AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Origo

Earnings Release Aug 30, 2022

2208_ir_2022-08-30_6ff1c6c1-41ac-4f81-91f0-55d8e1e60483.pdf

Earnings Release

Open in Viewer

Opens in native device viewer

TIL BIRTINGAR ÞRIÐJUDAGINN 30. ágúst 2022 origo.is/um-origo/fjarfestar/

7,7% tekjuvöxtur á fyrri árshelmingi 2022

Árshlutauppgjör Origo hf. – Annar ársfjórðungur 2022

Helstu fjárhagsupplýsingar: Helstu fréttir úr starfsemi:

  • Sala á vöru og þjónustu nam 4.516 m.kr á öðrum ársfjórðungi 2022 (2,1% tekjuvöxtur frá F2 2021) og 9.262 m.kr á fyrri árshelming (7,7% tekjuvöxtur frá 1H 2021) [F2 2021: 4.425 m.kr, 1H 2021: 8.599 m.kr.]
  • Framlegð nam 1.215 m.kr (26,9%) á öðrum ársfjórðungi 2022 og 2.506 m.kr (27,1%) á fyrri árshelmingi [F2 2021: 1.118 m.kr (25,3%), 1H 2021: 2.506 m.kr (25,7%)]
  • EBITDA nam 370 m.kr (8,2%) á öðrum ársfjórðungi 2022 og 708 m.kr (7,6%) á fyrri árshelmingi [F2 2021: 357 m.kr. (8,1%), 1H 2021: 658 m.kr (7,6%)]
  • EBIT nam 119 m.kr. (2,6%) á öðrum ársfjórðungi 2022 og 223 m.kr (2,4%) á fyrri árshelmingi [F2 2021: 158 m.kr. (3,6%) , 1H 2021: 266 m.kr (3,1%)]
  • Áhrif hlutdeildarfélags nam 261 m.kr á fjórðungnum og 427 m.kr á fyrri árshelmingi. 25% tekjuvöxtur og heildartekjur upp á um 46 milljónir USD á fyrri árshelmingi. Leiðrétt EBITDA hlutfall félagsins er um 28% fyrir sama tímabil.
  • Rekstrarliðir færðir beint á eigið fé voru jákvæðir um 119 m.kr á öðrum ársfjórðungi 2022 og jákvæðir um 26 m.kr á fyrrir árshelmingi 2022 [F2 2021: -70 m.kr, 1H 2021: -88 m.kr]
  • Heildarhagnaður nam 416 m.kr á öðrum ársfjórðungi 2022 og 562 m.kr á fyrri árshelmingi[F2 2021: 84 m.kr, 1H 2021: 247 m.kr]
  • Origo keypti eigin bréf fyrir um 300 m.kr á fyrri hluta árs 2022
  • Eiginfjárhlutfall er 60,0%, en var 56,9% í árslok 2021
  • Veltufjárhlutfall er 1,48 en var 1,42 í lok árs 2021

Jón Björnsson forstjóri Origo hf:

"Fyrri helmingur 2022 kemur ágætlega út fyrir Origo. Helmingurinn endar 7,7% yfir veltu síðasta árs. Það er mat okkar að eitthvað hafi dregið úr eftirspurn í upphafi sumars vegna aðstæðna á markaði en eftirspurn virðist aftur komin á gott ról nú í lok sumars. Rekstrarafkoman er viðunandi á fyrri helming ársins en félagið skilar rúmlega 7,6% hærri EBITDA en á 1H síðasta árs. Þá er ánægjulegt að sjá góðan árangur Tempo eftir kaupin á ALM og Roadmunk en áframhald er á góðum tekjuvexti hjá félaginu þrátt fyrir nokkuð mikla óvissu á heimsmörkuðum.

Áfram er góð eftirspurn eftir lausnum og vörum í notendabúnaði og jukust tekjur um 10,4% á fyrri helmingi ársins. Nokkuð óreglulegt vöruflæði myndaðist í kjölfar Úkraínustríðins og Covid og færast því töluverðar tekjur inn á seinni helming ársins en við erum að sjá svipaða veltuaukningu á fyrstu vikum þriðja ársfjórðungs og við sáum í upphafi árs. Góð afkoma er hjá einingunni og EBITDA eykst um rúm 15% frá síðasta ári. Horfur eru heilt yfir ágætar, meira jafnvægi virðist vera að komast á vöruflæði og aðilar í ferðaþjónustu hafa verið að skila töluverðri söluaukningu.

