Audit Report / Information • Mar 7, 2024
Audit Report / Information
Open in ViewerOpens in native device viewer

Ársreikningur samstæðu 2023

| Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og framkvæmdastjóra |
|---|
| Áritun óháðs endurskoðanda |
| Rekstrarreikningur samstæðu |
| Yfirlit um heildarafkomu samstæðu |
| Efnahagsreikningur samstæðu |
| Eiginfjáryfirlit samstæðu |
| Sjóðstreymi samstæðu |
| Skýringar |
| Óendurskoðuð fylgiskjöl |
| Stjórnarháttayfirlýsing | 51 - 55 |
|---|---|
| Ófjárhagsleg upplýsingagjöf | 56 - 61 |
Samstæða Síldarvinnslunnar hf. er í dag með öflugustu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins og byggir starfsemin á yfir 60 ára reynslu í fiskvinnslu og útgerð. Samstæðan er ein sú stærsta á Íslandi í veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski og stærsti framleiðandi á fiskimjöli og lýsi á Íslandi.
Samstæðan samanstendur af móðurfélaginu Síldarvinnslunni hf. og dótturfélögum sem eru í lok tímabilsins Bergur-Huginn ehf., Bergur ehf., Fóðurverksmiðjan Laxá hf., Fjárfestingafélagið Vör ehf., Vísir ehf., Sjávarmál ehf., Daðey ehf., Mar Guesthouse ehf., Samvís ehf., Vísir Gmbh., Þorvís ehf., DSFU og Pytheas Seafood P.C. Sjá nánar skýringu 1.
Samkvæmt rekstrarreikningi námu rekstrartekjur samstæðunnar 404,7 milljónum dollara á árinu og hagnaður af rekstrinum nam 73,4 milljónum dollara. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 1.098,9 milljónum dollara í árslok. Á árinu var rekstur Vísis ehf. og dótturfélaga innifalin allt árið en aðeins einn mánuð á árinu 2022. Fjárhæðir í efnahagsreikningi eru innifaldar í samstæðunni bæði í lok árs 2023 og 2022.
Eigið fé nam 644,5 milljónum dollara í lok árs í samstæðunni en þar af var hlutdeild minnihluta í eigin fé samstæðunnar 3,2 milljónir dollara. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar var 58,6%. Meðalfjöldi starfsmanna samstæðurnnar á árinu var 723 en 390 árið áður.
Þann 26. september síðastliðinn var skrifað undir kaup Síldarvinnslunnar hf. á helmingshlut í sölufyrirtækinu Ice Fresh Seafood ehf. Kaupin eru háð niðurstöðu áreiðanleikakönnunnar og samþykki Samkeppniseftirlitsins á þeim. Áhrif kaupanna verða ekki færð í efnahagsreikning samstæðunnar fyrr en öllum skilyrðum hefur verið fullnægt og fyrirvörum aflétt. Sjá nánar skýringu 26.
Á árinu varð hlutdeildarfélagið Arctic Fish fyrir verulegu tjóni vegna laxa- og fiskilúsa. Afkoma félagsins var neikvæð um EUR 12,9 milljónir (USD 13,9 milljónir), meðal annars vegna niðurfærslu á lífmassa. Hlutdeild Síldarvinnslunnar í afkomu Arctic Fish á árinu er neikvæð um USD 4,8 milljónir. Sjá nánar skýringu 10.
Þann 13. janúar sl. gaf ríkislögreglustjóri út að Grindavík yrði rýmd frá 15. janúar á meðan áhættumat færi fram. Hinn 14. janúar hófst hins vegar eldgos. Var neyðarstigi lýst yfir og bærinn lokaður til 29. janúar þegar verðmætabjörgun var heimiluð. Á tímabilinu fór bæði rafmagn og heitt vatn af bæjarfélaginu en eignir Vísis sluppu við verulegt tjón af völdum þess. Beint tjón varð á léttsöltuðum afurðum sem voru í vinnslu en verðmæti þeirra var óverulegt. Áframhaldandi starfsemi og rekstrargrundvöllur í Grindavík er til skoðunar en við mat á því skiptir öryggi starfsfólks og vátryggingarvernd miklu máli. Þá skiptir einnig máli hvort og þá með hvaða hætti stjórnvöld koma til móts við atvinnulífið í Grindavík, en ekkert liggur fyrir um slíkt á þessari stundu. Sjá nánar skýringu 27.
Stjórn Síldarvinnslunnar hf. leggur til við aðalfund að greiddur verði arður til hluthafa vegna reikningsársins 2023 samkvæmt arðgreiðslustefnu félagsins. Arðgreiðsla til hluthafa nemi 32% hagnaðar ársins eða 3.200,6 millj. króna (um 23,5 millj. USD miðað við lokagengi ársins 2023). Arðgreiðslan nemur 1,73 kr. á hlut. Samþykki aðalfundur tillöguna skal arðsréttindadagur vera 25. mars 2024, þ.e. réttur hluthafa til arðgreiðslu verður miðaður við hlutaskrá félagsins í lok þess viðskiptadags. Arðleysisdagur, þ.e. sá dagur sem viðskipti hefjast með bréf félagsins án réttar til arðs vegna reikningsársins 2023 verður því 22. mars 2024, eða næsti viðskiptadagur eftir aðalfund. Útborgunardagur arðs verður 26. mars 2024.
Í árslok 2023 voru hluthafar Síldarvinnslunnar 3.370 í lok árs en 3.592 í upphafi árs. Tíu stærstu hluthafar í árslok 2023 voru:
| Árslok | Árslok | |
|---|---|---|
| 2023 | 2022 | |
| Samherji hf., kt. 610297-3079 | 30,06% | 30,06% |
| Kjálkanes hf., kt. 461115-0710 | 16,06% | 16,06% |
| Gildi - lífeyrissjóður, kt. 561195-2779 | 10,56% | 10,37% |
| Samvinnufélag útgerðarmanna, kt. 550269-0319 | 10,10% | 10,10% |
| Eignarhaldsfél. Snæfugl ehf., kt. 670209-0320 | 3,49% | 3,49% |
| Lífeyrissjóður verslunarmanna, kt. 430269-4459 | 3,00% | 2,36% |
| Stapi lífeyrissjóður, kt. 601092-2559 | 2,84% | 2,87% |
| Brú Líf.sj. starfsm. Sveitarf. kt. 491098-2529 | 1,55% | 1,11% |
| Festa - lífeyrissjóður, kt. 571171-0239 | 1,48% | 1,35% |
| Almenni lífeyrissjóðurinn, kt. 450290-2549 | 1,32% | 1,29% |
| Síldarvinnslan hf., kt. 570269-7479 (eigin bréf) | 0,01% | 0,01% |
| Aðrir hluthafar | 19,53% | 20,93% |
| 100% | 100% |
Í lok árs á Síldarvinnslan eigin hluti að nafnverði 108.000. Nánari umfjöllun um hlutafé og umfjöllun um eigin hluti er að finna í eiginfjáryfirliti og skýringu nr. 17.
Helsta fjárhagslega áhætta samstæðunnar er gengisþróun íslensku krónunnar gagnvart erlendum myntum. Samstæðan er ekki með formlegar gjaldeyrisvarnir en hefur gert framvirka vaxtaskiptasamninga til að verjast áhættu vegna breytinga á vöxtum. Samstæðan gerir jafnframt gjaldmiðlaskiptasamninga til að verja kröfur og birgðir. Í skýringum, þ.a.m. skýringu nr. 25, er að finna frekari upplýsingar um fjárhagslega áhættustjórnun.
Í samræmi við 65. gr. laga um ársreikninga nr. 3/2006 upplýsir stjórn félagsins að í stjórn sitja 3 karlar og 2 konur.
Til samræmis við 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995 upplýsir stjórn að 75,4% af starfsmönnum samstæðunnar eru karlar og 24,6% konur. Þar af eru sjómenn 270 eða 36,5% starfsmanna, engar konur eru á sjó hjá samstæðunni. Meðal stjórnenda og sérfræðinga samstæðunnar eru 82,0% karlar og 18,0% konur.
Ófjárhagslegar upplýsingar, samkvæmt 66. gr. laga um ársreikninga, eru settar fram í viðauka með ársreikningnum. Í viðaukanum eru einnig upplýsingagjöf félagsins í samræmi við flokkunarreglugerð ESB (EU Taxonomy) sem tók gildi á miðju ári 2023 og gildir fyrir allt fjárhagsárið 2023.
Stjórn Síldarvinnslunnar leitast við að fylgja leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands, Nasdaq OMX Iceland hf og Samtökum atvinnuífsins (síðast gefnar út í febrúar 2021). Í viðauka við samstæðuársreikning þennan er að finna stjórnarháttayfirlýsingu samstæðunnar.
Samstæðuársreikningur Síldarvinnslunnar hf. er gerður til samræmis við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og viðbótar kröfur um upplýsingagjöf sem settar eru í íslenskum lögum og reglugerðum um innihald og upplýsingar í samstæðuársreikningum félaga, sem hafa verðbréf sín skráð í skipulegum verðbréfamarkaði. Skráin "549300AMNBYFRNGJ9J24-2023-12-31-is.zip" er í samræmi við sameiginlegt rafrænt skýrslusnið samstæðuársreikninga (ESEF).
Samkvæmt bestu vitneskju er það álit stjórnar og framkvæmdastjóra að samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af rekstrarafkomu samstæðunnar á árinu 2023, og eignum, skuldum og fjárhagsstöðu hennar þann 31. desember 2023. Jafnframt er það álit stjórnar og framkvæmdastjóra að samstæðuársreikningurinn og skýrsla stjórnar geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar, stöðu hennar og lýsi helstu áhættuþáttum sem samstæðan býr við.
Stjórn og framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar staðfesta hér með samstæðuársreikning félagsins fyrir árið 2023 með undirritun sinni.
Neskaupstaður, 7. mars 2024.
Anna Guðmundsdóttir
Þorsteinn Már Baldvinsson Stjórnarformaður Baldur Már Helgason
Meðstjórnandi Meðstjórnandi
Erla Ósk Pétursdóttir
Gunnþór Ingvason Forstjóri
Meðstjórnandi Meðstjórnandi Guðmundur Rafnkell Gíslason
Við höfum endurskoðað meðfylgjandi samstæðuársreikning Síldarvinnslunnar hf. og dótturfélaga (samstæðan) fyrir árið 2023, að undanskilinni skýrslu og yfirlýsingu stjórnar og framkvæmdastjóra.
Það er álit okkar að samstæðuársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu samstæðunnar á árinu 2023, efnahag hennar 31. desember 2023 og breytingu á handbæru fé á árinu 2023, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og viðeigandi ákvæði í lögum um ársreikninga.
Álit okkar er í samræmi við skýrslu okkar til endurskoðunarnefndar og stjórnar Síldarvinnslunnar hf.
Samstæðuársreikningurinn innifelur:
Sjóðstreymi samstæðu fyrir árið 2023.
Skýringar, sem innifela mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og framkvæmdastjóra er undanskilin endurskoðun, sbr. kafla um aðrar upplýsingar.
Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt stöðlunum er nánar útskýrð í kaflanum um ábyrgð endurskoðenda.
Við erum óháð samstæðunni samkvæmt ákvæðum laga um endurskoðendur og endurskoðun og siðareglna sem gilda um endurskoðendur á Íslandi og varða endurskoðun okkar á ársreikningi samstæðunnar. Við uppfyllum jafnframt aðrar kröfur um starf okkar sem endurskoðendur í samræmi við ákvæði siðareglna.
Samkvæmt okkar bestu vissu, lýsum við yfir að önnur þjónusta sem við höfum veitt samstæðunni og félögum innan hennar er í samræmi við ákvæði íslenskra laga og reglna og að við höfum ekki veitt þjónustu sem óheimilt er að veita samkvæmt ákvæðum 5.1. gr. Evrópureglugerðar nr. 537/2014.
Gerð er grein fyrir annarri þjónustu sem við höfum veitt samstæðunni og félögum innan hennar á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2023 í skýringu nr. 6.
Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægjanlegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.
Lykilatriði endurskoðunarinnar eru þau atriði sem að okkar faglega mati höfðu mesta þýðingu í endurskoðun okkar á ársreikningi samstæðunnar árið 2023. Sem hluti af endurskoðun okkar á samstæðuársreikningnum voru þessi lykilatriði skoðuð sérstaklega. Við látum ekki í ljós sérstakt álit varðandi þessi lykilatriði, einungis er látið í ljós álit á samstæðuársreikningnum í heild.
| Lykilatriði endurskoðunarinnar | Endurskoðunaraðgerðir |
|---|---|
| Mat fiskveiðiheimilda | Endurskoðun á mati bókfærðra fiskveiðiheimilda fólst m.a. í eftirfarandi: |
| Bókfærðar fiskveiðiheimildir í samstæðuársreikningi nema um USD 502,3 milljónum í lok árs 2023. Það samsvarar um 46% af eignum og 78% af eigin fé samstæðunnar. Fiskveiðiheimildir er verulegur liður í reikningsskilum samstæðunnar. Vegna óvissu í mati tengt forsendum stjórnenda og öðrum forsendum sem virðisrýrnunarpróf byggja á er mat þessa liðar lykilatriði í endurskoðun okkar. Sjá nánar umfjöllun í skýringum nr. 2.9 um reikningsskilaaðferðir vegna óefnislegra eigna og nr. 2.11 um virðisrýrnun annarra eigna en fjáreigna, skýringu nr. 8 um óefnislegar eignir. |
- Úthlutun aflahlutdeildar og aflamarks staðreynd og stemmd af við opinber gögn um úthlutun. - Bókfært verð borið saman við gangvirði í nýlegum viðskiptum og mat kvótamiðlara. - Yfirferð á virðisrýrnunarprófi stjórnenda á nýtingarvirði í framtíðarrekstri. Virðisrýrnunarprófið var endurreiknað með aðstoð verðmatssérfræðinga PwC. - Forsendur rekstrar- og sjóðstreymisáætlana til næstu fimm ára voru yfirfarnar. Í þeirri vinnu fólst að lagt var mat á forsendur um tekjur, rekstrarkostnað, framlegð og fjárfestingar fyrir spátímabilið, m.a. á grundvelli sögulegra upplýsinga og áætlana. - Forsendur um framtíðarvöxt voru yfirfarnar. - Ávöxtunarkrafa (WACC) sem notuð er við núvirðingu var borin saman við fjármagnskostnað samstæðunnar og ytri markaðsforsendur. - Viðeigandi skýringar voru yfirfarnar. |
| Lykilatriði endurskoðunarinnar | Endurskoðunaraðgerðir |
| Mat og tilvist birgða Birgðir í samstæðuársreikningi nema USD 86,2 milljónum í lok árs 2023. Það samsvarar um 8% af eignum og um 13% af eigin fé samstæðunnar. |
Endurskoðun á tilvist birgða fólst í skoðun og úrtakstalningu á afurðabirgðum og öðrum birgðum samstæðunnar um áramót. Endurskoðun á mati birgða fólst m.a. í eftirfarandi: |
| Kostnaðarverð/framleiðsluverð afurðabirgða er háð mati stjórnenda og byggir á útreikningum um framlegð og öðrum forsendum stjórnenda, sem og samanburði við dagverð. Því er þessi liður lykilatriði í endurskoðun okkar. Sjá nánar umfjöllun í skýringu nr. 2.12 um reikningsskilaaðferðir gagnvart birgðum og skýringu nr. 13 um birgðir. |
- Yfirferð á birgðaferlinum og samsetningu birgða. - Aðferðafræði og forsendur stjórnenda við mat afurðabirgða voru yfirfarnar. - Kostnaðarverð/framleiðsluverð afurðabirgða er m.a. metið út frá framlegð deilda og því voru forsendur um framlegð og útreikningur framlegðar staðreyndur á grundvelli deildaruppgjöra fyrir árið. - Söluverðmæti birgðanna eftir áramót, sem liggur til grundvallar á mati birgða, var yfirfarið með úrtaksprófunum. |
Stjórn og framkvæmdastjóri bera ábyrgð á öðrum upplýsingum. Aðrar upplýsingar eru skýrsla og yfirlýsing stjórnar og framkvæmdastjóra, skýring nr. 28 Ársfjórðungsyfirlit og viðaukar í samstæðuársreikningi um stjórnarháttayfirlýsingu og ófjárhagslega upplýsingagjöf sem lágu fyrir við áritun okkar.
Álit okkar á samstæðuársreikningnum nær ekki til annarra upplýsinga þ.m.t. skýrslu og yfirlýsingu stjórnar og framkvæmdastjóra og við staðfestum þær ekki á neinn hátt.
Í tengslum við endurskoðun okkar á ársreikningi samstæðunnar ber okkur að yfirfara aðrar upplýsingar, sem tilgreindar eru hér að ofan, þegar þær liggja fyrir og meta hvort þær séu í verulegu ósamræmi við samstæðuársreikninginn eða skilning sem við höfum aflað við endurskoðunina eða ef svo virðist að verulegar rangfærslur séu í þeim. Ef við, á grundvelli vinnu okkar, ályktum að verulegar rangfærslur séu í öðrum upplýsingum ber okkur að skýra frá því. Við höfum ekki greint atriði sem ber að greina sérstaklega frá.
Hvað varðar skýrslu og yfirlýsingu stjórnar og framkvæmdastjóra höfum við, í samræmi við ákvæði 104. gr. laga um ársreikninga nr. 3/2006, yfirfarið að skýrsla og yfirlýsing stjórnar og framkvæmdastjóra hafi að geyma þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga komi þær ekki fram annars staðar í samstæðuársreikningnum.
Stjórn og framkvæmdastjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu samstæðuársreikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og viðeigandi ákvæði í lögum um ársreikninga. Stjórn og framkvæmdastjóri eru einnig ábyrg fyrir því innra eftirliti sem nauðsynlegt er að sé til staðar varðandi gerð og framsetningu samstæðuársreikningsins, þannig að hann sé án verulegra annmarka hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Við gerð samstæðuársreikningsins ber stjórnendum samstæðunnar að meta hæfi hennar til áframhaldandi starfsemi. Stjórnendum ber að semja ársreikning samstæðunnar á þeirri forsendu að um áframhaldandi starfsemi sé að ræða, nema stjórnendur ætli að leysa samstæðuna upp eða hætta rekstri hennar, eða hafi ekki raunhæft val um annað en að hætta starfsemi samstæðunnar. Stjórnendum samstæðunnar ber að setja fram viðeigandi skýringar varðandi hæfi hennar til áframhaldandi starfsemi ef við á og hvers vegna stjórnendur beita forsendunni um áframhaldandi starfsemi við gerð og framsetningu samstæðuársreikningsins.
Stjórn og endurskoðunarnefnd skulu hafa eftirlit með gerð og framsetningu samstæðuársreikningsins.
Markmið okkar er að afla nægjanlegrar vissu um að samstæðuársreikningurinn sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka og gefa út áritun með áliti okkar. Nægjanleg vissa er mikil vissa en ekki trygging þess að endurskoðun, sem framkvæmd er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla, muni ávallt leiða í ljós alla verulega annmarka séu þeir til staðar. Annmarkar geta stafað af sviksemi eða mistökum og eru metnir verulegir ef þeir, einir og sér eða samanlagðir, gætu haft áhrif á fjárhagslegar ákvarðanir notenda sem grundvallaðar eru á samstæðuársreikningnum.
Endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla byggir á faglegu mati og faglegri tortryggni. Við framkvæmum einnig eftirfarandi:
Greinum og metum áhættuna af verulegum annmörkum, vegna sviksemi eða mistaka, og skipuleggjum endurskoðunaraðgerðir til að mæta þessari áhættu og öflum endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi grunnur fyrir áliti okkar. Áhættan af því að greina ekki verulega annmarka sem stafa af sviksemi er meiri en áhætta af annmörkum vegna mistaka, þar sem sviksemi getur stafað af fölsun, misvísandi framsetningu samstæðuársreiknings, að mikilvægum atriðum sé viljandi sleppt, samanteknum ráðum eða að innra eftirlit sé sniðgengið.
Öflum skilnings á innra eftirliti sem er viðeigandi fyrir endurskoðun okkar í þeim tilgangi að hanna endurskoðunaraðgerðir, en ekki til þess að gefa álit á virkni innra eftirlits samstæðunnar.
Metum hvort val stjórnenda á reikningsskilaaðferðum sé viðeigandi og hvort matsaðferðir þeirra séu raunhæfar. Einnig skoðum við hvort tengdar skýringar séu við hæfi.
Ályktum um notkun stjórnenda á forsendunni um áframhaldandi starfsemi og metum á grundvelli endurskoðunarinnar hvort verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi samstæðunnar eða hvort aðstæður séu til staðar sem gætu valdið verulegum efasemdum um rekstrarhæfi hennar. Ef við teljum að veruleg óvissa ríki, ber okkur að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum í samstæðuársreikningnum um óvissuna og ef þær upplýsingar eru ekki nægjanlegar að okkar mati, víkjum við frá fyrirvaralausu áliti. Niðurstaða okkar byggir á þeim endurskoðunargögnum sem við höfum aflað fram að dagsetningu áritunar okkar. Engu að síður geta atburðir eða aðstæður í framtíðinni leitt til þess að samstæðan verði ekki lengur rekstrarhæf.
Metum framsetningu, gerð og innihald samstæðuársreikningsins í heild, að meðtöldum skýringum og hvort hann grundvallast á fyrirliggjandi færslum og atburðum og gefi glögga mynd samanber álit okkar.
Öflum nægjanlegra endurskoðunargagna vegna fjárhagsupplýsinga félaga og eininga innan samstæðunnar og gefum út álit á samstæðuársreikningnum. Við erum ábyrg fyrir skipulagi, umsjón og framgangi endurskoðunar samstæðunnar. Við berum ábyrgð á áliti okkar.
Við upplýsum stjórn og endurskoðunarnefnd meðal annars um áætlað umfang og tímasetningu endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem upp geta komið í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka í innra eftirliti ef við á.
Við höfum lýst því yfir við stjórn og endurskoðunarnefnd að við uppfyllum nauðsynleg siðferðis- og óhæðisskilyrði og við munum láta þeim í té allar upplýsingar um hugsanleg tengsl og önnur atriði sem gætu haft áhrif á óhæði okkar og trúnað.
Við höfum lagt mat á hvaða atriði, af þeim atriðum sem við höfum upplýst stjórn og endurskoðunarnefnd um, höfðu mesta þýðingu á yfirstandandi ári og eru það lykilatriði endurskoðunarinnar. Við lýsum þessum lykilatriðum í áritun okkar nema lög og reglur leyfi ekki að upplýst sé opinberlega um tiltekin atriði eða í algjörum undantekningartilfellum þegar mat okkar er að neikvæðar afleiðingar af birtingu slíkra upplýsinga vegi þyngra en ávinningur almennings af birtingu upplýsinganna.
Í tengslum við endurskoðun okkar á samstæðuársreikningi Síldarvinnslunnar hf. framkvæmdum við aðgerðir til að geta gefið álit á það hvort samstæðuársreikningur Síldarvinnslunnar hf. fyrir árið 2023 með skráarheitið 549300AMNBYFRNGJ9J24-2023-12-31-is.zip hafi í meginatriðum verið gerður í samræmi við kröfur laga um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu nr. 20/2021 um sameiginleg rafræn skýrslusnið (e. European Single Electronic Format) og reglugerð Evrópusambandsins nr. 2019/815 (ESEF reglur) sem innihalda skilyrði sem tengjast gerð samstæðuársreiknings á XHTML formi og iXBRL merkingum samstæðuársreikningsins.
Stjórn og framkvæmdastjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu samstæðuársreikningsins í samræmi við lög um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu. Í þeirri ábyrgð felst meðal annars að útbúa samstæðuársreikning á XHTML formi í samræmi við ákvæði reglugerðar Evrópusambandsins nr. 2019/815, um sameiginleg rafræn skýrslusnið (e. European Single Electronic Format).
Ábyrgð okkar er að afla hæfilegrar vissu um hvort samstæðuársreikningurinn, byggt á þeim gögnum sem við höfum aflað, sé í öllum meginatriðum í samræmi við ESEF reglur og gefa út áritun með áliti okkar. Eðli, tímasetning og umfang aðgerða sem valdar eru byggja á mati endurskoðandans, þar á meðal mati á áhættunni að vikið sé í verulegum atriðum frá kröfum sem fram koma í ESEF reglum, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Það er álit okkar að samstæðuársreikningur Síldarvinnslunnar hf. fyrir árið 2023 með skráarheitið 549300AMNBYFRNGJ9J24-2023-12-31-is.zip hafi í öllum meginatriðum verið gerður í samræmi við ákvæði reglugerðar Evrópusambandsins nr. 2019/815, um sameiginleg rafræn skýrslusnið (e. European Single Electronic Format).
Við vorum kosin endurskoðendur á aðalfundi Síldarvinnslunnar hf. þann 12. mars 2018. Kosning okkar hefur verið endurnýjuð árlega á aðalfundi félagsins og höfum við því verið endurskoðendur samstæðuársreiknings félagsins samfellt í 6 ár.
Reykjavík 7. mars 2024.
PricewaterhouseCoopers ehf.
