AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Síldarvinnslan

Pre-Annual General Meeting Information Mar 10, 2022

2205_agm-r_2022-03-10_5fa6d15b-b54b-4281-833b-453a7e63ae23.pdf

Pre-Annual General Meeting Information

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. þann 31. mars 2022

Stjórn Síldarvinnslunnar hf. leggur til við aðalfund að greiddur verði arður til hluthafa vegna reikningsársins 2021 samkvæmt arðgreiðslustefnu félagsins. Arðgreiðsla til hluthafa nemi 30% hagnaðar ársins 3.417 millj. króna (um 26,2 millj. USD á lokagengi ársins 2021). Arðgreiðslan nemur 2,01 kr. á hlut. Samþykki aðalfundur tillöguna skal arðsréttindadagur vera 4. apríl 2022, þ.e. réttur hluthafa til arðgreiðslu verður miðaður við hlutaskrá félagsins í lok þess viðskiptadags. Arðleysisdagur, þ.e. sá dagur sem viðskipti hefjast með bréf félagsins án réttar til arðs vegna reikningsársins 2022 verður því 1. apríl 2022, eða næsti viðskiptadagur eftir aðalfund. Útborgunardagur arðs verður 13. apríl 2022.

Lagt er til að starfskjarastefnan sé samþykkt í óbreyttri mynd.

Stjórn félagsins leggur til að stjórnarlaun vegna ársins 2022 verði sem hér segir:

Stjórnarformaður kr. 500.000 á mánuði Meðstjórnendur kr. 330.000 á mánuði Varamenn kr. 165.000 á mánuði

Nefndarmenn í endurskoðunarnefnd

Formaður kr.
220.000
á
mánuði
Nefndarmenn kr.
110.000
á
mánuði

Endurskoðendur:

PricewaterhouseCoopers Vignir Rafn Gíslason Rúnar Bjarnason

Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf., haldinn 31. mars 2022 samþykkir, með vísan til 55. gr. laga nr 2/1995 um hlutafélög, að heimila félagsstjórn á næstu 18 mánuðum að kaupa hlutabréf í Síldarvinnslunni hf. Heildareign í eigin bréfum á hverjum tíma skuli þó ekki fara yfir 10 % af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma, þ.e. kr. 170.000.000. Heimild þessa má nýta í þeim tilgangi að koma á formlegri endurkaupaáætlun eða til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum eða til þess að kaupa eigin bréf í einstökum viðskiptum. Kaupgengi má eigi vera hærra en í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem hærra er. Aðrar eldri heimildir til kaupa á eigin bréfum falla úr gildi við samþykkt heimildar þessarar.

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.