AI assistant
Syn — Interim / Quarterly Report 2023
May 10, 2023
2210_rns_2023-05-10_18d9376a-e124-44d1-9592-918f838671bc.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Sýn hf.
Samandreginn árslutareikningur samstæðu
- janúar til 31. mars 2023

O vodafone
visir
SPORT
BYLGJAN 989
X
ENDOR
Sýn hf. Suðurlandsbraut 8 108 Reykjavík kt. 470905-1740
Efnisyfirlit
| Bls. | |
|---|---|
| Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra | 3 |
| Fjárhagslegar lykiltölur | 5 |
| Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu | 6 |
| Efnahagsreikningur | 7 |
| Eiginfjáryfirlit | 8 |
| Sjóðstreymisyflit | 9 |
| Skýringar við samandreginn árshlutareikning | 10 |
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Sýn hf. er alhliða félag á sviði fjarskipta- og fjölmiðlastarfsemi. Félagið rekur marga af öflugustu fjölmiðlum landsins eins og Stöð 2, Stöð 2+, Stöð 2 Sport, Visi, Bylgjuna, FM957, Xið og fleiri landspekkta miðla. Félagið veitir einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og opinberum aðilum alhliða fjarskipta- og upplýsingatækniþjónustu undir vörumerkjum Vodafone á Íslandi og dótturfélagsins Endor ehf. Félagið á í fjölpættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims.
Árshlutareikningurinn hefur að geyma samandreginn samstæðureikning Sýnar hf. og dótturfélags þess, Endor ehf., ásamt hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga. Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.
Rekstur fjörðungsins
Samkvæmt rekstrarreikningi námu tekjur samstæðunnar af seldum vörum og þjónustu 5.860 millj. kr. samanborið við 5.682 millj. kr. á sama timabili árið 2022. Hagnaður af rekstri samstæðunnar á timabilinu nam 213 millj. kr. en var 207 millj. kr. á sama timabili árið 2022. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 32.448 millj. kr. í lok timabilsins. Eigið fé samstæðunnar nam 8.454 millj. kr. og var eiginfjárhlutfallið 26,1%.
Sala á stofnneti
Þann 20. desember 2022 undirrituðu Sýn hf. og Ljósleiðarinn ehf. samning um kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar og langtíma þjónustusamning milli félaganna. Umsamið kaupverð er 3.000 millj. kr. Samningsgreiðsla verður innt af hendi í áfóngum og verður fjárhæðin að fullu greidd eigi síðar en 12 mánuðum frá afhendingu hinna seldu eigna. Hinar seldu eignir eru bókfærðar á 564 millj. kr. og nemur söluhagnaður því 2.436 millj. kr. og mun bókfærast að fullu við afhendingu.
Samhliða kaupsamningi hefur verið gerður þjónustusamningur milli félaganna til 12 ára um heildsölúaðgang og þjónustu yfir burðar- og aðgangsnet Ljósleiðarans, sem og þjónustu um internettengingar til útlanda.
Gert er ráð fyrir að viðskiptin hafi jákvæð áhrif á rekstrarkostnað Sýnar um 100 millj. kr. nettó á ári. Þá lækki árleg fjárfestingapörf í kringum 120 millj. kr. yfir samningstímann.
Viðskiptin eru til meðhöndlunar hjá Samkeppniseftirlitinu.
Kaup á Já hf.
Félagið hefur náð samkomulagi um kaup á öllu hlutafé Eignarhaldsfélagsins Njálu, móðurfélags Já hf. sem rekur vefsíðuna ja.is. Samkvæmt kaupsamningi mun Já selja dótturfélagið GI Rannsóknir, sem heldur utan um rekstur Gallup á Íslandi, til þriðja aðila fyrir afhendingu hins selda.
Viðskiptin eru til meðhöndlunar hjá Samkeppniseftirlitinu.
Kaup á eigin bréfum
Þann 17. febrúar tók stjórn ákvörðun um að ljúka endurkaupaætlun sem hafði verið í gangi frá 7. nóvember 2022. Sama dag var sett í gang öfugt útboð sem lauk þann 20. febrúar. Félagið keypti í öfuga útboðinu 13.559.322 hluti fyrir 800 millj. kr. Félagið átti samtals 17.375.208 í lok fyrsta ársfjörðungs 2023 eða um 6,47% af útgefnu hlutafé. Á aðalfundi félagsins þann 17. mars var samþykkt tillaga stjórnar um að lækka hlutafé í samræmi við fjölda eigin hluta. Lækkunin var framkvæmd þann 19. april og eru útgefnir hlutir í félaginu 251.001.754 eftir lækkunina.