Vignir Rafn Gíslason löggiltur endurskoðandi
| Skýringar | 2023 | 2022 | |
|---|---|---|---|
| Rekstrartekjur | |||
| Seldar vörur | 4 | 403.924.398 | 310.098.063 |
| Hagnaður af sölu eigna | 776.508 | 15.237 | |
| 404.700.906 | 310.113.300 | ||
| Rekstrargjöld | |||
| Kostnaðarverð seldra vara | 172.866.888 | 132.015.528 | |
| Laun, aflahlutir og annar starfsmannakostnaður | 5 | 100.744.223 | 64.829.189 |
| Annar rekstrarkostnaður | 6 | 9.330.463 | 8.634.264 |
| 282.941.574 | 205.478.981 | ||
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) | 121.759.332 | 104.634.319 | |
| Afskriftir fastafjármuna | 9 | 21.233.370 | 14.234.197 |
| Rekstrarhagnaður | 100.525.962 | 90.400.122 | |
| Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) | 7 | ||
| Vaxtatekjur og verðbætur | 5.111.865 | 1.342.794 | |
| Vaxtagjöld og verðbætur | (20.497.455) | (7.269.596) | |
| Gengismunur | 6.538.688 | (865.522) | |
| Tekjur af verðbréfum og afleiðusamningum | 2.917.738 | 6.481.683 | |
| (5.929.164) | (310.641) | ||
| Áhrif af rekstri hlutdeildarfélaga | 10 | (2.391.187) | 1.093.296 |
| (2.391.187) | 1.093.296 | ||
| Hagnaður fyrir tekjuskatt af áframhaldandi starfsemi | 92.205.611 | 91.182.777 | |
| Tekjuskattur | 20 | (18.769.829) | (17.814.264) |
| Hagnaður af áframhaldandi starfsemi | 73.435.782 | 73.368.513 | |
| Söluhagnaður fastafjármuna sem haldið er til sölu | 16 | 0 | 2.238.874 |
| Hagnaður ársins | 73.435.782 | 75.607.387 | |
| Hagnaður skiptist á eftirfarandi hátt: | |||
| Eigendur félagsins | 72.836.009 | 75.463.384 | |
| Hlutdeild minnihluta | 599.773 | 144.003 | |
| 73.435.782 | 75.607.387 | ||
| Hagnaður á hlut | |||
| Hagnaður eigenda félagsins af | |||
| áframhaldandi starfsemi á útistandandi hlut | 17 | 0,0395 | 0,0428 |
| Starfsþáttayfirlit | 3 | ||
| Ársfjórðungsyfirlit | 28 |
| Skýringar | 2023 | 2022 | |
|---|---|---|---|
| Hagnaður ársins | 73.435.782 | 75.607.387 | |
| Önnur heildarafkoma Liðir sem síðar munu verða endurflokkaðir yfir rekstur: |
17 | ||
| Þýðingarmunur vegna eignarhluta í félögum | 11.157.365 | 3.560.572 | |
| Heildarafkoma ársins | 84.593.147 | 79.167.959 | |
| Heildarafkoma skiptist á eftirfarandi hátt: | |||
| Eigendur félagsins | 83.917.518 | 79.172.889 | |
| Hlutdeild minnihluta | 675.629 | (4.930) | |
| 84.593.147 | 79.167.959 |
| Eignir | Skýringar | 31.12.2023 | 31.12.2022 |
|---|---|---|---|
| Fastafjármunir | |||
| Óefnislegar eignir: | |||
| Fiskveiðiheimildir | 8 | 502.329.577 | 494.110.123 |
| 502.329.577 | 494.110.123 | ||
| Rekstrarfjármunir: | 9 | ||
| Varanlegir rekstrarfjármunir | 237.392.125 | 219.235.327 | |
| Fastafjármunir í smíðum | 2.675.669 | 15.406.322 | |
| Leiguréttindi | 2.593.158 | 2.803.034 | |
| 242.660.952 | 237.444.683 | ||
| Fjárfestingar: | |||
| Eignarhlutar í hlutdeildarfélögum | 10 | 141.416.328 | 139.191.201 |
| Eignarhlutar í öðrum félögum | 11 | 2.816.428 | 2.449.335 |
| Skuldabréfaeign | 12 | 66.134 | 74.945 |
| 144.298.890 | 141.715.481 | ||
| Fastafjármunir samtals | 889.289.419 | 873.270.287 | |
| Veltufjármunir | |||
| Birgðir | 13 | 86.181.577 | 58.937.844 |
| Viðskiptakröfur | 14 | 35.353.442 | 38.995.823 |
| Aðrar skammtímakröfur | 14 | 6.414.094 | 9.746.237 |
| Handbært fé | 15 | 81.650.166 | 77.289.688 |
| 209.599.279 | 184.969.592 | ||
| Fastafjármunir sem haldið er til sölu | 16 | 0 | 1.534.733 |
| Veltufjármunir samtals | 209.599.279 | 186.504.325 | |
| Eignir samtals | 1.098.888.698 | 1.059.774.612 |
| Skýringar | 31.12.2023 | 31.12.2022 |
|---|---|---|
| 15.122.610 | ||
| 126.764.582 | ||
| 63.370.670 | 38.733.766 | |
| 436.036.960 | 402.096.549 | |
| 641.294.822 | 582.717.507 | |
| 3.179.252 | 2.541.465 | |
| 644.474.074 | 585.258.972 | |
| 18 | 254.572.356 | 217.769.366 |
| 19 | 1.363.348 | 1.516.430 |
| 20 | 104.112.190 | 100.753.122 |
| 360.047.894 | 320.038.918 | |
| 18 | 2.561.814 | 39.851.836 |
| 18 | 47.538.882 | 68.006.240 |
| 20 | 18.028.190 | 14.300.900 |
| 21 | 13.111.842 | 18.891.208 |
| 21 | 11.191.778 | 10.143.843 |
| 23 | 1.934.224 | 3.282.695 |
| 94.366.730 | 154.476.722 | |
| 454.414.624 | 474.515.640 | |
| 1.098.888.698 | 1.059.774.612 | |
| 17 | 15.122.610 126.764.582 |
Aðrar upplýsingar 3, 22, 24, 25, 26, 27, 28
| Hlutafé | Yfirverðs- reikningur |
Annað bundið eigið fé |
Óráðstafað eigið fé |
Hlutdeild minnihluta |
Eigið fé samtals |
|
|---|---|---|---|---|---|---|
| Hreyfingar 2022: | ||||||
| Staða í ársbyrjun | 14.096.600 | 17.588.283 | 31.137.925 | 357.037.020 | 2.661.403 | 422.521.231 |
| Heildarafkoma: Hagnaður ársins |
75.463.384 | 144.003 | 75.607.387 | |||
| Lagt í lögbundinn varasjóð |
256.022 | (256.022) | 0 | |||
| Þýðingarmunur Bundinn |
3.709.505 | (148.933) | 3.560.572 | |||
| - hlutdeildarreikningur | 4.152.474 | (4.152.474) | 0 | |||
| - gangvirðisreikningur | (522.160) | 522.160 | 0 | |||
| 0 | 0 | 7.595.841 | 71.577.048 | (4.930) | 79.167.959 | |
| Eigendur: | ||||||
| Útgefið nýtt hlutafé | 1.026.010 | 109.176.299 | 110.202.309 | |||
| Greiddur arður | (26.517.519) | (26.517.519) | ||||
| Arður til minnihlutaeigenda | (63.558) | (63.558) | ||||
| Hlutdeild minnihluta við yfirtöku á dótturfélagi |
(51.450) | (51.450) | ||||
| 1.026.010 | 109.176.299 | 0 | (26.517.519) | (115.008) | 83.569.782 | |
| Staða í árslok | 15.122.610 | 126.764.582 | 38.733.766 | 402.096.549 | 2.541.465 | 585.258.972 |
| Yfirverðs- | Annað bundið | Óráðstafað | Hlutdeild | Eigið fé | ||
| Hlutafé | reikningur | eigið fé | eigið fé | minnihluta | samtals | |
| Hreyfingar 2023: | ||||||
| Staða í ársbyrjun | 15.122.610 | 126.764.582 | 38.733.766 | 402.096.549 | 2.541.465 | 585.258.972 |
| Heildarafkoma: | ||||||
| Hagnaður ársins | 72.836.009 | 599.773 | 73.435.782 | |||
| Þýðingarmunur Bundinn |
11.081.509 | 75.856 | 11.157.365 | |||
| - hlutdeildarreikningur | 13.302.502 | (13.302.502) | 0 | |||
| - gangvirðisreikningur | 252.893 | (252.893) | (0) | |||
| 0 | 0 | 24.636.904 | 59.280.614 | 675.629 | 84.593.147 | |
| Eigendur: | ||||||
| Greiddur arður | (25.340.203) | (25.340.203) | ||||
| Arður til minnihlutaeigenda | (37.842) | (37.842) | ||||
| 0 | 0 | 0 | (25.340.203) | (37.842) | (25.378.045) | |
| Staða í árslok | 15.122.610 | 126.764.582 | 63.370.670 | 436.036.960 | 3.179.252 | 644.474.074 |
Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. vegna rekstrarársins 2022 var haldinn 18. apríl 2023. Á aðalfundinum samþykktu hluthafar tillögu stjórnar um að greiða hluthöfum arð að fjárhæð 3.437 milljónir kr. (25,3 milljónir USD) sem jafngildir 1,86 krónum á hlut (2022: 2,01 króna á hlut). Arðurinn var greiddur þann 26. apríl 2023.
Há fjárhæð þýðingarmunar á tímabilinu er vegna dótturfélagsins Vísis ehf. og hlutdeildarfélagsins Arctic Fish. Félögin gera bæði upp í evrum (EUR). Vegna þessa er færður jákvæður þýðingarmunur að fjárhæð USD 5,8 milljónir vegna Vísis ehf. og USD 4,2 milljónir vegna hlutdeildarfélagsins Arctic Fish. Jafnframt er jákvæður þýðingarmunur vegna annarra dóttur- og hlutdeildarfélaga samtals fjárhæð USD 1,1 milljón. Í skýringu 17 er að finna ítarlegri upplýsingar um eigið fé, m.a. sundurliðun á öðru bundnu eigið fé.
| Skýringar | 2023 | 2022 | |
|---|---|---|---|
| Rekstrarhreyfingar | |||
| Hreint veltufé frá rekstri | |||
| Hagnaður af áframhaldandi starfsemi | 73.435.782 | 73.368.513 | |
| Söluhagnaður fastafjármuna sem haldið er til sölu | 16 | 0 | 2.238.874 |
| Hagnaður ársins | 73.435.782 | 75.607.387 | |
| Rekstrarliðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi: | |||
| Afskriftir | 9 | 21.233.370 | 14.234.197 |
| Aðrir liðir | 3.059.957 | 1.610.128 | |
| Hreint veltufé frá rekstri | 97.729.109 | 91.451.712 | |
| Lækkun (hækkun) rekstrartengdra eigna: | |||
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 7.005.813 | 8.856.409 | |
| Birgðir | (26.276.814) | (16.517.647) | |
| (Lækkun) hækkun rekstrartengdra skulda: | |||
| Skammtímaskuldir | (3.208.263) | 3.259.137 | |
| (22.479.264) | (4.402.101) | ||
| Handbært fé frá rekstri | 75.249.845 | 87.049.611 | |
| Fjárfestingahreyfingar | |||
| Keyptir varanlegir rekstrarfjármunir | 9 | (5.970.732) | (4.935.117) |
| Fjárfest í fastafjármunum í smíðum | 9 | (16.120.648) | (25.263.520) |
| Seldir varanlegir rekstrarfjármunir | 1.070.043 | 141.697 | |
| Sala fastafjármuna sem haldið er til sölu | 16 | 0 | 2.864.308 |
| Viðbót leiguréttinda | 9 | 0 | (168.563) |
| Breytingar á skuldabréfaeign | 0 | (115.872) | |
| 0 | (42.355.580) | ||
| Fjárfesting í nýju dótturfélagi | 0 | 1.665.658 | |
| Handbært fé dótturfélaga vegna breytinga á samstæðu | |||
| Seldir eignarhlutar í hlutdeildarfélögum | 0 | 326.361 | |
| Veitt lán til hlutdeildarfélags | 0 | 608.795 | |
| Arður frá hlutdeildarfélögum | 224.180 | 150.419 | |
| Keyptir eignarhlutar í hlutdeildarfélögum | 10 | 0 | (114.999.222) |
| Keyptir eignarhlutar í öðrum félögum | (17.947) | (36.503) | |
| Seldir eignarhlutar í öðrum félögum | 0 | 751.442 | |
| Fjármögnunarhreyfingar | (20.815.104) | (181.365.697) | |
| Nýjar langtímaskuldir | 18 | 86.328.686 | 98.508.760 |
| Afborganir langtímaskulda | 18 | (73.721.274) | (10.019.429) |
| Greiddur arður | (25.340.203) | (26.517.519) | |
| Greiddur arður til minnihlutaeigenda | (37.842) | (63.558) | |
| Breyting á skammtímaskuldum við lánastofnanir | (37.876.403) | 30.532.141 | |
| (50.647.036) | 92.440.395 | ||
| Hækkun (lækkun) á handbæru fé | 3.787.705 | (1.875.691) | |
| Handbært fé í byrjun árs | 77.289.688 | 79.856.239 | |
| Áhrif gengisumreiknings dótturfélaga | 572.773 | (690.860) | |
| Handbært fé í árslok | 81.650.166 | 77.289.688 |
| Skýringar | 2023 | 2022 | |
|---|---|---|---|
| Aðrar upplýsingar | |||
| Innborgaðir vextir og arðstekjur | 4.191.766 | 1.367.701 | |
| Greiddir vextir | (22.839.995) | (5.528.589) | |
| Greiddir skattar | (13.605.202) | (11.149.898) | |
| Fjárfestinga- og fjármögnunarhreyfingar án greiðsluáhrifa: | |||
| Útgefið nýtt hlutafé vegna kaupa á dótturfélagi | 0 | (110.202.309) | |
| Keyptir varanlegir rekstrarfjármunir | (1.351.845) | 0 | |
| Seldar óefnislegar eignir | 1.351.845 | 0 |
Síldarvinnslan hf. (,,félagið") er íslenskt hlutafélag og er lögheimili þess að Hafnarbraut 6, Neskaupstað. Samstæðuársreikningurinn fyrir árið 2023 hefur að geyma ársreikning félagsins og dótturfélaga þess, sem vísað er til í heild sinni sem ,,samstæðunnar" og til einstakra félaga sem ,,samstæðufélaga". Aðalstarfsemi samstæðunnar og félagsins er rekstur fiskvinnslu og útgerð.
Dótturfélög sem innifalin eru í samstæðuársreikningnum eru eftirtalin:
| Hlutdeild | Megin starfsemi | |
|---|---|---|
| Bergur-Huginn ehf., Vestmannaeyjum | 100,00% | Sjávarútvegsfyrirtæki |
| Bergur ehf., Vestmannaeyjum (dótturfélag Bergur-Huginn ehf.) | 100,00% | Sjávarútvegsfyrirtæki |
| Vísir ehf., Grindavík | 100,00% | Sjávarútvegsfyrirtæki |
| Sjávarmál ehf., Suðurnesjabær (dótturfélag Vísir ehf.) | 100,00% | Sjávarútvegsfyrirtæki |
| Daðey ehf., Grindavík (dótturfélag Sjávarmál ehf.) | 100,00% | Sjávarútvegsfyrirtæki |
| Mar Guesthouse ehf., Grindavík (dótturfélag Vísir ehf.) | 100,00% | Rekstur gistiheimilis |
| Samvís ehf., Grindavík (dótturfélag Vísir ehf.) | 100,00% | Rekstur eignarhaldsfélaga |
| Vísir Gmbh., Grindavík (dótturfélag Vísir ehf.) | 100,00% | Fasteignafélag |
| Þorvís ehf., Grindavík (dótturfélag Vísir ehf.) | 100,00% | Rekstur eignarhaldsfélaga |
| DSFU, Þýskaland (dótturfélag Samvís ehf.) | 100,00% | Sölu-og framleiðslufyrirtæki |
| Pytheas Seafood P.C., Grikkland (dótturfélag Þorvís ehf.) | 66,70% | Sölu-og framleiðslufyrirtæki |
| Fóðurverksmiðjan Laxá hf., Akureyri | 67,68% | Fóðurverksmiðja |
| Fjárfestingafélagið Vör hf., Neskaupstað | 60,00% | Rekstur eignarhaldsfélaga |
Samstæðuársreikningurinn var samþykktur á stjórnarfundi félagsins þann 7. mars 2024.
Dótturfélagið S2002 ehf. var sameinað móðurfélaginu í ársbyrjun.
Á árinu var rekstur Vísis ehf. og dótturfélaga innifalinn allt árið en aðeins einn mánuð á árinu 2022. Fjárhæðir í efnahagsreikningi eru innifaldar bæði í lok árs 2023 og 2022.
Ársreikningur samstæðu Síldarvinnslunnar hf. fyrir árið 2023 er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu (ESB) og viðeigandi kröfur í lögum um ársreikninga nr. 3/2006.
Ársreikningurinn er gerður á grundvelli kostnaðarverðs fyrir utan afleiður og fjárfestingar í öðrum eignarhlutum og markaðsverðbréfum sem eru færðar á gangvirði. Þó eru dóttur- og hlutdeildarfélög færð samkvæmt hlutdeildaraðferð. Ársreikningurinn er birtur í bandaríkjadollurum (USD), sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins. Allar fjárhæðir eru í bandaríkjadollurum (USD).
Eftirfarandi er samantekt á helstu reikningsskilaaðferðum samstæðunnar samkvæmt alþjóðlegu reikningsskilastöðlunum IFRS.
Við gerð samstæðuársreiknings þurfa stjórnendur, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, að taka ákvarðanir, meta og draga ályktanir sem hafa áhrif á eignir og skuldir á reikningsskiladegi, upplýsingar í skýringum og tekjur og gjöld. Við mat og ályktanir er byggt á reynslu og ýmsum öðrum þáttum sem taldir eru viðeigandi og mynda grundvöll þeirra ákvarðana sem teknar eru um bókfært verð eigna og skulda sem ekki liggur fyrir með öðrum hætti. Þó svo að matið sé samkvæmt bestu vitund stjórnenda geta raunveruleg verðmæti þeirra liða sem þannig eru metnir reynst önnur en niðurstaða samkvæmt matinu.
Upplýsingar um mikilvægar ákvarðanir um mat er að finna í eftirfarandi skýringum:
Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem þær eiga sér stað.
Ársreikningur samstæðunnar tekur til ársreiknings móðurfélagsins og ársreikninga félaga sem eru undir stjórn þess á reikningsskiladegi, dótturfélaga. Ráðandi stjórn í fyrirtækjunum fæst með því að móðurfélagið hefur vald til þess að ákveða fjármálaog rekstrarstefnu þeirra, í því skyni að hafa hag af rekstri þeirra.
Dótturfélög eru öll fyrirtæki þar sem samstæðan hefur vald til að ráða fjárhagslegri og stjórnunarlegri stefnu, sem fylgir að öðru jöfnu eignarhlut með meira en helmingi atkvæðaréttar. Dótturfélög eru að fullu hluti samstæðunnar frá þeim degi þegar yfirráð eru færð yfir til samstæðunnar. Þau eru tekin út úr samstæðunni frá þeim degi þegar yfirráðum lýkur. Fjárfestingar í dótturfélögum eru færðar með hlutdeildaraðferð í reikningsskilin.
Samstæðuársreikningur er gerður í samræmi við kostnaðarverðsreglu og í því tilviki sem eignarhald í dótturfélagi er minna en 100% er færð upp hlutdeild minnihluta í eigin fé og rekstrarafkomu.
Kaupaðferð í reikningshaldi er notuð við færslu kaupa samstæðunnar á dótturfélögum. Kaupverð er metið sem gangvirði tilgreindra eigna sem látnar eru af hendi, útgefinna eiginfjárgerninga og skulda sem stofnað er til eða teknar eru yfir á viðskiptadegi, auk kostnaðar sem rekja má beint til yfirtökunnar. Aðgreinanlegar eignir og skuldir og skuldbindingar sem eru yfirteknar við sameiningu fyrirtækja eru metnar í upphafi á gangvirði á yfirtökudegi, án tillits til hversu mikil hlutdeild minnihluta er. Sú fjárhæð kaupverðs sem er umfram gangvirði eignarhluta samstæðunnar í yfirteknum aðgreinanlegum hreinum eignum er skráð sem viðskiptavild.
Markmið samstæðuársreikningsskilanna er að birta einungis tekjur, gjöld, eignir og skuldir samstæðunnar út á við og er því viðskiptum innan hennar eytt út við gerð reikningsskilanna. Ef við á eru gerðar leiðréttingar á reikningsskilum dótturfélaga til að samræma þau við reikningsskilaaðferðir samstæðunnar.
Hlutdeildarfélög eru félög þar sem móðurfélagið er í aðstöðu til að hafa veruleg áhrif á stjórnun þeirra en hefur ekki yfirráð yfir. Veruleg áhrif eru til staðar þegar félagið tekur þátt í ákvörðunum um fjármál og rekstur hlutdeildarfélaga og er oft miðað við 20% til 50% eignarhlut og/eða áhrif á stjórnun félaganna sem teljast veruleg. Fjárfestingar í hlutdeildarfélögum eru færðar með hlutdeildaraðferð í reikningsskilin.
Fjárfestingar í dótturfélögum og hlutdeildarfélögum eru færðar með hlutdeildaraðferð við reikningsskil og eru færðar í upphafi á kostnaðarverði. Hlutur samstæðunnar í hagnaði eða tapi dóttur- og hlutdeildarfélaga eftir kaup er færður í rekstrarreikning og hlutur hennar í hreyfingum eiginfjárreikninga er færður á eigið fé. Móttekinn arður er færður til lækkunar á bókfærðu verði fjárfestingarinnar. Uppsafnaðar hreyfingar eftir yfirtöku eru leiðréttar gagnvart bókfærðri fjárhæð fjárfestingarinnar. Þegar hlutur samstæðunnar í tapi hlutdeildarfélagsins er jafnmikill eða meiri en hlutdeild hennar í hlutdeildarfélaginu, þ.m.t. allar aðrar ótryggðar viðskiptakröfur, færir samstæðan ekki frekara tap nema hún hafi stofnað til skuldbindinga, gengist í ábyrgð eða innt af hendi greiðslur fyrir hönd dóttur- og hlutdeildarfélagsins. Bókfært verð fjárfestinga í hlutdeildarfélögum er prófað með tilliti til virðisrýrnunar í samræmi við aðferðir sem lýst er í skýringu 2.11.
Rekstrarstarfsþáttur er aðgreinanlegur hluti samstæðunnar vegna ólíkra efnislegra eða landfræðilegra þátta varðandi áhættu og afkomu annarra rekstrarstarfsþátta samstæðunnar. Rekstrarstarfsþættir eru skilgreindir í samræmi við innri skýrslugjöf til framkvæmdastjóra sem notaðar eru í ákvarðanatöku. Samstæðan skilgreinir starfsemina í tvo rekstrarstarfsþætti. Frekari grein er gerð fyrir starfsþáttum samstæðunnar í skýringu 3.
Tekjur samanstanda af gangvirði vegna sölu á vörum og þjónustu, að frádregnum virðisaukaskatti og afslætti og eftir að innbyrðis sala innan samstæðunnar hefur verið felld niður.
Samstæðan framleiðir og selur úrval af sjávarafurðum, fyrst og fremst frystar-, saltfisks- og ferskar afurðir og mjöl og lýsi. Hluti afurða eru seldar í gegnum umboðssölufyrirtæki sem sér um samskipti, gefur út reikninga og sér um innheimtu hjá viðskiptavinum, en í slíkum tilvikum gefur samstæðan út reikninga á umboðssölufyrirtækið þegar sala hefur átt sér stað. Mjöl og lýsi er selt beint til viðskiptavina. Öll viðskipti eru með hefðbundnum greiðsluskilmálum og ábyrgðum í viðskiptum. Samstæðan selur einnig úrval af fóðri til fiskeldis til viðskiptavina innanlands.
Tekjur af sölu eru færðar þegar yfirráð yfir vörunum hefur verið flutt til kaupenda, sem er þegar vörurnar hafa verið afhentar. Afhending fer fram þegar kaupandi hefur tekið við vörunum samkvæmt flutningsskilmálum, áhættan á úreldingu og tapi hefur verið flutt til hans og annað hvort hefur kaupandi samþykkt vörurnar í samræmi við sölusamninginn, staðfestingarákvæði hafa liðið eða samstæðan hefur hlutlægar vísbendingar um að öll skilyrði fyrir viðurkenningu hafi verið fullnægt. Reikningar eru að jafnaði gefnir út þegar afhending hefur átt sér stað og eru á gjalddaga við útgáfu. Samstæðan færir ekki skuldbindingu vegna væntra vöruskila þar sem reynslan sýnir að fjárhæðir hafa verið óverulegar.
Vaxtatekjur eru færðar í rekstrarreikning með aðferð virkra vaxta vegna allra fjármálagerninga sem færðir eru á kostnaðarverði. Arðstekjur eru færðar þegar réttur til greiðslu er fastsettur. Gangvirðisbreytingar fjárfestinga og afleiða á gangvirði eru færðar í rekstrarreikning meðal fjármunatekna. Gangvirðisbreytingar af áhættuvarnargerningum eru færðar yfir aðra heildarafkomu.
Öll fjármagnsgjöld eru færð í rekstrarreikning á því tímabili sem þau falla til, að undanskildum fjármagnsgjöldum vegna fastafjármuna í smíðum. Fjármagnsgjöld sem falla til vegna þeirra er tilgreind sem hluti af bókfærðu verði eignarinnar.
Almennur og sérstakur lántökukostnaður sem er beintengdur kaupum eða byggingu eigna sem uppfylla skilyrði er eignfærður á þeim tíma sem það tekur að klára og koma eign í rekstrarhæft ástand. Til þessara eigna teljast eignir sem tekur nokkurn tíma að koma í rekstrarhæft ástand, eins og t.d. nýsmíði skipa.
Allar hreyfingar á verðbréfum og afleiðusamningum á gangvirði sem færðar eru í rekstrareikning eru taldar hér með. Annars vegar er það arður, vextir og verðbreytingar á hlutabréfum og skuldagerningum á gangvirði, og hins vegar eru það vextir, gengismunur og verðbreytingar á afleiðusamningum.
Starfrækslugjaldmiðill samstæðunnar er bandarískir dollarar (USD). Reikningsskil dótturfélaga eru bæði í íslenskum krónum (ISK) og evrum (EUR). Viðskipti í öðrum gjaldmiðlum en bandarískum dollurum eru færð á gildandi gengi þess dags sem viðskiptin fara fram. Fjáreignir og fjárskuldir í öðrum gjaldmiðlum en bandarískum dollurum (USD) eru færðar miðað við opinbert skráð árslokagengi. Gengismunur sem myndast er færður í rekstrarreikning, nema í þeim tilfellum þar sem hann er hluti af eignfærðum fjármagnskostnaði.
| Meðalgengi ársins | Árslokagengi | |||
|---|---|---|---|---|
| 2023 | 2022 | 31.12.2023 | 31.12.2022 | |
| Íslensk króna (ÍSK) | 0,0072 | 0,0074 | 0,0073 | 0,0070 |
| Evra (EUR) | 1,0809 | 1,0507 | 1,1050 | 1,0666 |
| Sterlingspund (GBP) | 1,2426 | 1,2321 | 1,2715 | 1,2025 |
| Dönsk króna (DKK) | 0,1451 | 0,1412 | 0,1483 | 0,1434 |
| Norsk króna (NOK) | 0,0947 | 0,1040 | 0,0983 | 0,1015 |
| Japanskt jen (JPY) | 0,0071 | 0,0076 | 0,0071 | 0,0076 |
Tekjuskattur er reiknaður og færður í samstæðuársreikninginn. Útreikningur hans byggir á afkomu fyrir skatta að teknu tilliti til varanlegs mismunar á skattalegri afkomu og afkomu samkvæmt samstæðuársreikningi. Tekjuskattshlutfall er 20%.
