Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Interim / Quarterly Report 2022

Aug 30, 2022

2210_rns_2022-08-30_c0ff6e8a-1b92-4e9e-86b2-a429509d88c5.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Sýn hf.

Samandreginn árslutareikningur samstæðu

  1. janúar til 30. júní 2022

img-0.jpeg

vodafone visir SPORT BYLGJAN 2022

ENDOR

Sýn hf. Suðurlandsbraut 8 108 Reykjavík kt. 470905-1740


Efnisyfirlit

Bls.
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra 3
Fjárhagslegar lykiltölur 4
Könnunaráritun óháðs endurskoðenda 5
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu 6
Efnahagsreikningur 7
Eiginfjáryfirlit 8
Sjóðstreymisyflit 9
Skýringar 10
Viðauki:
Ársfjórðungsyflit 14

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Sýn hf. er alhliða félag á sviði fjarskipta- og fjölmiðlastarfsemi. Félagið rekur marga af öflugustu fjölmiðlum landsins eins og Stöð 2, Stöð 2+, Stöð 2 Sport, Bylgjuna, Visi, FM957, Xið og fleiri landsbekkta miðla. Félagið veitir einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og opinberum aðilum alhliða fjarskipta- og upplýsingatæknibjónustu undir vörumerkjum Vodafone á Íslandi og dótturfélagsins Endor ehf. Félagið á í fjölþættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims.

Árshlutareikningurinn hefur að geyma samandreginn samstæðureikning Sýnar hf. og dótturfélags þess, Endor ehf., ásamt hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastáðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga. Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins.

Niðurstaða árshelmingsins

Samkvæmt rekstrarreikningi námu tekjur samstæðunnar af seldum vörum og þjónustu 11.691 millj. kr. Hagnaður af rekstri samstæðunnar á tímabilinu nam 273 millj. kr. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 32.528 millj. kr. 30. júní 2022. Eigið fé samstæðunnar þann 30. júní 2022 nam 8.888 millj. kr. Þar af nam hlutafé 2.684 millj. kr. Eiginfjárhlutfallið 30. júní 2022 var 27,3%.

Tekjur félagsins hækkuðu um 13,6% á milli árshelminga. Hækkunin skýrist helst af góðum vexti í farsímatekjum, aðallega vegna aukningar í loT og reikitekjum en til viðbótar tvöfaldast tekjur Endor á milli tímabila. Tekjur af auglýsingum halda áfram að aukast og eru nú hærri en fyrir heimsfaraldur. Framlegðarhlutfall hækkar á milli tímabila þrátt fyrir að framlegð af starfsemi Endor sé lægri en af starfsemi móðurfélagsins. Rekstarkostnaður stendur í stað á milli tímabila á meðan verðbólga hefur aukist. Þetta skilar sér í hækkun rekstrarhagnaðar en hann var 723 m.kr. á fyrri árshelmingi ársins 2022, sem er hækkun um 739 m.kr. frá sama tímabili árið 2021.

Niðurfærsla hlutafjár

Þann 12. apríl var hlutafé félagsins lækkað í samræmi við fjölda eigin hluta. Í ársbyrjun 2022 ákvað stjórn að setja í gang endurkaupaáætlun sem hófst með öfugu útboði þann 7. janúar og lauk 9. janúar. Til viðbótar voru sett í gang regluleg endurkaup sem stöðu yfir frá 13. janúar til 3. mars. Félagið keypti í heild 28.064.512 hluti eða 9,47% af útgefnu hlutafé fyrir 1.860 millj. kr. Á aðalfundi félagsins þann 18. mars var samþykkt tillaga stjórnar um að lækka hlutafé í samræmi við fjölda eigin hluta. Eftir lækkunina þann 12. apríl eru útgefnir hlutir í félaginu 268.376.962.

