AI Terminal

MODULE: AI_ANALYST
Interactive Q&A, Risk Assessment, Summarization
MODULE: DATA_EXTRACT
Excel Export, XBRL Parsing, Table Digitization
MODULE: PEER_COMP
Sector Benchmarking, Sentiment Analysis
SYSTEM ACCESS LOCKED
Authenticate / Register Log In

Skel fjárfestingafélag

M&A Activity Sep 9, 2024

2209_iss_2024-09-09_eade8c85-79fc-4cdb-bbe5-49a3c78af628.html

M&A Activity

Open in Viewer

Opens in native device viewer

Disclosure 450248

Skel fjárfestingafélag hf. - Innherjaupplýsingar

SKEL fjárfestingafélag hf.: Áreiðanleikakönnun lokið vegna samruna Samkaupa, Heimkaupa og Orkunnar. Viðauki við viljayfirlýsingu undirritaður.

Vísað er til tilkynningar dags. 15. maí 2024 vegna viljayfirlýsingar SKEL fjárfestingafélags hf. („SKEL“) og Samkaupa hf., kt. 571298-3769 („Samkaup“), um samruna Samkaupa og tiltekinna félaga í samstæðu SKEL, nánar tiltekið Orkunnar IS ehf., Löður ehf., Heimkaupa ehf. og Lyfjavals ehf. („samrunafélög“)

Frá undirritun viljayfirlýsingar hafa ráðgjafar samrunaaðila unnið að fjárhagslegri, skattalegri og lögfræðilegri áreiðanleikakönnunum á Samkaupum og samrunafélögunum. Niðurstöður áreiðanleikakannanna liggja fyrir og undirritaður hefur verið viðauki við viljayfirlýsingu aðila frá 15. maí. Viljayfirlýsing aðila er efnislega óbreytt að öðru leyti en að nú er gert ráð fyrir því að skiptihlutföll í samrunanum verði þannig að hluthafar Samkaupa fái í sinn hlut 52,5% í hinu sameinaða félagi og hluthafar Heimkaupa 47,5%. Áætlaður hlutur SKEL í hinu sameinaða félagi verður 47% en fyrir á SKEL 5% hlut í Samkaup í gegnum Eignarhaldsfélagið Bjarma ehf.

Aðilar vinna nú að því að ná saman um útistandandi efnisleg atriði í samrunasamningi en stefnt er að því að greiða úr þeim á næstu dögum. SKEL mun greina frekar frá framvindu samningaviðræðna eftir því sem tilefni er til.

Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri SKEL, [email protected]

Talk to a Data Expert

Have a question? We'll get back to you promptly.