AI assistant
Syn — Interim / Quarterly Report 2022
Nov 2, 2022
2210_rns_2022-11-02_3b56809b-61e2-4af0-b17e-0f9622577f5e.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Sýn hf.
Samandreginn árslutareikningur samstæðu
- janúar til 30. september 2022

Sýn hf. Suðurlandsbraut 8 108 Reykjavik kt. 470905-1740
Efnisyfirlit
| Bls. | |
|---|---|
| Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra | 3 |
| Fjárhagslegar lykiltölur | 5 |
| Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu | 6 |
| Efnahagsreikningur | 7 |
| Eiginfjáryfirlit | 8 |
| Sjóðstreymisyflit | 9 |
| Skýringar | 10 |
| Viðauki: | |
| Ársfjörðungsyfirlit | 14 |
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Sýn hf. er alhliða félag á sviði fjarskipta- og fjölmiðlastarfsemi. Félagið rekur marga af öflugustu fjölmiðlum landsins eins og Stöð 2, Stöð 2+, Bylgjuna, Vísi, FM957, Xið og fleiri landsbekkta miðla. Félagið veitir einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og opinberum aðilum alhliða fjarskipta- og upplýsingatækniþjónustu undir vörumerkjum Vodafone á Íslandi og dótturfélagsins Endor ehf. Félagið á í fjölþættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims.
Árshlutareikningurinn hefur að geyma samandreginn samstæðureikning Sýnar hf. og dótturfélags þess, Endor ehf., ásamt hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga. Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.
Niðurstaða fyrstu níu mánaða ársins
Samkvæmt rekstrarreikningi námu tekjur samstæðunnar af seldum vörum og þjónustu 17.192 millj. kr. á fyrstu 9 mánuðum ársins. Hagnaður af rekstri samstæðunnar á tímabilinu nam 454 millj. kr. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 32.523 millj. kr. Eigið fé samstæðunnar þann 30. september 2022 nam 9.078 millj. kr. Þar af nam hlutafé 2.684 millj. kr. Eiginfjárhlutfallið 30. september 2022 var 27,9%.
Tekjur félagsins hækkuðu um 8,7% á fyrstu níu mánuðum ársins 2022. Hækkunin skýrist helst af góðum vexti í farsimatekjum, aðallega aukningu í IoT og reikitekjum. Tekjuvöxtur hjá dótturfélaginu Endor var einnig sterkur eða 60%. Til viðbótar jukust auglýsingatekjur félagsins um 11%. Á fyrstu níu mánuðum ársins jókst framlegð um 17,6% og hækkaði framlegðarhlutfall um 2,6 prosentustig. Rekstrarkostnaður hækkaði lítílsháttar en rekstrarhagnaður hækkaði um 803 millj. kr. á milli tímabila. Á þriðja ársfjörðungi drógust tekjur saman um 0,6% en framlegð jókst engu að siður um 7,6%.
Samkomulag um einkaviðræður og helstu skilmála
Þann 5. september var skrifað undir samkomulag við Ljósleiðarann ehf. um einkaviðræður og helstu skilmála samninga sem lúta annars vegar að sölu á stofnneti Sýnar hf. til Ljósleiðarans ehf. og hins vegar að þjónustusamningi milli aðila til tiu ára. Viðskiptin munu skila hagkvæmari rekstri og lægri fjárfestingabörf. Samið hefur verið um kaupverð að fjárhæð 3.000 millj. kr. Mat á bókfærðu virði eignanna sem yrðu seldar er tæplega 600 millj. kr. Endanlegur sölu hagnaður liggur ekki fyrir þar sem áreiðanleikakönnun stendur enn yfir og kaup- og þjónustusamningar hafa ekki verið undirritaðir. Sölu hagnaður verður færður í gegnum rekstru á sölu degi. Miðað er við að samningar liggi fyrir eigi siðar en 15. desember nk. Samkomulagið er með fyrirvara um fjármögnun, áreiðanleikakönnun og að Samkeppniseftirlitið sambykki endanlega kaup- og þjónustusamninga um viðskiptin. Sjá nánar í skýringu 11.
