Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Interim / Quarterly Report 2023

Aug 29, 2023

2210_rns_2023-08-29_4c349f38-314b-452d-83bf-e46cfdb79ef5.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Sýn hf.

Samandreginn árslutareikningur samstæðu

  1. janúar til 30. júní 2023

vodafone

visir

SPORT

BYLGJAN 989

KNIVEK

ENDOR

Sýn hf. Suðurlandsbraut 8 108 Reykjavík kt. 470905-1740


Efnisyfirlit

Bls.
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra 3
Fjárhagslegar lykiltölur 5
Könnunaráritun óháðra endurskoðenda 6
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu 7
Efnahagsreikningur 8
Eiginfjáryfirlit 9
Sjóðstreymisyfirlit 10
Skýringar 11
Viðauki:
Ársfjörðungsyfirlit 15

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Sýn hf. er alhliða félag á sviði fjarskipta- og fjölmiðlastarfsemi. Félagið rekur marga af öflugustu fjölmiðlum landsins eins og Stöð 2, Stöð 2+, Stöð 2 Sport, Bylgjuna, Vísi, FM957, Xið og fleiri landsbekkta miðla. Félagið veitir einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og opinberum aðilum alhliða fjarskipta- og upplysingatækniþjónustu undir vörumerkjum Vodafone á Íslandi og dótturfélagsins Endor ehf. Félagið á í fjölþættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims.

Árshlutareikningurinn hefur að geyma samandreginn samstæðureikning Sýnar hf. og dótturfélags þess, Endor ehf., ásamt hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga. Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins.

Niðurstaða árshelmingsins

Samkvæmt rekstrarreikningi námu tekjur samstæðunnar af seldum vörum og þjónustu 11.493 millj. kr. Hagnaður af rekstri samstæðunnar á tímabilinu nam 483 millj. kr. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 32.391 millj. kr. 30. júní 2023. Eigið fé samstæðunnar þann 30. júní 2023 nam 8.724 millj. kr. Þar af nam hlutafé 2.510 millj. kr. Eiginfjárhlutfallið 30. júní 2023 var 26,9%.

Tekjur félagsins lækkuðu um 1,7% á milli árshelminga. Fyrri árshelmingur 2022 einkenndist af óreglulegum tekjum, að teknu tilliti til þeirra er tekjuvóxtur 6,5%. Góður vóxtur er í auglýsinga- og reikitekjum og reglulegum tekjum Endor. Framlegðarhlutfall hækkar um 3 prósentustig á milli tímabila en rekstarkostnaður stendur nánast í stað. Tilfærsla er á kostnaði á milli rekstrarkostnaðar og kostnaðarverðs vegna alrekstrarsamnings við Endor. Rekstrarhagnaður hækkar úr 723 millj. kr. í 1.002 millj. kr. á milli árshelminga sem er 39% hækkun.

Sala á stofnneti

Þann 20. desember 2022 undirrituðu Sýn hf. og Ljósleiðarinn ehf. samning um kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar og langtíma þjónustusamning milli félaganna. Umsamið kaupverð er 3.000 millj. kr. Samningsgreiðsla verður innt af hendi í áföngum og verður fjárhæðin að fullu greidd eigi síðar en 12 mánuðum frá afhendingu hinna seldu eigna. Hinar seldu eignir eru bókfærðar á 564 millj. kr. og nemur söluhagnaður því 2.436 millj. kr. og mun bókfærast að fullu við afhendingu.

Samhliða kaupsamningi hefur verið gerður þjónustusamningur milli félaganna til 12 ára um heildsölúaðgang og þjónustu yfir burðar- og aðgangsnet Ljósleiðarans, sem og þjónustu um internettengingar til útlanda.

Gert er ráð fyrir að viðskiptin hafi jákvæð áhrif á rekstrarkostnað Sýnar um 100 millj. kr. nettó á ári. Þá lækki árleg fjárfestingapörf í kringum 120 millj. kr. yfir samningstímann.

Viðskiptin eru til meðhöndlunar hjá Samkeppniseftirlitinu.