Breyting á eignarhaldi og starfslok forstjóra

Þann 24. júli seldi Heiðar Guðjónsson forstjóri öll hlutabréf í Sýn hf. sem hann átti í gegnum eignarhaldsfélag sitt Ursus ehf. Í kjölfarið sagði hann starfi sinu upp en mun áfram sinna starfsskyldum sinum á samningsbundnum uppsagnarfresti þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn.

Yfirlýsing

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastáðal um árshlutareikninga IAS 34 eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu samstæðunnar 30. júní 2022 ásamt rekstrarafkomu og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2022.

Stjórn og forstjóri Sýnar hf. hafa í dag fjallað um samandreginn árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2022 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Reykjavik, 30. ágúst 2022

Í Stjórn

Hjörleifur Pálsson, stjórnarformaður

Petrea Ingileif Guðmundsdóttir, varaformaður
Jóhann Hjartarson

Páll Gislason
Sesselía Birgisdóttir

Forstjóri

Heiðar Guðjónsson

Samandreginn samstæðúárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2022
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Fjárhagslegar lykiltölur

| | 2022
2F | 2021
2F | 2022
6M | 2021
6M |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| Fjárhagsupplysingar | | | | |
| Heildartekjur | 6.009 | 5.289 | 11.691 | 10.289 |
| Rekstrarhagnaður (tap) | 322 | (58) | 723 | (16) |
| Hagnaður (tap) fyrir tekjuskatt | 96 | (155) | 355 | (399) |
| Hagnaður (tap) tímabilsins | 66 | (117) | 273 | (348) |
| Hagnaður (tap) á hlut | 0,12 | (0,42) | 0,79 | (1,32) |
| Fjárfestingar í rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum | 454 | 360 | 740 | 592 |
| Fjárfestingar í sýningarrétti | 555 | 541 | 1.086 | 1.117 |
| Handbært fé frá rekstri | 1.580 | 1.431 | 2.688 | 1.975 |
| Frammistöðumat | | | | |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| EBITDA tímabilsins | 1.607 | 1.488 | 3.317 | 2.876 |
| EBITDA hlutfall tímabilsins | 26,7% | 28,1% | 28,4% | 28,0% |
| Frjálst fjárflæði (FCF)* | 800 | 1.736 | 1.284 | 1.611 |
| | 30.06. 2022 | 31.03. 2022 | 31.12. 2021 | 30.06. 2021 |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| Hreinar vaxtaberandi skuldir | 15.605 | 15.813 | 14.073 | 14.115 |

*Frjálst fjárflæði samanstendur af handbæru fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt að frádregnum fjárfestingahreyfingum.

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2022
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Könnunaráritun óháðs endurskoðenda

Til stjórnar og hluthafa Sýnar hf.

Við höfum kannað meðfylgjandi samandreginn samstæðuárshlutareikning Sýnar hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2022. Samstæðuárshlutareikningurinn hefur að geyma, rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstreymisyflit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.

Ábyrgð stjórnar og forstjóra á samstæðuárshlutareikningnum

Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu samstæðuárshlutareikningsins í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfum sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga.

Ábyrgð endurskoðenda

Ábyrgð okkar felst í ályktun okkar um árshlutareikninginn sem byggir á könnuninni.

Umfang könnunar

Könnun okkar var unnin í samræmi við alþjóðlegan staðal ISRE 2410, sem fjallar um könnun óháðs endurskoðanda á árshlutareikningum. Slik könnun felur í sér fyrirspurnir, einkum til starfsmanna sem eru ábyrgir fyrir fjármálum og reikningsskilum félagsins ásamt greiningum á hinum ýmsu liðum reikningsskilanna og öðrum könnunaraðgerðum. Könnun felur ekki í sér jafn viðtækar aðgerðir og endurskoðun sem unnin er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla og er því ekki víst að við fáum vitneskju um öll mikilvæg atriði sem gætu komið í ljós við endurskoðun. Þar af leiðandi látum við álit um endurskoðun ekki í ljós.

Ályktun

Við könnun okkar kom ekkert fram sem bendir til annars en að samstæðuárshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins á tímabilinu, efnahag þess 30. júní 2022 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS34 eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga.