Þjónustulausnir Origo hafa verið í mikilli umbreytingu s.l. 12-18 mánuði með breytingum á vöru- og þjónustuframboði sem skilað hefur mun betri rekstri ásamt því að búa til nokkur góð tækifæri til sóknar. 3% tekjaukning er á fyrri helming ársins en 138% bati í EBITDA afkomu. Skerpt hefur verið á áherslum og sköpuð

  • 7,7% tekjuvöxtur og góð afkoma á fyrri árshelmingi
  • 10,4% tekjuvöxtur í sölu á notendabúnaði
  • 2,1% tekjuvöxtur á hugbúnaðarsviðum
  • 10,3% tekjuvöxtur í rekstrarþjónustu og innviðum
  • Sterkur fjórðungur hjá Tempo

TIL BIRTINGAR ÞRIÐJUDAGINN 30. ágúst 2022 origo.is/um-origo/fjarfestar/

sterkari umgjörð í kringum þjónustuafhendingu auk betri nýtingar á tækifærum sem liggja í umbreytingu hjá okkar viðskiptavinum. Viðskiptavinir eru í dag mun meðvitaðri um mikilvægi upplýsingatækniöryggis og kröfur til þjónustuaðila sífellt að aukast. Origo ætlar sér að vera fyrsta val þegar kemur að öruggum rekstri og munum við því leggja áherslu á að skilaboð okkar út á markaðinn séu í takt við það.

Í viðbót við þessar breytingar á grunnrekstri Þjónustulausna höfum við fjárfest í þremur vaxtarverkefnum sem tengjast stafrænum innviðum:

  • Syndis er í forystu þegar kemur að ráðgjöf á sviði UT-öryggismála en hefur eins og önnur Origo fyrirtæki verið að einbeita sér að byggja upp skalanlegri rekstur, samhliða frábærri ráðgjafaeiningu. Syndis hefur byggt upp öryggismiðstöð í Póllandi sem heldur úti 24/7 öryggisþjónustu fyrir fjölda fyrirtækja. Enn fremur hefur Syndis fjárfest í þróun hugbúnaðar sem metur hversu aðlaðandi fyrirtæki eru í augum hakkara. Frumprófanir hjá fyrstu viðskiptavinum fara í gang á haustmánuðum.
  • Fyrirtækið Responsible Compute var stofnað með Borelais Data Center og í samvinnu við Bandarískja fyrirtækið Rescale sem sérhæfir sig í ofurtölvuvinnslu í skýinu. Stefna Responsible Compute er að bjóða upp á sjálfbæra HPC-innviðaþjónustu með bestu mögulegu kolefnisskýrslum sem völ er á, byggðar á þekktum og stöðluðum reikniaðferðum. Þetta gerir viðskiptavinum okkar kleift að draga úr umhverfisspori sínu, meta þróun útblásturs og vega möguleg úrræði í átt að kolefnishlutleysi. Fyrirtækið sem hefur verið í prófunum síðustu mánuði, hefur nú fengið sinn fyrsta viðskiptavin.
  • Datalab er sprotafyritæki á sviði hagnýtingar gagna í sífellt snjallari lausnum. Fyrirtækið er í sérstöðu á íslenskum markaði og er um þessar mundir að kynna lausnir fyrir íslensk fyrirtæki sem varpa ljósi á stöðu viðskiptasambanda. Lausnin ber heitið Lífsmörk, en Datalab framleiðir einnig sérsniðnar gagnasögur sem auðveldar fyrirtækjum að ná til viðskiptavina á persónulegri og eftirminnilegri hátt.

