Interim / Quarterly Report • Aug 22, 2019
Interim / Quarterly Report
Open in ViewerOpens in native device viewer
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. júní 2019
Skýringar....................................................................................................................... 8-11
Hampiðjan hf. kt. 590169-3079 Skarfagörðum 4 Reykjavík
Samandreginn árshlutareikningur Hampiðjunnar hf. fyrir tímabilið janúar til júní 2019 er samstæðureikningur Hampiðjunnar hf. og dótturfélaga.
Samkvæmt rekstrarreikningi var hagnaður samstæðunnar á tímabilinu 6.365 þúsund evrur og eigið fé í lok þess 112.582 þúsund evrur en af þeirri upphæð eru 11.446 þúsund evrur hlutdeild minnihluta í eigin fé dótturfélaga. Að öðru leyti vísast til árshlutareiknings um rekstur samstæðunnar á tímabilinu og fjárhagsstöðu í lok þess.
Samkvæmt bestu vitneskju er það álit okkar að árshlutareikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu.
Samkvæmt bestu vitneskju er það álit okkar að samstæðuárshlutareikningur Hampiðjunnar hf. gefi glögga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu samstæðunnar 30. júní 2019, rekstrarafkomu félagsins og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar 2019 til 30. júní 2019.
Það er jafnframt álit okkar að samstæðuárshlutareikningurinn geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar, stöðu hennar í lok tímabilsins og lýsi helstu áhættuþáttum sem samstæðan býr við.
Stjórn og forstjóri hafa í dag farið yfir árshlutareikning samstæðunnar fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2019 og staðfesta hann með undirritun sinni.
Reykjavík 22. ágúst 2019
Stjórn:
Vilhjálmur Vilhjálmsson
Kristján Loftsson Auður Kristín Árnadóttir
Guðmundur Ásgeirsson Sigrún Þorleifsdóttir
Forstjóri :
Hjörtur Erlendsson
Við höfum kannað meðfylgjandi samandreginn árshlutareikning samstæðu Hampiðjunnar hf. og dótturfélaga fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2019. Samandregni árshlutareikningurinn hefur að geyma skýrslu stjórnar, rekstrarreikning, yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, yfirlit um breytingu á eigin fé, yfirlit um sjóðstreymi, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.
Stjórnendur eru ábyrgir fyrir gerð og framsetningu samandregna árshlutareikningsins í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga IAS 34. Ábyrgð okkar felst í ályktun okkar um árshlutareikninginn sem byggir á könnuninni.
Könnun okkar var unnin í samræmi við alþjóðlegan staðal ISRE 2410, sem fjallar um könnun óháðs endurskoðanda á árshlutareikningum. Slík könnun felur í sér fyrirspurnir, einkum til starfsmanna sem eru ábyrgir fyrir fjármálum og reikningsskilum félagsins ásamt greiningum á hinum ýmsu liðum reikningsskilanna og öðrum könnunaraðgerðum. Könnun felur ekki í sér jafn viðtækar aðgerðir og endurskoðun sem unnin er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla og er því ekki víst að við fáum vitneskju um öll mikilvæg atriði sem gætu komið í ljós við endurskoðun. Þar af leiðandi látum við ekki í ljós álit um endurskoðun.
Við könnun okkar kom ekkert fram sem bendir til annars en að samandregni árshlutareikningurinn sé í öllum meginatriðum gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu.
