Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Interim / Quarterly Report 2024

Aug 28, 2024

2210_rns_2024-08-28_d77238f3-f574-45c7-b3c6-9cb0bed477ee.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Syn hf.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu

  1. janúar til 30. júní 2024

vodafone

visir

SPORT

BYLGJAN

2023

ENDOR

Syn hf. Suðurlandsbraut 8 108 Reykjavík kt. 470905-1740


Efnisyfirlit

Bls.
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra 3
Könnunaráritun óháðra endurskoðenda 4
Fjárhagslegar lykiltölur 5
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu 6
Efnahagsreikningur 7
Eiginfjáryfirlit 8
Sjóðstreymisyfirlit 9
Skýringar 10
Viðauki:
Ársfjörðungsyfirlit 14

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Sýn hf. er alhliða félag á sviði fjarskipta- og fjölmiðlastarfsemi. Félagið rekur marga af öflugustu fjölmiðlum landsins eins og Stöð 2, Stöð 2+, Stöð 2 Sport, Vísi, Bylgjuna, FM957, Xið og fleiri landsbekkta miðla. Félagið veitir einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og opinberum aðilum alhliða fjarskipta- og upplýsingatæknipjónustu undir vörumerkjum Vodafone á Íslandi ásamt dótturfélögunum Endor ehf. og Já hf. (dótturfélag Eignarhaldsfélagsins Njálu ehf.). Félagið á í fjölþættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims.

Árshlutareikningurinn hefur að geyma samandreginn samstæðureikning Sýnar hf. og dótturfélaga þess (Endor ehf. og Eignarhaldssfélagið Njála ehf.) ásamt hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga.

Niðurstaða árshelmingsins

Samkvæmt rekstrarreikningi námu tekjur samstæðunnar af seldum vörum og þjónustu 11.416 millj. kr. Tap af rekstri samstæðunnar á tímabilinu nam 339 millj. kr. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 34.037 millj. kr. 30. júní 2024. Eigið fé samstæðunnar þann 30. júní 2024 nam 9.864 millj. kr. Þar af nam hlutafé 2.476 millj. kr. Hver hlutur er 10 krónur að nafnverði. Eiginfjárhlutfallið 30. júní 2024 var 29%.

Breyting í afkomu félagsins milli tímabila skýrist einna helst af breytilegum tekjum af IoT þjónustu annars vegar og einskiptis afsláttar af efniskaupum í fyrra vegna uppgjörs við birgja. Áframhaldandi tekjuvöxtur er í auglýsingasölu og heimatengingum.

Óvissa um hvernig stjórnvöldum og aðilum vinnumarkaðarins tekst til við að ráða niðurlögum verðbölgu og lækka vexti eru áfram almennir óvissuþættir í ytra umhverfi Sýnar jafnt sem annarra fyrirtækja hér á landi, að öðru leyti er vísað til ársreikning félagsins árið 2023 um umfjöllun um óvissuþætti.

Kaup á eigin hlutum og lækkun hlutafjár

Þann 9. nóvember 2023 hófst endurkaupaáætlun sem lauk 16. febrúar 2024. Félagið keypti keypti 1.598.815 hluti fyrir 76 millj. kr. Þann 11. apríl 2024 var hlutaféð lækkáð í samræmi við fjölda eigin hluta og voru útgefnir hlutar í félaginu 247.648.960 eftir lækkunina. Skráning hjá Nasdaq á útgefnu hlutafé fór fram 13. maí 2024.

Yfirlýsing

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu samstæðunnar 30. júní 2024 ásamt rekstrarafkomu og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2024.

Stjórn og forstjóri Sýnar hf. hafa í dag fjallað um samandreginn árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2024 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Reykjavík, 28. ágúst 2024

Í Stjórn

Hákon Stefánsson, stjórnarformaður

Rannveig Eir Einarsdóttir, varaformaður

Petrea Ingileif Guðmundsdóttir

Páll Gíslason

Ragnar Páll Dyer

Forstjóri

Herdís Dröfn Fjeldsted

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2024

Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Könnunaráritun óháðra endurskoðenda

Til stjórnar og hluthafa Sýnar hf.

Inngangur

Við höfum kannað meðfylgjandi samandreginn árshlutareikning samstæðu Sýnar hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2024, sem hefur að geyma rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstreymisyfirlit og skýringar.

