AI assistant
Syn — Interim / Quarterly Report 2025
May 7, 2025
2210_rns_2025-05-07_98d16969-fb0a-43da-bc82-c794652ed787.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
- mai 2025
Kauphallartilkynning: Afkoma Sýnar hf. á fyrsta ársfjórðungi ársins 2025
Árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2025 var sambýkktur á stjórnarfundi þann 7. mai 2025.
Breytt framsetning rekstrarreiknings og viðbótar árangursmælikvarðar
Til að auka gagnsæi, einfalda samanburð og bæta yfirsýn yfir rekstrarárangur hafa verið gerðar breytingar á framsetningu fjárhagsupplysinga og lykiltalna í árshlutauppgjörum. Rekstrarreikningur er nú skýrari, þar sem afskriftir eru dregnar fram sérstaklega í stað þess að falla undir kostnaðarverð seldra vara og þjónustu eða rekstrarkostnað. Jafnframt er EBITDA nú birt með skýrari hætti.
Nýir árangursmælikvarðar (e. Alternative Performance Measures, APM) eru nú kynntir til leiks. Þeir eru í samræmi við alþjóðleg viðmið og viða notaðir meðal sambærilegra félaga. Í viðauka aftast í fréttatilkynningunni má finna skilgreiningar og útskýringar á þessum mælikvörðum ásamt umfjöllun um gagnsemi þeirra við mat á undirliggjandi rekstri.
Vegna þessara breytinga gæti samanburður við fyrri tímabil krafist þess að tekið sé mið af nýjum skilgreiningum. Því verða birtar samanburðartölur fyrir fyrri tímabil ársins, og hafa verið teknar saman upplýsingar aftur í tímann fyrir síðustu fimm ár, miðað við nýja framsetningu og reiknireglur.
Í uppgjóri annars ársfjórðungs verður upplýsingagjóf aukin enn frekar, með áherslu á skýra og gagnsæja framsetningu á rekstri, fjárstrey mi og efnahag. Markmiðið er að auðvelda fjárfestum að meta frammistöðu félagsins, stöðu hverju sinni og framtíðarhorfur.
Samantekt á helstu lykiltölum
| Lýkiltölur (m.kr.) | 1F 2025 | 1F 2024 | Br. | Br.% |
|---|---|---|---|---|
| Tekjur | 5.220 | 5.365 | -145 | -3% |
| EBITDAaL | 582 | 750 | -168 | -22% |
| EBITDAaL% | 11,1% | 14,0% | ||
| Fjárfestingar | 479 | 943 | -463 | -49% |
| Fjárfestingar% | 9,2% | 17,6% | ||
| EBITDAaL - Fjárfestingar | 102 | -193 | 295 | |
| EBITDAaL - Fjárfestingar % | 2,0% | -3,6% | ||
| EBIT | -139 | 47 | -186 | |
| Hagnaður eftir skatta | -344 | -153 | -191 | 125% |
EBITDAaL: EBITDA eftir hreinar leigugreiðslur án söluhagnaðar eða -taps
Fjárfestingar: Fjárfestingar í rekstrarfjármunum, óefnislegum eignum og sýningarréttum
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
2025
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
Rekstrartekjur samstæðunnar námu 5.220 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025 samanborið við 5.365 m.kr. á sama tímabili 2024 og dragast saman um 2,7%. Jákvæð þróun er hins vegar í kjarnastarfsemi fjarskipta, þar sem bæði tekjur og fjöldi viðskiptavina aukast á milli ársfjórðunga. Þá hafa tekjur af Stöð 2+ einnig aukist og fjöldi áskrifenda hefur aldrei verið meiri. Auglýsingatekjur lækkuðu um 110 m.kr. milli fyrsta ársfjórðungs 2025 og sama tímabils 2024. Hluti skýrist af einskiptistekjum á fyrra tímabili, en aðalástæðan er umfangsmiklar breytingar á skipulagi einingarinnar til að styrkja reksturinn til framtiðar. Auk þess er samdráttur í reikitekjum vegna lækkunar á tekjum af erlendum ferðamönnum.
EBITDAaL nam 582 m.kr. á fjórðungnum, samanborið við 750 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2024. Til viðbótar við ofangreinda liði var eignfærsla á launakostnaði á tímabilinu 86 m.kr. lægri en á sama tímabili í fyrra.