Reykjavík 22. ágúst 2019
Kristinn F. Kristinsson
| 1.1. - 30.6 2019 |
1.1. - 30.6 2018 |
|
|---|---|---|
| Sala | 85.311 | 77.305 |
| Beinn framleiðslukostnaður | (61.935) | (55.676) |
| Framlegð | 23.376 | 21.629 |
| Rekstrarkostnaður | (14.153) | (13.686) |
| Rekstrarhagnaður | 9.223 | 7.943 |
| Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld | (1.275) | (1.092) |
| Áhrif af rekstri hlutdeildarfélaga | 43 (1.232) |
47 (1.045) |
| Hagnaður fyrir skatta | 7.991 | 6.898 |
| Tekjuskattur | (1.626) | (1.258) |
| Hagnaður tímbilsins | 6.365 | 5.640 |
| Skipting hagnaðar | ||
| Hluti hluthafa móðurfélagsins Hluti minnihluta í afkomu dótturfélaga |
5.653 712 |
4.990 650 |
| 6.365 | 5.640 | |
| EBITDA | 11.938 | 9.976 |
| Grunnhagnaður og þynntur hagnaður á hlut (EUR cent á hlut) | 1,30 | 1,16 |
| Yfirlit um heildarafkomu samstæðu | 1.1. - 30.6 | 1.1. - 30.6 |
| 2019 | 2018 | |
| Hagnaður tímabilsins | 6.365 | 5.640 |
| Rekstrarliðir færðir á eigið fé Þýðingarmunur vegna starfsemi erlendra dótturfélaga |
400 | 412 |
| Heildarafkoma tímabilsins | 6.765 | 6.052 |
| Skipting heildarafkomu | ||
| Hluti hluthafa móðurfélagsins | 6.091 | 5.360 |
| Hluti minnihluta | 674 | 692 |
| Heildarafkoma tímabilsins | 6.765 | 6.052 |
Skýringar á bls. 8 - 11 eru óaðskiljanlegur hluti þessara samstæðureikningsskila
| Eignir | 30/06 2019 | 31/12 2018 |
|---|---|---|
| Fastafjármunir | ||
| Varanlegir rekstrarfjármunir | 83.748 | 73.928 |
| Óefnislegar eignir | 42.246 | 42.218 |
| Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum | 967 | 969 |
| Fjárfestingareignir | 516 | 526 |
| Tekjuskattsinneign | 664 | 658 |
| 128.141 | 118.299 | |
| Veltufjármunir | ||
| Birgðir | 57.580 | 54.614 |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 34.888 | 29.547 |
| Handbært fé | 7.361 | 10.905 |
| 99.829 | 95.066 | |
| Eignir samtals | 227.970 | 213.365 |
| Eigið fé og skuldir | 30/06 2019 | 31/12 2018 |
| Eigið fé | ||
| Hlutafé og yfirverðsreikningur | 6.455 | 6.455 |
| Aðrir varasjóðir | 141 | (296) |
| Annað bundið eigið fé | 22.597 | 20.527 |
| Óráðstafað eigið fé | 71.943 | 72.267 |
| 101.136 | 98.953 | |
| Hlutdeild minnihluta | 11.446 | 11.040 |
| Eigið fé samtals | 112.582 | 109.993 |
| Skuldir | ||
| Langtímaskuldir | ||
| Langtímaskuldir | 66.897 | 60.301 |
| Tekjuskattsskuldbinding | 5.084 | 4.824 |
| 71.981 | 65.125 | |
| Skammtímaskuldir | ||
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 27.969 | 24.633 |
| Skuldir við lánastofnanir | 15.438 | 13.614 |
| 43.407 | 38.247 | |
| Skuldir samtals | 115.388 | 103.372 |
| Eigið fé og skuldir samtals | 227.970 | 213.365 |
5
| Hlutafé og yfir- verðsreikn. |
Aðrir vara- sjóðir |
Annað bundið eigið fé |
Óráðst. eigið fé |
Hlutd. minnihl. |
Samtals | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Staða 1. janúar 2018 Heildarafkoma: |
5.531 | (234) | 12.295 | 73.390 | 11.272 | 102.254 |
| Heildarafkoma janúar til júní 2018 eftir skatta Minnihluti, breyting |
370 | 0 | 4.990 | 692 (1.555) |
6.052 (1.555) |
|
| Hl. í afk. dótturfélaga umfr. móttekinn arð | 0 | 370 | 2.567 2.567 |
(2.567) 2.423 |
(863) | 0 4.497 |
| Eigendur: | ||||||
| Greiddur arður til hluthafa Seld eigin hlutabréf |
924 | (2.984) | (68) | (3.052) 924 |
||
| 924 | 0 | 0 | (2.984) | (68) | (2.128) | |
| Staða 30. júní 2018 / 1. júlí 2018 | 6.455 | 136 | 14.862 | 72.829 | 10.341 | 104.623 |
| Heildarafkoma: Heildarafkoma júlí til des. 2018 eftir skatta |
(432) | 0 | 5.103 | 824 | 5.495 | |
| Minnihluti, breyting Hl. í afk. dótturfélaga umfr. móttekinn arð |
5.665 | (5.665) | (125) | (125) 0 |
||
| 0 | (432) | 5.665 | (562) | 699 | 5.370 | |
| Staða 31. desember 2018 / 1. janúar 2019 Breyting v. innleiðingar IFRS 16 Heildarafkoma: |
6.455 | (296) | 20.527 (293) |
72.267 (95) |
11.040 (14) |
109.993 (402) |
| Heildarafkoma janúar til júní 2019 eftir skatta Minnihluti, breyting |
437 | 0 | 5.654 | 674 10 |
6.765 10 |
|
| Hl. í afk. dótturfélaga umfr. móttekinn arð | 2.363 | (2.363) | 0 | |||
| Eigendur: | 0 | 437 | 2.363 | 3.291 | 684 | 6.775 |
| Greiddur arður | (3.520) | (264) | (3.784) | |||
| 0 | 0 | 0 | (3.520) | (264) | (3.784) | |
| Staða 30. júní 2019 | 6.455 | 141 | 22.597 | 71.943 | 11.446 | 112.582 |
Innborgað hlutafé er samtals 6.455 þúsund evrur og greinist þannig að innborgað nafnverð er 5.498 þúsund evrur og innborgað yfirverð er 957 þúsund evrur.