Kaup á Já hf.

Félagið hefur náð samkomulagi um kaup á öllu hlutafé Eignarhaldsfélagsins Njálu, móðurfélags Já hf. sem rekur vefsíðuna ja.is. Samkvæmt kaupsamningi stöð til að Já myndi selja dótturfélagið GI Rannsóknir, sem heldur utan um rekstur Gallup á Íslandi, til þriðja aðila fyrir afhendingu hins selda. Þessi sala er vel á veg komin.

Viðskiptin eru til meðhöndlunar hjá Samkeppniseftirlitinu.

Kaup á eigin bréfum og arðgreiðsla

Þann 17. febrúar tók stjórn ákvörðun um að ljúka endurkaupaætlun sem hafði verið í gangi frá 7. nóvember 2022. Sama dag var sett í gang öfugt útboð sem lauk þann 20. febrúar. Félagið keypti í öfuga útboðinu 13.559.322 hluti fyrir 800 millj. kr. Félagið átti samtals 17.375.208 í lok fyrsta ársfjörðungs 2023 eða um 6,47% af útgefnu hlutafé. Á aðalfundi félagsins þann 17. mars var samþykkt tillaga stjórnar um að lækka hlutafé í samræmi við fjölda eigin hluta. Lækkunin var framkvæmd þann 19. apríl og eru útgefnir hlutir í félaginu 251.001.754 eftir lækkunina. Til viðbótar var arðgreiðsla að fjárhæð 281 millj. kr. innt af hendi þann 5. apríl.

Yfirlýsing

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga IAS 34 eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu samstæðunnar 30. júní 2023 ásamt rekstrarafkomu og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2023.

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar, frh.

Stjórn og forstjóri Sýnar hf. hafa í dag fjallað um samandreginn árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2023 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Reykjavík, 29. ágúst 2023

Í Stjórn

Jón Skaftason, stjórnarformaður

Rannveig Eir Einarsdóttir, varaformaður

Hákon Stefánsson

Páll Gíslason

Salóme Guðmundsdóttir

Forstjóri

Yngvi Halldórsson

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2023

Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Fjárhagslegar lykiltölur

2023 2022 2023 2022
2F 2F 6M 6M
Fjárhagsupplýsingar
Heildartekur 5.632 6.009 11.493 11.691
Rekstrarhagnaður (EBIT) 574 322 1.002 723
EBITDA tímabilsins 1.583 1.607 3.080 3.317
Hagnaður fyrir tekjuskatt 277 96 496 355
Hagnaður tímabilsins 269 66 483 273
Hagnaður á hlut 1,07 0,12 1,75 0,79
Fjárfestingar í rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum 686 454 1.246 740
Fjárfestingar í sýningarrétti 414 555 975 1.086
Frjálst fjárflæði (FCF) 272 800 325 1.284
Handbært fé frá rekstri 1.094 1.580 2.014 2.688
30.06. 31.03. 31.12. 30.06.
2023 2023 2022 2022
Hreinar vaxtaberandi skuldir 17.899 17.546 16.226 15.605

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Könnunaráritun óháðra endurskoðenda

Til stjórnar og hluthafa Sýnar hf.

Við höfum kannað meðfylgjandi samandreginn samstæðuárshlutareikning Sýnar hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2023. Samstæðuárshlutareikningurinn hefur að geyma, rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstreymisyfirlit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.

Ábyrgð stjórnar og forstjóra á samstæðuárshlutareikningnum

Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu samstæðuárshlutareikningsins í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfum sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga.

Ábyrgð endurskoðenda

Ábyrgð okkar felst í ályktun okkar um árshlutareikninginn sem byggir á könnuninni.