Fjárfestingar námu 479 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025, samanborið við 943 m.kr. á sama tímabili í fyrra. Lækkunin skýrist einkum af minni eignfærslu launakostnaðar og því að stórt innleiðingarverkefni var í gangi á sama tímabili árið 2024. Þá vegur einnig inn að sýningaréttargreiðslur dreifast öðruvísi á almanaksárið að þessu sinni með stærri hluta kostnaðar síðar á árinu, einkum vegna Enska boltans.
EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum nam 102 m.kr. á ársfjórðungnum samanborið við -193 m.kr. á sama tímabili í fyrra.
Rekstrartap (EBIT) nam 139 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025 samanborið við 47 m.kr. rekstrarhagnað á sama tímabili 2024 og er í takti við áætanir félagsins.
Tap eftir skatta nam 344 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi ársins samanborið við 153 m.kr. tap á sama tímabili 2024.
Afkomuspá félagsins er óbreytt og er gert ráð fyrir að EBIT ársins 2025 verði á bilinu 800-1.200 m.kr. Félagið birtir nú samhliða ársfjórðungsuppgjörinu umfangsmeiri afkomuspá fyrir árið 2025.
Fjárhagsstaða félagsins var styrkt á fjórðungnum þegar gengið var frá framlengingu á lánalínum félagsins.
Hreinar vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga námu 5.901 m.kr. í lok ársfjórðungsins sem var lækkun um 215 m.kr. Hreinar vaxtaberandi skuldir með leiguskuldbindingum námu 18.100 m.kr. og lækka um 273 m.kr. frá upphafi árs.
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
2020
X
Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri
„Afkoma fyrsta ársfjörðungs 2025 er í samræmi við áætlanir og endurspeglar bæði áframhaldandi aðlögun okkar að krefjandi markaðsaðstæðum og þá stefnu félagsins að byggja upp sjálfbærán og arðbærán rekstur til framtíðar. Líkt og áður hefur komið fram, gerðum við ráð fyrir kostnaðarþunga vegna innleiðingar nýrrar stefnu, og gert er ráð fyrir að annar ársfjörðungur verði einnig þungur í kostnaði áður en við njótum fulls rekstrarlegs ávinnings af þeim breytingum sem við höfum ráðist í.
Heildartekjur samstæðunnar námu rúmum 5,2 milljörðum króna. Í ljósi þrystings á hagnaðarhlutföll höfum við ráðist í árangursrikar hagræðingaraðgerðir sem hafa haft jákvæð áhrif á sjóðstreymi og fjármögnunarstöðu félagsins. Félagið hefur markvisst fjárfest í innviðum og tæknilausnum sem styðja við frekari tekjuvöxt á næstu mánuðum. Samruni dótturfélaga, sem nú er í fullum gangi, er þáttur í að einfalda og straumlínulaga rekstur.
Með áherslubreytingum í framsetningu lykiltalna og kynningu á EBITDAaL sem nýjum megin árangursmælikvarða er markmiðið að veita skýrari og gagnsærri mynd af undirliggjandi rekstri. Þetta er liður í að bæta upplýsingagjöf félagsins til fjárfesta og hagsmunaaðila og má gera ráð fyrir að framsetning í uppgjöri fyrri árshelmings verði til frekari bóta í takt við þessa þróun. Í hálfsársuppgjörinu munum við enn fremur birta starfsþáttuuppgjör (segment reporting) til að varpa enn skýrara ljósi á frammistöðu einstakra hluta starfseminnar.
Viðskiptavinurinn er ávallt í forgrunni hjá Sýn, sem þjónustar bæði fyrirtæki og einstaklinga við svegar um landið í fjarskiptum og fjölmiðlun. Miðlar Sýnar ná til um 74% þjóðarinnar á hverjum degi, seldar eru um 75.000 áskriftir í sjónvarpi og um 100.000 viðskiptavinir eru í reikningsviðskiptum við félagið. Undirbúningur fyrir endurkomu Enska boltans í ágúst er í fullum gangi. Við teljum það mikilvægt sóknarfæri sem styður við markmið okkar um að auka markaðshlutdeild og styrkja arðsemi félagsins á seinni hluta ársins.
O vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
2020
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
A
Helstu niðurstöður í rekstri fyrsta ársfjörðungi
| Tekjuskípting (m.kr.) | 1F 2025 | 1F 2024 | Br. | Br.% |
|---|---|---|---|---|
| Fjölmiðlun | 2.259 | 2.381 | -123 | -5% |
| Internet | 1.231 | 1.147 | 83 | 7% |
| Farsimi | 1.015 | 1.062 | -47 | -4% |
| Fastlína | 110 | 106 | 4 | 4% |
| Hýsingar- og rekstrarlausnir* | 117 | 139 | -22 | -16% |
| Vörusala | 263 | 288 | -25 | -9% |
| Aðrar tekjur | 226 | 242 | -15 | -6% |
| Tekjur samtals | 5.220 | 5.365 | -145 | -3% |
*án tekna af aflagðri starfsemi Endor
Rekstrartekjur samstæðunnar á fyrsta árfjörðungi 2025 námu 5.220 m.kr. samanborið við 5.365 m.kr. af áframhaldandi starfsemi á sama tímabili 2024. Tekjur af interneti jukust um 7,1%, þar af 10,2% á einstaklingsmarkaði. Tekjur af farsima drógust saman um 4,4%, skýrist lækkun einkum af samdrætti IoT tekjum (-24%) og í reikitekjum (-21%) þar sem. Tekjur af farsimaáskriftum jukust um 6% á tímabilinu. Fjölmiðlatekjur drógust saman um 5%, áskriftarsala stendur í stað milli tímabila en auglýsingasala dróst saman um 15%.
| Rekstrarreikningur að EBITDAaL (m.kr.) | 1F 2025 | 1F 2024 | Br. | Br.% |
|---|---|---|---|---|
| Tekjur | 5.220 | 5.365 | -145 | -3% |
| KSV&Þ | -2.156 | -2.128 | -28 | 1% |
| Laun og launatengd gjöld | -1.638 | -1.568 | -70 | 4% |
| Annar rekstrarkostnaður | -536 | -571 | 36 | -6% |
| Rekstrarkostnaður samtals | -4.330 | -4.268 | -62 | 1% |
| EBITDA | 890 | 1.097 | -207 | -19% |
| Hreinar leigugreiðslur | -308 | -347 | 39 | -11% |
| EBITDAaL | 582 | 750 | -168 | -22% |
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu nam 2.156 m.kr. á fyrsta fjörðungi og jókst um 1,3% milli tímabila (1F 2024: 2.128 m.kr.).
Laun og launatengd gjöld námu 1.638 m.kr. og jukust um 4,5% milli tímabila (1F 2024: 1.568 m.kr.) Helsta skýringin á hækkun launa er að eignfærður launakostnaður lækkar um 84 m.kr. milli tímabila, sem rekja má til minni fjárfestinga og breytinga á eignfærslustefnu félagsins. Þá lækkar annar rekstrarkostnaður milli tímabila.
EBITDA lækkáði um 19% milli tímabila og nam 890 m.kr. (1F 2024: 1.097 m.kr.)
Hreinar leigugreiðslur námu 308 m.kr. og lækká um 11% milli tímabila (1F 2024: 347 m.kr.). Lækkunin skýrist af leigusamningum í tengslum við Endor, sem annaðhvort eru að renna út eða hafa þegar runnið sitt skeið.
O vodafone
VÍSIR
SPORT
BYLGJAN
309
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
| Rekstrarreikningur frá EBITDA (m.kr.) | 1F 2025 | 1F 2024 | Br. | Br.% |
|---|---|---|---|---|
| EBITDA | 890 | 1.097 | -208 | -19% |
| Afskriftir í rekstri | -814 | -836 | 22 | -3% |
| Afskriftir vörumerkja og viðskiptasambanda | -52 | -50 | -1 | 3% |
| Afskriftir leigueigna | -163 | -164 | 1 | -1% |
| Afskriftir samtals | -1.029 | -1.050 | 21 | -2% |
| EBIT | -139 | 47 | -186 | -398% |
| Fjármagnsliðir | -294 | -313 | 19 | -6% |
| Hagnaður fyrir skatta | -433 | -266 | -167 | 63% |
| Skattar | 89 | 68 | 22 | 32% |
| Afkoma af aflagðri starfsemi | 46 | |||
| Hagnaður eftir skatta | -344 | -153 | -191 | 125% |
Afskriftir í rekstri námu samtals 814 m.kr. og lækka lítillega frá fyrra ári (1F 2024: 836 m.kr.). Þessi liður felur í sér reglubundnar afskriftir af fasta fjármunum, óefnislegum eignum og sýningarréttum, sem tengjast reglubundnum rekstri félagsins.
