Related Party Transaction • May 10, 2024
Related Party Transaction
Open in ViewerOpens in native device viewer
Á grundvelli 19. gr. MAR er hér með tilkynnt um eftirfarandi viðskipti aðila sem eru nákomnir Einari Erni Ólafssyni, forstjóra Fly Play hf., kt. 660319-0180, Suðurlandsbraut 14, 108 Reykjavík, vegna óbeinna viðskipta þeirra með hluti í Fly Play hf. Neðangreind viðskipti eru liður í umbreytingu tiltekinna skulda Leika fjárfestinga ehf. í hlutafé, en félagið er eigandi 93.596.040 hluta í Fly Play hf. Ekki er um að ræða bein viðskipti með hluti í Fly Play hf. og viðskiptin hafa ekki í för með sér að eignarhlutur Leika Fjárfestinga í Play hf. taki breytingum.
Um er að ræða hlutafjárhækkun í Leika fjárfestingum ehf. þar sem gefnir voru út 33.227.251 nýir hlutir en fyrir var fjöldi hluta 58.417.576. Hlutafjárhækkunin fór fram á genginu 4,5 kr á hlut og greitt var fyrir hlutina með skuldajöfnuði á kröfum neðangreindra félaga á hendur Leika fjárfestingum ehf.
Stjórn Einis ehf. ákvað að kaupa 338.364 hluti í Leika fjárfestingum ehf. og eftir viðskiptin er Einir ehf. eigandi 2.517.816 hluta í félaginu.
Stjórn Barone I ehf. ákvað að kaupa 29.111.111 hluti í Leika fjárfestingum ehf.
Stjórn Fiskisunds ehf. ákvað að kaupa 3.777.777 hluti í Leika fjárfestingum ehf.
Um eftirfarandi viðskipti var að ræða:
Upplýsingar um einstakling sem gegnir stjórnunarstörfum / aðila sem er honum nákominn:
Nafn:
Einir ehf.
Einar Örn Ólafsson er forstjóri Fly Play hf. Einar er eigandi 100% hlutafjár Einis ehf.
Upphafleg tilkynning
Nafn útgefanda:
Fly Play hf.
6488JA9V5773XO3XRQ10
Upplýsingar um einstakling sem gegnir stjórnunarstörfum / aðila sem er honum nákominn:
Barone I ehf.
Einar Örn Ólafsson er forstjóri Fly Play hf. og stjórnarformaður og óbeinn eigandi um 28% hlutafjár Barone I ehf.
Upphafleg tilkynning
Fly Play hf.
6488JA9V5773XO3XRQ10
Upplýsingar um einstakling sem gegnir stjórnunarstörfum / aðila sem er honum nákominn:
Nafn:
Fiskisund ehf.
Einar Örn Ólafsson er forstjóri Fly Play hf. og stjórnarformaður og óbeinn eigandi um 13% hlutafjár Fiskisunds ehf.
Upphafleg tilkynning
Fly Play hf.
6488JA9V5773XO3XRQ10
Building tools?
Free accounts include 100 API calls/year for testing.
Have a question? We'll get back to you promptly.