegan hátt. Greiðslufrestur er almennt 30 dagar nema staðgreiðslusölu.

34. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

(ii) Seld þjónusta

Tekjur af veittri þjónustu eru færðar í rekstrarreikning þegar þjónusta er innt af hendi og í hlutfalli við stöðu verks á uppgjörsdegi. Staða verks er metin með hliðsjón af vinnu sem lokið er. Greiðslufrestur er almennt 30 dagar.

(iii) Rekstrarleigutekjur

Leigutekjur eru færðar línulega í rekstrarreikning á leigutímanum.

l. Leigugreiðslur

(i) Rekstrarleigugjöld

Greiðslur vegna rekstrarleigusamninga eru gjaldfærðar línulega í rekstrarreikning á leigutímabilinu.

(ii) Fjármögnunarleigugjöld

Lágmarksleigugreiðslum vegna fjármögnunarleigusamninga er skipt í fjármagnskostnað og lækkun leiguskuldar. Vaxtagjöldum er dreift á leigutímann miðað við virka vexti.

m. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld

Fjármunatekjur samanstanda af vaxtatekjum af fjáreignum, arðstekjum og gengishagnaði af erlendum gjaldmiðlum. Vaxtatekjur eru færðar í rekstrarreikning eftir því sem þær falla til miðað við virka vexti. Arðstekjur eru færðar í rekstrarreikning á þeim degi sem arðsúthlutun er samþykkt.

Fjármagnsgjöld samanstanda af vaxtakostnaði af lántökum, bakfærslu núvirðingar, breytingum á gangvirði fjáreigna þar sem gangvirðisbreyting er færð í rekstrarreikning og gengistapi af erlendum gjaldmiðlum. Hagnaði og tapi vegna gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla er jafnað saman.

n. Tekjuskattur

Gjaldfærður tekjuskattur samanstendur af tekjuskatti til greiðslu og frestuðum tekjuskatti. Tekjuskattur er færður í rekstrarreikning nema hann varði liði sem eru færðir beint á eigið fé eða í yfirlit um heildarafkomu, en þá er tekjuskatturinn færður á þessa liði.

Tekjuskattur til greiðslu er tekjuskattur sem áætlað er að komi til greiðslu á næsta ári vegna skattskylds hagnaðar ársins, miðað við gildandi skatthlutfall á uppgjörsdegi, auk leiðréttinga á tekjuskatti til greiðslu vegna fyrri ára.

Frestaður tekjuskattur er færður með notkun efnahagsreikningsaðferðarinnar vegna tímabundinna mismuna á bókfærðu verði eigna og skulda í ársreikninginum annars vegar og skattverði þeirra hins vegar. Frestaður tekjuskattur er ekki færður vegna fjárfestinga í dótturfélögum. Tekjuskattsskuldbinding er ekki færð vegna viðskiptavildar sem ekki er frádráttarbær skattalega. Fjárhæð frestaðs tekjuskatts er byggð á áætlaðri innlausn eða uppgjöri bókfærðs verðs eigna og skulda með því að beita gildandi skatthlutfalli á uppgjörsdegi.

Tekjuskattseignum og tekjuskattsskuldbindingum er jafnað saman þegar lagalegur réttur er til þess, þau varða tekjuskatt sem lagður er á af sömu yfirvöldum á sama fyrirtæki eða mismunandi fyrirtæki sem eru samsköttuð og gert er ráð fyrir að muni greiða skatta sameiginlega.

Tekjuskattseign er einungis færð að því marki sem líklegt er að hægt sé að nýta framtíðarhagnað á móti eigninni. Tekjuskattseign er metin á hverjum uppgjörsdegi og lækkuð að því marki sem talið er að hún nýtist ekki.

o. Hagnaður á hlut

Í ársreikningnum er sýndur grunnhagnaður á hlut og þynntur hagnaður á hlut fyrir almenna hluti í félaginu. Grunnhagnaður á hlut er reiknaður sem hlutfall hagnaðar, sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu, og vegins meðalfjölda virkra hluta á árinu. Þynntur hagnaður á hlut er reiknaður með því að leiðrétta meðalfjölda virka hluta vegna mögulegrar þynningar vegna hluta sem gæti þurft að gefa út í samræmi við kaupréttarsamninga starfsmanna.

34. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir, frh.:

p. Starfsþáttayfirlit

Rekstrarstarfsþáttur er hluti samstæðunnar sem fæst við viðskipti og er fær um að afla tekna og stofna til gjalda, að meðtöldum tekjum og gjöldum vegna viðskipta við aðra hluta samstæðunnar. Afkoma allra starfsþátta samstæðunnar er reglulega yfirfarin af forstjóra til að ákvarða hvernig eignum hennar er skipt á starfsþætti og til að meta frammistöðu þeirra.

Rekstrarafkoma starfsþátta, eignir og skuldir þeirra samanstanda af liðum sem tengja má beint við hvern starfsþátt og þá liði sem hægt er að skipta milli starfsþátta á rökrænan hátt.

Fjárfestingar starfsþátta er heildarkostnaður við kaup rekstrarfjármuna og óefnislegra eigna annarra en viðskiptavildar.

Verðlagning sölu á vöru og þjónustu milli starfsþátta er ákveðið eins og um óskylda aðila sé að ræða.

35. Nýr reikningsskilastaðlar og túlkanir á þeim sem hafa ekki verið innleiddir

IFRS 16 Leigusamningar

Samstæðunni ber að innleiða IFRS 16, Leigusamningar frá og með 1. janúar 2019. Samstæðan hefur metið væntanleg áhrif IFRS 16 á samstæðureikninginn. Endanleg áhrif staðalsins kunna að breytast þegar fyrstu reikningsskil samstæðunnar þar sem honum er beitt verða birt.

IFRS 16 kynnir heildstætt líkan sem felur í sér færslu leigusamninga í efnahagsreikning. Leigutaki færir nýtingarrétt sem endurspeglar rétt hans til notkunar eignar og á móti skuld vegna framtíðarleigugreiðslna. Samkvæmt staðlinum þarf ekki að færa í efnahagsreikning leigusamninga til skemmri tíma en eins árs og leigu á ódýrum eignum. Ákvæði um leigusala munu ekki breytast verulega frá gildandi staðli sem áfram flokkar leigusamninga í fjármögnunarleigusamninga eða rekstrarleigusamninga.

IFRS 16 kemur í stað eldri staðals, IAS 17 Leigusamningar, IFRIC 4, ákvörðun um hvort samningur inniheldur leigusamning, SIC-15, rekstrarleigusamningahvatar og SIC-27, mat á eðli viðskipta sem eru að forminu til leigusamningur.

Leigusamningar þar sem samstæðan er leigutaki

Samstæðan mun færa eignir og skuldir vegna leigusamninga um skrifstofuhúsnæðis og vöruhúsa. Eðli kostnaðar tengdum þessum leigusamningum mun breytast þar sem samstæðan mun afskrifa nýtingarrétt og færa vaxtagjöld af leiguskuld en áður voru leigugreiðslur færðar meðal rekstrargjalda.

Áður voru leigugreiðslur færðar til gjalda línulega yfir leigutíma og einvörðungu færðar eignir eða skuldir ef tímamunur myndaðist á milli greiðslu leigu og gjaldfærslu kostnaðar. Upptaka staðalsins hefur ekki veruleg áhrif á fjármögnunarleigusamninga samstæðunnar.

Leigusamningar þar sem samstæðan er leigusali

Innleiðing IFRS 16 hefur ekki veruleg áhrif á samninga þar sem samstæðan er leigusali öðru leyti en að færð er leigukrafa vegna áframleigu á húsnæði.