Stjórn og framkvæmdastjóri félagsins eru ábyrg fyrir gerð og glöggri framsetningu árshlutareikningsins í samræmi við alþjóðlegan staðal um árshlutareikninga, IAS 34. Ábyrgð okkar felst í ályktun okkar um árshlutareikninginn sem byggir á könnuninni.

Umfang könnunar

Könnun okkar var unnin í samræmi við alþjóðlegan staðal ISRE 2410 um. Könnun óháðs endurskoðanda á árshlutareikningum. Könnun árshlutareiknings felur í sér fyrirspurnir, einkum til starfsmanna sem eru ábyrgir fyrir fjármálum og reikningsskilum, ásamt greiningum og öðrum könnunaraðgerðum. Könnun er talsvert umfangsminni en endurskoðun sem unnin er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla og er því ekki víst að við fáum vitneskju um öll mikilvæg atriði sem gætu komið í ljós við endurskoðun. Þar af leiðandi látum við ekki í ljós álit á árshlutareikningnum.

Ályktun

Við könnun okkar kom ekkert fram sem bendir til annars en að meðfylgjandi samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar sé í öllum meginatriðum í samræmi við IAS 34 „Árshlutareikningar“.

Reykjavík, 28. ágúst 2024

KPMG ehf.

Hjördis Ýr Ólafsdóttir
endurskoðandi

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2024


Fjárhagslegar lykiltölur

| | 2024
2F | 2023
2F
| 2024
6M | 2023
6M |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| Fjárhagsupplýsingar | | | | |
| Heildartekjur | 5.482 | 5.632 | 11.416 | 11.493 |
| Rekstrarhagnaður (EBIT) | 50 | 574 | 169 | 1.002 |
| EBITDA tímabilsins | 1.042 | 1.583 | 2.421 | 3.080 |
| (Tap) hagnaður fyrir tekjuskatt | (276) | 277 | (476) | 496 |
| (Tap) hagnaður tímabilsins | (186) | 269 | (339) | 483 |
| (Tap) hagnaður á hlut | (0,77) | 1,07 | (1,40) | 1,75 |
| Fjárfestingar í rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum | 598 | 686 | 1.041 | 1.246 |
| Fjárfestingar í sýningarréttum | 567 | 414 | 1.067 | 975 |
| Frjálst fjárflæði (FCF) | (449) | 272 | (180) | 325 |
| Handbært fé frá rekstri | 391 | 1.094 | 1.283 | 2.014 |
| | 30.6.
2024 | 31.3.
2024 | 31.12.
2023 | 30.6.
2023 |
| Hreinar vaxtaberandi skuldir | 19.346 | 18.765 | 18.596 | 17.899 |

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2024
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu

  1. janúar til 30. júní 2024

| | Skýr. | 2024
2F | 2023
2F
| 2024
6M | 2023
6M |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Seldar vörur og bjónusta | 5 | 5.482 | 5.632 | 11.416 | 11.493 |
| Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu | 6 | (3.664) | (3.540) | (7.746) | (7.331) |
| Framlegð | | 1.818 | 2.092 | 3.670 | 4.161 |
| Rekstrarkostnaður | 7 | (1.768) | (1.518) | (3.501) | (3.159) |
| Rekstrarhagnaður | | 50 | 574 | 169 | 1.002 |
| Fjármunatekjur | | 6 | 7 | 22 | 26 |
| Fjármagnsgjöld | | (327) | (297) | (667) | (572) |
| Gengismunur | | (5) | (6) | (0) | 40 |
| Hrein fjármagnsgjöld | | (326) | (296) | (645) | (506) |
| (Tap) hagnaður fyrir tekjuskatt | | (276) | 277 | (476) | 496 |
| Tekjuskattur | | 90 | (8) | 137 | (13) |
| (Tap) hagnaður tímabilsins | | (186) | 269 | (339) | 483 |
| Önnur heildarafkoma | | | | | |
| Rekstrarliðir færðir á eigið fé sem síðar kunna að
vera endurflokkaðir í rekstur | | | | | |
| Þýðingarmunur | | (6) | (1) | (10) | (18) |
| Heildarafkoma tímabilsins | | (191) | 268 | (349) | 465 |
| (Tap) hagnaður á hlut | | (0,77) | 1,07 | (1,40) | 1,75 |

*Ársfjörðungslegar upplýsingar hafa ekki verið kannaðar af endurskoðendum.
Skýringar á bls. 10-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2024 6
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Efnahagsreikningur

