AI assistant
Syn — Interim / Quarterly Report 2025
May 7, 2025
2210_rns_2025-05-07_5684bc99-c242-4110-ba74-66f25f0a710c.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Sýn hf.
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu
- janúar til 31. mars 2025

Sýn hf. Suðurlandsbraut 8 108 Reykjavík kt. 470905-1740
Efnisyfirlit
Bls.
| Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra | 3 |
|---|---|
| Fjárhagslegar lykiltölur | 4 |
| Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu | 5 |
| Efnahagsreikningur | 6 |
| Eiginfjáryfirlit | 7 |
| Sjóðstreymisyflit | 8 |
| Skýringar | 9 |
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Sýn hf. veitir einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum alhliða fjarskipta-, fjölmiðla- og tæknibjónustu í gegnum vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+, Stöð 2 Sport, Vísi, Bylgjuna, FM957, X977, Já og dótturfélögin Endor ehf. og Eignarhaldsfélagið Njálu ehf. Félagið á í fjölþættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims.
Árshlutareikningurinn hefur að geyma samandreginn samstæðureikning Sýnar hf. og dótturfélaga þess (Endor ehf. og Eignarhaldsfélagið Njálal ehf.) ásamt hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga. Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.
Rekstur fjórðungsins
Samkvæmt rekstrarreikningi námu tekjur samstæðunnar af seldum vörum og þjónustu 5.220 millj. kr. samanborið við 5.365 millj. kr. á sama tímabili árið 2024. Tap af rekstri samstæðunnar á tímabilinu nam 344 millj. kr. samanborið við 153 millj. kr. tap á sama tímabili árið 2024. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 30.783 millj. kr. í lok tímabilisins. Eigið fé samstæðunnar nam 8.313 millj. kr. og var eiginfjárhlutfallið 27,0%. Í lok tímabilisins voru stöðugildi samstæðunnar 404 í samanburði við 422 í upphafi árs.
Fyrirhugaður samruni dótturfélaganna Endor ehf. og Eignarhaldsfélagsins Njálu ehf. við Sýn
Fyrirtækjaskrá hefur til meðferðar samrunaáætlun vegna fyrirhugaðrar sameiningar Sýnar hf., Endor ehf., Eignarhaldsfélagsins Njálu ehf. og Já hf., sem miðast við 1. janúar 2025. Tilgangur samrunans er að auka hagræðingu og arðsemi í rekstri. Gert er ráð fyrir að ljúka samruna á öðrum ársfjórðungi ársins 2025.
Yfirlýsing
Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga IAS 34 eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu samstæðunnar 31. mars 2025 ásamt rekstrarafkomu hennar og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2025.
Stjórn og forstjóri Sýnar hf. hafa í dag fjallað um samandreginn árshlutareikning samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2025 og staðfesta hann með undirritun sinni.
Reykjavík, 7. maí 2025
Stjórn
Hákon Stefánsson, stjórnarformaður
Petrea Ingileif Guðmundsdóttir, varaformaður
Heiðrún Lind Marteinsdóttir
Páll Gíslason
Ragnar Páll Dyer
Forstjóri
Herdís Dröfn Fjeldsted
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2025
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Fjárhagslegar lykiltölur
| 2025 | 2024 | |
|---|---|---|
| 1F | 1F* | |
| Fjárhagsupplýsingar | ||
| Heildartekjur | 5.220 | 5.365 |
| EBITDA tímabilsins | 890 | 1.097 |
| EBITDAaL tímabilsins ** | 582 | 750 |
| EBIT | (139) | 47 |
| Tap fyrir tekjuskatt | (433) | (266) |
| Tap tímabilsins | (344) | (153) |
| Tap á hlut | (1,39) | (0,62) |
| Fjárfestingar í rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum | 163 | 443 |
| Fjárfestingar í sýningarréttum | 316 | 500 |
| EBITDAaL** að frádregnum fjárfestingum | 102 | (193) |
| Handbært fé frá rekstri | 850 | 673 |
| 31.3. | 31.12. | |
| 2025 | 2024 | |
| Hreinar vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga | 5.901 | 6.116 |
| Hreinar vaxtaberandi skuldir með leiguskuldbindingum | 18.100 | 18.373 |
- Fjárhæðum fyrir fyrsta ársfjörðung 2024 hefur verið breytt til samræmis við breytta framsetningu rekstrarreiknings og vegna aflagðrar starfsemi Endor ehf., sbr. skýring nr. 10.