Innleiðing

Samstæðan mun beita IFRS 16 frá og með 1. janúar 2019 og beita honum afturvirkt með samlegðaráhrifum. Það þýðir að uppsöfnuð áhrif IFRS 16 færast sem breyting á opnunarstöðu óráðstafaðs eigin fjár 1. janúar 2019 en samanburðarfjárhæðir verða óbreyttar. Byggt á tiltækum gögnum er talið að leiguskuld sem færð verður 1. janúar 2019 muni nema 1.501 millj. kr. og á móti skuldinni verður færður nýtingarréttur að fjárhæð 1.304 millj. kr. og leigukrafa að fjárhæð 197 millj. kr. Innleiðingin mun ekki hafa áhrif á bókfært eigið fé. Ekki er talið að innleiðing á IFRS 16 hafi áhrif á fjárhagsskilyrði lánasamninga.

Samstæðan áætlar að nýta sér heimild IFRS 16 til að beita honum á alla samninga sem gerðir voru fyrir 1. janúar 2019 en voru áður tilgreindir sem leigusamningar samkvæmt IAS 17, leigusamningar, og IFRIC 4, ákvörðun um hvort samningur inniheldur leigusamning.

Ársfjórðungayfirlit

Ársfjórðungayfirlit samstæðunnar er óendurskoðað. Rekstur samstæðunnar greinist þannig á ársfjórðunga:

1. árs- 2. árs- 3. árs- 4. árs
Árið 2018 fjórðungur fjórðungur fjórðungur fjórðungur Samtals
Seldar vörur og þjónusta
Vörunotkun og kostnaðarverð
3.781.316 3.731.061 3.743.512 4.460.797 15.716.686
seldrar þjónustu ( 2.873.546) ( 2.721.500)
(
2.672.474) (
3.275.801)
( 11.543.321)
Framlegð 907.770 1.009.561 1.071.038 1.184.996 4.173.365
Rekstrarkostnaður
(
970.959) ( 947.797)
(
868.264) (
895.196)
(
3.682.216)
(Rekstrartap) hagnaður ( 63.189) 61.764 202.774 289.800 491.149
Áhrif sölu á Tempo ehf. 0 0 0 5.097.947 5.097.947
Aðrar fjármunatekjur 56.459 ( 7.924) 4.250 26.760 79.545
Fjármagnsgjöld ( 28.207) ( 26.578)
(
27.719) (
30.535)
(
113.039)
Hreinar fjármunatekjur
(fjármagnsgjöld) 28.252 ( 34.502)
(
23.469) 5.094.172 5.064.453
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags 0 0 0 (
21.522)
(
21.522)
(Tap) hagnaður fyrir tekjuskatt ( 34.937) 27.262 179.305 5.362.450 5.534.080
Tekjuskattur 6.518 ( 5.976)
(
36.280) (
57.872)
(
93.610)
(Tap) hagnaður tímabilsins ( 28.419) 21.286 143.025 5.304.578 5.440.470
Rekstrarliðir færðir beint á eigið fé:
Þýðingarmunur dótturfélaga
2.198 ( 5.889) 3.000 6.947 6.256
Innleystur þýðingarmunur vegna
sölu á Tempo ehf.
0 0 0 (
26.679)
(
26.679)
Rekstrarliðir færðir beint á
eigið fé samtals 2.198 ( 5.889) 3.000 (
19.732)
(
20.423)
(Heildartap) -hagnaður tímabilsins ( 26.221) 15.397 146.025 5.284.846 5.420.047
EBITDA 101.681 234.772 368.657 423.302 1.128.412

Ársfjórðungayfirlit, frh.:

Ársfjórðungayfirlit, frh.:

