AGM Information • Feb 16, 2023
AGM Information
Open in ViewerOpens in native device viewer

Aðalfundur SKEL fjárfestingafélags hf. verður haldinn kl. 16:00, fimmtudaginn 9. mars 2023, í Ballroom salnum í Reykjavík Edition, Austurbakka 2, 101 Reykjavík.

15. Kosning endurskoðendafirma.
Aðilar sem eru skráðir hluthafar í hlutaskrá, samkvæmt hlutaskrárkerfi félagsins þegar fundurinn fer fram, geta beitt réttindum sínum á hluthafafundi. Hlutaskrá miðar við uppgjör viðskipta hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð þann 8. mars 2023.
Þegar hluthafi hefur greitt fyrir hlut sinn að fullu fær hann útgefið rafbréf sem veitir honum full réttindi, sem lög og samþykktir félagsins mæla fyrir um. Hluthafi getur ekki beitt réttindum sínum á hluthafafundi nema nafn hans sé skráð í hlutaskrá félagsins. Uppgjör viðskipta hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð fer fram tveimur dögum eftir viðskiptin og því er mælst til þess að síðasti viðskiptadagur sé 6. mars 2023, vilji hluthafi beita réttindum sínum á aðalfundi 9. mars 2023.
Hluthafafundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað, óháð fundarsókn.
Hluthafar eiga rétt á að fá mál sett á dagskrá fundarins og leggja fram ályktunartillögur ef gerð hefur verið skrifleg eða rafræn krafa um það eigi síðar en kl. 16:00 mánudaginn 27. febrúar 2023. Slík erindi skulu send á tölvupóstfangið [email protected] og munu þau verða birt á vefsíðu félagsins. Hafi hluthafi krafist þess að fá mál tekið til meðferðar á fundinum eða lagt fram ályktunartillögu fyrir þann tíma verður endanleg dagskrá og tillögur uppfærðar á vefsíðu félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir fundinn. Mál sem ekki hafa verið tilgreind í dagskrá hluthafafundar er ekki unnt að taka til endanlegrar úrlausnar á fundinum nema með samþykki allra hluthafa félagsins en gera má um þau ályktun til leiðbeiningar fyrir félagsstjórn.
Öllum hluthöfum er heimilt að sækja fund og taka þar til máls. Hluthafar geta lagt fram spurningar fyrir fund á [email protected] eða á fundinum sjálfum. Hluthafa er heimilt að sækja fundinn ásamt ráðgjafa. Ráðgjafi hefur hvorki tillögurétt né atkvæðisrétt á fundinum. Hluthafa er heimilt að gefa ráðgjafa sínum orðið fyrir sína hönd.
Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð. Umboðseyðublað er að finna á heimasíðu félagsins. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt umboð á fundinum eða senda það á tölvupóstfangið [email protected]. Umboð gildir aldrei lengur en eitt ár frá dagsetningu þess. Umboð má hvenær sem er afturkalla, þó ekki eftir að fundur hefst.
Á hluthafafundi fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé en heildarhlutafé SKEL fjárfestingafélags hf. er 1.936.033.774. Afl atkvæða ræður úrslitum á fundinum, nema öðruvísi sé mælt fyrir í samþykktum félagsins eða landslögum. Tillaga fellur á jöfnum atkvæðum.
Atkvæðagreiðslur og kosningar á fundinum verða ekki skriflegar nema fram komi krafa um slíkt á fundinum frá atkvæðisbærum fundarmanni eða ef fundarstjóri úrskurðar um slíkt. Stjórnarkjör skal þó vera skriflegt ef framboð koma frá fleirum en kjósa skal um. Stjórnarkjör fer fram samkvæmt meirihlutakosningu á milli einstaklinga, nema réttmæt krafa um hlutfalls- eða margfeldiskosningu komi fram frá hluthöfum er ráða minnst 1/10 hlutafjárins. Krafa þess efnis skal hafa borist stjórn félagsins fyrir kl. 16:00 laugardaginn 4. mars 2023 á tölvupóstfangið [email protected]. Ef tveir frambjóðendur eða fleiri fá jafnmörg atkvæði í kosningu skal hlutkesti ráða.
Félagið áskilur sér rétt til að hafa alla atkvæðagreiðslu á fundinum með rafrænum hætti.
Hluthafar geta óskað eftir því að fá að greiða atkvæði um mál sem eru á dagskrá fundarins bréflega. Skal beiðni um slíka atkvæðagreiðslu hafa borist á skrifstofu félagsins eða á tölvupóstfangið [email protected] fyrir kl. 16:00 laugardaginn 4. mars 2023. Á heimasíðu félagsins er að finna leiðbeiningar til hluthafa um póstatkvæðagreiðslu.

Um frekari upplýsingar um réttindi hluthafa er vísað til laga nr. 2/1995 um hlutafélög, sem eru aðgengileg á heimasíðu Alþingis, www.althingi.is.
Tilkynningum um framboð til stjórnar félagsins skal skilað fyrir kl. 16:00 laugardaginn 4. mars 2023, á netfangið [email protected] eða á skrifstofu félagsins að Borgartúni 26, Reykjavík. Notast skal við framboðseyðublað sem er að finna á vefsíðu félagsins. Vakin er athygli á því að tilnefningarnefnd mun ekki geta metið framboð sem berast eftir kl. 16:00 þann 23. febrúar 2023 og geta þau framboð því ekki verið andlag tillögu nefndarinnar. Breytist tillaga nefndarinnar frá því er fram kemur í fundarboði þessu verður ný tillaga birt eigi síðar en þann 27. febrúar 2023. Upplýsingar um alla frambjóðendur verða birtar á heimasíðu félagsins eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir aðalfund.
Tilkynningum um framboð til setu í tilnefningarnefnd félagsins skal skilað fyrir kl. 16:00 laugardaginn 4. mars 2023 á netfangið [email protected] eða á skrifstofu félagsins að Borgartúni 26, Reykjavík. Upplýsingar um frambjóðendur verða birtar á heimasíðu félagsins eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir aðalfund.
Aðalfundur félagsins verður haldinn á íslensku. Fundargögn verða á íslensku og ensku.
Fundurinn verður pappírslaus. Dagskrá aðalfundar og fundargögn, þ.á m. tillögur stjórnar, sem lögð verða fyrir fundinn verða aðgengileg á vefsíðu félagsins. Gögnin verða jafnframt til sýnis fyrir hluthafa á opnunartíma skrifstofu félagsins í Borgartúni 26 í Reykjavík fyrir fundinn.
Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á aðalfundinn á fundarstað frá kl. 15:00 á fundardegi. Hluthöfum er unnt að forskrá sig og eftir atvikum umboðsmann sinn til kl. 14:00 á fundardegi með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected]. Vinsamlegast sendið nafn og kt. og eftir atvikum útfyllt umboðseyðublað á [email protected].
Öll fundargögn, þ.m.t. umboðs- og framboðseyðublöð má finna á heimasíðu félagsins, https://www.skel.is/hluthafafundur-2023
Sjá jafnframt tillögur til fundarins.
Reykjavík, 16. febrúar 2023
Stjórn SKEL fjárfestingafélags hf.
Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.