AI assistant
Syn — Interim / Quarterly Report 2020
May 13, 2020
2210_rns_2020-05-13_cb845eb8-1314-4ea3-9894-fa3882fcb9d4.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
vodafone
- mai 2020
Fréttatilkynning: Afkoma Sýnar hf. á fyrsta fjórðungi ársins 2020.
Áhrif COVID-19 sjaanleg á fjórðungnum
Árshlutareikningur Sýnar hf. fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2020 var sambykktur á stjórnarfundi þann 13. Mai 2020.
Helstu niðurstöður:
- Tekjur á fyrsta ársfjórðungi (1F) 2020 námu 4.995 milljónum króna sem er á pari við sama tímabil 2019. Tekjur Endor ehf. á 1F 2020 eru nú í fyrsta skipti hluti af samstæðuárshlutareikningi félagsins og nema 371 milljónum króna.
- EBITDA nam 1.355 milljónum króna á 1F í samanburði við 1.260 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 27,1% á 1F 2020 samanborið við 25,3% á 1F 2019.
- Tap á 1F 2020 nam 350 milljónum króna samanborið við 670 milljón króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Inni í hagnaði 1F 2019 var söluhagnaður að fjárhæð 817 milljónir króna vegna sölu á færeyska dótturfélaginu Hey.
- Handbært fé frá rekstri á fjórðungnum nam 1.053 milljónum króna samanborið við 819 milljónir króna á sama tímabili árið áður, sem er aukning um 29%.
- Heildarfjárfestingar félagsins á fyrstu þremur mánuðum ársins námu 738 milljónum króna þar af eru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) 263 milljónir króna og fjárfesting í sýningarréttum 475 milljónir króna.
- Fjármögnunarhreyfingar á fyrstu þremur mánuðum ársins voru neikvæðar á tímabilinu um 590 milljónir króna á móti 5 milljónum króna á sama tímabili árið 2019 sem er breyting um 585 milljónir króna.
- Eiginfjárhlutfall Sýn hf. var 26,8% í lok fyrsta fjórðungs ársins 2020.
- Það er áframhaldandi markmið stjórnenda að ná aukinni EBITDA framlegð og betra sjóðstremi úr rekstri félagsins á árinu 2020. Skipulega er unnið að slíkri breytingu en ekki er að fullu fyrirséð að hve miklu leyti COVID-19 faraldurinn muni hafa áhrif á þetta markmið. Fjárfestingar ársins í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) verða í kringum 1 milljarður.
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
2020
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
^{}[]
Helstu niðurstöður í rekstri 1F 2020
| 1F 2020 | 1F 2019 | Breyt. | % breyt. | |
|---|---|---|---|---|
| Seldar vörur og þjónusta | 4.995 | 4.975 | 20 | 0% |
| Kostnaðarverð | -3.350 | -3.068 | -282 | 9% |
| Framlegð | 1.645 | 1.907 | -262 | -14% |
| Rekstrarkostnaður | -1.666 | -1.822 | 156 | -9% |
| EBITDA | 1.355 | 1.260 | 95 | 8% |
| EBIT | -21 | 85 | -106 | -125% |
| Hrein fjármagnsgjöld | -441 | -258 | -183 | 71% |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 20 | 820 | -800 | -98% |
| Tekjuskattur | 92 | 23 | 69 | 300% |
| Tap / Hagnaður tímabilsins | -350 | 670 | -1.020 | -152% |
| Framlegð | 32,9% | 38,3% | ||
| --- | --- | --- | ||
| EBITDA | 27,1% | 25,3% | ||
| EBIT | -0,4% | 1,7% |
Heiðar Guðjónsson, forstjóri:
„Við reyndum að vera varkár í spám okkar fyrir árið en það var ekki inn í okkar svartsýnustu sviðsmynd að hagkerfið myndi meira og minna loka. Við náum samt að sýna aukningu í EBITDA, eins og við höfðum stefnt að. Það helgast mest af því að við erum að ná að gera fyrirtækið sveigjanlegra. Störfum hefur fækkað frá síðasta ári um rúmlega 100 og deildir fyrirtækisins vinna hagkvæmar. Vegna ástandsins þurftum við að loka verslunum, hætta vettvangsþjónustu og auglýsingatekjur lækkuðu mikið. Gagnaverið á Korputorgi hefur verið tekið í notkun en vegna COVID-19 hefur yfirfærsla gagna tafist, en er núna í gangi.
