Earnings Release • Jan 28, 2021
Earnings Release
Open in ViewerOpens in native device viewer
TIL BIRTINGAR FIMMTUDAGINN 28. JANÚAR 2021 origo.is/um-origo/fjarfestar/
Veltufjárhlutfall er 1,27 en var 1,34 í lok árs 219
Frábær vinna starfsfólks í að vinna við breyttar aðstæður
"Árangur Origo árið 2020 er góður og að baki er ár þar sem frábært samstillt átak starfsfólks skilar góðum rekstri í viðskiptaumhverfi sem ekkert okkar hefur upplifað áður. Tekjur félagins jukust um 15% og EBITDA* félagsins nam 1.245 mkr, sem er aukning frá fyrra ári. Mikill afkomubati er á notendalausnasviði félagsins og vel hefur tekist til að halda góðri afkomu á hugbúnaðarsviðum þess. Afkoma af rekstrarþjónustu er viðunandi miðað við breytingar í umhverfinu en aukin stærðarhagkvæmni er nauðsynleg til að bæta afkomu af slíkri þjónustu. Félagið setti heilsu og öryggi starfsfólks í forgang og vann vel í því að skapa aðstæður svo félagið mætti halda áfram góðum rekstri. Vel útfærð fjarvinnustefna og skilvirk samskipti urðu til þess að góður árangur náðist við stór innleiðingaverkefni og félagið gerði hluti sem líklega hefðu aldrei verið prófaðir við eðlilegar aðstæður.
Hluti af hugbúnaðarsviðum félagsins stóðu frammi fyrir miklum áskorunum í upphafi árs þegar tekjur frá ferðaiðnaði drógust verulega saman, en Origo hafði unnið að nokkrum nýsköpunarverkefnum í stafrænum ferðalausnum. Félagið tók stefnumarkandi ákvörðun að halda áfram að fjárfesta í ferðavörum og vera tilbúið þegar ferðaiðnaðurinn tekur við sér að nýju en starfsmenn færðust einnig yfir í verkefni þar sem meiri eftirspurn var eins og í heilbrigðislausnum og verkefnum tengdum stafrænum umbreytingum. Þannig tókst félaginu að snúa þeim rekstri við á seinni helming ársins.
Á árinu er Origo einna stoltast af verkefni tengdu landamæraskimun, sýnatöku og bólusetningum en þar var félagið í lykilhlutverki og sýndi hversu vel má treysta því að vinna flókin og umfangsmikil verkefni hratt og vel. Fyrirtækið átti einnig einstakt ár þegar kemur að innleiðingu fjárhagskerfa, bankalausna og mannauðs- og launalausna hérlendis á sama tíma og Applicon, sænskt dótturfélag Origo, átti metár í tekjum.
Sífellt fleiri viðskiptavinir sjá hag sínum betur borgið með útvistun í stað þess að reka sína eigin innviði þegar kemur að upplýsingatækni og sér Origo vaxandi eftirspurn eftir slíkri þjónustu. Miklar umbreytingar eru að eiga sér stað í rekstrarþjónustu tæknifyrirtækja í kjölfar aukinna áherslu á skýjaþjónustu. Origo leggur áherslu á að fylgja eftir þessum breytingum. Markmið félagsins er ekki að reka gagnaver, heldur að vera sterkur samstarfsaðili sem býður landfræðilegan aðskilnað á kerfum og gögnum. Origo leggur áherslu á að geta tekið við þjónustu og rekið hana fyrir viðskiptavini, hvort sem hún er hýst á Íslandi eða hjá erlendum skýjum. Samhliða er félagið í stöðugri umbótavinnu við að auka sjálfvirkni og hagkvæmni í rekstarþjónustu en mikil þörf er að ná stærðarhagkvæmni svo hægt sé að ná meira en viðunandi arðsemi af slíkri þjónustu.