Samkvæmt 41. gr. ársreikningalaga ber félögum að færa hlutdeild í rekstri dótturfélaga og hlutdeildarfélaga umfram því sem nemur mótteknum arði eða þeim arði sem ákveðið hefur verið að úthluta, á bundinn reikning meðal eigin fjár.
6
| 1.1. - 30.6 2019 |
1.1. - 30.6 2018 |
|
|---|---|---|
| Rekstrarhreyfingar | ||
| Rekstrarhagnaður Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: |
9.223 | 7.943 |
| Afskriftir | 2.715 | 2.033 |
| EBITDA | 11.938 | 9.976 |
| Sölutap (-hagnaður) varanlegra rekstrarfjármuna | 3 | (21) |
| Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum | (4.942) | (3.439) |
| Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta | 6.999 | 6.516 |
| Innborgaðir vextir | 34 | 208 |
| Innborgaður arður | 17 | 13 |
| Greiddir vextir | (1.394) | (1.442) |
| Greiddir skattar | (1.321) | (958) |
| Handbært fé frá rekstri | 4.335 | 4.337 |
| Fjárfestingahreyfingar | ||
| Kaup og sala varanlegra rekstrarfjármuna | (4.924) | (4.999) |
| Kaup óefnislegra eigna | (123) | (861) |
| Fjárfesting í dótturfélögum að frádregnu handbæru fé | (37) | (6.493) |
| Handbært fé frá fjárfestingum (til fjárfestinga) | (5.084) | (12.353) |
| Fjármögnunarhreyfingar | ||
| Bankalán, breyting | 1.002 | 8.212 |
| Breyting á hlutafé | 0 | 923 |
| Arður greiddur til hluthafa | (3.520) | (2.984) |
| Arður greiddur til minnihluta | (264) | (67) |
| Handbært fé frá fjármögnun (til fjármögnunar) | (2.782) | 6.084 |
| Hækkun (lækkun) á handbæru fé | (3.531) | (1.932) |
| Handbært fé í byrjun árs | 10.905 | 13.023 |
| Gengismunur vegna handbærs fjár | (13) | (152) |
| Handbært fé í lok tímabilsins | 7.361 | 10.939 |
7
Meginstarfsemi samstæðu Hampiðjunnar hf. og dótturfélaga er framleiðsla og sala á fullbúnum veiðarfærum og íhlutum þeirra. Félagið er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög.
Hampiðjan hf. er með heimilisfesti á Íslandi. Heimilisfang er skráð að Skarfagörðum 4 í Reykjavík.
Félagið er skráð á First North hliðarmarkaði Kauphallar OMX á Íslandi.
Stjórn félagsins samþykkti þessi reikningsskil 22. ágúst 2019.
Helstu reikningsskilaaðferðir sem beitt var við gerð þessara reikningsskila eru tilgreindar hér á eftir. Þessum aðferðum var beitt á samræmdan hátt á bæði árin sem sett eru fram, nema annað sé tekið fram.
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Hampiðjunnar hf. fyrir tímabilið janúar til júní 2019 er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga IAS 34. Samandregni árshlutareikningurinn inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í ársreikningi og ætti því að lesa með hliðsjón af ársreikningi félagsins fyrir árið 2018.
Í byrjun árs tók nýr IFRS reikningsskilastaðall gildi, IFRS 16 Leigusamningar. Samstæðan beitti staðlinum frá 1. janúar 2019 eins og skylt er, í samræmi við heimild í staðlinum um einfaldaða aðferð við innleiðinguna og mun því ekki endurreikna eða breyta samanburðarfjárhæðum. Endurflokkun og leiðrétting sem stafar af nýju leigustaðlinum er því fært í efnahagsreikninginn 1. janúar 2019.