  1. júní 2024
Skýr. 30.6.2024 31.12.2023
Fastafjármunir
Leigueignir 7.709 8.420
Rekstrarfjármunir 3.281 3.290
Viðskiptavild 9.090 9.097
Aðrar óefnislegar eignir 5.228 4.976
Langtímaleigukröfur 132 141
Eignahlutir í félögum 175 174
Fastafjármunir samtals 25.614 26.098
Veltufjármunir
Sýningarréttir 2.201 2.008
Birgðir 456 628
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 9 5.363 5.576
Eignir í sölumeðferð 10 267 0
Handbært fé 136 624
Veltufjármunir samtals 8.423 8.837
Eignir samtals 34.037 34.935
Eigið fé
Hlutafé 2.476 2.493
Yfirverðsreikningur hlutafjár 542 602
Annað bundið eigið fé 337 274
Óráðstafað eigið fé 6.509 6.920
Eigið fé 9.864 10.288
Langtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir 11 4.294 4.461
Leiguskuldbindingar 11.597 11.964
Tekjuskattsskuldbinding 17 152
Langtímaskuldir samtals 15.908 16.577
Skammtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir 11 2.963 1.779
Leiguskuldbindingar 629 1.016
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 12 4.393 5.275
Skuldir í sölumeðferð 10 280 0
Skammtímaskuldir samtals 8.264 8.070
Skuldir samtals 24.172 24.647
Eigið fé og skuldir samtals 34.037 34.935

Skýringar á bls. 10-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2024

Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Eiginfjáryfirlit

  1. janúar til 30. júní 2024
Hlutafé Yfirverðs-reikningur hlutafjár Annað bundið eigið fé
Þýðingar-munur Bundinn reikningur Óráðstafað eigið fé Eigið fé samtals
1.1. til 30.6.2023
Eigið fé 1.1.2023 2.668 806 50 79 5.866 9.469
Hagnaður tímabilsins - - - - 483 483
Þýðingarmunur - - (18) - - (18)
Heildarafkoma tímabilsins 0 0 (18) 0 483 465
Keyptir eigin hlutir (158) (772) - - - (930)
Greiddur arður - - - - (281) (281)
Lagt í lögbundinn varasjóð v. kaupa á eigin bréfum - 595 - - (595) 0
Hagnaður hlutdeildarf. og dótturf. umfram arðgr. - - - 57 (57) 0
Eigið fé 30.6.2023 2.510 629 32 136 5.417 8.724
1.1. til 30.6.2024
Eigið fé 1.1.2024 2.493 602 48 226 6.920 10.288
Tap tímabilsins - - - - (339) (339)
Þýðingarmunur - - (10) - - (10)
Heildarafkoma tímabilsins 0 0 (10) 0 (339) (349)
Keyptir eigin hlutir (16) (60) - - - (76)
Hagnaður hlutdeildarf. og dótturf. umfram arðgr. - - - 73 (73) 0
Eigið fé 30.6.2024 2.476 542 38 299 6.509 9.864

Á fyrsta fjórðungi ársins keypti félagið 1.598.815 hluti fyrir 76 millj. kr. Fyrir átti félagið 1.753.979 hluti. Á aðalfundi félagsins þann 11. apríl var samþykkt að lækka hlutafé í samræmi við fjölda eigin hluta, eftir lækkunina eru útgefnið hlutir í félaginu 247.648.960. Skráning hjá Nasdaq á útgefnu hlutafé fór fram 13. maí 2024.