1. árs- 2. árs- 3. árs- 4. árs
fjórðungur fjórðungur fjórðungur fjórðungur Samtals
Árið 2017
Seldar vörur og þjónusta
Vörunotkun og kostnaðarverð
3.996.246 3.608.297 3.515.353 3.944.256 15.064.152
seldrar þjónustu ( 3.020.212) ( 2.704.775) (
2.656.086)
( 2.900.570) ( 11.281.643)
Framlegð 976.034 903.522 859.267 1.043.686 3.782.509
Rekstrarkostnaður
(
878.647) ( 826.588) (
773.690)
( 965.036) ( 3.443.961)
Rekstrarhagnaður 97.387 76.934 85.577 78.650 338.548
Fjármunatekjur 13.249 152.238 (
55.741)
103.388 213.134
Fjármagnsgjöld ( 41.049) ( 19.330) (
26.971)
( 27.067) ( 114.417)
Hreinar fjármunatekjur
(fjármagnsgjöld) ( 27.800) 132.908 (
82.712)
76.321 98.717
Hagnaður fyrir tekjuskatt 69.587 209.842 2.865 154.971 437.265
Tekjuskattur ( 2.867) ( 28.919) 8.937 18.562 ( 4.287)
Hagnaður tímabilsins 66.720 180.923 11.802 173.533 432.978
Rekstrarliðir færðir beint á eigið fé:
Þýðingarmunur dótturfélaga
Rekstrarliðir færðir beint á
4.120 ( 14.800) 16.745 ( 6.202) ( 137)
eigið fé samtals 4.120 ( 14.800) 16.745 ( 6.202) ( 137)
Heildarhagnaður tímabilsins 70.840 166.123 28.547 167.331 432.841
EBITDA 241.769 211.413 228.536 246.426 928.144

Stjórn og stjórnarhættir

Stjórn

Stjórn Origo hf. samanstendur af fimm stjórnarmönnum og einum varamanni, sem kjörnir eru árlega á aðalfundi. Á stjórnarfundi 21. desember 2016 var Ívar Kristjánsson kjörinn formaður, Hildur Dungal varaformaður og Guðmundur Jóh. Jónsson kom inn sem aðalmaður í stjórn. Ívar Kristjánsson og Emilía Þórðardóttir voru kjörin ný í stjórn félagsins á aðalfundi í mars 2016. Hildur Dungal kom í stjórn 2011 og hefur verið varaformaður frá því í mars 2013. Loftur Bjarni Gíslason var kjörinn í stjórn á aðalfundi félagsins í mars 2014. Guðmundur Jóhann Jónsson hefur verið í stjórn og varastjórn frá árinu 1999. Hjalti Þórarinsson var kosinn í varastjórn á aðalfundi 3. mars 2017.

Í stjórn eru þrír karlar og tvær konur og uppfyllir félagið því ákvæði laga um hlutafélög um kynjahlutföll stjórnar sem tóku gildi 1. september 2013. Allir fimm stjórnarmenn félagsins eru óháðir félaginu. Bakgrunnur stjórnarmanna er margvíslegur og eru stjórnarmenn með fjölbreytta menntun, m.a. úr viðskiptafræði, sjávarútvegsfræði og lögfræði, en einn stjórnarmanna er með embættispróf í lögfræði. Að auki hafa stjórnarmenn víðtæka reynslu úr atvinnulífinu.

Stjórnarhættir

Stjórn Origo hf. leitast við að viðhalda stjórnarháttum og fylgja "Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja", sem Viðskiptaráð Íslands, Nasdaq OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út í endurskoðaðri útgáfu í júní 2015. Stjórnin hefur sett sér ítarlegar starfsreglur þar sem valdsvið hennar er skilgreint og verksvið gagnvart forstjóra. Í þeim er meðal annars að finna reglur um fundarsköp, fundargerðir stjórnar, ítarlegar reglur um hæfi stjórnarmanna til þátttöku við afgreiðslu mála og reglur um þagnarskyldu. Þar eru einnig reglur um upplýsingagjöf forstjóra gagnvart stjórn og ákvörðunarvald stjórnar, en undirritun meiri hluta stjórnarmanna skuldbindur félagið.

Núgildandi starfsreglur stjórnar voru samþykktar á stjórnarfundi 24. maí 2017 og eru þær aðgengilegar á vef félagsins, www.origo.is.