Við innleiðingu á IFRS 16 færði samstæðan til skuldar leiguskuldbindingar í tengslum við leigusamninga sem áður höfðu verið flokkaðir rekstrarleigusamningar í samræmi við IAS 17 Leigusamninga. Þessar skuldir voru metnar með því að núvirða þær leigugreiðslur sem eftir voru með vöxtum sem voru ígildi lántöku vaxta af nýjum lánum viðkomandi félags þann 1. janúar 2019.
Á móti var fært til eignar meðal rekstrarfjármuna eignir til afnota, leigueignir. Við innleiðingu staðalsins voru leigueignir metnar annað hvort afturvirkt eins og nýju reglunum hefði alltaf verið beitt eða metnar á sömu fjárhæð og leiguskuldin.
Við innleiðingu á IFRS 16 í fyrsta skipti hefur samstæðan notað eftirfarandi hagnýtar undaþágur sem leyfðar eru samkvæmt staðlinum. Beitt var einu afvöxtunahlutfalli á alla leigusamninga sem voru með svipuð einkenni. Rekstrarleigusamningar sem voru með eftirstöðvum leigutíma minna en 12 mánuði frá og með 1. janúar 2019 voru flokkaðir sem skammtímaleiga. Beinn kostnaður við upphaf leigu er ekki tekinn með við mat á eign til afnota á upphafsdegi. Notaðar voru fyrirliggjandi upplýsingar þann 1. janúar 2019 við ákvörðun á leigutíma í þeim tilfellum þar sem val var um að framlengja eða segja upp leigunni. Samstæðan hefur einnig kosið að endurmeta ekki hvort eldri samningur sé leigusamningur skv. IFRS 16, heldur er það mat sem gert var samkvæmt IAS 17 og IFRIC 4 látið standa.
Innleiðing á nýjum reikningsskilastaðli, IFRS 16 Leigusamningar frh.
Frá 1. janúar 2019 færði samstæðan rekstrarleigusamninga með eftirfarandi hætti:
| 1.1.2019 | 30.6.2019 | |
|---|---|---|
| Leigueignir | 7.349 | 6.847 |
| Tekjuskattsinneign | 106 | |
| Leiguskuldbinding þar af er afborgun næstu 12 mánaða |
7.858 920 |
7.400 715 |
| Áhrif upptöku IFRS 16 á eigið fé | (402) |
| Án IFRS 16 | Með IFRS 16 | |||
|---|---|---|---|---|
| 1.1. - 30.6 | Áhrif vegna | 1.1. - 30.6 | ||
| 2019 | IFRS 16 | 2019 | ||
| Tekjur | 85.311 | 85.311 | ||
| Gjöld | (73.958) | 585 | (73.373) | |
| Afskriftir | (2.238) | (477) | (2.715) | |
| Rekstrarhagnaður | 9.115 | 108 | 9.223 | |
| Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld | (1.119) | (113) | (1.232) | |
| Hagnaður fyrir skatta | 7.996 | (5) | 7.991 | |
| Tekjuskattur | (1.624) | (2) | (1.626) | |
| Hagnaður tímabilsins | 6.372 | (7) | 6.365 |
Skráning eigna og skulda með tilliti til næsta fjárhagsárs er byggð á mati samstæðunnar. Stöðugt er farið yfir slíkt mat með hliðsjón af reynslu og öðrum þáttum svo sem framtíðarvæntingum sem taldar eru eðlilegar miðað við aðstæður. Slíkt reikningshaldslegt mat er í eðli sínu sjaldan nákvæmlega í samræmi við raunverulega niðurstöðu.
Samstæðan skiptist í fimm starfsþætti eftir félögum innan samstæðunnar:
| Starfsþáttur 1. | Starfsemi Hampiðjunnar sem er veiðarfæragerð, endursala og fjárfestingar. Baltic í Litháen, sem er verksmiðjuframleiðsla á netum, köðlum og ofurtógi. |
Starfsemi Hampidjan Starfsemi Otter sem er |
|---|---|---|
| eignarhald á einkaleyfum. | ||
| Starfsþáttur 2. | Starfsemi veiðarfærafélagsins Swan Net Gundry. |
Starfsþáttur 5. Starfsemi veiðarfærafélagsins P/F Von og dótturfélaganna P/F Vónin, Vónin Refa, Qalut Vónin, Vónin Lithuania, Vónin Canada og Vónin Ísland.
