Annual / Quarterly Financial Statement • Jan 29, 2020
Annual / Quarterly Financial Statement
Open in ViewerOpens in native device viewer
Origo hf. Ársreikningur samstæðunnar 2019
Origo hf. 105 Reykjavík Borgartúni 37
Kt. 530292-2079
| Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra | 3 |
|---|---|
| Áritun óháðs endurskoðanda | 5 |
| Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu | 9 |
| Efnahagsreikningur | 10 |
| Eiginfjáryfirlit | 11 |
| Sjóðstreymisyfirlit | 12 |
| Skýringar | 13 |
| Óendurskoðuð fylgiskjöl: | |
| Ársfjórðungayfirlit | 45 |
| Stjórnarháttaryfirlýsing | 47 |
| Ófjárhagsleg upplýsingagjöf | 49 |
Origo hf. veitir viðskiptavinum sínum heildarlausnir á sviði upplýsingatækni með þróun og sölu á hugbúnaði, tölvu- og skrifstofubúnaði, ráðgjöf og tengdri þjónustu. Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Origo hf. og dótturfélaga, en í samstæðunni eru fjögur félög.
Samkvæmt rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu nam hagnaður af rekstri samstæðunnar 456 millj. kr. á árinu 2019. Tekjur samstæðunnar af seldum vörum og þjónustu námu 14.845 millj. kr. á árinu. Eigið fé samstæðunnar í árslok var 6.817 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Vísað er í skýringar 24 til 28 vegna áhættustýringar félagsins.
Þann 1. febrúar 2019 voru tilkynntar breytingar á skipulagi hjá Origo sem ætlað er að einfalda stjórnskipulag, efla þjónustu við viðskiptavini og styrkja rekstur. Eftir breytinguna verður starfssemi Origo rekin í fjórum tekjusviðum og tveimur stoðsviðum, þ.e. Notendalausnir, Hugbúnaðarlausnir, Viðskiptalausnir og nýtt svið Þjónustulausna, sem öll njóta svo stuðnings Mannauðs- og Fjármálasviðs.
Í lok mars innleystu starfsmenn kauprétti samkvæmt kauparéttaráætlun félagsins 4.4 millj. hluti fyrir um 75 millj. kr. Kaupréttaráætlun sem tilkynnt var um þann 1. apríl 2016 er nú lokið og engir kaupréttir eru útistandandi hjá félaginu.
Á aðalfundi Origo hf. 7. mars 2019 var samþykkt að lækka hlutafé félagsins um 5.703.309 krónur til samsvarandi lækkunar á eigin hlutum félagsins. Skilyrðum fyrir lækkuninni var fullnægt 15. mars 2019.
Í lok maí 2019 keypti Origo hf. allt hlutafé í Strikamerki hf. en fyrirtækið leggur áherslu á afgreiðslulausnir, handtölvulausnir og prentlausnir.
Um miðjan júlí 2019 kom Origo að því að endurvekja starfssemi Tölvuteks í gegnum dótturfélag sitt, Sense ehf., og er félagið með starfsemi í Reykjavík og á Akureyri.
Í september 2019 keypti Origo hf. félagið Bus Travel IT, sem þróar umsjónarlausn fyrir ferðaþjónustufyrirtæki.
Í október 2019 fékk Origo hf. viðurkenningu frá Credit Info sem Framúrskarandi fyrirtæki og er þar í efsta sæti upplýsingatæknifyrirtækja.
Í desember 2019 keypti Origo hf. The Booking Factory af Buuqit.com Inc. The Booking Factory er hótelbókunarkerfi sem er í notkun lítilla og meðalstórra hótela í Bretlandi, á Íslandi og víðar.
Á árinu 2019 keypti félagið alls 31,1 millj. eigin hlutir í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins. Gildandi endurkaupaáætlun félagsins lauk þann 7. janúar 2020. Eftir að endurkaupaáætlun lauk á Origo nú samtals 5,4% af heildarhlutafé félagsins sem er 460 millj. kr.
Hlutafé í árslok skiptist á 519 hluthafa, en þeir voru 576 í ársbyrjun. Í árslok 2019 áttu þrír hluthafar yfir 10% af hlutafé í félaginu en tíu stærstu hluthafar félagsins eru:
| Hvalur hf. | 11,5% |
|---|---|
| Birta lífeyrissjóður | 11,2% |
| Lífeyrissjóður verslunarmanna | 10,5% |
| Kvika banki hf. | 9,7% |
| Sjóvá - Almennar tryggingar hf. | 4,5% |
| Lífsverk lífeyrissjóður | 4,5% |
| Arion banki hf. | 3,5% |
| Landsbréf Úrvalsbréf | 3,3% |
| Landsbankinn hf. | 3,2% |
| HEF Capital ehf. | 2,5% |
| *Eignarhlutur að teknu tillliti til eigin bréfa. |
Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði 180 millj. kr. arður til hluthafa á árinu 2020. Vísað er til ársreikningsins um ráðstöfun hagnaðar og aðrar breytingar á eiginfjárreikningum.
Skráð hlutafé félagsins nam í árslok 459 millj. kr., en félagið átt eigin hluti að nafnverði 24 millj. kr. í árslok 2019. Hlutaféð er í einum flokki, sem skráður er í Kauphöll Íslands. Allir hlutir njóta sömu réttinda.
Á aðalfundi félagsins þann 7. mars 2019 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa fyrir hönd félagsins allt að 10% nafnverði hlutafjár félagsins, sbr. VIII. kafla laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Kaupgengi hluta skal miða við síðasta skráða gengi á Nasdaq OMX Iceland hf. áður en samningur er gerður. Gildistími heimildarinnar er allt að átján mánuðir. Með samþykkt tillögu þessarar féll úr gildi sams konar heimild sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 2. mars 2018.
Stjórn Origo hf. leitast við að viðhalda góðum stjórnarháttum og fylgja Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út í endurskoðaðri útgáfu í júní 2015. Leiðbeiningarnar eru aðgengilegar á vef Viðskiptaráðs Íslands www.vi.is. Samkvæmt ákvörðun aðalfundar Origo þann 2. mars 2018 var skipuð tilnefningarnefnd sem tilnefnir frambjóðendur til stjórnarsetu í félaginu. Hlutverk tilnefningarnefndar skal meðal annars felast í því að meta tilvonandi stjórnarmenn út frá hæfni, reynslu, þekkingu og óhæði. Einnig að gæta að kynjahlutföllum í stjórn félagsins og undirbúa og leggja fram tillögur, byggðar á ofangreindu mati, um kosningu stjórnarmanna á aðalfundi félagsins. Félagið er með skráð hlutabréf í Kauphöll Íslands hf. og ber því að fylgja leiðbeiningum um stjórnarhætti samkvæmt reglum Kauphallarinnar sem hægt er að nálgast á vef Kauphallarinnar. Frekari upplýsingar um stjórn og stjórnarhætti er að finna í kaflanum Stjórnarháttayfirlýsing og ófjárhagsleg upplýsingagjöf eru fylgiskjöl með ársreikningnum.
Ársreikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur um upplýsingagjöf í samstæðureikningum félaga sem hafa verðbréf sín skráð á skipulegum verðbréfamarkaði.
Samkvæmt bestu vitneskju er það álit okkar að samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar á árinu 2019, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar 31. desember 2019 og breytingu á handbæru fé á árinu 2019.
Jafnframt er það álit okkar að samstæðuársreikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar, stöðu hennar og lýsi helstu áhættuþáttum og óvissu sem samstæðan býr við.
Stjórn og forstjóri Origo hf. hafa í dag rætt um samstæðuársreikning félagsins fyrir árið 2019 og staðfesta hann með undirritun sinni. Stjórn og forstjóri leggja til við aðalfund félagsins að samþykkja ársreikninginn.
Reykjavík, 29. janúar 2020
Í stjórn félagsins:
Ívar Kristjánsson
Guðmundur Jóhann Jónsson Hildur Dungal
Hjalti Þórarinsson Svafa Grönfeldt
Forstjóri:
Finnur Oddson
Til stjórnar og hluthafa Origo hf.
Við höfum endurskoðað samstæðuársreikning Origo hf. ("samstæðan") fyrir árið 2019. Samstæðuársreikningurinn hefur að geyma rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstreymisyfirlit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.
Það er álit okkar að samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af fjárhagsstöðu samstæðunnar 31. desember 2019 og afkomu samstæðunnar og breytingu á handbæru fé á árinu 2019, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um ársreikninga skráðra félaga.
Við endurskoðuðum í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt stöðlunum er lýst frekar í kaflanum Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun samstæðuársreikningsins í árituninni. Við erum óháð samstæðunni í samræmi við siðareglur fyrir endurskoðendur á Íslandi og höfum uppfyllt aðrar siðferðisskyldur okkar í samræmi við þær reglur. Við teljum að við höfum aflað nægilegra og viðeigandi endurskoðunargagna til að byggja álit okkar á.
Lykilþættir endurskoðunar eru þeir þættir, sem samkvæmt faglegu mati okkar, höfðu mest vægi við endurskoðun samstæðuársreikningsins. Við gefum ekki sérstakt álit á einstökum lykilþáttum en við tókum á þeim við endurskoðun á samstæðuársreikningnum í heild og við ákvörðun um álit okkar á honum.
Viðskiptavild félagsins nemur 1.881 millj. kr. í árslok 2019. Árlega ber að framkvæma virðisrýrnunarpróf á viðskiptavild til að meta hvort virði viðskiptavildar verði endurheimt með framtíðarsjóstreymi.
Viðskiptavildin er 16% af heildareignum samstæðunnar og 28% af eigin fé samstæðunnar í árslok.
Viðskiptavildin hefur myndast við kaup á félögum og hefur verið útdeilt niður á minnstu aðgreinanlegu fjárskapandi einingar af stjórnendum félagsins.
Virðisrýrnunarpróf á viðskiptavild er lykilþáttur í endurskoðun á ársreikningi samstæðunnar þar sem viðskiptavildin er stór hluti heildareigna og vegna innbyggðrar óvissu í áætlunum stjórnenda um afkomu og aðrar forsendur stjórnenda sem notaðar eru við núvirðingu áætlaðs framtíðarsjóðstreymis einstakra eininga.
Í skýringu 13 er fjallað um virðisrýrnunarpróf sem framkvæmt var á viðskiptavild samstæðunnar í árslok og í skýringu 33 er fjallað um reikningsskilaaðferðir.
Við ásamt verðmatssérfræðingum okkar lögðum mat á forsendur sem stjórnendur nota við útreikning á núvirtu framtíðarsjóðstreymi fyrir hverja fjárskapandi einingu. Í þeirri vinnu fólst m.a.:
• Forsendur rekstrar- og sjóðstreymisáætlana til næstu fimm ára voru yfirfarnar. Í þeirri vinnu fólst að lagt var mat á forsendur um tekjur, rekstrarkostnað, framlegð og fjárfestingar fyrir spátímabilið.
• Lagt var mat á forsendur fyrir áætluðum framtíðarvexti að loknu spátímabilinu.
• Við yfirferð á rekstrar- og sjóðstreymisáætlunum er meðal annars horft til frávika frá áætlunum fyrri ára til að leggja mat á hversu líklegt er að þær standist.
• Farið var yfir ávöxtunarkröfu (WACC) einstakra fjárskapandi eininga sem notuð er við núvirðingu á fjárskapandi einingum. Ávöxtunarkrafan var borin saman við fjármagnskostnað félagsins og aðrar markaðsforsendur.
• Forsendur stjórnenda voru bornar saman við ytri og innri gögn.
• Lagt var mat á reiknilíkan félagsins og niðurstöður voru endurreiknaðar.
• Við yfirfórum skýringar í ársreikningi og staðfestum að helstu upplýsingar sem reikningsskilareglur kveða á um kæmu fram.
Bókfært verð eignarhlutar í Tempo ehf. nam 2.698 millj. kr. í árslok 2019. Í kjölfar sölu á 55% eignarhlut í Tempo ehf. á árinu 2018 var 45% eignarhlutur Origo hf. í félaginu endurmetinn á gangvirði en síðar samkvæmt hlutdeildaraðferð. Mat á eignarhlut í Tempo ehf. er lykilþáttur í endurskoðun á ársreikningi samstæðunnar þar sem eignarhluturinn er stór hluti af eignum félagsins og kanna þarf hvort að það séu vísbendingar um virðisrýrnun á eignarhlutnum.
Eignarhlutur í Tempo ehf. nam 23% af heildareignum og 39% af eigið fé í árslok 2019.
Í skýringu 14 er fjallað um eignarhlut í hlutdeildarfélagi og í skýringu 33 er fjallað um reikningsskilaaðferðir.
Endurskoðunaraðgerðir okkar miðuðu að því að leggja mat á hvort vísbending sé um virðisrýrnun á eignarhlutanum. Í þeirri vinnu fólst m.a.:
• Lagt var mat á forsendur stjórnenda á virði eignarhlutar í Tempo ehf. og þær bornar saman við ytri og innri gögn.
• Lagt var mat á áætlarnir félagsins og framtíðarhorfur.
• Við yfirfórum skýringar í ársreikningi og staðfestum að helstu upplýsingar sem reikningsskilareglur kveða á um kæmu fram.
Stjórn og forstjóri bera ábyrgð á öðrum upplýsingum. Aðrar upplýsingar eru ársskýrsla að undanskildum samstæðuársreikningi og áritun okkar á hann. Álit okkar á samstæðuársreikningnum nær ekki til annarra upplýsinga og við staðfestum þær ekki á neinn hátt.
Í tengslum við endurskoðun okkar á samstæðuársreikningnum ber okkur að lesa aðrar upplýsingar í ársskýrslu þegar þær liggja fyrir og meta hvort þær séu í verulegu ósamræmi við samstæðuársreikninginn eða aðra þekkingu sem við höfum aflað okkur á félaginu við endurskoðunina eða virðast verulega rangar. Ef við, á grundvelli vinnu okkar, ályktum að verulegar rangfærslur séu í öðrum upplýsingum ber okkur að skýra frá því. Ársskýrslan liggur ekki fyrir við áritun okkar á samstæðuársreikninginn en við munum fá hana afhenta til yfirferðar áður en hún verður gefin út.
Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð og glöggri framsetningu samstæðuársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og fyrir því innra eftirliti sem þau telja nauðsynlegt til að gera þeim kleift að setja fram samstæðuársreikning sem er án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Við gerð samstæðuársreikningsins ber stjórn og forstjóra að leggja mat á rekstarhæfi samstæðunnar og upplýsa, eftir því sem við á, um þætti er varða rekstrarhæfi og miða grundvöll reikningsskilanna við áframhaldandi rekstrarhæfi, nema þau ætli annað hvort að leysa samstæðuna upp eða hætta starfsemi hennar, eða hafa engan annan raunhæfan kost en að gera það.
Markmið okkar eru að öðlast hæfilega vissu um hvort samstæðuársreikningurinn í heild sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka, og að gefa út áritun endurskoðanda sem inniheldur álit okkar. Í hæfilegri vissu felst mikil vissa en ekki trygging fyrir því að endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla muni alltaf leiða í ljós verulega annmarka ef þeir eru fyrir hendi. Annmarkar geta komið fram vegna sviksemi eða mistaka og eru taldir verulegir ef þeir einir og sér eða samanlagt gætu haft áhrif á efnahagslegar ákvarðanir sem notendur samstæðuársreikningsins taka á grundvelli hans.
Við endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla beitum við ávallt faglegri dómgreind og viðhöfum faglega gagnrýni. Að auki:
Við upplýsum stjórn og endurskoðunarnefnd meðal annars um áætlað umfang og tímasetningar endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem upp kunna að koma í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka á innra eftirliti.
Við lýsum því einnig yfir við stjórn og endurskoðunarnefnd að við höfum uppfyllt skyldur siðareglna um óhæði og upplýsum um tengsl eða önnur atriði sem gætu mögulega talist hafa áhrif á óhæði okkar og þegar við á, til hvaða varnaraðgerða við höfum gripið.
Af þeim atriðum sem við höfum upplýst stjórn og endurskoðunarnefnd um, leggjum við mat á hvaða þættir höfðu mesta þýðingu við endurskoðun samstæðuársreikningsins og eru því lykilþættir endurskoðunarinnar. Við lýsum þessum þáttum í áritun okkar nema lög og reglur útiloki að upplýst sé um þá eða, við einstakar mjög sjaldgæfar kringumstæður, þegar við metum að ekki skuli upplýsa um lykilþátt þar sem neikvæðar afleiðingar þess eru taldar vega þyngra en almennir hagsmunir af birtingu slíkra upplýsinga.
Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 104 gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga staðfestum við samkvæmt okkar bestu vitund að í skýrslu stjórnar sem fylgir þessum samstæðuársreikningi eru veittar þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga og koma ekki fram í skýringum.
Jón Arnar Óskarsson, ber ábyrgð á endurskoðun samstæðuársreikningsins og þessari áritun.