Breyting á stjórn félagsins
Stjórn Sýnar hf. boðaði til hluthafafundar þann 31. ágúst að kröfu hluthafa sem fór með rúmlega 16% hlutafjár félagsins. Á fundinum fór fram stjórnarkjör og voru í stjórn kjörin Jóhann Hjartarson, Jón Skaftason, Páll Gíslason, Petrea I. Guðmundsdóttir og Sesselia Birgisdóttir. Stjórn boðaði á ný til hluthafafundar þann 20. október að kröfu hluthafa sem fóru með rúmlega 10% hlutafjár félagsins. Á fundinum fór fram stjórnarkjör og voru í stjórn kjörin Hákon Stefánsson, Jón Skaftason, Páll Gíslason, Rannveig Eir Einarsdóttir og Sesselia Birgisdóttir.
Ráðning forstjóra
Þann 27. september gekk stjórn frá ráðningu Yngva Halldórssonar sem forstjóra félagsins. Yngvi tók við af Heiðari Guðjónssyni sem hafði þann 24. júlí selt öll hlutabréf í Sýn hf. sem hann átti í gegnum eignarhaldsfélag sitt Ursus ehf.
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2022
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2022
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra, frh.:
Yfirlýsing
Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga IAS 34 eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu samstæðunnar 30. september 2022 ásamt rekstrarafkomu og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 30. september 2022.
Stjórn og forstjóri Sýnar hf. hafa í dag fjallað um samandreginn árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2022 og staðfesta hann með undirritun sinni.
Reykjavík, 2. nóvember 2022
Í Stjórn
Jón Skaftason, stjórnarformaður
Rannveig Eir Einarsdóttir, varaformaður
Hákon Stefánsson
Páll Gíslason
Sesselía Birgisdóttir
Forstjóri
Yngvi Halldórsson
Fjárhagslegar lykiltölur
| | 2022
3F | 2021
3F | 2022
9M | 2021
9M |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| Fjárhagsupplysingar | | | | |
| Heildartekjur | 5.501 | 5.533 | 17.192 | 15.822 |
| Rekstrarhagnaður | 486 | 422 | 1.209 | 406 |
| Hagnaður (tap) fyrir tekjuskatt | 214 | 211 | 569 | (188) |
| Hagnaður (tap) tímabilsins | 181 | 172 | 454 | (176) |
| Hagnaður (tap) á hlut | 0,71 | 0,64 | 1,50 | (0,68) |
| Fjárfestingar í rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum | 266 | 319 | 1.006 | 911 |
| Fjárfestingar í sýningarréttum | 560 | 709 | 1.647 | 1.826 |
| Handbært fé frá rekstri | 1.249 | 1.756 | 3.937 | 3.730 |
| Frammistöðumat | | | | |
| EBITDA tímabilsins | 1.799 | 1.886 | 5.116 | 4.762 |
| EBITDA hlutfall tímabilsins | 32,7% | 34,1% | 29,8% | 30,1% |
| Frjálst fjárflæði (FCF)* | 648 | 851 | 1.931 | 2.460 |
| | 30.09.
2022 | 30.06.
2022 | 31.03.
2022 | 31.12.
2021 |
| Hreinar vaxtaberandi skuldir | 15.554 | 15.605 | 15.813 | 14.073 |
*Frjálst fjárflæði samanstendur af handbæru fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt að frádregnum fjárfestingahreyfingum.
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2022
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu
- janúar til 30. september 2022
| Skýr. | 2022 3F | 2021 3F | 2022 9M | 2021 9M | |
|---|---|---|---|---|---|
| Seldar vörur og þjónusta | 5 | 5.501 | 5.533 | 17.192 | 15.822 |
| Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu | 6 | (3.480) | (3.654) | (11.270) | (10.788) |
| Framlegð | 2.021 | 1.879 | 5.922 | 5.034 | |
| Rekstrarkostnaður | 7 | (1.535) | (1.457) | (4.713) | (4.628) |
| Rekstrarhagnaður | 486 | 422 | 1.209 | 406 | |
| Fjármunatekjur | 56 | 5 | 86 | 16 | |
| Fjármagnsgjöld | (262) | (146) | (731) | (435) | |
| Gengismunur | (66) | (70) | 5 | (2) | |
| Hrein fjármagnsgjöld | (272) | (211) | (640) | (421) | |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 0 | 0 | 0 | (173) | |
| Hagnaður (tap) fyrir tekjuskatt | 214 | 211 | 569 | (188) | |
| Tekjuskattur | (33) | (39) | (115) | 12 | |
| Hagnaður (tap) tímabilsins | 181 | 172 | 454 | (176) | |
| Rekstrarliðir færðir á eigið fé sem síðar kunna að vera endurflokkaðir í rekstur | |||||