Umfang könnunar

Könnun okkar var unnin í samræmi við alþjóðlegan staðal ISRE 2410, sem fjallar um könnun óháðs endurskoðenda á árshlutareikningum. Slik könnun felur í sér fyrirspurnir, einkum til starfsmanna sem eru ábyrgir fyrir fjármálum og reikningsskilum félagsins ásamt greiningum á hinum ýmsu liðum reikningsskilanna og öðrum könnunaraðgerðum. Könnun felur ekki í sér jafn viðtækar aðgerðir og endurskoðun sem unnin er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla og er því ekki víst að við fáum vitneskju um öll mikilvæg atriði sem gætu komið í ljós við endurskoðun. Þar af leiðandi látum við álit um endurskoðun ekki í ljós.

Ályktun

Við könnun okkar kom ekkert fram sem bendir til annars en að samstæðuárshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins á tímabilinu, efnahag þess 30. júní 2023 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS34 eins og þeir hafa verið sambykktir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga.

Reykjavík, 29. ágúst 2023

Deloitte ehf.

Porsteinn Pétur Guðjónsson
endurskoðandi

Steina Dröfn Snorradóttir
endurskoðandi

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2023


Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu

  1. janúar til 30. júní 2023

| | Skýr. | 2023
2F | 2022
2F
| 2023
6M | 2022
6M |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Seldar vörur og bjónusta | 5 | 5.632 | 6.009 | 11.493 | 11.691 |
| Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu | 6 | (3.540) | (4.124) | (7.331) | (7.790) |
| Framlegð | | 2.092 | 1.885 | 4.161 | 3.901 |
| Rekstrarkostnaður | 7 | (1.518) | (1.563) | (3.159) | (3.178) |
| Rekstrarhagnaður | | 574 | 322 | 1.002 | 723 |
| Fjármunatekjur | | 7 | 9 | 26 | 30 |
| Fjármagnsgjöld | | (297) | (248) | (572) | (469) |
| Gengismunur | | (6) | 13 | 40 | 71 |
| Hrein fjármagnsgjöld | | (296) | (226) | (506) | (368) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | | 277 | 96 | 496 | 355 |
| Tekjuskattur | | (8) | (30) | (13) | (82) |
| Hagnaður tímabilsins | | 269 | 66 | 483 | 273 |
| Rekstrarliðir færðir á eigið fé sem síðar kunna að
vera endurflokkaðir í rekstur | | | | | |
| Þýðingarmunur | | (1) | (35) | (18) | (61) |
| Heildarafkoma tímabilsins | | 268 | 31 | 465 | 212 |
| Hagnaður á hlut | | 1,07 | 0,12 | 1,75 | 0,79 |

*Ársfjórðungslegar upplýsingar hafa ekki verið kannaðar af endurskoðendum.
Skýringar á bls. 11-14 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Efnahagsreikningur

  1. júní 2023
Skýr. 30.6.2023 31.12.2022
Fastafjármunir
Leigueignir 8.212 8.620
Rekstrarfjármunir 3.105 2.866
Viðskiptavild 8.893 8.906
Aðrar óefnislegar eignir 4.515 4.389
Langtímaleigukröfur 153 157
Eignahlutir í félögum 9 185 185
Tekjuskattsinneign 145 158
Fastafjármunir samtals 25.208 25.281
Veltufjármunir
Sýningarréttir 1.738 1.809
Birgðir 1.028 559
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 10 3.124 3.650
Handbært fé 729 2.063
Veltufjármunir samtals 6.620 8.081
Eignir flokkaðar til sölu 12 564 564
Eignir samtals 32.391 33.926
Eigið fé
Hlutafé 2.510 2.668
Yfirverðsreikningur hlutafjár 629 806
Annað eigið fé 168 129
Óráðstafað eigið fé 5.417 5.866
Eigið fé 8.724 9.469
Langtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir 4.623 4.801
Leiguskuldbindingar 11.605 11.820
Langtímaskuldir samtals 16.228 16.621
Skammtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir 1.276 373
Leiguskuldbindingar 1.124 1.295
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 11 5.039 6.168
Skammtímaskuldir samtals 7.439 7.836
Skuldir samtals 23.667 24.457
Eigið fé og skuldir samtals 32.391 33.926