Reykjavík, 29. janúar 2020
Jón Arnar Óskarsson
| Skýr. | 2019 | 2018 | |||
|---|---|---|---|---|---|
| Seldar vörur og þjónusta | 7 | 14.845.075 | 15.716.686 | ||
| Vörunotkun og kostnaðarverð seldrar þjónustu | 8 | ( 10.999.874) | ( 11.543.321) | ||
| Framlegð | 3.845.201 | 4.173.365 | |||
| Rekstrarkostnaður | 9 | ( | 3.425.768) | ( | 3.682.216) |
| Hagnaður fyrir fjármunatekjur og fjármagnsgjöld | 419.433 | 491.149 | |||
| Áhrif af sölu á eignarhlut í Tempo ehf. | 0 | 5.097.947 | |||
| Aðrar fjármunatekjur | 476.024 | 79.545 | |||
| Fjármagnsgjöld | ( | 151.478) | ( | 113.039) | |
| Hrein (fjármagnsgjöld) fjármunatekjur | 11 | 324.546 | 5.064.453 | ||
| Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags | 14 | 8.779 | ( | 21.522) | |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 752.758 | 5.534.080 | |||
| Tekjuskattur | 22 | ( | 74.493) | ( | 93.610) |
| Hagnaður ársins | 678.265 | 5.440.470 | |||
| Rekstrarliðir sem kunna að verða endurflokkaðir | |||||
| í rekstrarreikning færðir beint á eigið fé: | |||||
| Þýðingarmunur vegna starfsemi dóttur og hlutdeildarfélaga | 117.884 | 6.256 | |||
| Innleystur þýðingarmunur vegna slita/sölu á dótturfélagi | 11 | ( | 339.969) | ( | 26.679) |
| Rekstrarliðir færðir beint á eigið fé alls | ( | 222.085) | ( | 20.423) | |
| Heildarhagnaður ársins | 456.180 | 5.420.047 | |||
| EBITDA* | 1.006.261 | 1.128.412 | |||
| Skipting hagnaðar: | |||||
| Hluthafar móðurfélagsins | 684.537 | 5.440.470 | |||
| Hlutdeild minnihluta | ( | 6.272) | 0 | ||
| Hagnaður ársins | 678.265 | 5.440.470 | |||
| Skipting heildarhagnaðar: | |||||
| Hluthafar móðurfélagsins | 462.452 | 5.420.047 | |||
| Hlutdeild minnihluta | ( | 6.272) | 0 | ||
| Heildarhagnaður ársins | 456.180 | 5.420.047 | |||
| Hagnaður á hlut: | |||||
| Hagnaður á hlut | 19 | 1,50 | 11,74 | ||
| Þynntur hagnaður á hlut | 19 | 1,50 | 11,65 |
* EBITDA er hagnaður fyrir fjármunatekjur og fjármagnsgjöld án afskrifta. Skýringar á blaðsíðum 13 - 44 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuársreikningnum.
| Skýr. | 2019 | 2018 | ||
|---|---|---|---|---|
| Eignir: | ||||
| Rekstrarfjármunir | 12 | 2.029.410 | 533.074 | |
| Óefnislegar eignir | 13 | 2.844.893 | 2.436.871 | |
| Tekjuskattseign | 22 | 18.051 | 43.426 | |
| Eignarhlutir í hlutdeildarfélagi | 14 | 2.684.027 | 2.697.564 | |
| Verðbréfaeign og aðrar langtímakröfur | 21 | 161.222 | 13.023 | |
| Fastafjármunir | 7.737.603 | 5.723.958 | ||
| Birgðir | 15 | 1.321.497 | 1.646.801 | |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 16 | 1.999.686 | 1.802.366 | |
| Handbært fé | 17 | 825.847 | 3.175.454 | |
| Veltufjármunir | 4.147.030 | 6.624.621 | ||
| Eignir samtals | 11.884.633 | 12.348.579 | ||
| Eigið fé: | ||||
| Hlutafé | 436.105 | 462.918 | ||
| Yfirverðsreikningur innborgaðs hlutafjár | 152.936 | 821.044 | ||
| Annað bundið eigið fé | 2.632.498 | 2.701.942 | ||
| Óráðstafað eigið fé | 3.568.871 | 4.175.131 | ||
| Eigið fé hluthafa móðurfélagsins | 18 | 6.790.410 | 8.161.035 | |
| Hlutdeild minnihlutaeigenda | 26.969 | 33.241 | ||
| Eigið fé samtals | 18 | 6.817.379 | 8.194.276 | |
| Skuldir: | ||||
| Vaxtaberandi langtímaskuldir | 20 | 579.439 | 756.987 | |
| Leiguskuldbindingar | 21 | 1.392.432 | 0 | |
| Langtímaskuldir | 1.971.871 | 756.987 | ||
| Næsta árs afborgun leiguskuldbindinga | 21 | 310.118 | 0 | |
| Vaxtaberandi skammtímaskuldir | 20 | 60.702 | 124.054 | |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 23 | 2.724.563 | 3.273.262 | |
| Skammtímaskuldir | 3.095.383 | 3.397.316 | ||
| Skuldir samtals | 5.067.254 | 4.154.303 | ||
| Eigið fé og skuldir samtals | 11.884.633 | 12.348.579 |
Skýringar á blaðsíðum 13 - 44 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuársreikningnum.
| Skýr. | Hlutafé | Yfirverðs- reikningur innborgaðs hlutafjár |
Annað bundið eigið fé* |
Óráðstafað eigið fé |
Eigið fé hluthafa móður- félagsins |
Hlutdeild minni hluta eigenda |
Eigið fé samtals |
||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Árið 2018 | |||||||||
| Eigið fé 31.12.2017 Áhrif innleiðingar IFRS 15 |
458.609 | 769.670 | 656.420 | 1.043.422 ( 256.565) ( |
2.928.121 256.565) |
0 | 2.928.121 ( 256.565) |
||
| Eigið fé 1.1.2018 | 458.609 | 769.670 | 656.420 | 786.857 | 2.671.556 | 0 | 2.671.556 | ||
| Heildarhagnaður ársins | ( | 20.423) | 5.440.470 | 5.420.047 | 5.420.047 | ||||
| Fært á bundið eigið fé Fært af bundnu |
18 | 22.497 ( | 22.497) | 0 | 0 0 |
||||
| eigin fé við sölu | 18 | ( | 118.380) | 118.380 | 0 | 0 | |||
| Matsbreyting eignarhlutar Áfallinn kostnaður |
14 | 2.161.828 ( 2.161.828) | 0 | 0 0 |
|||||
| v/ kaupréttarsamninga Minnihluti færður í |
10 | 13.749 | 13.749 | 13.749 0 |
|||||
| samstæðu | 0 | 33.241 | 33.241 | ||||||
| Selt nýtt hlutafé | 18 | 6.563 | 105.637 | 112.200 | 112.200 | ||||
| Keypt eigin bréf 18 ( | 2.254) ( | 54.263) | ( 56.517) |
( 56.517) |
|||||
| Eigið fé 31.12.2018 | 18 | 462.918 | 821.044 | 2.701.942 | 4.175.131 | 8.161.035 | 33.241 | 8.194.276 |
| Eigið fé 31.12.2018 | 462.918 | 821.044 | 2.701.942 | 4.175.131 | 8.161.035 | 33.241 | 8.194.276 | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Áhrif innleiðingar IFRS 16 | 1 | ( 141.186) ( |
141.186) | ( 141.186) |
||||
| Eigið fé 1.1.2019 | 462.918 | 821.044 | 2.701.942 | 4.033.945 | 8.019.849 | 33.241 | 8.053.090 | |
| Heildarhagnaður ársins | ( 222.085) |
684.537 | 462.452 ( | 6.272) | 456.180 | |||
| Fært á bundið eigið fé | 18 | 152.641 ( | 152.641) | 0 | 0 | |||
| Áfallinn kostnaður | ||||||||
| v/ kaupréttarsamninga | 10 | 3.113 | 3.113 | 3.113 | ||||
| Greiddur arður | 18 | ( 1.000.083) ( 1.000.083) | ( 1.000.083) | |||||
| Seld eigin bréf | 18 | 4.253 | 68.447 | 72.700 | 72.700 | |||
| Keypt eigin bréf 18 ( | 31.066) ( | 736.555) | ( 767.621) |
( 767.621) |
||||
| Eigið fé 31.12.2019 | 18 | 436.105 | 152.936 | 2.632.498 | 3.568.871 | 6.790.410 | 26.969 | 6.817.379 |
* sjá sundurliðun í skýringu 18.
Skýringar á blaðsíðum 13 - 44 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuársreikningnum.
| Skýr. | 2019 | 2018 | |||
|---|---|---|---|---|---|
| Rekstrarhreyfingar: | |||||
| Hagnaður ársins | 678.265 | 5.440.470 | |||
| Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | |||||
| Afskriftir | 13 | 586.828 | 637.263 | ||
| Hreinar fjármunatekjur | 11 | ( | 324.546) | ( | 5.064.453) |
| Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags | 14 | ( | 8.779) | 21.522 | |
| Tekjuskattur | 22 | 74.493 | 93.610 | ||
| 1.006.261 | 1.128.412 | ||||
| Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum: | |||||
| Birgðir, lækkun (hækkun) | 389.466 | ( | 671.482) | ||
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, hækkun | ( | 163.078) | ( | 32.127) | |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, (lækkun) hækkun | ( | 532.586) | 869.387 | ||
| Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum | ( | 306.198) | 165.778 | ||
| Innheimtar vaxtatekjur | 58.055 | 33.748 | |||
| Greidd vaxtagjöld | ( | 129.332) | ( | 111.096) | |
| Handbært fé frá rekstri | 628.786 | 1.216.842 | |||
| Fjárfestingarhreyfingar: | |||||
| Fjárfesting í rekstrarfjármunum | 12 | ( | 332.915) | ( | 230.274) |
| Söluverð rekstrarfjármuna | 12 | 0 | 13.377 | ||
| Fjárfesting í óefnislegum eignum | 13 | ( | 192.626) | ( | 731.753) |
| Fjárfesting í rekstrareiningum að frádregnu handbæru fé við yfirtöku | 6 | ( | 337.654) | ( | 130.652) |
| Hlutafjárlækkun hjá hlutdeildarfélagi | 14 | 63.574 | 0 | ||
| Fjárfesting í Tempo ehf. eftir sölu | 14 | 0 | ( | 111.240) | |
| Söluverð á Tempo að frádregnu handbæru fé við sölu | 14 | 77.578 | 3.643.330 | ||
| Langtímakröfur, breyting | ( | 39) | 0 | ||
| Fjárfestingarhreyfingar | ( | 722.082) | 2.452.788 | ||
| Fjármögnunarhreyfingar: | |||||
| Keypt eigin bréf | 18 | ( | 767.621) | ( | 56.517) |
| Seld eigin bréf | 18 | 72.700 | 0 | ||
| Innborgað hlutafé | 18 | 0 | 112.200 | ||
| Greiddur arður | 18 | ( | 1.000.083) | 0 | |
| Tekin ný langtímalán | 20 | 0 | 185.785 | ||
| Afborganir langtímalána | 20 | ( | 561.490) | ( | 1.043.870) |
| Fjármögnunarhreyfingar | ( | 2.256.494) | ( | 802.402) | |
| (Lækkun) hækkun á handbæru fé | ( | 2.349.790) | 2.867.228 | ||
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | 183 | 11.483 | |||
| Handbært fé í ársbyrjun | 3.175.454 | 296.743 | |||
| Handbært fé í árslok | 17 | 825.847 | 3.175.454 | ||
| Fjárfestingar- og fjármögnunarhreyfingar án greiðsluáhrifa | |||||
| Fjárfesting í dótturfélagi | ( | 100.000) | 0 | ||
| Aðrar skammtímaskuldir | 100.000 | 0 | |||
Skýringar á blaðsíðum 13 - 44 eru óaðskiljanlegur hluti af samstæðuársreikningnum.
Origo hf. áður Nýherji hf. ("Félagið") er íslenskt hlutafélag. Höfuðstöðvar félagsins eru í Borgartúni 37, Reykjavík. Samstæðuársreikningur félagsins fyrir árið 2019 hefur að geyma ársreikning félagsins og dótturfélaga þess, sem vísað er til í heild sem "samstæðunnar" og til einstakra félaga sem "samstæðufélaga".
Hlutverk félagsins er að veita viðskiptavinum sínum heildarlausnir á sviði upplýsingatækni með þróun hugbúnaðar, sölu á tölvu- og skrifstofubúnaði, ráðgjöf og tengdri þjónustu.
Ársreikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Ársreikningur samstæðunnar er jafnframt í samræmi við lög um ársreikninga og reglugerð um framsetningu og innihald ársreikninga og samstæðureikninga. Samantekt á mikilvægum reikningsskilaaðferðum er að finna í skýringu 34.
Stjórn félagsins staðfesti ársreikninginn 29. janúar 2020.
Samstæðuársreikningurinn er gerður á grundvelli kostnaðarverðs. Fjallað er um aðferðir við mat á gangvirði í skýringu 3.
Ársreikningurinn er birtur í íslenskum krónum, sem er starfrækslugjaldmiðill móðurfélagsins. Allar fjárhæðir eru birtar í þúsundum króna.
Gerð samstæðuársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrugðnar þessu mati.
Mat og forsendur þess eru í stöðugri endurskoðun. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað og þeim framtíðartímabilum sem breytingarnar hafa áhrif á.
Upplýsingar um mikilvægar ákvarðanir þar sem reikningsskilaaðferðir hafa mest áhrif á skráðar fjárhæðir eigna og skulda í ársreikningnum er að finna í skýringu 13 um mat á endurheimtanlegum fjárhæðum fjárskapandi eininga sem innihalda viðskiptavild.
Við ákvörðun gangvirðis er byggt á forsendum sem háðar eru mati stjórnenda á þróun ýmissa þátta í framtíðinni. Raunverulegt söluverð eigna og uppgreiðsluverðmæti skulda kann að vera frábrugðið þessu mati.
Nokkrar reikningsskilaaðferðir samstæðunnar og skýringar krefjast ákvörðunar á gangvirði, bæði fyrir fjáreignir, fjárskuldir og aðrar eignir og skuldir. Gangvirði hefur verið ákvarðað vegna mats og/eða skýringa samkvæmt eftirfarandi aðferðum. Þar sem við á eru frekari upplýsingar um forsendur við ákvörðun á gangvirði eigna eða skulda í skýringum um viðkomandi eignir og skuldir.
Rekstrarfjármunir og óefnislegar eignir sem yfirteknar eru við samruna eru metnar á gangvirði á yfirtökudegi.
Gangvirði framvirka samninga er fært í gegnum rekstrarreikning og er metið samkvæmt uppgefnu verði frá miðlara.
Gangvirði fjárskulda, sem einungis er ákvarðað vegna skýringa, er reiknað með því að núvirða framtíðargreiðslur höfuðstóls og vaxta með markaðsvöxtum á uppgjörsdegi.
Gangvirði við upphaflega færslu eignarhluts í hlutdeildarfélagi, Tempo ehf., er metið með hliðsjón af söluverði að frádregnu álagi vegna yfirráða af sambærilegum viðskiptum.
Félagið hefur innleitt reikningsskilastaðal IFRS 16 fyrir reikningsár sem hófst 1. janúar 2019. Aðrir alþjóðlegir reikningsskilastaðlar sem tóku gildi 1. janúar 2019 hafa óveruleg áhrif á reikningsskil samstæðunnar.
IFRS 16 innleiðir eitt reikningshaldslegt líkan um færslu leigusamninga í efnahagsreikning leigutaka. Samstæðan hefur tekið upp IFRS 16 með því að beita aðferð uppsafnaðra áhrifa, þar sem uppsöfnuð áhrif upphaflegrar beitingar eru færð á óráðstafað eigið fé 1. janúar 2019. Eigið fé félagsins lækkaði um 141 millj. kr. við innleiðinguna. Vegna þessa hefur samanburðarfjárhæðum vegna ársins 2018 ekki verið breytt, það er þær eru settar fram eins og þær voru birtar áður samkvæmt IAS 17 og tengdum túlkunum. Breytingunum á reikningsskilaaðferðum er lýst nánar hér á eftir.
Samkvæmt fyrri reikningsskilaaðferðum skilgreindi samstæðan við gildistöku samnings hvort hann væri eða innihéldi leigusamning samkvæmt IFRIC 4 Ákvörðun um hvort samningur inniheldur leigusamning . Samstæða leggur nú mat á það hvort samningur sé eða innihaldi leigusamning byggt á nýrri skilgreiningu á leigusamningi. Samkvæmt IFRS 16 er samningur leigusamningur eða inniheldur leigusamning ef hann veitir rétt til yfirráða yfir skilgreindri eign á tímabili í skiptum fyrir endurgjald.
Við upptöku IFRS 16 valdi samstæðan að nýta sér það praktíska úrræði að halda sig við fyrra mat á því hvaða viðskipti eru leigusamningar. Samstæðan beitti því IFRS 16 aðeins á þá samninga sem áður höfðu verið skilgreindir sem leigusamningar. Samningar sem höfðu ekki verið skilgreindir sem leigusamningar samkvæmt IAS 17 og IFRIC 4 voru ekki endurmetnir með tilliti til nýrrar skilgreiningar á leigusamningi. Af því leiðir að skilgreining á leigusamningi samkvæmt IFRS 16 hefur aðeins verið beitt á samninga sem voru gerðir eða var breytt frá og með 1. janúar 2019.
Samstæðan færi eignir og skuldir vegna leigusamninga um skrifstofuhúsnæðis og vöruhúsa. Afnotaréttur á eignunum er færður á meðal rekstrarfjármuna og leiguskuldbinding er færð í sér línu í efnahagsreikningi.
Samstæðan færir leigueign og leiguskuld á upphafsdegi leigusamnings. Leigueignin er upphaflega metin á kostnaðarverði og eftir það á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun og leiðrétt vegna viss endurmats á leiguskuldinni.
Leiguskuldin er upphaflega metin miðað við núvirði leigugreiðslna sem eru ógreiddar á upphafsdegi leigusamningsins, þar sem leigugreiðslur eru núvirtar með innbyggðum vöxtum í leigusamningnum, eða ef það er ekki hægt að ákvarða þá vexti, með vöxtum samstæðunnar á nýju lánsfé. Að jafnaði notar samstæðan sína vexti á nýju lánsfé við núvirðingu leigugreiðslna.
Leiguskuldin er svo hækkuð vegna vaxtagjalda og lækkuð vegna greiddra leigugreiðslna. Hún er endurmetin þegar það er breyting á framtíðarleigugreiðslum vegna breytingar á vísitölu eða vöxtum, breytingar á mati á þeirri fjárhæð sem vænst er að þurfi að greiða á grundvelli hrakvirðistryggingar, eða þegar við á, breytinga á mati á því hvort nokkuð víst er að kaupheimild eða framlengingarheimild verði nýtt eða hvort nokkuð víst er að uppsagnarheimild verði ekki nýtt.
Samstæðan hefur beitt dómgreind við ákvörðun leigutíma sumra leigusamninga þar sem samstæðan er leigutaki og samningarnir innihalda endurnýjunarheimildir. Mat á því hvort samstæðan er nokkuð víss að hún muni nýta slíkar heimildir hefur áhrif á leigutímann, sem hefur veruleg áhrif á fjárhæð færðra leiguskulda og leigueigna.
Við upptöku IFRS 16 eru leiguskuldir vegna leigusamninga sem voru flokkaðir sem rekstrarleigusamningar samkvæmt IAS 17 metnar miðað við núvirði ógreiddra leigugreiðslna, þar sem leigugreiðslur eru núvirtar með vöxtum samstæðunnar á nýju lánsfé þann 1. janúar 2019. Leigueignir eru metnar bókfærðu verði eins og IFRS 16 hefði verið beitt frá upphafsdegi leigusamninga, núvirt með vöxtum leigutaka á nýju lánsfé á degi upphaflegrar beitingar.
Innleiðing IFRS 16 hefur ekki veruleg áhrif á samninga þar sem samstæðan er leigusali öðru leyti en að færð er leigukrafa vegna áframleigu á húsnæði. Samstæðan hefur flokkað þessa leigusamninga sem rekstrarleigusamninga.