Stjórn hefur skipað endurskoðunarnefnd og eru reglur nefndarinnar aðgengilegar á heimasíðu félagsins. Í endurskoðunarnefnd eiga nú sæti stjórnarformaður, meðstjórnandi og utanaðkomandi löggiltur endurskoðandi. Meginhlutverk og ábyrgð nefndarinnar er að hafa eftirlit með vinnuferlum við gerð reikningsskila, fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits félagsins, innri endurskoðun og ef við á áhættustýringu og öðrum eftirlitsaðgerðum. Auk þess leggur nefndin fram tillögur til stjórnar um val á endurskoðanda félagsins auk þess að meta óhæði endurskoðanda og hafa eftirlit með störfum hans. Stjórn hefur jafnframt skipað starfskjaranefnd og tækninefnd sem eru stjórn og stjórnendum til ráðgjafar um starfskjarastefnu og mál er tengjast launastefnu og tæknilegu umhverfi Origo. Regluvörður, skipaður af stjórn, hefur umsjón með að reglum um innherjaupplýsingar og viðskipti innherja sé fylgt. Stjórn hefur ekki skipað tilnefningarnefnd, en við endurskoðun á starfsháttum stjórnar og umgjörð um starfið er það nú mat stjórnar að skipa beri slíka nefnd og liggur fyrir tillaga um slíkt á aðalfundi

Á árinu 2018 voru haldnir 17 stjórnarfundir og sex fundir í endurskoðunarnefnd, auk funda í starfskjaranefnd. Meiri hluti stjórnar og nefnda hefur mætt á alla fundi. Endurskoðunarnefnd boðar endurskoðendur félagsins á fundi þegar tilefni er til, auk þess sem þeir mæta á stjórnarfundi vegna ársreiknings.

Til að tryggja að reikningsskil samstæðunnar séu í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla hefur félagið lagt áherslu á vel skilgreind ábyrgðarsvið, eðlilega aðgreiningu starfa, ásamt reglulegri skýrslugjöf og gegnsæi í starfseminni. Ferli mánaðarlegrar skýrslugjafar ásamt rýni fyrir einstakar deildir er mikilvægur þáttur í eftirliti með afkomu og öðrum lykilþáttum starfseminnar. Mánaðarleg uppgjör eru unnin og lögð fyrir stjórn félagsins. Til staðar eru verklagsreglur til að tryggja eftirlit með tekjuskráningu, rekstrarkostnaði ásamt fleiri liðum sem hafa áhrif á rekstur félagsins. Áhættustýring er yfirfarin reglulega til að endurspegla breytingar á markaðsaðstæðum og starfsemi félagsins. Með þjálfun starfsmanna og starfsreglum stefnir samstæðan að öguðu eftirliti þar sem allir starfsmenn eru meðvitaðir um hlutverk sitt og skyldur. Rekstraráhættu er mætt með því að hafa eftirlit með viðskiptum og fylgni við lög. Stjórn hefur sett stefnu um að eiginfjárstaða samstæðunnar sé nægilega sterk til að styðja við stöðuga framþróun starfsemi félagsins.

Stjórn Origo hf.

Samkvæmt samþykktum félagsins fer stjórn Origo hf. með æðsta vald í málefnum félagsins á milli hluthafafunda. Stjórnin ákveður stefnu Origosamstæðunnar og fylgir eftir meginverkefnum í starfsemi samstæðunnar. Fyrir stjórn er lögð rekstrar- og fjárfestingaáætlun til staðfestingar og fylgist stjórnin reglubundið með framvindu þeirra áætlana innan ársins. Stjórn ákveður skipulag og fylgir því eftir að starfsemi félagsins fari fram í samræmi við samþykktir hennar. Stjórnin skal tryggja að nægilegt eftirlit sé með meðferð fjármuna félagsins og að góð regla sé á bókhaldi og uppgjöri.