Skýringar á bls. 11-14 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2023

Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Eiginfjáryfirlit

  1. janúar til 30. júní 2023
Hlutafé Yfirverðs-reikningur hlutafjár Annað eigið fé
Þýðingar-munur Bundinn reikningur Óráðstafað eigið fé Eigið fé samtals
1.1. til 30.6.2022
Eigið fé 1.1.2022 2.964 2.465 49 20 5.037 10.535
Hagnaður tímabilsins - - - - 273 273
Þýðingarmunur - - (61) - - (61)
Heildarafkoma tímabilsins 0 0 (61) 0 273 212
Keypt eigin bréf (280) (1.580) (1.860)
Hagnaður hlutdeildarf.og dótturf. umfram arðgr. - - - 22 (22) 0
Eigið fé 30.6.2022 2.684 885 (12) 42 5.289 8.888
1.1. til 30.6.2023
Eigið fé 1.1.2023 2.668 806 50 79 5.866 9.469
Hagnaður tímabilsins - - - - 483 483
Þýðingarmunur - - (18) - - (18)
Heildarafkoma tímabilsins 0 0 (18) 0 483 465
Keypt eigin bréf (158) (772) - - - (930)
Greiddur arður - - - - (281) (281)
Lagt í lögbundinn varasjóð v. kaupa á eigin hlutum - 595 - - (595) 0
Hagnaður hlutdeildarf.og dótturf. umfram arðgr. - - - 57 (57) 0
Eigið fé 30.6.2023 2.510 629 32 136 5.417 8.724

Á fyrri hluta árs keypti félágið 15.762.322 hluti fyrir 930 millj. kr. Fyrir átti félágið 1.612.886 hluti. Þann 19. apríl, var hlutaféð lækkað í samræmi við fjölda eigin hluta og eru útgefnir hlutir í félaginu 251.001.754 eftir lækkunina.

Á aðalfundi félagins þann 17. mars var sambykkt arðgreiðsla að fjárhæð 300 millj. kr. vegna rekstrarársins 2022. Að teknu tilliti til eigin bréfa var greiðsla að fjárhæð 281 millj. kr. innt af hendi þann 5. apríl.

Skýringar á bls. 11-14 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Sjóðstreymisyfirlit

  1. janúar til 30. júní 2023

| | Skýr. | 2023
2F | 2022
2F | 2023
6M | 2022
6M |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Hagnaður tímabilsins samkvæmt rekstrarreikningi | | 269 | 66 | 483 | 273 |
| Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | | | | | |
| Söluhagnaður | | 0 | 0 | 0 | (2) |
| Afskriftir | 8 | 1.010 | 1.285 | 2.078 | 2.594 |
| Hrein fjármagnsgjöld | | 296 | 226 | 506 | 368 |
| Tekjuskattur | | 8 | 30 | 13 | 82 |
| Veltufé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt | | 1.583 | 1.607 | 3.080 | 3.315 |
| Breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum: | | | | | |
| Birgðir, breyting | | (60) | (128) | (323) | (221) |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, breyting | | 230 | 297 | 588 | 1.893 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, breyting | | (380) | 34 | (800) | (1.873) |
| Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt | | 1.373 | 1.810 | 2.545 | 3.114 |
| Innborgaðar vaxtatekjur | | 7 | 9 | 26 | 30 |
| Greidd vaxtagjöld | | (286) | (241) | (558) | (456) |
| Greiddur tekjuskattur | | 0 | 2 | 0 | 0 |
| Handbært fé frá rekstri | | 1.094 | 1.580 | 2.014 | 2.688 |
| Fjárfestingahreyfingar | | | | | |
| Keyptur eignarhlutur | 9 | 0 | (1) | 0 | (6) |
| Fjárfesting í rekstrarfjármunum | | (419) | (251) | (731) | (419) |
| Fjárfesting í óefnislegum eignum | | (267) | (203) | (514) | (321) |
| Fjárfesting í sýningarrétti | | (414) | (555) | (975) | (1.086) |
| Sala rekstrarfjármuna | | 0 | 0 | 0 | 2 |
| Fjárfestingahreyfingar | | (1.101) | (1.010) | (2.220) | (1.830) |
| Fjármögnunarhreyfingar | | | | | |
| Afborganir vaxtaberandi skulda | | (85) | (119) | (217) | (237) |
| Rekstrarlán, breyting | | 822 | 0 | 942 | (40) |
| Afborgun leiguskuldbindinga | | (320) | (288) | (638) | (672) |
| Keypt eigir bréf | | (0) | 0 | (930) | (1.860) |
| Greiddur arður | | (281) | 0 | (281) | 0 |
| Fjármögnunarhreyfingar | | 136 | (407) | (1.123) | (2.809) |
| Breyting á handbæru fé | | 129 | 163 | (1.329) | (1.951) |
| Handbært fé í byrjun tímabils | | 603 | 2.093 | 2.063 | 4.214 |
| Áhrif gengisumreiknings dótturfélags á handbært fé | | (4) | (4) | (5) | (11) |
| Handbært fé í lok tímabilsins | | 729 | 2.252 | 729 | 2.252 |