| Þýðingarmunur | 10 | 19 | (51) | (25) | |
| Heildarafkoma tímabilsins | 191 | 191 | 403 | (201) | |
| Hagnaður (tap) á hlut | 0,71 | 0,64 | 1,50 | (0,68) |
Skýringar á bls. 10-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2022
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Efnahagsreikningur
- september 2022
| Skýr. | 30.9.2022 | 31.12.2021 | |
|---|---|---|---|
| Fastafjármunir | |||
| Leigueignir | 7.979 | 8.049 | |
| Rekstrarfjármunir | 2.538 | 3.212 | |
| Viðskiptavild | 8.856 | 8.888 | |
| Aðrar óefnislegar eignir | 4.387 | 4.469 | |
| Eignahlutir í félögum | 9 | 84 | 62 |
| Tekjuskattsinneign | 28 | 26 | |
| Fastafjármunir samtals | 23.872 | 24.706 | |
| Veltufjármunir | |||
| Sýningarréttir | 1.646 | 1.762 | |
| Birgðir | 601 | 356 | |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 10 | 3.645 | 5.463 |
| Handbært fé | 2.195 | 4.214 | |
| Veltufjármunir samtals | 8.087 | 11.795 | |
| Eignir til sölu | 11 | 564 | 0 |
| Eignir samtals | 32.523 | 36.501 | |
| Eigið fé | |||
| Hlutafé | 2.684 | 2.964 | |
| Yfirverðsreikningur hlutafjár | 885 | 2.465 | |
| Annað eigið fé | 50 | 69 | |
| Óráðstafað eigið fé | 5.459 | 5.037 | |
| Eigið fé | 9.078 | 10.535 | |
| Langtímaskuldir | |||
| Vaxtaberandi skuldir | 4.818 | 4.965 | |
| Leiguskuldbindingar | 11.201 | 11.393 | |
| Aðrar langtímaskuldir | 0 | 180 | |
| Tekjuskattsskuldbinding | 128 | 19 | |
| Langtímaskuldir samtals | 16.147 | 16.557 | |
| Skammtímaskuldir | |||
| Vaxtaberandi skuldir | 475 | 723 | |
| Leiguskuldbindingar | 1.255 | 1.206 | |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 12 | 5.568 | 7.480 |
| Skammtímaskuldir samtals | 7.298 | 9.409 | |
| Skuldir samtals | 23.445 | 25.966 | |
| Eigið fé og skuldir samtals | 32.523 | 36.501 |
Skýringar á bls. 10-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2022
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Eiginfjáryfirlit
- janúar til 30. september 2022
| Hlutafé | Yfirverðs-reikningur hlutafjár | Annað eigið fé | ||||
|---|---|---|---|---|---|---|
| Þýðingar-munur | Bundinn reikningur | Óráðstafað eigið fé | Eigið fé samtals | |||
| 1.1. til 30.9.2021 | ||||||
| Eigið fé 1.1.2021 | 2.964 | 2.465 | 163 | 147 | 2.810 | 8.549 |
| Tap tímabilsins | - | - | - | - | (176) | (176) |
| Þýðingarmunur | - | - | (25) | - | - | (25) |
| Heildarafkoma tímabilsins | 0 | 0 | (25) | 0 | (176) | (201) |
| Þýðingarmunur færður út vegna sölu | (73) | - | - | (73) | ||
| Hagnaður hlutdeildarf. umfram arðgr. | - | - | - | (143) | 143 | 0 |
| Eigið fé 30.9.2021 | 2.964 | 2.465 | 65 | 4 | 2.777 | 8.275 |
1.1. til 30.9.2022
| Eigið fé 1.1.2022 | 2.964 | 2.465 | 49 | 20 | 5.037 | 10.535 |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Hagnaður tímabilsins | - | - | - | - | 454 | 454 |
| Þýðingarmunur | - | - | (51) | - | - | (51) |
| Heildarafkoma tímabilsins | 0 | 0 | (51) | 0 | 454 | 403 |
| Keypt eigin bréf | (280) | (1.580) | - | - | - | (1.860) |
| Hagnaður hlutdeildarf. umfram arðgr. | - | - | - | 32 | (32) | 0 |
| Eigið fé 30.9.2022 | 2.684 | 885 | (2) | 52 | 5.459 | 9.078 |
Skýringar á bls. 10-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2022
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Sjóðstreymisyfirlit
- janúar til 30. september 2022
| Skýr. | 2022 3F | 2021 3F | 2022 9M | 2021 9M | |
|---|---|---|---|---|---|
| Hagnaður (tap) tímabilsins samkvæmt rekstrarreikningi | 181 | 172 | 454 | (176) | |
| Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | |||||
| Sólutap | 0 | 0 | (2) | 0 | |
| Afskriftir | 8 | 1.313 | 1.464 | 3.907 | 4.356 |
| Hrein fjármagnsgjöld | 272 | 211 | 640 | 421 | |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 0 | 0 | 0 | 173 | |
| Tekjuskattur | 33 | 39 | 115 | (12) | |