Afskriftir vegna vörumerkja og viðskiptasambanda voru 52 m.kr. (1F 2024: 50 m.kr.)
Afskriftir leigueigna námu 163 m.kr. (1F 2024: 164 m.kr.)
Samanlagt námu heildarafskriftir 1.029 m.kr. (1F 2024: 1.050 m.kr.), sem er 2% lækkun milli tímabila.
Rekstrartap (EBIT) nam 139 m.kr. á fyrsta ársfjörðungi 2025 samanborið við 47 m.kr. rekstrarhagnað á sama tímabili 2024.
Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 294 m.kr., samanborið við 313 m.kr. í fyrra, sem er 6% lækkun og endurspeglar lægri vaxtagjöld og stöðugleika í lánaskilmálum.
Hagnaður fyrir skatta var því neikvæður um 433 m.kr. (1F 2024: -266 m.kr.), og eftir skatta nam tap tímabilsins -344 m.kr. samanborið við -153 m.kr. árið áður. Þetta er í samræmi við fyrri spár um frambungan kostnað á fyrri hluta ársins og er liður í innleiðingu á nýrri stefnu og enduruppbyggingu.
vodafone
visir
SPORT
BYLGJAN
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
Sjóðstreymi
| Rekstrarhreyfingar | 1F 2025 | 1F 2024 |
|---|---|---|
| Tap tímabilsins samkvæmt rekstrarreikningi | -344 | -153 |
| Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi | 1.233 | 1.323 |
| Veltufé frá rekstri | 889 | 1.170 |
| Breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum | 265 | -167 |
| Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt | 1.154 | 1.003 |
| Hrein greidd vaxtagjöld | -304 | -320 |
| Handbært fé frá rekstri | 850 | 683 |
Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt var 1.154 m.kr. og hækkar frá sama tímabili í fyrra (1F 2024: 1.003 m.kr.). Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 850 m.kr. og hækkar á milli tímabila (1F 2024: 683 m.kr).
| Fjárfestingarhreýfingar | 1F 2025 | 1F 2024 | Br. | Br.% |
|---|---|---|---|---|
| Fjárfestingar í rekstrarfjármunum | -64 | -107 | 43 | -40% |
| Fjárfestingar í óefnislegum eignum | -100 | -336 | 236 | -70% |
| Fjárfestingar í sýningarréttum | -316 | -500 | 184 | -37% |
| Fjárfestingar | -479 | -943 | 463 | -49% |
| Aðrar fjárfestingahreyfingar | 0 | 0 | 0 | |
| Fjárfestingahreyfingar samtals | -479 | -943 | 463 | -49% |
Fjárfestingar á fjórðungnum námu 479 m.kr., sem er um 50% samdráttur frá sama tímabili árið áður. Skýringin felst einkum í því að á sama tíma í fyrra voru verulegar fjárfestingar í óefnislegum eignum vegna innleiðingar á nýjum kerfum.
Fjárfestingar vegna sýningarétta sveiflast og verður umfang þeirra meira á seinni hluta ársins, einkum vegna endurkomu Enska boltans. Gert er ráð fyrir áframhaldandi fjárfestingum í innviðum og tækni á árinu, en í hóflegu magni. Fjárfestingar eru jafnframt hluti af afkomuspá ársins, og eru þær helst áætlaðar í tengslum við tæknilausnir, þjónustuumbætur og sýningarréttindamál. Þá er vert að nefna að náist samningar vegna Sendafélagsins í samræmi við áætlanir gæti það leitt til lækkunar á fjárfestingapörf á síðari hluta árs.
| Fjármögnunarhreyfingar | 1F 2025 | 1F 2024 |
|---|---|---|
| Keyptir eigin hlutir | 0 | -76 |
| Afborganir vaxtaberandi skulda | -84 | -84 |
| Rekstrarlán, breyting | -122 | 58 |
| Afborgun leiguskuldbindinga | -156 | -203 |
| Fjármögnunarhreyfingar samtals | -362 | -305 |
Afborganir vaxtaberandi skulda og niðurgreiðsla rekstrarláns námu 206 m.kr. á fjórðungnum og afborganir leiguskuldbindinga námu 156 m.kr. Lækkun í afborgun leiguskuldbindinga skýrist af því að hluti af leigusamningum tengdum Endor hefur runnið sitt skeið. Fjármögnunarhreyfingar voru því allar í takt við núverandi stefnu félagsins um að létta á skuldum félagsins.
vodafone
VISIF
SPORT
BYLGJAN
2025
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is

Handbært fé í lok ársfjórðungsins er því 273 m.kr. og hækkar um 9 m.kr. frá upphafi árs.