Skýringar á bls. 11-14 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar

  1. Félagið

Sýn hf. („félagið“) er íslensk hltafélag. Höfuðstöðvar félagsins eru að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík. Sýn hf. veitir einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum alhliða fjarskipta-, fjölmiðla, og tækniþjónustu í gegnum vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Stöð 2 Sport, Stöð 2+, Vísir, Bylgjan, FM957, X 977 og dótturfélagið Endor ehf. Félagið á í fjölþættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims. Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2023 hefur að geyma árshlutareikning félagsins, dótturfélag þess, Endor ehf. og hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf., sem vísað er til í heild sem „samstæðunnar“.

  1. Reikningsskilin

a. Grundvöllur reikningsskilanna

Samstæðuárshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga. Samstæðuárshlutareikningur félagsins 1. janúar til 30. júní 2023 er kannaður af endurskoðendum félagsins.

Samstæðuárshlutareikningurinn er gerður eftir sömu reikningsskilareglum og lágu til grundvallar við gerð ársreiknings fyrir árið 2022. Hann inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2022. Hægt er að nálgast ársreikning Sýnar hf. á heimasiðu félagsins www.syn.is. og á vef Kauphallar Íslands; www.nasdaqomxnordic.com.

b. Mat stjórnenda á reikningsskilum

Gerð samstæðuárshlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og dragi ályktanir sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaðferða og birtar fjárhæðir eigna og skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrögur þessu mati.

Það er mat stjórnenda að mismunur á gangvírði og bókfærðu verði fjáreigna og fjárskulda sé óverulegur.

  1. Starfrækslu- og framsetningargjaldmiðill

Samstæðuárshlutareikningur félagsins er birtur í íslenskum krónum, sem er framsetningargjaldmiðill samstæðunnar. Allar fjárhæðir eru birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.

  1. Starfsþáttayfirlit

Samstæðan skilgreinir starfsþætti eftir innri upplýsingagjóf til stjórnenda og telst samstæðan í heild vera einn starfsþáttur.

  1. Seldar vörur og þjónusta
2023 2022 2023 2022
Seldar vörur og þjónusta greinast þannig: 2F 2F 6M 6M
Vörusala 282 323 611 597
Seld þjónusta 5.350 5.686 10.881 11.094
Seldar vörur og þjónusta samtals 5.632 6.009 11.493 11.691
Tekjustraumar Fjöl-míðlun Internet Farsími Fastlína
--- --- --- --- ---
1.1. til 30.6.2023
Tekjur 4.393 2.204 2.445 227
1.1. til 30.6.2022
--- --- --- --- ---
Tekjur 4.254 2.231 2.683 251