Velta Origo í hugbúnaðargerð heldur áfram að vaxa og skilaði 2,1% tekjuaukningu á fyrri hluta ársins. Eins og í notendabúnaði fundum við þó fyrir aðeins minni eftirspurn og hægagangi í aðdraganda sumars. Sennilega að einhverju leyti vegna áhrifa aukinna sumarfría hjá fyrirtækjum og stofnunum í kjölfar Covid. Þó jukust áskriftartekjur af eigin hugbúnaði meira en aðrar tekjur í hugbúnaði á báðum fjórðungum fyrri hluta ársins og sérstaklega sterkur tekjuvöxtur var innan hugbúnaðar á kjarnasviðum eins og mannauðslausnum, gæðakerfum, bankalausnum og fjárhagskerfum. Vöxtur eigin hugbúnaðar nam 13% á fyrstu 6 mánuðum ársins. Fyrirtækið hefur á þessum tíma samið við stór fyrirtæki og stofnanir eins og Stafrænt Ísland, Öryggismiðstöðina, Veðurstofuna, Tryggingastofnun og Hafnarfjarðarbæ.

Rekstur Applicon er á stöðugur miðað við síðasta ár. Tekjur dragast örlítið saman vegna einskiptis leyfasölu á síðasta ári en rekstrarniðurstaða er svipuð vegna hærri ráðgjafatekna. Applicon hefur í grunninn haft tekjur sínar af leyfasölu og ráðgjöf innan bankageirans í Svíþjóð. Félagið hefur á síðustu árum aukið áherslu sína á kaupleigufyrirtæki sem og fjárstýringu hjá almennum fyrirtækjum. Verkefnastaða er ágæt fyrir seinni helming ársins. Applicon vinnur nú jafnframt að hugbúnaðarþróun tveggja vara sem mun hafa áhrif á tekjusamsetningu framtíðarinnar. Fjárfestingar í nýjum vörum er um 20 mkr hærri á fyrri helming ársins miðað við sama tímabil í fyrra.

Rekstur Tempo gekk vel á fyrri hluta ársins og skilaði félagið 25% tekjuvexti og heildartekjum upp á um 46 milljónir USD. Leiðrétt EBITDA hlutfall félagsins er um 28% fyrir sama tímabil. Tölur félagsins endurspegla nú tekjur eftir kaup á ALM Works og Roadmunk á s.l. ári en sameining félaganna þriggja hefur verið höfuð viðfangsefni félagsins á síðastliðnum mánuðum, ásamt endurskipulagningu á starfsemi Roadmunk. Teymi í markaðsmálum, sölu, rekstri og fjármálum eru núna að vinna saman og næsti áfangi liggur í að færa vöruteymi og teymi í hugbúnðargerð nær hvort öðru. Árið hefur verið nokkuð litað af óvissu á mörkuðum vegna aðstæðna sem hafa skapast í kjölfar stríðsins í Úkraínu en félagið hefur þurft að setja töluverða orku og vinnu í að flytja þá starfsemi sem var hjá ALM í Rússlandi og hefur það tafið þróunarstarf að einhverju leyti. Þetta hefur skapað meiri varkárni í starfssemi félagsins. Félagið sér þó áfram góða þróun í áskriftartekjum og markmið um afkomu eru að nást. Félagið heldur áfram að leggja áherslu á aukna veltu með sérstaka áherslu á krossölu milli eininganna og frekari styrkingu á vinnu með samstarfsaðilum.

TIL BIRTINGAR ÞRIÐJUDAGINN 30. ágúst 2022 origo.is/um-origo/fjarfestar/

Horfur í rekstri eru ágætar þrátt fyrir einhver merki þess að markaður upplýsingtækni hafi aðeins gefið eftir í upphafi sumars. Við erum í innleiðingarfasa á þeirri stefnumótun sem við fórum í á síðasta ári og höfum úr töluverðu að vinna, sem mun styrkja fyrirtækið enn frekar til sóknar - til hagsbóta fyrir viðskiptavini, starfsfólk og hluthafa. Til skemmri tíma erum við að horfa á þau tækifæri sem umbreyting Rekstrarþjónustu félagsins hefur skapað. Að ná fram aukinni vöruvæðingu, svo við eigum auðveldara með að viðhalda gæðum í þjónustu, lægra verði, skapa sterkari umgjörð í kringum viðskiptalegan þátt hugbúnðargerðar auk þess sem við viljum nýta betur styrk okkar á markaði fyrir notendabúnað. Til lengri tíma vinnum við eftir skýrum framtíðaráherslum og munum nýta það traust sem við höfum til að vera í stöðugri þróun þegar kemur að starfsfólki og tækniumhverfi og þróa þannig vörur sem bæta lífið. Fyrirtækið er rekstrarlega sterkt og hefur góða stjórn á þeim fjárfestingum sem félagið getur dregið úr verði breyting á hagfelldu umhverfi upplýsingatækni."