Tekjuskattur til greiðslu er tekjuskattur sem áætlað er að komi til greiðslu á næsta ári vegna skattskylds hagnaðar ársins auk leiðréttinga á tekjuskatti til greiðslu vegna fyrri ára.
Frestaður tekjuskattur af tímabundnum mismunum milli skattverðs eigna og skulda og bókfærðra fjárhæða þeirra í samstæðuársreikningsskilunum er færður að fullu til skuldar. Frestaður tekjuskattur er hins vegar ekki færður ef hann myndast vegna upphaflegrar færslu eignar eða skuldar í öðrum viðskiptum en sameiningu fyrirtækja sem hefur hvorki áhrif á reikningshaldslegan né skattskyldan hagnað eða tap. Frestaður tekjuskattur er ákvarðaður með því að nota skatthlutföll sem hafa verið lögleidd fyrir dagsetningu efnahagsreiknings eða fyrir liggur að verði lögleidd og vænst er að verði í gildi þegar tengd frestuð skattinneign er innleyst eða frestaða tekjuskattskuldbindingin er gerð upp.
Frestaðar skattinneignir eru færðar að því marki sem líklegt er að unnt verði að nýta tímabundinn mismun á móti skattalegum framtíðarhagnaði.
Óefnislegar eignir eru einungis eignfærðar þegar líklegt er að hagrænn ávinningur tengdur eigninni muni nýtast samstæðunni og hægt er að meta kostnaðarverð eignarinnar með áreiðanlegum hætti. Óefnislegar eignir samanstanda af keyptum fiskveiðiheimildum.
Keyptar fiskveiðiheimildir eru færðar til eignar á kostnaðarverði sem óefnislegar eignir með ótakmarkaðan nýtingartíma og eru gerð á þeim virðisrýrnunarpróf að minnsta kosti árlega.
Eignir eru skráðar sem rekstrarfjármunir þegar líklegt er að hagrænn ávinningur tengdur eigninni muni nýtast samstæðunni og hægt er að meta kostnað vegna eignarinnar með áreiðanlegum hætti. Um er að ræða varanlega rekstrarfjármuni sem eru tilgreindir á upphaflegu kostnaðarverði að frádregnum afskriftum. Kostnaðarverð varanlegra rekstrarfjármuna samanstendur af kaupverði og öllum beinum kostnaði við að koma eigninni í tekjuhæft ástand.
Viðbótarfjárfesting sem fellur til síðar er innifalin í bókfærðu verði eignarinnar eða færð sem sérgreind eign, eftir því sem við á. Það gerist þó einungis þegar líklegt er að efnahagslegur ávinningur, sem tengist fjárfestingunni, muni í framtíðinni renna til samstæðunnar og að unnt sé að meta kostnaðarverð með öruggum hætti. Viðgerðir og viðhald eru gjaldfærðar í rekstrarreikningi á því tímabili þegar stofnað er til þeirra.
Hagnaður eða tap vegna sölu eigna er mismunur söluverðs og bókfærðs verðs eigna á söludegi.
Lóðir eru ekki afskrifaðar. Afskriftir annarra eigna eru reiknaðar þannig að mismunur á kostnaðarverði þeirra og áætluðu hrakvirði er dreift línulega á áætlaðan nýtingartíma eignanna. Meiriháttar endurbætur eru afskrifaðar á líftíma viðkomandi eignar eða þeim tíma sem líður að næstu meiriháttar endurbótum, hvort sem skemur er.
Hrakvirði eigna og nýtingartími er endurskoðaður árlega og leiðréttur, ef við á.
Hagnaður eða tap vegna sölu eigna er mismunur söluverðs og bókfærðs verðs eigna á söludegi og er fært í rekstrarreikning.
Fastafjármunir eru flokkaðir sem haldið til sölu þegar bókfært verð þeirra á að vera endurheimt í gegnum sölu og salan er talin mjög líkleg. Fastafjármunir sem haldið er til sölu eru færðir á bókfærðu verði eða gangvirði að frádregnum sölukostnaði sé það lægra.
Fastafjármunir sem er haldið til sölu (þar á meðal þær sem eru hluti af aflagðri starfsemi) eru ekki afskrifaðir eða flokkaðir sem haldnir til sölu. Vextir og önnur gjöld sem rekja má til skulda aflagðrar starfsemi eru áfram færð.
Fastafjármunir sem er haldið til sölu og eignir aflagðrar starfsemi sem flokkaðar eru sem haldnar til sölu eru birtar aðskildar frá öðrum eignum í efnahagsreikningi. Skuldir aflagðrar starfsemi sem er flokkuð sem haldið til sölu eru settar fram aðskildar frá öðrum skuldum í efnahagsreikningi.
Á hverjum reikningsskiladegi er bókfært verð annarra eigna en fjáreigna yfirfarið með tilliti til vísbendinga um virðisrýrnun. Komi fram vísbending um virðisrýrnun er endurheimtanlegt virði eignarinnar metið í því skyni að hægt sé að ákvarða hversu víðtæk virðisrýrnun er.
Endurheimtanlegt virði er annað hvort hreint söluvirði eða nýtingarvirði eignar, hvort sem hærra er. Við mat á nýtingarvirði er notað vænt fjárstreymi sem fært hefur verið til núvirðis með vaxtaprósentu sem viðeigandi er við fjármögnun slíkrar eignar að teknu tilliti til skatta. Þegar ekki er hægt að meta endurheimtanlegt virði einstakra eigna þá metur samstæðan endurheimtanlegt virði þeirrar sjóðskapandi einingar sem eignin fellur undir.
Sé endurheimtanlegt virði eignar eða fjárskapandi einingar metið lægra en bókfært verð er bókfært verð eignarinnar lækkað í endurheimtanlegt virði. Tap vegna virðisrýrnunar er fært í rekstrarreikning.
Ef áður færð virðisrýrnun á ekki lengur við er bókfært verð eignarinnar hækkað aftur, þó ekki umfram upphaflegt kostnaðarverð. Virðisrýrnun viðskiptavildar er ekki heimilt að bakfæra.
Vörubirgðir og aðrar vörur í vinnslu eru metnar á kostnaðarverði/framleiðsluverði eða dagverði, hvort sem lægra reynist. Framleiðslukostnaður samanstendur af hráefniskostnaði, launakostnaði og óbeinum kostnaði vegna framleiðslunnar. Dagverð er áætlað söluverð í venjulegum viðskiptum að frádregnum áætluðum sölukostnaði. Birgðir af rekstrarvörum og veiðafærum eru færðar á áætluðu kostnaðarverði að teknu tilliti til niðurfærslu, ef við á.
Fjármálagerningar eru færðir í upphafi á gangvirði. Fjármálagerningar eru færðir á viðskiptadegi, en það er dagurinn sem samstæðan skuldbindur sig til að kaupa eða selja eignina. Fjáreignir eru afskráðar þegar réttindi til að fá sjóðstreymi af fjáreignunum eru útrunnin eða hafa verið yfirfærð og samstæðan hefur yfirfært að mestu alla áhættu og umbun eignarhalds.
Samstæðan flokkar fjáreignir sínar í eftirfarandi matsflokka:
Flokkunin byggist annars vegar á viðskiptalíkani samstæðunnar við stýringu á fjáreignum og hins vegar á samningsskilmálum sjóðstreymisins. Fjáreignir sem er haldið til að hagnast á skammtímaverðbreytingum eru færðar á gangvirði. Hlutabréf og afleiður eru færðar á gangvirði. Fjáreignir sem er haldið til innheimtu samningsbundins sjóðstreymis, þar sem sjóðstreymi er eingöngu greiðsla höfuðstóls og vaxta, eru metnar á afskrifuðu kostnaðarverði. Vaxtatekjur af þessum fjáreignum eru færðar með fjármagnstekjum með aðferð virkra vaxta.
Samstæðan afskráir fjáreignir aðeins þegar samningsbundinn réttur til framtíðarsjóðstreymis af fjáreigninni er ekki lengur til staðar eða þegar áhættan eða ávinningurinn af fjáreigninni flyst yfir á annað félag.
Fjárskuldir, þar á meðal skuldir við fjármálastofnanir, eru upphaflega metnar á gangvirði að frádregnum viðskiptakostnaði. Við síðara mat eru þær færðar á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við virka vexti. Samstæðan afskráir fjárskuldir eingöngu þegar skuldbinding vegna þeirra er ekki lengur til staðar.
Eignarhlutar í öðrum félögum en hlutdeildarfélögum og dótturfélögum eru metnir á gangvirði og er hagnaður og tap fært í rekstrarreikning.
Afleiðusamningar eru upphaflega færðir á gangvirði og endurmetnir til gangvirðis í lok hvers uppgjörstímabils. Gangvirðisbreytingar eru færðar í rekstrarreikning.
Viðskiptakröfur eru færðar á afskrifuðu kostnaðarverði, að teknu tilliti til gengismunar og niðurfærslu. Niðurfærslan er ekki endanleg afskrift heldur er myndaður mótreikningur til að mæta hugsanlegu tapi sem kann að myndast í framtíðinni.
Samstæðan metur vænt útlánatap tengt viðskiptakröfum sínum og öðrum eignum í skuldagerningum sem eru færðir á afskrifuðu kostnaðarverði. Aðferðafræðin við mat á virðisrýrnun sem beitt er fer eftir því hvort umtalsverð aukning hefur verið á útlánaáhættu. Að því er varðar viðskiptakröfur notar samstæðan þá einfölduðu nálgun sem IFRS 9 heimilar, þar sem krafist er að samstæðan meti niðurfærslu sem er jöfn væntu útlánatapi á líftíma viðskiptakrafnanna.
Færð er almenn virðisrýrnun og sértæk virðisrýrnun. Við mat á almennri virðisrýrnun er viðskiptakröfum samstæðunnar skipt niður eftir þeim fjölda daga sem þær eru komnar fram yfir gjalddaga. Við mat á föstu niðurfærsluhlutfalli fyrir hvern flokk er horft til tapssögu félagsins og leiðrétt fyrir framtíðarvæntingum um efnahagslega þróun ef þörf er á. Samstæðan metur einnig einstaka viðskiptavini eða hópa viðskiptavina sérstaklega ef þeir falla ekki undir ákveðinn flokk eða ef vísbendingar eru um aukna tapsáhættu.
Á hverjum uppgjörsdegi er farð yfir hvort til staðar sé hlutlæg vísbending um virðisrýrnun fjáreigna. Komi fram vísbending um virðisrýrnun er endurheimtanlegt virði eignarinnar metið í því skyni að hægt sé að ákvarða hversu víðtæk virðisrýrnun er. Vísbending um að virði fjáreignar hafi rýrnað í virði eru ýmsar hlutlægar vísbendingar um að einn eða fleiri atburðir sem geta haft áhrif á vænt framtíðarsjóðstreymi eignarinnar. Ef vænt sjóðstreymi fjáreignarinnar er lægra en bókfært verð hennar er færð sértæk virðisrýrnun á fjáreigninni.
Virðisrýrnun er færð á afskriftarreikning fjáreigna í efnahag og gjaldfærð í rekstrarreikning. Ef áður færð virðisrýrnun á ekki lengur við er bókfært verð eignarinnar hækkað aftur og bakfært úr rekstrarreikningi.
Handbært fé í efnahagsreikningi og sjóðstreymi samanstendur af sjóði, óbundnum bankainnstæðum, skammtímaverðbréfum til skemmri tíma en 3ja mánaða að frádregnum yfirdrætti á bankareikningum.
Langtíma- og skammtímaskuldir eru færðar á nafnverði að frádregnum greiddum afborgunum og eru eftirstöðvar nafnverðs reiknaðar upp miðað við gildandi gengi eða vísitölu í lok tímabilsins eftir því sem við á. Vextir, gengismunur og verðbætur færast í rekstarreikning með aðferð virkra vaxta. Lántökukostnaður er eignfærður við lántöku og gjaldfærður eftir lánstíma, með aðferð virkra vaxta.
Lántaka er flokkuð meðal skammtímaskulda nema samstæðan hafi óskilyrtan rétt til að fresta uppgjöri skuldarinnar í a.m.k. 12 mánuði eftir dagsetningu reikningsskila.
Viðskiptaskuldir eru færðar á nafnverði að teknu tilliti til gengismunar.
Skuldbindingar eru færðar upp í efnahagsreikningi ef líklegt þykir að samstæðan verði fyrir fjárhagslegum útgjöldum í framtíðinni vegna tiltekins atburðar eða viðskipta og hægt er að meta fjárhæð hennar með áreiðanlegum hætti.
Skuldbindingar vegna vöruábyrgða eru færðar á söludegi viðkomandi vara og metnar af stjórnendum m.t.t. áætlaðs fjárútstreymis sem ábyrgðirnar kunna að valda í framtíðinni.
Samstæðan er leigutaki. Samstæðan metur hvort nýir samningar feli í sér leigu samkvæmt skilgreiningu IFRS 16. Ef svo er, þá eru leigusamningar færðir til eignar og skuldar með því að afvaxta leigugreiðslur með innri vöxtum samningsins eða með vöxtum sem henni bjóðast. Leigueignir eru eftir það afskrifaðar á áætluðum líftíma leigunnar. Leigugreiðslum er skipt á milli afborgunar af leiguskuldum og vaxta, með aðferð virkra vaxta. Leiguréttindi eru eignfærð í efnahagsreikningi.
Samstæðan hefur innleitt alþjóðlega reikningsskilastaðla, eins og þeir eru samþykktir af Evrópusambandinu í lok árs 2023, breytingar á þeim og nýjar túlkanir. Innleiðing þessara breytinga hafa ekki veruleg áhrif á samstæðureikninginn. Eftirfarandi endurbætur tóku gildi þann 1. janúar 2023.
Nokkrir nýir alþjóðlegir reikningsskilastaðlar taka gildi 1. janúar 2024 eða síðar. Samstæðan hefur ekki innleitt nýja eða breytta reikningsskilastaðla fyrir gildistíma við gerð þessara reikningsskila. Það er mat stjórnenda að innleiðing þessara breytinga sem taka gildi síðar muni ekki hafa veruleg áhrif á samstæðuársreikninginn.
Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnskostnað og skatta.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta. Áhrif af rekstri hlutdeildarfélaga er ekki innifalin EBITDA.
EBITDA sem hlutfall af rekstrartekjum.
Eigið fé sem hlutfall af heildareignum.
Grunnhagnaður á hlut er miðaður við hagnað, sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu og vegins meðaltals virks hlutafjár á árinu og sýnir hver hagnaðurinn er á hverja krónu hlutafjár.
Þynntur hagnaður á hlut er hinn sami og grunnhagnaður á hlut þar sem félagið hefur ekki gert kaupréttarsamninga við starfsmenn og ekki tekið lán sem eru breytanleg í hlutafé.
Vegið meðaltal reiknaðra vaxta af lánsfé og eigin fé.
Rekstrarstarfsþættir eru skilgreindir í samræmi við eðli rekstrar og innri skýrslugjöf samstæðunnar. Samstæðan skilgreinir hjá sér tvo starfsþætti, Útgerð og Landvinnslu . Aðrir starfsþættir falla undir liðinn Annað .
| Útgerð | Landvinnsla | Annað | Eigin afli | Jöfnunar færslur |
Samtals | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 2022 Seldar vörur Hagnaður af |
132.797.012 | 243.317.929 | 27.541.206 | (72.121.123) | (21.436.961) | 310.098.063 |
| sölu eigna | 0 | 0 | 15.237 | 0 | 0 | 15.237 |
| Kostnaðarverð seldra vara Laun, aflahlutir og |
47.958.083 | 152.525.453 | 25.087.434 | (72.121.123) | (21.434.319) | 132.015.528 |
| annar starfsm.kostn. Annar rekstrarkostn. |
43.332.678 1.606.693 |
17.162.724 2.819.888 |
4.333.787 4.210.326 |
0 0 |
0 (2.642) |
64.829.189 8.634.264 |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir |
39.899.557 | 70.809.865 | (6.075.103) | 0 | (0) | 104.634.319 |
| Afskriftir fastafjármuna Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) Áhrif af rekstri hlutdeildarfélaga Tekjuskattur Hagnaður af áframhaldandi starfsemi Söluhagnaður fastafjármuna |
(9.164.663) | (4.745.868) | (323.665) | 0 | 0 | (14.234.197) (310.641) 1.093.296 (17.814.264) 73.368.513 |
| sem haldið er til sölu Hagnaður ársins |
2.238.874 | 2.238.874 75.607.387 |
||||
| Fjárfestingar | (89.201) | (30.103.772) | (5.664) | 0 | 0 | (30.198.637) |
| Rekstrarfjármunir Óefnislegar eignir, óskiptar Aðrar eignir, óskiptar Skuldir, óskiptar |
134.488.584 | 94.607.890 | 8.348.209 | 0 | 0 | 237.444.683 494.110.123 328.219.806 (474.515.640) |
| Jöfnunar | ||||||
| 2023 | Útgerð | Landvinnsla | Annað | Eigin afli | færslur | Samtals |
| Seldar vörur Hagnaður af |
178.067.642 | 323.791.624 | 41.419.410 | (124.848.023) | (14.506.256) | 403.924.398 |
| af sölu eigna | 664.689 | 78.688 | 33.131 | 0 | 0 | 776.508 |
| Kostnaðarverð seldra vara Laun, aflahlutir og |
58.029.511 | 217.776.998 | 36.414.657 | (124.848.023) | (14.506.256) | 172.866.888 |
| annar starfsm.kostn. Annar rekstrarkostn. |
62.855.901 1.952.385 |
30.963.609 2.397.061 |
6.924.712 4.981.018 |
0 0 |
0 0 |
100.744.223 9.330.463 |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir |
55.894.534 | 72.732.644 | (6.867.845) | 0 | 0 | 121.759.332 |
| Afskriftir fastafjármuna Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) Áhrif af rekstri hlutdeildarfélaga Tekjuskattur Hagnaður ársins |
(11.528.840) | (9.184.724) | (519.806) | 0 | 0 | (21.233.370) (5.929.164) (2.391.187) (18.769.829) 73.435.782 |
| Fjárfestingar | (212.941) | (19.201.317) | (2.677.122) | 0 | 0 | (22.091.380) |
| Rekstrarfjármunir Óefnislegar eignir, óskiptar Aðrar eignir, óskiptar Skuldir, óskiptar |
125.114.147 | 111.426.983 | 6.119.823 | 0 | 0 | 242.660.952 502.329.577 353.898.169 (454.414.624) |
1) Útgerð. Til tekna hjá útgerð teljast fyrst og fremst aflatekjur en kostnaður útgerðar felst aðallega í rekstri fiskiskipa að meðtöldum veiðarfærum, aflahlutum sjómanna og launatengdum gjöldum og veiðigjöldum.
2) Landvinnsla. Til tekna hjá landvinnslu teljast fyrst og fremst seldar afurðir en til kostnaðar eigin afli sem landað er úr skipum samstæðunnar ásamt öðru keyptu hráefni til landvinnslunnar svo og laun og launatengd gjöld og kostnaður við rekstur og viðhald framleiðslutækja.
3) Aðrir starfsþættir. Önnur starfsemi félaga innan samstæðunnar, sem ekki er sérstaklega skilgreind sem útgerð eða landvinnsla fellur undir liðinn annað. Meðtalið í þessum lið er starfsemi Fóðurverksmiðjunnar Laxár ehf., Pytheas, Vísir Gmbh ásamt stjórnunarog rekstrarkostnaði sem ekki er heimfærður á áðurgreinda starfsþætti.
Á meðal kostnaðarverðs seldra vara er gjaldfært veiðigjald sem samstæðan greiðir skv. lögum nr. 74/2012. Á árinu 2023 nam veiðigjaldið 10.292 þús. USD (2022: 4.963 þús. USD).
Samstæðan selur afurðir sínar að mestum hluta til vestur- og austur Evrópu. Tilteknar afurðir eru seldar til Asíu og Ameríku, en óverulegur hluti fer til annarra heimssvæða. Meirihluti allra tekna útgerðar sem ekki fer í eigin vinnslu er í Vestur-Evrópu. Það sama á við um aðrar tekjur. Landssvæðaskipting greinist þannig árin 2023 og 2022.
| Vestur- Evrópa |
Austur Evrópa |
Asía | Ameríka | Samtals | |
|---|---|---|---|---|---|
| 2022 | |||||
| Seldar vörur | 247.416.587 | 32.914.744 | 23.216.209 | 6.550.523 | 310.098.063 |
| 2023 | |||||
| Seldar vörur | 325.740.525 | 45.381.355 | 22.565.075 | 10.237.444 | 403.924.398 |
| 5. Laun, aflahlutir og annar starfsmannakostnaður |
|||||
| Laun og annar starfsmannakostnaður greinist þannig: | 2023 | 2022 | |||
| Laun | 81.070.621 | 51.833.473 | |||
| Endurgreiðslur frá Vinnumálastofnun til Vísis í Grindavík | (1.294.052) | 0 | |||
| Lífeyrissjóðsgjöld | 9.161.840 | 5.573.804 | |||
| Önnur launatengd gjöld | 7.622.155 | 5.270.306 | |||
| Annar starfsmannakostnaður | 4.183.659 | 2.151.606 | |||
| 100.744.223 | 64.829.189 | ||||
| Stöðugildi að meðaltali | 723 | 390 |
Samstæðan er skuldbundin til að greiða lögbundin og samningsbundin iðgjöld með framlagi í almenna lífeyrissjóði og séreignarsjóði. Samstæðan hefur engar frekari greiðsluskyldur umfram þessi framlög. Samstæðan færir þessi iðgjöld meðal launatengdra gjalda þegar þau falla til. Starfskjör til skamms tíma fela í sér laun, bónus, hlunnindi og launaðar fjarvistir. Starfskjör til skamms tíma eru gjaldfærð af samstæðunni eftir því sem hin tengda þjónusta er veitt. Samstæðan hefur ekki skilgreint eftirlaunakerfi né virkt kaupaukakerfi.
Sjá umfjöllun í skýringu 23 um laun og þóknanir til stjórnar og lykilstjórnenda.
Annar rekstrarkostnaður greinist þannig: 2023 2022
| Sérfræðiþjónusta | 3.195.267 | 3.094.883 |
|---|---|---|
| Rekstur tölvukerfis | 1.324.206 | 662.388 |
| Ferðakostnaður, félagsgjöld, risna o.fl. | 2.198.650 | 1.747.801 |
| Skrifstofukostnaður | 492.510 | 345.412 |
| Breyting niðurfærslu viðskiptakrafna | (399.764) | 1.315.878 |
| Ýmis annar kostnaður | 2.519.594 | 1.467.901 |
| 9.330.463 | 8.634.264 | |
| Þóknun til endurskoðenda er færð meðal annars rekstrarkostnaðar og sundurliðast þannig: Endurskoðun samstæðuársreiknings og ársreikninga dótturfélaga: |
2023 | 2022 |
| Endurskoðun og staðfestingarvinna | 570.481 | 422.675 |
| Önnur þjónusta | 74.415 | 49.251 |
| 644.896 | 471.926 | |
Af framangreindri þóknun til annarra endurskoðenda en endurskoðenda móðurfélagsins er 193.769 USD á árinu 2023 (34.388 USD á árinu 2022). Sú þóknun er vegna endurskoðunar á Vísi ehf. og sundurliðast í endurskoðun og staðfestingarvinnu 149.702 USD og aðra þjónusta 44.066 USD samtals 193.769 USD. Samanburðarfjárhæðir eru einn mánuður á árinu 2022.
Hreinar fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) greinast þannig:
| Skammtíma- eign / skuld |
Langtíma- eign / skuld |
Samtals 2023 |
Samtals 2022 |
||
|---|---|---|---|---|---|
| Aðrir liðir | |||||
| Vaxtatekjur og verðbætur | 4.561.911 | 0 | 549.954 | 5.111.865 | 1.342.794 |
| Vaxtagjöld og verðbætur | (649.840) | (19.410.617) | (436.999) | (20.497.455) | (7.269.596) |
| Gengismunur | 4.609.576 | 1.020.761 | 908.351 | 6.538.688 | (865.522) |
| Tekjur af verðbréfum | |||||
| og afleiðusamningum | 0 | 0 | 2.917.738 | 2.917.738 | 6.481.683 |
| 8.521.647 | (18.389.856) | 3.939.045 | (5.929.164) | (310.641) |
Tekjur (gjöld) af verðbréfum og afleiðusamningum greinast þannig:
| Arður af hlutabréfum | 33.927 | 1.429 |
|---|---|---|
| Hagnaður (tap) af gjaldmiðlaskiptasamningum | 1.020.564 | (469.177) |
| Hagnaður af vaxtaskiptasamningum | 1.448.392 | 6.652.716 |
| Verðbreytingar verðbréfa | 414.855 | 296.715 |
| 2.917.738 | 6.481.683 |
svo sé ekki.
| Óefnislegar eignir eru fólgnar í fiskveiðiheimildum og greinist bókfært verð þeirra þannig: | Fiskveiði heimildir |
|---|---|
| Árslok 2022: | |
| Bókfært verð í ársbyrjun | 271.349.923 |
| Viðbót vegna nýs félags í samstæðu | 218.645.473 |
| Áhrif gengisbreytinga | 4.114.727 |
| Bókfært verð í árslok | 494.110.123 |
| Bókfært verð í árslok 2022 greinist þannig: | |
| Kostnaðarverð | 537.815.404 |
| Afskrifað samtals | (43.705.281) |
| Bókfært verð í árslok | 494.110.123 |
| Árslok 2023: | |
| Bókfært verð í ársbyrjun | 494.110.123 |
| Sala ársins | (687.156) |
| Áhrif gengisbreytinga | 8.906.610 |
| Bókfært verð í árslok | 502.329.577 |
| Bókfært verð í árslok 2023 greinist þannig: | |
| Kostnaðarverð | 545.722.812 |
Við mat á endurheimtanlegri fjárhæð fiskveiðiheimilda var stuðst við eftirfarandi forsendur:
og er því engin virðisrýrnun vegna fiskveiðiheimilda færð í ársreikningnum.
| Bolfisktegundir | Uppsjávartegundir | |||
|---|---|---|---|---|
| 2023 | 2022 | 2023 | 2022 | |
| Nafnvöxtur tekna 2022/2023 2021/2022 Veginn meðalvöxtur (-lækkun) |
162,00% | 26,90% | 9,60% | 32,60% |
| tekna 2024 til 2028 2023 til 2027 | 0,44% | (0,12%) | 3,63% | (3,66%) |
| Framtíðarvöxtur að teknu tilliti til verðlagsþróunar | 2,50% | 2,50% | 2,50% | 2,50% |
| Ávöxtunarkrafa (WACC) | 8,07% | 7,73% | 8,07% | 7,73% |
Bókfært verð fiskveiðiheimilda samstæðunnar hefur verið metið gagnvart endurheimtanlegu virði eignanna, byggt á fyrirliggjandi upplýsingum um hreint söluvirði. Jafnframt hefur verið framkvæmt virðisrýrnunarpróf á eignunum miðað við bókfærða stöðu þeirra í árslok 2023. Í prófinu eru endurheimtanlegar fjárhæðir metnar út frá forsendum um áætlað framtíðar fjárstreymi og fjárhæðir færðar til núvirðis með viðeigandi ávöxtunarkröfu. Niðurstaða virðisrýrnunarprófsins er að engar vísbendingar hafa komið fram um virðisrýrnun
Bókfært verð í árslok .................................................................................................................................................... Afskrifað samtals ..........................................................................................................................................................