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

  1. Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu greinist þannig: 2023 2022 2023 2022
2F 2F 6M 6M
Kostnaðarverð seldrar vöru og þjónustu 2.151 2.577 4.494 4.636
Laun og launatengd gjöld 724 610 1.451 1.225
Eignfærð laun (59) (63) (115) (98)
Afskriftir 724 1.000 1.501 2.027
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu samtals 3.540 4.124 7.331 7.790
  1. Rekstrarkostnaður
Rekstrarkostnaður greinist þannig: 2023 2022 2023 2022
2F 2F 6M 6M
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður 409 369 812 775
Sölu- og markaðskostnaður 81 73 175 153
Laun og launatengd gjöld 946 908 1.875 1.834
Eignfærð laun (203) (72) (280) (151)
Afskriftir 285 285 577 567
Rekstrarkostnaður samtals 1.518 1.563 3.159 3.178
  1. Afskriftir
2023 2022 2023 2022
Afskriftir í rekstrarreikningi greinast þannig: 2F 2F 6M 6M
Afskriftir rekstrarfjármuna 152 223 378 442
Afskriftir óefnislegra eigna 174 180 353 360
Afskriftir afnotaréttar 332 284 666 596
Afskriftir sýningarréttar 352 598 681 1.196
Afskriftir samtals 1.010 1.285 2.078 2.594

Endursamningar við birgja hafa áhrif á afskriftir á árinu 2023 til lækkunar.

  1. Eignarhlutir í félögum
Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum greinast þannig: 30.6.2023 31.12.2022
Bókfært verð 1.1. 56 39
Fjárfesting á árinu - 17
Bókfært verð eignarhluta í hlutdeildarfélögum samtals 56 56
Eignarhlutir í öðrum félögum 129 129
Bókfært verð eignarhluta í félögum samtals 185 185

Samandreginn samstæðúárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

  1. Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur
Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur greinast þannig: 30.6.2023 31.12.2022
Viðskiptakrófur 2.885 3.314
Aðrar skammtímakrófur 281 401
Leigukrófur 25 24
Niðurfærsla viðskiptakrafna ( 66) ( 89)
Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur samtals 3.124 3.650
  1. Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast þannig: 30.6.2023 31.12.2022
Viðskiptaskuldir 3.254 4.241
Ógreiddur virðisaukaskattur 330 319
Fyrirfram innheimtar tekjur 488 560
Ógreiddur áfallinn kostnaður og aðrar skammtímaskuldir 968 1.048
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals 5.039 6.168
  1. Sala á stofnneti

Þann 20. desember 2022 undirrituðu Sýn hf. og Ljósleiðarinn ehf. samning um kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar og langtíma þjónustusamning milli félaganna. Umsamið kaupverð er 3.000 millj. kr. Samningsgreiðsla verður innt af hendi í áfóngum og verður fjárhæðin að fullu greidd eigi síðar en 12 mánuðum frá afhendingu hinna seldu eigna. Hinar seldu eignir eru bókfærðar á 564 millj. kr. og nemur söluhagnaður því 2.436 millj. kr. og mun bókfærast að fullu við afhendingu.

Samhliða kaupsamningi hefur verið gerður þjónustusamningur milli félaganna til 12 ára um heildsölúaðgang og þjónustu yfir burðar- og aðgangsnet Ljósleiðarans, sem og þjónustu um internettengingar til útlanda.

Gert er ráð fyrir að viðskiptin hafi jákvæð áhrif á rekstrarkostnað Sýnar um 100 millj. kr. nettó á ári. Þá lækki árleg fjárfestingabörf í kringum 120 millj. kr. yfir samningstímann.

Viðskiptin eru til meðhöndlunar hjá Samkeppniseftirlitinu.

  1. Önnur mál

Sýn hf. („félagið“) á í málarekstri við einstaklinga, önnur félög og eftirlitsstofnanir á íslenskum fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði. Félagið færir skuldbindingar og/eða kröfur vegna málareksturs þegar hægt er að meta framtiðar greiðslur og ávinning með áþreifanlegum hætti. Vegna óvissu um framtiðarþrón málarekstrar, niðurstöður dómsmála, úrskurði, áfrýjanir og sættir í málum geta niðurstöður mála leitt til viðbótar skuldbindinga og kostnaðar fyrir félagið.

Um málarekstur Sýnar hf. vísast einkum til ársreiknings 2022, en að neðan er greint frá helstu framvindu ágreiningsmála á núverandi reikningstímabili.