Efnahagur
| Efnahagsreikningur | 31/03/2025 | 31/12/2024 | Br. | Br.% |
|---|---|---|---|---|
| Fastafjármunir | 24.137 | 24.374 | -237 | -1% |
| Veltufjármunir | 6.646 | 6.676 | -30 | 0% |
| Eignir samtals | 30.783 | 31.050 | -267 | -1% |
| 0 | ||||
| Eigið fé | 8.313 | 8.652 | -339 | -4% |
| Langtímaskuldir | 15.587 | 15.741 | -154 | -1% |
| Skammttímaskuldir | 6.882 | 6.657 | 225 | 3% |
| Skuldir samtals | 22.469 | 22.398 | 71 | 0% |
| Eigið fé og skuldir samtals | 30.782 | 31.050 | -268 | -1% |
| Hreinar vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga | 5.901 | 6.116 | -215 | -4% |
| Hreinar vaxtaberandi skuldir með leiguskuldbindingu | 18.100 | 18.373 | -273 | -1% |
Heildareignir félagsins í lok fjórðungsins námu 30.782 m.kr. samanborið við 31.050 m.kr. um áramótin. Eigið fé í lok tímabilsins nam 8.313 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 27,0%. Hreinar vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga námu 5.901 m.kr. í lok tímabilsins og lækkuðu um 215 m.kr. frá upphafi árs. Hreinar vaxtaberandi skuldir með leiguskuldbindingum námu 18.100 m.kr. og lækkuðu um 273 m.kr. frá upphafi árs.
vodafone
visir
SPORT
BYLGJAN
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
Horfur og afkomuspá
Afkomuspá félagsins fyrir árið 2025 er óbreytt og stjórnendur gera áfram ráð fyrir EBIT á bilinu 800–1.200 m.kr. Eins og áður hefur komið fram er reksturinn frambungur í kostnaði á fyrri hluta ársins, meðal annars vegna innleiðingar á nýrri stefnu og undirbúnings vegna endurkomu Enska boltans. Á móti kemur að ávinningur af hagræðingu og aukinni markaðssókn birtist að fullu á seinni hluta ársins. Afkomuspá er nú sett fram með skýrum tölulegum markmiðum um tekjur, EBITDAaL, fjárfestingar og EBIT í þeim tilgangi að auka gagnsæi og bæta upplýsingagjóf til markaðsaðila. Afkomuspáin er eins og áður án áhrifa af mögulegum samningum vegna Sendafélagsins.
| Afkomuspá 2025 (m.kr.) | Neðri | Efri |
|---|---|---|
| EBITDAaL | 4.000 | 4.400 |
| Fjárfestingar | 3.800 | 4.000 |
| EBIT | 800 | 1.200 |
vodafone
visir
SPORT
BYLGJAN
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
Fjárhagsdagatal 2025
Birtingum í fjárhagsdagatalinu hefur verið seinkað um einn dag og munu þær framvegis verða á fimmtudögum.
- Afkoma 2F 2025
- ágúst 2025
- Afkoma 3F 2025
- nóvember 2025
- Afkoma 4F og ársuppgjör 2025
- febrúar 2026
- Aðalfundir 2026
- mars 2026
Frekari upplýsingar
- Sem fyrr verður ekki haldinn fjárfestafundur til að kynna uppgjör 1. ársfjórðungs. Næsti fjárfestafundur verður haldinn 28. ágúst en fjárfestar geta sent fyrirspurnir á [email protected] eða óskað eftir fundi.
- Nánari upplýsingar má nálgast á síðu fjárfestatengsla Sýnar á https://syn.is/fjarfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
2025
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
Viðauki I - Viðbótar árangusmælikvarðar
Viðbótar árangursmælikvarðar (Alternative Performance Measures, APM) eru notaðir af félaginu til að gefa skýrari mynd af undirliggjandi rekstri og fjárhagsstöðu. Hafa ber í huga að mælikvarðarnir ættu ekki að skoðast í tómarúmi heldur í samhengi við aðra mælikvarða og gögn. Mælikvarðar þessir eru almennt ekki skilgreindir samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS) en veita fjárfestum mikilvægar upplýsingar um rekstrarárangur félagsins. Notkun þessara mælikvarða gerir fjárfestum kleift að bera félagið betur saman við önnur félög og auðveldar greiningu á þróun yfir tíma.