Reykjavík, 30. ágúst 2022

Deloitte ehf.

Jóhann Óskar Haraldsson
endurskoðandi

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2022


Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu

  1. janúar til 30. júní 2022
Skýr. 2022 2F* 2021 2F* 2022 6M 2021 6M
Seldar võrur og bjónusta 5 6.009 5.289 11.691 10.289
Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu 6 ( 4.124) ( 3.759) ( 7.790) ( 7.134)
Framlegð 1.885 1.530 3.901 3.155
Rekstrarkostnaður 7 ( 1.563) ( 1.588) ( 3.178) ( 3.171)
Rekstrarhagnaður / (tap) 322 ( 58) 723 ( 16)
Fjármunatekjur 9 6 30 11
Fjármagnsgjöld ( 248) ( 145) ( 469) ( 289)
Gengismunur 13 22 71 68
Hrein fjármagnsgjöld ( 226) ( 117) ( 368) ( 210)
Áhrif hlutdeildarfélaga 0 20 0 ( 173)
Hagnaður (tap) fyrir tekjuskatt 96 ( 155) 355 ( 399)
Tekjuskattur ( 30) 38 ( 82) 51
Hagnaður (tap) tímabilsins 66 ( 117) 273 ( 348)
Rekstrarliðir færðir á eigið fé sem síðar kunna að vera endurflokkaðir í rekstur
Þýðingarmunur ( 35) ( 7) ( 61) ( 44)
Heildarafkoma tímabilsins 31 ( 124) 212 ( 392)
Hagnaður (tap) á hlut 0,12 ( 0,42) 0,79 ( 1,32)

*Ársfjörðungslegar upplýsingar hafa ekki verið kannaðar af endurskoðendum.
Skýringar á bls. 10-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2022
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Efnahagsreikningur

  1. júní 2022
Skýr. 30.6.2022 31.12.2021
Fastafjármunir
Leigueignir 7.971 8.049
Rekstrarfjármunir 3.209 3.212
Viðskiptavild 8.847 8.888
Aðrar óefnislegar eignir 4.408 4.469
Eignahlutir í félögum 9 67 62
Tekjuskattsinneign 25 26
Fastafjármunir samtals 24.527 24.706
Veltufjármunir
Sýningarréttir 1.652 1.762
Birgðir 585 356
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 10 3.512 5.463
Handbært fé 2.252 4.214
Veltufjármunir samtals 8.001 11.795
Eignir samtals 32.528 36.501
Eigið fé
Hlutafé 2.684 2.964
Yfirverðsreikningur hlutafjár 885 2.465
Annað eigið fé 30 69
Óráðstafað eigið fé 5.289 5.037
Eigið fé 8.888 10.535
Langtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir 4.936 4.965
Leiguskuldbindingar 11.308 11.393
Aðrar langtímaskuldir 180 180
Tekjuskattsskuldbinding 89 19
Langtímaskuldir samtals 16.513 16.557
Skammtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir 475 723
Leiguskuldbindingar 1.138 1.206
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 11 5.514 7.480
Skammtímaskuldir samtals 7.127 9.409
Skuldir samtals 23.640 25.966
Eigið fé og skuldir samtals 32.528 36.501

Skýringar á bls. 10-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2022
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Eiginfjáryfirlit