| Veltufé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt | 1.799 | 1.886 | 5.114 | 4.762 | |
| Breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum: | |||||
| Birgðir, breyting | (15) | (18) | (237) | (58) | |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, breyting | (86) | (157) | 1.807 | (396) | |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, breyting | (208) | 183 | (2.080) | (161) | |
| Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt | 1.490 | 1.894 | 4.604 | 4.147 | |
| Innborgaðar vaxtatekjur | 14 | 5 | 44 | 15 | |
| Greidd vaxtagjöld | (255) | (143) | (711) | (432) | |
| Handbært fé frá rekstri | 1.249 | 1.756 | 3.937 | 3.730 | |
| Fjárfestingahreyfingar | |||||
| Keyptir eignarhlutir | 9 | (16) | (15) | (22) | (15) |
| Sala eignarhluta | 9 | 0 | 0 | 0 | 1.065 |
| Fjárfesting í rekstrarfjármunum | (97) | (104) | (516) | (275) | |
| Fjárfesting í óefnislegum eignum | (169) | (215) | (490) | (636) | |
| Fjárfesting í sýningarrétti | (560) | (709) | (1.647) | (1.826) | |
| Sala rekstrarfjármuna | 0 | 0 | 2 | 0 | |
| Fjárfestingahreyfingar | (842) | (1.043) | (2.673) | (1.687) | |
| Fjármögnunarhreyfingar | |||||
| Afborganir langtímalána | (119) | (161) | (356) | (999) | |
| Rekstrarlán | 0 | (248) | (40) | (573) | |
| Afborgun leiguskuldbindinga | (348) | (282) | (1.019) | (867) | |
| Keypt eigin bréf | 0 | 0 | (1.860) | 0 | |
| Fjármögnunarhreyfingar | (467) | (691) | (3.275) | (2.439) | |
| Breyting á handbæru fé | (60) | 22 | (2.011) | (396) | |
| Handbært fé í byrjun tímabils | 2.252 | 402 | 4.214 | 831 | |
| Áhrif gengisumreiknings dótturfélaga á handbært fé | 3 | 6 | (8) | (5) | |
| Handbært fé í lok tímabilsins | 2.195 | 430 | 2.195 | 430 |
Skýringar á bls. 10-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2022
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Skýringar
1. Félagið
Sýn hf. („félagið“) er íslensk hltafélag. Höfuðstöðvar félagsins eru að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík. Sýn hf. veitir einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum alhliða fjarskipta-, fjölmiðla-, og tækniþjónustu í gegnum vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Stöð 2 Sport, Stöð 2+, Visir, Bylgjan, FM957, X 977 og dótturfélagið Endor ehf. Félagið á í fjölpættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims. Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar fyrir timabilið 1. janúar til 30. september 2022 hefur að geyma árshlutareikning félagsins, dótturfélag þess, Endor ehf. og hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf., sem visað er til í heild sem „samstæðunnar“.
2. Reikningsskilin
a. Grundvöllur reikningsskilanna
Samstæðuárshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga. Samstæðuárshlutareikningur félagsins 1. janúar til 30. september 2022 hefur hvorki verið endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.
Samstæðuárshlutareikningurinn er gerður eftir sömu reikningsskilareglum og lágu til grundvallar við gerð ársreiknings fyrir árið 2021. Hann inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2021. Hægt er að nálgast ársreikning Sýnar hf. á heimasiðu félagsins www.syn.is. og á vef Kauphallar Íslands; www.nasdaqomxnordic.com.
b. Mat stjórnenda á reikningsskilum
Gerð samstæðuárshlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og dragi ályktanir sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaarðerða og birtar fjárhæðir eigna og skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrögur þessu mati.
Það er mat stjórnenda að mismunur á gangvírði og bókfærðu verði fjáreigna og fjárskulda sé óverulegur.
3. Starfrækslu- og framsetningargjaldmiðill
Samstæðuárshlutareikningur félagsins er birtur í íslenskum krónum, sem er framsetningargjaldmiðill samstæðunnar. Allar fjárhæðir eru birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.