Ef staðallinn hefði ekki tekið gildi 1. janúar 2019 hefðu áhrif orðið þau að EBITDA ársins hefði verið um 316 millj. kr. lægri og hagnaður ársins 3 millj. kr. lægri. Áhrif á rekstrarreikning 2019 greinast þannig:
| Rekstrarreikningur | 2019 | Áhrif nýs staðals |
Fyrir IFRS 16 2019 |
|||
|---|---|---|---|---|---|---|
| Seldar vörur og þjónusta | 14.845.075 | 0 | 14.845.075 | |||
| Vörunotkun og kostnaðarverð seldrar þjónustu | ( 10.999.874) | 0 | ( | 10.999.874) | ||
| Framlegð | 3.845.201 | 0 | 3.845.201 | |||
| Rekstrarkostnaður | ( | 3.425.768) | ( | 65.989) | ( | 3.491.757) |
| Hagnaður fyrir fjármunatekjur og fjármagnsgjöld | 419.433 | ( | 65.989) | 353.444 | ||
| Hrein fjármagnsgjöld | 324.546 | 62.616 | 387.162 | |||
| Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags | 8.779 | 0 | 8.779 | |||
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 752.758 | ( | 3.373) | 749.385 | ||
| Tekjuskattur | ( | 74.493) | 675 | ( | 73.818) | |
| Hagnaður tímabilsins | 678.265 | ( | 2.698) | 675.567 | ||
| EBITDA | 1.006.261 | ( | 316.277) | 689.984 |
Afnotaréttur af leigueign er færður á meðal rekstrarfjármuna en um er að ræða leigusamninga um skrifstofuhúsnæðis og vöruhúsa. Áhrif innleiðingar staðalsins á efnahagsreikning samstæðunnar greinist þannig:
| Áhrif nýs | |||
|---|---|---|---|
| Efnahagsreikningur | 31.12.2018 | staðals | 1.1.2019 |
| Rekstrarfjármunir | 533.074 | 1.099.720 | 1.632.794 |
| Tekjuskattseign | 43.426 | 35.296 | 78.722 |
| Verðbréfaeign og aðrar langtímakröfur | 13.023 | 172.934 | 185.957 |
| Aðrir fastafjármunir | 5.134.435 | 0 | 5.134.435 |
| Fastafjármunir | 5.723.958 | 1.307.950 | 7.031.908 |
| Birgðir | 1.646.801 | 0 | 1.646.801 |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 1.802.366 | 29.259 | 1.831.625 |
| Handbært fé | 3.175.454 | 0 | 3.175.454 |
| Veltufjármunir | 6.624.621 | 29.259 | 6.653.880 |
| Eignir samtals | 12.348.579 | 1.337.209 | 13.685.788 |
| Eigið fé | 8.194.276 | ( 141.186) |
8.053.090 |
| Vaxtaberandi langtímaskuldir | 756.987 | 0 | 756.987 |
| Leiguskuldbinding | 0 | 1.011.211 | 1.011.211 |
| Langtímaskuldir | 756.987 | 1.011.211 | 1.768.198 |
| Næsta árs afborgun leiguskuldbindingar | 0 | 467.184 | 467.184 |
| Vaxtaberandi skammtímaskuldir | 124.054 | 0 | 124.054 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 3.273.262 | 0 | 3.273.262 |
| Skammtímaskuldir | 3.397.316 | 467.184 | 3.864.500 |
| Skuldir samtals | 4.154.303 | 1.478.395 | 5.632.698 |
| Eigið fé og skuldir samtals | 12.348.579 | 1.337.209 | 13.685.788 |
Við færslu leiguskulda vegna leigusamninga sem voru flokkaðir sem rekstrarleigusamningar núvirti samstæðan leigugreiðslurnar með því að nota vexti af nýju lánsfé þann 1. janúar 2019. Vegnir meðalvextir eru 4,5%.
| Skuldbindingar vegna rekstarleigusamninga 31. desember 2018 | |
|---|---|
| samkvæmt IAS 17 í ársreikningi samstæðunnar | 1.773.633 |
| Núvirtar með því að nota vexti samstæðunnar af nýju lánsfé 1. janúar 2019. | 1.478.395 |
Notendabúnaður og tengd þjónusta Samstæðan skiptist í þrjá starfsþætti, sem selja vörur og þjónustu á mismunandi mörkuðum. Starfsþættirnir eru:
| 2019 | Notenda búnaður og tengd þjónusta |
Rekstrar- þjónusta og innviðir |
Hugbúnaður og tengd þjónusta |
Samtals | ||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Seldar vörur og þjónusta | 5.568.050 | 4.606.672 | 4.670.353 | 14.845.075 | ||||
| Afkoma starfsþátta (EBITDA) | ( | 37.794) | 275.438 | 768.617 | 1.006.261 | |||
| Afskriftir | ( | 92.580) | ( | 298.702) | ( | 195.546) | ( | 586.828) |
| Hreinar fjármunatekjur | 324.546 | |||||||
| Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags | 8.779 | |||||||
| Tekjuskattur | ( | 74.493) | ||||||
| Hagnaður ársins | 678.265 | |||||||
| Þýðingarmunur v/ dóttur- og hlutdeildarfélaga | ( | 222.085) | ||||||
| Heildarhagnaður ársins | 456.180 | |||||||
| Seldar vörur og þjónusta | 4.693.410 | 4.762.163 | 6.261.113 | 15.716.686 | ||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Afkoma starfsþátta (EBITDA) | 56.297 | 285.840 | 786.275 | 1.128.412 | ||||
| Afskriftir | ( | 27.757) | ( | 163.948) | ( | 445.558) | ( | 637.263) |
| Áhrif sölu á Tempo ehf. | 5.097.947 | |||||||
| Hrein fjármagngjöld | ( | 33.494) | ||||||
| Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags | ( | 21.522) | ||||||
| Tekjuskattur | ( | 93.610) | ||||||
| Hagnaður ársins | 5.440.470 | |||||||
| Þýðingarmunur v/ dóttur- og hlutdeildarfélaga | ( | 20.423) | ||||||
| Heildarhagnaður ársins | 5.420.047 |
Eignir samstæðunnar eru ekki aðgreinanlegar niður á starfsþátt.
| 2019 | 2018 | |
|---|---|---|
| Ísland | 13.570.508 | 12.713.896 |
| Önnur lönd | 1.274.567 | 3.002.790 |
| Tekjur alls | 14.845.075 | 15.716.686 |
| Hugbúnaður | 95.922 | ||
|---|---|---|---|
| Rekstrarfjármunir | 19.419 | ||
| Vörubirgðir | 63.695 | ||
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 34.960 | ||
| Handbært fé | 92.933 | ||
| Yfirteknar eignir | 306.929 | ||
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 39.730 | ||
| Yfirteknar skuldir | 39.730 | ||
| Hreinar aðgreinanlegar eignir alls | 267.199 | ||
| Kaupverð greitt með peningum | 430.588 | ||
| Ógreitt kaupverð | 100.000 | ||
| Kaupverð alls | 530.588 | ||
| Viðskiptavild við yfirtöku | 263.389 | ||
| Áhrif á rekstrarreikning samstæðunnar greinist þannig: | 2019 | ||
| Rekstrartekjur | 624.779 | ||
| Rekstrargjöld | ( | 651.999) | |
| Rekstrartap | ( | 27.220) | |
| Hreinar fjármunatekjur | 24.446 | ||
| Tap ársins | ( | 2.774) | |
| Seldar vörur og þjónusta | |||
| Seldar vörur og þjónusta greinast þannig: | 2019 | 2018 | |
| Seldar vörur og hugbúnaður | 8.487.037 | 9.280.959 | |
| Seld þjónusta | 6.358.038 | 6.435.727 | |
| Seldar vörur og þjónusta samtals | 14.845.075 | 15.716.686 | |
| Vörunotkun og kostnaðarverð sölu | |||
| Vörunotkun og kostnaðarverð sölu greinist þannig: | |||
| Vörukaup | |||
| Laun og launatengd gjöld | 6.409.053 | 6.497.333 | |
| Afskriftir | 4.309.402 281.419 |
4.473.776 572.211 |
|
| Rekstrarkostnaður greinist þannig: | 2019 | 2018 |
|---|---|---|
| Laun og launatengd gjöld | 2.092.434 | 1.983.511 |
| Rekstur fasteigna | 73.960 | 416.665 |
| Sölu- og markaðskostnaður | 208.661 | 299.243 |
| Afskriftir | 305.409 | 65.052 |
| Annar starfsmannakostnaður | 155.937 | 212.227 |
| Ferðakostnaður | 69.871 | 99.373 |
| Aðkeypt ráðgjöf og þjónusta | 124.321 | 186.951 |
| Ýmis annar rekstrarkostnaður | 395.175 | 419.195 |
| Rekstrarkostnaður alls | 3.425.768 | 3.682.216 |
Laun og launatengd gjöld greinast þannig:
| Laun | 5.569.551 | 5.866.167 | ||
|---|---|---|---|---|
| Lífeyrisiðgjöld | 601.664 | 633.707 | ||
| Önnur launatengd gjöld | 448.588 | 472.478 | ||
| Laun og launatengd gjöld samtals | 6.619.803 | 6.972.352 | ||
| Endugreiddur þróunarkostnaður, skattaívilnun Rannís | ( | 92.682) | ( | 80.768) |
| Laun og launatengd gjöld eignfærð sem þróunarkostnaður | ( | 125.285) | ( | 434.297) |
| Laun og launatengd gjöld í rekstrarreikningi | 6.401.836 | 6.457.287 | ||
| Ársverk | 519 | 567 | ||
| Stöðugildi í árslok | 532 | 495 | ||
| Laun og launatengd gjöld greinast þannig á rekstrarliði: | ||||
| 4.309.402 | 4.473.776 |
|---|---|
| 2.092.434 | 1.983.511 |
| 6.401.836 | 6.457.287 |
Í samræmi við samþykkt aðalfundar 4. mars 2016 var gengið frá kaupréttaráætlun sem nær til allrar fastra starfsmanna félagsins. Á árinu 2019 eru 3 millj. kr. gjaldfærðar í rekstrarreikningi vegna kaupréttarsamninga. Kaupréttaráætlunin rann út á árinu 2019 en kaupgengi samkvæmt henni var 17,095 á hlut.
Gangvirði kaupréttarsamninga er metið með Black-Scholes aðferðinni. Við matið er notað gengi hlutabréfa á matsdegi, kaupréttargengi, vænt flökt, gildistími samninga, væntar arðgreiðslur og áhættulausa vexti.
| Fjármunatekjur greinast þannig: | 2019 | 2018 |
|---|---|---|
| Áhrif sölu á Tempo ehf. | 0 | 5.097.947 |
| Vaxtatekjur af bankainnstæðum og kröfum | 58.055 | 33.748 |
| Breyting á skuldbindingu vegna fjárfestinga | 58.000 | 0 |
| Innleystur þýðingarmunur vegna slita á dótturfélagi | 339.969 | 0 |
| Gengishagnaður | 0 | 45.797 |
| Aðrar fjármuntekjur | 20.000 | 0 |
| Aðrar fjármunatekjur samtals | 476.024 | 79.545 |
| Fjármagnsgjöld greinast þannig: | ||
| Vaxtagjöld af leigusamningum | ( 71.034) |
0 |
| Önnur vaxtagjöld | ( 58.298) |
( 113.039) |
| Gengistap | ( 22.146) |
0 |
| Fjármagnsgjöld samtals | ( 151.478) |
( 113.039) |
| Hreinar fjármunatekjur samtals | 324.546 | 5.064.453 |
* Á árinu 2019 var dótturfélagið Nyherji A/S í slitið og því er uppsafnaður þýðingarmunur innleystur og færður á óráðstafað eigið fé í gegnum fjármunatekjur. Engin starfsemi hefur verið í Danmörku undanfarin ár.
Rekstrarfjármunir og afskriftir greinast þannig: Tölvubúnaður,
| tæki og | |||||
|---|---|---|---|---|---|
| Leigðar eignir | Fasteignir | innréttingar | Samtals | ||
| Stofnverð | |||||
| Heildarverð 1.1.2018 | 0 | 28.348 | 2.926.986 | 2.955.334 | |
| Viðbót á árinu | 0 | 0 | 230.274 | 230.274 | |
| Selt og niðurlagt | 0 | 0 | ( | 31.967) ( |
31.967) |
| Áhrif sölu á Tempo ehf. | 0 | 0 | ( | 41.689) ( |
41.689) |
| Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla | 0 | 0 | 4.474 | 4.474 | |
| Heildarverð 31.12.2018 | 0 | 28.348 | 3.088.078 | 3.116.426 | |
| Áhrif innleiðingar á IFRS 16 | 1.099.720 | 0 | 0 | 1.099.720 | |
| Viðbót á árinu | 466.302 | 0 | 332.915 | 799.217 | |
| Yfirtekið við kaup á rekstri | 0 | 0 | 19.419 | 19.419 | |
| Endurmat í tengslum við kaup á rekstri | 0 | 0 | 20.000 | 20.000 | |
| Endurflokkað | 0 | 0 | ( | 10.965) ( |
10.965) |
| Áhrif endurmats leiguskuldbindingar | 32.254 | 0 | 0 | 32.254 | |
| Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla | ( 458) |
0 | ( | 10) ( |
468) |
| Heildarverð 31.12.2019 | 1.597.818 | 28.348 | 3.449.437 | 5.075.603 | |
| Afskriftir og virðisrýrnun | |||||
| Staða 1.1.2018 | 0 | 7.065 | 2.358.148 | 2.365.213 | |
| Afskriftir ársins | 0 | 378 | 245.835 | 246.213 | |
| Selt og niðurlagt | 0 | 0 | ( | 18.590) ( |
18.590) |
| Áhrif sölu á Tempo ehf. | 0 | 0 | ( | 9.484) ( |
9.484) |
| Afskrifað alls 31.12.2018 | 0 | 7.443 | 2.575.909 | 2.583.352 | |
| Afskriftir ársins | 250.288 | 378 | 212.178 | 462.844 | |
| Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla | 0 | 0 | ( | 3) ( |
3) |
| Afskrifað alls 31.12.2019 | 250.288 | 7.821 | 2.788.084 | 3.046.193 |
| 12. Rekstrarfjármunir, frh.: |
Tölvubúnaður, tæki og |
|||||
|---|---|---|---|---|---|---|
| Leigðar eignir | Fasteignir | innréttingar | Samtals | |||
| Bókfært verð | ||||||
| 1.1.2018 | 0 | 21.283 | 568.838 | 590.121 | ||
| 31.12.2018 | 0 | 20.905 | 512.169 | 533.074 | ||
| 31.12.2019 | 1.347.530 | 20.527 | 661.353 | 2.029.410 | ||
| Afskriftahlutföll | 1,3% | 15 - 25% |
Vátryggingaverð, fasteignamat og bókfært verð eigna í lok árs nam eftirfarandi fjárhæðum:
| 2019 | 2018 | |
|---|---|---|
| Vátryggingarverð fasteigna | 51.688 | 47.890 |
| Fasteignamat fasteigna og lóða | 21.040 | 19.770 |
| Bókfært verð fasteigna og lóða | 20.527 | 20.905 |
| Vátryggingarverð birgða, áhalda, tækja og innréttinga | 2.258.001 | 2.214.589 |
Á rekstrarfjármunum samstæðunnar hvíla engin þinglýst veð til tryggingar skuldum í árslok 2018 og 2019.
Óefnislegar eignir, afskriftir og virðisrýrnun greinist þannig:
| Óefnislegar | |||
|---|---|---|---|
| Viðskiptavild | Hugbúnaður | eignir alls | |
| Kostnaðarverð | |||
| Heildarverð 1.1.2018 | 1.985.610 | 2.062.366 | 4.047.976 |
| Yfirtekið við kaup á rekstrareiningum | 0 | 115.184 | 115.184 |
| Fjárfesting í innri hugbúnaðarþróun | 0 | 440.165 | 440.165 |
| Viðbót á árinu | 0 | 291.588 | 291.588 |
| Áhrif sölu á Tempo ehf. | ( 277.360) |
( 2.124.652) ( |
2.402.012) |
| Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla | 45.925 | 200.116 | 246.041 |
| Heildarverð 31.12.2018 | 1.754.175 | 984.767 | 2.738.942 |
| Yfirtekið við kaup á rekstri | 263.389 | 95.922 | 359.311 |
| Fjárfesting í innri hugbúnaðarþróun | 0 | 125.285 | 125.285 |
| Viðbót á árinu | 0 | 67.341 | 67.341 |
| Endurflokkað | 0 | ( 20.565) ( |
20.565) |
| Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla | 634 | 0 | 634 |
| Heildarverð 31.12.2019 | 2.018.198 | 1.252.750 | 3.270.948 |
| Afskriftir og virðisrýrnun | |||
| Afskrifað alls 1.1.2018 | 137.481 | 827.312 | 964.793 |
| Afskriftir | 0 | 391.050 | 391.050 |
| Áhrif sölu á Tempo ehf. | 0 | ( 1.113.498) ( |
1.113.498) |
| Áhrif gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla | 0 | 59.726 | 59.726 |
| Afskrifað alls 31.12.2018 | 137.481 | 164.590 | 302.071 |
| Afskriftir | 0 | 123.984 | 123.984 |
| Afskrifað alls 31.12.2019 | 137.481 | 288.574 | 426.055 |
| Viðskiptavild | Hugbúnaður | Óefnislegar eignir alls |
|
|---|---|---|---|
| Bókfært verð | |||
| 1.1.2018 | 1.848.129 | 1.235.054 | 3.083.183 |
| 31.12.2018 | 1.616.694 | 820.177 | 2.436.871 |
| 31.12.2019 | 1.880.717 | 964.176 | 2.844.893 |
| Afskriftahlutföll | 10 - 25% |
Hluti af starfsemi Origo hf. er að þróa hugbúnað og selja. Í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla voru á árinu eignfærðar 125 millj. kr. vegna þróunar á eigin hugbúnaði auk þess fjárfesti félagið í öðrum hugbúnaði fyrir 163 millj. kr. á árinu. Við mat á fjárhæðum við þróun á hugbúnaði er miðað við kostnað sem til fellur frá þeim degi sem verkefni uppfyllir öll skilyrði til eignfærslu.
Óefnislegar eignir sem þróaðar innan samstæðunnar eru færðar á kostnaðarverði að frádregnum afskriftum eins og um keypta eign væri að ræða. Bókfært verð óefnislegra eigna er yfirfarið á hverjum uppgjörsdegi til að meta hvort vísbendingar séu um virðisrýrnun þeirra. Sé einhver slík vísbending til staðar er endurheimtanleg fjárhæð eignarinnar metin. Virðisrýrnunarpróf eru gerð að minnsta kosti árlega á viðskiptavild.
| Afskriftir samkvæmt rekstrarreikningi greinast þannig: | 2019 | 2018 |
|---|---|---|
| Afskriftir rekstrarfjármuna, skýring 12 Afskriftir óefnislega eigna |
462.844 123.984 |
246.213 391.050 |
| Fært í rekstrarreikning sem afskriftir | 586.828 | 637.263 |
| Afskriftir greinast þannig á rekstrarliði: | ||
| Vörunotkun og kostnaðarverð seldrar þjónustu | 281.419 | 572.211 |
| Rekstrarkostnaður | 305.409 | 65.052 |
| Afskriftir samtals | 586.828 | 637.263 |
Í lok reikningsársins var framkvæmt virðisrýrnunarpróf á viðskiptavild félagsins. Viðskiptavild sem myndast hefur við kaup hefur verið útdeilt niður á viðeigandi dótturfélög sem skilgreind eru sem minnstu aðgreinanlegu fjárskapandi einingar af stjórnendum samstæðunnar. Við sameiningu dótturfélaganna við móðurfélagið á árinu 2017 runnu fjárskapandi einingar saman í eina.