  1. janúar til 30. júní 2022
Hlutafé Yfirverðs-reikningur hlutafjár Annað eigið fé
Þýðingar-munur Bundinn reikningur Óráðstafað eigið fé Eigið fé samtals
1.1. til 30.6.2021
Eigið fé 1.1.2021 2.964 2.465 163 147 2.810 8.549
Tap tímabilsins - - - - (348) (348)
Þýðingarmunur - - (44) - - (44)
Heildarafkoma tímabilsins 0 0 (44) 0 (348) (392)
Þýðingarmunur færður út vegna sölu - - (73) (73)
Hagnaður hlutdeildarf.og dótturf. umfram arðgr. - - - (54) 54 0
Eigið fé 30.6.2021 2.964 2.465 46 93 2.516 8.084
1.1. til 30.6.2022
Eigið fé 1.1.2022 2.964 2.465 49 20 5.037 10.535
Hagnaður tímabilsins - - - - 273 273
Þýðingarmunur - - (61) - - (61)
Heildarafkoma tímabilsins 0 0 (61) 0 273 212
Keypt eigin bréf (280) (1.580) - - - (1.860)
Hagnaður hlutdeildarf.og dótturf. umfram arðgr. - - - 22 (22) 0
Eigið fé 30.6.2022 2.684 885 (12) 42 5.289 8.888

Skýringar á bls. 10-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2022

Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Sjóðstreymisyfirlit

  1. janúar til 30. júní 2022

| | Skýr. | 2022
2F | 2021
2F | 2022
6M | 2021
6M |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Hagnaður (tap) tímabilsins samkvæmt rekstrarreikningi | | 66 | (117) | 273 | (348) |
| Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | | | | | |
| Söluhagnaður | | 0 | 0 | (2) | 0 |
| Afskriftir | 8 | 1.285 | 1.546 | 2.594 | 2.892 |
| Hrein fjármagnsgjöld | | 226 | 117 | 368 | 210 |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | | 0 | (20) | 0 | 173 |
| Tekjuskattur | | 30 | (38) | 82 | (51) |
| Veltufé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt | | 1.607 | 1.488 | 3.315 | 2.875 |
| Breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum: | | | | | |
| Birgðir, breyting | | (128) | 7 | (221) | (41) |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, breyting | | 297 | (161) | 1.893 | (238) |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, breyting | | 34 | 239 | (1.873) | (343) |
| Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt | | 1.810 | 1.572 | 3.114 | 2.254 |
| Innborgaðar vaxtatekjur | | 9 | 5 | 30 | 10 |
| Greidd vaxtagjöld | | (241) | (146) | (456) | (289) |
| Greiddur tekjuskattur | | 2 | 0 | 0 | 0 |
| Handbært fé frá rekstri | | 1.580 | 1.431 | 2.688 | 1.975 |
| Fjárfestingahreyfingar | | | | | |
| Keyptur eignarhlutur | 9 | (1) | 0 | (6) | 0 |
| Sala eignarhluta | 9 | 0 | 1.065 | 0 | 1.065 |
| Fjárfesting í rekstrarfjármunum | | (251) | (52) | (419) | (171) |
| Fjárfesting í óefnislegum eignum | | (203) | (308) | (321) | (421) |
| Fjárfesting í sýningarrétti | | (555) | (541) | (1.086) | (1.117) |
| Sala rekstrarfjármuna | | 0 | 0 | 2 | 0 |
| Fjárfestingahreyfingar | | (1.010) | 164 | (1.830) | (643) |
| Fjármögnunarhreyfingar | | | | | |
| Afborganir langtimalána | | (119) | (668) | (237) | (839) |
| Rekstrarlán | | 0 | (475) | (40) | (325) |
| Afborgun leiguskuldbindinga | | (288) | (285) | (672) | (584) |
| Keypt eigin bréf | | 0 | 0 | (1.860) | 0 |
| Fjármögnunarhreyfingar | | (407) | (1.428) | (2.809) | (1.748) |
| Breyting á handbæru fé | | 163 | 167 | (1.951) | (416) |
| Handbært fé í byrjun tímabils | | 2.093 | 240 | 4.214 | 831 |
| Áhrif gengisumreiknings dótturfélags á handbært fé | | (4) | (5) | (11) | (13) |
| Handbært fé í lok tímabilsins | | 2.252 | 402 | 2.252 | 402 |

Skýringar á bls. 10-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2022
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar

  1. Félagið

Sýn hf. („félagið“) er íslensk hltafélag. Höfuðstöðvar félagsins eru að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík. Sýn hf. veitir einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum alhliða fjarskipta-, fjölmiðla, og tækniþjónustu í gegnum vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Stöð 2 Sport, Stöð 2 +, Visir, Bylgjan, FM957, X 977 og dótturfélagið Endor ehf. Félagið á í fjölpættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims. Samandreginn árslutareikningur samstæðunnar fyrir timabilið 1. janúar til 30. júní 2022 hefur að geyma árslutareikning félagsins, dótturfélag þess, Endor ehf. og hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf., sem visað er til í heild sem „samstæðunnar“.