** EBITDAaL er EBITDA að frádregnum hreinum leigugreiðslum.
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2025
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu
- janúar til 31. mars 2025
| | Skýr. | 2025
1F | 2024
1F* |
| --- | --- | --- | --- |
| Rekstrartekjur | | | |
| Seldar vörur og bjónusta | 5 | 5.220 | 5.365 |
| | | 5.220 | 5.365 |
| Rekstrarkostnaður | | | |
| Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu | | 2.156 | 2.128 |
| Laun og launatengd gjöld | 6 | 1.638 | 1.568 |
| Annar kostnaður | | 536 | 571 |
| | | 4.330 | 4.268 |
| Rekstrarafkoma fyrir afskriftir, EBITDA | | 890 | 1.097 |
| Afskriftir | 7 | 1.029 | 1.050 |
| Rekstrarafkoma | | (139) | 47 |
| Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) | | | |
| Fjármunatekjur | 8 | 17 | 16 |
| Fjármagnsgjöld | 8 | (317) | (332) |
| Gengismunur | | 6 | 3 |
| Hrein fjármagnsgjöld | | (294) | (313) |
| Tap fyrir tekjuskatt | | (433) | (266) |
| Tekjuskattur | | 89 | 68 |
| Tap tímabilsins af áframhaldandi starfsemi | | (344) | (199) |
| Hagnaður af aflagðri starfsemi eftir skatta | | 0 | 46 |
| Tap tímabilsins | | (344) | (153) |
| Önnur heildarafkoma | | | |
| Rekstrarliðir færðir á eigið fé sem síðar kunna að vera endurflokkaðir í rekstur | | | |
| Þýðingarmunur | | (4) | (5) |
| Heildarafkoma tímabilsins | | (348) | (158) |
| Tap á hlut | | (1,39) | (0,62) |
- Fjárhæðum fyrir fyrsta ársfjörðung 2024 hefur verið breytt til samræmis við breytta framsetningu rekstrarreiknings og vegna aflagðrar starfsemi Endor ehf., sbr. skýring nr. 10.
Skýringar á bls. 9-11 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings samstæðunnar.
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2025
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Efnahagsreikningur
- mars 2025
| Skýr. | 31.3.2025 | 31.12.2024 | |
|---|---|---|---|
| Fastafjármunir | |||
| Rekstrarfjármunir | 3.174 | 3.298 | |
| Viðskiptavild | 7.818 | 7.818 | |
| Aðrar óefnislegar eignir | 5.125 | 5.252 | |
| Leigueignir | 7.662 | 7.723 | |
| Eignahlutir í félögum | 85 | 85 | |
| Langtímaleigukröfur | 113 | 127 | |
| Tekjuskattseign | 160 | 71 | |
| Fastafjármunir samtals | 24.137 | 24.374 | |
| Veltufjármunir | |||
| Sýningarréttir | 2.291 | 2.427 | |
| Birgðir | 340 | 347 | |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 9 | 3.742 | 3.639 |
| Handbært fé | 273 | 264 | |
| Veltufjármunir samtals | 6.646 | 6.676 | |
| Eignir samtals | 30.783 | 31.050 | |
| Eigið fé | |||
| Hlutafé | 2.476 | 2.476 | |
| Yfirverðsreikningur hlutafjár | 542 | 542 | |
| Annað bundið eigið fé | 638 | 498 | |
| Óráðstafað eigið fé | 4.657 | 5.136 | |
| Eigið fé | 8.313 | 8.652 | |
| Langtímaskuldir | |||
| Vaxtaberandi skuldir | 4.042 | 4.126 | |
| Leiguskuldir | 11.545 | 11.615 | |
| Langtímaskuldir samtals | 15.587 | 15.741 | |
| Skammtímaskuldir | |||
| Vaxtaberandi skuldir | 2.132 | 2.255 | |
| Leiguskuldir | 654 | 642 | |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 11 | 4.095 | 3.760 |
| Skammtímaskuldir samtals | 6.882 | 6.657 | |
| Skuldir samtals | 22.470 | 22.398 | |
| Eigið fé og skuldir samtals | 30.783 | 31.050 |
Skýringar á bls. 9-11 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings samstæðunnar.