Bókfært verð viðskiptavildar greinist þannig niður á flokk fjárskapandi einingar: 2019 2018
| Vörur, hugbúnaður, tengd þjónusta og ráðgjöf - innlend starfsemi | 1.662.913 | 1.399.524 |
|---|---|---|
| Hugbúnaður, tengd þjónusta og ráðgjöf - erlend starfsemi | 217.804 | 217.170 |
| Viðskiptavild samtals | 1.880.717 | 1.616.694 |
Endurheimtanlegar fjárhæðir fyrir fjárskapandi einingar eru byggðar á nýtingarvirði. Við mat á nýtingarvirði er stuðst við vænt fjárstreymi sem fært hefur verið til núvirðis. Fjárstreymi var áætlað í samræmi við fjárhæðir og rekstraráætlanir næstu fimm ára, eftir spátímabilið er gert ráð fyrir föstum framtíðarnafnvexti við útreikning á hrakvirði. Megin forsendur eru tekjuvöxtur, rekstrarhagnaðarhlutfall (EBITDA-hlutfall), framtíðarfjárfesting og vöxtur eftir fimm ára spátímabil. Við núvirðingu er stuðst við væntan veginn fjármagnskostnað (WACC). Ávöxtunarkrafan tekur mið af hverri fjárskapandi einingu þar sem stuðst er við ytri gögn sem og innri gögn. Beitt er sömu aðferðafræði og árið áður.
Áætlanir eru yfirfarnar og samþykktar af stjórn félagsins. Samkvæmt niðurstöðum prófa í árslok 2019 hefur viðskiptavildin ekki orðið fyrir virðisrýrnun.
Við mat á nýtingarvirði byggja stjórnendur á áætlunum á framtíðarþróun á sviði upplýsingatækni, byggt er á bæði ytri og innri upplýsingum. Stuðst er við reynslu reynslu fyrri ára. Eftirfarandi eru lykilforsendur við mat á nýtingarvirði:
| Vörur, hugbúnaður, tengd þjónusta og ráðgjöf |
Hugbúnaður, tengd þjónusta og ráðgjöf |
|
|---|---|---|
| Forsendur í árslok 2019: | - innanlands | - erlend |
| Framtíðarvöxtur að teknu tilliti til verðlagsþróunar Nafnvöxtur tekna: |
4,9% | 3,0% |
| Vegið meðaltal 2020 | 7,4% | 15,9% |
| 2021 - 2024 | 5,0 - 5,3% | 4,0 -4,5% |
| Ávöxtunarkrafa, WACC | 8,1% | 5,8% |
| Skuldsetningarhlutfall | 9,0% | 9,0% |
| Vextir | 5,3% | 2,9% |
| Forsendur í árslok 2018: | ||
| Framtíðarvöxtur að teknu tilliti til verðlagsþróunar Nafnvöxtur tekna: |
5,0% | 3,5% |
| Vegið meðaltal 2019 | 7,6% | 9,0% |
| 2020 - 2023 | 5,0 - 5,3% | 4,0 -5,0% |
| Ávöxtunarkrafa, WACC | 10,2% | 7,4% |
| Skuldsetningarhlutfall | 13,0% | 14,0% |
| Vextir | 7,0% | 3,3% |
Raunhæfar breytingar á forsendum í árslok 2019 og 2018 myndu ekki leiða til virðisrýrnunar.
Þann 19. nóvember 2018 seldi félagið 55% eignarhlut í Tempo ehf. til Diversis Capital, fjárfestingafélags í Los Angeles sem sérhæfir sig í fjárfestingum í hugbúnaðar og tæknifyrirtækjum. Tempo ehf. er því hluti af samstæðu Origo til 19. nóvember 2018. Söluverðið nam 3.643 millj. kr. að frádregnum sölukostnaði. Heildaráhrif viðskiptanna á afkomu Origo hf. í rekstrarreikningi fyrir árið 2018 nam 5.104 millj. kr
Við söluna var 45% eignarhlutur í Tempo ehf. færður upp til gangvirðis en síðar samkvæmt hlutdeildaraðferð. Eignarhluturinn er skilgreindur sem eign í hlutdeildarfélagi.
Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi greinist þannig:
| 2019 | 2.018 | |||
|---|---|---|---|---|
| Bókfært verð 1.1. | 2.697.564 | 0 | ||
| Eignarhlutur í Tempo ehf. færður sem hlutdeildarfélag | 0 | 526.578 | ||
| Matsbreyting á eignarhlut í kjölfar sölu | 0 | 2.071.534 | ||
| Fjárfesting í Tempo ehf. | 0 | 111.240 | ||
| Hlutafjárlækkun hjá Tempo ehf. | ( | 63.574) | 0 | |
| Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags | ( | 68.799) | ( 21.522) |
|
| Þýðingarmunur | 118.836 | 9.734 | ||
| Bókfært verð 31.12. | 2.684.027 | 2.697.564 |
| Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi skiptist þannig: | 2019 | 2018 | |||
|---|---|---|---|---|---|
| Hlutdeild í eigin fé Tempo ehf. | 424.163 | 492.893 | |||
| Viðskiptavild | 1.407.650 | 1.367.808 | |||
| Aðrar óefnislegar eignir | 852.214 | 836.863 | |||
| Eignarhlutur í hlutdeildarfélagi | 2.684.027 | 2.697.564 | |||
| Áhrif í rekstrarreikningi greinast þannig: | |||||
| Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags | ( | 68.799) ( | 21.522) | ||
| Uppgjör á sölu á Tempo ehf. - söluhagnaður | 77.578 | 0 | |||
| Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags skv. ársreikningi | 8.779 ( | 21.522) | |||
| 15. | Birgðir Birgðir í árslok greinast þannig: |
||||
| Birgðir á vörulager og í verslunum | 1.239.765 | 1.549.599 | |||
| Varahlutabirgðir | 51.942 | 69.145 | |||
| Verk í vinnslu | 167.068 | 172.369 | |||
| Niðurfærsla birgða | ( | 137.278) | ( | 144.312) |
Verk í vinnslu samanstanda af kostnaði vegna þjónustuverka sem áfallinn er í árslok.
Birgðir samtals .........................................................................................................
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur greinast þannig:
| Viðskiptakröfur vegna samninga við viðskiptavini | 1.806.545 | 1.721.354 | ||
|---|---|---|---|---|
| Niðurfærsla vegna krafna sem kunna að tapast | ( | 28.400) | ( | 41.400) |
| Ýmsar skammtímakröfur | 221.541 | 122.412 | ||
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur samtals | 1.999.686 | 1.802.366 |
Fjallað er um lánsáhættu, gengisáhættu og virðisrýrnun (niðurfærslu) viðskiptakrafna og annarra krafna samstæðunnar í skýringu 25 og 27.
Viðskiptakröfur og birgðir að fjárhæð 640 millj. kr. (2018: 670 millj. kr.) eru veðsettar til tryggingar á lánum til félagsins.
Handbært fé greinist þannig:
| Óbundnar bankainnstæður og lausafjársjóðir | 820.238 | 3.166.915 |
|---|---|---|
| Sjóðir | 5.609 | 8.539 |
| Handbært fé | 825.847 | 3.175.454 |
1.321.497 1.646.801
Heildarhlutafé félagsins samkvæmt samþykktum þess er 459 millj. kr. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Eitt atkvæði fylgir hverjum hlut í félaginu. Félagið á eigin hlutabréf að nafnverði 24 millj. kr. sem færð eru til lækkunar á eigin fé.
Félagið keypti 31,1 millj. hluti á 768 millj. kr. á árinu 2019 í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins
Yfirverðsreikningur innborgaðs hlutafjár sýnir það sem hluthafar félagsins hafa greitt umfram nafnverð hlutafjár sem félagið hefur selt. Samkvæmt lögum um hlutafélög skal félagið binda 25% af nafnverði hlutafjár í varasjóði, sem ekki má nota til að greiða hluthöfum arð.
Heimilt er samkvæmt lögum að jafna yfirverðsreikningi innborgaðs hlutafjár á móti uppsöfnuðu tapi.
Annað bundið eigið fé samanstendur af þýðingarmun vegna dótturfélag og bundnum hlutdeildarreikningi í árslok.
Bundið eigið fé inniheldur hlutdeild í uppsöfnuðum hagnaði dótturfélaga og hlutdeildarfélaga sem er umfram úthlutaðan arð frá viðkomandi félögum á undirritunardegi.
Annað bundið eigið fé greinist þannig:
| Þýðingar munur í dóttur- félögum |
Bundinn hlutdeildar- reikningur |
Bundið eigið fé vegna þróunarkostn. |
Samtals | |
|---|---|---|---|---|
| Staða 1.1.2018 | 412.781 | 243.639 | 0 | 656.420 |
| Breyting á árinu | ( 20.423) |
2.065.945 | 0 | 2.045.522 |
| Staða 31.12.2018 | 392.358 | 2.309.584 | 0 | 2.701.942 |
| Breyting á árinu | ( 222.085) |
27.356 | 125.285 | ( 69.444) |
| Staða 31.12.2019 | 170.273 | 2.336.940 | 125.285 | 2.632.498 |
Óráðstafað eigið fé er uppsafnaður óráðstafaður hagnaður og ójafnað tap samstæðunnar frá stofnun móðurfélagsins, að frádregnum arðgreiðslum og millifærslum til og frá öðrum eiginfjárliðum.
Það er stefna stjórnar félagsins að eiginfjárstaða samstæðunnar sé sterk til að styðja við stöðugleika í framtíðarþróun starfseminnar. Stjórn félagsins hefur þá stefnu að 20-40% af hagnaði hvers árs sé að jafnaði greiddur sem arður til hluthafa. Til langs tíma er markmið stjórnar að eiginfjárhlutfall samstæðunnar sé ekki undir 40,0%. Eiginfjárhlutfall félagsins var 57,4% í árslok 2019 samanborið við 66,1% í árslok 2018. Við stýringu á eigin fé er litið til bókfærðs eigin fjár.
Á aðalfundi félagsins þann 7. mars 2019 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa fyrir hönd félagsins allt að 10% nafnverði hlutafjár félagsins, sbr. VIII. kafla laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Kaupgengi hluta skal miða við síðasta skráða gengi á Nasdaq OMX Iceland hf. áður en samningur er gerður. Gildistími heimildarinnar er allt að átján mánuðir. Með samþykkt tillögu þessarar féll úr gildi sams konar heimild sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 2. mars 2018.
Engar breytingar urðu á stefnu um eiginfjárstýringu samstæðunnar á árinu.
Félaginu og dótturfélögum þess ber ekki að fylgja ytri reglum um lágmarks eiginfjárstöðu.
Á árinu 2019 var greiddur arður til hluthafa að fjárhæð 1.000 millj. kr. (2018: Enginn arður). Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði 180 millj. kr. arður til hluthafa á árinu 2020.
Hagnaður á hlut miðar við hagnað sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu og vegins meðalfjölda virkra hluta á árinu og sýnir hver hagnaðurinn er á hverja krónu hlutafjár. Þynntur hagnaður á hlut miðar við hagnað sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu og vegins meðalfjölda virkra hluta að teknu tilliti til þynningaráhrifa væntra útgefinna hluta vegna kauprétta starfsmanna.
| 2019 | 2018 | |
|---|---|---|
| Hagnaður ársins til hluthafa í móðurfélaginu | 678.265 | 5.440.470 |
| Hlutafé í ársbyrjun | 462.918 | 458.609 |
| Áhrif hækkunar hlutafjár | 3.146 | 4.922 |
| Áhrif kaupa á eigin bréfum | ( 15.073) |
0 |
| Vegið meðaltal útistandandi hluta á árinu | 450.991 | 463.531 |
| Áhrif kaupréttasamninga | 0 | 3.346 |
| Vegið meðaltal útistandandi hluta á árinu fyrir þynntan hagnað | 450.991 | 466.877 |
| Hagnaður á hlut | 1,50 | 11,74 |
| Þynntur hagnaður á hlut | 1,50 | 11,65 |
Í þessari skýringu eru upplýsingar um samningsbundin ákvæði vaxtaberandi skulda samstæðunnar, sem færðar eru á afskrifuðu kostnaðarverði. Upplýsingar um vaxtaáhættu, gengisáhættu og lausafjáráhættu er að finna í skýringum 24 til 28.
| Vaxtaberandi langtímaskuldir greinast þannig: | 2019 | 2018 | ||
|---|---|---|---|---|
| Vaxtaberandi skuldir Næsta árs afborganir |
( | 640.141 60.702) |
( | 881.041 124.054) |
| Vaxtaberandi langtímaskuldir alls | 579.439 | 756.987 |
Vaxtaberandi skuldir í lok ársins greinast þannig eftir gjaldmiðlum:
| 2019 | 2018 | ||||
|---|---|---|---|---|---|
| Lokagjalddagi | Meðalvextir | Eftirstöðvar | Meðalvextir | Eftirstöðvar | |
| Skuldir í ISK, óverðtryggð | 2030 | 4,9% | 241.191 | 6,0% | 263.628 |
| Skuldir í SEK | 2030 | 3,6% | 221.974 | 3,4% | 241.917 |
| Skuldir í EUR | 2030 | 3,4% | 139.497 | 3,5% | 149.552 |
| Skuldir í DKK | 2021 | 3,4% | 36.017 | 2,8% | 224.409 |
| Skuldir í USD | 2030 | 5,5% | 1.462 | 6,0% | 1.535 |
| Vaxtaberandi skuldir alls | 640.141 | 881.041 |
| Afborganir af langtímalánum greinast þannig á næstu ár: | 2019 | 2018 |
|---|---|---|
| Afborganir 2019 | - | 124.054 |
| Afborganir 2020 | 60.702 | 122.519 |
| Afborganir 2021 | 59.239 | 122.519 |
| Afborganir 2022 | 59.239 | 60.591 |
| Afborganir 2023 | 59.239 | 60.591 |
| Afborganir 2024 | 59.239 | 60.591 |
| Afborganir síðar | 342.483 | 330.176 |
| Samtals | 640.141 | 881.041 |
Breyting vaxtaberandi skulda á árinu greinist þannig:
| Vaxtaberandi skuldir 1. janúar | 881.041 | 1.749.351 |
|---|---|---|
| Ógreitt kaupverð endurflokkað | 0 | ( 165.113) |
| Ný lántaka | 0 | 185.785 |
| Afborganir | ( 245.213) |
( 1.043.870) |
| Gengismunur | 4.313 | 154.888 |
| Vaxtaberandi skuldir 31. desember | 640.141 | 881.041 |
Lánasamningar félagsins innihalda m.a skilmála um fjárhagslegan styrk og uppfyllir félagið alla gildandi skilmála í árslok 2019.
Skuldir félagsins við lánastofnanir eru tryggðar með veðum í viðskiptakröfum, birgðum og eignarhlutum í tilteknum dótturfélögum sbr. skýringar 16.
Samstæðan leigir skrifstofuhúsnæði og vöruhús. Þessir leigusamningar eru að jafnaði til 10-20 ára með möguleika á endurnýjun í lok leigutímans. Leigusamningarnir eru flestir tengdir vísitölu neyðsluverðs. Samstæðan áframleigir hluta af skrifstofuhúsnæðinu við Borgartún 37 til Tempo ehf. Leigusamningarnir voru áður flokkaðir sem rekstrarleigusamningar skv. IAS 17.
Leigueignir greinast þannig:
| Fasteignir | |
|---|---|
| Leigueignir 1.1 | 1.099.720 |
| Afskriftir ársins ( |
250.288) |
| Viðbætur við leigueignir | 466.302 |
| Áhrif endurmats leigusamninga og gengisbreytingar | 31.796 |
| Leigueignir 31.12 | 1.347.530 |
| Áhrif leigusamninga í rekstrarreikningi greinast þannig: 2019 - Leigusamningar samkvæmt IFRS 16 |
2019 |
| Vaxtagjöld á leiguskuldir | 71.034 |
| Vaxtatekjur á kröfur | 8.418 |
| Afskrift leigueigna | 250.288 |
| 2018 - Rekstrarleigusamningar samkvæmt IAS 17 | |
| Leigukostnaður | 308.459 |
| Leigutekjur | 33.256 |
Áhrif leigusamninga í sjóðstreymi greinast þannig:
| Greitt vegna leigusamninga | 350.315 |
|---|---|
| Innheimt vegna leigusamninga | 34.037 |
Sumir leigusamningar samstæðunnar um fasteignir fela í sér framlengingarheimildir sem henni er heimilt að nýta allt að einu ári fyrir lok óuppsegjanlegs leigutímabils. Ef samstæðan telur það hagkvæmt leitast hún við að hafa framlengingarheimildir í leigusamningum til að tryggja sveigjanleika í rekstri. Aðeins samstæðunni er heimilt að nýta framlengingarákvæði en ekki leigusölum. Samstæðan leggur mat á það við upphaf leigusamnings hvort það sé talið nokkuð líklegt að hún muni nýta heimildir til framlenginga. Ef verulegar breytingar á aðstæðum sem eru á valdi samstæðunnar verða þá endurmetur hún hvort að hún muni nýta sér framlengingarheimildir leigusamnings.
Ekki er gert ráð fyrir að samstæðan nýti sér heimildir til framlengingar leigusamninga þar sem óvissa er um hvort heimildin verði nýtt.
