AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Origo

Board/Management Information Oct 21, 2019

2208_iss_2019-10-21_37b651b3-5ebc-44dc-b792-32c639c83b95.html

Board/Management Information

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Disclosure 375714

Origo - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Origo hf. Breytingar á stjórn og Gunnar Zoëga ráðinn framkvæmdastjóri Notendalausna Origo

Gunnar Zoëga hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Notendalausna hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Origo. Jafnhliða hefur Gunnar tilkynnt úrsögn sína sem varamaður úr stjórn Origo. Emil Einarsson, sem hefur starfað sem framkvæmdastjóri Notendalausna, verður forstöðumaður Viðskiptatengsla hjá Origo.

Notendalausnir Origo eru einn öflugasti söluaðili á ýmiss konar notendabúnaði, svo sem á einmenningstölvum (PC) og hljóð- og myndlausnum til fyrirtækja og endursöluaðila. Auk þess bjóða Notendalausnir viðskiptavinum afgreiðslukerfi, prentlausnir og hraðbankakerfi.

„Gunnar var framkvæmdastjóri hjá Origo um árabil en hefur undanfarið ár setið sem varamaður í stjórn Origo. Hann þekkir vel til okkar atvinnugreinar og er öllum hnútum kunnugur í starfsemi Origo. Það er afar ánægjulegt fá að njóta krafta Gunnars sem stjórnanda hjá Origo á ný,“ segir Finnur Oddsson forstjóri Origo.

Viðskiptatengsl fá útvíkkað hlutverk og munu leggja áherslu á sérfræðiráðgjöf í upplýsingatækni gagnvart stærri viðskiptavinum, efla tengsl við þá, samræma sölustarf þvert á Origo og bjóða viðskiptavinum virðisaukandi lausnir sem auka hagkvæmni í rekstri. Emil Einarsson hefur áralanga reynslu í sölustarfi og býr yfir mikilli þekkingu á upplýsingatæknirekstri fyrirtækja. Við bindum því miklar vonir við að með starfi Viðskiptatengsla muni þjónustu við viðskipavini okkar í síbreytilegum heimi upplýsingatækni eflast enn frekar,“ segir Finnur.

Í framkvæmdastjórn Origo sitja, auk forstjóra, Dröfn Guðmundsdóttir, Gunnar Petersen, Gunnar Zoëga, Hákon Sigurhansson, Ingimar Bjarnason og Örn Alfreðsson.

Eftirfarandi skipa stjórn Origo hf. :

Guðmundur Jóh. Jónsson

Hildur Dungal, varaformaður

Hjalti Þórarinsson

Ívar Kristjánsson, formaður

Svafa Grönfeldt

Elísabet Grétarsdóttir, varamaður

Stjórn félagsins er ákvörðunarbær, sbr. 71. gr. laga um hlutafélög.

Nánari upplýsingar veitir Finnur Oddsson (með tölvupósti á [email protected] eða í síma 516-1000).

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.