Skilyrði fyrir sölu á notendabúnaði hafa verið hagfelld s.l. mánuði og skilar það, ásamt breyttum áherslum í rekstri, mjög viðunandi arðsemi á því sviði. Töluverð áskorun að tryggja búnað til viðskiptavina vegna vöruskorts á heimsvísu en þekking og sterk sambönd við samstarfsaðila gerðu gæfumun. Söluaukning notendabúnaðar er rúm 20%, annað árið í röð. Flutningur sölu frá hefðbundinni verslun yfir á netið hefur skilað 152% veltuaukningu netverslana Origo samhliða því að fjárfesting félagsins í Tölvutek á s.l. ári, og mikil þekking á hljóð- og myndlausnum skilar Origo góðum árangri.
Tempo, sem er hlutdeildarfélag Origo, hefur átt ágætt ár. Það er að einhverju leyti litað af Covid 19 en einnig af breytingum er stuðla að því að geta sett félagið í næsta vaxtarfasa. Viðskiptavinir félagsins nema nú rúmlega 20.000 fyrirtæki og undirliggjandi er góð veltaukning í áskriftartekjum og skýr áhersla á áframhaldandi tilfærslu úr miðlægum umhverfum í skýjalausn.
Við erum sátt við niðurstöðu ársins 2020. Aðstæður í kjölfar Covid 19 voru þess eðlis að fyrirtækið þurfti að aðlaga sig hratt að nýjum veruleika. Það tókst með samstilltu átaki starfsfólks. Nýjar vinnuaðstæður og breytingar á umhverfi viðskiptavina voru þess eðlis að enduhugsa þurfti allt vinnulag sem og að margar einingar tókust á við miklar breytingar á tekjusamsetningu. Finna þurfti ný tækifæri og samhliða sinna aukinni eftirspurn á fjölmörgum sviðum. Mest af þessu þurfti að eiga sér stað í fjarvinnu.
Origo hefur tekið fyrstu skref í að skerpa samfélagslegar áherslur sínar en félagið hefur mikinn hug á því að ná enn frekari árangri þegar kemur að jafnrétti kynjanna, eflingu nýsköpunnar, ábyrgri neyslu, umhverfismálum, heilsu og vellíðan starfsfólks.
Origo er spennt fyrir verkefnum 2021. Vissulega eru óvissumerki í efnahagslífinu en verkefnastaða félagins í hugbúnaði er góð og umhverfið almennt hagfellt fyrir fyrirtæki í upplýsingatækni, hvort sem eru í þróun hugbúnaðar eða sölu notendabúnaðar."
| Í milljónum ISK | $1.10.-31.12.$ 2020 |
$1.10.-31.12.$ 2019 |
% | 2020 | 2019 | % |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Seldar vörur og þjónusta | 4.906 | 4.336 | 13,1% | 17.062 | 14.845 | 14,9% |
| Vörunotkun og kostnaðarverð seldrar þjónustu | (3.675) | (3.198) | 14,9% | (12.774) | (11.000) | 16,8% |
| Framlegð | 1.231 | 1.139 | 8,1% | 4.288 | 3.845 | 11,5% |
| Framlegð/tekjur (%) | 25,1% | 26,3% | 25,1% | 25,9% | ||
| Rekstrarkostnaður | (1.066) | (988) | 8,0% | (3.791) | (3.426) | 10,7% |
| Rekstrarhagnaður* | 165 | 151 | 9,3% | 498 | 419 | 18,9% |
| Rekstrarhagnaður/tekjur (%) | 3,4% | 3,5% | 2,9% | 2,8% | ||
| Einskiptisliðir | 0 | 0 | (167) | 0 | ||
| Rekstrarhagnaður | 165 | 151 | 331 | 419 | ||
| Hrein (fjármagnsgjöld) fjármunatekjur | (7) | 379 | (185) | 325 | ||
| Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags | 72 | (57) | 132 | 9 | ||
| Tekjuskattur | (29) | (32) | (26) | (74) | ||
| Hagnaður tímabilsins | 202 | 441 | 252 | 678 | ||
| Rekstrarliðir færðir beint á eigið fé | (255) | (351) | 156 | (222) | ||
| Heildarhagnaður (-tap) tímabilsins | (53) | 90 | 408 | 456 | ||
| EBITDA* | 381 | 302 | 1.245 | 1.006 | ||
| EBITDA%* | 7,8% | 7,0% | 7,3% | 6,8% | ||
| EBITDA | 381 | 302 | 1.078 | 1.006 |
• Sala á vöru og þjónustu nam 17.062 mkr árið 2020 samanborið við 14.845 mkr árið 2019 sem er 14,9% hækkun frá fyrra ári. Sala á vöru og þjónustu á fjórða ársfjórðungi 2020 var 4.906 og hækkaði um 13,1% frá fyrra ári.