Leiguskuldbinding greinist þannig
| Afborganir 2020 | 334.529 |
|---|---|
| Afborganir 2021 | 321.156 |
| Afborganir 2022 | 278.130 |
| Afborganir 2023 | 278.010 |
| Afborganir 2024 | 276.551 |
| Afborganir síðar | 474.040 |
| Ónúvirtar greiðslur alls | 1.962.416 |
| Áfallinn vaxtagjöld | 5.199 |
| Hrein fjárfesting í leigusamningum | 1.967.615 |
Samstæðan áfram leigir hluta af Borgartúni 37 til Tempo ehf. og námu vaxtatekjur vegna leigukrafna alls 8 millj. kr. Í eftirfarandi töflu er kemur fram aldursgreining leigugreiðslna sem greiddar verða eftir lok reikningsskilatímabil. Leigugreiðslurnar eru ónúvirtar.
| Afborganir 2020 | 34.429 |
|---|---|
| Afborganir 2021 | 34.429 |
| Afborganir 2022 | 34.429 |
| Afborganir 2023 | 34.429 |
| Afborganir 2024 | 34.429 |
| Afborganir 2025 | 34.429 |
| Ónúvirtar leigutekjur alls | 206.574 |
| Óinnleystar vaxtatekjur | 585 |
| Hrein fjárfesting í leigusamningum | 207.159 |
Ekki er gert ráð fyrir að samstæðan nýti sér heimildir til framlengingar leigusamninga þar sem óvissa er hvort samningarnir verði endurnýjaðir.
| Gjaldfærður tekjuskattur í rekstrarreikningi ( 74.493) ( 93.610) Virkur tekjuskattur greinist þannig: 2019 2018 Hagnaður fyrir tekjuskatt 752.758 5.534.080 Tekjuskattur samkvæmt gildandi skatthlutfalli 20,0% ( 150.552) 20,0% ( 1.106.816) Áhrif sölu á Tempo ehf. 0,0% 0 ( 18,4%) 1.019.589 Áhrif gengismunar á kröfu á dótturfélag 0,5% ( 3.441) 0,2% ( 10.434) Innleystur þýðingarmunur ( 9,0%) 67.994 0,0% 0 Óskattskyldar tekjur ( 1,8%) 13.756 ( 0,3%) 15.665 Áhrif skatthlutfalla á erlendum skattasvæðum 0,4% ( 2.760) 0,0% ( 2.608) Annað ( 0,1%) 510 0,2% ( 9.006) Virkur tekjuskattur 9,9% ( 74.493) 1,7% ( 93.610) Tekjuskattseign greinist þannig: 2019 2018 Tekjuskattseign 31. desember 43.426 130.881 Tekjuskattsáhrif við innleiðingu á IFRS 15 35.296 64.141 Tekjuskattseign 1. janúar 78.722 195.022 Tekjuskattur ársins ( 74.493) ( 93.610) Áhrif sölu á Tempo ehf. 0 ( 99.144) Ógreiddur tekjuskattur 14.123 8.885 Þýðingarmunur ( 301) 32.273 Tekjuskattseign 31. desember 18.051 43.426 Tekjuskattseign greinist þannig í árslok: Eignir Skuldir Nettó 2019 Rekstrarfjármunir og leigðar eignir 14.561 ( 269.506) ( 254.945) Óefnislegar eignir 0 ( 30.796) ( 30.796) Viðskiptakröfur og aðrar kröfur 5.538 ( 36.382) ( 30.844) Frestaður skattalegur gengismunur 0 ( 5.873) ( 5.873) Leiguskuldbindingar 340.509 0 340.509 Tekjuskatteign (-skuldbinding) 360.608 ( 342.557) 18.051 Jöfnun ( 342.557) 342.557 0 Tekjuskattseign 31. desember 18.051 0 18.051 Tekjuskattseign greinist þannig í árslok: Eignir Skuldir Nettó 2018 Rekstrarfjármunir 19.544 0 19.544 Óefnislegar eignir 0 ( 9.688) ( 9.688) Viðskiptakröfur og aðrar kröfur 8.280 0 8.280 Frestaður skattalegur gengismunur 0 ( 17.633) ( 17.633) Yfirfæranlegt skattalegt tap 42.923 0 42.923 Tekjuskatteign (-skuldbinding) 70.747 ( 27.321) 43.426 Jöfnun ( 27.321) 27.321 0 Tekjuskattseign 31. desember 43.426 0 43.426 |
Tekjuskattur í rekstrarreikningi greinist þannig: | 2019 | 2018 | ||
|---|---|---|---|---|---|
Yfirfæranlegt skattalegt tap er nýtanlegt á móti skattskyldum hagnaði næstu ára sem hér segir:
| 2019 | 2018 | |
|---|---|---|
| Skattalegt tap vegna 2014, nýtanlegt til 2024 | 0 | 203.919 |
| Skattalegt tap vegna 2015, nýtanlegt til 2025 | 0 | 5.565 |
| Skattalegt tap vegna 2016, nýtanlegt til 2026 | 0 | 5.132 |
| Yfirfæranlegt skattalegt tap alls | 0 | 214.616 |
Origo hf. var samskattað með Tempo ehf. en samsköttunin rofnaði við sölu á 55% eignarhlut.
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast þannig:
| Viðskiptaskuldir | 1.232.887 | 1.859.390 |
|---|---|---|
| Aðrar skammtímaskuldir | 1.491.676 | 1.413.872 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals | 2.724.563 | 3.273.262 |
Eftirfarandi áhættur fylgja fjármálagerningum samstæðunnar:
Hér eru veittar upplýsingar um framangreindar áhættur, markmið, stefnu og aðferðir samstæðunnar við að meta og stýra áhættu.
Markmið samstæðunnar með áhættustýringu er að uppgötva og greina áhættu sem hún býr við, setja viðmið um áhættutöku og hafa eftirlit með henni. Áhættustýring og aðferðir eru yfirfarnar reglulega til að endurspegla breytingar á markaðsaðstæðum og starfsemi samstæðunnar. Með þjálfun starfsmanna og starfsreglum stefnir samstæðan að öguðu eftirliti þar sem allir starfsmenn eru meðvitaðir um hlutverk sitt og skyldur.
Lánsáhætta er hættan á fjárhagslegu tapi samstæðunnar ef viðskiptamaður eða mótaðili í fjármálagerningi getur ekki staðið við umsamdar skuldbindingar sínar. Lánsáhætta samstæðunnar er einkum vegna viðskiptakrafna og handbærs fjár.
Lánsáhætta samstæðunnar ræðst einkum af fjárhagsstöðu og starfsemi einstakra viðskiptamanna. Atvinnugreinar og staðsetning viðskiptamanna hafa minni áhrif á lánsáhættu. Um 21% (2018: 16%) af tekjum samstæðunnar eru vegna sölu á vörum og þjónustu til fimm stærstu viðskiptamanna hennar.
Samstæðan hefur sett útlánareglur þar sem allir nýir viðskiptamenn eru metnir áður en þeim er veittur gjaldfrestur. Greiðslusaga nýrra viðskiptamanna er könnuð og þeim settar hámarksúttektir.
Flestir viðskiptamenn samstæðunnar hafa átt í áralöngum viðskiptum við hana og tapaðar viðskiptakröfur hafa verið óverulegar í hlutfalli af veltu. Við stýringu lánsáhættu vegna viðskiptamanna er einkum horft til aldurs krafna og fjárhagsstöðu einstakra viðskiptamanna. Viðskiptakröfur og aðrar kröfur samstæðunnar eru einkum á fyrirtæki og endurseljendur. Viðskiptamenn sem flokkaðir eru sem áhættusamir eða hafa nýtt útlánahámörk geta ekki átt frekari viðskipti við samstæðuna nema greiða niður skuldir sínar eða fjárhagssvið samstæðunnar samþykki frekari úttektir.
Vörur eru í sumum tilvikum seldar með eignarréttarfyrirvara, þannig að ef kröfur sem stofnast við sölu innheimtast ekki getur samstæðan endurheimt vöruna. Samstæðan krefst að jafnaði ekki veða vegna viðskiptakrafna og annarra krafna.
Samstæðan myndar niðurfærslu vegna áætlaðrar virðisrýrnunar viðskiptakrafna, annarra krafna og fjárfestinga. Niðurfærslan er í meginatriðum sérstök niðurfærsla vegna einstakra viðskiptamanna og almenn niðurfærsla með tilliti til aldurs krafna, sem ekki hefur verið tengd einstökum viðskiptamönnum. Almenn niðurfærslan er ákveðin með tilliti til innheimtusögu sambærilegra krafna og væntri þróun efnahagslífsins. Viðskiptakrafa er endanlega afskrifuð þegar ljóst er að hún muni ekki innheimtast svo sem við gjaldþrot.
Það er stefna samstæðunnar að veita aðeins dótturfélögum ábyrgðir. Í árslok 2018 og 2019 var móðurfélagið ekki í ábyrgðum fyrir dótturfélög sín.
Mesta mögulega tap samstæðunnar vegna fjáreigna er bókfært verð þeirra, sem var eftirfarandi í árslok:
| Bókfært verð | |||||
|---|---|---|---|---|---|
| Skýring | 2019 | 2018 | |||
| Verðbréfaeign og aðrar langtímakröfur | 161.222 | 13.023 | |||
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 13 | 1.999.686 | 1.802.366 | ||
| Handbært fé | 14 | 825.847 | 3.175.454 | ||
| 2.986.755 | 4.990.843 |
Mesta mögulega tap samstæðunnar á viðskiptakröfum skiptist með eftirfarandi hætti eftir landsvæðum:
| Ísland | 1.686.216 | 1.588.025 |
|---|---|---|
| Önnur lönd | 91.929 | 91.929 |
| 1.778.145 | 1.679.954 |
Í árslok námu viðskiptakröfur á fimm stærstu viðskiptamenn samstæðunnar 381 millj. kr. (2018: 362 millj. kr.).
Aldur viðskiptakrafna var eftirfarandi í árslok:
| 2019 2018 2019 |
2018 |
|---|---|
| Ógjaldfallið 1.566.826 1.491.642 7.834 |
7.458 |
| Gjaldfallið innan 30 daga 150.874 189.226 7.610 |
13.960 |
| Gjaldfallið fyrir 31 - 120 dögum 79.193 22.034 6.415 |
6.491 |
| Gjaldfallið fyrir meira en 120 dögum 9.652 18.452 6.541 |
13.491 |
| 1.806.545 1.721.354 28.400 |
41.400 |
| Breytingar á niðurfærslu viðskiptakrafna á árinu greinast þannig: 2019 |
2018 |
| Staða 1. janúar 41.400 |
21.400 |
| Breyting á árinu ( 13.000) |
20.000 |
| Staða 31. desember 28.400 |
41.400 |
Stjórnendur meta ekki tapsáhættu í öðrum skammtímakröfum.
Lausafjáráhætta er hættan á því að samstæðan geti ekki staðið við fjárhagsskuldbindingar sínar eftir því sem þær gjaldfalla. Markmið samstæðunnar er að stýra lausafé þannig að tryggt sé að hún hafi alltaf nægt laust fé til að mæta skuldbindingum sínum eftir því sem þær gjaldfalla og forðast þannig að skaða orðspor samstæðunnar.
Samstæðan hefur samið um yfirdráttarheimildir og hefur aðgang að lánalínum hjá tveimur íslenskum og einum erlendum viðskiptabanka. Ónýttar lánsheimildirnar eru allt að 400 millj. kr. í árslok 2019 (2018: 400 millj. kr.).
Samningsbundnar afborganir af fjárskuldum, að meðtöldum áætluðum vaxtagreiðslum, greinast þannig:
| 2019 | |||||
|---|---|---|---|---|---|
| Bókfært | Umsamið | Innan | |||
| verð | sjóðstreymi | 1 árs | 2-5 ár | Síðar | |
| Fjárskuldir sem ekki | |||||
| eru afleiður: | |||||
| Vaxtab. skuldir | 640.141 | 843.832 | 46.727 | 389.686 | 407.419 |
| Leiguskuldbindingar | 1.702.550 | 1.180.368 | 52.885 | 312.441 | 236.441 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar | |||||
| skammtíma skuldir | 2.724.563 | 2.724.563 | 2.724.563 | ||
| 5.067.254 | 4.748.763 | 2.824.175 | 702.127 | 643.860 | |
| 2018 | |||||
| Fjárskuldir sem ekki eru afleiður: |
|||||
| Vaxtab. skuldir | 881.041 | 1.134.468 | 45.030 | 481.703 | 607.735 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar | |||||
| skammtíma skuldir | 3.273.262 | 3.273.262 | 3.273.262 | ||
| 4.154.303 | 4.407.730 | 3.318.292 | 481.703 | 607.735 | |
Markaðsáhætta er hættan á því að breytingar í markaðsverði erlendra gjaldmiðla og vaxta hafi áhrif á afkomu samstæðunnar eða virði fjárfestinga hennar í fjármálagerningum. Markmið með stýringu markaðsáhættu er að stýra og takmarka áhættu við skilgreind mörk, jafnframt því sem ábati er hámarkaður.
Samstæðan býr við gengisáhættu vegna innkaupa og lántöku í öðrum gjaldmiðlum en starfrækslugjaldmiðli einstakra samstæðufélaga. Starfrækslugjaldmiðlar einstakra samstæðufélaga eru íslenskar (ISK) og sænskar krónur (SEK). Þeir gjaldmiðlar sem einkum skapa gengisáhættu eru evrur (EUR), dollarar, danskar og sænskar krónur.
Samstæðan býr við gengisáhættu vegna viðskipta innan hennar. Gengisáhættan myndast þegar félög innan samstæðunnar eiga í viðskiptum sín á milli þar sem starfrækslugjaldmiðill þeirra er ekki sá sami. Starfrækslugjaldmiðill móðurfélagsins er íslensk króna og er samstæðureikningurinn gerður í íslenskum krónum. Móðurfélagið á kröfu á dótturfélög sem hafa annan starfrækslugjaldmiðil en móðurfélagið og býr samstæðan við gengisáhættu vegna þess og eru kröfunar sýndar í töflunni.
Áhætta samstæðunnar vegna erlendra gjaldmiðla var sem hér segir í nafnverðfjárhæðum:
| 2019 | EUR | DKK | SEK | USD | |||
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 57.705 | 26.381 | 7 | 18 | |||
| Handbært fé | 5.137 | 1.180 | 0 | 2.215 | |||
| Vaxtaberandi skuldir ( |
139.497) | ( | 36.017) | ( | 221.974) | ( | 1.462) |
| Viðskipta- og aðrar skammtímaskuldir ( |
211.412) | ( | 371.143) | ( | 16.477) | ( | 50.678) |
| Áhætta í efnahagsreikningi samstæðunnar ( |
288.067) | ( | 379.599) | ( | 238.444) | ( | 49.907) |
| Viðskiptastaða innan samstæðu | 0 | ( | 17.207) | 174.302 | 0 | ||
| Gengisáhætta samstæðunnar ( |
288.067) | ( | 396.806) | ( | 64.142) | ( | 49.907) |
| 2018 | EUR | DKK | SEK | USD | ||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 30.644 | 32.726 | 709 | 0 | ||||
| Handbært fé | 4.181 | 163 | 0 | 179.293 | ||||
| Vaxtaberandi skuldir | ( | 149.552) | ( | 224.409) | ( | 241.917) | ( | 1.535) |
| Viðskipta- og aðrar skammtímaskuldir | ( | 191.585) | ( | 643.346) | ( | 11.468) | ( | 270.823) |
| Áhætta í efnahagsreikningi samstæðunnar | ( | 306.312) | ( | 834.866) | ( | 252.676) | ( | 93.065) |
| Viðskiptastaða innan samstæðu | 0 | 1.932 | 267.055 | 0 | ||||
| Gengisáhætta samstæðunnar | ( | 306.312) | ( | 832.934) | 14.379 | ( | 93.065) |
Gengi helstu gjaldmiðla á árinu var sem hér segir:
| Meðalgengi | Árslokagengi | |||
|---|---|---|---|---|
| 2019 | 2018 | 2019 | 2018 | |
| EUR | 136,92 | 127,73 | 136,21 | 132,86 |
| DKK | 18,44 | 17,03 | 18,24 | 17,89 |
| SEK | 12,98 | 12,44 | 13,06 | 13,02 |
| USD | 122,73 | 106,24 | 121,64 | 123,60 |
10% styrking íslenskrar krónu gagnvart eftirtöldum gjaldmiðlum 31. desember mundi hafa hækkað (lækkað) afkomu (hreinar fjármunatekjur) samstæðunnar fyrir tekjuskatt um eftirfarandi fjárhæðir. Greiningin byggir á að allar aðrar breytur haldist óbreyttar. Greiningin var unnin með sama hætti og árið 2018.
| 2019 | 2018 | |
|---|---|---|
| EUR | 28.807 | 30.631 |
| DKK | 39.681 | 83.293 |
| SEK | 6.414 ( |
1.438) |
| USD | 4.991 | 9.307 |
10% veiking íslenskrar krónu gagnvart framangreindum gjaldmiðlum hefði haft sömu áhrif en í gagnstæða átt, að því gefnu að allar aðrar breytur hefðu haldist óbreyttar.
Félagið býr félagið við gengisáhættu vegna fjárfestinga í dótturfélögum og hlutdeildarfélögum þar sem starfrækslugjaldmiðillinn er annar en hjá móðurfélaginu. Gengisáhættan er færð beint á eigið fé sem þýðingarmunur vegna starfsemi dótturfélaga og hlutdeildarfélaga. Einkum er um að ræða fjárfestingu í Tempo ehf. Þýðingarmunur færður beint á eigið fé var jákvæður um 118 millj. kr. en hann var neikvæður um 20 millj. kr. á árinu 2018. Fjárfesting í dóttur- og hlutdeildarfélögum greinist þannig:
| 2019 | 2018 | |
|---|---|---|
| Eignarhlutur í Tempo ehf. - fjárfesting í USD | 2.684.027 | 2.697.564 |
| Eignarhlutur í Applicon í Svíþjóð - fjárfesting í SEK | 201.498 | 174.967 |
10% veiking íslenskrar krónu gagnvart eftirtöldum gjaldmiðlum 31. desember mundi hafa hækkað (lækkað) þýðingarmun (heildarhagnað) samstæðunnar fyrir tekjuskatt um eftirfarandi fjárhæðir. Greiningin byggir á að allar aðrar breytur haldist óbreyttar. Greiningin var unnin með sama hætti og árið 2018.
| USD | 268.403 | 269.756 |
|---|---|---|
| SEK | 20.150 | 17.497 |
10% styrking íslenskrar krónu gagnvart framangreindum gjaldmiðlum hefði haft sömu áhrif en í gagnstæða átt, að því gefnu að allar aðrar breytur hefðu haldist óbreyttar.
Lántökur samstæðunnar eru allar með breytilegum vöxtum og ver samstæðan sig því ekki sérstaklega fyrir vaxtaáhættu. Vaxtaáhætta samstæðunnar snýr einvörðungu að sjóðsflæðisáhættu.
Vaxtaberandi fjármálagerningar samstæðunnar í árslok greinast þannig:
| Bókfært verð | ||||
|---|---|---|---|---|
| 2019 | 2018 | |||
| Fjáreignir með breytilega vexti | 825.847 | 3.175.454 | ||
| Fjárskuldir með breytilega vexti | ( 640.141) |
( 881.041) |
||
| 185.706 | 2.294.413 |
Breyting á vöxtum á uppgjörsdegi um 100 punkta hefði hækkað afkomu um 2 millj. kr. (2018: hækkað um 23 millj. kr.) fyrir tekjuskatt. Þessi greining byggir á því að allar aðrar breytur, sérstaklega gengi erlendra gjaldmiðla, haldist óbreyttar. Greiningin er unnin með sama hætti og árið 2018. Samstæðan er hvorki með fjáreignir né fjárskuldir á föstum vöxtum.
Önnur markaðsverðsáhætta er takmörkuð, þar sem fjárfestingar í skuldabréfum og eignarhlutum í félögum er óverulegur hluti af starfsemi samstæðunnar.
Eftirfarandi tafla sýnir samanburð á gangvirði og bókfærðu virði fjáreigna og fjárskulda. Ekki eru birtar upplýsingar um gangvirði ef það er jafnt bókfærðu verði.
| 2019 | 2018 | ||||
|---|---|---|---|---|---|
| Bókfært | verð | Bókfært | Gangvirði | ||
| Gangvirði | verð | ||||
| Vaxtaberandi skuldir | ( | 640.141) ( |
650.319) ( |
881.041) ( |
892.618) |
Engar fjáreignir og fjárskuldir voru bókfærðar á gangvirði í árslok 2019 og 2018. Fjallað er um forsendur við ákvörðun gangvirðis í skýringu 3.
Þar sem við á við núvirðingu vænts sjóðstreymis eru notaðir millibankavextir í árslok að viðbættu 1,6 - 3,6% vaxtaálagi (2018: 1,6 - 3,8%) vaxtaálagi. Gangvirði fjárskulda fellur undir stig 3 í stigveldi gangvirðis.
Rekstraráhætta er hættan á beinu eða óbeinu tapi sem getur orðið vegna fjölda þátta í starfsemi samstæðunnar, vinnu starfsmanna hennar, tækni og skipulagi, og ytri þáttum öðrum en láns-, markaðs- og lausafjáráhættu, svo sem vegna breytinga á lögum og almennra viðhorfa til stjórnunarhátta fyrirtækja. Rekstraráhætta myndast við alla starfsemi samstæðunnar.
Það er stefna samstæðunnar að stýra rekstraráhættu með hagkvæmum hætti til að forðast fjárhagslegt tap og til að vernda orðstír hennar, jafnframt því að starfsreglur takmarki ekki frumkvæði og sköpunargáfu starfsmanna.
