Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Interim / Quarterly Report 2023

Nov 8, 2023

2210_rns_2023-11-08_8a5198fe-033f-49f5-99de-a2cd147904ee.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Sýn hf.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu

  1. janúar til 30. september 2023

img-0.jpeg

img-1.jpeg

img-2.jpeg

KOMPÁS

Ovodafone

visir

SPORT

BYLGJAN 987

MENOS

X

JENDOR

Sýn hf. Suðurlandsbraut 8 108 Reykjavík kt. 470905-1740

17/01/2011


Efnisyfirlit

Bls.
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra 3
Fjárhagslegar lykiltölur 5
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu 6
Efnahagsreikningur 7
Eiginfjáryfirlit 8
Sjóðstreymisyflit 9
Skýringar 10
Viðauki:
Ársfjórðungsyfirlit 14

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Sýn hf. er alhliða félag á sviði fjarskipta- og fjölmiðlastarfsemi. Félagið rekur marga af öflugustu fjölmiðlum landsins eins og Stöð 2, Stöð 2+, Bylgjuna, Vísi, FM957, Xið og fleiri landsbekkta miðla. Félagið veitir einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og opinberum aðilum alhliða fjarskipta- og upplýsingatæknibjónustu undir vörumerkjum Vodafone á Íslandi og dótturfélagsins Endor ehf. Félagið á í fjölþættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims.

Árshlutareikningurinn hefur að geyma samandreginn samstæðureikning Sýnar hf. og dótturfélags þess, Endor ehf., ásamt hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga. Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.

Niðurstaða fyrstu níu mánaða ársins

Samkvæmt rekstrarreikningi námu tekjur samstæðunnar af seldum vörum og þjónustu 17.222 millj. kr. á fyrstu 9 mánuðum ársins. Hagnaður af rekstri samstæðunnar á tímabilinu nam 804 millj. kr. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 32.317 millj. kr. Eigið fé samstæðunnar þann 30. september 2023 nam 9.049 millj. kr. Þar af nam hlutafé 2.510 millj. kr. Eiginfjárhlutfallið 30. september 2023 var 28%.

Tekjur félagsins jukust lítillega á fyrstu níu mánuðum ársins. Góður tekjuvöxtur er í auglýsingasölu og hjá dótturfélaginu Endor. Höflegur vöxtur er í flestum öðrum reglulegum tekjustraumum. Á fyrstu níu mánuðum ársins jókst framlegð um 6,3% og hækkaði framlegðarhlutfall um 2,1 prosentustig. Rekstarkostnaður lækkaði lítilsháttar en rekstrarhagnaður hækkaði um 385 millj. kr. á milli tímabila.

Sala á stofnneti

Þann 20. desember 2022 undirrituðu Sýn hf. og Ljósleiðarinn ehf. samning um kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar og langtíma þjónustusamning milli félaganna. Umsamið kaupverð er 3.000 millj. kr. Samningsgreiðsla verður innt af hendi í áfóngum og verður fjárhæðin að fullu greidd eigi síðar en 12 mánuðum frá afhendingu hinna seldu eigna. Hinar seldu eignir eru bókfærðar á 564 millj. kr. og nemur söluhagnaður því 2.436 millj. kr.

Samhliða kaupsamningi hefur verið gerður þjónustusamningur milli félaganna til 12 ára um heildsölúaðgang og þjónustu yfir burðar- og aðgangsnet Ljósleiðarans, sem og þjónustu um internettengingar til útlanda.

Gert er ráð fyrir að viðskiptin hafi jákvæð áhrif á rekstarkostnað Sýnar um 100 millj. kr. nettó á ári. Þá lækki árleg fjárfestingabörf í kringum 120 millj. kr. yfir samningstímann. Viðskiptin hafa verið sambykkt af Samkeppniseftirlitinu og fór afhending fram formlega þann 4. október 2023.

Kaup á Já hf.

Félagið hafði áður náð samkomulagi um kaup á öllu hlutafé Eignarhaldsfélagsins Njálu, móðurfélags Já hf. sem rekur vefsíðuna ja.is. Kaupsamningurinn kvað á um að Já myndi selja dótturfélagið Gl Rannsóknir, sem heldur utan um rekstur Gallup á Íslandi, til þriðja aðila fyrir afhendingu hins selda. Sú sala hefur nú farið fram og hafa kaup Sýn hf. á Eignarhaldsfélaginu Njálu verið sambykkt af Samkeppniseftirlitinu. Afhending fór fram þann 13. október 2023.