Samstæðan hefur yfirfarið hvort áhrif af stríðsátökum í Úkraínu á markaði og sjóðstreymi geti leitt til virðisrýrnunar. Niðurstaðan er að
Ástæða fyrir miklum nafnvexti á árinu 2023 er fyrst og fremst vegna tilkomu Vísis ehf. í samstæðunni.
(43.393.235) 502.329.577
| Aflaheimildir samstæðunnar greinast þannig: | Hlutdeild í úthlutun |
Úthlutaðar og fluttar heimildir, tonn |
Óveidd tonn |
Óveidd tonn |
|---|---|---|---|---|
| Tegund: | 2023/2024 | 2023/2024 | 31.12.2023 | 31.12.2022 |
| Bolfiskur: | ||||
| Þorskur | 9,40% | 15.532 | 8.787 | 8.677 |
| Ýsa | 14,85% | 8.812 | 5.257 | 4.437 |
| Ufsi | 8,98% | 6.016 | 5.299 | 5.635 |
| Karfi/gullkarfi | 7,95% | 2.891 | 2.029 | 1.574 |
| Grálúða | 7,02% | 1.053 | 814 | 983 |
| Annar bolfiskur | 5.110 | 4.108 | 4.108 | |
| Þorskur í Barentshafi (RU og NL) | 4,41% | 144 | 144 | 181 |
| Krókaflamark | 2.065 | 1.427 | 1.357 | |
| 41.623 | 27.865 | 26.952 | ||
| Uppsjávarfiskur: | ||||
| Loðna | 18,49% | 0 | 0 | 55.358 |
| Síld | 16,63% | 14.293 | 682 | (336) |
| Kolmunni (deilistofn, áætlun) | 29,92% | 87.076 | 87.076 | 75.946 |
| Norsk íslensk síld (deilistofn, áætlun) | 21,37% | 13.224 | 13.224 | 19.999 |
| Makríll (deilistofn, áætlun) | 12,63% | 16.628 | 16.628 | 17.828 |
| 131.221 | 117.610 | 168.795 | ||
| Samtals aflaheimildir í þorskígildum (tonn) | 49.415 | 34.793 | 25.211 |
Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. laga um stjórn fiskveiða nr. 116/2006 skal ráðherra að fengnum tillögum Hafrannsóknarstofnunar ákveða með reglugerð þann heildarafla sem veiða má á ákveðnu tímabili úr nytjastofnum við Ísland sem nauðsynlegt er talið að takmarka veiðar á.
Fiskveiðiárið er frá 1. september til 31. ágúst ár hvert, innan þess er úthlutun og nýting á aflaheimildum innan íslenskrar lögsögu. Heildarafli í einstaka tegundum er ákveðinn fyrir 1. ágúst ár hvert og úthlutað aflamarki á skip 1. september. Ef upp koma nýjar upplýsingar um stofna er ráðherra heimilt innan fiskveiðiársins að auka eða minnka leyfðan heildarafla einstakra tegunda.
Undanfarin ár hefur hluta af kvóta í íslenskri síld verið úthlutað fyrir 1. september. Loðnu er úthlutað á grundvelli niðurstöðu úr haustog vetrarleiðöngrum, en loðnuvertíðin stendur frá janúar fram í mars. Ekki er útlit fyrir úthlutun á loðnu á yfirstandandi fiskveiðiári. Úthlutun á makríl 2024 liggur ekki fyrir en búið er að áætla úthlutun í töflunni hér að framan.
Norðuríshafsþorsk í rússneskri og norskri lögsögu er úthlutað á grundvelli samnings milli Íslands, Rússlands og Noregs frá 15. maí 1999 um tiltekna þætti í samstarfi á sviði sjávarútvegs ásamt tvíhliða bókunum við samninginn við hann frá sama degi milli Íslands og Noregs annars vegar og Íslands og Rússlands hins vegar.
Deilistofnar strandríkja í Norður-Atlantshafi eru norsk íslensk síld, kolmunni og makríll og er þessum deilistofnum úthlutað fyrri hluta hvers árs. Nær veiðitímabil þeirra frá 1. janúar til 31. desember. Óvissa er með þessa stofna sökum þess að strandríkin hafa ekki komið sér saman um skiptingu. Ráðherra ákveður hlutdeild Íslands í þessum stofnum að teknu tilliti til veiðireynslu. Úthlutun getur dregist fram á árið en ráðherra hefur úthlutað með góðum fyrirvara áður en veiði úr viðkomandi stofnum hefst.
Aflaheimildir eru miðaðar við þorskígildi sem Sjávarútvegsráðuneytið reiknar og gefur út fyrir 15. júlí ár hvert á grundvelli 19. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða.
Rekstrarfjármunir felast í varanlegum rekstrarfjármunum og fjárfestinga í smíðum. Leiguréttindi eru jafnframt flokkuð meðal rekstrarfjármuna. Varanlegir rekstrarfjármunir sundurliðast þannig:
| Fasteignir | Skip og | Verksmiðju | ||
|---|---|---|---|---|
| og lóðir | fylgihlutir | vélar og tæki | Samtals | |
| Árslok 2022: | ||||
| Bókfært verð í ársbyrjun | 22.428.099 | 122.772.113 | 18.060.872 | 163.261.084 |
| Kaup á dótturfélagi | 11.012.283 | 20.686.482 | 5.957.084 | 37.655.849 |
| Viðbót ársins | 1.934.366 | 514.721 | 2.486.030 | 4.935.117 |
| Bókfært verð seldra eigna | 0 | 0 | (93.044) | (93.044) |
| Flutt af fastafjármunum í smíðum | 8.359.751 | 0 | 20.354.677 | 28.714.428 |
| Áhrif gengisbreytinga | 210.269 | (1.374.777) | 80.446 | (1.084.062) |
| Afskriftir | (1.544.110) | (9.011.895) | (3.598.041) | (14.154.046) |
| Bókfært verð í árslok | 42.400.658 | 133.586.644 | 43.248.024 | 219.235.327 |
| Bókfært verð í árslok 2022 greinist þannig: | ||||
| Kostnaðarverð | 87.500.889 | 194.532.343 | 129.194.779 | 411.228.011 |
| Afskrifað samtals | (45.100.231) | (60.945.699) | (85.946.755) | (191.992.685) |
| Bókfært verð í árslok | 42.400.658 | 133.586.644 | 43.248.024 | 219.235.327 |
| Árslok 2023: | ||||
| Bókfært verð í ársbyrjun | 42.400.658 | 133.586.644 | 43.248.024 | 219.235.327 |
| Viðbót tímabilsins | 2.816.183 | 134.898 | 4.371.496 | 7.322.577 |
| Bókfært verð seldra eigna | (903.532) | 0 | (54.694) | (958.226) |
| Flutt af fastafjármunum í smíðum | 7.770.606 | 0 | 21.080.695 | 28.851.301 |
| Flutt af fastafjármunum til sölu | 1.534.732 | 0 | 0 | 1.534.732 |
| Áhrif gengisbreytinga | 522.033 | 1.552.461 | 297.574 | 2.372.068 |
| Afskriftir | (3.731.585) | (11.307.362) | (5.926.707) | (20.965.654) |
| Bókfært verð í árslok | 50.409.095 | 123.966.641 | 63.016.388 | 237.392.125 |
| Fasteignir | Skip og | Verksmiðju | ||
| og lóðir | fylgihlutir | vélar og tæki | Samtals | |
| Bókfært verð í árslok 2023 greinist þannig: | ||||
| Kostnaðarverð | 99.485.788 | 196.864.508 | 155.487.624 | 451.837.920 |
| Afskrifað samtals | (49.076.693) | (72.897.867) | (92.471.236) | (214.445.796) |
| Bókfært verð í árslok | 50.409.095 | 123.966.641 | 63.016.388 | 237.392.125 |
| Afskriftahlutfall á ári | 0-6% | 4-10% | 6-20% | |
| Afskriftir greinast þannig: | 2023 | 2022 | ||
| Afskriftir varanlegra rekstrarfjármuna | 20.965.654 | 14.154.046 | ||
| Afskriftir leiguréttinda og geymsluhólfa | 267.716 | 80.151 | ||
| 21.233.370 | 14.234.197 |
Á árinu 2021 hófust framkvæmdir við stækkun fiskimjölsverksmiðju og löndunarhúss Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Löndunarhúsið var stækkað um 300 fermetra og í því var komið fyrir búnaði sem mun tvöfalda afköstin við vinnslu á loðnuhrognum. Hrognavinnslan hefur verið tekin í notkun og var fjárfesting vegna hennar flutt á varanlega rekstrarfjármuni á árinu 2022, alls 5,7 milljónir USD. Stækkun fiskimjölsverksmiðjunnar var hins vegar skipt í tvo áfanga. Í fyrri áfanganum var reist 2000 fermetra verksmiðjuhús og komið upp lítilli verksmiðjueiningu sem á að geta afkastað 380 tonnum á sólarhring. Litlu verksmiðjueiningunni er fyrst og fremst ætlað að vinna afskurð frá fiskiðjuveri félagsins auk þess sem hún mun nýtast við þróunarverkefni og spara töluverða orku. Litla verksmiðjan var tekin notkun í október 2022. Kostnaður vegna hennar var samtals 21 milljónir USD. Í síðari áfanganum var komið upp búnaði sem eykur afkastagetu verksmiðjunnar úr 1.800 tonnum á sólarhring í 2.380 tonn. Kostnaður við þá framkvæmd var um 27,4 milljónir USD og voru verklok vegna þessarar framkvæmdar í lok ársins 2023. Heildarkostnaður vegna annarra smærri verkefna sem enn eru í smíðum í lok árs nemur samtals 2,7 milljónir USD en að auki hafa 1,5 milljónir USD verið fluttar á meðal varanlegra rekstrarfjármuna.
Greiðslur og kostnaður vegna nýsmíða eru sem hér greinir:
| Breytingar á kostnaði vegna fastafjármuna í smíðum | 2023 | 2022 |
|---|---|---|
| Heildarverð í ársbyrjun | 15.406.322 | 19.037.704 |
| Fjárfesting tímabilsins | 16.120.648 | 25.263.520 |
| Flutt á varanlega rekstrarfjármuni | (28.851.301) | (28.714.428) |
| Áhrif gengisbreytinga | 0 | (180.474) |
| Heildarverð í árslok | 2.675.669 | 15.406.322 |
Félög innan samstæðunnar hafa gert langtímaleigusamninga um leigu á nótahólfum. Samingarnir eru til 25 ára en leigutaki hefur rétt til ótímabundinnar framlengingar á leigu að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Umsamin leigufjárhæð var öll greidd á árinu 2019 og færð sem langtímakrafa. Á árinu 2022 voru tvö nótahólf tekin til viðbótar á leigu og umsamin leigufjárhæð öll greidd í byrjun árs 2022. Leiguréttindin eru afskrifuð á 25 árum. Þróun leigueignar greinist þannig á árinu:
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Leiguréttindi í upphafi árs | 2.803.034 | 1.089.809 |
| Viðbót vegna nýs félags í samstæðu | 0 | 1.580.754 |
| Viðbót | 0 | 168.563 |
| Afskrift leiguréttinda og geymsluhólfa | (267.716) | (80.151) |
| Áhrif gengisbreytinga | 57.840 | 44.059 |
| 2.593.158 | 2.803.034 |
Fasteignamat og vátryggingamat eigna í árslok greinist þannig:
| Fasteigna- mat, hús |
Fasteigna- mat, lóð |
Vátrygginga- mat |
Bókfært verð |
|
|---|---|---|---|---|
| Fasteignir og lóðir | 48.106.498 | 7.061.982 | 246.095.773 | 50.409.095 |
| Skip og fylgihlutir | 0 | 0 | 246.348.847 | 123.966.641 |
| Vélar og tæki, eignatryggingar | 0 | 0 | 424.845.412 | 63.016.388 |
| 48.106.498 | 7.061.982 | 917.290.032 | 237.392.125 |
| Eignarhlut- | Hlutdeild í | Bókfært verð | |
|---|---|---|---|
| Eignarhlutar í hlutdeildarfélögum greinast þannig: | deild í % | afkomu | í lok árs |
| Atlantic Coast Fisheries Corp., Bandaríkjunum | 100,00% | 44.673 | 3.808.812 |
| Haustak ehf., Grindavík | 50,00% | 30.788 | 1.141.121 |
| Cabo Norte 2014 S.A | 50,00% | (334.977) | 5.929.043 |
| SR-Vélaverkstæði hf., Siglufirði | 37,30% | 73.277 | 589.684 |
| Arctic Fish Holding A.S., Noregi | 34,20% | (4.759.760) | 116.846.072 |
| Polar Pelagic A.S., Grænlandi | 33,00% | 2.406.691 | 10.839.463 |
| Marine Collagen ehf., Grindavík | 25,00% | (230.042) | 539.330 |
| G. Skúlason vélaverkstæði hf., Neskaupstað | 24,95% | 198.232 | 574.613 |
| Rauðaþing ehf., Neskaupstaður | 24,95% | 169.822 | 494.818 |
| Miðhús ehf., Neskaupstað | 46,70% | 10.109 | 653.372 |
| (2.391.187) | 141.416.328 |
| Breyting á eignarhlutum í hlutdeildarfélögum greinast á eftirfarandi hátt: | 2023 | 2022 |
|---|---|---|
| Hlutdeild 1/1 | 139.191.201 | 14.811.947 |
| Hrein hlutdeild í afkomu | (2.391.187) | 1.093.296 |
| Móttekinn arður | (224.180) | (150.419) |
| Viðbót vegna nýs dótturfélags í samstæðu | 0 | 7.996.462 |
| Kaup á hlutdeildarfélagi | 0 | 114.999.222 |
| Breyting á virkri eignarhlutdeild og aðrar breytingar | (63.226) | (141.950) |
| Bakfært áður afskrifað yfirverð | 816.382 | 0 |
| Hagnaður af sölu hlutdeildarfélags | 0 | (249.359) |
| Áhrif gengisbreytinga | 4.087.338 | 832.002 |
| 141.416.328 | 139.191.201 |
Síldarvinnslan hf. á 34,2% eignarhlut í Arctic Fish Holding AS sem skráð er á Euronext markaðinn í Noregi. Eftirfarandi upplýsingar eru úr ársreikningi Arctic Fish Holding AS 2023 (fjárhæðir í USD). Síldarvinnslan eignaðist hlutinn á miðju ári 2022.
| 31.12.2023 | 31.12.2022 | |
|---|---|---|
| Fastafjármunir | 153.064.688 | 112.708.489 |
| Veltufjármunir | 96.255.910 | 96.891.474 |
| Langtímaskuldir | (140.111.964) | (71.737.026) |
| Skammtímaskuldir | (14.467.669) | (32.901.447) |
| Eigið fé (100%) | 94.740.965 | 104.961.490 |
| Tekjur ársins 2023 (100%) | 96.090.346 | 60.938.262 |
| (Tap) hagnaður ársins 2023 (100%) | (13.917.427) | 6.147.342 |
| Hagnaður júlí til desember 2022 (100%) | 3.357.403 | |
| Hlutdeild í heildarhagnaði júlí til desember 2022 (34,2%) | 1.148.232 | |
| Hlutdeild í tapi ársins 2023 (34,2%) | (4.759.760) | |
| Hlutdeild í lok árs (34,2%) | 32.401.410 | 35.896.830 |
| Viðskiptavild við kaup | 80.246.389 | 80.645.906 |
| Þýðingarmunur | 4.198.273 | 864.823 |
| Eignarhluti í árslok (34,2%) | 116.846.072 | 117.407.559 |
Í lok ársins nam skráð markaðsvirði bréfa Síldarvinnslunnar í Arctic Fish Holding AS USD 68.039.117 (NOK 692.129.934).
Í lok reikningsársins framkvæmdi Arctic Fish Holding AS virðisrýrnunarpróf. Lögð voru fram tvenns konar möt sem sýna að viðskiptavildin stendur undir bókfærðu verði, bæði sjóðsstreymismat og verðmat byggt á verðmæti leyfa. Meta stjórnendur Síldarvinnslunar hf. ekki þörf á að færa virðisrýrnun vegna viðskiptavildar sem innifalin er í verðmæti eignarhlutans. Sé einhver slík vísbending til staðar er endurheimtanleg fjárhæð eignarinnar metin. Virðisrýrnunarpróf eru gerð að minnsta kosti árlega á viðskiptavild. Engin virðisrýrnun er gjaldfærð á árinu 2023.
Allur eignarhluti samstæðunnar í hlutdeildarfélaginu Hafnarbraut 2 ehf. var seldur í byrjun árs 2022. Söluverðið nam um 42,2 milljónum króna (USD 326,4 þús.).
Starfsemi Atlantic Coast Fisheries Corp. felst í 25% eignarhaldi á F/V Holdings LLC sem er útgerðarfélag í Bandaríkjunum. Af þeim sökum er eignahluturinn færður sem hlutdeildarfélag.
| Eignarhlutir í öðrum félögum greinast á eftirfarandi hátt: | 31.12.2023 | 31.12.2022 |
|---|---|---|
| Hampiðjan hf. | 1.864.716 | 1.566.051 |
| VOOT Beita ehf. | 316.216 | 305.229 |
| Fiskmarkaður Austurlands ehf. | 118.943 | 118.943 |
| ÍS-TRAVEL AUSTURLAND ehf. Lifrarsamlag Vestmannaeyja ehf. |
65.176 143.703 |
110.954 137.795 |
| Önnur félög, ósundurliðað | 267.458 | 170.147 |
| 2.816.428 | 2.449.335 | |
| Í skýringu 24 er gerð frekari grein fyrir gangvirðismati eignanna. | ||
| 12. Skuldabréfaeign |
||
| Skuldabréfaeign samstæðunnar greinist þannig: | 31.12.2023 | 31.12.2022 |
| Skuldabréfaeign til lengri tíma en 12 mánaða: | ||
| Staða í ársbyrjun | 74.945 | 86.475 |
| Niðurfærsla | (12.024) | (11.530) |
| Gengismunur | 3.213 | 0 |
| Staða í árslok | 66.134 | 74.945 |
| 13. Birgðir |
||
| Birgðir greinast þannig: | 31.12.2023 | 31.12.2022 |
| Hráefni | 3.766.778 | 6.901.420 |
| Fullunnar afurðabirgðir | 69.125.675 | 40.530.885 |
| Rekstrarvörur | 4.418.574 | 3.535.156 |
Fullunnar afurðabirgðir voru að kostnaðarverði 69,1 milljónir dollara þann 31.12.2023 samanborið við 40,5 milljónir dollara þann 31.12.2022. Að mati stjórnenda mun skilaverð fullunninna afurðabirgða í lok tímabils nema allt að 87,6 milljónum dollara í samanburði við 54,7 milljónir dollara í lok árs 2022.
Veiðarfæri ........................................................................................................................................
Birgðir samstæðunnar á reikningsskiladegi eru metnar á kostnaðarverði/framleiðsluverði í lok árs 2023 og byggir m.a. á útreikningum um framlegð og öðrum viðeigandi forsendum.
8.870.550 7.970.383 86.181.577 58.937.844
| Viðskiptakröfur greinast þannig: | 31.12.2023 | 31.12.2022 |
|---|---|---|
| Almennar viðskiptakröfur Viðskiptakröfur á tengd félög Niðurfærsla vegna krafna sem kunna að tapast |
10.210.004 25.565.820 (422.383) |
20.819.990 18.985.680 (809.847) |
| 35.353.442 | 38.995.823 |
Kröfur á tengda aðila eru tilgreindar með viðskiptakröfum í efnahagsreikningi en kröfurnar eru allar tilkomnar vegna reglubundinna viðskipta. Á meðal krafna á tengda aðila er krafa á sölufyrirtækið Ice Fresh Seafood ehf. Á bak við kröfuna eru fjölmargar kröfur sölufyrirtækisins á aðila í ýmsum löndum. Samkvæmt samningi milli Síldarvinnslunnar og sölufyrirtækisins ber Síldarvinnslan útlánaáhættuna verði greiðslufall hjá endanlegum skuldara að kröfunni.
Viðskiptakröfur eru færðar niður til að mæta almennri áhættu sem fylgir kröfueign félagsins. Hér er ekki um endanlega afskrift að ræða heldur er myndaður niðurfærslureikningur, sem mæta á þeim kröfum sem kunna að tapast og er hann dreginn frá eignfærðum viðskiptakröfum í efnahagsreikningi.
| Breytingar á niðurfærslu viðskiptakrafna greinist þannig: | 31.12.2023 | 31.12.2022 |
|---|---|---|
| Staða í ársbyrjun | (809.847) | (2.646.583) |
| Viðbót vegna nýs dótturfélags í samstæðu | 0 | (134.917) |
| Breyting á niðurfærslu | 399.764 | (1.315.878) |
| Tapaðar viðskiptakröfur á árinu | 1.040 | 3.270.000 |
| Áhrif gengisbreytinga | (13.340) | 17.532 |
| Staða í lok tímabils | (422.383) | (809.847) |
Samstæðan fylgir fyrirmælum alþjóðlegs reikningsskilastaðals IFRS 9 um niðurfærslu viðskiptakrafna. Viðskiptakröfur eru færðar niður með einfaldri aðferð og byggir matið á sögulegum gögnum um tapsreynslu ásamt því að horft er til efnahagslegra umhverfisþátta á reikningsskiladegi, og væntinga til framtíðar, að svo miklu leyti sem það er heimilt samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.
Samkomulag náðist við viðskiptaaðila Síldarvinnslunnar í Úkraínu um eftirgjöf á viðskiptakröfu Síldarvinnslunnar á hendur honum. Gengið var frá samkomulaginu í apríl 2022 og telst það vera fullnaðaruppgjör. Samkvæmt uppgjörinu gaf Síldarvinnslan eftir 3.270.000 USD af viðskiptakröfu sinni en krafan hafði verið færð niður á árinu 2021, um 2.447.500 USD. Í samstæðuársreikningnum 2022 var því gjaldfært sem nam 822.500 USD á árinu og fært var á meðal annars rekstrarkostnaðar.
Aldur viðskiptakrafna og niðurfærsla er eftirfarandi í árslok, sundurliðað eftir dögum fram yfir gjalddaga:
| Nafnverð krafna | Niðurfærsla | |||
|---|---|---|---|---|
| 31.12.2023 | 31.12.2022 | 31.12.2023 | 31.12.2022 | |
| Ógjaldfallið | 25.502.957 | 24.343.373 | 0 | 0 |
| 1 - 90 daga | 9.374.733 | 13.490.523 | 126.565 | 232.097 |
| 90 daga og eldra | 898.134 | 1.971.774 | 295.818 | 577.750 |
| 35.775.825 | 39.805.670 | 422.383 | 809.847 | |
| Aðrar skammtímakröfur greinast þannig: | 31.12.2023 | 31.12.2022 | ||
| Virðisaukaskattur | 3.093.494 | 4.044.831 | ||
| Fyrirframgreiddur kostnaður | 49.967 | 51.694 | ||
| Fjármagnstekjuskattur | 980.966 | 210.727 | ||
| Afleiðusamningar | 239.093 | 4.703.283 | ||
| Aðrar skammtímakröfur | 2.050.574 | 735.702 | ||
| 6.414.094 | 9.746.237 |
Handbært fé samstæðunnar samanstendur af sjóði, markaðsverðbréfum og óbundnum bankainnstæðum.
| 31.12.2023 | 31.12.2022 | |
|---|---|---|
| Bankainnstæður í USD | 30.692.570 | 18.311.097 |
| Markaðsverðbréf í íslenskum krónum | 18.862.087 | 38.491.003 |
| Bankainnstæður í öðrum myntum | 32.095.067 | 20.487.162 |
| Sjóður | 442 | 427 |
| 81.650.166 | 77.289.688 |
Í byrjun árs 2019 ákvað stjórn Síldarvinnslunnar hf. að leggja niður starfsemi félagsins í Helguvík. Fyrirhugað er að selja eignir samstæðunnar í Helguvík og voru þær því í lok árs 2018 endurflokkaðar við framsetningu ársreikningsins og greint frá þeim meðal veltufjármuna undir liðnum Fastafjármunir sem haldið er til sölu. Mat eignanna í ársreikningi, USD 1.534.733, miðar við matsvirði, að frádregnum sölukostnaði, eða kostnaðarverði, hvort sem lægra er. Um er að ræða fasteign og lóð. Mat stjórnenda er að matsvirði hafi ekki lækkað frá upphaflegri áætlun um sölu. Af þeim sökum er engin matsbreyting færð í rekstrarreikning á árinu 2022 og 2023.
| 31.12.2023 | 31.12.2022 | |
|---|---|---|
| Fastafjármunir sem haldið er til sölu í byrjun árs | 1.534.733 | 1.567.591 |
| Seld áhöld og tæki | 0 | (32.858) |
| Flutt á varanlega rekstrarfjármuni | (1.534.733) | 0 |
| Fastafjármunir sem haldið er til sölu í lok árs | 0 | 1.534.733 |
Aðstæður vegna þessara eigna í Helguvík hafa breyst. Í ársbyrjun 2024 hófst þar fiskvinnsla á vegum dótturfélagsins Vísis ehf. og hafa eignirnar því verið endurflokkaðar á meðal varanlegra rekstrarfjármuna.
