AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Skel fjárfestingafélag

Regulatory Filings Mar 22, 2024

2209_iss_2024-03-22_a4696930-be28-4d79-9011-743e37f9ef35.html

Regulatory Filings

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Disclosure 444377

Skel fjárfestingafélag hf. - Innherjaupplýsingar

SKEL fjárfestingafélag hf.: SKEL og Samkaup komast að samkomulagi um framhald á könnunarviðræðum

Vísað er til tilkynningar dags. 19. janúar 2024 vegna undirritunar SKEL fjárfestingafélags hf. („SKEL“) og Samkaupa hf. („Samkaup“), kt. 571298-3769 á yfirlýsingu þess efnis að aðilar hæfu könnunarviðræður vegna mögulegs samruna Samkaupa og tiltekinna félaga í samstæðu SKEL, nánar tiltekið Orkunnar IS ehf., Löður ehf., Heimkaupa ehf., Lyfjavals ehf. o.fl.

Við undirritun framangreindrar yfirlýsingar var gert ráð fyrir því að niðurstöður einkaviðræðna myndu liggja fyrir eigi síðar en 22. mars 2024. Í ljósi þess að viðræður aðila, sem lúta m.a. að heildarmati á viðskiptalegum og samkeppnislegum sjónarmiðum, eru yfirstandandi hafa aðilar komist að samkomulagi um að framlengja einkaviðræður til 15. maí 2024.

Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, [email protected].

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.