  1. Reikningsskilin

a. Grundvöllur reikningsskilanna

Samstæðuárslutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árslutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árslutareikninga skráðra félaga. Samstæðuárslutareikningur félagsins 1. janúar til 30. júní 2022 er kannaður af endurskoðendum félagsins.

Samstæðuárslutareikningurinn er gerður eftir sömu reikningsskilareglum og lágu til grundvallar við gerð ársreiknings fyrir árið 2021. Hann inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2021. Hægt er að nálgast ársreikning Sýnar hf. á heimasiðu félagsins www.syn.is. og á vef Kauphallar Íslands; www.nasdaqomxnordic.com.

b. Mat stjórnenda á reikningsskilum

Gerð samstæðuárslutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og dragi ályktanir sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaðferða og birtar fjárhæðir eigna og skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrúðnar þessu mati.

Það er mat stjórnenda að mismunur á gangvirði og bókfærðu verði fjáreigna og fjárskulda sé óverulegur.

  1. Starfrækslu- og framsetningargjaldmiðill

Samstæðuárslutareikningur félagsins er birtur í íslenskum krónum, sem er framsetningargjaldmiðill samstæðunnar. Allar fjárhæðir eru birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.

  1. Starfsþáttayfirlit

Samstæðan skilgreinir starfsþætti eftir innri upplýsingagjóf til stjórnenda og telst samstæðan í heild vera einn starfsþáttur.

  1. Seldar vörur og þjónusta
2022 2021 2022 2021
Seldar vörur og þjónusta greinast þannig: 2F 2F 6M 6M
Vörusala 323 311 597 604
Seld þjónusta 5.686 4.978 11.094 9.685
Seldar vörur og þjónusta samtals 6.009 5.289 11.691 10.289
Tekjustraumar Fjöl-míðlun Internet Farsími Fastlina
--- --- --- --- ---
1.1. til 30.6.2022
Tekjur 4.254 2.231 2.683 251
1.1. til 30.6.2021
--- --- --- --- ---
Tekjur 4.070 2.261 2.000 274

Samandreginn samstæðuárslutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2022
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

  1. Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu greinist pannig: 2022 2021 2022 2021
2F 2F 6M 6M
Kostnaðarverð seldrar vöru og þjónustu 2.577 1.963 4.636 3.743
Laun og launatengd gjöld 610 562 1.225 1.136
Eignfærð laun (63) (25) (98) (62)
Afskriftir 1.000 1.260 2.027 2.317
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu samtals 4.124 3.759 7.790 7.134
  1. Rekstrarkostnaður
Rekstrarkostnaður greinist pannig: 2022 2021 2022 2021
2F 2F 6M 6M
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður 369 326 775 682
Sölu- og markaðskostnaður 73 127 153 245
Laun og launatengd gjöld 908 904 1.834 1.769
Eignfærð laun (72) (55) (151) (99)
Afskriftir 285 286 567 575
Rekstrarkostnaður samtals 1.563 1.588 3.178 3.171
  1. Afskriftir
2022 2021 2022 2021
Afskriftir í rekstrarreikningi greinast pannig: 2F 2F 6M 6M
Afskriftir rekstrarfjármuna 223 251 442 508
Afskriftir óefnislegra eigna 180 181 360 362
Afskriftir afnotaréttar 284 285 596 569
Afskriftir sýningarréttar 598 829 1.196 1.453
Afskriftir samtals 1.285 1.546 2.594 2.892
  1. Eignarhlutir í félögum
Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum greinast pannig: 30.6.2022 31.12.2021
Bókfært verð 1.1. 39 1.375
Seldir eignarhlutir 0 (1.103)
Áhrif hlutdeildarfélaga (1) (251)
Fjárfesting á árinu 1 18
Bókfært verð eignarhluta í hlutdeildarfélögum samtals 39 39
Eignarhlutir í öðrum félögum 28 23
Bókfært verð eignarhluta í félögum samtals 67 62