Í lok árs 2022 var hluti þess tækjabúnaðar sem var í Helguvík seldur, sem leiddi til söluhagnaðar að fárhæð 2.238.874 USD eftir að tekið hefur verið tillit til reiknaðs tekjuskatts. Sú fjárhæð var færð í rekstrarreikning þess árs, en þó ekki sem hluti af áframhaldandi starfsemi.
Útgefnir hlutir í árslok eru alls ISK 1.845.939.749 og er nafnverð hvers hlutar ein íslensk króna. Félagið á sjálft hlutafé að nafnverði ISK 108.000 sem er 0,01% af heildarhlutafé. Eigin hlutabréf eru færð til lækkunar á hlutafé. Hver króna nafnverðs jafngildir einu atkvæði.
Hlutafé greinist þannig:
| Hlutfall | Fjárhæð ISK | |
|---|---|---|
| Heildarhlutafé í árslok | 100,0% | 1.845.939.749 |
| Eigin hlutir í árslok | (0,01%) | (108.000) |
| 99,99% | 1.845.831.749 |
Yfirverðsreikningur innborgaðs hlutafjár sýnir það sem hluthafar félagsins hafa greitt umfram nafnverð þess hlutafjár sem félagið hefur sjálft selt. Það sem greitt var umfram nafnverð hlutafjár við hækkun þess í tengslum við kaupin á Vísi ehf. árið 2022 var fært á yfirverðsreikning.
Lagt hefur verið í varasjóð hlutfall af hagnaði í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga. Lögbundinn varasjóður stendur í 25% hámarki af hlutafé í lok árs.
Þýðingarmunur samanstendur af gengismun sem verður til vegna umreiknings reikningsskila dóttur- og hlutdeildarfélaga, sem birta reikningsskil sín í öðrum gjaldmiðlum, yfir í bandaríska dollara (USD).
Bundnir reikningar samanstanda af bundnum hlutdeildarreikningi og bundnum gangvirðisreikningi verðbréfaeignar. Á bundinn hlutdeildarreikning er færður mismunur á hlutdeild sem færð hefur verið í rekstrarreikningi vegna dóttur- og hlutdeildarfélaga og mótteknum arði frá sömu félögum. Reikningur er leystur upp ef hlutdeildin er seld eða afskrifuð. Á bundinn gangvirðisreikning eru færðar breytingar á gangvirði fjáreigna á gangvirði í gegn um rekstrarreikning. Gangvirðsreikningurinn er leystur upp þegar breytingin er innleyst. Í lok árs nemur fjárhæð bundins hlutdeildarreiknings 44.549.687 dollurum og fjárhæð bundins gangvirðisreiknings verðbréfaeignar 1.770.819 dollurum, samtals 46.320.506 dollurum.
Annað bundið eigið fé greinist á eftirfarandi hátt:
| Lögbundinn varasjóður |
Þýðingar- munur |
Bundnir reikningar |
Samtals | |
|---|---|---|---|---|
| Hreyfingar 2022: | ||||
| Staða í ársbyrjun | 3.524.631 | (1.521.504) | 29.134.797 | 31.137.925 |
| Lagt í lögbundinn varasjóð | 256.022 | 256.022 | ||
| Þýðingarmunur | 3.709.505 | 3.709.505 | ||
| Bundinn hlutdeildarreikningur | 4.152.474 | 4.152.474 | ||
| Bundinn gangvirðisreikningur | (522.160) | (522.160) | ||
| Staða í árslok | 3.780.653 | 2.188.001 | 32.765.111 | 38.733.766 |
| Annað bundið eigið fé greinist á eftirfarandi hátt: | ||||
| Lögbundinn | Þýðingar- | Bundnir | ||
| varasjóður | munur | reikningar | Samtals | |
| Hreyfingar 2023: | ||||
| Staða í ársbyrjun | 3.780.653 | 2.188.001 | 32.765.111 | 38.733.766 |
| Þýðingarmunur | 11.081.509 | 11.081.509 | ||
| Bundinn hlutdeildarreikningur | 13.302.502 | 13.302.502 | ||
| Bundinn gangvirðisreikningur | 252.893 | 252.893 | ||
| Staða í árslok | 3.780.653 | 13.269.510 | 46.320.506 | 63.370.670 |
Grunnhagnaður á hlut er miðaður við hagnað, sem ráðstafað er til hluthafa í móðurfélaginu og vegins meðaltals virks hlutafjár á árinu og sýnir hver hagnaðurinn er á hverja krónu hlutafjár. Þynntur hagnaður á hlut er hinn sami og grunnhagnaður á hlut þar sem félagið hefur ekki gert kaupréttarsamninga við starfsmenn og ekki tekið lán sem eru breytanleg í hlutafé.
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| Hagnaður ársins til hluthafa í móðurfélaginu | 72.836.009 | 75.463.384 |
| Hagnaður ársins til hluthafa í móðurfélaginu af áframhaldandi starfsemi | 72.836.009 | 73.224.510 |
| Vegið meðaltal útistandandi hluta síðustu 12 mánuði (fjöldi hluta) | 1.845.831.749 | 1.712.053.646 |
| Hagnaður á útistandandi hlut af áframhaldandi starfsemi | 0,0395 | 0,0428 |
| Langtímaskuldir við lánastofnanir greinast þannig: | 31.12.2023 | 31.12.2022 |
|---|---|---|
| Skuldir í USD | 150.989.876 | 151.422.940 |
| Skuldir í EUR | 131.984.804 | 108.762.218 |
| Skuldir í GBP | 4.549.380 | 9.223.542 |
| Skuldir í NOK | 11.052.178 | 12.316.045 |
| Skuldir í JPY | 3.535.000 | 4.050.861 |
| 302.111.238 | 285.775.606 | |
| Næsta árs afborganir langtímaskulda | (47.538.882) | (68.006.240) |
| Langtímaskuldir í árslok | 254.572.356 | 217.769.366 |
| Afborganir af langtímaskuldum greinast þannig: | Skuldir við lánastofnanir |
|
| Næsta árs afborganir | 47.538.882 | |
| Afborganir á árinu 2025 | 20.116.199 | |
| Afborganir á árinu 2026 | 183.119.743 | |
| Afborganir á árinu 2027 | 45.612.106 | |
| Afborganir á árinu 2028 | 1.431.714 | |
| Afborganir síðar | 4.292.594 | |
| 302.111.238 | ||
| Langtímaskuldir samtals USD 302.111.238, koma þannig fram í efnahagsreikningi: | 31.12.2023 | |
| Afborganir ársins 2023, færðar meðal skammtímaskulda | 47.538.882 | |
| Afborganir með gjalddaga eftir eitt ár eða síðar | 254.572.357 | |
| 302.111.238 | ||
| Samstæðan er að ljúka endurfjármögnun langtímaskulda og verður því lokið fyrir áramót, sem leiðir til lægri næsta árs afborganna. | ||
| Breyting á langtímaskuldum greinist þannig: | 31.12.2023 | 31.12.2022 |
| Langtímaskuldir í upphafi árs | 285.775.606 | 122.037.404 |
| Langtímaskuldir í upphafi árs | 285.775.606 | 122.037.404 |
|---|---|---|
| Viðbót vegna nýs félags í samstæðu | 0 | 78.201.662 |
| Tekin langtímalán | 86.328.686 | 98.508.760 |
| Afborganir langtímalána | (73.721.274) | (10.019.429) |
| Gengis- og þýðingarmunur | 3.728.220 | (2.952.791) |
| Langtímaskuldir í lok tímabils | 302.111.238 | 285.775.606 |
Hluti langtímaskulda er háður sérstökum viðmiðunum um eigið fé, framlegð og skuldsetningarhlutfall. Í lok tímabils stóðust allir skilmálar lánasamninga.
Skammtímaskuldir við lánastofnanir greinast þannig:
| 31.12.2023 | 31.12.2022 | |
|---|---|---|
| Skuldir í USD | 0 | 10.688.394 |
| Skuldir í EUR | 2.561.814 | 29.163.442 |
| 2.561.814 | 39.851.836 |
| Leiguskuldbinding greinist þannig: | 31.12.2023 | 31.12.2022 |
|---|---|---|
| Leiguskuldbindingar í ársbyrjun | 1.715.355 | 0 |
| Viðbót vegna nýs félags í samstæðu | 0 | 1.684.445 |
| Afborganir leiguskuldbindingu | (198.203) | (16.061) |
| Þýðingarmunur | 61.743 | 46.971 |
| 1.578.895 | 1.715.355 | |
| Næsta árs afborganir leiguskuldbindinga | (215.546) | (198.925) |
| Leiguskulbinding í lok árs | 1.363.348 | 1.516.430 |
| Áhrif leigusamninga í rekstrarreikningi greinast þannig: | ||
| Vaxtagjöld á leiguskuldir | 76.449 | 6.362 |
| Afskrift leiguréttinda | 219.112 | 80.151 |
| 295.561 | 86.513 | |
| Leiguskuldbinding greinist þannig: | ||
| Húsaleigusamningar | 1.544.934 | 1.660.031 |
| Lausafjársamningur | 33.961 | 55.324 |
| 1.578.895 | 1.715.355 |
Innan samstæðunnar hafa verið gerðir leigusamningar um húsnæði og lausafé, af þeim er stærstur húsaleigusamningur um atvinnuhúsnæði í Þýskalandi sem rennur út árið 2030. Lausafjársamningar eru að jafnaði til 2-4 ára. Leigusamningar innihalda ekki breytilegar leigugreiðslur. Næsta árs afborganir leiguskuldbindinga er færð á meðal annarra skammtímaskulda. Frekari upplýsingar um greiðsluflæði leigusamninga er að finna í skýringu 25.3.
| Breyting tekjuskattsskuldbindingarinnar á árinu greinist þannig: | 31.12.2023 | |
|---|---|---|
| Tekjuskattsskuldbinding í ársbyrjun | 100.753.122 | |
| Tekjuskattur af reglulegri starfsemi | 18.769.829 | |
| Tekjuskattur til greiðslu 2024 vegna 2023 | (18.028.190) | |
| Áhrif á leiðréttingum vegna fyrri ára | 34.646 | |
| Áhrif samsköttunar | 765.147 | |
| Áhrif gengisbreytinga | 1.817.636 | |
| 104.112.190 | ||
| Tekjuskattsskuldbinding (-inneign) greinist þannig á eftirfarandi liði: | ||
| 31.12.2023 | 31.12.2022 | |
| Varanlegir rekstrarfjármunir | 25.874.126 | 24.887.948 |
| Óefnislegar eignir | 76.338.125 | 73.981.404 |
| Aðrir liðir | 1.899.939 | 1.883.770 |
Tekjuskattskuldbinding svarar að jafnaði til þess tekjuskatts sem eftir gildandi skattalögum kæmi til greiðslu ef eignir samstæðunnar væru seldar eða innleystar á bókfærðu verði.
| 31.12.2023 | 31.12.2022 | |
|---|---|---|
| Tekjuskattur til greiðslu | 18.028.190 | 14.300.900 |
| Frestaður tekjuskattur | 104.112.190 | 100.753.122 |
| 122.140.380 | 115.054.022 |
Reiknaður tekjuskattur samstæðunnar af hagnaði fyrir skatta (virkur tekjuskattur) er frábrugðinn þeirri fjárhæð sem kæmi út ef tekjuskattshlutfall er notað til útreikningsins sem hér greinir:
| Hagnaður fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi | 92.205.611 | 91.182.777 |
|---|---|---|
| Reiknaður tekjuskattur miðað við 20% skatthlutfall | (18.441.122) | (18.236.555) |
| Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga | (478.237) | 218.659 |
| Frádráttabært vegna arðstekna og verðbreytinga hlutabréfa | 6.785 | 286 |
| Ófrádráttarbær gjöld og aðrir liðir | 142.745 | 212.486 |
| Leiðréttir skattar fyrri ára | 0 | (9.140) |
| (18.769.829) | (17.814.264) | |
| 21. Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir |
||
| Viðskiptaskuldir greinast þannig í lok árs: | ||
| 31.12.2023 | 31.12.2022 | |
| Innlendar viðskiptaskuldir | 10.869.318 | 16.150.028 |
| Erlendar viðskiptaskuldir | 2.242.524 | 2.741.180 |
| 13.111.842 | 18.891.208 | |
| Aðrar skammtímaskuldir greinast þannig í lok árs: | ||
| 31.12.2023 | 31.12.2022 | |
| Ógreidd laun og launatengd gjöld | 5.503.242 | 5.836.832 |
| Afleiðuskuld | 1.167.571 | 74.747 |
| Ógreiddir áfallnir vextir | 1.426.106 | 2.219.992 |
| Ógreiddur arður | 0 | 37 |
| Næsta árs afborgun leiguskuldbindinga | 215.546 | 198.925 |
Aðrar skuldir .....................................................................................................................................
2023 2022
2.879.314 1.813.310 11.191.778 10.143.843
Á eignum samstæðunnar hvíla þinglýst veð og skuldbindingar til tryggingar skuldum samstæðunnar, sem voru að eftirstöðvum 904,5 milljónir dollara.
| Tryggingabréf | Bókfært verð eigna |
|
|---|---|---|
| Skip | 904.534.854 | 123.966.641 |
| Fasteignir | 0 | 50.409.095 |
| 904.534.854 | 174.375.736 |
Síldarvinnslan, sem móðurfélag í samstæðunni, hefur gengist í ábyrgðir fyrir dótturfélag sitt, Berg-Hugin ehf. og dótturdótturfélag sitt (Berg ehf.), til tryggingar á skuldum við viðskiptabanka dótturfélagsins. Fjárhæð ábyrgðarinnar nemur samtals USD 29,4 milljónum (2022: USD 28,2 milljónir) í lok árs 2023.
Vísir hefur gengist í ábyrgðir fyrir dótturfélag sitt, Pytheas Seafood í Grikklandi, til tryggingar á skuldum við viðskiptabanka dótturfélagsins. Fjárhæð ábyrgðarinnar nemur EUR 4 milljónum (4,4 milljónum USD) í lok árs 2023.
Samstæðan er með rekstrarstöðvunartryggingu sem tekur til fjárhagslegs tjóns sem samstæðan getur orðið fyrir vegna rekstrarstöðvunar. Vátryggingafjárhæð tryggingarinnar nemur USD 227,1 milljónum (2022: USD 63,4 milljónir). Rekstrarstöðvunartrygging gildir ekki vegna tjóns af völdum náttúruhamfara.
Samstæðan er í dreifðri eignaraðild. Tengdir aðilar samstæðunnar eru hlutdeildarfélög, stjórnir félaga í samstæðunni, framkvæmdastjóri, nánir fjölskyldumeðlimir fyrrgreindra aðila og aðilar sem hafa veruleg áhrif sem stórir hluthafar í félaginu. Upplýsingar varðandi tengda aðila eru eftirfarandi:
| Árið 2022 | Seldar vörur og þjónusta |
Keyptar vörur og þjónusta |
Viðskipta- kröfur |
Viðskipta skuldir |
|---|---|---|---|---|
| Hlutdeildarfélög | 858.434 | 14.145.430 | 2.058.314 | 2.599.712 |
| Hluthafar félagsins og félög í þeirra eigu | 103.047.658 | 31.883.549 | 16.927.366 | 682.983 |
| 103.906.092 | 46.028.979 | 18.985.680 | 3.282.695 | |
| Árið 2023 | Seldar vörur og þjónusta |
Keyptar vörur og þjónusta |
Viðskipta- kröfur |
Viðskipta skuldir |
| Hlutdeildarfélög | 10.704.259 | 13.881.915 | 2.219.430 | 511.300 |
| Hluthafar félagsins og félög í þeirra eigu | 144.127.491 | 37.357.309 | 23.346.390 | 1.422.924 |
| 154.831.751 | 51.239.224 | 25.565.820 | 1.934.224 |
Kröfur á tengda aðila eru tilkomnar vegna hefðbundinna viðskipta og eru því tilgreindar meðal viðskiptakrafna.
Í efnahagsreikningi eru viðskiptakröfur á tengda aðila færðar meðal viðskiptakrafna. Sjá umfjöllun í skýringu 14 um kröfur og niðurfærslu vegna erlendra viðskiptakrafna.
Laun og hlunnindi forstjóra, lykilstjórnenda og stjórnar samstæðunnar greinast þannig:
| 2023 | 2022 | |||
|---|---|---|---|---|
| Laun og hlunnindi |
Mótframl. í lífeyrissjóð |
Laun og hlunnindi |
Mótframl. í lífeyrissjóð |
|
| Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður | 49.572 | 0 | 44.294 | 5.094 |
| Anna Guðmundsdóttir, stjórnarmaður | 33.048 | 3.801 | 29.234 | 3.362 |
| Guðmundur Rafnkell Gíslason, stjórnarmaður | 33.048 | 4.462 | 29.234 | 3.947 |
| Baldur Már Helgason, stjórnarmaður | 33.048 | 3.801 | 29.234 | 3.362 |
| Björk Þórarinsdóttir, fyrrverandi stjórnarmaður | 33.048 | 3.801 | 29.234 | 3.362 |
| Arna Bryndís Baldvins McClure, varamaður í stjórn | 47.398 | 5.451 | 24.140 | 2.776 |
| Ingi Jóhann Guðmundsson, varamaður í stjórn | 16.524 | 1.900 | 14.617 | 1.681 |
| Gunnþór Björn Ingvason, framkvæmdastjóri | 522.643 | 73.742 | 470.914 | 67.065 |
| Axel Ísaksson, fjármálastjóri | 246.179 | 35.504 | 215.201 | 31.390 |
| Jón Már Jónsson, yfirmaður landvinnslu | 228.206 | 33.524 | 219.557 | 31.390 |
| Aðrir lykilstjórnendur | 1.158.766 | 172.619 | 648.659 | 84.290 |
| 2.401.482 | 338.603 | 1.754.316 | 237.717 |
Ásamt því að vera varamaður í stjórn situr Arna Bryndís Baldvins McClure jafnframt í endurskoðunarnefnd Síldarvinnslunnar hf. og hefur verið gerður tímabundinn ráðningarsamningur við hana um að hún komi í tiltekin sérverkefni.
Aðrir lykilstjórnendurnir eru aðstoðarmaður forstjóra Síldarvinnslunnar hf., yfirmaður bræðslu Síldarvinnslunnar hf., yfirmaður fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar hf., yfirmaður útgerðar Síldarvinnslunnar hf., rekstrarstjóri Bergs-Hugins ehf., rekstrarstjóri Fóðurverksmiðjunnar Laxá ehf., framkvæmdastjóri Vísis ehf. Aðrir lykilstjórnendur eru sjö á árinu 2023 en voru fimm á árinu 2022.
Launaupplýsingar í töflu hér að ofan eru umreiknaðar yfir í bandaríkjadollar úr íslenskum krónum á meðalgengi hvors árs um sig. Meðalgengi ársins 2023 er 137,98 en var 135,46 á árinu 2022.
Hlutir (nafnverð í ISK) í Síldarvinnslunni hf., í beinni eigu framangreindra tengdra aðila greinast þannig í lok árs:
| 31.12.2023 | 31.12.2022 | |
|---|---|---|
| Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður | 1.000.000 | 1.000.000 |
| Arna Bryndís Baldvins McClure, varamaður í stjórn | 32.100 | 32.100 |
| Baldur Már Helgason, stjórnarmaður | 17.241 | 17.241 |
| Gunnþór Björn Ingvason, framkvæmdastjóri | 100.206 | 100.206 |
| Axel Ísaksson, fjármálastjóri | 25.000 | 25.000 |
| Jón Már Jónsson, yfirmaður landvinnslu | 23.482 | 23.482 |
| Aðrir lykilstjórnendur | 52.862 | 52.862 |
| 1.250.891 | 1.250.891 |
Aðrir lykilstjórnendurnir eru þeir sömu og að framan greinir.
Þorsteinn Már Baldvinssons er forstjóri Samherja hf. sem á 30,06% hlut í Síldarvinnslunni hf. Gunnþór Björn Ingvason á 60% hlut í L1197 ehf. sem á 100% hlut í Hraunlóni ehf. sem á 0,94% hlut í Síldarvinnslunni hf. Tveir aðrir lykilstjórnendur eiga síðan sitt hvor 20% í L1197 ehf. Anna Guðmundsdóttir og Ingi Jóhann Guðmundsson eiga bæði 22% eða 44% eignarhlut í Kjálkanesi ehf. sem á 16,06% hlut í Síldarvinnslunni hf. Guðmundur R. Gíslason er framkvæmdastjóri Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað og Olíusamlags útvegsmanna í Neskaupstað sem eiga samtals í árslok 10,87% hlut í félaginu. Erla Ósk á 100% eignarhlut í 55105 ehf. sem á 0,12% hlut í Síldarvinnslunni hf.
Fjáreignir og fjárskuldir samstæðunnar eru eftirfarandi:
| Fjáreignir | 31.12.2023 | 31.12.2022 |
|---|---|---|
| Fjáreignir á afskrifuðu kostnaðarverði | ||
| Skuldabréfaeign | 66.134 | 74.945 |
| Viðskiptakröfur og viðskiptakröfur á tengda aðila | 35.353.442 | 38.995.823 |
| Aðrar skammtímakröfur, án afleiða | 6.175.001 | 5.042.954 |
| Handbært fé | 81.650.166 | 77.289.688 |
| Fjáreignir á gangvirði: | ||
| Eignarhlutar í öðrum félögum, á gangvirði í gegnum rekstrarreikning | 2.816.428 | 2.449.335 |
| Afleiður á gangvirði í gegnum rekstrarreikning | 239.093 | 4.703.283 |
| 126.300.264 | 128.556.028 | |
| Fjárskuldir | ||
| Fjárskuldir á afskrifuðu kostnaðarverði: | ||
| Viðskiptaskuldir og skuldir við tengd félög | 15.046.066 | 22.173.903 |
| Aðrar skammtímaskuldir, að undanskildum afleiðum | 10.024.207 | 10.069.096 |
| Langtímaskuldir | 254.572.356 | 217.769.366 |
| Skammtímaskuldir við lánastofnanir og næsta árs afborgun langtímaskulda | 50.100.696 | 107.858.076 |
| Fjárskuldir á gangvirði: | ||
| Aðrar afleiður á gangvirði í gegnum rekstrarreikning | 1.167.571 | 74.747 |
Bókfært verð fjáreigna og fjárskulda á afskrifuðu kostnaðarverði endurspeglar gangvirði þeirra.
Taflan hér að neðan sýnir fjármálagerningar eignir færðar á gangvirði flokkað eftir verðmatsaðferð. Matsaðferðunum er skipt í þrjú stig sem endurspegla mikilvægi þeirra forsendna sem lagðar eru til grundvallar við ákvörðun gangvirðis eignanna. Stigin eru eftirfarandi:
Stig 1: Eignir eru hlutabréf skráð á markaði og er gangvirðið fært eftir skráðum verðum á virkum markaði fyrir þessar eignir.
Stig 2: Eignir í þessu þrepi eru afleiðusamingar við banka sem samstæðan flokkar sérstaklega. Forsendur fyrir núvirðisútreikningum byggja á öðrum breytum en skráðum verðum á virkum markaði (stig 1) sem unnt er að afla fyrir eignir og skuldir, beint (t.d. verði) eða óbeint (afleidd af verðum).
Stig 3: Eignir í þessu þrepi eru óskráð hlutabréf. Forsendur gangvirðis eigna og skulda eru ekki byggðar á gögnum sem unnt er að afla á markaði, heldur meðal annars á upplýsingum um afkomu viðkomandi félags og innra virði þess, kaup og sölu eignarhluta o.fl.
330.910.896 357.945.188
| Mat á gangvirði 31.12.2022 | Stig 1 | Stig 2 | Stig 3 | Samtals |
|---|---|---|---|---|
| Fjárfestingar í eignarhlutum í félögum | 1.566.051 | 0 | 883.284 | 2.449.335 |
| Afleiður, eignir | 0 | 4.703.283 | 0 | 4.703.283 |
| Afleiður, skuldir | 0 | 74.747 | 0 | 74.747 |
| Mat á gangvirði 31.12.2023 | Stig 1 | Stig 2 | Stig 3 | Samtals |
| Fjárfestingar í eignarhlutum í félögum | 1.935.267 | 0 | 881.161 | 2.816.428 |
| Afleiður, eignir | 0 | 239.093 | 0 | 239.093 |
| Afleiður, skuldir | 0 | 1.167.571 | 0 | 1.167.571 |
Á árinu 2023 voru engar breytingar á flokkun eigna vegna breyttra forsendna við mat á gangvirði þeirra.
| Staða 1.1. | 883.284 |
|---|---|
| Keyptar fjáfestingar | 17.947 |
| Gangvirðisbreytingar* | 25.708 |
| Aðrir liðir | ( 45.778) |
| Staða 31.12 | 881.161 |
* Allar breytingar á gangvirði voru óinnleystar í lok ársins. Breytingar á gangvirði eru færðar í rekstrarreikningi á meðal gjalda eða tekna af verðbréfum og afleiðusamningum.
Óskráð hlutabréf á 3. stigi eru öll metin út frá afkomu ársins og innra virði í árslok þar sem aðrar áreiðanlegar upplýsingar liggja ekki fyrir. Þessir eignarhlutir eru óverulegir, eða 881 þús. USD í árslok, og hvers konar breytingar á mati þeirra hefur óveruleg áhrif á rekstur og fjárhag samstæðunnar.
Starfsemi samstæðu Síldarvinnslunnar hefur í för með sér margvíslega fjárhagslega áhættu s.s. breytingar á gengi erlendra gjaldmiðla, vaxtabreytingar, áhættu vegna lánsviðskipta og lausafjáráhættu. Fyrrgreindir þættir geta haft áhrif á afkomu samstæðunnar og virði hennar. Áhættustýring Síldarvinnslunnar miðar m.a. að því að greina, meta og stýra þessum áhættuþáttum.