| Starfsþ. | Starfsþ. | Starfsþ. | Starfsþ. | Starfsþ. | Milli | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Janúar til júní 2019 | (1) | (2) | (3) | (4) | (5) | viðskipti | Samtals |
| Rekstrartekjur | 24.452 | 8.393 | 7.696 | 27.322 | 36.103 | (18.655) | 85.311 |
| Beinn framl.kostn | (20.542) | (6.343) | (6.118) | (21.849) | (25.738) | 18.655 | (61.935) |
| 3.910 | 2.050 | 1.578 | 5.473 | 10.365 | 23.376 | ||
| Rekstrarkostnaður | (3.064) | (1.392) | (1.108) | (3.581) | (5.008) | (14.153) | |
| Rekstrarhagnaður | 846 | 658 | 470 | 1.892 | 5.357 | 9.223 | |
| Sem hlutfall af rekstrartekjum | 3% | 8% | 6% | 7% | 15% | 11% | |
| Fjármunat. (fjármagnsgj.) | (583) | 1 | (70) | (381) | (242) | (1.275) | |
| Hlutdeildarafkoma | 43 | 0 | 0 | 0 | 0 | 43 | |
| Tekjuskattur | (213) | (100) | (74) | (159) | (1.080) | (1.626) | |
| Hagnaður ársins | 93 | 559 | 326 | 1.352 | 4.035 | 6.365 | |
| Afskriftir fastafjármuna | 652 | 216 | 290 | 543 | 1.014 | 2.715 | |
| Kaup/s. fastafjármuna | (1.272) | (203) | (243) | (1.907) | (1.422) | (5.047) | |
| EBITDA | 1.497 | 875 | 761 | 2.434 | 6.371 | 11.938 |
| Starfsþ. | Starfsþ. | Starfsþ. | Starfsþ. | Starfsþ. | Milli | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Janúar til júní 2018 | (1) | (2) | (3) | (4) | (5) | viðskipti | Samtals |
| Rekstrartekjur | 28.172 | 7.980 | 9.701 | 16.811 | 33.142 | (18.501) | 77.305 |
| Beinn framl.kostn | (23.841) | (5.877) | (7.306) | (13.153) | (24.000) | 18.501 | (55.676) |
| 4.331 | 2.103 | 2.395 | 3.658 | 9.142 | 21.629 | ||
| Rekstrarkostnaður | (3.706) | (1.188) | (1.155) | (2.501) | (5.136) | (13.686) | |
| Rekstrarhagnaður | 625 | 915 | 1.240 | 1.157 | 4.006 | 7.943 | |
| Sem hlutfall af rekstrartekjum | 2% | 11% | 13% | 7% | 12% | 10% | |
| Fjármunat. (fjármagnsgj.) | (402) | 0 | (56) | (328) | (306) | (1.092) | |
| Hlutdeildarafkoma | 47 | 0 | 0 | 0 | 0 | 47 | |
| Tekjuskattur | 17 | (120) | (297) | (65) | (793) | (1.258) | |
| Hagnaður ársins | 287 | 795 | 887 | 764 | 2.907 | 5.640 | |
| Afskriftir fastafjármuna | 676 | 176 | 253 | 186 | 742 | 2.033 | |
| Kaup/s. fastafjármuna | (1.997) | (217) | (243) | (2.049) | (1.354) | (5.860) | |
| EBITDA | 1.302 | 1.091 | 1.492 | 1.342 | 4.749 | 9.976 | |
| Starfsþ. | Starfsþ. | Starfsþ. | Starfsþ. | Starfsþ. | Milli- | ||
| (1) | (2) | (3) | (4) | (5) | viðskipti | Samtals | |
| Heildareignir starfsþáttar | |||||||
| 30. júní 2019 | 74.798 | 20.574 | 16.724 | 49.413 | 92.127 | (25.666) | 227.970 |
| 31. desember 2018 | 70.022 | 19.136 | 15.823 | 37.816 | 88.964 | (18.396) | 213.365 |
| Heildarskuldir starfsþáttar |
Rekstur samstæðunnar greinist þannig á árshelminga:
| jan.-jún. 2019 |
júlí - des. 2018 |
jan.-jún. 2018 |
júlí - des. 2017 |
jan.-jún. 2017 |
júlí - des. 2016 |
|
|---|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 85.311 | 75.632 | 77.305 | 63.086 | 63.845 | 57.596 |
| Rekstrargjöld án afskrifta | (73.373) | (65.106) | (67.329) | (56.089) | (54.379) | (51.316) |
| Rekstrarhagnaður án afskrifta (EBITDA) | 11.938 | 10.526 | 9.976 | 6.997 | 9.466 | 6.280 |