Starfslok forstjóra

Þann 16. október gerðu stjórn og Yngvi Halldórsson, forstjóri félagsins, samkomulag um starfslok forstjóra. Viðræður um starfslokin áttu sér stað að frumkvæði forstjóra og hefur hann látið af störfum. Páll Ásgrímsson, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs, tók tímabundið við starfi forstjóra þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn. Ráðningaferli er í gangi.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra, frh.:

Yfirlýsing

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga IAS 34 eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu samstæðunnar 30. september 2023 ásamt rekstrarafkomu og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 30. september 2023.

Stjórn og forstjóri Sýnar hf. hafa í dag fjallað um samandreginn árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2023 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Reykjavík, 8. nóvember 2023

Í Stjórn

Jón Skaftason, stjórnarformaður

Rannveig Eir Einarsdóttir, varaformaður

Hákon Stefánsson

Páll Gíslason

Salóme Guðmundsdóttir

Forstjóri

Páll Ásgrímsson


Fjárhagslegar lykiltölur

2023 3F 2022 3F 2023 9M 2022 9M
Fjárhagsupplysingar
Heildartekjur 5.730 5.501 17.222 17.192
Rekstrarhagnaður (EBIT) 592 486 1.594 1.209
EBITDA tímabilsins 1.668 1.799 4.746 5.116
Hagnaður fyrir tekjuskatt 327 214 823 569
Hagnaður tímabilsins 321 181 804 454
Hagnaður á hlut 1,30 0,71 3,07 1,50
Fjárfestingar í rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum 411 266 1.656 1.006
Fjárfestingar í sýningarréttum 535 560 1.510 1.647
Frjálst fjárflæði (FCF) 371 648 696 1.931
Handbært fé frá rekstri 1.007 1.249 3.021 3.937
30.09. 2023 30.06. 2023 31.03. 2023 31.12. 2022
Hreinar vaxtaberandi skuldir 17.940 17.899 17.546 16.226

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu

  1. janúar til 30. september 2023
Skýr. 2023 3F 2022 3F 2023 9M 2022 9M
Seldar vörur og bjónusta 5 5.730 5.501 17.222 17.192
Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu 6 (3.594) (3.480) (10.925) (11.270)
Framlegð 2.136 2.021 6.298 5.922
Rekstrarkostnaður 7 (1.544) (1.535) (4.704) (4.713)
Rekstrarhagnaður 592 486 1.594 1.209
Fjármunatekjur 7 56 33 86
Fjármagnsgjöld (313) (262) (885) (731)
Gengismunur 41 (66) 81 5
Hrein fjármagnsgjöld (265) (272) (771) (640)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 327 214 823 569
Tekjuskattur (6) (33) (19) (115)
Hagnaður tímabilsins 321 181 804 454
Rekstrarliðir færðir á eigið fé sem síðar kunna að vera endurflokkaðir í rekstur
Þýðingarmunur 5 10 (13) (51)
Heildarafkoma tímabilsins 326 191 791 403
Hagnaður á hlut 1,30 0,71 3,07 1,50

Skýringar á bls. 10-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Efnahagsreikningur

  1. september 2023
Skýr. 30.9.2023 31.12.2022
Fastafjármunir
Leigueignir 7.991 8.620
Rekstrarfjármunir 3.013 2.866
Viðskiptavild 8.895 8.906
Aðrar óefnislegar eignir 4.645 4.389
Langtímaleigukröfur 148 157
Eignahlutir í félögum 9 185 185
Tekjuskattsinneign 140 158
Fastafjármunir samtals 25.016 25.281
Veltufjármunir
Sýningarréttir 1.807 1.809
Birgðir 917 559
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 10 3.609 3.650
Handbært fé 404 2.063
Veltufjármunir samtals 6.737 8.081
Eignir flokkaðar til sölu 11 564 564
Eignir samtals 32.317 33.926
Eigið fé
Hlutafé 2.510 2.668
Yfirverðsreikningur hlutafjár 629 806
Annað eigið fé 233 129
Óráðstafað eigið fé 5.677 5.866
Eigið fé 9.049 9.469
Langtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir 4.542 4.801
Leiguskuldbindingar 11.462 11.820
Langtímaskuldir samtals 16.005 16.621
Skammtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir 1.288 373
Leiguskuldbindingar 1.051 1.295
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 12 4.924 6.168
Skammtímaskuldir samtals 7.265 7.836
Skuldir samtals 23.269 24.457
Eigið fé og skuldir samtals 32.317 33.926