Stjórn og framkvæmdastjóri móðurfélagsins hefur eftirlit með áhættustýringu samstæðunnar. Markmið samstæðunnar með áhættustýringu er að uppgötva, skilgreina og greina áhættu sem hún býr við, setja viðmið um áhættutöku og hafa eftirlit með henni. Aðferðir við áhættustýringu eru yfirfarnar reglulega til að endurspegla breytingar á markaðsaðstæðum og starfsemi samstæðunnar. Það getur haft neikvæð áhrif á samstæðuna ef eftirlit og öryggisráðstafanir reynast vera ófullnægjandi.
Eftirfarandi áhættuþættir fylgja fjármálagerningum samstæðunnar:
Markaðsáhætta - Gjaldmiðla- og uppgjörsáhætta - Vaxta- og fjármögnunaráhætta Lánsáhætta Lausafjáráhætta Rekstraráhætta
Hér eru veittar upplýsingar um framangreinda áhættuþætti, markmið, stefnu og aðferðir samstæðunnar við að meta og stýra áhættunni, auk upplýsinga um eiginfjárstýringu hennar.
Markaðsáhætta er hættan á því að breytingar á markaðsverði erlendra gjaldmiðla og vöxtum hafi áhrif á afkomu samstæðunnar eða virði fjárfestinga hennar í fjármálagerningum. Önnur markaðsáhætta er takmörkuð, þar sem fjárfestingar í skuldabréfum og eignarhlutum eru óverulegur hluti af starfsemi samstæðunnar. Markmið með stýringu markaðsáhættu er að stýra og takmarka áhættu við skilgreind mörk, jafnframt því sem ábati er hámarkaður.
Stærsti fjárhagslegi áhættuþáttur samstæðunnar er gjaldmiðlaáhætta. Gjaldmiðlaáhætta er hættan á því að breytingar á markaðsverði erlendra gjaldmiðla og vöxtum hafi áhrif á afkomu samstæðunnar eða virði fjárfestinga hennar í fjármálagerningum. Markmið með stýringu gjaldmiðlaáhættu er að takmarka áhættu við skilgreind mörk, jafnframt því sem ábati er hámarkaður.
Samstæðan býr við gengisáhættu vegna sölu afurða og lántöku í öðrum gjaldmiðlum en starfsrækslugjaldmiðli einstakra samstæðufélaga. Helstu gjaldmiðlar sem skapa gengisáhættu eru íslensk króna (ISK), evrur (EUR) og norskar krónur (NOK). Reikningsskil samstæðunnar er í bandaríkjadollara (USD). Heimsmarkaðsverð á mjöli og lýsi ræðst í USD, einnig er olíukostnaður í USD.
Bókfært verð eigna og skulda sem háðar eru gengisáhættu greinist þannig:
| Árið 2022 | Aðrir | ||||
|---|---|---|---|---|---|
| ISK | EUR | GBP | NOK | gjaldmiðlar | |
| Eignarhlutir í öðrum félögum | 2.449.335 | 0 | 0 | 0 | 0 |
| Skuldabréfaeign | 74.945 | 0 | 0 | 0 | 0 |
| Viðskiptakröfur og kröfur á tengd félög | 5.592.118 | 13.457.334 | 3.727.112 | 2.827.980 | 717.116 |
| Handbært fé | 28.270.709 | 9.749.455 | 5.681.072 | 5.315.338 | 2.942.428 |
| Aðrar skammtímakröfur | 4.960.466 | 437.990 | 0 | 0 | 0 |
| Skuldir við lánastofnanir | 0 | (137.925.660) | (9.223.542) | (12.316.045) | (4.050.861) |
| Viðskipta- og skuldir við tengd félög | (12.022.894) | (1.604.832) | (175.381) | (354.574) | (2.752.588) |
| Aðrar skammtímaskuldir og ógr. skattar | (22.799.798) | (598.745) | 0 | (185.873) | (939) |
| 6.524.882 | (116.484.458) | 9.261 | (4.713.173) | (3.144.843) | |
| Árið 2023 | Aðrir | ||||
| ISK | EUR | GBP | NOK | gjaldmiðlar | |
| Eignarhlutir í öðrum félögum | 2.816.428 | 0 | 0 | 0 | 0 |
| Skuldabréfaeign | 66.134 | 0 | 0 | 0 | 0 |
| Viðskiptakröfur og kröfur á tengd félög | 3.328.402 | 17.462.703 | 2.776.572 | 202.933 | 739.293 |
| Handbært fé | 26.230.980 | 14.504.669 | 4.045.117 | 3.316.973 | 3.144.603 |
| Aðrar skammtímakröfur | 5.981.621 | 432.473 | 0 | 0 | 0 |
| Skuldir við lánastofnanir | 0 | (134.546.618) | (4.549.380) | (11.052.178) | (3.535.000) |
| Viðskipta- og skuldir við tengd félög | (9.065.153) | (4.112.332) | (2.802) | (219.820) | (382.893) |
| Aðrar skammtímaskuldir og ógr. skattar | (25.763.042) | (2.329.724) | (95.669) | (248.077) | (16.019) |
| 3.595.370 | (108.588.829) | 2.173.838 | (8.000.169) | (50.016) |
Lántaka samstæðunnar í erlendum gjaldmiðlum myndar gengisáhættu sem að hluta til er varin með sjóðstreymi samstæðunnar.
Gjaldmiðlaskiptasamningar eru notaðir til að verjast gengisáhættu samstæðunnar að hluta. Hætta er þó á að slíkir samningar dugi ekki til að verjast allri gengisáhættu samstæðunnar. Markmið með stýringu gjaldmiðlaáhættu er að takmarka áhættu jafnframt því sem ábati er hámarkaður. Opnar stöður gjaldeyris- og skiptasamninga um áramót eru færðar meðal annarra skammtímakrafna og annarra skammtímaskulda en breytingar á virði samninga eru færðar í rekstrarreikning meðal fjármunatekna og fjármagnsgjalda. Verulegar sveiflur í fyrrgreindum gjaldmiðlum geta haft veruleg áhrif á afkomu samstæðunnar.
Gjaldmiðlaskiptasamningar í árslok námu USD -245,6 þús. (2022: USD -74,7 þús. í eign) og eru færðir meðal skammtímakrafna og gangvirðisbreytingar ársins eru færðar meðal fjármunatekna og fjármagnsgjalda í rekstrarreikningi.
Uppgjörsáhætta felst í þeim eignum og skuldum samstæðunnar sem bókfærðar eru í erlendum gjaldmiðlum og endurspeglast í gengisliðum í rekstrarreikningi. Uppgjörsáhætta samstæðunnar er til komin vegna þess að uppgjörsmynt félagsins er USD, en hluti af rekstrarkostnaði er í íslenskum krónum og hluti viðskiptakrafna, stærsti hluti viðskiptaskulda, auk hluta handbærs fjár er í öðrum erlendum myntum og því myndast gengishagnaður eða gengistap og færist meðal fjármagnsliða í fjárhagsuppgjöri samstæðunnar. Birgðir samstæðunnar eru bókaðar í þeim gjaldmiðlum sem þær eru seldar í og hafa því áhrif á uppgjörsáhættu.
Starfrækslugjaldmiðill samstæðunnar er bandaríkjadollar (USD). Stærstur hluti uppsjávarafurða samstæðunnar er seldur í USD og þá byggir sala á mjöl- og lýsisafurðum félagsins á heimsmarkaðsverði sem myndast að stórum hluta í USD. Að undanskildum launakostnaði er stærsti gjaldaliður samstæðunnar olíukaup, en sá kostnaður er tilgreindur í USD. Samstæðan hefur þó jafnframt tekjur og gjöld í öðrum myntum. Helst er þar að nefna EUR, ISK, NOK, JPY og GBP.
Styrking bandaríkjadollar (USD) um 10% gagnvart eftirtöldum gjaldmiðlum þann 31. desember hefði lækkað afkomu samstæðunnar fyrir tekjuskatt um eftirfarandi fjárhæðir. Greiningin byggir á að allar aðrar breytur, sérstaklega vextir, haldist óbreyttar og tekur tillit til áhrifa af gjaldmiðlaskiptasamningum sem voru opnir í lok árs.
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| ISK | (4.806.615) | (5.097.766) |
| EUR | 11.828.638 | 11.082.408 |
| GBP | (217.384) | (926) |
| NOK | 2.949.939 | 1.993.072 |
| Aðrir gjaldmiðlar | 5.002 | 314.484 |
| 9.759.580 | 8.291.272 |
Vaxtaáhætta felst í því þegar vextir á eignum og skuldum breytast ekki á sama tíma. Gengishreyfingar, verðbólga og verðbólguvæntingar kunna að hafa áhrif a vaxtastig og þar með fjármagnsliði samstæðunnar. Samstæðan býr við vaxtaáhættu vegna vaxtagreiðslna af skuldum og vaxtaberandi eignum. Vaxtaform skulda og eigna samstæðunnar eru breytilegir vextir og fastir vextir í mismunandi myntum. Greiðsluáhætta vegna vaxta er þríþætt, gengishátta, verðbólguáhætta og hækkun breytilegra vaxta. Langtímaskuldir samstæðunnar bera blöndu af föstum og breytilegum vöxtum.
Þegar endurskoðunartími fastvaxta lána samstæðunnar nálgast getur félagið séð hvort greiðslubyrði hækki og þar með gripið til ráðstafana. Áhætta varðandi endurfjármögnun er alltaf til staðar hjá félögum sem eru fjármögnuð með lántökum. Bæði er til staðar hætta á því að samstæðan nái ekki að fjármagna sig á sambærilegum eða betri kjörum og áður og einnig hættan á því að samstæðan takist ekki að endurfjármagna lán sín fyrir gjalddaga eða semja um áframhaldandi fjármögnun og geti því mögulega ekki staðið við fjárhagsskuldbindingar sínar.
Lánsáhætta er hættan á að samstæðan verði fyrir fjárhagslegu tapi ef viðskiptamaður eða mótaðili í viðskiptum getur ekki staðið við umsamdar skuldbindingar sínar. Lánsáhætta samstæðunnar er vegna viðskiptakrafna, viðskiptakrafna á tengda aðila, skuldabréfaeignar og annarra skammtímakrafna og ræðst einkum af fjárhagsstöðu og starfsemi mótaðila. Jafnframt ræðst staðan af stöðu erlendra aðila sem sölufyrirtæki sem telst tengt félag selur til þeirra þar sem útlánaáhætta liggur hjá samstæðunni verði greiðslufall. Stjórnendur samstæðunnar fylgjast með innheimtu viðskiptakrafna með reglubundnum hætti og eru kröfurnar færðar niður ef talið er að þær muni ekki innheimtast að fullu.
Samstæðan beitir aðferðum, sem tilgreindar eru í skýringu 2.16, við að meta viðskiptakröfur og hugsanlega virðisrýrnun þeirra. Í skýringu 14 er að finna upplýsingar um fjárhæð viðskiptakrafna og niðurfærslu þeirra. Í árslok er óverulegur hluti krafna í vanskilum. Söguleg töp krafna eru afar lág.
Mesta mögulega tap samstæðunnar vegna fjáreigna er bókfært verð þeirra, sem var eftirfarandi í árslok:
| 31.12.2023 31.12.2022 |
31.12.2022 | |
|---|---|---|
| Viðskiptakröfur | 9.787.621 | 20.010.143 |
| Viðskiptakröfur á tengda aðila | 25.565.820 | 18.985.680 |
| Skuldabréfaeign | 66.134 | 74.945 |
| Aðrar sammtímarkröfur | 6.414.094 | 9.746.237 |
| Handbært fé | 81.650.166 | 77.289.688 |
| 123.483.837 | 126.106.694 |
Mesta mögulega tap samstæðunnar á viðskiptakröfum skiptist með eftirfarandi hætti eftir landsvæðum:
| 31.12.2023 31.12.2022 |
31.12.2022 | |
|---|---|---|
| Vestur-Evrópa | 20.971.343 | 25.809.010 |
| Austur-Evrópa | 10.749.685 | 6.215.333 |
| Asía | 2.929.813 | 2.145.036 |
| Ameríka | 702.601 | 2.041.431 |
| Annað | 0 | 2.785.014 |
| 35.353.442 | 38.995.823 | |
Lausafjáráhætta er hættan á því að samstæðan geti ekki staðið við fjárhagsskuldbindingar sínar eftir því sem þær gjaldfalla. Markmið samstæðunnar er að stýra lausafé þannig að tryggt sé að hún hafi alltaf nægt laust fé til að mæta skuldbindingum sínum eftir því sem þær gjaldfalla og forðast þannig að skaða orðspor samstæðunnar. Lausafjárstaða samstæðunnar er sterk eins og sjá má af efnahagsreikningi og er það stefna samstæðunnar að halda þeirri stöðu sterkri.
Handbært fé í árslok 2023 nam um 81,7 milljónum USD og hefur samstæðan möguleika á skammtímalánalínum ef þörf er á. Samstæðan leitast við að eiga nægt fé til þess að standa straum af afborgunum lána. Minnki aðgangur samstæðunnar að lausafé getur það haft neikvæð áhrif á sjóðstreymi og afkomu og þar með getu samstæðunnar til að standa við skuldbindingar sínar.
Eftirfarandi er yfirlit sýnir fjárskuldir samstæðunnar, annarra en afleiðuskulda, og ónúvirt framtíðar sjóðflæði vegna þeirra skulda. Fjárflæði miðast við kjör lánasamninga í árslok.
| Bókfært | Umsamið | Innan | 1-2 | 2-5 | Meira | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Árið 2022 | verð | sjóðstreymi | 1 árs | árs | ár | en 5 ár |
| Óverðtryggð lán Skammtímaskuldir |
285.775.606 | 327.452.913 | 81.042.091 | 27.421.021 | 33.236.880 | 185.752.921 |
| við lánastofnanir | 39.851.836 | 40.733.012 | 40.733.012 | 0 | 0 | 0 |
| Leiguskuldbinding | 1.715.355 | 2.030.737 | 271.023 | 271.023 | 749.038 | 739.653 |
| Viðskiptaskuldir | 18.891.208 | 18.891.208 | 18.891.208 | 0 | 0 | 0 |
| Aðrar skammtímask | 9.944.918 | 9.944.918 | 9.944.918 | 0 | 0 | 0 |
| Skuldir við tengd félög | 3.282.695 | 3.282.695 | 3.282.695 | 0 | 0 | 0 |
| 359.461.617 | 402.335.482 | 154.164.947 | 27.692.045 | 33.985.917 | 186.492.574 | |
| Bókfært | Umsamið | Innan | 1-2 | 2-5 | Meira | |
| Árið 2023 | verð | sjóðstreymi | 1 árs | árs | ár | en 5 ár |
| Óverðtryggð lán Skammtímaskuldir |
302.111.238 | 342.649.238 | 64.330.868 | 34.931.653 | 192.547.055 | 50.839.662 |
| við lánastofnanir | 2.561.814 | 2.669.410 | 2.669.410 | 0 | 0 | 0 |
| Leiguskuldbinding | 1.578.894 | 1.823.056 | 280.779 | 280.779 | 750.647 | 510.851 |
| Viðskiptaskuldir | 13.111.842 | 13.111.842 | 13.111.842 | 0 | 0 | 0 |
| Aðrar skammtímask | 10.976.232 | 10.976.232 | 10.976.232 | 0 | 0 | 0 |
| Skuldir við tengd félög | 1.934.224 | 1.934.224 | 1.934.224 | 0 | 0 | 0 |
| 332.274.244 | 373.164.002 | 93.303.354 | 35.212.432 | 193.297.702 | 51.350.514 |
Útflæði vegna afleiðusamninga er sýnt sem neikvæð stærð, en innflæði sem jákvæð.
| Bókfært | Umsamið | |
|---|---|---|
| Árið 2022 | verð | sjóðstreymi |
| Gjaldmiðlaskiptasamningar | (74.747) | (74.747) |
| Vaxtaskiptasamningar | 4.703.283 | 5.047.843 |
| 4.628.535 | 4.973.096 | |
| Árið 2023 | Bókfært verð |
Umsamið sjóðstreymi |
| Gjaldmiðlaskiptasamningar | (245.628) | (245.628) |
| Vaxtaskiptasamningar | (682.850) | (682.850) |
| (928.478) | (928.478) |
Rekstraráhætta getur leitt til beins eða óbeins taps sem getur orðið vegna fjölda þátta í starfsemi samstæðunnar. Meðal áhættuþátta er vinna starfsmanna samstæðunnar, tækni og skipulag sem beitt er, og ytri þættir aðrir en láns-, markaðs- og lausafjáráhætta. Rekstraráhætta myndast við alla starfsemi samstæðunnar.
Meiriháttar breytingar á stjórnkerfi fiskveiða gætu falið í sér óvissu og áhættu fyrir rekstur sjávarútvegsfyrirtækja. Stjórnvöld setja lög og reglugerðir um stjórnun fiskveiða sem ætlað er að stuðla að skynsamlegri nýtingu fiskistofna. Slíkar stjórnvaldsaðgerðir kynnu að takmarka úthlutun aflaheimilda en þær eru ein af grunnforsendum fyrir rekstri sjávarútvegsfyrirtækja. Þannig getur breyting á úthlutun aflaheimilda og heimildum á framsali þeirra haft áhrif á rekstur og afkomu fyrirtækja í sjávarútvegi og þar með Síldarvinnslunnar.
Samstæðan býr við áhættu vegna náttúrubreytinga enda eru veiðar og vinnsla á fiski meðal annars háðar vexti og viðgangi fiskstofna við landið, ásamt deilistofnum sem nýttir eru með öðrum þjóðum. Breytingar á náttúrufari og aðstæðum í hafinu geta valdið minnkun veiðistofna, breyttri samsetningu þeirra og samdrætti í afla samstæðunnar og þannig haft bein áhrif á fjárhagslega afkomu hennar.
Stjórn og stjórnendur samstæðunnar leitast við að stýra rekstraráhættu með hagkvæmum hætti til að forðast fjárhagslegt tap og til að vernda orðstír hennar. Til að draga úr rekstraráhættu er meðal annars komið á stýringu á veiðum og vinnslu afla, viðeigandi aðskilnaði starfa, eftirliti með viðskiptum og fylgni við lög, starfsmenn þjálfaðir, verkferlar skipulagðir og skráðir og tryggingar keyptar þegar við á.
Það er stefna stjórnar félagsins að eiginfjárstaða samstæðunnar sé sterk til að styðja við stöðugleika í framtíðarþróun starfseminnar. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar var um 58,6% í árslok 2023.
Hækkun verðbólgu eykur kostnað samstæðunnar, þar sem stór hluti útgjalda samstæðunnar er í íslenskum krónum.
Þann 26. september 2023 var skrifað undir kaup Síldarvinnslunnar hf. á helmingshlut í sölufyrirtækinu Ice Fresh Seafood ehf.
Ice Fresh Seafood ehf. hefur lengi verið leiðandi fyrirtæki í sölu- og markaðssetningu sjávarafurða frá Íslandi og hefur meðal annars séð um sölu á hluta afurða Síldarvinnslunnar og Vísis ehf. á undanförnum árum. Sölunet fyrirtækisins nær til yfir 60 landa og á bak við það er áratuga þekking og viðskiptasambönd á helstu mörkuðum fyrir íslenskt sjávarfang.
Verðmæti Ice Fresh Seafood ehf. í viðskiptunum er metið 42,9 milljónir evra sem jafngildir 1,76 sinnum bókfært virði eigin fjár þess hinn 31. desember 2022. Viðskiptin felast annars vegar í kaupum á núverandi hlutum af Samherja hf. fyrir 10,7 milljónir evra, og hins vegar útgáfu nýs hlutafjár í Ice Fresh Seafood ehf. að fjárhæð 21,5 milljónir evra. Heildarvirði Ice Fresh Seafood ehf. verður 64,4 milljónir evra eftir hlutafjáraukninguna og fjárfesting Síldarvinnslunar hf. nemur því í heild 32,2 milljónum evra.
Samhliða þessum viðskiptum mun Ice Fresh Seafood ehf. ganga frá kaupum á eignarhlutum í erlendum sölufélögum sem fyrirtækið hefur átt í farsælu viðskiptasambandi við undanfarin ár. Um er að ræða helmingshlut í Seagold Ltd. í Bretlandi, 100% eignarhlut í Ice Fresh Seafood SAS í Frakklandi, 67% hlutafjár í Ice Fresh Seafood Spain S.L. og helmingshlut í Aquanor Marketing Inc. í Bandaríkjunum fyrir samtals 13,9 milljónir evra. Verðmæti félaganna fjögurra í þessum viðskiptum er 1,37 sinnum bókfært virði eigin fjár þeirra í árslok 2022. Félögin voru áður hluti af samstæðu Samherja Holding ehf. og unnið hefur verið að viðskiptunum frá því í lok árs 2022.
Þá mun Ice Fresh Seafood ehf. ganga frá kaupum á helmingshlut í sölufélaginu Cabo Norte S.A. á Spáni af Síldarvinnslunni fyrir 4,9 milljónir evra. Virði hlutarins byggir á því að verðmæti Cabo Norte S.A. sé 1,3 sinnum bókfært virði eigin fjár félagsins í lok árs 2022. Velta Ice Fresh Seafood ehf. var 337 milljónir evra árið 2022 og velta erlendu sölufélaganna var 194 milljónir evra. Samanlögð velta að teknu tilliti til sölu milli félaga var 485 milljónir evra. Samanlögð EBITDA félaganna var 6,7 milljónir evra leiðrétt fyrir einskiptis kostnaði hjá Ice Fresh Seafood ehf. vegna stríðsins í Úkraínu.
Kaupin eru háð niðurstöðu áreiðanleikakönnunnar og samþykki Samkeppniseftirlitsins á þeim. Áhrif kaupanna verða ekki færð í reikningsskil samstæðunnar fyrr en öllum skilyrðum hefur verið fullnægt og fyrirvörum aflétt.
Félagið S2002 ehf. (áður Seley ehf.) sem er í 100% eigu Síldarvinnslunnar var sameinað móðurfélagi sínu undir nafni Síldarvinnslunnar hf. frá og með 1. janúar 2023.
Jarðhræringar sem og eldsumbrot hafa haldið áfram á Reykjanesskaganum í nálægð við Grindavík en dótturfélagið Vísir ehf. er með frystihús og saltfiskvinnslu í Grindavík.
Saltfiskvinnsla hófst fljótlega í byrjun árs 2024 og vonir stóðu til að fólki yrði heimilað að vera í bænum og vinnsla í frystihúsinu gæti hafist.
Þann 13. janúar gaf ríkislögreglustjóri út að bærinn yrði rýmdur frá 15. janúar á meðan áhættumat færi fram. Hinn 14. janúar hófst hins vegar eldgos. Var neyðarstigi lýst yfir og bærinn lokaður til 29. janúar þegar verðmætabjörgun var heimiluð. Á tímabilinu fór bæði rafmagn og heitt vatn af bæjarfélaginu en eignir Vísis sluppu við verulegt tjón af völdum þess. Beint tjón varð á léttsöltuðum afurðum sem voru í vinnslu en verðmæti þeirra var óverulegt.
Samþykkt voru lög á Alþingi um uppkaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík en lögin taka ekki til atvinnuhúsnæðis. Ljóst er að rekstur er ekki einfaldur í bæjarfélagi án íbúa. Auk óvissu um framhald atburðanna ríkir einnig óvissa um lagatúlkanir sem snerta vátryggingarvernd við þær aðstæður sem ríkja á svæðinu.
Gripið var til bráðabirgðaaðgerða til að tryggja vinnslu á saltfiski til að bregðast við óvissunni í Grindavík. Hófst vinnsla í Cuxhaven í Þýskalandi um miðbik janúar og í byrjun febrúar var ein framleiðslulína flutt í húsnæði Síldarvinnslunnar í Helguvík til vinnslu þar. Hefur starfsemin á báðum stöðum gengið vel.
Í febrúar voru 130 starfsmenn teknir af launaskrá hjá Vísi og settir yfir á úrræði ríkisins vegna náttúrhamfaranna sem gilda út júni. Ráðningarsamband helst þó áfram.
Atburðirnir hafa einnig áhrif á dótturfélag Vísis, Mar Guesthouse ehf., sem rekur gistiheimili og verbúð í Grindavík. Vísir á ennfremur 25% í Marine Collagen ehf. sem hefur orðið fyrir rekstrarstöðvun og tjóni á húsnæði félagsins. Haustak hausaþurrkun sem Vísir á 50% hlut í hefur orðið fyrir tekjumissi vegna samdráttar í aðgengi að hráefni sem rekja má til náttúruhamfaranna.
Áframhaldandi starfsemi og rekstrargrundvöllur í Grindavík er til skoðunar en við mat á því skiptir öryggi starfsfólks og vátryggingarvernd miklu máli. Þá skiptir einnig máli hvort og þá með hvaða hætti stjórnvöld koma til móts við atvinnulífið í Grindavík, en ekkert liggur fyrir um slíkt á þessari stundu.
Í meðfylgjandi töflu er annars vegar brunabótarmat eigna Vísis í Grindavík og hins vegar bókfært virði þeirra. (Fjárhæðir í EUR).
| Fasteigna- mat, hús |
Fasteigna- mat, lóð |
Vátrygginga- mat |
Bókfært verð |
|
|---|---|---|---|---|
| Fasteignir og lóðir | 7.301.993 | 1.053.289 | 35.210.895 | 8.974.852 |
| Skip og fylgihlutir | 47.000.000 | 15.914.348 | ||
| Vélar og tæki, eignatryggingar | 26.957.000 | 5.076.482 | ||
| Birgðir | 5.350.000 | 3.835.551 | ||
| 7.301.993 | 1.053.289 | 114.517.895 | 33.801.233 |
Það er ljóst að sú röskun sem orðið hefur á starfsemi Vísis hefur valdið tjóni í formi tapaðrar framlegðar. Stjórnendur telja hins vegar rekstrarhæfi félagsins og samstæðunnar ekki vera í hættu. Unnið er að þvi að móta framtíðarstefnumörkun fyrir reksturinn.