Samandreginn samstæðúárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2022
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

  1. Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur
Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur greinast þannig: 30.6.2022 31.12.2021
Viðskiptakrófur 3.097 3.326
Viðskiptakrafa vegna sölu óvirkra innviða 0 1.649
Aðrar skammtímakrófur 319 392
Leigukrófur 186 187
Niðurfærsla viðskiptakrafna (90) (91)
Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur samtals 3.512 5.463
  1. Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast þannig: 30.6.2022 31.12.2021
Viðskiptaskuldir 3.828 3.867
Ögreiddur virðisaukaskattur 283 360
Ögreiddur virðisaukaskattur vegna sölu óvirkra innviða 0 1.649
Fyrirfram innheimtar tekjur 403 485
Ögreiddur áfallinn kostnaður og aðrar skammtímaskuldir 1.000 1.119
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals 5.514 7.480
  1. Önnur mál

Sýn hf. („félagið“) á í málarekstri við einstaklinga, önnur félög og eftirlitsstofnanir í íslenskum fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði. Félagið færir skuldbindingar og/eða kröfur vegna málareksturs þegar hægt er að meta framtiðar greiðslur og ávinning með áþreifanlegum hætti. Vegna óvissu um framtiðarþróun málarekstrar, niðurstöður dómsmála, úrskurði, áfrýjanir og sættir í málum geta niðurstöður mála leitt til viðbótar skuldbindinga og kostnaðar fyrir félagið.

Hér að neðan er gerð grein fyrir málum sem fengu framgang á reikningstimabilinu og eftir atvikum eftir reikningsskiladag. Að öðru leyti vísast til skýringa í ársreikningi vegna rekstrarársins 2021:

Síminn gegn Póst- og fjarskiptastofnun (nú Fjarskiptastofa), Sýn hf. og Gagnaveitu Reykjavíkur ehf. (nú Ljósléiðarinn), og gagnsök

Í málinu gerir stefnandi málsins, Síminn hf., aðallega kröfu um að ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 10/2018 verði fellð úr gildi í heild sinni. Til vara er gerð sú krafa að 6. tl. ákvörðunarinnar, um álagningu stjórnvaldssektar á Símann, verði fellður úr gildi eða sektarfjárhæðin lækkuð. Þá er gerð krafa um að stefndu verði dæmd til greiðslu málkostnaðar.

Ágreiningur málsins lýtur fyrst og fremst að tülkun á ákvæði 5. mgr. 45. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011 og hvort Síminn hafi brotið gegn ákvæðinu með því að bjóða eingöngu upp á efnisveitu sina til þeirra sem keyptu fjarskiptabjónustu hjá samstæðu Símans, með það að markmiði að ná viðskiptavinum í fjarskiptabjónustu. Dómur féll í héraði 1. júli 2020 þar sem stjórnvaldssekt skv. ákvörðun PFS var lækkuð en að öðru leyti var kröfum Símans hafnað. Sýn áfrýjaði málinu til Landsréttar, sem og Síminn og PFS. Dómkröfur félagsins fyrir Landsrétti voru að sýknað yrði af öllum kröfum Símans í héraði og að Síminn yrði dæmdur til að greiða félaginu málskostnað í héraði og fyrir Landsrétti. Með dómi Landsréttar, sem kveðinn var upp þann 24. júni 2022, voru áfrýjendur Sýn og PFS sýknuð af öllum kröfum Símans. Málskostnaður í héraði og fyrir Landsrétti féll niður. Síminn hefur óskað eftir áfrýjunarleyfi frá Hæstarétti.