Á aðalfundi félagsins þann 17. mars var samþykkt arðgreiðsla að fjárhæð 300 millj. kr. vegna rekstrarársins 2022. Að teknu tilliti til eigin bréfa var greiðsla að fjárhæð 281 millj. kr. innt af hendi þann 5. april og endurspeglast skuldbindingin meðal skammtímaskulda þann 31. mars 2023.
Yfirlýsing
Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga IAS 34 eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu 31. mars 2023 ásamt rekstrarafkomu og breytingu á handbæru fé á timabilinu 1. janúar til 31. mars 2023.
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar, frh.
Stjórn og forstjóri Sýnar hf. hafa í dag fjallað um samandreginn árshlutareikning samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2023 og staðfesta hann með undirritun sinni.
Reykjavík, 10. maí 2023
Stjórn
Jón Skaftason, stjórnarformaður
Rannveig Eir Einarsdóttir, varaformaður
Hákon Stefánsson
Páll Gíslason
Salóme Guðmundsdóttir
Forstjóri
Yngvi Halldórsson
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Fjárhagslegar lykiltölur
| 2023 | 2022 | |
|---|---|---|
| 1F | 1F | |
| Fjárhagsupplysingar | ||
| Heildartekjur | 5.860 | 5.682 |
| Rekstrarhagnaður (EBIT) | 428 | 401 |
| EBITDA tímabilsins | 1.497 | 1.710 |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 218 | 259 |
| Hagnaður tímabilsins | 213 | 207 |
| Hagnaður á hlut | 0,79 | 0,77 |
| Fjárfestingar í rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum | 559 | 285 |
| Fjárfestingar í sýningarrétti | 561 | 531 |
| Frjálst fjárflæði (FCF) | 53 | 484 |
| Handbært fé frá rekstri | 921 | 1.107 |
| 31.3. | 31.12. | |
| 2023 | 2022 | |
| Hreinar vaxtaberandi skuldir | 17.546 | 16.226 |
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu
- janúar til 31. mars 2023
| | Skýr. | 2023
1F | 2022
1F |
| --- | --- | --- | --- |
| Seldar vörur og bjónusta | 5 | 5.860 | 5.682 |
| Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu | 6 | ( 3.791) | ( 3.666) |
| Framlegð | | 2.069 | 2.016 |
| Rekstrarkostnaður | 7 | ( 1.641) | ( 1.615) |
| Rekstrarhagnaður | | 428 | 401 |
| Fjármunatekjur | | 19 | 21 |
| Fjármagnsgjöld | | ( 275) | ( 221) |
| Gengismunur | | 46 | 58 |
| Hrein fjármagnsgjöld | | ( 210) | ( 142) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | | 218 | 259 |
| Tekjuskattur | | ( 5) | ( 52) |
| Hagnaður tímabilsins | | 213 | 207 |
| Rekstrarliðir færðir beint á eigið fé: | | | |
| Þýðingarmunur | | ( 17) | ( 26) |
| Heildarafkoma tímabilsins | | 196 | 181 |
| Hagnaður á hlut | | 0,79 | 0,77 |
Skýringar á bls. 10-12 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings samstæðunnar.