Í stjórn Origo sitja fimm menn og einn til vara og er stjórnin kjörin á aðalfundi til eins árs í senn. Samkvæmt samþykktum skulu þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn félagsins tilkynna það skriflega til stjórnar að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar og eru þeir einir kjörgengir, sem þannig hafa gefið kost á sér. Formaður kveður stjórn til fundar og stýrir stjórnarfundum. Fundi skal halda hvenær sem formaður telur þess þörf, en að auki er honum skylt að boða stjórnarfund að kröfu eins stjórnarmanns eða forstjóra. Stjórnarfundir eru því aðeins lögmætir að mættir séu þrír stjórnarmenn eða fleiri.

Hlutverk forstjóra

Stjórn Origo hf. ræður forstjóra félagsins og ákveður starfskjör hans. Forstjóri er ábyrgur fyrir daglegri starfsemi félagsins í samræmi við samþykktir þess, stefnu og ákvörðun stjórnar. Forstjóri skal vinna að stefnumótun og framþróun félagsins ásamt því að skipuleggja og fylgja eftir daglegum rekstri þess. Þá er hlutverk forstjóra að tryggja að starfsemi félagsins sé í samræmi við gildandi löggjöf og reglur hverju sinni og fylgja því eftir að starfsemi dótturfélaga sé með sama hætti.

Hluthafafundir

Æðsta vald í málefnum félagsins er í höndum lögmætra hluthafafunda. Aðalfundur skal haldinn fyrir lok júnímánaðar ár hvert og hluthafafundi skal halda eftir ákvörðun stjórnar eða að kröfu kjörins endurskoðanda eða hluthafa, sem ráða að minnsta kosti 1/20 hlutafjár í félaginu. Krafa um hluthafafund skal gerð skriflega, fundarefni tilgreint og fundur þá boðaður innan lögmæts frests. Til hluthafafundar skal boða með birtingu auglýsingar í dagblaði eða með öðrum sambærilegum hætti. Aðalfund skal boða með minnst þriggja vikna og mest fjögurra vikna fyrirvara samkvæmt breytingum á hlutafélagalögum frá 19. desember 2009. Í fundarboði skal gerð grein fyrir fundarefni og þeim skjölum og tillögum sem lögð verða fyrir fundinn. Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverjum hlut í félaginu.

Breytingar á samþykktum félagsins

Samþykktum félagsins má einungis breyta á löglegum hluthafafundi þess og skal þess rækilega getið í fundarboði að fyrir liggi tillaga um breytingar á samþykktum og í hverju hún felist í meginatriðum. Ákvörðun verður því aðeins gild að hún njóti minnst 2/3 hluta greiddra atkvæða svo og samþykkis hluthafa sem ráða 2/3 hlutum þess hlutafjár sem farið er með atkvæði fyrir á hluthafafundum. Síðast voru gerðar breytingar á samþykktum Origo hf. þann 6. apríl 2017.

Endurskoðendur

Endurskoðendur félagsins eru kjörnir á aðalfundi til eins árs í senn. Á aðalfundi 2018 var KPMG ehf. kjörinn endurskoðandi félagsins og er KPMG ehf. einnig endurskoðandi allra dótturfélaga félagsins á Íslandi. KPMG í Svíþjóð annast endurskoðun á sænska dótturfélaginu Applicon.

Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum

Í byrjun árs 2015 hlaut Nýherji viðurkenninguna "Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum" samkvæmt mati Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands, að undangenginni ítarlegri úttekt Capacent.

Um Origo

Origo hf. er samstæða fyrirtækja í upplýsingatækni. Origo er þjónustufyrirtæki og hlutverk fyrirtækisins felst í að aðstoða viðskiptavini við að ná enn betri árangri í sínum rekstri með aðstoð upplýsingatækni, sérfræðiþekkingu starfsfólks og lipurri þjónustu. Hlutabréf Origo hf. eru skráð í NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöll Íslands) undir auðkenninu ORIGO. Hjá Origosamstæðunni hérlendis og erlendis starfa um 495 manns. Lausnaframboð Origo nær til flestra sviða upplýsingatækni, svo sem hýsingar- og rekstrarþjónustu, eigin hugbúnaðarþróunar og -lausna frá samstarfsaðilum, viðskiptalausna og innviða upplýsingakerfa. Auk þess selur Origo búnað og lausnir til fyrirtækja og einstaklinga frá mörgum af fremstu framleiðendum heims, á borð við Lenovo, IBM, Canon, Bose, Sony, NEC og fleiri.