Skýringar á bls. 10-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2023

Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Eiginfjáryfirlit

  1. janúar til 30. september 2023
Hlutafé Yfirverðs-reikningur hlutafjár Annað eigið fé
Þýðingar-munur Bundinn reikningur Óráðstafað eigið fé Eigið fé samtals
1.1. til 30.9.2022
Eigið fé 1.1.2022 2.964 2.465 49 20 5.037 10.535
Hagnaður tímabilsins - - - - 454 454
Þýðingarmunur - - (51) - - (51)
Heildarafkoma tímabilsins 0 0 (51) 0 454 403
Keypt eigin bréf (280) (1.580) - - - (1.860)
Hagnaður hlutdeildarf. umfram arðgr. - - - 32 (32) 0
Eigið fé 30.9.2022 2.684 885 (2) 52 5.459 9.078

1.1. til 30.9.2023

Eigið fé 1.1.2023 2.668 806 50 79 5.866 9.469
Hagnaður tímabilsins - - - - 804 804
Þýðingarmunur - - (13) - - (13)
Heildarafkoma tímabilsins 0 0 (13) 0 804 791
Keypt eigin bréf (158) (772) - - - (930)
Greiddur arður - 0 - - (281) (281)
Lagt í lögbundinn varasjóð v. kaupa á eigin hlutum - 595 - - (595) 0
Hagnaður hlutdeildarf. umfram arðgr. - - - 117 (117) 0
Eigið fé 30.9.2023 2.510 629 37 196 5.677 9.049

Á fyrsta ársfjörðungi þessa árs keypti félagíð 15.762.322 hluti fyrir 930 millj. kr. Fyrir átti félagíð 1.612.886 hluti. Þann 19. april, var hlutaféð lækkáð í samræmi við fjölda eigin hluta og eru útgefnir hlutir í félaginu 251.001.754 eftir lækkunina.

Á aðalfundi félagins þann 17. mars var samþykkt arðgreiðsla að fjárhæð 300 millj. kr. vegna rekstrarársins 2022. Að teknu tilliti til eigin bréfa var greiðsla að fjárhæð 281 millj. kr. innt af hendi þann 5. april.

Skýringar á bls. 10-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Sjóðstreymisyfirlit

  1. janúar til 30. september 2023
Skýr. 2023 3F 2022 3F 2023 9M 2022 9M
Hagnaður tímabilsins samkvæmt rekstrarreikningi 321 181 804 454
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
Sólutap 0 0 0 (2)
Afskriftir 8 1.075 1.313 3.152 3.907
Hrein fjármagnsgjöld 265 272 771 640
Tekjuskattur 6 33 19 115
Veltufé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt 1.668 1.799 4.746 5.114
Breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum:
Birgðir, lækkun (hækkun) 110 (15) (212) (237)
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, (hækkun) lækkun (485) (86) 104 1.807
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, hækkun (lækkun) 23 (208) (777) (2.080)
Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt 1.316 1.490 3.861 4.604
Innborgaðar vaxtatekjur 7 14 33 44
Greidd vaxtagjöld (315) (255) (874) (711)
Handbært fé frá rekstri 1.007 1.249 3.021 3.937
Fjárfestingahreyfingar
Keyptir eignarhlutir 9 0 (16) 0 (22)
Fjárfesting í rekstrarfjármunum (86) (97) (817) (516)
Fjárfesting í óefnislegum eignum (325) (169) (839) (490)
Fjárfesting í sýningarrétti (535) (560) (1.510) (1.647)
Sala rekstrarfjármuna 0 0 0 2
Fjárfestingahreyfingar (945) (842) (3.166) (2.673)
Fjármögnunarhreyfingar
Afborganir langtímalána (81) (119) (294) (356)
Rekstrarlán 12 0 950 (40)
Afborgun leiguskuldbindinga (318) (348) (956) (1.019)
Keypt eigin bréf 0 0 (930) (1.860)
Greiddur arður 0 0 (281) 0
Fjármögnunarhreyfingar (387) (467) (1.510) (3.275)
Breyting á handbæru fé (325) (60) (1.654) (2.011)
Handbært fé í byrjun tímabils 729 2.252 2.063 4.214
Áhrif gengisumreiknings dótturfélaga á handbært fé (0) 3 (5) (8)
Handbært fé í lok tímabilsins 404 2.195 404 2.195

Skýringar á bls. 10-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar

  1. Félagið

Sýn hf. („félagið“) er íslensk hlutafélag. Höfuðstöðvar félagsins eru að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík. Sýn hf. veitir einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum alhliða fjarskipta-, fjölmiðla-, og tæknipjónustu í gegnum vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Stöð 2 Sport, Stöð 2+, Vísir, Bylgjan, FM957, X 977 og dötturfélagið Endor ehf. Félagið á í fjölþættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims. Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2023 hefur að geyma árshlutareikning félagsins, dötturfélag þess, Endor ehf. og hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf., sem vísað er til í heild sem „samstæðunnar“.