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2022
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Efnahagsreikningur
- mars 2023
| Skýr. | 31.3.2023 | 31.12.2022 | |
|---|---|---|---|
| Fastafjármunir | |||
| Leigueignir | 8.480 | 8.620 | |
| Rekstrarfjármunir | 2.818 | 2.866 | |
| Viðskiptavild | 8.891 | 8.906 | |
| Aðrar óefnislegar eignir | 4.442 | 4.389 | |
| Langtímaleigukröfur | 156 | 157 | |
| Eignahlutir i félögum | 178 | 185 | |
| Tekjuskattsinneign | 151 | 158 | |
| Fastafjármunir samtals | 25.116 | 25.281 | |
| Veltufjármunir | |||
| Sýningarréttir | 1.848 | 1.809 | |
| Birgðir | 968 | 559 | |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 9 | 3.349 | 3.650 |
| Handbært fé | 603 | 2.063 | |
| Veltufjármunir samtals | 6.768 | 8.081 | |
| Eignir flokkaðar til sölu | 10 | 564 | 564 |
| Eignir samtals | 32.448 | 33.926 | |
| Eigið fé | |||
| Hlutafé | 2.510 | 2.668 | |
| Yfirverðsreikningur hlutafjár | 34 | 806 | |
| Annað eigið fé | 128 | 129 | |
| Óráðstafað eigið fé | 5.782 | 5.866 | |
| Eigið fé | 8.454 | 9.469 | |
| Langtímaskuldir | |||
| Vaxtaberandi skuldir | 4.704 | 4.801 | |
| Leiguskuldbindingar | 11.861 | 11.820 | |
| Langtímaskuldir samtals | 16.565 | 16.621 | |
| Skammtímaskuldir | |||
| Vaxtaberandi skuldir | 458 | 373 | |
| Leiguskuldbindingar | 1.126 | 1.295 | |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 11 | 5.845 | 6.168 |
| Skammtímaskuldir samtals | 7.429 | 7.836 | |
| Skuldir samtals | 23.994 | 24.457 | |
| Eigið fé og skuldir samtals | 32.448 | 33.926 |
Skýringar á bls. 10-12 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings samstæðunnar.
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Eiginfjáryfirlit
- janúar til 31. mars 2023
| Hlutafé | Yfirverð | Annað eigið fé | Óráðstafað eigið fé | Eigið fé samtals | ||
|---|---|---|---|---|---|---|
| Þýðingar-munur | Bundinn reikningur | |||||
| 1.1. til 31.3.2022 | ||||||
| Eigið fé 1.1.2021 | 2.964 | 2.465 | 49 | 20 | 5.037 | 10.535 |
| Hagnaður tímabilsins | - | - | - | - | 207 | 207 |
| Þýðingarmunur | - | - | (26) | - | - | (26) |
| Heildarafkoma tímabilsins | 0 | 0 | (26) | 0 | 207 | 181 |
| Keypt eigin bréf | (280) | (1.580) | 0 | (1.860) | ||
| Hagn.dóttur fél. umfram arðgr. | 22 | (22) | 0 | |||
| Eigið fé 31.3.2022 | 2.684 | 885 | 23 | 42 | 5.222 | 8.856 |
1.1. til 31.3.2023
| Eigið fé 1.1.2023 | 2.668 | 806 | 50 | 79 | 5.866 | 9.469 |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Hagnaður tímabilsins | - | - | - | - | 213 | 213 |
| Þýðingarmunur | - | - | (17) | - | - | (17) |
| Heildarafkoma tímabilsins | 0 | 0 | (17) | 0 | 213 | 196 |
| Keypt eigin bréf | (158) | (772) | - | - | - | (930) |
| Hagn.dóttur fél. umfram arðgr. | - | - | - | 16 | (16) | 0 |
| Ákvarðaður arður | - | - | - | - | (281) | (281) |
| Eigið fé 31.3.2023 | 2.510 | 34 | 33 | 95 | 5.782 | 8.454 |
Á fjóðungnum keypti félagíð 15.762.322 hluti fyrir 930 millj. kr. Fyrir átti félagíð 1.612.886 hluti. Eftir lok tímabilsins, þann 19. april, var hlutaféð lækkað í samræmi við fjölda eigin hluta og eru útgefnir hlutir í félaginu 251.001.754 eftir lækkunina.
Á aðalfundi félagins þann 17. mars var samþykkt arðgreiðsla að fjárhæð 300 millj. kr. vegna rekstrarársins 2022. Að teknu tilliti til eigin bréfa var greiðsla að fjárhæð 281 millj. kr. innt af hendi þann 5. april og endurspeglast skuldbindingin meðal skammtímaskulda þann 31. mars 2023.
Skýringar á bls. 10-12 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings samstæðunnar.