Það leiðir af dómi Landsréttar, verði honum ekki hnekkt, að upphafleg ákvörðun PFS er staðfest og Síminn talinn hafa fullframið brot á 5. mgr. 45. gr. fjölmiðlalaga. Jafnframt kann dómurinn að treysta grundvöll skaðabótakrafna á hendur Símanum, sbr. umfjöllun að neðan.

Samandreginn samstæðúarshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2022
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

  1. Önnur mál, frh.:
    Skaðabótakrófur gegn Símanum hf.

Sýn hf. hefur fyrir héraðsdómi gert skaðabótakrófu á hendur Símanum hf. vegna fjártjón sem Síminn hafi valdið félaginu í tengslum við brot gegn 5. mgr. 45. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011. Lýtur málið að tjóni sem félagið telur sig hafa orðið fyrir vegna háttsemi Símans á tímabilinu frá 1. okt. 2015 til 1. des. 2017.

Félagið hefur einnig lagt fram beiðni um dómkvaðningu matsmanna vegna þess tjóns sem það varð fyrir vegna háttsemi og markaðsaðgerða Símans, m.a. í tengslum við brot gegn 5. mgr. 45. gr. fjölmiðlalaga, vegna tímabilisins frá 2. des. 2017 til 31. des. 2019. Dómkvaddir matsmenn skiluðu mati sínu þann 3. ágúst sl. og tóldu fjárhagslegt tjón félagsins á tímabilinu 1. október 2015 til 31. desember 2019 samtals nema allt að 270.027.938 krónum.

Krafa á Ingibjörgu Pálmadóttur, Jón Ásgeir Jóhannesson og 365 hf.

Sýn hf. hófðaði mál fyrir héraðsdómi og gert fjárkrófu á hendur 365 hf., Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Ingibjörgu Stefaniu Pálmadóttur. Aðilar gerðu með sér samning um kaup félagsins á umfangsmiðli starfsemi stefnda 365 hf. Í samningnum var að finna ákvæði um hömlur á samkeppni af hálfu stefndu og jafnframt ákvæði um dagsektir/févíti yrði brotið gegn samkeppnisákvæðum. Undirgengust bæði 365 hf. og svo þeir sem stóðu að hinum keypta rekstri persónulega skuldbindingar hvað þetta varðaði. Dómkrafan byggir á því að brotið hafi verið gegn samkeppnisákvæðunum og að stefndu beri sameiginlega ábyrgð á þeim brotum. Gerir félagið kröfu um greiðslu dagsekta/févítis skv. fortakslausum ákvæðum í samningi aðila og nemur dómkrafan 1.698.810.718 krónum auk varta og dráttarvarta eins og greinir í stefnu málsins. Þá gerir félagið kröfu um málskostnað in solidum úr hendi stefndu. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, dags. 14. júl 2022, voru stefndu sýknuð af kröfum Sýnar og stefnanda gert að greiða stefndu málskostnað. Sýn hefur áfrýjað málinu til Landsréttar og gert sömu dómkröfur og í héraði.

Mál fyrir eftirlitsstofnunum

Kvörtun til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna ólögmætrar ríkisaðstoðar

Þann 23. febrúar 2021 sendi félagið kvörtun til ESA vegna ólögmætrar ríkisaðstoðar til handa Farice ehf. sem hvorki hafði verið tilkynnt eða samþykkt af stofnuninni. Ríkisaðstoðin varðaði greiðslur á grundvelli þjónustusamnings sem ekki voru í samræmi við efni þjónustusamningsins og aðra fjármuni sem hófðu runnið til Farice ehf. vegna undirbúnings á lagningu nýs fjarskiptasæstrengs. Kvörtunin er enn til athugunar hjá Eftirlitsstofnun ESA.