  1. Reikningsskilin

a. Grundvöllur reikningsskilanna

Samstæðuárshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga. Samstæðuárshlutareikningur félagsins 1. janúar til 30. september 2023 hefur hvorki verið endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.

Samstæðuárshlutareikningurinn er gerður eftir sömu reikningsskilareglum og lágu til grundvallar við gerð ársreiknings fyrir árið 2022. Hann inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2022. Hægt er að nálgast ársreikning Sýnar hf. á heimasíðu félagsins www.syn.is. og á vef Kauphallar Íslands; www.nasdaqomxnordic.com.

b. Mat stjórnenda á reikningsskilum

Gerð samstæðuárshlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og dragi ályktanir sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna og skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera fráþrugðnar þessu mati.

Það er mat stjórnenda að mismunur á gangvirði og bókfærðu verði fjáreigna og fjárskulda sé óverulegur.

  1. Starfrækslu- og framsetningargjaldmiðill

Samstæðuárshlutareikningur félagsins er birtur í íslenskum krónum, sem er framsetningargjaldmiðill samstæðunnar. Allar fjárhæðir eru birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.

  1. Starfsþáttayfirlit

Samstæðan skilgreinir starfsþætti eftir innri upplýsingagjóf til stjórnenda og telst samstæðan í heild vera einn starfsþáttur.

  1. Seldar vörur og þjónusta
2023 2022 2023 2022
Seldar vörur og þjónusta greinast þannig: 3F 3F 9M 9M
Vörusala 266 308 878 904
Seld þjónusta 5.464 5.193 16.345 16.288
Seldar vörur og þjónusta samtals 5.730 5.501 17.222 17.192
Tekjustraumar Fjöl-míðlun Internet Farsími Fastlína
--- --- --- --- ---
1.1. til 30.9.2023
Tekjur 6.613 3.296 3.732 338
1.1. til 30.9.2022
--- --- --- --- ---
Tekjur 6.353 3.328 3.946 370

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

  1. Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu greinist þannig: 2023 2022 2023 2022
3F 3F 9M 9M
Kostnaðarverð seldrar vara og þjónustu 2.212 1.961 6.706 6.597
Laun og launatengd gjöld 641 540 2.092 1.765
Eignfærð laun (49) (50) (164) (148)
Afskriftir 789 1.029 2.290 3.056
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu samtals 3.594 3.480 10.925 11.270
  1. Rekstrarkostnaður
Rekstrarkostnaður greinist þannig: 2023 2022 2023 2022
3F 3F 9M 9M
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður 398 394 1.211 1.169
Sölu- og markaðskostnaður 115 99 290 252
Laun og launatengd gjöld 837 831 2.712 2.665
Eignfærð laun (91) (73) (372) (224)
Afskriftir 285 284 863 850
Rekstrarkostnaður samtals 1.544 1.535 4.704 4.713
  1. Afskriftir
Afskriftir í rekstrarreikningi greinast þannig: 2023 2022 2023 2022
3F 3F 9M 9M
Afskriftir rekstrarfjármuna 201 183 578 626
Afskriftir óefnislegra eigna 174 213 528 572
Afskriftir afnotaréttar 328 351 993 946
Afskriftir sýningarréttar 372 566 1.053 1.763
Afskriftir samtals 1.075 1.313 3.152 3.907

Endursamningar við birgja hafa áhrif á afskriftir á árinu 2023 til lækkunar.