Síminn gegn Póst- og fjarskiptastofnun (nú Fjarskiptastofa), Sýn hf. og Gagnaveitu Reykjavíkur ehf. (nú Ljósleiðarinn), og gagnsök

Í Hæstaréttarmáli nr. 50/2022 (Síminn hf. gegn Fjarskiptastofu, Ljósleiðaranum ehf, Mílu hf. og Sýn hf.) lýtur ágreiningur að ákvörðun stefndu Póst- og fjarskiptastofnunar, nú Fjarskiptastofu, nr. 10/2018 frá 3. júli 2018. Með henni var áfrýjanda gerð 9 millj. kr. sekt vegna brots gegn 5. mgr. 45. gr. laga nr. 38/2011 um fjölmiðla.

Í ákvörðuninni segir að brot áfrýjanda hafi staðið yfir frá 1. október 2015 þegar ólínuleg myndmiðlun sjónvarpsefnis fjölmiðlaveitu hans varð einungis möguleg með því að tengjast IPTV-kerfi hans og jafnframt aðeins yfir fjarskiptanet stefndu, Mílu hf. Dómar höfðu fallið í héraði og Landsrétti þar sem kröfum Símans um ógildingu ákvörðunar Fjarskiptastofu hafði verið hafnað. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu, með dómi þann 31. maí 2023, að dómur Landsréttar hefði ekki fullnægt þeim kröfum sem gera yrði til rökstuðnings í dómi fyrir niðurstöðu um sönnunar- og lagaatriði. Þá taldi rétturinn að meðferð málsins hefði farið úr skorðum fyrir héraðsdómi með því að í niðurstöðu dómsins hefði verið farið út fyrir þann grundvöll sem aðilar höfðu markað málinu og hún reist á málsástæðu sem aðilar hefðu ekki byggt á.

Dómur Landsréttar sem og dómur héraðsdóms voru því ómerktir og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar.

Samandreginn samstæðúárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

  1. Önnur mál, frh.:
    Skaðabótakrófur gegn Símanum hf.

Í máli nr. E-5072/2022 hefur félagið gert skaðabótakrófu á hendur Símanum hf. vegna fjártjóns sem Síminn hf. hafi valdið félaginu í tengslum við brot gegn 5. mgr. 45. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011, samkeppnislögum nr. 44/2005 eða gegn tilteknum ákvæðum skilyrða sáta sem Síminn hf. hafi gert við samkeppnisyfirvöld, vegna tímabilsins 2. des. 2017 til 31. des. 2019.

Byggir félagið á því að brot Símans hf. hafi skilað Símanum hf. miklum ávinningi í formi aukinnna fjarskiptaviðskipta og valdið félaginu samsvarandi tjóni. Háttsemi Símans hf. hafi verið saknæm og ólögmæt og tjón félagsins sé sennileg afleiðing hennar. Dómkrafan í málinu byggir á matsgerð dómkaddra matsmanna, dags. 3. ágúst 2022, sbr. matsmál nr. M-3261/2021. Aðalkrafa félagsins er um greiðslu á 270 millj. krónum auk vaxta og dráttarvaxta, 1. varakrafa um greiðslu á 216 millj. kr. auk vaxta og dráttarvaxta, 2. varakrafa um greiðslu á 162 millj. kr. krónum auk vaxta og dráttarvaxta, og 3. varakrafa um greiðslu bóta að álitum skv. mati dómsins auk dráttarvaxta, allt eins og nánar er rakið í stefnu málsins. Þá er gerð krafa um málskostnað úr hendi Símans hf. Síminn hf. krafðist fráviðunar, en þeirri kröfu var hafnað með úrskurði héraðsdóms þann 4. apríl 2023. Málið bíður því efnismeðferðar.

Krafa á Ingibjörgu Pálmadóttur, Jón Ásgeir Jóhannesson og 365 hf.

