Environmental & Social Information • Nov 13, 2023
Environmental & Social Information
Open in ViewerOpens in native device viewer

TORONTO, ONTARIO – 13. nóvember 2023 – Amaroq Minerals Ltd. (AIM, TSXV, NASDAQ Iceland: AMRQ), auðlindafélag með víðtækari rannsóknar- og vinnsluheimildir á Grænlandi en nokkurt annað fyrirtæki, stefnir nú að enn meiri áherslu á sjálfbærni í viðleitni sinni til að festa arfleifð félagsins á Grænlandi í sessi.
Félagið hefur ráðið ERM International Group Limited ("ERM"), stærsta ráðgjafarfyrirtæki heims sem starfar eingöngu á sviði sjálfbærni, til að inna af hendi stefnumótandi endurskoðun á sjálfbærnistefnu og -frammistöðu félagsins.
ERM vinnur með skjólstæðingum sínum að því að innleiða sjálfbærni í reksturinn á þeim hraða og í þeim mæli sem við á hverju sinni, og gerir það með einstöku samblandi af stefnubreytingum og tæknigetu. Alþjóðlegt sérfræðingateymi ERM aðstoðar mörg af helstu fyrirtækjum og stofnunum heims við að setja sér skýr sjálfbærnimarkmið, mæla árangur og hrinda stefnum í framkvæmd með ítarlegri innleiðingu og rekstrarbreytingum.
Fyrir starfinu fer Joan Plant, sem var nýlega skipuð Executive Vice President og er því komin í hóp yfirstjórnenda félagsins.
"Sjálfbærni er þungamiðjan í fyrirætlun Amaroq um að skapa sér arfleifð á Grænlandi. Við erum spennt fyrir því að starfa með ERM að stefnumótandi endurskoðun á sjálfbærninálgun okkar og við hlökkum til að vinna með þeim að orkuskiptum og stuðningi við sjálfbæra þróun á Grænlandi".
Amaroq Minerals Ltd. Eldur Ólafsson, forstjóri [email protected]
Eddie Wyvill, viðskiptaþróun +44 (0)7713 126727 [email protected]
Callum Stewart Varun Talwar Simon Mensley Ashton Clanfield +44 (0) 20 7710 7600
John Prior Hugh Rich Dougie Mcleod +44 (0) 20 7886 2500
Billy Clegg Elfie Kent Charlie Dingwall +44 (0) 20 3757 4980
Fylgist með @Amaroq_minerals á X (áður Twitter) Fylgið Amaroq Minerals Inc. á LinkedIn
Helstu viðskiptamarkmið Amaroq Minerals eru að finna, rannsaka og þróa námur með gulli og öðrum verðmætum málmum á Grænlandi. Helsta eign félagsins er 100% eignarhlutur í Nalunaq-verkefninu, námugreftri á rannsóknarstigi sem er vel á veg kominn og með vinnsluleyfi sem tekur meðal annars til Nalunaq-gullnámunnar þar sem gröftur var stundaður áður. Félagið er stærsti leyfishafinn til að vinna gull og aðra verðmæta málma úr jörðu á Grænlandi, meðal annars úr gullbeltunum tveimur sem vitað er um á svæðinu. Amaroq Minerals er stofnsett samkvæmt kanadískum fyrirtækjalögum og er eini eigandi Nalunaq A/S, sem er stofnsett samkvæmt grænlenskum lögum um hlutafélög.
Hvorki TSX Venture Exchange né eftirlitsaðili kauphallarinnar (samkvæmt skilgreiningu í reglum TSX Venture Exchange) ábyrgist að upplýsingarnar í þessari tilkynningu séu fullnægjandi eða réttar.
Í þessari tilkynningu eru engar innherjaupplýsingar.
Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.