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2025
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Eiginfjáryfirlit
- janúar til 31. mars 2025
| Hlutafé | Yfirverð | Annað bundið eigið fé | Óráðstafað eigið fé | Eigið fé samtals | ||
|---|---|---|---|---|---|---|
| Þýðingar-munur | Bundinn reikningur | |||||
| 1.1. til 31.3.2024 | ||||||
| Eigið fé 1.1.2024 | 2.493 | 602 | 48 | 226 | 6.920 | 10.288 |
| Tap tímabilsins | - | - | - | - | (153) | (153) |
| Þýðingarmunur | - | - | (5) | - | - | (5) |
| Heildarafkoma tímabilsins | 0 | 0 | (5) | 0 | (153) | (158) |
| Keypt eigin bréf | (16) | (60) | 0 | 0 | 0 | (76) |
| Hagn.dóttur fél. umfram arðgr. | 0 | 0 | 0 | 57 | (57) | 0 |
| Eigið fé 31.3.2024 | 2.477 | 542 | 43 | 283 | 6.710 | 10.053 |
| 1.1. til 31.3.2025 | ||||||
| Eigið fé 1.1.2025 | 2.476 | 542 | 4 | 494 | 5.136 | 8.652 |
| Tap tímabilsins | - | - | - | - | (344) | (344) |
| Þýðingarmunur | - | - | (4) | - | - | (4) |
| Heildarafkoma tímabilsins | 0 | 0 | (4) | 0 | (344) | (348) |
| Kaupréttir | - | - | - | 9 | - | 9 |
| Hagn.dóttur fél. umfram arðgr. | - | - | - | 135 | (135) | 0 |
| Eigið fé 31.3.2025 | 2.476 | 542 | 0 | 638 | 4.657 | 8.313 |
Skýringar á bls. 9-11 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings samstæðunnar.
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2025
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Sjóðstreymisyfirlit
- janúar til 31. mars 2025
| | Skýr. | 2025
1F | 2024
1F* |
| --- | --- | --- | --- |
| Tap tímabilisins samkvæmt rekstrarreikningi | | (344) | (153) |
| Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | | | |
| Afskriftir | 7 | 1.029 | 1.050 |
| Hrein fjármagnsgjöld | 8 | 293 | 314 |
| Tekjuskattur | | (89) | (26) |
| Áhrif af aflagðri starfsemi | | 0 | (25) |
| Veltufé frá rekstri | | 889 | 1.159 |
| Breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum: | | | |
| Birgðir, lækkun | | 7 | 71 |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, hækkun | | (93) | (29) |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, hækkun (lækkun) | | 351 | (209) |
| Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt | | 1.154 | 993 |
| Innborgaðar vaxtatekjur | | 17 | 16 |
| Greidd vaxtagjöld | | (321) | (336) |
| Handbært fé frá rekstri | | 850 | 673 |
| Fjárfestingarhreyfingar | | | |
| Fjárfesting í rekstrarfjármunum | | (64) | (107) |
| Fjárfesting í óefnislegum eignum | | (100) | (336) |
| Fjárfesting í sýningarréttum | | (316) | (500) |
| Fjárfestingarhreyfingar samtals | | (479) | (943) |
| Fjármögnunarhreyfingar | | | |
| Keyptir eigin hlutir | | 0 | (76) |
| Afborganir vaxtaberandi skulda | | (84) | (84) |
| Rekstrarlán, breyting | | (122) | 58 |
| Afborgun leiguskuldbindinga | | (156) | (193) |
| Fjármögnunarhreyfingar samtals | | (362) | (295) |
| Breyting á handbæru fé | | 9 | (564) |
| Handbært fé í byrjun árs | | 264 | 624 |
| Gengisbreyting á handbæru fé | | 0 | (2) |
| Handbært fé í lok tímabilisins | | 273 | 58 |
- Fjárhæðum fyrir fyrsta ársfjörðung 2024 hefur verið breytt til samræmis við breytta framsetningu rekstrarreiknings og vegna aflagðrar starfsemi Endor ehf., sbr. skýring nr. 10.
