AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Síldarvinnslan

Earnings Release Feb 15, 2024

2205_iss_2024-02-15_ffee3c6e-71a0-4495-b60d-71aa70637dea.html

Earnings Release

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Disclosure 442445

Síldarvinnslan hf - Innherjaupplýsingar

Síldarvinnslan hf. - Jákvæð afkomuviðvörun

Í áætlun félagsins sem lögð var fram á fyrri hluta árs, var gert ráð fyrir að EBITDA samstæðu félagsins yrði á bilinu 107 – 117 milljónir USD á árinu 2023. Drög að uppgjöri fjórða ársfjórðungs 2023 liggur nú fyrir og samkvæmt því mun EBITDA hagnaður ársins nema um 121 milljónir USD og er þannig nokkuð hærri en áætlun gerði ráð fyrir.

Útgerð og vinnsla hefur almennt gengið vel á árinu en á síðustu mánuðum hafa komið inn jákvæðir þættir í reksturinn sem skýra betri afkomu. Má þar nefna að verð á fiskimjöli og lýsi eru betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Atburðirnir sem hófust í Grindavík 10. nóvember sl. hafa á móti neikvæð áhrif vegna framleiðslustöðvunar og einskiptiskostnaðar við björgun afurða.

Vinna við ársuppgjör er enn í gangi og því geta lykiltölur enn tekið smávægilegum breytingum á uppgjörstímabilinu. Síldarvinnslan hf. mun birta niðurstöðu ársins þann 7. mars næstkomandi í samræmi við fjárhagsdagatal.

Nánari upplýsingar veitir Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar hf. í síma 470-7000 eða á [email protected]

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.