Rekstur samstæðunnar á árinu 2022 greinist þannig eftir ársfjórðungum:
| 4 F | 3 F | 2 F | 1 F | ||
|---|---|---|---|---|---|
| 2022 | 2022 | 2022 | 2022 | Samtals | |
| Seldar vörur | 63.185.823 | 79.257.118 | 67.088.086 | 100.567.036 | 310.098.063 |
| (Tap) hagnaður af sölu eigna | 15.237 | 0 | 0 | 0 | 15.237 |
| Rekstrartekjur | 63.201.060 | 79.257.118 | 67.088.086 | 100.567.036 | 310.113.300 |
| Kostnaðarverð seldra vara | 23.473.126 | 32.476.445 | 28.808.358 | 47.257.599 | 132.015.528 |
| Laun, aflahlutir | |||||
| annar starfsmannakostnaður | 16.683.948 | 17.062.383 | 12.576.731 | 18.506.127 | 64.829.189 |
| Annar rekstrarkostnaður | 2.482.773 | 1.476.809 | 2.352.222 | 2.322.460 | 8.634.264 |
| Rekstrargjöld | 42.639.847 | 51.015.637 | 43.737.311 | 68.086.186 | 205.478.981 |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir | 20.561.213 | 28.241.481 | 23.350.775 | 32.480.850 | 104.634.319 |
| Afskriftir fastafjármuna | 5.254.965 | 2.777.567 | 3.141.156 | 3.060.509 | 14.234.197 |
| Rekstrarhagnaður | 15.306.248 | 25.463.914 | 20.209.619 | 29.420.341 | 90.400.122 |
| Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) | (4.528.472) | (3.106.500) | 3.046.488 | 4.277.843 | (310.641) |
| Áhrif af rekstri hlutdeildarfélaga | 1.680.046 | (862.448) | (787.870) | 1.063.568 | 1.093.296 |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 12.457.822 | 21.494.966 | 22.468.237 | 34.761.752 | 91.182.777 |
| Tekjuskattur | (1.623.775) | (4.875.720) | (3.856.832) | (7.457.937) | (17.814.264) |
| Hagnaður af áframhaldandi starfsemi | 10.834.047 | 16.619.246 | 18.611.405 | 27.303.815 | 73.368.513 |
| Söluhagnaður fastafjármuna | |||||
| sem haldið er til sölu | 2.238.874 | 0 | 0 | 2.238.874 | |
| Hagnaður tímabilsins | 13.072.921 | 16.619.246 | 18.611.405 | 27.303.815 | 75.607.387 |
Rekstur samstæðunnar á árinu greinist þannig eftir ársfjórðungum:
| 4 F | 3 F | 2 F | 1 F | ||
|---|---|---|---|---|---|
| 2023 | 2023 | 2023 | 2023 | Samtals | |
| Seldar vörur | 86.111.487 | 106.827.513 | 79.516.215 | 131.469.183 | 403.924.398 |
| Hagnaður af sölu eigna | 710.338 | 21.609 | 34.682 | 9.879 | 776.508 |
| Rekstrartekjur | 86.821.825 | 106.849.122 | 79.550.897 | 131.479.062 | 404.700.906 |
| Kostnaðarverð seldra vara | 35.266.568 | 43.537.591 | 34.219.334 | 59.843.395 | 172.866.888 |
| Laun, aflahlutir og | |||||
| annar starfsmannakostnaður | 23.720.771 | 25.187.271 | 22.111.447 | 29.724.734 | 100.744.223 |
| Annar rekstrarkostnaður | 2.434.524 | 2.440.016 | 2.104.736 | 2.351.187 | 9.330.463 |
| Rekstrargjöld | 61.421.863 | 71.164.878 | 58.435.517 | 91.919.316 | 282.941.574 |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir | 25.399.962 | 35.684.244 | 21.115.380 | 39.559.746 | 121.759.332 |
| Afskriftir fastafjármuna | 7.410.491 | 4.459.597 | 4.417.747 | 4.945.535 | 21.233.370 |
| Rekstrarhagnaður | 17.989.471 | 31.224.647 | 16.697.633 | 34.614.211 | 100.525.962 |
| Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) | (5.628.628) | (1.731.804) | 1.033.252 | 398.016 | (5.929.164) |
| Áhrif af rekstri hlutdeildarfélaga | 557.210 | (3.208.710) | (1.168.138) | 1.428.451 | (2.391.187) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 12.918.053 | 26.284.133 | 16.562.747 | 36.440.678 | 92.205.611 |
| Tekjuskattur | (2.296.695) | (6.218.252) | (3.341.768) | (6.913.114) | (18.769.829) |
| Hagnaður tímabilsins | 10.621.358 | 20.065.881 | 13.220.979 | 29.527.564 | 73.435.782 |
Meginmarkmið stjórnarháttaryfirlýsingar Síldarvinnslunnar hf. (Síldarvinnslan) er að skýra með gagnsæjum hætti hlutverk og ábyrgð stjórnenda hennar til að auðvelda þeim að rækja störf sín og um leið að treysta hag hluthafa og annarra hagaðila.
Stjórnarhættir félagsins byggja á lögum nr. 2/1995 um hlutafélög, samþykktum félagsins, starfsreglum stjórnar auk þess að taka að mestu mið af leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, 6. útgáfu, gefnum út af Viðskiptaráði Íslands, Nasdaq OMX Iceland hf. og Samtökum atvinnulífsins.
Samþykktir félagsins, starfsreglur stjórnar, starfsreglur endurskoðunarnefndar og starfsreglur starfskjaranefndar er að finna á heimasíðu Síldarvinnslunnar, www.svn.is
Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja, 6. útgáfu 2021 er að finna á heimasíðu Viðskiptaráðs, www.vi.is.
Síldarvinnslan er eitt af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins og er stærsti framleiðandi uppsjávarafurða á Íslandi. Félagið leggur áherslu á sjálfbæra nýtingu sjávarauðlindarinnar, þar sem leitast er við að nota nýjustu tækni sem völ er á til veiða og vinnslu.
Samstæða Síldarvinnslunnar er með starfsemi á fimm stöðum á landinu og samanstendur af móðurfélaginu, Síldarvinnslunni hf. og dótturfélögum þess; Bergi-Hugin ehf. og dótturfélagi þess, Vísi ehf. og dótturfélögum þess, Fóðurverksmiðjunni Laxá hf. og Fjárfestingarfélaginu Vör ehf. Félagið hefur að leiðarljósi að hámarka verðmæti með sem minnstum umhverfisáhrifum. Þar er sérstök áhersla lögð á framkvæmdir sem minnka kolefnisspor félagsins, hagkvæmari skip og útskiptingu á mengandi orkumiðlum fyrir endurnýjanlega orkugjafa þar sem því verður við komið.
Síldarvinnslan starfar eftir lögum og reglum sem lúta að rekstri fiskiskipa, nýtingu fiskveiðiauðlindarinnar og matvælaframleiðslu, auk þess sem framleiðsla félagsins er vottuð af alþjóðlegum vottunaraðilum. Starfsemi Síldarvinnslunnar lýtur opinberu eftirliti stofnana sem framfylgja lögum og reglum og eru helstu starfsstöðvar og rekstur skipakosts háðar leyfisveitingu opinberra aðila. Lögð er áhersla á að farið sé að lögum og reglum í starfsemi félagsins. Það er gert með skilvirkum verkferlum og góðu samstarfi við eftirlitsaðila.
Áhættustýring og innra eftirlit er samofin góðum stjórnarháttum. Stjórn og stjórnendur Síldarvinnslunnar leggja ríka áherslu á að byggja upp sterka áhættuvarnarmenningu með því meðal annars að viðhalda góðu eftirlitsumhverfi með skjalfestum stefnum, reglum og ferlum sem styðja við rekstur félagsins.
Daglegur rekstur er í höndum stjórnenda félagsins þar sem leitast er við að hafa verkferla og eftirlit með áhættuþáttum rekstrarhluta af daglegum rekstri. Áætlanagerð og uppgjör gegna mikilvægu hlutverki í innra eftirliti með rekstrarþáttum og er farið reglulega yfir rekstur einstakra deilda með stjórn félagsins.
Ársreikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla samanber 93.gr. laga um ársreikninga nr. 3/2006. Ársreikningurinn er settur fram í bandaríkjadollurum (USD) sem er starfrækslugjaldmiðill samstæðunnar. Fjármáladeild Síldarvinnslunar sér um gerð reikningskila.
Stjórn ber ábyrgð á skipun endurskoðunarnefndar og skal það gert eigi síðar en mánuði eftir aðalfund. Endurskoðunarnefnd hefur verið skipuð og henni settar starfsreglur og voru þær síðast staðfestar á stjórnarfundi Síldarvinnslunnar hinn 27. janúar 2022. Sú nefnd, skal meðal annars hafa eftirlit með gerð reikningsskila, eftirlit með fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits og áhættustýringar auk þess að hafa eftirlit með endurskoðun ársreiknings og samstæðureiknings félagsins. Endurskoðunarnefndin gefur stjórn álit sitt á reikningsskilunum áður en þau eru lögð til samþykktar stjórnar. Þá skal endurskoðunarnefnd setja fram tillögur til stjórnar um val á ytri endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki. Hún skal og meta óhæði endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis og hafa eftirlit með öðrum störfum ytri endurskoðenda.
Stærstu áhættuþættir í rekstri eru tengdir tekjustreymi, fjármögnun og samsetningu gjaldmiðla félagsins. Starfsemin er vertíðabundin þar sem oft er framleitt mikið magn á stuttum tíma fyrir mikil verðmæti, getur þá orðið mikil tímamunur á því hvenær tekjurnar skila sér inn.
Fjárhagslegir áhættuþættir í starfsemi félagsins eru tengdir tekjustreymi, fjármögnun og samsetningu gjaldmiðla. Markaðsáhætta vegna markaðsverðs á erlendum gjaldmiðlum og vöxtum hefur áhrif á afkomu samstæðunnar.
Forstjóri og fjármálastjóri hafa heimild til að gera framvirka samninga til takmörkunar á gengis- og vaxtaáhættu félagsins og eins til að tryggja framtíðartekjustreymi.
Áhættustýring Síldarvinnslunnar felst í því að greina, meta og stýra lykiláhættuþáttum. Stjórn og stjórnendur vinna að því að móta og formfesta enn frekar áhættustefnu félagsins. Farið er reglulega yfir áhættuþætti og áhættustýringu með stjórn og hún upplýst um stöðu mála. Hluti af áhættustýringunni snýst um daglegt eftirlit með áhættuþáttum og er það hluti af daglegum rekstri stjórnenda að vakta þessa þætti.
Æðsta vald Síldarvinnslunnar er í höndum lögmætra hluthafafunda. Samkvæmt samþykktum er stjórn kosin á aðalfundi félagsins ár hvert. Stjórnin er skipuð fimm aðalmönnum og tveimur til vara, stjórnarkjör er skriflegt ef kosið er um fleiri menn en kjósa skal. Við kosningu stjórnar skal tryggt að hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en 40%. Stjórnin kýs sér formann úr sínum hópi, afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundum, en falli atkvæði jafnt, ræður atkvæði formanns. Stjórn á samskipti við hluthafa í samræmi við ákvæði laga, samþykktir félagsins og starfsreglur stjórnar. Hluthafafundir eru haldnir að minnsta kosti einu sinni á ári eða oftar ef þurfa þykir. Alls var haldin einn hlutahafafundur á árinu 2023, þar sem mæting var yfir 90%.
Stjórn Síldarvinnslunnar fer með æðsta vald í málefnum Síldarvinnslunnar milli hluthafafunda. Henni ber að stuðla að viðgangi félagsins og hafa eftirlit með daglegum rekstri þess. Stjórn ber ábyrgð á stefnumótun Síldarvinnslunnar og leggur mat á það hvernig henni er hrint í framkvæmd. Stjórnin hefur, ásamt forstjóra, forystu um að móta stefnu, setja markmið og skilgreina áhættuviðmið Síldarvinnslunnar. Henni ber að tryggja virkt eftirlitskerfi sem meðal annars felst í því að fyrirkomulag áhættustýringar og innra eftirlits sé formlegt, skjalfest og í reglulegri vöktun. Stjórnin sér um að gæta hagsmuna allra hluthafa og að gæta jafnræðis milli þeirra. Stjórnin sér til þess að félagið starfi samkvæmt lögum og reglum. Þá hefur stjórnin með höndum ráðningu og uppsögn forstjóra félagsins. Forstjóri annast daglegan rekstur félagsins í samræmi við stefnu stjórnar.
Stjórn kappkostar að tryggja vöxt og velferð félagsins, þannig hefur ríkt einhugur í stjórn um uppbyggingu síðustu ára í uppsjávarveiðum og - vinnslu, auk fjárfestinga í bolfiskveiðum og -vinnslu. Með þeim fjárfestingum hefur verið lagður grunnur að framtíðaruppbyggingu félagsins, en rekstur sem þessi krefst stöðugrar framþróunar og fjárfestinga sem ríkir einhugur um. Stjórnin vinnur stöðugt með stjórnendum að stefnu félagsins, sem er í sífelldri þróun og aðlögun að fjölbreytilegu umhverfi og ytri aðstæðum.
Samkvæmt starfsreglum stjórnar, sem voru samþykktar á stjórnarfundi þann 7. apríl 2021, skal stjórnin árlega meta störf sín, stærð, samsetningu, verklag og starfshætti, svo og störf undirnefnda og frammistöðu forstjóra. Stjórnin skal jafnframt yfirfara og meta þróun félagsins og hvort hún sé í samræmi við markmið og áætlanir.
Fundir stjórnar eru með þeim hætti að þeir eru haldnir að minnsta kosti einu sinni í mánuði, en ef til kemur breyting á fundum er leitast við að tímasetningar henti sem flestum stjórnarmönnum. Þegar fundir eru boðaðir er leitast við að velja þeim tíma sem hentar öllum stjórnarmönnum. Við fundi er nýttur fjarfundabúnaður þar sem stjórnarmenn eru dreifðir um landið.
Hluthafar félagsins eru 3370 talsins en tíu stærstu hluthafar félagsins fara með 80,46% hlutafjár í félaginu.
Hlutabréf Síldarvinnslunnar eru rafrænt skráð hjá Nasdaq CSD. ISIN is000000479. Að jafnaði er haldinn einn hluthafafundur á ári, nema upp komi atburðir eða breytingar sem kalla á fleiri. Fundargerðir og önnur gögn hluthafafunda eru aðgengileg á heimasíðu félagsins.
Stjórnarmenn eru fulltrúar hluthafa félagsins og hafa sem slíkir kappkostað að tryggja vöxt og velferð félagsins.
Anna Guðmundsdóttir, meðstjórnandi, fyrst kjörin í stjórn 2013. Fæðingardagur 13. mars 1967. Anna er með Cand. Oecon í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og starfar sem fjármálastjóri Gjögurs hf. Anna er jafnframt framkvæmdastjóri Þingstaða ehf. og prókúruhafi í Hrólfsskeri ehf.
Anna situr í stjórnum eftirfarandi félaga: Gjögurs hf., Kjálkaness ehf., Gjögurtá ehf., StorMar ehf., Loftleiða Cabo Verde ehf., Lögmannsstofu Jörundar Gaukssonar ehf. og Kallnesings ehf.
Anna á 22,54% eignarhlut í Kjálkanesi ehf. sem á 16,06% hlut í Síldarvinnslunni hf. Hún á ekki hluti í eigin nafni í Síldarvinnslunni
hf. Anna er óháð félaginu og daglegum stjórnendum þess en telst háð stórum hluthafa samkvæmt leiðbeiningum um stjórnarhætti.
Erla Ósk Pétursdóttir, meðstjórnandi, fyrst kjörin í stjórn 2023. Fæðingardagur 8. september 1980. Erla Ósk Pétursdóttir, meðstjórnandi, fyrst kjörin í stjórn 2023. Erla er með B.A. próf í hagfræði og tölvunarfræði frá Macalester College í Bandaríkjunum og MBA próf frá Háskólanum í Reykjavík. Hún starfar í dag sem framkvæmdastjóri Marine Collagen ehf. Áður var hún meðal annars mannauðstjóri hjá Vísi hf. um fjögurra ára skeið.
Erla Ósk situr jafnframt í stjórnum Fisktækniskólans, Codland, Fiskifélagsins, 55105 ehf. Og Útvegsmannafélags Suðurnesja.
Erla Ósk á 100% eignarhlut í 55105 ehf. sem á 0,12% hlut í Síldarvinnslunni hf. Hún á ekki hluti í eigin nafni í Síldarvinnslunni hf.
Erla telst óháð stórum hluthöfum félagsins en telst háð félaginu og daglegum stjórnendum samkvæmt "Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja" sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út 1. júlí 2021.
Guðmundur R. Gíslason, varaformaður, fyrst kjörinn í stjórn 2016. Fæðingardagur 19. febrúar 1970. Guðmundur er með B.ed. gráðu í kennsluvísindum. Hann starfar í dag sem framkvæmdastjóri Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað, Olíusamlags útvegsmanna í Neskaupstað og Múlans samvinnuhúss ehf. Hann var áður framkvæmdastjóri Egilsbúðar í Neskaupstað, mannauðsstjóri ESS á Íslandi og framkvæmdastjóri Sjónaráss ehf.
Guðmundur situr jafnframt í stjórnum eftirtalinna félaga: Hrólfssker ehf., ÍS-TRAVEL AUSTURLAND ehf., Múlinn samvinnuhús ehf., B.G. Bros ehf., Rekstrarfélagið Molinn, Krabbameinsfélag Austfjarða, Vinir Ingvars, félagasamtök og Bærinn okkar, félagasamtök.
Guðmundur er, eins og áður hefur komið fram, framkvæmdastjóri Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað og Olíusamlags útvegsmanna í Neskaupstað sem eiga samtals í árslok 10,87% hlut í félaginu. Hann á ekki hluti í eigin nafni í Síldarvinnslunni hf.
Guðmundur er óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess en telst háður stórum hluthafa samkvæmt leiðbeiningum um stjórnarhætti
Baldur Már Helgason, meðstjórnandi, fyrst kjörinn í stjórn 2021. Fæðingardagur 6. mars 1976. Baldur er með Cand.sci. próf í vélaog iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands 2000, lauk Advanced Management Program (AMP) frá IMD háskólanum í Sviss 2022 og er með löggilt próf í verðbréfaviðskiptum. Hann starfar í dag sem framkvæmdastjóri verslunar-, þjónustu- og viðskiptaþróunar hjá Reginn hf. Hann var áður framkvæmdastjóri Eyju fjárfestingarfélags á árunum 2017-2019, fjárfestinga- og sjóðsstjóri hjá Auði Capital árin 2009-2016 og fjárfestinga- og lánastjóri hjá Íslandsbanka, m.a. í Bandaríkjunum og Danmörku á árunum 2000-2009.
Baldur er auk þess skráður framkvæmdastjóri eftirfarandi félaga: Smáralindar ehf. og Eignarhaldsfélagsins Smáralindar ehf.
Baldur hefur setið í á þriðja tug stjórna m.a. hjá Skeljungi, Sýn, Securitas, Já, Íslenska Gámafélaginu og Domino´s Íslandi og í Noregi. Baldur situr ekki í stjórnum annarra félaga í dag.
Baldur á í lok árs 17.241 hluti í Síldarvinnslunni hf. Baldur telst óháður félaginu og daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður, fyrst kjörinn 2003. Fæðingardagur 7. október 1952. Þorsteinn er með skipstjórnarréttindi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík og skipaverkfræðingur frá Norges Tekniske Högskole. Þorsteinn er stofnandi og forstjóri Samherja hf. og hefur gengt því starfi frá 1983. Hann er jafnframt framkvæmdastjóri Samherja Ísland ehf., Seleyjar ehf., Sæbóls fjárfestingarfélags ehf., og Oddeyrartanga ehf.
Þorsteinn situr í stjórnum eftirfarandi félaga: Samherji Fiskeldi ehf., 600 Eignarhaldsfélag ehf., Barðstún ehf., Eignarhaldsfélagið Steinn ehf., S2002 ehf., Ice Tech ehf., Krossanes ehf., Oddeyri ehf., Rif ehf., Samherjasjóðurinn ehf., Sigurafl ehf., Snæfell ehf. Þorsteinn er auk þess með prókúruumboð fyrir Ice Fresh Seafood ehf.
Þorsteinn er forstjóri Samherja hf. sem á 30,06% hlut í Síldarvinnslunni hf. Hann á í árslok 1.000.000 hluti eða 0,05% í eigin nafni í Síldarvinnslunni hf.
Þorsteinn er óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess en telst háður stórum hluthafa samkvæmt leiðbeiningum um stjórnarhætti.
Arna Bryndís Baldvins McClure, varamaður, fyrst kjörin í stjórn 2013 og í endurskoðunarnefnd frá árinu 2021. Fæðingardagur 2. júlí 1985. Hún er með ML-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og útskrifaðist með Executive MBA gráðu frá IESE háskólanum í Barcelona í júní 2023. Hún starfaði hjá LEX lögmannsstofu frá 2010-2013 og sem yfirlögfræðingur Samherja hf. frá 2013-2021. Arna var ráðin tímabundið til sex mánaða í vinnu hjá Síldarvinnslunni frá nóvember 2023.
Arna situr jafnframt í stjórnum eftirfarandi félaga: Emerald Invest ehf., Omnia Invest ehf. og Flugskóla Íslands ehf.
Arna á í lok árs 32.100 hluti í eigin nafni í Síldarvinnslunni hf., eða 0,002%
Arna er háð félaginu og daglegum stjórnendum og telst háð stórum hluthafa samkvæmt leiðbeiningum um stjórnarhætti.
Ingi Jóhann Guðmundsson, varamaður, fyrst kjörinn í stjórn 2001. Fæðingardagur 12. janúar 1969. Hann er með Cand. Oecon í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og starfar sem framkvæmdastjóri Gjögurs hf., Kjálkaness ehf. og Gjögurtáar ehf.
Ingi situr jafnframt í stjórnum eftirfarandi félaga: K.R.- sports hf., Loftleiða Cabo Verde ehf., Hrólfsskers ehf., Sjóvá-Almenna trygginga hf., Jarðbaðanna ehf., Norðurbaða ehf., Pharmarctica ehf. og StorMar ehf.
Ingi á 22,54% eignarhlut í Kjálkanesi ehf. sem á 16,06% hlut í Síldarvinnslunni hf. Hann á ekki hluti í eigin nafni í Síldarvinnslunni hf.
Ingi er óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess, en telst háður stórum hluthafa samkvæmt leiðbeiningum um stjórnarhætti.
Gunnþór Björn Ingvason, forstjóri. Fæðingardagur 11. nóvember 1968. Gunnþór er iðnaðartæknifræðingur frá Tækniskóla Íslands. Hann hóf árið 1996 störf hjá SR Mjöli hf. og annaðist þar innkaup á hráefni og gæðamál. Við sameiningu SR Mjöls hf. og Síldarvinnslunnar hf. varð hann aðstoðarmaður forstjóra Síldarvinnslunnar, síðar útgerðarstjóri og hefur verið forstjóri frá 2007. Gunnþór er jafnframt framkvæmdastjóri Fóðurverksmiðjunnar Laxár ehf., Bergs-Hugins ehf. og Bergs ehf.
Gunnþór situr jafnframt í stjórnum eftirfarandi félaga: Fóðurverksmiðjunnar Laxá ehf., Vísis ehf., Bergs ehf., Atlantic Coast Fisheries Corp., Fasteignafélagsins Miðhúss ehf., Bergs-Hugins ehf., Fjárfestingarfélagsins Varar ehf., Hraunlóns ehf., L1197 ehf., Polar Pelagic A.S., Arctic Fish Holding A.S., F.V. Holding LLC., Sjávarmála ehf., Daðeyjar ehf., MAR Guesthouse ehf. og Þorvís ehf.
Gunnþór á 60% hlut í L1197 ehf. sem á 100% hlut í Hraunlóni ehf. sem á 0,94% hlut í Síldarvinnslunni hf. Hann á í lok árs 100.206 hluti í eigin nafni í Síldarvinnslunni hf eða 0,01%.
Axel Ísaksson, fjármálastjóri. Fæðingardagur 22. september 1964. Hann er með Cand. Oecon í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Hann hóf störf á fjármálasviði Síldarvinnslunnar hf. á árinu 1992 og varð fjármálastjóri félagsins 2007. Axel er jafnframt skráður framkvæmdastjóri Fjárfestingafélagsins Varar ehf.,
Axel situr jafnframt í stjórnum eftirfarandi félaga: Olíusamlags útvegsmanna í Neskaupstað svf., Hraunlóns ehf., L1197 ehf., Bergs-Hugins ehf, Bergs ehf., Fjárfestingarfélagsins Varar ehf., Vísis ehf. og Atlantic Coast Fisheries.
Axel á 20% hlut í L1197 ehf. sem á 100% hlut í Hraunalóni ehf. sem á 0,94% hlut í Síldarvinnslunni hf. Hann á í lok árs 25.000 hluti í eigin nafni í Síldarvinnslunni hf. eða tæp 0,0014%.
Jón Már Jónsson, yfirmaður landvinnslu. Fæðingardagur 1. febrúar 1957. Hann er vélfræðingur frá Vélskóla Íslands. Hann hefur starfað sem yfirmaður landvinnslu Síldarvinnslunnar frá 2008.
Jón situr jafnframt í stjórnum eftirfarandi félaga: Félags íslenskra fiskmjölsframleiðenda, Rauðaþings ehf., G. Skúlason vélaverkstæðis ehf., L1197 ehf., Múlans samvinnuhúss ehf., Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað.
Jón á 20% hlut í L1197 ehf. sem á 100% hlut í Hraunalóni ehf. sem á 0,94% hlut í Síldarvinnslunni hf. Hann á 23.482 hluti í eigin nafni í Síldarvinnslunni hf. eða tæp 0,0013%
Árið 2020 gerðist Síldarvinnslan ásamt fleiri sjávarútvegsfyrirtækjum aðili að samfélagsstefnunni "Ábyrgur sjávarútvegur í sátt við umhverfi og samfélag". Stefnan var unnin innan vébanda Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Stefnan grundvallast á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Við gerð stefnunnar var tekið samtal um sjávarútveg og voru kallaðir til fjölmargir hagsmunaaðilar í greininni. Stefnan verður því grunnurinn í samfélagsábyrgð Síldarvinnslunnar til frambúðar.
Síldarvinnslan gefur árlega út samfélagsskýrslu og er í henni að finna stefnu félagsins í samfélagsmálum. Henni er ætlað að auka gagnsæi, bæta vinnubrögð og efla umhverfisvitund. Er skýrslan skrifuð að fyrirmynd alþjóðlega staðalsins GRI standards (e. Global Reporting Initiative standards). Skýrslurnar má finna á vefsvæði Síldarvinnslunnar www.svn.is.