4. Starfsþáttayfirlit
Samstæðan skilgreinir starfsþætti eftir innri upplýsingagjóf til stjórnenda og telst samstæðan í heild vera einn starfsþáttur.
5. Seldar vörur og þjónusta
| 2022 | 2021 | 2022 | 2021 | |
|---|---|---|---|---|
| Seldar vörur og þjónusta greinast pannig: | 3F | 3F | 9M | 9M |
| Vörusala | 308 | 292 | 904 | 896 |
| Seld þjónusta | 5.193 | 5.241 | 16.288 | 14.926 |
| Seldar vörur og þjónusta samtals | 5.501 | 5.533 | 17.192 | 15.822 |
| Tekjustraumar | Fjöl-míðlun | Internet | Farsími | Fastlína |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| 1.1. til 30.9.2022 | ||||
| Tekjur | 6.353 | 3.328 | 3.946 | 370 |
| 1.1. til 30.9.2021 | ||||
| --- | --- | --- | --- | --- |
| Tekjur | 6.194 | 3.366 | 3.252 | 407 |
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2022
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Skýringar, frh.:
- Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu
| Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu greinist þannig: | 2022 | 2021 | 2022 | 2021 |
|---|---|---|---|---|
| 3F | 3F | 9M | 9M | |
| Kostnaðarverð seldrar vara og þjónustu | 1.961 | 2.034 | 6.597 | 5.778 |
| Laun og launatengd gjöld | 540 | 470 | 1.765 | 1.605 |
| Eignfærð laun | (50) | (28) | (148) | (90) |
| Afskriftir | 1.029 | 1.178 | 3.056 | 3.495 |
| Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu samtals | 3.480 | 3.654 | 11.270 | 10.788 |
- Rekstrarkostnaður
| Rekstrarkostnaður greinist þannig: | 2022 | 2021 | 2022 | 2021 |
|---|---|---|---|---|
| 3F | 3F | 9M | 9M | |
| Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður | 394 | 311 | 1.169 | 956 |
| Sölu- og markaðskostnaður | 99 | 137 | 252 | 383 |
| Laun og launatengd gjöld | 831 | 778 | 2.665 | 2.527 |
| Eignfærð laun | (73) | (55) | (224) | (99) |
| Afskriftir | 284 | 286 | 850 | 861 |
| Rekstrarkostnaður samtals | 1.535 | 1.457 | 4.713 | 4.628 |
- Afskriftir
| Afskriftir í rekstrarreikningi greinast þannig: | 2022 | 2021 | 2022 | 2021 |
|---|---|---|---|---|
| 3F | 3F | 9M | 9M | |
| Afskriftir rekstrarfjármuna | 183 | 248 | 626 | 746 |
| Afskriftir óefnislegra eigna | 213 | 182 | 572 | 555 |
| Afskriftir afnotaréttar | 351 | 286 | 946 | 853 |
| Afskriftir sýningarréttar | 566 | 748 | 1.763 | 2.202 |
| Afskriftir samtals | 1.313 | 1.464 | 3.907 | 4.356 |
- Eignarhlutir í félögum
| Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum greinast þannig: | 30.9.2022 | 31.12.2021 |
|---|---|---|
| Bókfært verð 1.1. | 39 | 1.375 |
| Seldir eignarhlutir | 0 | (1.103) |
| Fjárfesting á árinu | 16 | 18 |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 0 | (251) |
| Bókfært verð eignarhluta í hlutdeildarfélögum samtals | 55 | 39 |
| Eignarhlutir í öðrum félögum | 29 | 23 |
| Bókfært verð eignarhluta í félögum samtals | 84 | 62 |
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2022
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Skýringar, frh.:
- Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur
| Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur greinast þannig: | 30.9.2022 | 31.12.2021 |
|---|---|---|
| Viðskiptakrófur | 3.072 | 3.326 |
| Viðskiptakrófur vegna sölu á óvirkum innviðum | - | 1.649 |
| Aðrar skammtímakrófur | 478 | 392 |
| Leigukrófur | 184 | 187 |
| Niðurfærsla viðskiptakrafna | (89) | (91) |
| Viðskiptakrófur og aðrar skammtímakrófur samtals | 3.645 | 5.463 |
- Sala á burðarneti
Þann 5. september skrifuðu Sýn hf. og Ljósleiðarinn ehf. undir samkomulag um einkaviðræður og helstu skilmála samninga sem lúta annars vegar að sölu á stofnneti Sýnar hf. til Ljósleiðarans ehf. og hins vegar að þjónustusamningi milli aðila til tiu ára.