Áfrýjun ákvörðunar Eftirlitsstofnunar EFTA í máli frá 26. mars 2021 vegna ríkisaðstoðar til Farice ehf. fyrir þriðja fjarskiptasæstrenginn milli Íslands og Evrópu.

Þann 26. mars 2021 samþykkti Eftirlitsstofnun EFTA að aukning hlutafjár í Farice ehf. um 50 milljónir evra, til að fjármagna megi sæstreng milli Íslands og Írlands, samræmdist ríkisaðstoðarreglum EES samningsins.

Sýn taldi að ákvörðun ríkisins um að fela Farice lagningu sæstrengsins feli hins vegar í sér ólögmæta ríkisaðstoð og skaut ákvörðuninni til EFTA-dómstólsins.

Með dómi EFTA dómstólsins, sem kveðinn var upp 1. júní 2022, ógilti dómstóllinn ákvörðun ESA. ESA hafði komist að þeirri niðurstöðu að um ríkisaðstoð væri að ræða í skilningi 1. mgr. 61. gr. EES-samningsins, en að stofnunin taldi ekki vafa leika á um að hún væri samrýmanleg framkvæmd samningsins með visan til c-liðar 3. mgr. 61. gr. samningsins. Dómstóllinn féllst ekki á mat ESA á síðastnefndu atriði og ógilti ákvörðun ESA. Jafnframt var ESA dæmd til greiðslu málskostnaðar.

Á hverjum tíma kunna ýmis mál mál rekin fyrir hinum ýmsu innlendu eftirlitsaðilum. Í engu tilviki hafa verið boðaðar sektarákvarðanir eða aðrar mjög íþyngjandi aðgerðir.

Á þessum tímapunkti getur félagið ekki metið framtiðar skuldbindingar eða kröfur sem leiða af niðurstöðum ofangreinds málareksturs meðal annars vegna þess að það getur tekið langan tíma að fá niðurstöðu í mál, ásamt því að mál geta þróast í ólikar áttir. Vegna þess hefur engin skuldbinding né krafa verið færð í árslutareikning félagsins.

Samandreginn samstæðúárslutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2022
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Ársfjórðungsyfirlit*

2021 2021 2021 2021 2022 2022
1F 2F 3F 4F 1F 2F
Seldar vörur og þjónusta 5.000 5.289 5.533 5.943 5.682 6.009
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu (3.375) (3.759) (3.654) (3.884) (3.666) (4.124)
Framlegð 1.625 1.530 1.879 2.059 2.016 1.885
Hagnaður af sölu óvirkra innviða - - - 2.552 - -
Rekstrarkostnaður (1.583) (1.588) (1.457) (1.731) (1.615) (1.563)
Rekstrarhagnaður (tap) 42 (58) 422 2.880 401 322
Fjármunatekjur 5 6 5 6 21 9
Fjármagnsgjöld (144) (145) (146) (178) (221) (248)
Gengismunur 46 22 (70) 20 58 13
Hrein fjármagnsgjöld (93) (117) (211) (152) (142) (226)
Áhrif hlutdeildarfélaga (193) 20 0 (78) 0 0
Tekjuskattur 13 38 (39) (374) (52) (30)
Hagnaður (tap) tímabilsins (231) (117) 172 2.276 207 66
Þýðingarmunur vegna erlands dótturf. (37) (7) 19 (89) (26) (35)
Heildarafkoma tímabilsins (268) (124) 191 2.187 181 31
EBITDA 1.388 1.488 1.886 4.222 1.710 1.607
EBITDA % 27,8% 28,1% 34,1% 71,0% 30,1% 26,7%
EBITDA aðlöguð fyrir sölu óvirkra innviða 1.388 1.488 1.886 1.670 1.710 1.607

*Ársfjórðungslegar upplýsingar hafa ekki verið kannaðar af endurskoðendum

Samandreginn samstæðuársultareikningur Sýnar hf. 30. júní 2022
Fjárhæðir eru í milljónum kr.