  1. Eignarhlutir í félögum
Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum greinast þannig: 30.9.2023 31.12.2022
Bókfært verð 1.1. 56 39
Fjárfesting á árinu 0 17
Bókfært verð eignarhluta í hlutdeildarfélögum samtals 56 56
Eignarhlutir í öðrum félögum 129 129
Bókfært verð eignarhluta í félögum samtals 185 185

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

  1. Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur
Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur greinast bannig: 30.9.2023 31.12.2022
Viðskiptakrófur 3.261 3.314
Aðrar skammtímakrófur 381 401
Leigukrófur 25 24
Niðurfærsla viðskiptakrafna (57) (89)
Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur samtals 3.609 3.650
  1. Sala á burðarneti

Þann 20. desember 2022 undirrituðu Sýn hf. og Ljósleiðarinn ehf. samning um kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar og langtíma bjónustusamning milli félaganna. Umsamið kaupverð er 3.000 millj. kr. Samningsgreiðsla verður innt af hendi í áfóngum og verður fjárhæðin að fullu greidd eigi síðar en 12 mánuðum frá afhendingu hinna seldu eigna. Hinar seldu eignir eru bókéfærðar á 564 millj. kr. og nemur sólúhagnaður því 2.436 millj. kr.

Samhliða kaupsamningi hefur verið gerður bjónustusamningur milli félaganna til 12 ára um heildsölúaðgang og bjónustu yfir burðar- og aðgangsnet Ljósleiðarans, sem og bjónustu um internettengingar til útlanda.

Gert er ráð fyrir að viðskiptin hafi jákvæð áhrif á rekstrarkostnað Sýnar um 100 millj. kr. nettó á ári. Þá lækki árleg fjárfestingabörf í kringum 120 millj. kr. yfir samningstímann. Viðskiptin hafa verið sambykkt af Samkeppniseftirlitinu og fór afhending fram formlega þann 4. október 2023.

  1. Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast bannig: 30.9.2023 31.12.2022
Viðskiptaskuldir 3.095 4.241
Ögreiddur virðisaukaskattur 409 319
Fyrirfram innheimtar tekjur 608 560
Ögreiddur áfallinn kostnaður og aðrar skammtímaskuldir 812 1.048
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals 4.924 6.168
  1. Önnur mál

Sýn hf. („félagíð“) á í málarekstri við einstaklinga, önnur félög og eftirlitsstofnanir í íslenskum fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði. Félagíð færir skuldbindingar og/eða kröfur vegna málareksturs þegar hægt er að meta framtiðar greiðslur og ávinning með áþreifanlegum hætti. Vegna óvissu um framtiðarþrón málarekstrar, niðurstöður dómsmála, úrskurði, áfrýjanir og sættir í málum geta niðurstöður mála leitt til viðbótar skuldbindinga og kostnaðar fyrir félagíð. Um málarekstur Sýnar hf. vísast einkum til ársreiknings 2022, en að neðan er greint frá helstu framvindu ágreiningsmála á núverandi reikningstímabili.

Síminn gegn Póst- og fjarskiptastofnun (nú Fjarskiptastofa), Sýn hf. og Gagnaveitu Reykjavíkur ehf. (nú Ljósleiðarinn ehf.), og gagnsök

Í Hæstaréttarmáli nr. 50/2022 lýtur ágreiningur að ákvörðun stefndu Póst- og fjarskiptastofnunar, nú Fjarskiptastofu, nr. 10/2018 frá 3. júli 2018. Með henni var áfrýjanda gerð 9.000.000 króna sekt vegna brots gegn 5. mgr. 45. gr. laga nr. 38/2011 um fjölmiðla. Í ákvörðuninni segir að brot áfrýjanda hafi staðið yfir frá 1. október 2015 þegar ólínuleg myndmiðlun sjónvarpsefnis fjölmiðlaveitu hans varð einungis möguleg með því að tengjast IPTV-kerfi hans og jafnframt aðeins yfir fjarskiptanet stefndu Milu hf. Dómar höfðu fallið í héraði og Landsrétti þar sem kröfum Símans um ógildingu ákvörðunar Fjarskiptastofu hafði verið hafnað. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu, með dómi þann 31. maí 2023, að dómur Landsréttar hefði ekki fullnægt þeim kröfum sem gera yrði til rökstuðnings í dómi fyrir niðurstöðu um sönnunar- og lagaatriði. Þá taldi rétturinn að meðferð málsins hefði farið úr skorðum fyrir héraðsdómi með því að í niðurstöðu dómsins hefði verið farið út fyrir þann grundvöll sem aðilar höfðu markað málinu og hún reist á málástaððu sem aðilar hefðu ekki byggt á. Dómur Landsréttar sem og dómur héraðsdóms voru því ómerktir og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar. Beðið er aðalmeðferðar.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

  1. Önnur mál, frh.:

Skaðabótakrófur gegn Símanum hf.