Samið hefur verið um kaupverð að fjárhæð 3.000 millj. kr. Þann 30. september 2022 voru færðar 564 millj. kr. á eignir til sölu vegna þessa. Endanlegur sölurhagnaður liggur ekki fyrir þar sem áreiðanleikakönnun stendur enn yfir og kaup- og þjónustusamningar hafa ekki verið undirritaðir. Miðað er við að endanlegir samningar liggi fyrir eigi síðar en 15. desember nk.
Samkomulagið er með fyrirvara um fjármögnun, áreiðanleikakönnun og að Samkeppniseftirlitið samþykki endanlega kaup- og þjónustusamninga um viðskiptin.
- Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast þannig: | 30.9.2022 | 31.12.2021 |
|---|---|---|
| Viðskiptaskuldir | 3.886 | 3.867 |
| Ógreiddur virðisaukaskattur | 352 | 360 |
| Ógreiddur virðisaukaskattur vegna sölu óvirkra innviða | - | 1.649 |
| Fyrirfram innheimtar tekjur | 397 | 485 |
| Ógreiddur áfallinn kostnaður og aðrar skammtímaskuldir | 933 | 1.119 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir samtals | 5.568 | 7.480 |
- Önnur mál
Sýn hf. („félagið“) á í málarekstri við einstaklinga, önnur félög og eftirlitsstofnanir á íslenskum fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði. Félagið færir skuldbindingar og/eða kröfur vegna málareksturs þegar hægt er að meta framtíðargreiðslur og ávinning með áþreifanlegum hætti. Vegna óvissu um framtíðarþrón málarekstrar, niðurstöður dómsmála, úrskurði, áfrýjanir og sættir í málum geta niðurstöður mála leitt til viðbótar skuldbindinga og kostnaðar fyrir félagið. Hér að neðan er gerð grein fyrir málum sem fengu framgang á reikningstímabilinu og eftir atvikum eftir reikningsskiladag. Að öðru leyti visast til skýringa í ársreikningi vegna rekstrarársins 2021.
Síminn gegn Póst- og fjarskiptastofnun (nú Fjarskiptastofa), Sýn hf. og Gagnaveitu Reykjavíkur ehf. (nú Ljósleiðarinn ehf.), og gagnsök
Í málinu gerir stefnandi málsins, Síminn hf., aðallega kröfu um að ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 10/2018 verði fellð úr gildi í heild sinni. Til vara er gerð sú krafa að 6. tl. ákvörðunarinnar, um álagningu stjórnvaldssektar á Síminn, verði fellður úr gildi eða sektarfjárhæðin lækkuð. Þá er gerð krafa um að stefndu verði dæmd til greiðslu málskostnaðar.
Ágreiningur málsins lýtur fyrst og fremst að tülkun á ákvæði 5. mgr. 45. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011 og hvort Síminn hafi brotið gegn ákvæðinu með því að bjóða eingöngu upp á efnisveitu sina til þeirra sem keyptu fjarskiptapjónustu hjá samstæðu Síminn, með það að markmiði að ná viðskiptavinum í fjarskiptapjónustu. Dómur féll í héraði 1. júli 2020 þar sem stjórnvaldssekt skv. ákvörðun PFS var lækkuð en að öðru leyti var kröfum Síminn hafnað. Sýn áfrýjaði málinu til Landsréttar, sem og Síminn og PFS. Dómkröfur félagsins fyrir Landsrétti voru að sýknað yrði af öllum kröfum Síminn í héraði og að Síminn yrði dæmdur til að greiða félaginu málskostnað í héraði og fyrir Landsrétti. Með dómi Landsréttar, sem kveðinn var upp þann 24. júni 2022, voru áfrýjendur Sýn og PFS sýknuð af öllum kröfum Síminn. Málskostnaður í héraði og fyrir Landsrétti féll niður. Síminn hefur fengið áfrýjunarleyfi frá Hæstarétti.
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2022
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Skyringar, frh.:
- Önnur mál, frh.:
Síminn gegn Póst- og fjarskiptastofnun (nú Fjarskiptastofa), Sýn hf. og Gagnaveitu Reykjavíkur ehf. (nú Ljósleiðarinn ehf.), og gagnsók, frh.:
Pað leiðir af dómi Landsréttar, verði honum ekki hnekkt, að upphafleg ákvörðun PFS er staðfest og Síminn talinn hafa fullframið brot á 5. mgr. 45. gr. fjölmiðlalaga. Jafnframt kann dómurinn að treysta grundvöll skaðabótakrafna á hendur Símanum, sbr. umfjöllun að neðan.