Skýringar á bls. 10-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2024

Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Sjóðstreymisyfirlit

  1. janúar til 30. júní 2024

| | Skýr. | 2024
2F | 2023
2F
| 2024
6M | 2023
6M |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Hagnaður tímabilsins samkvæmt rekstrarreikningi | | (186) | 269 | (339) | 483 |
| Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | | | | | |
| Afskriftir | 8 | 992 | 1.010 | 2.252 | 2.078 |
| Hrein fjármagnsgjöld | | 326 | 296 | 645 | 506 |
| Tekjuskattur | | (90) | 8 | (137) | 13 |
| Veltufé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt | | 1.043 | 1.583 | 2.421 | 3.080 |
| Breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum: | | | | | |
| Birgðir, breyting | | 101 | (60) | 172 | (323) |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, breyting | | 244 | 230 | 216 | 588 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, breyting | | (672) | (380) | (881) | (800) |
| Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt | | 716 | 1.373 | 1.928 | 2.545 |
| Innborgaðar vaxtatekjur | | 6 | 7 | 22 | 26 |
| Greidd vaxtagjöld | | (331) | (286) | (667) | (558) |
| Handbært fé frá rekstri | | 391 | 1.094 | 1.283 | 2.014 |
| Fjárfestingahreyfingar | | | | | |
| Fjárfesting í rekstrarfjármunum | | (255) | (419) | (362) | (731) |
| Fjárfesting í óefnislegum eignum | | (343) | (267) | (679) | (514) |
| Fjárfesting í sýningarréttum | | (567) | (414) | (1.067) | (975) |
| Fjárfestingahreyfingar | | (1.165) | (1.101) | (2.108) | (2.220) |
| Fjármögnunarhreyfingar | | | | | |
| Greiddur arður | | 0 | (281) | 0 | (281) |
| Keyptir eigin hlutir | | 0 | (0) | (76) | (930) |
| Afborganir vaxtaberandi skulda | | (84) | (85) | (169) | (217) |
| Rekstrarlán, breyting | | 1.125 | 822 | 1.184 | 942 |
| Afborgun leiguskuldbindinga | | (188) | (320) | (600) | (638) |
| Fjármögnunarhreyfingar | | 853 | 136 | 339 | (1.123) |
| Breyting á handbæru fé | | 79 | 129 | (485) | (1.329) |
| Handbært fé í byrjun tímabils | | 58 | 603 | 624 | 2.063 |
| Áhrif gengisumreiknings dótturfélags á handbært fé | | (1) | (4) | (3) | (5) |
| Handbært fé í lok tímabilsins | | 136 | 729 | 136 | 729 |

*Ársfjörðungslegar upplýsingar hafa ekki verið kannaðar af endurskoðendum.

Skýringar á bls. 10-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2024
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar

  1. Félagið

Sýn hf. („félagið“) er íslensk hlutafélag. Höfuðstöðvar félagsins eru að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík. Sýn hf. veitir einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum alhliða fjarskipta-, fjölmiðla-, og tækniþjónustu í gegnum vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+, Stöð 2 Sport, Vísi, Bylgjuna, FM957, X 977, Já og dótturfélagið Endor ehf. Félagið á í fjölþættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims. Samandreginn árslutareikningur samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2024 hefur að geyma árslutareikning félagsins, dótturfélaga þess, Endor ehf. og Eignarhaldsfélagsins Njálu ehf., ásamt hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf., sem vísað er til í heild sem „samstæðunnar“.

  1. Reikningsskilin

a. Grundvöllur reikningsskilanna

Samstæðuárslutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árslutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árslutareikninga skráðra félaga. Samstæðuárslutareikningur félagsins 1. janúar til 30. júní 2024 er kannaður af endurskoðendum félagsins.

Samstæðuárslutareikningurinn er gerður eftir sömu reikningsskilareglum og lágu til grundvallar við gerð ársreiknings fyrir árið 2023. Hann inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2023. Hægt er að nálgast ársreikning Sýnar hf. á heimasiðu félagsins www.syn.is. og á vef Kauphallar Íslands; www.nasdaqomxnordic.com.

Stjórn og forstjóri félagsins sambykktu árslutareikninginn og heimiluðu birtingu hans á stjórnarfundi þann 28. ágúst 2024

b. Mat og ákvarðanir stjórnenda

Gerð samstæðuárslutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og dragi ályktanir sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaðferða og birtar fjárhæðir eigna og skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrugðnar þessu mati.

Það er mat stjórnenda að mismunur á gangvírði og bókfærðu verði fjáreigna og fjárskulda sé óverulegur.

  1. Starfrækslu- og framsetningargjaldmiðill

Samstæðuárslutareikningur félagsins er gerður og birtur í íslenskum krónum, sem er starfrækslu- og framsetningargjaldmiðill samstæðunnar. Allar fjárhæðir eru birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.

  1. Starfsþáttayfirlit

Samstæðan skilgreinir starfsþætti eftir innri upplýsingagjóf til stjórnenda og telst samstæðan í heild vera einn starfsþáttur.