Skýringar á bls. 9-11 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings samstæðunnar.
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2025
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Skýringar
1. Félagið
Sýn hf. („félagið“) er íslensk hlutafélag. Höfuðstöðvar félagsins eru að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík. Sýn hf. veitir einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum alhliða fjarskipta-, fjölmiðla, og tæknipjónustu í gegnum vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+, Stöð 2 Sport, Vísi, Bylgjuna, FM957, X 977, Já og dótturfélögin Endor ehf. og Eignarhaldsfélagið Njálu ehf. Félagið á í fjölþættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims. Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2025 hefur að geyma árshlutareikning félagsins, dótturfélaga þess ásamt hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf., sem vísað er til í heild sem „samstæðunnar“.
2. Reikningsskilin
a. Grundvöllur reikningsskilanna
Árshlutareikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastæðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga. Árshlutareikningur samstæðunnar 1. janúar til 31. mars 2025 hefur hvorki verið endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.
Árshlutareikningurinn er gerður eftir sömu reikningsskilareglum og lágu til grundvallar við gerð ársreikningsins 2024. Hann inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning samstæðunnar fyrir árið 2024. Hægt er að nálgast ársreikning Sýnar hf. á heimasíðu félagsins www.syn.is. og á vef Kauphallar Íslands, www.nasdaqomxnordic.com.
b. Mat stjórnenda og ákvarðanir
Gerð samstæðuárshlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastæðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og dragi ályktanir sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna og skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera fráþrugðnar þessu mati.
3. Starfrækslu- og framsetningargjaldmiðill
Samstæðuárshlutareikningur félagsins er gerður og birtur í íslenskum krónum, sem er starfrækslu - og framsetningargjaldmiðill samstæðunnar. Allar fjárhæðir eru birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.
4. Starfsþáttayfirlit
Félagið skilgreinir starfsþætti eftir innri upplýsingagjóf til stjórnenda og telst samstæðan í heild vera einn starfsþáttur.
