AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Skel fjárfestingafélag

Earnings Release May 5, 2022

2209_10-q_2022-05-05_edcf5291-c319-4589-99d2-49a1b655a7fe.pdf

Earnings Release

Open in Viewer

Opens in native device viewer

SKEL fjárfestingafélag hf. (SKEL)

Afkoma – fyrsti ársfjórðungur 2022 (1F 2022)

Hagnaður eftir skatta 3.342 milljónir króna á 1F 2022

Viðsnúningur í rekstri rekstrarfélaga SKEL

Sölu á fasteignum til Kaldalóns lokið

Breyting á reikningsskilum vegna breytingar á starfsemi

HELSTU LYKILTÖLUR OG NIÐURSTÖÐUR 1F 2022

  • Fjárfestingatekjur námu 4.533 m.kr., þar af tekjur af fjárfestingafasteignum 4.226 m.kr.
  • Rekstrargjöld námu 255 m.kr. þar af 60 m.kr. vegna starfslokakostnaðar
  • Hagnaður fyrir skatta nam 4.278 m.kr.
  • Hagnaður eftir skatta nam 3.342 m.kr.
  • Framlegð rekstrarfélaga nam 1.982 m.kr. til samanburðar við 1.324 m.kr. á 1F 2021
  • EBITDA SKEL og rekstrarfélaga nam 733 m.kr. til samanburðar við 184 m.kr. á 1F 2021 þegar söluhagnaður fasteigna að fjárhæð 4.104 m.kr. hefur verið dreginn frá EBITDA afkomu á 1F 2022
  • Hagnaður á hlut var 1,73
  • Arðgreiðsla að fjárhæð 500 m.kr. greidd 13. apríl 2022.
  • Eigið fé í lok tímabilsins nam 21.765 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 79,4%.

Þar sem tilgangur og hlutverk SKEL er fjárfestingastarfsemi frá og með ársbyrjun 2022 þá er megináhersla í tilkynningu þessari að fjalla um starfsemi SKEL. Samanburður SKEL við fyrra ár á ekki við en lykilfjárhæðir frá rekstrarfélögum eru dregnar fram sérstaklega.

Tilgangi félagsins var breytt í fjárfestingarfélag á hluthafafundi 7. október 2021. Breytingin hefur í för með sér að eignir munu endurspegla gangverð á hverjum tíma. Sú aðlögun stendur yfir og mun að fullu birtast í ársreikningi 2022.

HORFUR FYRIR ÁRIÐ 2022

Félagið áætlar að afkoma félagsins verði jákvæð um 7,6-8,3 milljarða króna eftir skatta að teknu tilliti til vænts söluhagnaðar af fasteignum að fjárhæð 5 milljarðar samanber áður útgefna afkomuspá.

JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON, STJÓRNARFOMAÐUR SKEL:

"Reksturinn gekk heilt yfir vel á fjórðungnum í skugga stríðsátaka sem hafði talsverð áhrif hér á landi með hækkandi olíuverði og hærra verði á aðföngum. Það varð viðsnúningur í rekstri rekstrarfélaganna ásamt því sem ný félög bættust við eignasafnið á árinu 2021 sem höfðu jákvæð áhrif á EBITDA afkomu tímabilsins sem rúmlega þrefaldaðist milli ára.

Vinna við áframhaldandi umbreytingu hélt áfram á ársfjórðungnum. Gengið var endanlega frá sölu fasteigna til Kaldalóns. SKEL fékk afhent bréf í Kaldalóni 3. maí og hefur óskað eftir hluthafafundi í félaginu með það að leiðarljósi að koma fulltrúa SKEL, Ásgeiri Reykfjörð í stjórn félagsins. Við höfum mikla trú á Kaldalóni og að það vaxi hratt sem fjórða skráða fasteignafélag landsins. Tilkynnt var um fjárfestingu SKEL í VÍS í aprílmánuði. Um er að ræða spennandi fjárfestingarkost til lengri tíma.

Með sölunni til Kaldalóns og fjárfestingu í VÍS var stigið enn eitt skrefið í umbreytingu á félaginu. SKEL er orðið sterkt fjárfestingafélag með fjölbreytt eignasafn og talsverða fjárfestingagetu.

Þá var tilkynnt um ráðningu Ásgeirs Helga Reykfjörð Gylfasonar í starf forstjóra og Magnúsar Inga Einarssonar sem fjármálastjóra. Við bindum miklar vonir að þessir reynslumiklu menn munu taka félagið áfram að krafti."

KYNNINGARFUNDUR

Opinn kynningarfundur vegna á starfsemi félagsins verður haldinn 6. maí nk., á skrifstofu SKEL, Borgartúni 26, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 08:30 en boðið verður upp á léttar veitingar frá kl. 08:15. Á fundinum mun Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður SKEL kynna afkomuna og helstu þætti úr rekstrinum, þar sem nýr forstjóri hefur ekki störf fyrr en í júlímánuði.

Kynningarefni frá fundinum verður gert aðgengilegt á vefsíðu SKEL, https://skel.is/fjarfestar.

ÁRSHLUTAREIKNINGUR 1F 2022

Upplýsingar í tilkynningu þessari og hjálagðri fjárfestakynningu byggja á stjórnendaupplýsingum sem hafa ekki verið kannaðar eða endurskoðaðar af endurskoðendum félagsins.

SKEL fjárfestingafélag Borgartún 26 – 105 RVK • +354 440 3000 • [email protected]www.skel.is

Til nánari upplýsinga er vísað til fjárfestakynningar sem er meðfylgjandi tilkynningu þessari.

Nánari upplýsingar veitir Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður, [email protected].

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.