EBITDAaL (Earnings Before Interest, Taxes, Depreciation, Amortisation after Lease payments) er hagnaður fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir að frádregnum hreinum leigugreiðslum. Stærðin er einn af lykilmælikvörðum Sýnar og mun framvegis vera í afkomuspá og umfjöllun. Vegna mismunar á milli leigugreiðslna og gjaldfærslna vegna leigu samkvæmt IFRS16 gefur EBITDAaL gefið skýrari mynd af undirliggjandi rekstri heldur en EBIT, þar sem EBIT tekur einungis tillit til afskrifta á leigueignum, og þar með aðeins hluta af heildargjaldfærslu vegna leigueigna og –skuldbindinga. Þá getur jafnframt verið nokkur munur milli gjaldfærslu samkvæmt IFRS16 og greiðslu og gjaldfærslum í skattalegu uppgjóri eftir því hversu langt er liðið á leigusamninginn og hvernig hann er til kominn. EBITDAaL er jafnframt ein af helstu forsendum við útreikning á frjálsu fjárstreymi til fyrirtækis (e. Free Cash Flow to Firm, FCFF), sem er það fjárstreymi sem hægt er að nota til að greiða lánardrottnum og hluthöfum félagsins þegar jafnframt hefur verið tekið tillit til fjárfestinga og veltufjárbindingar. Þá er vert að nefna að EBIT inniheldur allar gjaldfærðar afskriftir, sem þurfa ekki að endurspegla þær fjárfestingar sem félagið þarf að ráðast í til að viðhalda undirliggjandi rekstri. Með notkun EBITDAaL og fjárfestinga fæst því almennt betra mat á undirliggjandi fjárstreymi en með notkun EBIT.
Hreinar leigugreiðslur eru vaxtagjöld og afborganir leiguskuldbindinga að frádregnum vaxtatekjum og afborgunum vegna leigukrafna.
Fjárfestingar eru skilgreindar sem fjárfestingar í rekstrarfjármunum, óefnislegum eignum og sýningarréttum. Þetta eru eignir sem félagið þarf að viðhalda til að viðhalda undirliggjandi fjárstreymi félagsins. Aðrar fjárfestingarhreyfingar í sjóðstreymisyflit, s.s. kaup eða sala á félögum, fenginn arður eða óhefðbundin kaup eða sala á eignum eru því ekki inni í fjárfestingum en umfjöllun um þá slíkt verður til staðar þegar við á.
Afskriftir í rekstri ná yfir sömu eignir og fjárfestingar og samanstanda því af afskriftum rekstrarfjármuna, óefnislegra eigna (án óefnislegra eigna vegna fyrirtækjakaupa) og sýningarrétta. Þær innihalda því ekki afskriftir leigueigna (enda hefur gjaldfærsla vegna þeirra átt sér stað fyrir útreikning á EBITDAaL í gegnum hreinar leigugreiðslur) og afskriftir vörumerkja og viðskiptasambanda, sem eru til komin vegna fyrirtækjakaupa, svo dæmi séu tekin.
Hreinar fjárfestingar eru fjárfestingar að frádregnum afskriftum í rekstri sem sýnir hreina breytingu í rekstrareignum félagsins sem mynda fjárstreymi rekstrar.
Hreinar vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga eru vaxtaberandi skuldir félagsins án leiguskuldbindinga að frádregnu handbæru fé og eigna sem eru ígildi handbærs fjár.
Hreinar vaxtaberandi skuldir með leiguskuldbindingum eru vaxtaberandi skuldir félagsins ásamt leiguskuldbindingum að frádregnu handbæru fé og eigna sem eru ígildi handbærs fjár.