| Afskriftir | (2.715) | (2.002) | (2.033) | (1.806) | (1.777) | (1.700) |
| Rekstrarhagnaður (EBIT) | 9.223 | 8.524 | 7.943 | 5.191 | 7.689 | 4.580 |
| Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) | (1.232) | (1.148) | (1.045) | 7.260 | 6.650 | (956) |
| Hagnaður fyrir skatta | 7.991 | 7.376 | 6.898 | 12.451 | 14.339 | 3.624 |
| Tekjuskattur | (1.626) | (1.459) | (1.258) | (1.240) | (724) | (482) |
| Hagnaður árshelminga | 6.365 | 5.917 | 5.640 | 11.211 | 13.615 | 3.142 |
Fjárhæðir í árshelmingayfirlitum eru ekki kannaðar
| Eignarhluti í eigu |
Eignarhluti í eigu |
|||
|---|---|---|---|---|
| Nafn félags | Staðsetning | Starfsemi | samstæðu | minnihluta |
| Hampidjan Baltic UAB | Litháen | Veiðaf. framl. | 100% | |
| Hampidjan Australia | Ástralía | Veiðafærag. | 80% | 20% |
| Hampidjan New Zealand LTD | Nýja Sjálandi | Veiðafærag. | 100% | |
| Hampidjan Canada LTD | Kanada | Veiðafærag. | 100% | |
| Hampidjan USA Inc | Bandaríkin | Veiðafærag. | 100% | |
| Swan Net USA, dótturfélag Hampidjan USA Inc | Bandaríkin | Veiðafærag. | 65% | 35% |
| OTTER Ultra Low Drag LTD | Cayman Is | Eignarh.f. | 100% | |
| Cosmos Trawl A/S | Danmörku | Veiðafærag. | 100% | |
| Nordsötrawl, dótturfélag Cosmos Trawl A/S | Danmörku | Veiðafærag. | 80% | 20% |
| Strandby Net A/S, dótturfélag Cosmos Trawl A/S | Danmörku | Veiðafærag. | 80% | 20% |
| Limet Ejendomme A/S, dótturfélag Cosmos Trawl A/S | Danmörku | Fasteignaf. | 75% | 25% |
| Swan Net Gundry LTD | Írlandi | Veiðafærag. | 61% | 39% |
| Hampiðjan Ísland ehf | Íslandi | Veiðafærag. | 100% | |
| Voot beita ehf. | Íslandi | Veiðafærag. | 68% | 32% |
| Fasteignafélagið Miðhús ehf | Íslandi | Fasteignaf. | 53% | 47% |
| Tor-Net LP SA | Spáni | Veiðafærag. | 100% | |
| P/F Von | Færeyjar | Eignarh.f. | 99% | 1% |
| P/F Vónin, dótturfélag P/F Von | Færeyjar | Veiðafærag. | 100% | |
| Vonin Canada Ltd, dótturfélag P/F Vónin | Kanada | Veiðafærag. | 100% | |
| Qalut Vonin, dótturfélag P/F Vónin | Grænland | Veiðafærag. | 75% | 25% |
| Vónin Ísland ehf, dótturfélag P/F Vónin | Íslandi | Veiðafærag. | 100% | |
| Vónin Refa AS, dótturfélag P/F Von | Noregi | Veiðafærag. | 100% | |
| Tromso Sjosenter AS, dótturfélag Vónin Refa AS | Noregi | Veiðafærag. | 100% | |
| Heroy Terminal AS, dótturfélag Vónin Refa AS | Noregi | Veiðafærag. | 100% | |
| UAB Vónin Lithuania, dótturfélag P/F Von | Litháen | Veiðafærag. | 100% |
Hlutdeild minnihluta í eigin fé dótturfélaga í lok tímabilsins er 11,4 milljónir evra. Af þeirri fjárhæð er hluti minnihluta í Swan Net Gundry ltd. 6,7 milljónir evra. Aðrir hlutar minnihluta eru í Hampidjan USA, Cosmos Trawl A/S, P/F Von, Hampidjan Australia, Voot beitu ehf og Fasteignafélaginu Miðhús ehf.
Swan Net Gundry ltd á Írlandi er eina félagið innan samstæðunnar sem telst vera með minnihluta sem er verulegur fyrir samstæðuna. Upplýsingar um efnahag og rekstur félagsins koma fram í skýringu nr. 4 um starfsþætti, starfsþáttur 2.
Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.