Nánari upplýsingar um Origo og dótturfélög má finna á heimasíðu félagsins, www.origo.is.

Umhverfismál

Origo hefur sett sér umhverfisstefnu sem tekur til allrar starfsemi Origo og dótturfélaga auk allra starfsmanna samstæðunnar. Starfsmenn og stjórnendur samstæðunnar skulu kynna sér efni stefnunnar og framfylgja henni, auk þess að leita leiða til umbóta í umhverfissmálum. Framfylgja skal öllum lagakröfum á sviði umhverfismála í starfssemi samstæðunnar. Með umhverfisstefnunni skuldbindur samstæðan sig til að vinna markvisst að því að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif starfseminnar.

Origo er eitt af þeim fyrirtækjum á Íslandi sem hefur undirritað yfirlýsingu um loftslagsmál og þannig skuldbundið sig til að vinna að aðgerðum sem draga úr losun gróðurhúslofttegunda og minnka myndun úrgangs. Notast er við hugbúnað til að mæla vistspor fyrirtækisins og setja markmið í umhverfismálum fyrir fyrirtækið. Origo hvetur starfsmenn til vistvænna ferðmáta, m.a. með því að veita þeim samgöngustyrki sem ferðast ekki á einkabílum og hefur félagið einnig sett sér sérstaka samgöngustefnu í þessum efnum. Allt sorp sem fellur til, bæði á skrifstofu félagsins og lager, er flokkað í viðeigandi flokkunartunnur. Félagið hefur tekið stór skref í útrýmingu einnota umbúða sem voru áður í tíðri notkun. Félagið notar eigin lausn, RentaPrent, þar sem lögð er áhersla á að draga úr sóun á pappír.

Samfélagsleg mál

Samfélagsleg ábyrgð skiptir Origo miklu máli og hefur félagið unnið að því að auka samfélagslega ábyrgð sína með margvíslegum hætti. Samfélagsstefna félagsins hefur verið römmuð inn í tengslum við ungt fólk, menntun og nýsköpun, sem hafa verið grunnþættir í þeim verkefnum sem félagið hefur styrkt um nokkurt skeið. Samfélagsstefna félagsins byggir á þessum áherslum en er nánar útfærð til að taka til fjögurra meginstoða, sem eru: Góðir stjórnarhættir, mannauður, umhverfi og styrkir við góð málefni.

Meðal verkefna sem styrkt hafa verið eru: Háskóli unga fólksins, Forritunarkeppni framhaldsskólanna á vegum HR, Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema í Háskóla Íslands, Forritarar framtíðarinnar, First Lego hönnunarkeppnin, Verkefni Samtaka iðnaðarins um kynningu náms í tæknigreinum háskóla fyrir framhaldsskólanemum.

Mannauður

Origo hefur sett sér margvíslegar stefnur til að stuðla að sem bestu umhverfi fyrir starfsmenn sína. Í mannauðsstefnu fyrirtækisins kemur fram að markmið Origo er að verða eftirsóknarverðasti vinnustaðurinn og laða þannig að fyrirtækinu hæfasta starfsfólkið til frambúðar. Stefna fyrirtækisins í mannauðsmálum styður við þetta markmið með því að tryggja að við bjóðum upp á frábært vinnuumhverfi sem virkjar skapandi kraft og ýtir undir nýsköpun, leggjum áherslu á þekkingaröflun og þekkingarmiðlun starfsfólks og ýtum þannig undir þróun í starfi og stuðlum að samvinnu og nýtum sérþekkingu hvers annars til að þróa snjallar lausnir með viðskiptavinum. Ýmsar mælingar eru gerðar til að fá upplýsingar um stöðu þeirra atriða sem mannauðsstefnan tekur til. Þar má nefna reglulegar vinnustaðagreiningar, frammistöðusamtöl og aðrar úttektir.