5. Seldar vörur og þjónusta
| 2025 | 2024 | |
|---|---|---|
| Seldar vörur og þjónusta greinast þannig: | 1F | 1F |
| Vörusala | 263 | 288 |
| Seld þjónusta | 4.957 | 5.077 |
| Seldar vörur og þjónusta samtals | 5.220 | 5.365 |
| Tekjustraumar | Fjöl-míðlun | Internet |
| --- | --- | --- |
| 1.1. til 31.3.2025 | ||
| Tekjur | 2.259 | 1.231 |
| 1.1. til 31.3.2024 | ||
| --- | --- | --- |
| Tekjur | 2.381 | 1.147 |
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2025
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Skýringar, frh.:
- Laun og launatengd gjöld
| Laun og launatengd gjöld greinast pannig: | 2025 | 2024 |
|---|---|---|
| 1F | 1F | |
| Laun | 1.299 | 1.308 |
| Lífeyrisiðgjöld | 173 | 188 |
| Kostnaður vegna kaupréttarsamninga | 9 | 0 |
| Önnur launatengd gjöld | 241 | 240 |
| Eignfærð laun | (83) | (168) |
| Laun og launatengd gjöld samtals | 1.638 | 1.568 |
- Afskriftir
| Afskriftir í rekstrarreikningi greinast pannig: | 2025 | 2024 |
|---|---|---|
| 1F | 1F | |
| Afskriftir rekstrarfjármuna | 223 | 210 |
| Afskriftir annarra óefnislegra eigna | 139 | 137 |
| Afskriftir sýningarrétta | 451 | 488 |
| Afskriftir vörumerkja og viðskiptasambanda | 52 | 50 |
| Afskriftir leigueigna | 163 | 164 |
| Afskriftir samtals | 1.029 | 1.050 |
- Hrein fjármagnsgjöld
| Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast pannig: | 2025 | 2024 |
|---|---|---|
| 1F | 1F | |
| Vaxtatekjur af handbæru fé og kröfum | 15 | 14 |
| Vaxtatekjur af leigukröfum | 2 | 2 |
| Fjármunatekjur samtals | 17 | 16 |
| Vaxtagjöld og önnur þjónustugjöld | (163) | (175) |
| Vaxtagjöld af leiguskuldum | (154) | (157) |
| Fjármagnsgjöld samtals | (317) | (332) |
- Viðskiptakröfur
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur greinast pannig: | 31.03.2025 | 31.12.2024 |
|---|---|---|
| Viðskiptakröfur | 3.426 | 3.326 |
| Aðrar skammtímakröfur | 348 | 354 |
| Leigukröfur | 30 | 22 |
| Niðurfærsla viðskiptakrafna | (62) | (63) |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur samtals | 3.742 | 3.639 |
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2025 10
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Skýringar, frh.:
- Sala á hluta af starfsemi Endor ehf.
Þann 1. október 2024 undirrituðu Sýn hf. og Hexatronic kaupsamning um hluta af starfsemi Endor ehf. Viðmiðunardagur viðskiptanna var þann 20. september sl. Hluti kaupverðsins var greiddur í byrjun október 2024 og verður seinni hluti kaupverðsins greiddur á öðrum ársfjörðungi ársins 2025. Hagnaður af sölu starfseminnar nam 160 millj. kr.
Samanburðartölum í rekstrarreikningi og sjóðstnymi hefur verið breytt og er nú rekstur seldu starfsemi Endor ehf. nú tilgreindur í einni línu í rekstrarreikningi sem aflögð starfsemi.
| Afkoma seldu starfseminnar á tímabilinu er eftirfarandi | 2024 |
|---|---|
| 3M | |
| Tekjur | 743 |
| Sala innan samstæðu | (173) |
| Ytri tekjur | 569 |
| Gjöld | 675 |
| Gjöld innan samstæðu | (173) |
| Ytri gjöld | 502 |
| Hagnaður fyrir skatta | 67 |
| Skattar | (21) |
| Samtals áhrif af aflagðri starfsemi | 46 |
- Viðskiptaskuldir
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast þannig: | 31.03.2025 | 31.12.2024 |
|---|---|---|
| Viðskiptaskuldir | 1.895 | 2.129 |
| Ógreiddur virðisaukaskattur | 495 | 234 |
| Fyrirfram innheimtar tekjur | 610 | 471 |
| Ógreidd launatengd gjöld | 919 | 805 |
| Aðrar skammtímaskuldir | 177 | 121 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals | 4.095 | 3.760 |
- Önnur mál
Sýn hf. („félagið“) á í málarekstri við einstaklinga, önnur félög og eftirlitsstofnanir í íslenskum fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði. Félagið færir skuldbindingar og/eða kröfur vegna málarekstur þegar hægt er að meta framtiðar greiðslur og ávinning með áþreifanlegum hætti. Vegna óvissu um framtiðarþrúun málarekstrar, niðurstöður dómsmála, úrskurði, áfrýjanir og sættir í málum geta niðurstöður mála leitt til viðbótar skuldbindinga og kostnaðar fyrir félagið. Einnig kann félagið að eignast dæmdar kröfur á hendur þriðju aðilum. Hér að neðan er gerð grein fyrir málum sem fengu framgang á fyrsta ársfjörðungi 2025. Um málarekstur Sýnar hf. að öðru leyti vísast í skýringu 30 í ársreikningi 2024.