Skaðabótakrófur gegn Símanum hf.
Sýn hf. hefur fyrir héraðsdómi gert skaðabótakrófu á hendur Símanum hf. vegna fjártjóns sem Síminn hafi valdið félaginu í tengslum við brot gegn 5. mgr. 45. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011. Lýtur málið að tjóni sem félagið telur sig hafa orði fyrir vegna háttsemi Símans á tímabilinu frá 1. okt. 2015 til 1. des. 2017.
Félagið hefur einnig lagt fram beiðni um dómkvaðningu matsmanna vegna þess tjóns sem það varð fyrir vegna háttsemi og markaðsaðgerða Símans, m.a. í tengslum við brot gegn 5. mgr. 45. gr. fjölmiðlalaga, vegna tímabilins frá 2. des. 2017 til 31. des. 2019. Dómkvaddir matsmenn skiluðu mati sínu þann 3. ágúst sl. og tóldu fjárhagslegt tjón félagsins á tímabilinu 1. október 2015 til 31. desember 2019 samtals nema allt að 270 millj. kr.
Krafa á Ingibjörgu Pálmadóttur, Jón Ásgeir Jóhannesson og 365 hf.
Sýn hf. hefur hófðað mál fyrir héraðsdómi og gert fjárkrófu á hendur 365 hf., Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Ingibjörgu Stefaníu Pálmadóttur. Aðilar gerðu með sér samning um kaup félagsins á umfangsmi killi starfsemi stefnda 365 hf. Í samningnum var að finna ákvæði um hömlur á samkeppni af hálfu stefndu og jafnframt ákvæði um dagsektir/févíti yrði brotið gegn samkeppnisákvæðum. Undirgengust bæði 365 hf. og svo þeir sem stóðu að hinum keypta rekstri persónulega skuldbindingar hvað þetta varðaði. Dómkrafan byggir á því að brotið hafi verið gegn samkeppnisákvæðunum og að stefndu beri sameiginlega ábyrgð á þeim brotum. Gerir félagið kröfu um greiðslu dagsekta/févítis skv. fortakslausum ákvæðum í samningi aðila og nemur dómkrafan 1.699 millj. kr. auk vaxta og dráttarvaxta eins og greinir í stefnu málsins. Pá gerir félagið kröfu um málskostnað in solidum úr hendi stefndu. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, dags. 14. júli 2022, voru stefndu sýknuð af kröfum Sýnar og stefnanda gert að greiða stefndu málskostnað. Sýn hefur áfrýjað málinu til Landsréttar og gert sömu dómkröfur og í héraði.
Mál fyrir eftirlitsstofnunum
Kvörtun til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna ólögmætrar ríkisaðstoðar
Þann 23. február 2021 sendi félagið kvörtun til ESA vegna ólögmætrar ríkisaðstoðar til handa Farice ehf. sem hvorki hafði verið tilkynnt eða samþykkt af stofnuninni. Ríkisaðstoðin varðaði greiðslur á grundvelli þjónustusamnings sem ekki voru í samræmi við efni þjónustusamningsins og aðra fjármuni sem hófðu runnið til Farice ehf. vegna undirbúningar á lagningu nýs fjarskiptasæstrengs. Kvörtunin er enn til athugunar hjá Eftirlitsstofnun ESA.
Áfrýjun ákvörðunar Eftirlitsstofnunar EFTA í máli frá 26. mars 2021 vegna ríkisaðstoðar til Farice ehf. fyrir þriðja fjarskiptasæstrenginn milli Íslands og Evrópu.
Þann 26. mars 2021 samþykkti Eftirlitsstofnun EFTA að aukning hlutafjár í Farice ehf. um 50 millj. evra, til að fjármagna megi sæstreng milli Íslands og Írlands, samræmdist ríkisaðstoðarreglum EES samningsins.
Sýn taldi að ákvörðun ríkisins um að fela Farice lagningu sæstrengsins feli hins vegar í sér ólögmæta ríkisaðstoð og skaut ákvörðuninni til EFTA-dómstólsins.