Til að draga úr rekstraráhættu er meðal annars komið á viðeigandi aðskilnaði starfa, haft eftirlit með viðskiptum og fylgni við lög, unnið reglulegt mat á áhættu, starfsmenn þjálfaðir, verkferlar skipulagðir og skráðir og keyptar tryggingar þegar við á.
Hluthafar sem hafa veruleg áhrif á starfsemi samstæðunnar, stjórnarmenn og stjórnendur og nánir fjölskyldumeðlimir þeirra og félög sem þeir ráða yfir teljast til tengdra aðila.
Laun og hlunnindi til stjórnar og stjórnenda félagsins vegna starfa fyrir félög í samstæðunni og eignarhlutir í félaginu greinast þannig:
| Fyrir árið 2019: | Laun og hlunnindi |
Mótframlag í lífeyrissjóð |
Hlutafjár eign |
|---|---|---|---|
| Ívar Kristjánsson, stjórnarformaður | 7.880 | 1.064 | 2.935 |
| Hildur Dungal, varaformaður | 3.406 | 392 | 0 |
| Guðmundur Jóh. Jónsson, stjórnarmaður | 3.468 | 468 | 657 |
| Svafa Grönfeldt, stjórnarmaður | 2.824 | 325 | 0 |
| Hjalti Þórarinsson, stjórnarmaður | 3.220 | 370 | 0 |
| Finnur Oddsson forstjóri | 61.236 | 12.642 | 1.786 |
| Lykilstjórnendur (7)* | 182.896 | 23.323 | 1.104 |
* Um er að ræða sex lykilstjórnendur hjá Origo hf. auk framkvæmdastjóra hjá Applicon AB eða alls sjö lykilstjórnendur.
| Fyrir árið 2018: | Laun og hlunnindi |
Mótframlag í lífeyrissjóð |
Hlutafjár eign |
|---|---|---|---|
| Ívar Kristjánsson, stjórnarformaður | 8.100 | 1.035 | 2.935 |
| Hildur Dungal, varaformaður | 3.245 | 348 | 0 |
| Loftur Bjarni Gíslason, stjórnarmaður | 3.310 | 357 | 42 |
| Guðmundur Jóh. Jónsson, stjórnarmaður | 3.430 | 437 | 657 |
| Emilía Þórðardóttir, stjórnarmaður | 3.080 | 332 | 0 |
| Hjalti Þórarinsson, varamaður | 4.690 | 511 | 0 |
| Finnur Oddsson forstjóri | 48.051 | 9.475 | 1.501 |
| Lykilstjórnendur (8)* | 193.000 | 22.993 | 1.144 |
* Um er að ræða sjö lykilstjórnendur hjá Origo hf. auk framkvæmdastjóra hjá Applicon AB eða alls átta lykilstjórnendur.
Með eignarhlutum að framan eru taldir eignarhlutir maka og ófjárráða barna ásamt eignarhlutum í eigu félaga sem stjórnarmenn og stjórnendurnir ráða.
Önnur viðskipti við tengda aðila eru óverulegur þáttur í starfsemi samstæðunnar. Verðlagning í slíkum viðskiptum er sambærileg og í öðrum viðskiptum hennar.
Dótturfélög Origo hf. voru fjögur í árslok og eru eftirtalin:
| Eignarhlutur | ||||
|---|---|---|---|---|
| Land | 2019 | 2018 | ||
| Application Consulting Sweden Holding AB | Svíþjóð | 100% | 100% | |
| Application Consulting Sweden AB | Svíþjóð | 100% | 100% | |
| Sendill is Unimaze ehf. | Ísland | 60% | 60% | |
| Sense ehf. | Ísland | 100% | 100% |
Þóknun til endurskoðenda samstæðunnar á árinu 2019 nam 25 millj. kr. (2018: 34 millj. kr.) þar af 15 millj. kr. (2018: 15 millj. kr.) vegna endurskoðunar á ársreikningi. Þóknun til KPMG á Íslandi nam 24 millj. kr. (2018: 33 millj. kr.) og 1 millj. kr. (2018: 1 millj. kr.) til KPMG í Svíþjóð.
Helstu kennitölur samstæðunnar:
| Veltuhraði vörubirgða í árslok - vörunotkun/vörubirgðir í árslok 4,1 Söludagar í viðskiptakröfum - viðskiptakröfur í lok tímabils/seldar vörur og þjónusta 24 Laun og launatengd gjöld/seldar vörur og þjónusta 43,1% Rekstrarkostnaður/seldar vörur og þjónusta 23,1% Heildarhagnaður eftir tekjuskatt/seldar vörur og þjónusta 3,1% Efnahagur: 31.12.2019 Veltufjárhlutfall - veltufjármunir/skammtímaskuldir 1,34 |
Rekstur: | 2019 | 2018 |
|---|---|---|---|
| 4,8 | |||
| 22 | |||
| 41,1% | |||
| 23,4% | |||
| 34,5% | |||
| 31.12.2018 | |||
| 1,95 | |||
| Eiginfjárhlutfall - eigið fé/heildarfjármagn | 57,1% | 66,1% |
Reikningsskilaaðferðum sem er lýst hér á eftir hefur verið beitt með samræmdum hætti fyrir öll tímabil sem koma fram í ársreikningnum af öllum félögum í samstæðunni nema fyrir utan það sem kemur fram í skýringu 5, breytingar á reikningsskilaaðferðum.
Til að auka upplýsingargildi ársreikningsins eru skýringar við hann birtar á grundvelli þess hversu viðeigandi og mikilvægar þær eru fyrir lesandann. Það þýðir að upplýsingar sem metnar eru hvorki mikilvægar né viðeigandi fyrir notanda reikningsskilanna eru ekki birtar í skýringum.
Dótturfélög eru þau félög þar sem samstæðan fer með yfirráð. Yfirráð grundvallast af því hvort fjárfestir hefur ákvörðunarvald yfir fjárfestingunni, ber áhættu eða hefur réttinn til að njóta breytilegs ávinnings vegna þátttöku í fjárfestingunni og getur með ákvörðunarvaldi haft áhrif á ávinning sinn af fjárfestingunni. Reikningsskil dótturfélaga eru innifalin í samstæðuársreikningnum frá því að yfirráð nást og þar til þeim lýkur. Reikningsskilaaðferðum dótturfélaga hefur verið breytt þegar nauðsynlegt hefur verið aðlaga þær aðferðum samstæðunnar.
Viðskipti milli samstæðufélaga, stöður milli þeirra og óinnleystar tekjur og gjöld sem myndast hafa í viðskiptum milli félaganna eru felld út við gerð samstæðuársreikningsins.
Kaupaðferðinni er beitt við sameiningar þegar yfirráð flytjast til samstæðunnar. Það sem innt er af hendi við yfirtökuna er almennt metið á gangvirði sem og þær aðgreinanlegu eignir og skuldir sem yfirteknar eru.
Kaupaðferðinni er beitt við sameiningar þegar yfirráð flytjast til samstæðunnar. Það sem innt er af hendi við yfirtökuna er almennt metið á gangvirði sem og þær aðgreinanlegu eignir og skuldir sem yfirteknar eru.
Þegar félagið er yfirtökuaðili við sameiningar fyrirtækja myndast viðskiptavild og aðrar óefnislegar eignir. Þær fjárhæðir sem úthlutað er á yfirteknar eignir og skuldir byggjast á forsendum og mati á gangvirði þessara eigna og skulda. Við matið ráðfæra stjórnendur sig við óháða og viðurkennda matsmenn eftir því sem við á. Breytingar á forsendum og mati gætu haft í för með sér breytingar á virði sem útdeilt var á tilteknar eignir og mat á nýtingartíma þeirra sem gæti haft áhrif á fjárhæðir eða tímasetningar gjaldfærslna í rekstrarreikningi samstæðunnar, svo afskriftir óefnislegra eigna
Skilyrtar viðbótargreiðslur eru færðar á gangvirði á kaupdegi. Flokkist skilyrt viðbótargreiðsla sem eigið fé er hún ekki endurmetin og fer uppgjör hennar fram innan eigin fjár. Annars eru breytingar á gangvirði skilyrtrar viðbótargreiðslu færðar í rekstrarreikning samstæðunnar.
Hlutdeildarfélög eru þau félög þar sem félagið hefur veruleg áhrif á en ekki yfirráð yfir rekstrar- og fjárhagsstefnu félags. Veruleg áhrif eru alla jafna til staðar þegar félagið ræður yfir 20-50% atkvæðisréttar í öðru félagi.
Hlutdeildarfélög eru færð í ársreikning félagsins með hlutdeildaraðferð og er eignarhluturinn upphaflega færður á kostnaðarverði að viðbættum viðskiptakostnaði.
Ársreikningur félagsins inniheldur hlutdeild í hagnaði eða tapi og annarri heildarafkomu hlutdeildarfélaga, eftir að reikningsskilaaðferðir hlutdeildarfélagsins hafa verið samræmdar reikningsskilaaðferðum félagsins. Hlutdeildaraðferðinni er beitt frá því að veruleg áhrif nást og þar til þeim lýkur.
Verði hlutdeild félagsins í tapi meiri en bókfært verð hlutdeildarfélagsins, að meðtöldum langtímafjárfestingum, er bókfærða verðið fært í núll og færslu frekara taps er hætt nema félagið hafi gengist í ábyrgðir fyrir þessi félög eða innt af hendi greiðslur vegna þeirra.
Viðskipti í erlendum gjaldmiðlum eru færð í starfrækslugjaldmiðla einstakra samstæðufélaga á gengi viðskiptadags. Peningalegar eignir og skuldir í erlendum gjaldmiðlum eru færðar miðað við gengi uppgjörsdags. Aðrar eignir og skuldir sem færðar eru á gangvirði í erlendri mynt eru færðar á gengi þess dags er gangvirði var ákveðið. Gengismunur vegna viðskipta í erlendum gjaldmiðlum er færður í rekstrarreikning.
Eignir og skuldir erlendrar starfsemi, ásamt viðskiptavild, eru umreiknaðar í íslenskar krónur miðað við gengi uppgjörsdags. Tekjur og gjöld erlendrar starfsemi eru umreiknuð í íslenskar krónur á meðalgengi ársins. Gengismunur sem myndast við yfirfærslu í íslenskar krónur er færður á sérstakan lið í yfirliti um heildarafkomu, að frádreginni hlutdeild minnihluta í gengismuninum. Þegar erlend starfsemi er seld, að hluta til eða öllu leyti, er tengdur gengismunur fluttur í rekstrarreikning.
Til fjármálagerninga sem ekki eru afleiðusamningar teljast viðskiptakröfur og aðrar kröfur, handbært fé, lántökur, viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir.
Fjármálagerningar sem ekki eru afleiðusamningar eru færðir á gangvirði við upphaflega skráningu í bókhald. Þegar fjármálagerningar eru ekki metnir á gangvirði gegnum rekstrarreikning, er allur beinn viðskiptakostnaður færður til hækkunar á virði þeirra við upphaflega skráningu í bókhald. Eftir upphaflega skráningu eru fjármálagerningar sem ekki eru afleiðusamningar færðir með þeim hætti sem greinir hér á eftir.
Fjáreignir á afskrifuðu kostnaðarverði eru fjáreignir með föstum eða ákvarðanlegum greiðslum sem ekki eru skráðar á virkum markaði. Slíkar eignir eru í upphafi færðar á gangvirði að viðbættum öllum tengdum viðskiptakostnaði. Eftir upphaflega skráningu eru lán og kröfur færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti, að frádreginni virðisrýrnun þegar við á. Lán og kröfur samanstanda af handbæru fé, verðbréfaeign, samningum, viðskiptakröfum og öðrum kröfum.
Til handbærs fjár teljast sjóður og óbundnar bankainnstæður.
Aðrar fjárskuldir eru færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti.
Í skýringu 34 (m) er gerð grein fyrir reikningsskilaaðferðum vegna fjármunatekna og fjármagnsgjalda.
Hlutafé er flokkað sem eigið fé. Beinn kostnaður vegna útgáfu hlutafjár er færður til lækkunar á eigin fé, að frádregnum skattáhrifum.
Þegar samstæðan kaupir eigin hluti er kaupverðið, að meðtöldum beinum kostnaði, fært til lækkunar á eigin fé. Þegar eigin hlutir eru seldir er eigið fé hækkað.
Rekstrarfjármunir eru færðir til eignar á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum afskriftum og virðisrýrnun. Kostnaðarverðið innifelur beinan kostnað sem fellur til við kaupin.
Þegar rekstrarfjármunir eru samsettir úr einingum með mislangan nýtingartíma eru einingarnar aðgreindar og afskrifaðar miðað við nýtingartímann.
Hagnaður af sölu rekstrarfjármuna, sem er mismunur á söluandvirði þeirra og bókfærðu verði, er færður í rekstrarreikning meðal annarra tekna, en tap af sölu meðal annars rekstrarkostnaðar.
Kostnaður við að endurnýja einstaka hluta rekstrarfjármuna er eignfærður þegar líklegt er talið að ávinningur sem felst í eigninni muni renna til samstæðunnar og hægt er að meta kostnaðinn á áreiðanlegan hátt. Bókfært verð hlutarins sem er endurnýjaður er gjaldfært. Allur annar kostnaður er gjaldfærður í rekstrarreikningi þegar til hans er stofnað.
Afskriftir eru reiknaðar af afskrifanlegri fjárhæð, sem er kostnaðarverð eða endurmetið kostnaðarverð að frádregnu niðurlagsverði. Afskriftir eru reiknaðar línulega miðað við áætlaðan nýtingartíma einstakra hluta rekstrarfjármuna. Leigðar eignir eru afskrifaðar á þeim tíma sem er styttri, leigutími eða nýtingartíma, nema að ljóst sé að samstæðan muni eignast leigumun í lok leigutíma. Áætlaður nýtingartími greinist þannig:
| Fasteignir | 75 ár |
|---|---|
| Áhöld, tæki og innréttingar | 4- 7 ár |
Afskriftaaðferðir, nýtingartími og niðurlagsverð eru endurmetin á uppgjörsdegi og breytt ef við á.
Viðskiptavild myndast til við kaup á dótturfélögum.
Viðskiptavild er mismunurinn á kostnaði við yfirtökuna og gangvirði yfirtekinna eigna, skulda og óvissra skulda. Þegar neikvæð viðskiptavild myndast er hún tekjufærð strax í rekstrarreikningi.
Viðskiptavild er færð á kostnaðarverði að frádreginni uppsafnaðri virðisrýrnun.
Hugbúnaður er færður á kostnaðarverði að frádregnum uppsöfnuðum línulegum afskriftum og virðisrýrnun. Hugbúnaður er afskrifaður á 2 til 10 árum.
Afskriftaaðferðir og nýtingartími eru endurmetin á uppgjörsdegi og breytt ef við á.
Leigusamningar, sem eru efnislega þannig að nánast öll áhætta og ávinningur sem fylgja eignarhaldi á leigueignum færist til samstæðunnar, eru flokkaðir sem fjármögnunarleigusamningar. Við upphaflega skráningu eru leigueignirnar færðar á hvoru sem lægra reynist af gangvirði eða núvirði lámarksleigugreiðslna. Á síðari uppgjörsdögum eru eignirnar færðar samkvæmt þeirri reikningsskilaaðferð sem gildir um viðkomandi eignir.
Aðrir leigusamningar eru rekstrarleigusamningar og eru hinar leigðu eignir ekki færðar til eignar. Leigusamningar samstæðunnar flokkuðust allir sem rekstrarleigusamningar.
Birgðir eru metnar á kostnaðarverði eða hreinu söluvirði, hvoru sem lægra reynist. Kostnaðarverð birgða byggir á fyrst inn - fyrst út reglunni og innifelur kostnað sem fellur til við að afla birgðanna og koma þeim á þann stað og í það ástand sem þær eru í á uppgjörsdegi. Hreint söluvirði er áætlað söluverð í venjulegum viðskiptum að frádregnum áætluðum kostnaði við að selja vöru.
Á hverjum uppgjörsdegi er kannað hvort til staðar sé hlutlæg vísbending um virðisrýrnun fjáreigna, sem ekki eru færðar á gangvirði. Fjáreign hefur rýrnað í virði ef hlutlægar vísbendingar eru um að einn eða fleiri atburðir sem hafa orðið benda til þess að vænt framtíðarsjóðstreymi eignarinnar sé lægra en áður var talið.
Virðisrýrnun fjáreigna sem færðar eru á afskrifuðu kostnaðarverði er mismunurinn á bókfærðu verði þeirra annars vegar og núvirtu væntu framtíðarsjóðstreymi, miðað við upphaflega virka vexti, hins vegar. Virðisrýrnun fjáreigna til sölu er ákvarðað með hliðsjón af gangvirði þeirra á hverjum tíma. Einstakar mikilvægar fjáreignir eru prófaðar sérstaklega með tilliti til virðisrýrnunar. Aðrar fjáreignir eru flokkaðar saman eftir lánsáhættueinkennum og hver flokkur metinn sérstaklega með tilliti til virðisrýrnunar.
Virðisrýrnun er gjaldfærð í rekstrarreikningi.
Virðisrýrnun er bakfærð ef hægt er að tengja bakfærsluna á hlutlægan hátt atburði sem átti sér stað eftir að virðisrýrnunin var færð. Virðisrýrnun fjárfestinga til gjalddaga er bakfærð í rekstrarreikningi.
Bókfært verð annarra eigna samstæðunnar, að undanskildum birgðum og tekjuskattseign, er yfirfarið á hverjum uppgjörsdegi til að meta hvort vísbendingar séu um virðisrýrnun þeirra. Sé einhver slík vísbending til staðar er endurheimtanleg fjárhæð eignarinnar metin. Virðisrýrnunarpróf eru gerð að minnsta kosti árlega á viðskiptavild.
Endurheimtanleg fjárhæð eignar eða fjárskapandi einingar er hreint gangvirði þeirra eða nýtingarvirði, hvort sem hærra reynist. Nýtingarvirði er áætlað framtíðarsjóðstreymi, sem er núvirt með vöxtum fyrir skatta, þar sem vextirnir endurspegla mat markaðarins á tímavirði peninga hverju sinni og þá áhættu sem fylgir eigninni.
Virðisrýrnun er gjaldfærð þegar bókfært verð eignar eða fjárskapandi einingar er hærra en endurheimtanleg fjárhæð hennar. Fjárskapandi eining er minnsti aðgreinanlegi hópur eigna sem myndar sjóðstreymi sem er að mestu leyti óháð öðrum eignum eða hópum eigna. Virðisrýrnun fjárskapandi eininga er fyrst færð til lækkunar á tilheyrandi viðskiptavild, en síðan til hlutfallslegrar lækkunar á bókfærðu verði annarra eigna sem tilheyra einingunni. Virðisrýrnun er gjaldfærð í rekstrarreikningi.
Virðisrýrnun viðskiptavildar er ekki bakfærð. Virðisrýrnun fyrri tímabila vegna annarra eigna er metin á hverjum uppgjörsdegi til að kanna hvort vísbendingar séu um að rýrnunin hafi minnkað eða horfið. Virðisrýrnun er bakfærð ef breyting hefur orðið á mati sem notað var við útreikning á endurheimtanlegri fjárhæð. Virðisrýrnun er einungis bakfærð að því marki að bókfært verð eignar sé ekki umfram það sem verið hefði ef engin virðisrýrnun hefði verið færð.