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2025
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Skýringar, frh.:
- Önnur mál, frh.
Skaðabótakrófur gegn Símanum hf.
Í máli nr. E-2362/2020 hefur félagið gert skaðabótakrófu á hendur Símanum hf. vegna fjártjóns sem Síminn hf. olli félaginu í tengslum við brot gegn 5. mgr. 45. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011 vegna tímabilsins 1. okt. 2015 til 1. des. 2017. Byggir félagið á því að brot Símans hf. gegn framangreindu lagaákvæði hafi skilað Símanum hf. miklum ávinningi í formi aukinna fjarskiptaviðskipta og valdið félaginu samsvarandi tjóni. Dómur féll í héraði 19. feb. 2024 þar sem fallist var á þriðju varakrófu Sýnar í málinu og Símanum var gert að greiða félaginu 16.597.626 krónur auk dráttarvaxta frá 7. apríl 2020 til greiðsludags vegna ólögmætra og saknæmra markaðsaðgerða. Þá var Símanum gert að greiða Sýn 3.500.000 krónur í málskostnað. Félagið áfrýjaði málinu til Landsréttar og gerði kröfur um hærri bótafjárhæð.
Í máli nr. E-5072/2022 hefur gerði félagið skaðabótakrófu á hendur Símanum hf. vegna fjártjóns sem Síminn hf. hafði valdið félaginu í tengslum við brot gegn 5. mgr. 45. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011, samkeppnislögum nr. 44/2005 eða gegn tilteknum ákvæðum skilyrða sáta sem Síminn hf. hafi gert við samkeppnisyfirvöld, vegna tímabilsins 2. des. 2017 til 31. des. 2019. Byggir félagið á því að brot Símans hf. hafi skilað Símanum hf. miklum ávinningi í formi aukinna fjarskiptaviðskipta og valdið félaginu samsvarandi tjóni. Efnisdómur var kveðinn upp í héraði þann 6. janúar 2025 þar sem fallist var á þriðju varakrófu Sýnar í málinu og Símanum var gert að greiða félaginu 33.940.713 krónur auk dráttarvaxta frá 3. nóvember 2022 til greiðsludags vegna ólögmætra og saknæmra markaðsaðgerða. Þá var Símanum gert að greiða Sýn 2.500.000 krónur í málskostnað. Áfrýjunarfrestur er nú útrunninn og hvorugur málsaðili skaut málinu til Landréttar.
Samkomulag um lúkningu framangreindra mála
Þann 28. mars 2025 gerðu Sýn hf. og Síminn hf. með sér samkomulag um lúkningu þeirra mála sem greint hefur verið frá hér að framan.
Aðilar samkomulagsins höfðu báðir áfrýjað niðurstöðu Hérðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-2362/2020 til Landsréttar, sbr. landsréttarmál nr. 221/2024. Með samkomulaginu sammæltust aðilar um að fella niður ofangreint mál í Landsrétti án kostnaðar.
Með samkomulaginu fór jafnframt fram fullnaðaruppgjör milli aðila á þeim kröfum sem fjallað var um í dómsmálunum tveimur. Í árshlutareikningi fyrsta ársfjörðungs 2024 voru tekjufærðar 29 millj. kr. vegna niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu E-2362/2020, sem gerð hefur verið grein fyrir hér að ofan. Eftirstöðvar þess máls, sem og full greiðsla vegna seinni dómsins í máli nr. E-5072/2022, var tekjufærð vegna fyrsta ársfjörðungi 2025, samtals kr. 48 millj. kr.
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2025 12
Fjárhæðir eru í milljónum kr.