Áfram er unnið að því að hagræða í kringum uppbyggingu á 5G og á skyldum innviðum. Við vonumst eftir að geta kynnt útfærslu á næstu 3 mánuðum og teljum að fjarskiptafélögin hafi þar sömu hagsmuni og almenningur.
Frjálst sjóðstreymi eykst um yfir 500 milljónir á milli ára. Við leggjum sérstaka áherslu á að bæta sjóðstreymi rekstrarins.“
vodafone
^{}[]
vísir
^{}[]
SPORT
BYLGJAN
2020
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
Rekstrarafkoma á 1. ársfjórðungi 2020:
Tekjur félagsins á 1F 2020 námu 4.995 milljónum króna sem er á pari við sama tímabil í fyrra.
Tekjur af fjölmiðlun námu 1.943 milljónum króna á 1F og lækkuðu um 11% á milli ára. Tekjur af interneti námu 1.160 milljónum króna á 1F, sem er lækkun um 46 milljónir króna á milli ára eða 4%. Tekjur af farsima námu 911 milljónum króna og eru á pari við sama tímabil árið 2019. Tekjur af fastlínu námu 167 milljónum króna á 1F og lækkuðu um 24% á milli ára. Tekjur vegna hýsingar- og rekstrarlausna sem er kjarnastarfsemi Endor ehf. námu 371 milljónum króna. Tekjur af vörusölu námu 235 milljónum króna á tímabilinu sem er 5% lækkun miðað við sama ársfjórðung 2019. Aðrar tekjur námu 208 milljónum króna á 1F og lækkuðu um 4% á milli ára.
Kostnaðarverð nam 3.350 milljónum króna og hækkaði um 9% á milli ára. Rekstrarkostnaður nam 1.666 milljónum króna og er 9% lægri en á sama tímabili árið 2019. EBITDA tímabilsins nam 1.355 milljónir króna og hækkar um 95 milljónir króna miðað við sama tímabil árið 2019. EBITDA hlutfall var 27,1%.
Hrein fjármagnsgjöld námu 441 milljónum króna á 1F 2020 sem er hækkun um 183 milljónir króna á milli ára. Gengistap eykst um 183 milljónir frá 1F 2019, vextir af langtímaskuldum lækka um 50,5 milljónir milli fjórðunga en vextir vegna IFRS 16 aukast um 51,3 milljónir sem skýrist að mestu af viðbót vegna fjármögnunarleigusamninga Endors. Tap á 1F 2020 nam 350 milljónum króna samanborið við 670 milljóna króna hagnað á sama tímabili í fyrra.
Sjóðstreymi 1. ársfjórðungs 2020:
Handbært fé frá rekstri á 1F ársins 2020 var 1.053 milljónir króna sem er 29% hækkun frá fyrra ári.
Fjárfestingahreyfingar námu 738 milljónum króna.
Fjármögnunarhreyfingar
félagsins námu 590 milljónum
króna á 1F 2020.
Handbært fé í lok 1F nam 385 milljónum króna sem er hækkun um 243 milljónir króna miðað við sama tímabil árið 2019.

Sjóðstreymi 1F 2020
vodafo ne
vísir
SPORT
BYLGJAN
669
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
Efnahagur 31. mars 2020:
Eigið fé í lok tímabilsins nam 8.446 milljónum króna og eiginfjárhlutfall var 26,8%. Útgefið hlutafé í lok tímabilsins nam 2.964 milljónum króna.
Heildarskuldir félagsins voru 23.077 milljón króna í lok fyrsta ársfjórðungs ársins 2020. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 17.345 milljón króna í lok fjórðungsins. Veltufjárhlutfall var 1,2.
Kynningarfundur 14. maí 2020:
- Opinn kynningarfundur vegna uppgjörsins verður haldinn fimmtudaginn 14.maí 2020. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum Sýnar, 6. hæð, Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík og hefst klukkan 8:30.
- Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á síðu fjárfestatengsla Sýnar á https://syn.is/fjarfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
- Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni https://syn.is/fjarfestatengsl.
Fjárhagsdagatal 2020:
✓ Afkoma 2F 2020
26. ágúst 2020
✓ Afkoma 3F 2020
4. nóvember 2020
✓ Afkoma 4F 2020
24. febrúar 2021
✓ Aðalfundur 2020
19. mars 2021
Frekari upplýsingar:
✓ Tekið er á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið fjá[email protected].
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
KÝT
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is