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Sjóðstreymisyfirlit
- janúar til 31. mars 2023
| | Skýr. | 2023
1F | 2022
1F |
| --- | --- | --- | --- |
| Hagnaður tímabilisins samkvæmt rekstrarreikningi | | 213 | 207 |
| Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | | | |
| Afskriftir | 8 | 1.068 | 1.309 |
| Söluhagnaður | | 0 | (2) |
| Hrein fjármagnsgjöld | | 210 | 142 |
| Tekjuskattur | | 5 | 52 |
| Veltufé frá rekstri | | 1.496 | 1.708 |
| Breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum: | | | |
| Birgðir, breyting | | (262) | (93) |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, breyting | | 359 | 1.595 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, breyting | | (420) | (1.907) |
| Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt | | 1.173 | 1.303 |
| Innborgaðar vaxtatekjur | | 19 | 21 |
| Greidd vaxtagjöld | | (271) | (215) |
| Greiddur tekjuskattur | | 0 | (2) |
| Handbært fé frá rekstri | | 921 | 1.107 |
| Fjárfestingahreyfingar | | | |
| Fjárfesting í rekstrarfjármunum | | (312) | (167) |
| Fjárfesting í óefnislegum eignum | | (247) | (118) |
| Fjárfesting í sýningarrétti | | (561) | (531) |
| Sala rekstrarfjármuna | | 0 | 2 |
| Keyptir eignarhlutir | | 0 | (5) |
| Fjárfestingahreyfingar samtals | | (1.120) | (819) |
| Fjármögnunarhreyfingar | | | |
| Afborganir vaxtaberandi skulda | | (132) | (119) |
| Rekstrarlán, breyting | | 120 | (40) |
| Afborgun leiguskuldbindinga | | (317) | (383) |
| Keypt eigin bréf | | (930) | (1.860) |
| Fjármögnunarhreyfingar samtals | | (1.259) | (2.402) |
| Breyting á handbæru fé | | (1.458) | (2.114) |
| Handbært fé í byrjun tímabils | | 2.063 | 4.214 |
| Gengisbreyting á handbæru fé og þýðingarmunur | | (1) | (7) |
| Handbært fé í lok tímabilsins | | 603 | 2.093 |
Skýringar á bls. 10-12 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings samstæðunnar.
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Skýringar
1. Félagið
Sýn hf. („félagið“) er íslensk hlutafélag. Höfuðstöðvar félagsins eru að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík. Sýn hf. veitir einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum alhliða fjarskipta-, fjölmiðla, og tækniþjónustu í gegnum vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+, Stöð 2 Sport, Visi, Bylgjuna, FM957, X 977 og dótturfélagið Endor ehf. Félagið á í fjölpættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims. Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar fyrir timabilið 1. janúar til 31. mars 2023 hefur að geyma árshlutareikning félagsins, dótturfélags þess, Endor ehf. og hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf., sem vísað er til í heild sem „samstæðunnar“.
2. Reikningsskilin
a. Grundvöllur reikningsskilanna
Árshlutareikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastáðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga. Árshlutareikningur samstæðunnar 1. janúar til 31. mars 2023 hefur hvorki verið endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.
Árshlutareikningurinn er gerður eftir sömu reikningsskilareglum og lágu til grundvallar við gerð ársreikningsins 2022. Hann inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning samstæðunnar fyrir árið 2022. Hægt er að nálgast ársreikning Sýnar hf. á heimasiðu félagsins www.syn.is. og á vef Kauphallar Íslands, www.nasdaqomxnordic.com.
b. Mat stjórnenda á reikningsskilum
Gerð samstæðuárshlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastáðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og dragi ályktanir sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaðferða og birtar fjárhæðir eigna og skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrögur þessu mati.
3. Starfrækslu- og framsetningargjaldmiðill
Samstæðuárshlutareikningur félagsins er birtur í íslenskum krónum, sem er framsetningargjaldmiðill samstæðunnar. Allar fjárhæðir eru birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.
4. Starfsþáttayfirlit
Félagið skilgreinir starfsþætti eftir innri upplýsingagjóf til stjórnenda og telst samstæðan í heild vera einn starfsþáttur.