Rekstrarreikningur

l milljónum ISK F2 2022 F2 2021 0/2 1H 2022 1H 2021 %
Seldar vörur og þjónusta 4.516 4.425 2,1% 9.262 8.599 7,7%
Vörunotkun og kostnaðarverð seldrar þjónustu (3.301) (3.308) -0,2% (6.755) (6.387) 5,8%
Framlegð 1.215 1.118 8,7% 2.506 2.212 13,3
Framlegð/tekjur (%) 26,9% 25,3% 27,1% 25,7%
Rekstrarkostnaður (1.095) (960) 14,196 (2.284) (1.946) 17,3%
Rekstrarhagnaður 119 158 223 266
Rekstrarhagnaður/tekjur (%) 2,6% 3,6% 2,41% 3,1%
Hrein fjármagnsgjöld (46) (17) (83) (33)
Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélags 261 47 427 150
Tekjuskattur (37) (33) (31) (47)
Hagnaður tímabilsins 297 154 ટેકેટ 335
Rekstrarliðir færðir beint á eigið fé 119 (70) 26 (88)
Heildarhagnaður tímabilsins 416 84 562 247
EBITDA* 370 357 708 658
EBITDA% * 8,2% 8,1% 7,6% 7,6%
  • Notendabúnaður og tengd þjónusta: Tekjur námu 1.831 m.kr á öðrum ársfjórðungi 2022 (3,1% tekjuvöxtur frá F2 2021) og 3.891 m.kr á fyrri árshelmingi, sem er 10,4% tekjuvöxtur frá 1H 2021. EBITDA nam 162 m.kr. (8,9%) á öðrum ársfjórðungi og 355 m.kr (9,1%) á fyrri árshelmingi [Tekjur 1H 2021: 3.525, EBITDA 1H 2021: 308 m.kr (8,8%)]
  • Rekstrarþjónusta og innviðir: Tekjur námu 1.322 m.kr. á öðrum ársfjórðungi 2022 (8,3% tekjuvöxtur frá F2 2021) og 2.559 m.kr á fyrri árshelmingi, sem er 10,3% tekjuvöxtur frá 1H 2021. EBITDA nam 89 m.kr. (6,7%) á öðrum ársfjórðung og 121 m.kr (4,8%) á fyrri árshelming [Tekjur 1H 2021: 2.321 m.kr, EBITDA 1H 2021: 112 m.kr (4,9%)]
  • Hugbúnaður og tengd þjónusta: Tekjur námu 1.363 m.kr. á öðrum ársfjórðungi 2022 (4,6% tekjusamdráttur frá F2 2021) og 2.811 m.kr á fyrri árshelmingi sem er 2,1% tekjuvöxtur frá 1H 2021. EBITDA nam 119 m.kr. (8,7%) á öðrum ársfjórðungi og 231 m.kr (8,2%) á fyrri árshelmingi [Tekjur 1H 2021: 2.752 m.kr, EBITDA 1H 2021: 237 m.kr (8,6%)]
  • Rekstrarkostnaður: Aukningu rekstrarkostnaðar má rekja til þriggja nýrra félaga sem bætast við samstæðuuppgjörið samanborið við fyrra ár; Syndis, Eldhaf og Datalab. Rekstur félaganna einkennist að mikilli fjárfestingu í uppbyggingu fyrirtækjanna og hugbúnaðarþróun. Auk þessa kostnaðar má rekja aukningu rekstrarkostnaðar til aukins launakostnaðar vegna fjölgunnar starfsmanna. Afskriftir aukast á tímabilinu sem má rekja til stærri afskriftagrunns vegna eignfærslu þróunarkostnaðar, sem og fjárfestingar í tekjumyndandi eignum.