Samstæðan greiðir föst iðgjöld vegna starfsmanna sinna til sjálfstæðra iðgjaldatengdra lífeyrissjóða. Samstæðan ber enga ábyrgð á skuldbindingum sjóðanna. Iðgjöldin eru gjaldfærð í rekstrarreikning meðal launa og launatendra gjalda eftir því sem þau falla til.
Skuldbinding er færð þegar samstæðunni ber lagaleg eða ætluð skylda vegna liðinna atburða og líklegt er að kostnaður, sem hægt er að meta með áreiðanlegum hætti, lendi á henni við að gera upp skuldbindinguna. Skuldbindingar eru metnar með því að núvirða áætlað framtíðarsjóðstreymi með vöxtum fyrir skatta sem sýna núverandi markaðsmat tímavirðis peninga og áhættuna sem tengist skuldbindingunni.
Skuldbinding vegna ábyrgða er færð þegar vara eða þjónusta er seld. Mat á skuldbindingunni er byggð á fyrri reynslu vegna ábyrgða með því að vega saman mögulegar útkomur og líkur þeim tengdar.
Tekjur af sölu á vörum og hugbúnaði í venjulegri starfsemi eru metnar á gangvirði greiðslunnar sem er móttekin eða er innheimtanleg, að frádregnum afsláttum og endurgreiðslum. Tekjur eru færðar í rekstrarreikning þegar félagið hefur uppfyllt samningsskyldu sína sem er yfirleitt við afhendingu, líklegt er að endurgjaldið verði innheimt og unnt er að meta kostnað vegna sölunnar og möguleg skil á vörum á áreiðanlegan hátt. Greiðslufrestur er almennt 30 dagar nema staðgreiðslusölu.
Tekjur af veittri þjónustu eru færðar í rekstrarreikning þegar þjónusta er innt af hendi og í hlutfalli við stöðu verks á uppgjörsdegi. Staða verks er metin með hliðsjón af vinnu sem lokið er. Greiðslufrestur er almennt 30 dagar.
Leigutekjur eru færðar línulega í rekstrarreikning á leigutímanum.
Fyrir upptöku á IFRS 15 voru greiðslur vegna rekstrarleigusamninga gjaldfærðar línulega í rekstrarreikning á leigutímabilinu.
Lágmarksleigugreiðslum vegna fjármögnunarleigusamninga er skipt í fjármagnskostnað og lækkun leiguskuldar. Vaxtagjöldum er dreift á leigutímann miðað við virka vexti.
Fjármunatekjur samanstanda af vaxtatekjum af fjáreignum, arðstekjum og gengishagnaði af erlendum gjaldmiðlum. Vaxtatekjur eru færðar í rekstrarreikning eftir því sem þær falla til miðað við virka vexti. Arðstekjur eru færðar í rekstrarreikning á þeim degi sem arðsúthlutun er samþykkt.
Fjármagnsgjöld samanstanda af vaxtakostnaði af lántökum, bakfærslu núvirðingar, breytingum á gangvirði fjáreigna þar sem gangvirðisbreyting er færð í rekstrarreikning og gengistapi af erlendum gjaldmiðlum. Hagnaði og tapi vegna gengisbreytinga erlendra gjaldmiðla er jafnað saman.
Gjaldfærður tekjuskattur samanstendur af tekjuskatti til greiðslu og frestuðum tekjuskatti. Tekjuskattur er færður í rekstrarreikning nema hann varði liði sem eru færðir beint á eigið fé eða í yfirlit um heildarafkomu, en þá er tekjuskatturinn færður á þessa liði.
Tekjuskattur til greiðslu er tekjuskattur sem áætlað er að komi til greiðslu á næsta ári vegna skattskylds hagnaðar ársins, miðað við gildandi skatthlutfall á uppgjörsdegi, auk leiðréttinga á tekjuskatti til greiðslu vegna fyrri ára.
Frestaður tekjuskattur er færður með notkun efnahagsreikningsaðferðarinnar vegna tímabundinna mismuna á bókfærðu verði eigna og skulda í ársreikninginum annars vegar og skattverði þeirra hins vegar. Frestaður tekjuskattur er ekki færður vegna fjárfestinga í dótturfélögum. Tekjuskattsskuldbinding er ekki færð vegna viðskiptavildar sem ekki er frádráttarbær skattalega. Fjárhæð frestaðs tekjuskatts er byggð á áætlaðri innlausn eða uppgjöri bókfærðs verðs eigna og skulda með því að beita gildandi skatthlutfalli á uppgjörsdegi.
Tekjuskattseignum og tekjuskattsskuldbindingum er jafnað saman þegar lagalegur réttur er til þess, þau varða tekjuskatt sem lagður er á af sömu yfirvöldum á sama fyrirtæki eða mismunandi fyrirtæki sem eru samsköttuð og gert er ráð fyrir að muni greiða skatta sameiginlega.
Tekjuskattseign er einungis færð að því marki sem líklegt er að hægt sé að nýta framtíðarhagnað á móti eigninni. Tekjuskattseign er metin á hverjum uppgjörsdegi og lækkuð að því marki sem talið er að hún nýtist ekki.
Í ársreikningnum er sýndur grunnhagnaður á hlut og þynntur hagnaður á hlut fyrir almenna hluti í félaginu. Grunnhagnaður á hlut er reiknaður sem hlutfall hagnaðar, sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu, og vegins meðalfjölda virkra hluta á árinu. Þynntur hagnaður á hlut er reiknaður með því að leiðrétta meðalfjölda virka hluta vegna mögulegrar þynningar vegna hluta sem gæti þurft að gefa út í samræmi við kaupréttarsamninga starfsmanna.
Rekstrarstarfsþáttur er hluti samstæðunnar sem fæst við viðskipti og er fær um að afla tekna og stofna til gjalda, að meðtöldum tekjum og gjöldum vegna viðskipta við aðra hluta samstæðunnar. Afkoma allra starfsþátta samstæðunnar er reglulega yfirfarin af forstjóra til að ákvarða hvernig eignum hennar er skipt á starfsþætti og til að meta frammistöðu þeirra.
Rekstrarafkoma starfsþátta, eignir og skuldir þeirra samanstanda af liðum sem tengja má beint við hvern starfsþátt og þá liði sem hægt er að skipta milli starfsþátta á rökrænan hátt.
Fjárfestingar starfsþátta er heildarkostnaður við kaup rekstrarfjármuna og óefnislegra eigna annarra en viðskiptavildar.
Verðlagning sölu á vöru og þjónustu milli starfsþátta er ákveðið eins og um óskylda aðila sé að ræða.
Samstæðan tók IFRS 16 upp með því að beita aðferð uppsafnaðra áhrifa og því hefur samanburðarfjárhæðum vegna ársins 2018 ekki verið breytt og þær áfram settar fram eins og þær voru birtar áður samkvæmt IAS 17 og IFRIC 4. Nánar er fjallað um reikningsskilaaðferðir samkvæmt IAS 17 og IFRIC 4 annars staðar í skýringum.
Við upphaf samnings leggur samstæðan mat á það hvort samningur eða hluti hans feli í sér leigusamning. Samningur er leigusamningur að hluta eða heild ef hann felur í sér rétt til yfirráða tiltekinnar eignar á tilteknu tímabili í skiptum fyrir endurgjald. Við mat á því hvort leigusamningur felur í sér yfirráð tiltekinnar eignar notar samstæðan skilgreiningu leigusamnings í IFRS 16. Þessi aðferð er notuð á samninga sem gerðir voru 2019.
Við upphaf eða breytingu á samningi sem felur í sér leiguhluta úthlutar samstæðan endurgjaldinu á sérhvern leiguhluta á grundvelli sjálfstæðs verðs hvers hlutar fyrir sig. Fyrir leigusamninga um fasteignir hefur samstæðan hins vegar kosið að aðgreina ekki leiguhluta frá öðrum hlutum samningsins og færir þá sem einn leigusamning.
Samstæðan færir leigueign og leiguskuld við upphaf leigusamnings. Leigueignin er upphaflega færð á kostnaðarverði, sem er upphafleg fjárhæð leiguskuldarinnar að teknu tilliti til leigugreiðslna sem hafa fallið til fyrir eða á upphafsdegi samningsins, beins kostnaðar við öflun leigueignarinnar og áætlaðs kostnaðar við að taka niður og fjarlægja eignina, eða til þess að færa eignina eða umhverfi hennar í samt horf að loknum leigusamningi, og að frádregnum leiguílvilnunum sem samstæðan hefur fengið.
Leigueignin er afskrifuð línulega frá upphafi til loka leigusamningsins, nema þegar eignarhald flyst yfir til samstæðunnar í lok leigutímabilsins eða ef kostnaðarverð leigueignarinnar endurspeglar að samstæðan muni nýta sér kauprétt í lok leigutímabilsins. Í þeim tilfellum er leigueignin afskrifuð á nýtingartíma eignarinnar, sem er ávarðaður með sömu aðferð og notuð er fyrir aðra fastafjármuni samstæðunnar. Jafnframt er virði leigueignar lækkað reglubundið um sem nemur virðisrýrnun hennar, ef einhver er, og leiðrétt vegna endurmats leiguskuldarinnar.
Leiguskuld er upphaflega færð við núvirði ógreiddra leigugreiðslna á upphafsdegi leigusamningsins. Greiðslurnar eru núvirtar með því að nota innbyggða vexti leigusamningsins, séu þeir tilækir, en annars notar samstæðan þá vexti sem hún fær af nýju lánsfé. Að jafnaði notar samstæðan vexti á nýju lánsfé til núvirðingar.
Samstæðan ákvarðar vexti af nýju lánsfé með því að sækja vaxtaupplýsingar vegna ólíkra fjármögnunarleiða og gerir tilteknar aðlaganir til að endurspegla skilmála leigusamningsins og eiginleika eignarinnar sem er leigð.
Leigugreiðslur sem eru innfaldar í ákvörðun fjárhæðar leiguskuldar fela í sér eftirfarandi:
– Fastar greiðslur, þar með taldar leigugreiðslur sem eru samkvæmt eðli sínu fastar;
– Breytilegar leigugreiðslur tengdar vöxtum eða vísitölu, upphaflega áætlaðar miðað við vexti eða vísitölu á upphafsdegi;
– Fjárhæðir sem gert er ráð fyrir að þurfi að greiða samkvæmt hrakvirðistryggingu; og
– Kaupverð samkvæmt kaupréttarákvæði í leigusamningi þegar samstæðan telur nokkuð víst að hún muni nýta kaupréttinn, leigugreiðslur á valkvæðum framlengingartímabilum ef samstæðan er nokkuð viss um að hún muni nýta framlengingarheimildir og greiðslur vegna uppsagnar leigusamnings fyrir lok leigutímans, nema samstæðan sé nokkuð viss um að nýta ekki uppsagnarheimildir.
Leiguskuldin er færð á afskrifuðu kostnaðarverði með því að nota aðferð virkra vaxta. Hún er endurmetin þegar breyting verður á framtíðarleigugreiðslum vegna breytinga á vísitölu eða vöxtum, ef breyting verður á mati samstæðunnar á fjárhæð sem hún væntir að verði greidd samkvæmt hrakvirðistryggingu, ef samstæðan breytir mati sínu á því hvort hún muni nýta kaupréttarákvæði, heimildir til framlengingar eða uppsagnar leigusamnings eða þegar breyting verður á fjárhæð leigugreiðslu sem er í eðli sínu föst.
Þegar leiguskuldin er endurmetin með þessum hætti er samsvarandi leiðrétting gerð á bókfærðu verði leigueignarinnar, eða leiðrétting færð í rekstrarreikning samstæðunnar ef bókfært virði leigueignarinnar hefur verið fært niður í núll.
Leigueignir sem ekki uppfylla skilgreiningu á fjárfestingarfasteign eru færðar meðal rekstrarfjármuna í efnahagsreikningi en leiguskuldir meðal vaxtaberandi lána.
Samstæðan kýs að færa ekki leigueignir og leiguskuldir vegna leigusamninga um óverulegar eignir og skammtímaleigusamninga, þar á meðal um tölvubúnað. Samstæðan gjaldfærir leigugreiðslur vegna þessara leigusamninga línulega á leigutíma.
Við upphaf eða breytingu á samningi sem inniheldur leiguþátt skiptir samstæðan endurgjaldi samkvæmt samningnum niður á einstaka leiguþætti samningsins á grundvelli hlutfallslegs sjálfstæðs verðs þeirra.
Þegar samstæðan er leigusali er ákvarðað við upphaf leigusamnings hvort um er að ræða fjármögnunarleigusamning eða rekstrarleigusamning.
Við flokkun leigusamnings leggur samstæðan heildstætt mat á það hvort leigusamningurinn flytji meginhluta áhættu og ávinnings sem tilheyrir eignarhaldi undirliggjandi eignar. Ef það er niðurstaðan þá er leigusamningurinn fjármögnunarleigusamningur, en ef ekki þá er hann rekstrarleigusamningur. Ákveðnir þættir eru hluti af þessu mati eins og til dæmis hvort leigusamningurinn nær yfir meginhluta hagræns endingartíma eignarinnar.
Þegar samstæðan tekur eign á leigu og leigir hana áfram færir hún hagsmuni sína samkvæmt upphaflegum leigusamningi annars vegar og framleigusamningi hins vegar. Samstæðan flokkar framleigusamning með vísan til leigueignarinnar sem leiðir af upphaflegum leigusamningi, en ekki með vísan til undirliggjandi eignar. Ef upphaflegur leigusamningur er skammtímaleigusamningur sem samstæðan fer með eftir undanþágunni sem gerð er grein fyrir hér að framan er framleigusamningurinn rekstrarleigusamningur.
Ef samningur felur í sér leiguþátt og aðra óskylda þætti, þá beitir samstæðan IFRS 15 til þess að úthluta endurgjaldi á einstaka þætti samningsins.
Samstæðan beitir kröfum IFRS 9 um afskráningu og virðisrýrnun á hreinni eign leigusamninga (sjá skýringu 45(R)(i)). Þá fer samstæðan reglulega yfir áætlað ótryggt hrakvirði sem er notað til þess að reikna út heildarfjárfestingu samstæðunnar í leigusamningnum.
Samstæðan færir leigugreiðslur vegna rekstrarleigusamninga línulega yfir leigutímabilið meðal annarra tekna í rekstrarreikningi.
Að jafnaði áttu sambærilegar reikningsskilaaðferðir við um samstæðuna sem leigusala á samanburðartímabilinu og eiga nú við samkvæmt IFRS 16, þó að því undanskildu að framleigusamningur sem samstæðan gerði á núverandi
Nokkrir nýir alþjóðlegir reikningsskilastaðlar gilda um fjárhagsár sem hefjast 1. janúar 2019 eða síðar og er heimilt er að beita fyrir gildistöku þeirra. Samstæðan hefur hins vegar ekki innleitt nýja eða breytta reikningsskilastaðla fyrir gildistíma við gerð þessara reikningsskila.
Ekki er búist við að eftirfarandi breytingar á stöðlum og túlkunum muni hafa veruleg áhrif á reikningsskil samstæðunnar.
Ársfjórðungayfirlit samstæðunnar er óendurskoðað. Rekstur samstæðunnar greinist þannig á ársfjórðunga:
| 1. árs- fjórðungur |
2. árs- fjórðungur |
3. árs- fjórðungur |
4. árs fjórðungur |
Samtals | |||
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Árið 2019 | |||||||
| Seldar vörur og þjónusta Vörunotkun og kostnaðarverð |
3.552.869 | 3.493.083 | 3.462.783 | 4.336.340 | 14.845.075 | ||
| seldrar þjónustu ( | 2.631.272) ( | 2.641.647) | ( 2.715.660) |
( | 3.011.295) | ( 10.999.874) | |
| Framlegð | 921.597 | 851.436 | 747.123 | 1.325.045 | 3.845.201 | ||
| Rekstrarkostnaður ( |
825.291) ( | 778.728) | ( 647.728) |
( | 1.174.021) | ( | 3.425.768) |
| Rekstrarhagnaður | 96.306 | 72.708 | 99.395 | 151.024 | 419.433 | ||
| Fjármunatekjur | 14.629 | 33.180 | 13.744 | 414.471 | 476.024 | ||
| Fjármagnsgjöld ( Hrein (fjármagnsgjöld) |
57.551) ( | 47.919) | ( 10.450) |
( | 35.558) | ( | 151.478) |
| fjármunatekjur ( | 42.922) ( | 14.739) | 3.294 | 378.913 | 324.546 | ||
| Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags | 21.297 | 46.349 | ( 1.959) |
( | 56.908) | 8.779 | |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 74.681 | 104.318 | 100.730 | 473.029 | 752.758 | ||
| Tekjuskattur ( | 10.855) ( | 5.074) | ( 26.891) |
( | 31.673) | ( | 74.493) |
| Hagnaður tímabilsins | 63.826 | 99.244 | 73.839 | 441.356 | 678.265 | ||
| Rekstrarliðir færðir beint á eigið fé: | |||||||
| Þýðingarmunur dótturfélaga | 149.422 | 38.823 | ( 59.157) |
( | 11.204) | 117.884 | |
| Innleystur þýðingarmunur | 0 | 0 | 0 | ( | 339.969) | ( | 339.969) |
| Rekstrarliðir færðir beint á | |||||||
| eigið fé samtals | 149.422 | 38.823 | ( 59.157) |
( | 351.173) | ( | 222.085) |
| Heildarhagnaður tímabilsins | 213.248 | 138.067 | 14.682 | 90.183 | 456.180 | ||
| EBITDA | 237.250 | 213.336 | 253.625 | 302.050 | 1.006.261 |
| 1. árs- fjórðungur |
2. árs- fjórðungur |
3. árs- fjórðungur |
4. árs fjórðungur |
Samtals | |
|---|---|---|---|---|---|
| Árið 2018 | |||||
| Seldar vörur og þjónusta Vörunotkun og kostnaðarverð |
3.781.316 | 3.731.061 | 3.743.512 | 4.460.797 | 15.716.686 |
| seldrar þjónustu ( | 2.873.546) ( | 2.721.500) | ( 2.672.474) |
( 3.275.801) |
( 11.543.321) |
| Framlegð | 907.770 | 1.009.561 | 1.071.038 | 1.184.996 | 4.173.365 |
| Rekstrarkostnaður ( |
970.959) ( | 947.797) | ( 868.264) |
( 895.196) |
( 3.682.216) |
| (Rekstrartap) hagnaður ( | 63.189) | 61.764 | 202.774 | 289.800 | 491.149 |
| Áhrif sölu á Tempo ehf. | 0 | 0 | 0 | 5.097.947 | 5.097.947 |
| Aðrar fjármunatekjur | 56.459 ( | 7.924) | 4.250 | 26.760 | 79.545 |
| Fjármagnsgjöld ( | 28.207) ( | 26.578) | ( 27.719) |
( 30.535) |
( 113.039) |
| Hreinar fjármunatekjur | |||||
| (fjármagnsgjöld) | 28.252 ( | 34.502) | ( 23.469) |
5.094.172 | 5.064.453 |
| Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags | 0 | 0 | 0 | ( 21.522) |
( 21.522) |
| (Tap) hagnaður fyrir tekjuskatt ( | 34.937) | 27.262 | 179.305 | 5.362.450 | 5.534.080 |
| Tekjuskattur | 6.518 ( | 5.976) | ( 36.280) |
( 57.872) |
( 93.610) |
| (Tap) hagnaður tímabilsins ( | 28.419) | 21.286 | 143.025 | 5.304.578 | 5.440.470 |
| Rekstrarliðir færðir beint á eigið fé | |||||
| Þýðingarmunur dótturfélaga Innleystur þýðingarmunur vegna |
2.198 ( | 5.889) | 3.000 | 6.947 | 6.256 |
| Rekstrarliðir færðir beint á | |||||
| eigið fé samtals | 2.198 ( | 5.889) | 3.000 | ( 19.732) |
( 20.423) |
| (Heildartap) -hagnaður tímabilsins ( | 26.221) | 15.397 | 146.025 | 5.284.846 | 5.420.047 |
| EBITDA | 101.681 | 234.772 | 368.657 | 423.302 | 1.128.412 |
Stjórn Origo hf. samanstendur af fimm stjórnarmönnum og tveimur varamönnum sem kjörnir eru árlega á hluthafafundi. Á hluthafafundi þann 2.maí 2019 voru þau Guðmundur Jóhann Jónsson, Hildur Dungal, Hjalti Þórarinsson, Ívar Kristjánsson og Svava Grönfeldt sjálfkjörin í aðalstjórn félagsins. Elísabet Grétarsdóttir og Gunnar Zoega voru sjálfkjörin sem varamenn í stjórn. Ívar Kristjánsson er formaður stjórnar og Hildur Dungal er varaformaður. Gunnar Zoega fór úr varastjórn í október 2019.