  1. Seldar vörur og þjónusta
2024 2023 2024 2023
Seldar vörur og þjónusta greinast þannig: 2F 2F 6M 6M
Vörusala 252 282 540 611
Seld þjónusta 5.230 5.350 10.876 10.881
Seldar vörur og þjónusta samtals 5.482 5.632 11.416 11.493
Tekjustraumar Fjöl-míðlun Internet Farsími Fastlína Hýsingar- og rekstrar-lausnir
--- --- --- --- --- ---
1.1. til 30.6.2024
Tekjur 4.789 2.307 2.115 208 989
1.1. til 30.6.2023
--- --- --- --- --- ---
Tekjur 4.393 2.204 2.445 227 1.204

Samandreginn samstæðuárslutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2024
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

  1. Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu greinist þannig: 2024 2023 2024 2023
2F 2F 6M 6M
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu 2.241 2.151 4.623 4.494
Laun og launatengd gjöld 763 724 1.565 1.451
Eignfærð laun (41) (59) (109) (115)
Afskriftir 701 724 1.666 1.501
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu samtals 3.664 3.540 7.746 7.331
  1. Rekstrarkostnaður
Rekstrarkostnaður greinist þannig: 2024 2023 2024 2023
2F 2F 6M 6M
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður 416 409 861 812
Sölu- og markaðskostnaður 101 81 225 175
Laun og launatengd gjöld 1.035 946 2.005 1.875
Eignfærð laun (75) (203) (175) (280)
Afskriftir 291 285 585 577
Rekstrarkostnaður samtals 1.768 1.518 3.501 3.159
  1. Afskriftir
Afskriftir í rekstrarreikningi greinast þannig: 2024 2023 2024 2023
2F 2F 6M 6M
Afskriftir rekstrarfjármuna 213 152 423 378
Afskriftir óefnislegra eigna 187 174 374 353
Afskriftir afnotarétta 207 332 581 666
Afskriftir sýningarrétta 386 524 874 1.047
Endursamningar við birgja* 0 (173) 0 (366)
Afskriftir samtals 992 1.010 2.252 2.078

*Endursamningar við birgja hafa áhrif til lækkunar afskrifta sýningarrétta á árinu 2023.

  1. Víðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur
Víðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur greinast þannig: 30.6.2024 31.12.2023
Víðskiptakröfur 3.485 3.269
Krafa vegna sölu á stofnneti 1.570 2.000
Aðrar skammtímakröfur 347 333
Leigukröfur 29 28
Niðurfærsla viðskiptakrafna (68) (53)
Víðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur samtals 5.363 5.576

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2024
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

10. Eignir og skuldir í sölumeðferð

Hexatronic Group hefur undirritað viljayfirlysingu um að kaupa hluta af starfsemi Endor hf., sem er í eigu Sýnar hf. Starfsemin sem er í sölumeðferð snýr að sambættum upplýsingatæknilausnum fyrir stærri fyrirtæki og stofnanir. Sala starfseminnar hefur óveruleg áhrif á EBIT samstæðunnar. Umrædd starfsemi telst ekki aflögð starfsemi en eignir hennar og skuldir eru flokkaðar í sérstakur liður í efnahagsreikningi.

Eignir í sölumeðferð 30.6.2024
Leigueignir 262
Kröfur á dótturfélög 5
Eignir í sölumeðferð samtals 267
Skuldir í sölumeðferð 30.6.2024
Leiguskuldbindingar 278
Skuldbindingar vegna dótturfélaga 2
Skuldir í sölumeðferð samtals 280

11. Vaxtaberandi skuldir

Vaxtaberandi skuldir greinast þannig 30.6.2024 31.12.2023
Skuldir við lánastofnanir 7.256 6.240
Næsta árs afborganir (2.963) (1.779)
Vaxtaberandi skuldir samtals 4.294 4.461
Hreyfingar vaxtaberandi skulda
Staða 1.1. 6.240 5.174
Afborganir (169) (375)
Breytingar á rekstrarlánalínu 1.184 1.441
Staða 7.256 6.240
Afborganir af vaxtaberandi skuldum greinast þannig á næstu ár: 30.6.2024 31.12.2023
Afborganir 2024 1.968 1.779
Afborganir 2025 995 337
Afborganir 2026 337 337
Afborganir 2027 337 337
Afborganir 2028 337 337
Síðar 3.281 3.113
Samtals 7.256 6.240

12. Víðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir

Víðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast þannig: 30.6.2024 31.12.2023
Víðskiptaskuldir 2.473 3.261
Ógreiddur virðisaukaskattur 240 251
Fyrirfram innheimtar tekjur 543 591
Ógreiddur áfallinn kostnaður og aðrar skammtímaskuldir 1.137 1.173
Víðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals 4.393 5.275

13. Önnur mál

Enski boltinn

Sýn hefur tryggt sér sýningarréttinn að ensku úrvalsdeildinni frá tímabilinu 2025/2026 til 2027/2028. Staðfestingargjald hefur verið greitt en engin skuldbinding hefur verið færð í árslutareikning félagsins vegna ensku úrvalsdeildarinnar.