Mannauður, frh.:

Jafnréttis-og jafnlaunastefna Origo er sett til að tryggja að Origo nái markmiðum sínum í jafnréttismálum. Henni er ætlað að tryggja stöðugar umbætur, eftirlit og viðbrögð við jafnréttismálum hjá félaginu. Á árinu 2018 var unnið að innleiðingu á jafnlaunakerfi Origo, en kerfinu er ætlað að tryggja að allar launaákvarðanir séu teknar með kerfisbundnum hætti og að þær feli ekki í sér kynjamismunun. Undir lok árs var úttekt framkvæmd á jafnlaunakerfinu á vegum BSI á Íslandi sem staðfestir að það uppfylli kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012.

Starfskjarastefna félagsins um starfskjör stjórnenda og starfsmanna hefur það að markmiði að laða að og halda í mjög hæft starfsfólk. Í stefnunni segir að kyn og aðrir persónueiginleikar sem ekki tengjast inntaki starfs eða frammistöðu í starfi skulu ekki hafa áhrif á laun eða launaþróun. Til að tryggja sanngirni og samræmi í launamálum hafa stjórnendur aðgang að miðlægum viðmiðum um launabyggingu félagsins á hverjum tíma og launaþróun á ytri markaði.

Starfskjarastefna var lögð fram á aðalfundi Origo hf. 2. mars 2018 og samþykkt.

Spilling, mútur og mannréttindi

Starfsfólk Origo hefur sett sér siðareglur sem varða almenna viðskiptahætti og viðskiptasiðferði. Reglurnar vísa til væntinga um vinnulag gagnvart viðskiptavinum, samstarfsfólki, eigendum, samkeppnisaðilum og samfélagi. Í reglunum kemur fram að heiðarleiki og ótvíræð samskipti séu lykilatriði góðs viðskiptasiðferðis. Allir viðskiptaaðilar Origo eiga rétt á réttlátri og sanngjarnri meðferð í anda jafnræðisreglu. Starfsmönnum ber að gera viðvart um atvik, þar sem ætla má, að lög séu brotin. Slíkt ber að gera við yfirmann eða til yfirstjórnar fyrirtækisins beint. Starfsmenn munu á engan hátt gjalda þess í starfi séu þeir að uppfylla skyldu sína í þessu efni og er trúnaðar gætt, sé þess óskað. Starfsmaður skal ekki þiggja gjöf, þjónustu, skemmtun eða persónulegan greiða sem með réttu mætti álykta að gæti haft áhrif á viðskipti. Boð um skemmtun ætti ekki að þiggja nema boðið sé innan marka viðurkenndrar viðskiptagestrisnis. Fái starfsmenn tilboð eða jafnvel hótanir í tengslum við störf sín ber viðkomandi að tilkynna það yfirmanni sínum strax.

Stjórn Origo hf. leitast við að viðhalda stjórnarháttum og fylgja "Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja" sem Viðskiptaráð Íslands, Nasdaq OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út. Stjórnin hefur sett sér ítarlegar starfsreglur þar sem valdsvið hennar er skilgreint og verksvið gagnvart forstjóra. Origo er fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum samkvæmt mati Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands, að undangenginni ítarlegri úttekt Capacent á haustmánuðum 2014.

Félagið virðir almenn mannréttindi, rétt allra til félagafrelsis og kjarasamninga. Því til stuðnings hefur félagið sett sér jafnréttisstefnu og siðareglur eins og fjallað var um hér fyrir framan. Áhersla er lögð á að verktakar og undirverktakar fari eftir gildandi lögum í landinu er varðar alla sína starfsmenn, sama hvort það eru þeirra launþegar eða eigin undirverktakar.

Nánari umfjöllun um þessi málefni ásamt tölulegum upplýsingum mun verða aðgengileg í ársskýrslu félagsins sem verður birt fyrir aðalfund félagsins.

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.