Í máli nr. 512/2022 fyrir Landsrétti (mál nr. E-2982/2020 í héraði) hafði félagið gert kröfu á hendur 365 hf., Jóni Ásgeir Jóhannessyni og Ingibjörgu Stefaníu Pálmadóttur. Stefndu voru sýknaðir í héraði og málinu skotið til Landsréttar. Málsaðilar hafi nú komist að samkomulagi um lyktir þess og málið því verið fellt niður fyrir Landsrétti.

Mál fyrir eftirlitsstofnunum

Ögilding ákvörðunar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) í máli frá 26. mars 2021 vegna ríkisaðstoðar til Farice ehf. fyrir þriðja fjarskiptasæstrenginn milli Íslands og Evrópu og ný rannsókn

Þann 26. mars 2021 samþykkti Eftirlitsstofnun EFTA að aukning hlutafjár í Farice ehf. um 50 milljónir evra, til að fjármagna megi sæstreng milli Íslands og Írlands, samræmdist ríkisaðstoðarreglum EES samningsins, sbr. ákvörðun nr. 023/21/COL frá 26. mars 2021.

Sýn taldi að ákvörðun ríkisins um að fela Farice lagningu sæstrengsins feli hins vegar í sér ólögmæta ríkisaðstoð og skaut ákvörðuninni til EFTA-dómstólsins.

Með dómi EFTA dómstólsins, sem kveðinn var upp 1. júní 2022, féllst EFTA dómstóllinn á kröfu Sýnar hf. um ógildingu ákvörðunar í máli nr. E4/21. Jafnframt var ESA dæmd til greiðslu málskostnaðar. ESA hefur nú hafið fulla rannsókn á málinu og hagsmunaaðilum gefist tækifæri á að tjá sig um aðstoðina. Slik rannsókn getur því leitt til þess að ríkisaðstoð teljist ólögmæt eða að skilyrði verði sett fyrir framkvæmd hennar. Niðurstaða rannsóknarinnar gæti því haft í fór með sér breytingar á rekstri og gjaldskrá Farice sem kunna að hafa jákvæð áhrif á fjárhagstöðu Sýnar.

Á hverjum tíma kunna ýmis mál mál rekin fyrir hinum ýmsu innlendu eftirlitsaðilum. Í engu tilviki hafa verið boðaðar sektarákvarðanir eða aðrar mjög íþyngjandi aðgerðir.

Á þessum tímapunkti getur félagið ekki metið framtíðar skuldbindingar eða kröfur sem leiða af niðurstöðum ofangreinds málareksturs meðal annars vegna þess að það getur tekið langan tíma að fá niðurstöðu í mál, ásamt því að mál geta þróast í ólíkar áttir. Vegna þess hefur engin skuldbinding né krafa verið færð í árshlutareikning félagsins.

Samandreginn samstæðúárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Ársfjörðungsyfirlit*

2022 2022 2022 2022 2023 2023
1F 2F 3F 4F 1F 2F
Seldar vörur og bjónusta 5.682 6.009 5.501 5.791 5.860 5.632
Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu (3.666) (4.124) (3.480) (3.696) (3.791) (3.540)
Framlegð 2.016 1.885 2.021 2.095 2.069 2.092
Rekstrarkostnaður (1.615) (1.563) (1.535) (1.712) (1.641) (1.518)
Rekstrarhagnaður 401 322 486 383 428 574
Fjármunatekjur 21 9 56 136 19 7
Fjármagnsgjöld (221) (248) (262) (267) (275) (297)
Gengismunur 58 13 (66) (75) 46 (6)
Hrein fjármagnsgjöld (142) (226) (272) (206) (210) (296)
Tekjuskattur (52) (30) (33) 257 (5) (8)
Hagnaður tímabilsins 207 66 181 434 213 269
Þýðingarmunur vegna erlands dótturf. (26) (35) 10 52 (17) (1)
Heildarafkoma tímabilsins 181 31 191 486 196 268
EBITDA 1.710 1.607 1.799 1.528 1.497 1.583
EBITDA % 30,1% 26,7% 32,7% 26,4% 25,5% 28,1%

*Ársfjörðungslegar upplýsingar hafa ekki verið kannaðar af endurskoðendum

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.