Með dómi EFTA dómstólsins, sem kveðinn var upp 1. júní 2022, ógilti dómstóllinn ákvörðun ESA. ESA hafði komist að þeirri niðurstöðu að um ríkisaðstoð væri að ræða í skilningi 1. mgr. 61. gr. EES-samningsins, en að stofnunin taldi ekki vafa leika á um að hún væri samrýmanleg framkvæmd samningsins með vísan til c-liðar 3. mgr. 61. gr. samningsins. Dómstóllin féllst ekki á mat ESA á síðastnefndu atriði og ógilti ákvörðun ESA. Jafnframt var ESA dæmd til greiðslu málskostnaðar.
Engin áhrif færð í árshlutareikning
Á hverjum tíma kunna ýmis mál rekin fyrir hinum ýmsu innlendu eftirlitsaðilum. Í engu tilviki hafa verið boðaðar sektarákvarðanir eða aðrar mjög ípyngjandi aðgerðir.
Á þessum tímapunkti getur félagið ekki metið framtíðarskuldbindingar eða kröfur sem leiða af niðurstöðum ofangreinds málareksturs meðal annars vegna þess að það getur tekið langan tíma að fá niðurstöðu í mál, ásamt því að mál geta þróast í ólikar áttir. Vegna þess hefur engin skuldbinding né krafa verið færð í árshlutareikning félagsins.
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2022
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Ársfjörðungsyfirlit
| 2022 1F | 2022 2F | 2022 3F | Samtals | |
|---|---|---|---|---|
| Seldar vörur og þjónusta | 5.682 | 6.009 | 5.501 | 17.192 |
| Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu | (3.666) | (4.124) | (3.480) | (11.270) |
| Framlegð | 2.016 | 1.885 | 2.021 | 5.922 |
| Rekstrarkostnaður | (1.615) | (1.563) | (1.535) | (4.713) |
| Rekstrarhagnaður | 401 | 322 | 486 | 1.209 |
| Fjármunatekjur | 21 | 9 | 56 | 86 |
| Fjármagnsgjöld | (221) | (248) | (262) | (731) |
| Gengismunur | 58 | 13 | (66) | 5 |
| Hrein fjármagnsgjöld | (142) | (226) | (272) | (640) |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 0 | 0 | 0 | 0 |
| Tekjuskattur | (52) | (30) | (33) | (115) |
| Hagnaður tímabilsins | 207 | 66 | 181 | 454 |
| Þýðingarmunur vegna erlands dótturfélags | (26) | (35) | 10 | (51) |
| Heildarafkoma tímabilsins | 181 | 31 | 191 | 403 |
| EBITDA | 1.710 | 1.607 | 1.799 | 5.116 |
| EBITDA % | 30,1% | 26,7% | 32,7% | 29,8% |
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2022
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Ársfjörðungsyfirlit
| 2021 1F | 2021 2F | 2021 3F | 2021 4F | Samtals | |
|---|---|---|---|---|---|
| Seldar vörur og þjónusta | 5.000 | 5.289 | 5.533 | 5.943 | 21.765 |
| Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu | (3.375) | (3.759) | (3.654) | (3.884) | (14.672) |
| Framlegð | 1.625 | 1.530 | 1.879 | 2.059 | 7.093 |
| Hagnaður af sölu óvirkra innviða | - | - | - | 2.552 | 2.552 |
| Rekstarkostnaður | (1.583) | (1.588) | (1.457) | (1.731) | (6.359) |
| Rekstrarhagnaður (tap) | 42 | (58) | 422 | 2.880 | 3.286 |
| Fjármunatekjur | 5 | 6 | 5 | 6 | 22 |
| Fjármagnsgjöld | (144) | (145) | (146) | (178) | (613) |
| Gengismunur | 46 | 22 | (70) | 20 | 18 |
| Hrein fjármagnsgjöld | (93) | (117) | (211) | (152) | (573) |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | (193) | 20 | 0 | (78) | (251) |
| Tekjuskattur | 13 | 38 | (39) | (374) | (362) |
| Hagnaður (tap) tímabilsins | (231) | (117) | 172 | 2.276 | 2.100 |
| Þýðingarmunur vegna erlands dótturfélags | (37) | (7) | 19 | (89) | (114) |
| Heildarafkoma tímabilsins | (268) | (124) | 191 | 2.187 | 1.986 |
| EBITDA | 1.388 | 1.488 | 1.886 | 4.222 | 8.984 |
| EBITDA aðlögð fyrir sölu óvirkra innviða | 1.388 | 1.488 | 1.886 | 1.670 | 6.432 |
| EBITDA % | 27,8% | 28,1% | 34,1% | 71,0% | 41,3% |
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2022
Fjárhæðir eru í milljónum kr.