TIL BIRTINGAR ÞRIÐJUDAGINN 30. ágúst 2022 origo.is/um-origo/fjarfestar/

Efnahagsreikningur

l milljónum ISK 30.06.2022 31.12.2021
Fastafjármunir 10.154 9.742
Veltufjarmunir 4.715 5.402
Eignir samtals 14.869 15.144
Eigið fé 8.925 8.619
Langtimaskuldir 2.752 2.733
Skammtímaskuldir 3.191 3.793
Eigið fé og skuldir samtals 14.869 15.144
Veltufjárhlutfall 1,48 1,42
Eiginfjarhlutfall 60,0% 56,9%
  • Fastafjármunir hækkuðu um 412 m.kr. frá árslokum 2021. Hækkunin skýrist að mestu af hækkun eignarhluts í hlutdeildarfélögum upp á 455 mkr.
  • Veltufjármunir lækkuðu um 687 m.kr. frá árslokum 2021. Birgðir lækka um 55 mkr, viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur lækka um 117 mkr og handbært fé lækkar um 626 mkr.
  • Eigið fé hækkar um 307 m.kr. á tímabilinu.
  • Langtímaskuldir hækka um 20 m.kr. á fyrri hluta ársins.
  • Skammtímaskuldir hafa lækkað um 601 m.kr. á árinu, þar sem aðrar skammtímaskuldir lækka um 605 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall er 60,0%, en var 57,4% í árslok 2021
  • Veltufjárhlutfall er 1,48 en var 1,42 í lok árs 2021

Sjóðstreymi

l milljónum ISK 1.1-30.06
2022
1.1-30.06
2021
Handbært fé frá rekstri 267 150
Fjárfestingarhreyfingar (336) (337)
Fjármögnunarhreyfingar (552) (234)
Lækkun á handbæru fé (620) (422)
Ahrif gengisbreytinga á handbært fé (5) (11)
Handbært fé í ársbyrjun 1.795 1.173
Handbært fé í lok tímabilsins 1.169 740
  • Handbært fé frá rekstri nam 267m.kr. í lok annars ársfjórðungs 2022 samanborið við 150 m.kr. í lok annars ársfjóðrðungs 2021.
  • Fjárfestingarhreyfingar námu 336 m.kr. á fyrstu 6 mánuðum ársins samanborið við 337 m.kr. á sama tímabili 2021.
  • Fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar um 552 m.kr. á fyrstu 6 mánuðum ársins, samanborið við neikvæða hreyfingu um 234 m.kr. árið 2021. Breytingin skýrist að mestu af endurkaupum á eigin bréfum fyrir um 300 mkr á tímabilinu.
  • Handbært fé lækkar um 620 m.kr. á tímabilinu

Hluthafar

Markaðsvirði fyrirtækisins í lok annars ársfjórðungs 2022 var 23.925 mkr., lokaverð hlutabréfa í ársfjórðungnum var kr. 55,0 á hlut. Fjöldi útgefinna hluta þann 30. júní 2022 voru 435 milljónir og voru hluthafar 1.044 talsins. Origo hf. á eigin bréf að nafnvirði 4.066.935.

Origo býður fjárfestum og markaðsaðilum á fjárfestakynningu 31. ágúst.

Á fundinum kynna stjórnendur rekstur og afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn verður haldinn í húsnæði Origo, Borgartúni 37, 105 Reykjavík, en einnig verður hægt að fylgjast með fundinum í streymi.

Skráning á fundinn fer fram hér: https://www.origo.is/fjarfestakynning

Fjárhagsdagatal

  1. október 2022 Árshlutauppgjör 3F 2022 2. febrúar 2023 Árshlutauppgjör 4F 2022 9. mars 2023 Aðalfundur Origo

TIL BIRTINGAR ÞRIÐJUDAGINN 30. ágúst 2022 origo.is/um-origo/fjarfestar/

Samþykkt árshlutareiknings

Árshlutareikningurinn var samþykktur á stjórnarfundi Origo hf. þann 30. ágúst 2022. Uppgjör Origo hf. er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS-International Financial Reporting Standards).

Origo hf.

Origo er framsækið þjónustufyrirtæki í upplýsingatækni. Hjá Origo starfar öflugur hópur fólks sem nýtir hugvit sitt til að efla árangur, hagsæld og öryggi viðskiptavina. Hlutabréf Origo hf. eru skráð í NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöll Íslands) undir auðkenninu ORIGO.

Nánari upplýsingar

Gunnar Petersen, framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða [email protected] og Jón Björnsson, forstjóri í síma 693-5000 eða [email protected]

Til athugunar fyrir fjárfesta

Origo vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins, en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna af birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar fréttatilkynningin er birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum.

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.