Meginmarkmiðin á sviði samfélagsmála eru þau að Síldarvinnslan vill hafa jákvæð áhrif á samfélagið og nærumhverfi sitt. Nauðsynlegt er fyrir félagið að skynja að íbúar séu ánægðir með starfsemi og þátttöku félagsins í uppbyggingu samfélagsins. Árlega eru veittir styrkir til góðra málefna og stutt við bakið á ýmsum samtökum, annað hvort með beinum styrkjum og gjöfum eða kaupum á auglýsingum.
Félagið hefur ekki skjalfest sérstaka stefnu í styrkjum til stjórnmálaflokka en þeir flokkar sem óska eftir styrk og eiga kjörna fulltrúa á þingi hafa fengið úthlutað leyfilegu hámarksframlagi. Félagið er í öflugu samstafi við menntastofnanir á öllum stigum náms og var frumkvöðull í stofnun Sjávarútvegsskóla Austurlands sem nú hefur fengið sess innan Háskólans á Akureyri. Síldarvinnslan hefur einnig átt gott samstarf við stofnanir og fyrirtæki sem sinnt hafa rannsóknum á sviði sjávarútvegs, matvælaiðnaðar og orku.
Auk starfskjarastefnu hefur Síldarvinnslan sett sér starfsmannastefnu og stefnu og viðbragðsáætlun gegn einelti, kynferðislegri og kynbundinni áreitni og ofbeldi. Þá hefur félagið hlotið jafnlaunavottun frá árinu 2018 og hefur í gildi jafnréttisáætlun.
Persónuverndarstefna Síldarvinnslunnar tók gildi 7. nóvember 2018.
Siðareglur voru samþykktar á árinu 2021 en Síldarvinnslan leggur ríka áherslu á heilindi og gott siðferði starfsfólks í daglegum störfum fyrir samstæðuna.
Síldarvinnslan hefur undanfarið unnið að uppsetningu uppljóstrunarkerfis innan samstæðunnar. Kynntar hafa verið reglur fyrir starfsfólki í landvinnslu en unnið er að uppsetningu nafnlauss ábendingakerfis fyrir alla starfsmenn. Er stefnt að því að þeirri vinnu ljúki sem fyrst á þessu ári.
Engar athugasemdir frá viðeigandi eftirlits- og eða úrskurðaraðilum, sem fólu í sér viðurlög vegna brota á lögum og reglum, komu fram á árinu 2023. Engin dómsmál eru í gangi gagnvart félaginu.
Síldarvinnslan hf. er eitt af leiðandi sjávarútvegsfyrirtækjum landsins og spannar saga fiskvinnslu og útgerðar félagsins rúm 65 ár. Starfsemi Síldarvinnslunnar og dótturfélaga (samstæðan) er á fimm stöðum á landinu, auk þess sem dótturfélag samstæðunnar á aðild að erlendum sölu- og framleiðslufélögum í Þýskalandi, Spáni og Grikklandi. Félagið á hlutdeildarfélög í Bandaríkjunum og á Grænlandi. Samstæðan gerir út fjögur uppsjávarskip sem veiddu samtals 195 þúsund tonn á árinu 2023 og fjögur ísfiskskip sem veiddu 17.570 tonn. Frystitogari samstæðunnar veiddi 7.348 tonn. Línuskip félagsins veiddu 11.873 tonn og krókaaflamarksskip félagsins veiddu 1.713 tonn á árinu 2023. Fiskimjölsverksmiðjurnar tóku á móti 261 þúsund tonnum af hráefni. Unnar voru afurðir úr 62 þúsund tonnum af hráefni í uppsjávarfiskiðjuverinu Neskaupstað og bolfiskvinnslan á Seyðisfirði tók á móti 2.189 tonnum af hráefni. Saltfiskvinnsla í Grindavík tók á móti 7.335 tonnum af hráefni og bolfiskvinnslan í Grindavík tók á móti 9.117 tonnum af hráefni á árinu 2023.
Starfsemi samstæðunnar byggir á nýtingu sameiginlegra auðlinda þjóðarinnar og er lögð áhersla á ábyrga og arðbæra viðskiptahætti. Síldarvinnslan hefur að leiðarljósi að hámarka verðmæti sjávaraflans á ábyrgan hátt með sem minnstum umhverfisáhrifum. Áhersla er lögð á að starfa eftir lögum og reglum, með sjálfbærum hætti, styðja við öflugt samfélag, skapa starfsmönnum góð kjör og öruggt vinnuumhverfi. Félagið hefur sett sér metnaðarfulla stefnu í starfsmannamálum sem miðar að því að skapa vinnuumhverfi sem einkennist af hvatningu, öryggi og góðum samskiptum.
Það er Síldarvinnslunni mikilvægt að starfa í blómlegu samfélagi, því hefur verið lögð áhersla á að styrkja íþrótta- og æskulýðsstarf, menningar- og góðgerðarmál í nærsamfélögum starfsstöðva samstæðunnar. Síldarvinnslan hefur jafnframt í gegnum tíðina stutt við starfsemi Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað með margvíslegum gjöfum og styrkjum með það að markmiði að auka þjónustu við íbúa á svæðinu.
Síldarvinnslan leggur áherslu á að eiga í góðu samstarfi við háskóla landsins, stofnanir og tæknifyrirtæki við margvísleg þróunar- og rannsóknaverkefni á sviði sjávarútvegs. Þessi verkefni eru mikilvægur liður í að stuðla að nýsköpun, framþróun, aukinni verðmætasköpun og þekkingaröflun í sjávarútvegi og er nánar fjallað um þau í samfélagsskýrslu félagsins.
Síldarvinnslan einsetur sér að vera fyrirmynd um ábyrga og arðbæra viðskiptahætti og vinna í sátt við umhverfi og samfélag á hverjum stað. Síldarvinnslan kappkostar að umgangast lífríki hafsins af virðingu og nýta sjávarauðlindina með sjálfbærum hætti. Lögð er áhersla á að fylgja ráðgjöf vísindamanna, þar sem stuðst er við bestu vitneskju hverju sinni, til að sjálfbærni fiskistofna til framtíðar sé tryggð og komandi kynslóðir fái notið góðs af. Samstæðan leggur ríka áherslu á að bæði veiðar og vinnsla uppfylli allar þær gæðakröfur sem lög og reglur gera ráð fyrir.
Síldarvinnslan framleiðir sínar afurðir eftir viðurkenndum stöðlum sem tryggja eiga m.a. sjálfbærni, rekjanleika og heilnæmi afurðanna. Samstæðan er með vottuð gæðastjórnunarkerfi sem styðja við þessi markmið. Þau eru Global TRUST (IFFO Global Standard for Resposible Supply, FEMAS (Feed Material Assurance Scheme), HACCP (Hazard Analysis and Critical Control Points), BRCGS (Global Food Safety Standard). Einnig er fyrirtækið með vottun frá Naturaland og Vottunarstofunni TÚN, sem eru vottanir um lífræna framleiðslu. Allar þessar vottanir eru teknar út reglulega af þar til bærum aðilum.
Með útgáfu samfélagsskýrslunnar eru umhverfisáhrif félagsins greind með ítarlegum og markvissum hætti og upplýsingar birtar um lykilmælikvarða með samanburði á milli ára, þ.á.m. kolefnisuppgjör félagsins. Það er nauðsynlegt til að greina stöðuna á áhrifum félagsins og leita tækifæra til að draga úr sóun og öðrum neikvæðum umhverfisáhrifum.
Olíunotkun við veiðar er langstærsti einstaki umhverfisþáttur starfseminnar. Olíunotkun sveiflast á milli ára en þar getur siglingavegalengd á miðin, samsetning afla og fleiri þættir spilað inn í. Skip samstæðunnar notuðu rúmlega 19,5 milljón lítra af olíu á síðasta ári sem er lítilleg aukning milli ára. Samdráttur varð hjá uppsjávarskipum félagsins en er það einkum skýrt með því að afli á sóknareiningu var betri en undanfarin ár og má þar sérstaklega nefna að styttra var að sækja kolmunna og veiðar gengu betur. Börkur, sem kom inn í rekstur félagsins um mitt ár 2021, er sparneytnari en eldri skip félagsins. Aukning í olíunotkun hjá bolfiskskipum félagsins sem skýrist af meiri sókn en árið áður.
Mesta orkunotkun í landvinnslunni er hjá fiskimjölsverksmiðjum en félagið rekur tvær fiskimjölsverksmiður. Verksmiðjurnar hafa verið raforkuvæddar og er markmiðið að keyra þær að stærstum hluta á rafmagni. Undanfarin ár hefur félagið þurft að sæta ítrekuðum skerðingum á afhendingu rafmagns til verksmiðjanna og hefur því olíunotkun í verksmiðjunum verið meiri en félagið hefði kosið. Á síðasta ári notuðu verksmiðjunnar 4,5 milljón lítra af eldsneyti sem er minnkun um 2,9 milljón lítra á milli ára. Á árinu 2023 var því rúmlega 63% af orku, sem notuð var í verksmiðjunum, fengin frá endurnýjanlegum orkugjöfum.
Á árinu 2023 var endurvinnsluhlutfall sorps um 68% en var 58% árið áður. Stærstu áhrifin í þessum málaflokki eru tilkomin vegna förgunar á veiðafærum, en öll veiðafæri eru flokkuð í landi og endurunnin að því marki sem unnt er.
Síldarvinnslan vill bjóða starfsfólki sínu upp á góða vinnuaðstöðu eins og tilgreint er í starfsmannastefnu félagsins. Hjá samstæðunni starfa 723 manns, alls eru 262 stöðugildi á sjó og með afleysingakerfum starfa um 270 sjómenn hjá félaginu. Í landvinnslunni eru fjölbreytt störf, þar sem starfræktar eru m.a. fiskimjölsverksmiðjur, uppsjávarfiskiðjuver og bolfiskvinnslur. Þetta eru allt krefjandi störf sem kalla á mismunandi þekkingu og hæfileika fólks. Þetta er vertíðabundin vinna þar sem unnið er á 12 tíma vöktum og sveiflast starfsmannafjöldinn töluvert á milli tímabila.
Nánari upplýsingar um skiptingu starfa er að finna í samfélagsskýrslu Síldarvinnslunnar.
Síldarvinnslan leggur áherslu á öryggi og heilsu starfsfólks og hefur komið upp skilgreindu verklagi til að tryggja öryggi starfsmanna. Áhersla er lögð á að nýta þekkingu starfsfólks til að greina og grípa tækifæri til umbóta í rekstri, sérstaklega í því skyni að auka öryggi og aðbúnað. Í þessu samhengi hefur verið gerður samningur við Sjómannaheilsu sem fylgist með heilsu starfsmanna og starfsmenn hafa þar aðgang að þjónustu ef eitthvað bjátar á. Læknir frá Sjómannaheilsu kemur reglulega og stendur starfsfólki til boða læknistímar hjá honum. Starfsmenn eru studdir til heilsuræktar með styrkjum einu sinni á ári. Stefnt er að útrýmingu vinnuslysa með markvissri vinnu og bættri heilsu starfsfólks með sífellt betri vinnuaðstöðu. Í lok árs 2023 var tekin ákvörðun um ráðningu öryggisstjóra til Síldarvinnslunnar og kom hann til starfa í febrúar 2024, væntingar eru til að ráðningin muni lækka slysatíðni og draga úr tíðni alvarlegra slysa. Frekari upplýsingar má sjá í samfélagsskýrslu Síldarvinnslunnar.
Það skiptir miklu máli að hafa á að skipa góðu og ánægðu starfsfólki. Í því skyni er reynt að bjóða upp á vinnuumhverfi sem einkennist af hvatningu, öryggi og góðum samskiptum.
Einelti, kynferðisleg og kynbundin áreitni og ofbeldi er undir engum kringumstæðum umborið á vinnustöðum samstæðunnar, hvorki í samskiptum starfsfólks né í samskiptum við starfsfólk verktaka, samstarfsaðila eða viðskiptavina. Hefur Síldarvinnslan sett sér stefnu og reglur til að taka á einelti, kynferðislegri kynbundinni áreitni og ofbeldi. Síldarvinnslan hefur sett sér persónuverndarstefnu í samræmi við persónuverndarlög.
Síldarvinnslan vill að það sé jafnrétti til launa og tækifæri til starfsþróunar innan félagsins, óháð kyni, þar sem litið skal til hæfileika hvers einstaklings. Félagið er með jafnlaunavottun sem sýnir að ekki er um kynbundinn launamun að ræða hjá því. Síldarvinnslan var fyrst íslenskra sjávarútvegsfélaga til að hljóta jafnlaunavottun og var hún endurnýjuð á árinu 2023.
Hjá Síldarvinnslunni er lögð áhersla á að starfsmenn sýni heilindi í starfi. Hvorki spilling né mútuþægni er liðin og vinnur félagið að því að setja formlegar siðareglur sem öllum starfsmönnum og stjórnendum ber að fara eftir. Þá hefur verið unnið að verklagsreglum um meðferð uppljóstrara og hafa þær verið kynntar stjórnendum og starfsfólki.
Evrópusambandið hefur samþykkt tilskipun um sjálfbærniupplýsingagjöf stórra og/eða skráðra fyrirtækja (e. Corporate Sustainability Reporting Directice (CSRD)). Tilskipunin mun koma í stað 66. gr. d í lögum um ársreikninga er fjallar um ófjárhagslega upplýsingagjöf. Með tilskipuninni fylgja nýir staðlar (e. European Sustainability Reporting Standards (ESRS)) en þeir eru mun ítarlegri en GRI staðallinn sem sjálfbærniupplýsingargjöf Síldarvinnslunnar hf. hefur byggt á. Síldarvinnslan vinnur að því að innleiðingu og aðlögun svo upplýsingagjöf um sjálfbærnimál uppfylli ESRS staðlana vegna reksturs ársins 2024.
Hinn 1. júní 2023 tók gildi á Íslandi Flokkunarreglugerð ESB, það gerðist með lög nr. 25/2023 (ESB 2020/852). Reglugerðin felur í sér kröfur til fyrirtækja um að þau meti hvort starfsemi þeirra teljist umhverfislega sjálfbær út frá eftirfarandi sex þáttum eða markmiðum.
Fyrirtækjum ber að meta að hve miklu leyti starfsemi þeirra fellur að ofannefndum markmiðum út frá ströngum viðmiðum.
Flokkunarkröfurnar eru enn í þróun og hefur kjarnastarfsemi Síldarvinnslunnar, fiskveiðar og – vinnsla, ekki enn verið innleidd af Evrópusambandinu. Ástæðan er sú að Evrópusambandið hefur forgangsraðað þeim atvinnugreinum sem helst valda neikvæðum loftslagsbreytingum og er sjávarútvegur og fiskvinnsla ekki á meðal þeirra.
Á undanförnum árum hefur verið unnið að því að minnka kolefnisspor Síldarvinnslusamstæðunnar með ýmsum fjárfestingum og aðgerðum til sjós og lands. Sumar aðgerðir hafa verið smáar í sniðum eins og samgöngustyrkir fyrir starfsfólk og fjárfesting í kolefnisjöfnuðum fartölvum, fjárfesting í hleðsluinnviðum fyrir bíla, fjárfesting í rafmagnslyfturum og rafdrifnum ökutækjum eða fjárfesting í varmadælum. Aðrar hafa verið stærri og falið í sér umfangsmiklar fjárfestingar. Má þar til dæmis nefna kaup á umhverfisvænni skipum, rafvæðingu fiskimjölsverksmiðjunnar í Neskaupstað og uppsetningu landtengingarbúnaðar við fiskiðjuverið í Neskaupstað, en búnaðurinn gerir það mögulegt að skipin noti einungis raforku þegar landað er. Eins ber að geta um að Síldarvinnslan hefur fest kaup á jörðinni Fannardal í Norðfirði og er áformað að nýta hana til skógræktar. Með skógræktinni verður stuðlað að bindingu kolefnis á móti þeirri kolefnislosun sem starfsemi fyrirtækisins veldur.
Þó fiskveiðar og fiskvinnsla heyri ekki enn undir flokkunarkröfur ESB hefur Síldarvinnslan engu að síður farið yfir veltu, fjárfestingarútgjöld og rekstrarútgjöld eins og hugtökin eru skilgreind í flokkunarreglugerðinni, með það í huga að greina að hve miklu leyti einstaka þættir starfseminnar falli undir kröfurnar. Þess skal getið að rekstrargjöld eru skilgreind mun þrengra en almennt gildir sem skýrir mun á fjárhæð þessa liðar í ársreikningi félagsins og í neðangreindu yfirliti. Yfirlitið byggir á framsetningu samkvæmt kröfum reglugerðarinnar.
Eins og bent hefur verið á uppfyllir afar takmarkaður hluti starfsemi Síldarvinnslunnar skilyrði til að teljast hæf starfsemi, þ.e. starfsemi sem fellur undir flokkunarreglugerðina þar sem kjarnastarfsemin hefur enn ekki verið felld undir ákvæði reglugerðarinnar. Síldarvinnslan mun eftir sem áður fylgjast með þróun og innleiðingu reglna á þessu sviði.
Sjá töflur á næstu þremur blaðsíðum sem innihalda upplýsingar um tekjur, fjárfestingargjöld og rekstrargjöld til samræmis við reglugerðina.
| Velta | Viðmið fyrir verulegt framlag | Viðmið fyrir verulegt framlag ("Veldur ekki verulegu tjóni") |
|||||||||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Atvinnustarfsemi (1) | Nú me r ( 2) |
He ild ar ve lta (3 ) |
Hl utf all ve ltu (4 ) |
M ót væ gi við flo tsl ag sb rey tin ga r ( 5) |
Að lög un að lo fts lag sb rey tin gu m (6) |
Va tn s- og sj áv ar au ðli nd ir ( 7) |
Hr ing ráð sa rh ag ke rfi ð (8) |
M en gu n ( 9) |
Lif fræ ðil eg fjö lbr ey tn i o g v ist ke rfi (1 0) |
M ót væ gi við lo fts lag sb rey tin ga r ( 11 ) |
Að lög un að lo fts lag sb rey tin gu m (12 ) |
Va tn s- og sj áv ar au ðli nd ir ( 13 ) |
Hr ing ráð sa rh ag ke rfi ð (14 ) |
M en gu n ( 15 ) |
Lif fræ ðil eg fjö lbr ey tn i o g v ist ke rfi (1 6) |
Lá gm ar ks ve (17 rn da ) rrá ðs taf an ir |
Hlutfall veltu sem fellur að flokkunar kerfinu, ár 2023 (18) |
Flokkur (starfsemi sem gerir annari starfsemi kleift að stuðla að umhverfis markmiðum) (20) |
Flokkur (um breytinga starfsemi) (21) |
| USD | % | % | % | % | % | % | % | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | % | E | T | ||
| A. STARFSEMI SEM FLOKKUNARKERFIÐ NÆR YFIR 0% |
|||||||||||||||||||
| A.1. Umhverfissjálfbær starfsemi (sem fellur að flokkunarkerfinu) | |||||||||||||||||||
| Sjóflutningar | 6.10 | 0,00 | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | 0% | ||
| Kaup og eignarhald á byggingum | 7.7 | 0,00 | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | 0% | ||
| Velta frá umhverfissjálfbærri starfsemi (sem fellur að flokkunarkerfinu) (A.1) | 0,00 | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | 0% | 0% | 0% | |
| A.2. Starfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir en er ekki umhverfissjálfbær (sem fellur ekki að flokkunarkerfinu) | |||||||||||||||||||
| Sjóflutningar | 6.10 | 0,00 | 0% | ||||||||||||||||
| Kaup og eignarhald á byggingum | 7.7 | 0,00 | 0% | ||||||||||||||||
| Velta frá starfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir en er ekki umhverfissjálfbær (starfsemi sem fellur ekki að flokkunarkerfinu) (A.2) |
0,00 | 0% | |||||||||||||||||
| Alls (A.1+A.2) | 0,00 | 0% | |||||||||||||||||
| B. STARFSEMI SEM FLOKKUNARKERFI NÆR EKKI YFIR | |||||||||||||||||||
| Velta frá starfsemi sem flokkunarkerfið nær ekki yfir (B) | 404.700.907 | 100% | |||||||||||||||||
| Total (A+B) | 404.700.907,00 | 100% |
| Fjárfestingargjöld | Viðmið fyrir verulegt framlag | Viðmið fyrir verulegt framlag ("Veldur ekki verulegu tjóni") |
|||||||||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Atvinnustarfsemi (1) | Nú me r ( 2) |
He ild ar fjá rfe sti ng arg jö ld (3) |
Hl utf all fjá rfe sti ng arg jal da (4 ) |
M ót væ gi við flo tsl ag sb rey tin ga r ( 5) |
Að lög un að lo fts lag sb rey tin gu m (6) |
Va tn s- og sj áv ar au ðli nd ir ( 7) |
Hr ing ráð sa rh ag ke rfi ð (8) |
M en gu n ( 9) |
Lif fræ ðil eg fjö lbr (10 ey ) tn i o g v ist ke rfi |
M ót væ gi við lo (11 fts ) lag sb rey tin ga r |
Að lög un að lo fts (12 lag ) sb rey tin gu m |
Va tn s- og sj áv ar au ðli nd ir ( 13 ) |
Hr ing ráð sa rh ag ke rfi ð (14 ) |
M en gu n ( 15 ) |
Lif fræ ðil eg fjö lbr (16 ey ) tn i o g v ist ke rfi |
Lá gm ar ks ve rn (17 da ) rrá ðs taf an ir |
Hlutfall fjárfestinga sem fellur að flokkunar kerfinu, ár 2023 (18) |
Flokkur (starfsemi sem gerir annari starfsemi kleift að stuðla að umhverfis markmiðum) (20) |
Flokkur (um breytinga starfsemi) (21) |
| USD | % 31% |
% | % | % | % | % | % | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | % | E | T | ||
| A. STARFSEMI SEM FLOKKUNARKERFIÐ NÆR YFIR | |||||||||||||||||||
| A.1. Umhverfissjálfbær starfsemi (sem fellur að flokkunarkerfinu) Sjóflutningar |
6.10 | 0,00 | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | 0% | ||
| Kaup og eignarhald á byggingum | 7.7 | 0,00 | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | 0% | ||
| Fjárfestingagjöld frá umhverfissjálfbærri starfsemi (sem fellur að flokkunarkerfinu) (A.1) | 0,00 | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | 0% | 0% | 0% | |
| A.2. Starfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir en er ekki umhverfissjálfbær (sem fellur ekki að flokkunarkerfinu) | |||||||||||||||||||
| Sjóflutningar | 6.10 | 0,00 | 0% | ||||||||||||||||
| Kaup og eignarhald á byggingum | 7.7 | 7.361.466,00 | 31% | ||||||||||||||||
| Fjárfestingagjöld frá starfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir en er ekki umhverfissjálfbær (starfsemi sem fellur ekki að flokkunarkerfinu) (A.2) |
7.361.466,00 | 31% | |||||||||||||||||
| Alls (A.1+A.2) | 7.361.466,00 | 31% | |||||||||||||||||
| B. STARFSEMI SEM FLOKKUNARKERFI NÆR EKKI YFIR | |||||||||||||||||||
| Fjárfestingagjöld frá starfsemi sem flokkunarkerfið nær ekki yfir (B) | 16.042.456,00 | 69% | |||||||||||||||||
| Total (A+B) | 23.403.922,00 | 100% |
| Rekstrargjöld | Viðmið fyrir verulegt framlag | Viðmið fyrir verulegt framlag ("Veldur ekki verulegu tjóni") |
|||||||||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Atvinnustarfsemi (1) | Nú me r ( 2) |
He ild ar re kst ra rgj öld (3 ) |
Hl utf all re kst ra rgj ald a ( 4) |
M ót væ gi við flo tsl ag sb rey tin ga r ( 5) |
Að lög un að lo fts lag sb rey tin gu m (6) |
Va tn s- og sj áv ar au ðli nd ir ( 7) |
Hr ing ráð sa rh ag ke rfi ð (8) |
M en gu n ( 9) |
Lif fræ ðil eg fjö lbr (10 ey ) tn i o g v ist ke rfi |
M ót væ gi við lo (11 fts ) lag sb rey tin ga r |
Að lög un að lo fts (12 lag ) sb rey tin gu m |
Va tn s- og sj áv ar au ðli nd ir ( 13 ) |
Hr ing ráð sa rh ag ke rfi ð (14 ) |
M en gu n ( 15 ) |
Lif fræ ðil eg fjö lbr (16 ey ) tn i o g v ist ke rfi |
Lá gm ar ks ve rn (17 da ) rrá ðs taf an ir |
Hlutfall rekstrar gjalda sem fellur að flokkunar kerfinu, ár 2023 (18) |
Flokkur (starfsemi sem gerir annari starfsemi kleift að stuðla að umhverfis markmiðum) (20) |
Flokkur (um breytinga starfsemi) (21) |
| USD | % | % | % | % | % | % | % | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | J/N | % | E | T | ||
| A. STARFSEMI SEM FLOKKUNARKERFIÐ NÆR YFIR 19% |
|||||||||||||||||||
| A.1. Umhverfissjálfbær starfsemi (sem fellur að flokkunarkerfinu) | |||||||||||||||||||
| Sjóflutningar | 6.10 | 0,00 | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | 0% | ||
| Kaup og eignarhald á byggingum | 7.7 | 0,00 | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | 0% | ||
| Rekstrargjöld frá umhverfissjálfbærri starfsemi (sem fellur að flokkunarkerfinu) (A.1) | 0,00 | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | N/A | 0% | 0% | 0% | |
| A.2. Starfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir en er ekki umhverfissjálfbær (sem fellur ekki að flokkunarkerfinu) | |||||||||||||||||||
| Sjóflutningar | 6.10 | 4.667.268,94 | 19% | ||||||||||||||||
| Kaup og eignarhald á byggingum | 7.7 | 0,00 | 0% | ||||||||||||||||
| Rekstrargjöld frá starfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir en er ekki umhverfissjálfbær (starfsemi sem fellur ekki að flokkunarkerfinu) (A.2) |
4.667.268,94 | 19% | |||||||||||||||||
| Alls (A.1+A.2) | 4.667.268,94 | 19% | |||||||||||||||||
| B. STARFSEMI SEM FLOKKUNARKERFI NÆR EKKI YFIR | |||||||||||||||||||
| Rekstrargjöld frá starfsemi sem flokkunarkerfið nær ekki yfir (B) | 19.902.590,60 | 81% | |||||||||||||||||
| Total (A+B) | 24.569.859,54 | 100% |
Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.