Í máli nr. E-5072/2022 hefur félagið gert skaðabótakrófu á hendur Símanum hf. vegna fjártjóns sem Síminn hf. hafi valdið félaginu í tengslum við brot gegn 5. mgr. 45. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011, samkeppnislögum nr. 44/2005 eða gegn tilteknum ákvæðum skilyrða sáta sem Síminn hf. hafi gert við samkeppnisyfirvöld, vegna tímabilsins 2. des. 2017 til 31. des. 2019. Byggir félagið á því að brot Símans hf. hafi skilað Símanum hf. miklum ávinningi í formi aukinnna fjarskiptaviðskipta og valdið félaginu samsvarandi tjóni. Háttsemi Símans hf. hafi verið saknæm og ólögmæt og tjón félagsins sé sennileg afleiðing hennar. Dómkrafan í málinu byggir á matsgerð dómkaddra matsmanna, dags. 3. ágúst 2022, sbr. matsmál nr. M-3261/2021. Aðalkrafa félagsins er um greiðslu á 270.027.938 krónum auk vaxta og dráttarvaxta, 1. varakrafa um greiðslu á 216.022.351 krónu auk vaxta og dráttarvaxta, 2. varakrafa um greiðslu á 162.016.763 krónum auk vaxta og dráttarvaxta, og 3. varakrafa um greiðslu bóta að álitum skv. mati dómsins auk dráttarvaxta, allt eins og nánar er rakið í stefnu málsins. Þá er gerð krafa um málskostnað úr hendi Símans hf. Síminn hf. krafðist frávísunar, en þeirri kröfu var hafnað með úrskurði héraðsdóms þann 4. apríl 2023. Málið bíður því efnismeðferðar.

Engin áhrif færð í árshlutareikning

Á hverjum tíma kunna ýmis mál rekin fyrir hinum ýmsu innlendu eftirlitsaðilum. Í engu tilviki hafa verið boðaðar sektarákvarðanir eða aðrar mjög íþyngjandi aðgerðir.

Á þessum tímapunkti getur félagið ekki metið framtíðarskuldbindingar eða kröfur sem leiða af niðurstöðum ofangreinds málareksturs meðal annars vegna þess að það getur tekið langan tíma að fá niðurstöðu í mál, ásamt því að mál geta þróast í ólíkar áttir. Vegna þess hefur engin skuldbinding né krafa verið færð í árshlutareikning félagsins.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Ársfjörðungsyfirlit 2023

2023 1F 2023 2F 2023 3F Samtals
Seldar vörur og bjónusta 5.860 5.632 5.730 17.222
Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu (3.791) (3.540) (3.594) (10.925)
Framlegð 2.069 2.092 2.136 6.297
Rekstrarkostnaður (1.641) (1.518) (1.544) (4.704)
Rekstrarhagnaður 428 574 592 1.594
Fjármunatekjur 19 7 7 33
Fjármagnsgjöld (275) (297) (313) (885)
Gengismunur 46 (6) 41 81
Hrein fjármagnsgjöld (210) (296) (265) (771)
Tekjuskattur (5) (8) (6) (19)
Hagnaður tímabilsins 213 269 321 804
Þýðingarmunur vegna erlands dótturfélags (17) (1) 5 (13)
Heildarafkoma tímabilsins 196 268 326 791
EBITDA 1.497 1.583 1.668 4.746

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Ársfjörðungsyfirlit 2022

2022 1F 2022 2F 2022 3F 2022 4F Samtals
Seldar vörur og bjónusta 5.682 6.009 5.501 5.791 22.983
Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu (3.666) (4.124) (3.480) (3.696) (14.966)
Framlegð 2.016 1.885 2.021 2.095 8.017
Rekstrarkostnaður (1.615) (1.563) (1.535) (1.712) (6.425)
Rekstrarhagnaður 401 322 486 383 1.592
Fjármunatekjur 21 9 56 136 222
Fjármagnsgjöld (221) (248) (262) (267) (998)
Gengismunur 58 13 (66) (75) (70)
Hrein fjármagnsgjöld (142) (226) (272) (206) (846)
Tekjuskattur (52) (30) (33) 257 142
Hagnaður (tímabilsins 207 66 181 434 888
Þýðingarmunur vegna erlands dótturfélags (26) (35) 10 52 1
Heildarafkoma tímabilsins 181 31 191 486 889
EBITDA 1.710 1.607 1.799 1.528 6.644

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2023
Fjárhæðir eru í milljónum kr.