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
Viðauki II - Sögulegur fjárhagstölur með viðbótar árangursmælikvörðum
Dar sem félagið hefur skilgreint viðbótar árangursmælikvarða og breytt uppsetningu rekstrarreiknings gefur félagið nú einnig út þessa sömu mælikvarða á síðustu 5 árum. Fjárhagstölur fyrir hvert ár eru gefnar upp m.v. ársreikning viðkomandi árs og eru því ekki leiðrétt fyrir þeirri þróun sem átti sér stað eftir þann tíma. Þetta þýðir að ef t.d. ákveðin starfsemi var aflögð á tilteknu ári eru árstölur fyrir árin á undan ekki leiðréttar fyrir áhrifum þeirrar starfsemi. Frekari upplýsingar er að finna í Excel skjali með fréttatilkynningunni sem einnig má finna á vefsvæði félagsins.
| Lýkiltölur (m.kr.) | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 |
|---|---|---|---|---|---|
| Tekjur | 20.786 | 21.765 | 22.983 | 23.475 | 21.647 |
| Breyting milli ára% | 4,7% | 5,6% | 2,1% | -7,8% | |
| EBITDAaL | 4.268 | 5.020 | 4.679 | 4.004 | 3.316 |
| EBITDAaL% | 20,5% | 23,1% | 20,4% | 17,1% | 15,3% |
| Fjárfestingar | 3.560 | 3.755 | 3.972 | 5.161 | 3.937 |
| Fjárfestingar% | 17,1% | 17,3% | 17,3% | 22,0% | 18,2% |
| EBITDAaL - Fjárfestingar | 708 | 1.265 | 707 | -1.157 | -621 |
| EBITDAaL - Fjárfestingar % | 3,4% | 5,8% | 3,1% | -4,9% | -2,9% |
| EBIT | 161 | 3.286 | 1.592 | 3.544 | -650 |
| Tekjuskipting (m.kr.) | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Fjölmiðlun | 7.808 | 8.372 | 8.607 | 9.000 | 9.574 |
| Internet | 4.557 | 4.463 | 4.422 | 4.405 | 4.686 |
| Farsími | 3.512 | 4.616 | 5.165 | 4.863 | 4.336 |
| Fastlína | 608 | 535 | 484 | 446 | 419 |
| Hýsingar- og rekstrarlausnir | 2.420 | 1.676 | 2.261 | 2.537 | 484 |
| Vörusala | 1.082 | 1.267 | 1.267 | 1.236 | 1.096 |
| Aðrar tekjur | 799 | 836 | 777 | 988 | 1.053 |
| Tekjur samtals | 20.786 | 21.765 | 22.983 | 23.475 | 21.647 |
O vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
2020
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
| Rekstrarreikningur | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 |
|---|---|---|---|---|---|
| Tekjur | 20.786 | 21.765 | 22.983 | 23.475 | 21.647 |
| Kostnarverð seldra vara og þjónustu | -7.900 | -8.044 | -8.814 | -9.522 | -8.799 |
| Laun og launatengd gjöld | -5.271 | -5.337 | -5.674 | -5.974 | -6.244 |
| Annar rekstrarkostnaður | -1.876 | -1.952 | -1.850 | -2.129 | -1.977 |
| Rekstrarkostnaður | -15.047 | -15.333 | -16.338 | -17.625 | -17.019 |
| EBITDA | 5.739 | 6.432 | 6.645 | 5.850 | 4.628 |
| Hreinar leigugreiðslur | -1.471 | -1.412 | -1.966 | -1.846 | -1.312 |
| EBITDAaL | 4.268 | 5.020 | 4.679 | 4.004 | 3.316 |
| EBITDA | 5.739 | 6.432 | 6.645 | 5.850 | 4.628 |
| Afskriftir í rekstri | -4.195 | -4.330 | -3.589 | -3.235 | -3.153 |
| Afskriftir vörumerkja og viðskiptasambanda | -199 | -199 | -199 | -199 | -206 |
| Afskriftir leigueigna | -1.184 | -1.169 | -1.265 | -1.308 | -759 |
| Söluhagnaður | 2.552 | 2.436 | |||
| Virðisrýrnun | -1.161 | ||||
| EBIT | 161 | 3.286 | 1.592 | 3.544 | -650 |
| Hrein fjármagnsgjöld | -910 | -573 | -846 | -1.134 | -1.290 |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 98 | -251 | |||
| Hagnaður fyrir skatta | -651 | 2.462 | 746 | 2.410 | -1.940 |
| Skattar | 246 | -362 | 142 | -301 | 261 |
| Afkoma af aflagðri starfsemi | 161 | ||||
| Hagnaður ársins | -405 | 2.100 | 888 | 2.109 | -1.518 |
| Þýðingarmunur | 156 | -114 | 1 | -2 | -44 |
| Heildarafkoma ársins | -249 | 1.986 | 889 | 2.107 | -1.562 |
vodafone
visir
SPORT
BYLGJAN
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is