• Framlegð* nam 4.288 mkr (25,1%) árið 2020 samanborið við 3.845 mkr (25,9%) árið 2019
TIL BIRTINGAR FIMMTUDAGINN 28. JANÚAR 2021 origo.is/um-origo/fjarfestar/
| Í milljónum ISK | 31.12.2020 | 31.12.2019 |
|---|---|---|
| Fastafjármunir | 8.028 | 7.738 |
| Veltufjármunir | 4.336 | 4.147 |
| Eignir samtals | 12.364 | 11.885 |
| Eigið fé | 7.012 | 6.817 |
| Langtímaskuldir | 1.945 | 1.972 |
| Skammtímaskuldir | 3.406 | 3.095 |
| Eigið fé og skuldir samtals | 12.364 | 11.885 |
| Veltufjárhlutfall | 1,27 | 1,34 |
| Eiginfjárhlutfall | 56,5% | 57,1% |
| Í milljónum ISK | $1.1.-31.12.$ 2020 |
$1.1.-31.12.$ 2019 |
|---|---|---|
| Handbært fé frá rekstri | 1.493 | 629 |
| Fjárfestingarhreyfingar | (620) | (722) |
| Fjármögnunarhreyfingar | (548) | (2.256) |
| Hækkun (lækkun) á handbæru fé | 325 | (2.350) |
| Ahrif gengisbreytinga á handbært fé | 22 | 0 |
| Handbært fé í ársbyrjun | 826 | 3.175 |
| Handbært fé í lok tímabilsins | 1.173 | 826 |
TIL BIRTINGAR FIMMTUDAGINN 28. JANÚAR 2021 origo.is/um-origo/fjarfestar/
Markaðsvirði fyrirtækisins í lok árs 2020 var 17.357 mkr., lokaverð hlutabréfa í ársfjórðungnum var kr. 39,9 á hlut. Fjöldi útgefinna hluta þann 31. desember 2020 voru 435 milljónir og voru hluthafar 536 talsins.
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn, föstudaginn 29. janúar. Á fundinum kynna stjórnendur rekstur og afkomu félagsins og svara spurningum. Kynningin hefst kl. 08:30 og fer fram í gegnum fjarfundabúnað, en einnig verður hægt að fylgjast með netstreymi af fundinum.
Skráning fer fram hér: https://www.origo.is/fjarfestakynning
| 4. mars 2021 | Aðalfundur Origo |
|---|---|
| 29. mars 2021 | Árshlutauppgjör F1 2021 |
| 26. ágúst 2021 | Árshlutauppgjör F2 2021 |
| 21. október 2021 | Árshlutauppgjör F3 2021 |
| 27. janúar 2022 | Árshlutauppgjör F4 2022 |
| 3. mars 2022 | Aðalfundur Origo |
Árshlutareikningur var samþykktur á stjórnarfundi Origo hf. þann 28. janúar 2021. Uppgjör Origo hf. er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS-International Financial Reporting Standards).
Origo er framsækið þjónustufyrirtæki í upplýsingatækni. Hjá Origo starfar öflugur hópur fólks sem nýtir hugvit sitt til að efla árangur, hagsæld og öryggi viðskiptavina. Hlutabréf Origo hf. eru skráð í NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöll Íslands) undir auðkenninu ORIGO.
Gunnar Petersen, framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða [email protected] og Jón Björnsson, forstjóri í síma 693-5000 eða [email protected]
Origo vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins, en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna af birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar fréttatilkynningin er birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum.
Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.