Rafmagnsbruni í tækjasal

Í sumar varð rafmagnsbruni í tækjarými félagsins í bakhúsi, að Ármúla 9. Félagið hefur tilkynnt vátryggingafélagi sínu um tjón sem varð á lausafé og tækjabúnaði. Vátryggingafélag hefur viðurkennt bótaskyldu og staðfest að greitt verði úr hlutaðeigandi tryggingum. Enn er verið að meta áhrif rafmagnsbrunans á tækjabúnað félagsins og því er ekki unnt að leggja mat á virði eignanna sem um ræðir á þessu stigi en ljóst er að uppgörið verður félaginu óhagstætt, en áhrif á rekstur félagsins óveruleg. Vegna óvissunnar um verðmæti og virkni eignanna í tækjarýminu hafa eignirnar ekki verið færðar út og krafa á tryggingafélagið ekki verið færð í efnahag.

Samandreginn samstæðuárslutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2024
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

  1. Önnur mál, frh.

Málarekstur

Sýn hf. á í málarekstri við einstaklinga, önnur félög og eftirlitsstofnanir á íslenskum fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði. Félagið færir skuldbindingar vegna málareksturs þegar hægt er að meta framtíðargreiðslur með áreiðanlegum hætti. Vegna óvissu um framtíðarþróun málarekstrar, niðurstöður dómsmála, úrskurða, áfrýjanir og sættir í málum geta niðurstöður mála leitt til viðbótar skuldbindinga og kostnaðar fyrir félagið. Um málarekstur Sýnar hf. visast í skýringu nr. 29 í ársreikningi 2023 og árshlutareikning vegna fyrsta ársfjörðungs 2024, en engar verulegar breytingar hafa orðið frá lokum fyrsta ársfjörðungs.

Félagið getur ekki metið með nægjanlegri vissu framtíðar skuldbindingar eða kröfur sem leiða af niðurstöðum ofangreinds málareksturs meðal annars vegna þess að það getur tekið langan tíma að fá niðurstöðu í mál, ásamt því að mál geta þróast í ólíkar áttir. Vegna þess hefur engin skuldbinding eða krafa verið færð vegna þessara ágreiningsmála í árshlutareikning félagsins á öðrum ársfjörðungi.

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2024
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Ársfjörðungsyfirlit*

2023 2023 2023 2023 2024 2024
1F 2F 3F 4F 1F 2F
Seldar vörur og bjónusta 5.860 5.632 5.730 6.253 5.934 5.482
Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu (3.791) (3.540) (3.594) (4.736) (4.082) (3.664)
Framlegð 2.069 2.092 2.136 1.517 1.852 1.818
Hagnaður af sölu stofnnets - - - 2.436 - -
Rekstrarkostnaður (1.641) (1.518) (1.544) (2.002) (1.733) (1.768)
Rekstrarhagnaður 428 574 592 1.950 119 50
Fjármunatekjur 19 7 7 12 16 6
Fjármagnsgjöld (275) (297) (313) (327) (340) (327)
Gengismunur 46 (6) 41 (48) 5 (5)
Hrein fjármagnsgjöld (210) (296) (265) (363) (319) (326)
Tekjuskattur (5) (8) (6) (281) 46 90
Hagnaður tímabilsins 213 269 321 1.306 (153) (186)
Þýðingarmunur vegna erlands dótturfélags (17) (1) 5 11 (5) (6)
Heildarafkoma tímabilsins 196 268 326 1.317 (158) (191)
EBITDA 1.497 1.583 1.668 3.538 1.379 1.042
EBITDA % 25,5% 28,1% 29,1% 56,6% 23,2% 19,0%

*Ársfjörðungslegar upplýsingar hafa ekki verið kannaðar af endurskoðendum

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2024
Fjárhæðir eru í milljónum kr.