5. Seldar vörur og þjónusta
| 2023 | 2022 | ||||
|---|---|---|---|---|---|
| Seldar vörur og þjónusta greinast þannig: | 1F | 1F | |||
| Vörusala | 329 | 274 | |||
| Seld þjónusta | 5.531 | 5.408 | |||
| Seldar vörur og þjónusta samtals | 5.860 | 5.682 | |||
| Tekjustraumar | Fjöl-míðlun | Internet | Farsími | Fastína | Hýsingar-og rekstrar lausnir |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| 1.1. til 31.3.2023 | |||||
| Tekjur | 2.165 | 1.109 | 1.200 | 116 | 702 |
| 1.1. til 31.3.2022 | |||||
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Tekjur | 2.107 | 1.122 | 1.401 | 129 | 465 |
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Skýringar, frh.:
- Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu
| Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu greinist þannig: | 2023 | 2022 |
|---|---|---|
| 1F | 1F | |
| Kostnaðarverð seldrar vöru og þjónustu | 2.343 | 2.059 |
| Laun og launatengd gjöld | 728 | 614 |
| Eignfærð laun | (56) | (35) |
| Afskriftir | 777 | 1.028 |
| Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu samtals | 3.791 | 3.666 |
- Rekstrarkostnaður
| Rekstrarkostnaður greinist þannig: | 2023 | 2022 |
|---|---|---|
| 1F | 1F | |
| Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður | 403 | 407 |
| Sölu- og markaðskostnaður | 95 | 80 |
| Laun og launatengd gjöld | 929 | 926 |
| Eignfærð laun | (77) | (79) |
| Afskriftir | 292 | 281 |
| Rekstrarkostnaður samtals | 1.641 | 1.615 |
- Afskriftir
| Afskriftir í rekstrarreikningi greinast þannig: | 2023 | 2022 |
|---|---|---|
| 1F | 1F | |
| Afskriftir rekstrarfjármuna | 226 | 220 |
| Afskriftir óefnislegra eigna | 179 | 179 |
| Afskriftir afnotaréttar | 334 | 311 |
| Afskriftir sýningarréttar | 329 | 599 |
| Afskriftir samtals | 1.069 | 1.309 |
Endursamningar við birgja hafa áhrif á afskriftir fyrsta fjörðungs 2023 til lækkunar.
- Viðskiptakröfur
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur greinast þannig: | 31.03.2023 | 31.12.2022 |
|---|---|---|
| Viðskiptakröfur | 2.980 | 3.314 |
| Aðrar skammtímakröfur | 411 | 401 |
| Leigukröfur | 25 | 24 |
| Niðurfærsla viðskiptakrafna | (66) | (89) |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur samtals | 3.349 | 3.650 |
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Skýringar, frh.:
10. Sala á stofnneti
Pann 20. desember 2022 undirrituðu Sýn hf. og Ljósleiðarinn ehf. samning um kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar og langtíma þjónustusamning milli félaganna. Umsamið kaupverð er 3.000 millj. kr. Samningsgreiðsla verður innt af hendi í áfóngum og verður fjárhæðin að fullu greidd eigi síðar en 12 mánuðum frá afhendingu hinna seldu eigna. Hinar seldu eignir eru bókfærðar á 564 millj. kr. og nemur söluhagnaður því 2.436 millj. kr. og mun bókfærast að fullu við afhendingu.
Samhliða kaupsamningi hefur verið gerður þjónustusamningur milli félaganna til 12 ára um heildsöluaðgang og þjónustu yfir burðar- og aðgangsnet Ljósleiðarans, sem og þjónustu um internettengingar til útlanda.
Gert er ráð fyrir að viðskiptin hafi jákvæð áhrif á rekstrarkostnað Sýnar um 100 millj. kr. nettó á ári. Pá lækki árleg fjárfestingapörf í kringum 120 millj. kr. yfir samningstímann.
Viðskiptin eru til meðhöndlunar hjá Samkeppniseftirlitinu.
11. Viðskiptaskuldir
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast þannig: | 31.03.2023 | 31.12.2022 |
|---|---|---|
| Viðskiptaskuldir | 3.654 | 4.241 |
| Ögreiddur virðisaukaskattur | 374 | 319 |
| Fyrirfram innheimtar tekjur | 489 | 560 |
| Ögreiddur áfallinn kostnaður og aðrar skammtímaskuldir | 1.048 | 1.048 |
| Ákvarðaður arður | 281 | 0 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals | 5.845 | 6.168 |
12. Önnur mál
Sýn hf. á í málarekstri við einstaklinga, önnur félög og eftirlitsstofnanir á íslenskum fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði. Félagið færir skuldbindingar vegna málareksturs þegar hægt er að meta framtíðargreiðslur með áreiðanlegum hætti. Vegna óvissu um framtíðarþróun málarekstrar, niðurstöður dómsmála, úrskurða, áfrýjanir og sættir í málum geta niðurstöður mála leitt til viðbótar skuldbindinga og kostnaðar fyrir félagið. Um málarekstur Sýnar hf. visast í ársreikning 2022 en engar verulegar breytingar hafa átt sér stað frá árslokum 2022.
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. 31. mars 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.