Í stjórn og varastjórn eru þrír karlar og þrjár konur og uppfyllir félagið því ákvæði laga um hlutafélög um kynjahlutföll stjórnar sem tóku gildi 1. september 2013. Allir fimm stjórnarmenn í aðalstjórn félagsins eru óháðir félaginu. Bakgrunnur stjórnarmanna er margvíslegur og eru stjórnarmenn með fjölbreytta menntun, m.a. úr viðskiptafræði, verkfræði og lögfræði, en einn stjórnarmanna er með embættispróf í lögfræði. Að auki hafa stjórnarmenn víðtæka reynslu úr atvinnulífinu.
Stjórn Origo hf. leitast við að viðhalda stjórnarháttum og fylgja "Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja", sem Viðskiptaráð Íslands, Nasdaq OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út í endurskoðaðri útgáfu í júní 2015. Stjórnin hefur sett sér ítarlegar starfsreglur þar sem valdsvið hennar er skilgreint og verksvið gagnvart forstjóra. Í þeim er meðal annars að finna reglur um fundarsköp, fundargerðir stjórnar, ítarlegar reglur um hæfi stjórnarmanna til þátttöku við afgreiðslu mála og reglur um þagnarskyldu. Þar eru einnig reglur um upplýsingagjöf forstjóra gagnvart stjórn og ákvörðunarvald stjórnar, en undirritun meiri hluta stjórnarmanna skuldbindur félagið.
Núgildandi starfsreglur stjórnar voru samþykktar á stjórnarfundi 22. mars 2018 og eru þær aðgengilegar á vef félagsins, www.origo.is.
Stjórn hefur skipað endurskoðunarnefnd og eru reglur nefndarinnar aðgengilegar á heimasíðu félagsins. Í endurskoðunarnefnd eiga nú sæti stjórnarformaður, meðstjórnandi og utanaðkomandi löggiltur endurskoðandi. Meginhlutverk og ábyrgð nefndarinnar er að hafa eftirlit með vinnuferlum við gerð reikningsskila, fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits félagsins, innri endurskoðun og ef við á áhættustýringu og öðrum eftirlitsaðgerðum. Auk þess leggur nefndin fram tillögur til stjórnar um val á endurskoðanda félagsins auk þess að meta óhæði endurskoðanda og hafa eftirlit með störfum hans. Stjórn hefur jafnframt skipað starfskjaranefnd og tækninefnd sem eru stjórn og stjórnendum til ráðgjafar um starfskjarastefnu og mál er tengjast launastefnu og tæknilegu umhverfi Origo. Regluvörður, skipaður af stjórn, hefur umsjón með að reglum um innherjaupplýsingar og viðskipti innherja sé fylgt. Stjórn hefur ekki skipað tilnefningarnefnd, en við endurskoðun á starfsháttum stjórnar og umgjörð um starfið er það nú mat stjórnar að skipa beri slíka nefnd og liggur fyrir tillaga um slíkt á aðalfundi
Á árinu 2019 voru haldnir 13 stjórnarfundir og 5 fundir í endurskoðunarnefnd, auk funda í starfskjaranefnd. Meiri hluti stjórnar og nefnda hefur mætt á alla fundi. Endurskoðunarnefnd boðar endurskoðendur félagsins á fundi þegar tilefni er til, auk þess sem þeir mæta á stjórnarfundi vegna ársreiknings.
Til að tryggja að reikningsskil samstæðunnar séu í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla hefur félagið lagt áherslu á vel skilgreind ábyrgðarsvið, eðlilega aðgreiningu starfa, ásamt reglulegri skýrslugjöf og gegnsæi í starfseminni. Ferli mánaðarlegrar skýrslugjafar ásamt rýni fyrir einstakar deildir er mikilvægur þáttur í eftirliti með afkomu og öðrum lykilþáttum starfseminnar. Mánaðarleg uppgjör eru unnin og lögð fyrir stjórn félagsins. Til staðar eru verklagsreglur til að tryggja eftirlit með tekjuskráningu, rekstrarkostnaði ásamt fleiri liðum sem hafa áhrif á rekstur félagsins. Áhættustýring er yfirfarin reglulega til að endurspegla breytingar á markaðsaðstæðum og starfsemi félagsins. Með þjálfun starfsmanna og starfsreglum stefnir samstæðan að öguðu eftirliti þar sem allir starfsmenn eru meðvitaðir um hlutverk sitt og skyldur. Rekstraráhættu er mætt með því að hafa eftirlit með viðskiptum og fylgni við lög. Stjórn hefur sett stefnu um að eiginfjárstaða samstæðunnar sé nægilega sterk til að styðja við stöðuga framþróun starfsemi félagsins.
Samkvæmt samþykktum félagsins fer stjórn Origo hf. með æðsta vald í málefnum félagsins á milli hluthafafunda. Stjórnin ákveður stefnu Origosamstæðunnar og fylgir eftir meginverkefnum í starfsemi samstæðunnar. Fyrir stjórn er lögð rekstrar- og fjárfestingaáætlun til staðfestingar og fylgist stjórnin reglubundið með framvindu þeirra áætlana innan ársins. Stjórn ákveður skipulag og fylgir því eftir að starfsemi félagsins fari fram í samræmi við samþykktir hennar. Stjórnin skal tryggja að nægilegt eftirlit sé með meðferð fjármuna félagsins og að góð regla sé á bókhaldi og uppgjöri.
Í stjórn Origo sitja fimm menn og tveir til vara og er stjórnin kjörin á aðalfundi til eins árs í senn. Samkvæmt samþykktum skulu þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn félagsins tilkynna það skriflega til stjórnar að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar og eru þeir einir kjörgengir, sem þannig hafa gefið kost á sér. Formaður kveður stjórn til fundar og stýrir stjórnarfundum. Fundi skal halda hvenær sem formaður telur þess þörf, en að auki er honum skylt að boða stjórnarfund að kröfu eins stjórnarmanns eða forstjóra. Stjórnarfundir eru því aðeins lögmætir að mættir séu þrír stjórnarmenn eða fleiri.
Stjórn Origo hf. ræður forstjóra félagsins og ákveður starfskjör hans. Forstjóri er ábyrgur fyrir daglegri starfsemi félagsins í samræmi við samþykktir þess, stefnu og ákvörðun stjórnar. Forstjóri skal vinna að stefnumótun og framþróun félagsins ásamt því að skipuleggja og fylgja eftir daglegum rekstri þess. Þá er hlutverk forstjóra að tryggja að starfsemi félagsins sé í samræmi við gildandi löggjöf og reglur hverju sinni og fylgja því eftir að starfsemi dótturfélaga sé með sama hætti.
Æðsta vald í málefnum félagsins er í höndum lögmætra hluthafafunda. Aðalfundur skal haldinn fyrir lok júnímánaðar ár hvert og hluthafafundi skal halda eftir ákvörðun stjórnar eða að kröfu kjörins endurskoðanda eða hluthafa, sem ráða að minnsta kosti 1/20 hlutafjár í félaginu. Krafa um hluthafafund skal gerð skriflega, fundarefni tilgreint og fundur þá boðaður innan lögmæts frests. Til hluthafafundar skal boða með birtingu auglýsingar í dagblaði eða með öðrum sambærilegum hætti. Aðalfund skal boða með minnst þriggja vikna og mest fjögurra vikna fyrirvara samkvæmt breytingum á hlutafélagalögum frá 19. desember 2009. Í fundarboði skal gerð grein fyrir fundarefni og þeim skjölum og tillögum sem lögð verða fyrir fundinn. Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverjum hlut í félaginu.
Samþykktum félagsins má einungis breyta á löglegum hluthafafundi þess og skal þess rækilega getið í fundarboði að fyrir liggi tillaga um breytingar á samþykktum og í hverju hún felist í meginatriðum. Ákvörðun verður því aðeins gild að hún njóti minnst 2/3 hluta greiddra atkvæða svo og samþykkis hluthafa sem ráða 2/3 hlutum þess hlutafjár sem farið er með atkvæði fyrir á hluthafafundum. Síðast voru gerðar breytingar á samþykktum Origo hf. þann 2. maí 2019.
Endurskoðendur félagsins eru kjörnir á aðalfundi til eins árs í senn. Á aðalfundi 2019 var KPMG ehf. kjörinn endurskoðandi félagsins og er KPMG ehf. einnig endurskoðandi allra dótturfélaga félagsins á Íslandi. KPMG í Svíþjóð annast endurskoðun á sænska dótturfélaginu Applicon.
Í byrjun árs 2015 hlaut Nýherji viðurkenninguna "Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum" samkvæmt mati Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands, að undangenginni ítarlegri úttekt Capacent.
Origo hf. er samstæða fyrirtækja í upplýsingatækni. Origo er þjónustufyrirtæki og hlutverk fyrirtækisins felst í að aðstoða viðskiptavini við að ná enn betri árangri í sínum rekstri með aðstoð upplýsingatækni, sérfræðiþekkingu starfsfólks og lipurri þjónustu. Hlutabréf Origo hf. eru skráð í NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöll Íslands) undir auðkenninu ORIGO. Hjá Origosamstæðunni hérlendis og erlendis starfa um 550 manns. Lausnaframboð Origo nær til flestra sviða upplýsingatækni, svo sem hýsingar- og rekstrarþjónustu, eigin hugbúnaðarþróunar og -lausna frá samstarfsaðilum, viðskiptalausna og innviða upplýsingakerfa. Auk þess selur Origo búnað og lausnir til fyrirtækja og einstaklinga frá mörgum af fremstu framleiðendum heims, á borð við Lenovo, IBM, Canon, Bose, Sony, NEC og fleiri.
Nánari upplýsingar um Origo og dótturfélög má finna á heimasíðu félagsins, www.origo.is.
Origo hefur sett sér umhverfisstefnu sem tekur til allrar starfsemi Origo og dótturfélaga auk allra starfsmanna samstæðunnar. Starfsmenn og stjórnendur samstæðunnar skulu kynna sér efni stefnunnar og framfylgja henni, auk þess að leita leiða til umbóta í umhverfissmálum. Framfylgja skal öllum lagakröfum á sviði umhverfismála í starfssemi samstæðunnar. Með umhverfisstefnunni skuldbindur samstæðan sig til að vinna markvisst að því að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif starfseminnar.
Origo er eitt af þeim fyrirtækjum á Íslandi sem hefur undirritað yfirlýsingu um loftslagsmál og þannig skuldbundið sig til að vinna að aðgerðum sem draga úr losun gróðurhúslofttegunda og minnka myndun úrgangs. Notast er við hugbúnað til að mæla vistspor fyrirtækisins og setja markmið í umhverfismálum fyrir fyrirtækið. Origo hvetur starfsmenn til vistvænna ferðmáta, m.a. með því að veita þeim samgöngustyrki sem ferðast ekki á einkabílum og hefur félagið einnig sett sér sérstaka samgöngustefnu í þessum efnum. Allt sorp sem fellur til, bæði á skrifstofu félagsins og lager, er flokkað í viðeigandi flokkunartunnur. Félagið hefur tekið stór skref í útrýmingu einnota umbúða sem voru áður í tíðri notkun. Félagið notar eigin lausn, RentaPrent, þar sem lögð er áhersla á að draga úr sóun á pappír.
Origo hf. framkvæmir nú í fyrsta skipti heildstætt umhverfisuppgjör í samstarfi við Klappir Grænar Lausnir fyrir árið 2019. Umhverfisuppgjörið er unnið í samræmi við Greenhouse Gas Protocol (GHG Protocol) og ESG leiðbeiningar NASDAQ og hefur Origo kolefnisjafnað rekstur sinn fyrir árið 2019 með samstarfi við Kolviður (Iceland Carbon Fund).
Samfélagsleg ábyrgð skiptir Origo miklu máli og hefur félagið unnið að því að auka samfélagslega ábyrgð sína með margvíslegum hætti. Samfélagsstefna félagsins hefur verið römmuð inn í tengslum við ungt fólk, menntun og nýsköpun, sem hafa verið grunnþættir í þeim verkefnum sem félagið hefur styrkt um nokkurt skeið. Samfélagsstefna félagsins byggir á þessum áherslum en er nánar útfærð til að taka til fjögurra meginstoða, sem eru: Góðir stjórnarhættir, mannauður, umhverfi og styrkir við góð málefni.
Meðal verkefna sem styrkt hafa verið eru: Háskóli unga fólksins, Forritunarkeppni framhaldsskólanna á vegum HR, Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema í Háskóla Íslands, Forritarar framtíðarinnar, First Lego hönnunarkeppnin, Verkefni Samtaka iðnaðarins um kynningu náms í tæknigreinum háskóla fyrir framhaldsskólanemum.
Origo hefur sett sér margvíslegar stefnur til að stuðla að sem bestu umhverfi fyrir starfsmenn sína. Í mannauðsstefnu fyrirtækisins kemur fram að markmið Origo er að verða eftirsóknarverðasti vinnustaðurinn og laða þannig að fyrirtækinu hæfasta starfsfólkið til frambúðar. Stefna fyrirtækisins í mannauðsmálum styður við þetta markmið með því að tryggja að við bjóðum upp á frábært vinnuumhverfi sem virkjar skapandi kraft og ýtir undir nýsköpun, leggjum áherslu á þekkingaröflun og þekkingarmiðlun starfsfólks og ýtum þannig undir þróun í starfi og stuðlum að samvinnu og nýtum sérþekkingu hvers annars til að þróa snjallar lausnir með viðskiptavinum. Ýmsar mælingar eru gerðar til að fá upplýsingar um stöðu þeirra atriða sem mannauðsstefnan tekur til. Þar má nefna reglulegar vinnustaðagreiningar, frammistöðusamtöl og aðrar úttektir.
Jafnréttis-og jafnlaunastefna Origo er sett til að tryggja að Origo nái markmiðum sínum í jafnréttismálum. Henni er ætlað að tryggja stöðugar umbætur, eftirlit og viðbrögð við jafnréttismálum hjá félaginu.Origo hlaut vottun undir lok árs 2018 á jafnlaunakerfi sínu af BSI á Íslandi sem staðfesti að kerfið uppfylli kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012. Á árinu 2019 var áfram unnið að umbótum á jafnlaunakerfi Origo, en kerfinu er ætlað að tryggja að allar launaákvarðanir séu teknar með kerfisbundnum hætti og að þær feli ekki í sér kynjamun.
Starfskjarastefna félagsins um starfskjör stjórnenda og starfsmanna hefur það að markmiði að laða að og halda í mjög hæft starfsfólk. Í stefnunni segir að kyn og aðrir persónueiginleikar sem ekki tengjast inntaki starfs eða frammistöðu í starfi skulu ekki hafa áhrif á laun eða launaþróun. Til að tryggja sanngirni og samræmi í launamálum hafa stjórnendur aðgang að miðlægum viðmiðum um launabyggingu félagsins á hverjum tíma og launaþróun á ytri markaði.
Starfskjarastefna var lögð fram á aðalfundi Origo hf. 7. mars 2019 og samþykkt.
Starfsfólk Origo hefur sett sér siðareglur sem varða almenna viðskiptahætti og viðskiptasiðferði. Reglurnar vísa til væntinga um vinnulag gagnvart viðskiptavinum, samstarfsfólki, eigendum, samkeppnisaðilum og samfélagi. Í reglunum kemur fram að heiðarleiki og ótvíræð samskipti séu lykilatriði góðs viðskiptasiðferðis. Allir viðskiptaaðilar Origo eiga rétt á réttlátri og sanngjarnri meðferð í anda jafnræðisreglu. Starfsmönnum ber að gera viðvart um atvik, þar sem ætla má, að lög séu brotin. Slíkt ber að gera við yfirmann eða til yfirstjórnar fyrirtækisins beint. Starfsmenn munu á engan hátt gjalda þess í starfi séu þeir að uppfylla skyldu sína í þessu efni og er trúnaðar gætt, sé þess óskað. Starfsmaður skal ekki þiggja gjöf, þjónustu, skemmtun eða persónulegan greiða sem með réttu mætti álykta að gæti haft áhrif á viðskipti. Boð um skemmtun ætti ekki að þiggja nema boðið sé innan marka viðurkenndrar viðskiptagestrisnis. Fái starfsmenn tilboð eða jafnvel hótanir í tengslum við störf sín ber viðkomandi að tilkynna það yfirmanni sínum strax.
Stjórn Origo hf. leitast við að viðhalda stjórnarháttum og fylgja "Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja" sem Viðskiptaráð Íslands, Nasdaq OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út. Stjórnin hefur sett sér ítarlegar starfsreglur þar sem valdsvið hennar er skilgreint og verksvið gagnvart forstjóra. Origo er fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum samkvæmt mati Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands, að undangenginni ítarlegri úttekt Capacent á haustmánuðum 2014.
Félagið virðir almenn mannréttindi, rétt allra til félagafrelsis og kjarasamninga. Því til stuðnings hefur félagið sett sér jafnréttisstefnu og siðareglur eins og fjallað var um hér fyrir framan. Áhersla er lögð á að verktakar og undirverktakar fari eftir gildandi lögum í landinu er varðar alla sína starfsmenn, sama hvort það eru þeirra launþegar eða eigin undirverktakar.
Nánari umfjöllun um þessi málefni ásamt tölulegum upplýsingum mun verða aðgengileg í ársskýrslu félagsins sem verður birt fyrir aðalfund félagsins.
Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.